Lögberg - 09.07.1943, Side 1
PHONES 86 311
Seven Lines
ioí
AVC
,A
Coí
„i'110
, rCrs «n'
ier a*a
rleant'rS
1 l)r’J/^G't°‘
i^v£
For Belter
Dry Cleaning
and Laundry
•»5W1“*S$oc>Æ«íh •
56 ÁRGANGUR
—■ *• ■ . ■■«■■■—■ - . i ..- —
Þing Bandalags Lúterskra kvenna
Haldið í Fyrstu Lútersku kirkju, Wpg., 1.—3. júlí 1943.
Þingið var sett af forseta. Mrs.
G. Thorleifsson, kl. 2. e. h. 1.
júlí. Mrs. A. H. Gray bauð gesti
og erindreka velkomna fyrir
hönd kvenfélags Fyrsta lút. safn- ,
aðar og Junior Ladies Aid, sem
í félagi tóku á móti þinginu.
Þessi félög eiga heiður skilið
fyrir hlýjar viðtökur, og fyrir
veitingar sem voru ágætar þrátt
fyrir skömtun á mat og aðra
erfiðleika. Hafið þökk fyrir, kon-
ur!
Fulltrúar hinna ýmsu kven-
félaga voru þessir:
I. Kvenfél. Fyrsta lúterska
safn., Wpg.
Mrs. Sveinn Pálmason
Mrs. A. C. Johnson
Mrs. J. S. Gillie^.
Mrs. J. K. Johnson
2. Junior Ladies Aid, Wpg.
Mrs. Fjóla Gray
Mrs. Freda Jonasson
Mrs. Pauline Armstrong
3. Kvenfél. Selkirk safn., Sel-
kirk.
Mrs. W. P. Thorsteinson
Mrs. Anna Magnússon.
4. Kvenfél. “Úndína” Hekla.
Mrs. S. Sigurgeirson.
5. Kvenfél. “ísafold”, Víðir.
Mrs. Anna Austman.
6. Kvenfél “Stjarnan”, Árnes.
Miss Fríða Thorkelson.
7. Kvenfél. Fríkirkju safn.,
Brú.
Mrs. H. Jósefphson.
8. Kvenfél. Glenboro safn.,
Glenboro.
Mrs. Sigrún Sigurðson.
9. Kvenfél. “Freyja”, Geysir.
Mrs. Pearl Wold.
10. Kvenfél. Árdals safn.,
Árborg.
Mrs. Margrét Hanneson.
Mrs. B. M. Paulson.
II. Kvenfél. Herðubreiðar
safn., Langruth.
Mrs. S. B. Olson.
Mrs. J. Hanneson.
12. Kvenfél. “Björk”, Lundar.
Mrs. Ólöf Hallson.
Mrs. Dóra Goodman.
13. Kvenfél. Fjólan, Brown.
Mrs. Sigfríður Líndal.
14. Kvenfél. Frelsis safn.,
Grund.
Mrs. Vilborg Goodman.
15. Kvenfél. “Baldursbrá”
Baldur.
Mrs. C. Thorsteinson.
16. Kvenfél. “Framsókn”
Gimli.
Mrs. J. Tergesen.
17. Trúboðsfél. fyrsta lúterska
safn., Wpg.
Mrs. Hansína Olson.
18. Immanuel Missiorary,
Society, Wynyard — gestur —
Mrs. Jósefsson.
Fyrir utan þessa 26 fulltrúa
þá sátu þingið: 9 meðlimir
stjórnarnefndar, 8 meðlimir
námsskeiðsnefndar, 1 einstak-
lingsmeðlimur, Mrs. S. Oddson,
Wpg., °g 4 prestskonur, þær
Mrs. V. J. Eylands, Mrs. S.
Ólafson, Mrs. B. B. Jónsson og
Mrs. B. A. Bjarnason.
Prestar viðstaddir á þinginu
og sem ávörpuðu það voru:
Séra R. Marteinsson, séra H.
Sigmar, séra S. Ólafsson, séra
V. J. Eylands og séra B. A.
Bjarnason.
