Lögberg - 15.07.1943, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
VWx\,r
. t Yvvú'A'A
For Beller
Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Seven Lines
■■"V*
Cot'
■js&ss**
&\ve*
Service
and
Salisfaclion
56 ARGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1943.
NÚMER 23
»
Sameinuðu þjóðirnar ráðast inn á
Sikiley með Canadamenn í fararbroddi
Árla morguns á laugardaginn
var, flugu þær fregnir á öldum
ljósvakans vítt um, að samein-
uðu þjóðirnar, með Canada-
menn í fararbroddi, hefðu þá
nýverið komið liði miklu á land
á Sikiley, staðráðnar í því, að
láta þar til skarar skríða, og
ná fullu haldi á þessari miklu
eyju, sem telur um 4 miljónir
íbúa; lending var hafin á aust-
ur og suðurströnd eyjarinnar,
og gekk hún all greiðlega; stað-
hæft er, að ekki færri en tvö þús
und skip, af ýmsum stærðum,
þar á meðal fjöldi orustuskipa
og beitiskipa, hafi staðið að
VILJA FA VERKAMÁLARÁÐ-
HERRA ER GEFI SIG ÓSKIPT-
AN VIÐ ÞVÍ STARFI
Verkamálaráðið í Winnipeg
sámþykkti á nýlegum fundi sín-
um áskorun til fylkisstjórnar í
Manitoba þess efnis, að hún
beitti sér umsvifalaust fyrir um
það að komið verði á fót sér-
stöku verkamálaráðherra em-
bætti. Síðan að Mr. Farmer fyrir
fullu ári lét af embætti sínu
vegna ágreinings við Mr. Brack-
en, hefir ráðherra opinberra
verka, Mr. Erric Willis, veitt
verkamálaráðuneytinu forustu
samtímis sínu aðalembætti.
Þessi nýja krafa verkamálaráðs-
ins sýnist í öllum atriðum sann-
gjörn, og er því þess að vænta,
að stjórnin daufheyrist ekki við
henni.
♦ ♦
"LÁTIÐ BRACKEN KOMAST
HJÁ KROSSFESTINGU".
Hon. Erric Willis, ráðgjafi
opinberra verka í samsteypu-
stjórn Manitobafylkis, flutti fyr-
ir skömmu ræðu á þingi íhalds-
manna í Victoria, B. C., þar sem
hann meðal annars, lét þannig
um mælt:
“íhaldsflokkur, sá stjórnmála-
flokkurinn í Canada, sem eg
telst til, er orðinn þjóðkunnur
fyrir krossfesting foringja sinna;
hann krossfesti þá Meighen,
Bennett og Manion; nú ætti að
vera nóg komið af svo góðu.
Látið Bracken komast hjá kross-
festingu.”
Svo mörg voru þau orð.
CANADA PRESS CLUB.
Á miðvikudagskvöldið í fyrri
viku, bauð John Bird ritstjóri
blaðsins Winnipeg Tribune. með
limum áminsts blaðamannafél-
ags til veglegrar veizlu í sal-
kynnum Manitobaklúbbsins hér
í borginni. Félag þetta saman-
stendur af ritstjórum þeirra
blaða, sem hér eru gefin út á
öðrum málum en enskri tungu,
eitthvað um tuttugu talsins.
Þetta umrædda blaðamanna-
félag var stofnað fyrir rúmu
ári, og hélt það aðalfund sinn
þegar að aflokinni veizlu Mr.
Birds. Mr. W. J. Lindal, dómari
átti frumkvæði að stofnun félags
ins; hann var forseti þess árið
sem leið, og var endurkosinn í
0inu hljóði á fundi þessum; aíial
niarkmið félagsins er það, að
auka kynningarstarfsemi meðal
þeirra mörgu og mismunandi
lendin|gu innrásarhersins með
tilstyrk öflugs loftflota. Gen.
Montgomery hafði með höndum
forustu hinna brezku og cana-
disku innrásarsveita, en Lt.Gen.
George S. Patton, var höfuðs-
maður Bandaríkjaliðsins.
Viðnám hersveita möndul-
veldanna á Sikiley, hefir fram
að þessu verið allmiklu veikara,
en í fyrstu var búist við; í
ýmissum tilfellum gáfust ítalsk-
ar herdeildir svo að segja sam-
Stundis upp, og á öðrum degi
eftir lendinguna voru sveitir
bandamanna komnar 15 mílur
inn í landið, en hafa nú bætt
við sig 10 mílum, eða freklega
þjóðbrota, sem hér eiga sambýli.
Sú nýlunda gerðist á fundi
þessum, að Mr. Bird bauð rit-
stjórum áminstra blaða rúm í
blaði sínu fyrir greinar, er þeir
sjálfir semja; engar skorður
verða settar um efnisval að öðru
leyti en því, að flokkapólitík
verður vitaskuld látin liggja í
láginni; svo er til ætlast, að
greinar þessar fari eigi fram
úr 750 orðum, og verða þær
birtar vikulega í röð.