Því fólki sem skemti á meðan
á þin^inu stóð var vinsamlega
þakkað fyrir það. Þeir sem
skemtu á fimtudagskvöldið
voru:
1. Agnes Sigurðson — Píanó-
I
I
í
sóló.
Mrs. S. Ólafsson — Erindi:
“Systurnar þrjár í Kína”.
3. Miss Margaret Helgason —
Einsöngur, frú Björg ísfeld við
hljóðfæri^i.
4. Mrs. Victor Bagger, trúboði:
frá Indlandi. — Erindi um starf
þeirra hjóna á meðal hinna holds
veiku í Indlandi.
Y föstudagskvöldið tóku þess-
ir þátt í skemtiskránni:
1. Miss Snjólaug Sigurðson —
Píanó-sóló.
2. Salin Jónasson, fromsögn.
3. Mrs. J. K. Ólafson, frá
Gardar N. D., flutti erindi um
“Framtíðarhorfur”.
4. Mrs. Kerr Wilson — Ein-
söngur, aðstoðaður af Mrs.
Wilson.
5. Mrs. V. J. Eylands — Erindi
“Formæður okkar.”
, Skýrslur frá kvenfélögunum
báru vott um meiri áhuga og
meira starf heldur en » nokkru
sinni áður. 480 meðlimir félag-
anna hafa inntekið um $8000,
á árinu, og hefir sú upphæð
verið notuð til þess að styrkja
söfnuði, Reo} Cross, og aðra
sjóði í sambandi við stríðið;
til þess að hjálpa bágstöddum
gleðja hermenn, o. s. frv.
Skýrsla féhirðis, Mrs. G.
Jóhannson sýndi $295.12 í sjóði
B.L.K. Henni var þakkað starf
hennar.
Skýrsla ráðskonu Árdísar,
Mrs. H. Johnson, sýndi $495.89
í sjóði.
Dagskrá þingsins:
1. Camp-bygging.
a. Landkaup. Tillaga var
studd og samþvkkt að landkaupa
nefndinni sé þakkað tveggja ára
starf hennar og að þingið stað-
festi gerðir hennar í því að
kaupa land, sem er 10 mílur fyr-
ir norðan Gimli, þar sem haft
er í huga að byggja “Camp”.
Skýrsla féhirðis námsskeiðs
nefndarinnar, Mrs. H. Daníels-
son, sýndi $608.26 í sjóði.
b. Samvinna með camp-bygg-
ingu. Skriflegt tilboð kom inn á
þingið um samvinnu með camp
byggingu, frá Manitoba District
Luther League og Manitoba
Federated Luther Leagues of
the American Lutheran Church
Þessi kirkjufélög kusu nefnd til
þess að mæta nefnd frá B.L.K.
og ræða tilboð þeirra. Erind-
rekar höfðu ekki heimild frá
félögum sínUm til þess að greiða
með eða móti samvinnu, og
þess vegna var eftirfarandi sam
þykt gjörð á þinginu:
Að námsskeiðsnefndinni nýju
ásamt þremur prestum. þeim
séra V. J. Eylands, séra E. H.
Fáfnis og séra B. A. Bjarnason,
sé falið að mæta* þessari ofan-
greindri nefnd og að fá hjá
henni allar mögulegar upplýsing
ar viðvíkjandi þessari samvinnu,
skrifa svo kvenfélögunum þess-
ar upplýsingar, biðja þau að
íhuga málið og senda svo úr-
skurð sinn, hvort þau séu með
eða móti þessari samvinnu, til
nefndarinnar sem í samfélagi
við stjórnarnefnd B.L.K., tekur
óskir kvenfélaganna til greina,
og reynir að komast að æski-
legri niðurstöðu í málinu.
2. Sumarnámskeiðið. Banda-
lag Lúterskra kvenna hefir stað
ið fyrir námskeiði í kristilegri
fræðslu í fjögur sumur og á
þeim tíma nutu 173 nemendur
leiðbeiningar þar. Vegna þess
að þetta fyrirtæki hefir notið
almennra vinsælda á meðal ís-
lenzks lútersks fólks, þá þótti
Bandalaginu fyrir því að þurfa
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 8. JÚLÍ 1943.
NÚMER 27
að leggja það niður í sumar,
en ástæðurnar fyrir því voru
margar, erfiðleikar svo sem: há
leiga á “camp”, skömtun á ýms-
um mat, og ekla á hjálp út á
’andi þar sem unglingar eru of
bundnir við vinnu til þess að
geta' sótt námskeiðið. Sú til-
laga var samþykt á þinginu að
námskeiðinu sé haldið áfram
næsta sumar svo framarlega að
mögulegt sé, og. að stjórnarnefnd
og námskeiðsnefnd B.L.K. sé
falin framkvæmd í málinu.
Þingið lét í ljósi þakklæti sitt
við það fólk sem lagði svo
mikði á sig til þess að náms-
’skeiðið í Rock Lake í fyrra tæk-
ist sem bezt, þær: Mrs. G.
HELZOJ FRÉTTIR
DR. MAGNÚS HALLDÓRSSON
LÁTINN.
Síðastliðinn mánudag lézt í
New York á heimili dóttur sinn-
ar, Dr. Magnús Halldórsson, á
fjórða ári hins áttunda tugar;
hann hafði uir\ alllangt skeið
verið bilaður á heilsu. Líkið
verður flutt til Winnipeg, og út-
förin fer fram frá Sambands
I kirkjunni, kl. 3,30 á mánudag-
inn.
♦ ♦ ♦
ÞIGGUR BISKUPSVÍGSLU.
Séra Jóhannes Gunnarsson,
prestur við Landakotskirkjuna
Jóhannson, Wpg., Mrs. Thora! í Reykjavík, var vígður biskup
Oliver, Selkirk, Mrs. Sigurgeir- í New York síðastliðinn sunnu-
son, Hekla, Mrs. Christopherson dag, að því er útvarpsfregnir
og Mrs. Peterson, Baldur, þeir skýra frá þá um daginn.
séra E. H. Fáfnis, séra V. J.
Eylands og séra B. A. Bjarna-
son, fyrir utan allar þær Argyle
konur sem fram báru veitingar
eða aðstoðpðu að öðru leyti.
3. Bindindi. Mrs. Baral sagði
fréttir af þingi Manitoba Temp-
erance Alliance, sem gerðu ljóst
hið mikilvæga og áhrifamikla
starf þeirra í bindindisþarfir.
Hún hvað bindindisfélög vera
bein orsök í því að stjórnin
minkaði vínbruggun og vínsölu
á s. 1. ári. Til þess að votta lið
sitt og áhuga fyrir málinu þá
samþykti þingið að gefa Man.
Temp. All. nokkurn fjárstyrk.
Konur kosnar á næsta þing M.
T. A. voru þær: Mrs. A. S.
Bardal, Mrs. Danielson og Mrs.
F. Johnson.
4. Árdís. Ritið hefir aldrei selst
betur en þetta s. 1. ár. Það var
ákveðið að gefa út ritið í sumar
með sama hætti og í fyrra» Rit-
stjórum Árdísar, Mrs. I. J.
Ólafson og Mrs. O Stephenson,
og ráðskonum, Mrs. F. Johnson
og Mrs. M. M. Jonasson, var
innilega þakkað vel unnið starf
5. Red Cross. Það kom í ljós á
þinginu að öll kvenfélögin hafa
lagt mikið á sig þetta s. 1. ár
fyrir Red Cross og aðra stríðs-
vinnu. Þingið vottaði ánægju
sína yfir þessu starfi félaganna,
sem aldrei hefir verið nauðsyn-
legra en nú. Það var samþykt
að gefa Red Cross nokkra fjár-
upphæð úr sjóði B.L.K.
6. Hannyrðasýning. Nokkur
falleg stykki voru sýnd á þing-
inu frá Árnes, Brown og Wpg.
Það var ákveðið að biðja konur
að koma með á næsta þing
hvaða stykki sem þær eiga og
vilja koma með. Óskað var eftir
meiri áhuga fyrir máli þessu.