Mr. Bird fylgir greinaflokkum
þessum úr hlaði, en fyrstu rit-
gerðina- er ráðgert að forseti
félagsins, Lindal dómari. semji,
og mun hún birtast í Tribune
í öndverðum september mánuði
næstkomandi; sigla hinar grein-
arnar svo í kjölfar, unz rit-
stjórar allra hinna áminstu blaða
hafa látið til sín heyra.
♦ ♦ ♦
NORRÆNA MÓTIÐ.
Eins og frá var skýrt í síð-
asta blaði, efna norrænu þjóðar-
brotin hér í borginni til skemti-
samkomu í Vasalund Park,
Charleswood, á laugardaginn
kemur. Félagið Viking Club,
sem J. T. Jonasson er forseti
fyrir, á frumkvæði að þessari
frænda og vinaskemtun. Aðal-
ræðumaður veruðr Dr. Richard
Beck, og er umræðuefni hans
“Our Common Heritage of
Ideals.” Mr. Jónasson kynnir
Dr. Beck samkomugestum. í-
þróttir fara fram undir umsjá
þeirra J. G. Jóhannsonar og
Carls Simonson. Dans verður
stiginn að kveldi.
Þing Bandalags
lúterskra kvenna
í þingtíðindum Bandalags
lúterskra kvenna, sem birt voru
í Lögbergi í vikunni sem leið,
hafði kafli fallið úr, og fyrirsögn
verið sett á rangann stað. Til
þess að bæta úr þessu, er um-
ræddur kafli birtur hér í heild.
Ritst j.
' é
Kosningar 'fóru fram sem
fylgir:
Heiðursforsetar: Mrs. I. J.
Ólafsson, Selkirk, Mrs. Finnur
Johnson, Wpg.
Forseti: Mrs. Lena Thorleif-
son, Langruth.
Vara-forseti: Mrs. A. S. Bar-
dal, Wpg.
Skrifari: Miss Lilja Guttorms-
son, Geysir.
Bréfaviðskifta-skrifari: Mrs.
Jona Sigurdson, Wpg.
Féhirðir: Mrs. G. Johannson,
Wpg.
það; alls hafa þeir nú 14 bæi á
valdi sínu, þar á meðal hafnar-
borgina Syracuse; en eftir fall
þeirrar borgar, var þegar sótt
fram af kappi miklu í áttina
til Cataníu og Messina. Á mánu-
daginn söktu brezkar -og ame-
rískar sprengjuflugvélar, fjórum
allmiklum flutningaskipum, er
möndulveldin höfðu í förum,
hlaðin hergögnum, er fara áttu
til Sikileyjar til stuðnings við
varnarlið þeirra á eynni.
Fram að þessu hafa engar
upplýsingar verið látnar í té
um mannfall af hálfu samein-
uðu þjóðanna í Sikileyjarleið-
angrinum.
Vara-féhirðir: Mrs. Anna
Magnússon, Selkirk.
Framkvæmdanefnd:
Mrs. Sigrún Sigurðson, Glen-
boro.
Miss Fríða Thorkelson, Árnes.
Mrs. S. Sigurgeirson. Hecla.
Mrs. Anna Austman, Víðir.
Mrs. G. A. Erlendson, Árborg.
Ritstjóri Árdís: Mrs. I. J.
Ólafson, Selkirk.
Aðstoðar-ritstjóri: Mrs. O.
Stephensen, Wpg.
Ráðskonur: Mrs. F. Johnson,
Wpg. Mrs. M. M. Jónasson, Ár-
borg.
N ámsskeiðsnef nd:
Mrs. A. H. Gray, Wpg.
Mrs. H. Danielson, Wpg.
Mrs. J. Tergesen, Gimli.
Mrs. J. V. Jonasson, Wpg.
Mrs. B. M. Paulson, Árborg.
Mrs. A. Sigurðson, Árnes.
Mrs. H. G. Henrickson, Wpg.
BÝÐUR SIG FRAM í SELKIRK
Charles E. Fillmore.
Eins og þegar hefir verið vikið
að hér í blaðinu, verður Charles
E. Fillmore í kjöri af hálfu
Liberalflokksins við aukakosn-
ingu þá til sambandsþings, sem
fram fer í Selkirk-kjördæmi 9.
ágúst næstkomandi. Mr. Fill-
more hefir mikið verið við opin-
ber mál riðio, og hefir í sjö ár
samfleytt haft með höndum odd-
vitasýslan í St. Andrews-bygð-
inni; hann er í tölu þeirra, sem
alt sitt eiga undir sól og regni;
hann hefir í 30 ár búið ágætu
búi í grend við Clandeboye, og
nýtur í hvarvetna almennings-
trausts.
Mrs. Fillmore er maður ger-
hugull, og auðugur að þeim
hyggindum, sem í hag koma;
hann hugsar jafnan vandlega
ráð sitt, og hr^par ekki að
neinu; hann myndi sóma sér
vel á þingi sem fulltrúi bænda-
stéttarinnar.