7. Ske’mtiskrá fyrir fundi fé-
laganna: Forseta og skrifara vgr
falið að útbúa það og senda til
félaganna.
8. Framsögn íslenzkra ljóða.
Þingið óskaði að öll kvenfélögin
geri sitt ýtrasta til þess að halda
við framsögn íslenzkra ljóða, og
eins að kvenfél. þar sem þingiíð
verður næst sjái um að hafa
íslenzka framsögn eða söng á
skemtiskrá.
Þessi þingsamþykt var gerð:
Bandalag Lúterskra Kvenna
skorar á sambandsstjórnina að
hækka ellistyrkinn.
Tveir erindrekar B.L.K. sátu
kirkjuþingið að Mountain, N.
D., 18.—21. júní, þær Mrs. V.
J. Eylands og Mrs. E. Hjelsted,
Wpg. Mrs. Fjelsted las þing-
yfirlýsingu samþ. af kirkjuþing-
inu, þess efnis að það teldi sig
fúst til samvinnu við sumar-
skólamál B.L.K. Þingið mat
þessa samvinnu mikils.
Fulltrúar kosnir til þess að
sitja næsta kirkjuþing voru þær:
Mrs. H. Daníelson, Wpg., Mrs.
(Framh. á. bls. 8)
FLYTUR RÆÐU
Á NORRÆNU MÓTI.
DR. MANION LÁTINN.
Síðastliðinn föstudag varð
bráðkvaddur að heimili sínu í
Ottawa, Dr. R. J. Manion, fyrr
um leiðtogi íhaldsflokksins í
Canada, liðlega 61 árs að aldri;
hann var fyrst kosinn á sam-1
bandsþing í Fort William sem
Liberal 1917, en bauð sig fram
í kosningunum 1922 undir merkj
um íhaldsmanna, en tókst á
hendur flokksforustuna, er Mr.
Bennett lét af henni. Dr. Manion
var mælskumaður mikill og
hverjum manni fríðari sýnum.
Hann var þrisvar sinnum
kvaddur til þess að þjóna ráð-
herraembætti í sambandsstjótn.
♦ ♦ ♦
FYLKISKOSNINGAR
í ONTARIO.
Forsætisráðherrann í Ontario,
Hon. Harry Nixon, hefir lýst
því yfir, að hann hafi rofið
þing, og fyrirskipað nýjar kosn-
ingar þann 4. ágúst næstkom-
andi; þrír flokkar keppa um
völd í kosningum þessum, liber-
alflokkurinn, sem fram að þessu
hefir setið við völd, og íhalds-
menn og -C.C.F. Búist er við,
að þrír frambjóðendur keppi í
hverju einasta kjördæmi. Enn
er ekki vitað hverja afstöðu
Mr. Hepburn tekur til kosning-
arinnar, eða hvort hann verður
í kjöri eða ekki.
Dr. Richard Beck.
Norrænu þjóðabrotin í þessari
borg, efna til skemtisamkomu í
Vasalund Park, Charleswood,
þann 17. þ. m., og er svo um a
hnútana búið, að víst má telja
að þar verði mikið um dýrðir.
Dj\ Richard Beck verður aðal-
ræðumaður á móti þessu, og
er umræðuefni hans: “Our
og íslenzkir karlakórar taka
væntanlega þátt í skemtiskrá.
íþróttir fara fram seinni hluta
dags undir umsjá þeirra J. G.
Jóhannssonar og Carls Simon-
son, eru þeir kennarar við
Daniel Mclntyre skólann. Að
kveldinu verður stiginn dans í
hressingarskála skemtigafðsins.
♦ ♦ ♦
JAPANIR FARA HALLOKA.
Bandaríkjaher hefir nýverið
náð öruggri fótfestu um mið-
bik Solomonseyja, og ýmist strá
drepið landher Japana á þeim
svæðum, eða stökt honum á
flótta. Bandaríkjamönnum lán-
aðist landgangan fyrir atbeina
voldugs loftflota.
♦ ♦ ♦
FRÁ RÚSSLANDI.
Þjóðverjar hófu á mánudag-
inn sókn mikla á Orelvíglínunni
og náðu þar tveimur mönnuð-
um rússneskum þorpum á vald
sitt, þrátt fyrir geisilegt tjón
á mannafla og skriðdrekum;
öðrum orustustöðvum þar
eystra, má svo segja, að alt
standi við það sama.
♦ ♦ ♦
HARÐNANDI ÁRÁSIR.
í þrjá daga samfleytt, hefir
loftfloti sameinuðu þjóðanna
sótt svo fast að Sikiley, að víst
Common Heritage of Ideals”.
Forseti Viking Club, Mr. J. T.
Jónsson, kynnir Dr. Beck, sam- j er talið, að það sé nú einungis
komugestum; sænskir, norskir til uppgjafar.
Mannalát
Síðastliðinn fimtudag lézt
bændaöldungurinn Jón Jónsson,
ættaður úr Borgarfirði syðra, 97
ára að aldri; nokkur síðustu ár
æfinnar, átti Jón heitinn heima
í Riverton hjá frú Þorbjörgu
Sigurðsson, dóttur sinni. Jón
var hinn mesti fróðleiks- og
gáfumaður, og hélt óskertum
sálar og líkamskröftum; hann
lætur eftir sig þrjú börn, frú
Þorbjörgu Sigurðson og frú
Ólafíu Melan í Riverton, og Jón
H. Jónsson, fvrrum fiskkaup-
mann, sem nú á heima í Van-
couver. IVferkiskonan, frú Val-
gerður Sigurðson í Riverton er
systir hins látna.
Útför Jóns fór fram á Gimli
síðastliðinn mánudag að við-
stöddu miklu fjölmenni.
♦ ♦ ♦
Percy Jónasson, verzlunarmað
ur, kjörsonur Sigtryggs heitins
Jónassonar fyrrum þingmanns
Gimli kjördæmis, lézt í Árborg
á fimtudaginn var; ekkja hans
er dóttir Gest heitins Oddleifs-
sonar. Percy var af skozku for-
eldri í báðar ættir, en mælti svo
vel á íslenzka tungu, að engum
kom til hugar að hann væri
annað en hreinkynjaður íslend-
ingur; hann var jaðrsunginn í
Árborg á laugardaginn.
Frú Helga Jónsdóttir Stephanson
Minning á afmælisdaginn hennar 3. júlí. /
Hún bar hið blíða heiti
úr bernskusögum þjóðar,
var hýr sem baldursbráin
og björt — með varir rjóðar,
féll gullbjart hár á herðar,
skein heiðisblámi úr augum,
fól norrænt afl í örmum
og innst í hjartataugum.
Svo varð hún og að vera
er vildi skáldi fylgja
til nýrrar álfu — og una
sem öðlings möttli sylgja,
sem hjálmur hetjuenni,
sem hendi Draupnir góður.,
er gaf sinn höfga í gulli
og geislaði krafti, hljóður.
Hún fylgdi upp til fjalla
í frelsið vini hraustum
og bar hins sterka byrðar
í böndum ástar traustum..
Og eitt varð allt, er mæddi
og allt, er vannst í raunum,
og einn varð gleðigeislinn
og gull í sigurlaunum
— Nú grær um garðinn fræga
hin græna skógarhöllin.
í austri og vestri óma
af óði stórskálds fjöllin.
En hvað veit harður heimur
um hana, er lokkastrengi
á snillings hörpu sneri
og snerti æfilengi? —
i
Veit ekkert. — Og hún unir
því allra bezt, sem fyrri,
að vera lind, sem líður
í laufhlíð unaðskyrri,
— að vera lóan ljúfa,
er lauf und tungu felur ,
og sínum vildarvini
öll vorsins mæti gelur
Eg heyrði í vestri vængi
til vorlands grípa tökin
og hugði blítt til hennar,
sem hinztu greiddi rökin,
sem áttatíu ára ^
var ung og sterk og fögur. —
Svo far vel, Helga frænka!
Ei fyrnast hjartasögur.
Hulda.
5555555555555555555555555556655555555555555Í55555555555Í555555555555555555555Í