í herþjóoustu
Miss Mary Miles Goodman
innritaðist í Canadian Wctnen’s
Army Corps, Fort Osborne
Barraeks, Winnipeg, þann 23.
júní síðastliðinn, og hefir hún
þegar byrjað æfingar; hún er
fædd og uppalin í Winnipeg;
faðif hennar er írskur, en móð-
irin íslenzk, Mrs.‘ Ena Good-
man, 361 Carlton St.
♦ ♦ ♦
Harold E. Lindal. Hernaðar-
völdin hafa nýlega kunngert, að
iþessi ungi maður, sem aðeins
er 23. ára að aldri, hafi verið
skipaður lieutenant í fótgöngu-
liðinu canadiska, eftir að hafa
lokið æfingum við A 15 Infantry
Training Centre skólann við
Shilo herbúðirnar. Lieut. Lindal
er fæddur í Wynyard. Sask.
Hann er kvæntur maður, og
er heimili þeirra hjóna að 155
Maryland St. Winnipeg.
♦ ♦ ♦
Jónas R. Jónasson kom frá
Riverton til Winnipeg fvrir
nokkrum árum; hann gekk. í
herþjónustu í janúar-mánuði
síðastliðnum, og stundaði fram-
anaf æfingar við fótgönguliðs-
skólann í Shilo, en er nú nýverið
byrjaður á fallhlífaræfingum í
Winnipeg. Jónas er 27. ára að
aldri; hann er kvæntur maður,
kona hans heitir Anna, og er
heimili þeirra að 571 Marvland
St., Winnipeg.
ÞRIÐJA ÞINGMANNSEFNIÐ?
Miss Sailome Halldórsson,
Social Credit, hefir boðað til
Jundar í Selkirk á laugardags-
kvöldið kemur, sennilega með
það fyrir augum, að velja flokkn
um þingmannsefni við í hönd
farandi kosningar.
FRAMBJÓÐANDI C.C.F.
FLOKKSINS í SELKIRK.
William Bryce.
Mr. Bryce, sá, er býður sig
fram til sambandsþings af hálfu
C.C.F. flokksins í áukakosning
unni, sem fram fer í Selkirk-
kjördæmi þann 9. ágúst næst-
komandi, er fæddur í Lanark á
Skotlandi og kom hingað til
lands vorið 1919; fyrst eftir
komu sína til Manitoba, vann
Mr. Bryce í vélaverksmiðju
Canadian National járnbrautar-
félagsins í Transcona; en í síð-
astliðin 20 ár hefir hann rekið
búskap í Dugaldsveitinni. Mr.
Bryce hefir um langt skeið tekið
virkan þátt í opinberum málum;
hann var í tvö ár forseti bún-
aðarsamtakanna í Manitoba,
jafnframt því sem hann hefir
átt sæti í nefnd mjólkurfram-
leiðenda, og kjötframleiðslu-
nefnd sambandsstjórnar.
Mr. Bryce er kvæntur maður
og á fjögur börn.
HELZTU FRÉTTIR
Ll. Gen. Montgamery.
Mynd þessi er af hinumi sigursæla hershöfðingja Breta,
Lt. Gen. Montgomery. Myndin er tekið af honum þar sem
hann í för með hinu 8. herfylki breta neytir hinnar óbrotn-
ustu máltíðar á eyðimerkur leiðangri sínum.
Mynd þessi er af einum frægasta herforingja Kínverja í
yfirstandandi styrjöld, þar sem hann heilsar að sið kín-
. verskra hermanna, brezkum liðsmönnum, sem fluttir hafa
verið í lofti til árásarstöðva sinna. Þessi herforingi heytir
Hsiung Shih-Lui, sá er var formaður kínverzku hernaðar-
nefndarinnar í Washington.
Sigurður Grímsson:
Einar Benediktsson
Söngtregi Handels, — harmsins ljóða ljóð,
á ljósvakans öldum barst um dali og strendur,
og síðustu kveðju flutti fold og þjóð
hin frjálsborna víkings, er í lyfting stóð,
og gull sinna stefja gaf á báðar hendur.
Knerri hann beitti um heimsins víðu höf,
hátt bar og glæst sitt tigna aðalsmerki.
Blikandi vogar, brim við ystu nöf.
bláhvolfið vítt og dauðans þögla gröf,
var honum brot'af lífsins listaverki.
\
\
Gneistaði af augum andans brunabál,
brimsjóar hugans risu í andlitsdráttum.
Væringjans hjarta, norrænt stuðla stál.
stórbrotin sýn og Egils kyngimál,
leiftraði í skáldsins skyggðu, dýru háttum.
Heit var hans gleði, hryggð hans djúp og myrk,
hirðingjans frjálsa reisn hans hversdagsbragur,
háreist hans altar, von hans vængjastyrk,
voldugt hans orð, hans hyggja mikilvirk.
og þjóðskáldsins draumur himinhár og fagur.
Hvar sem hann fór,—um fögur sólarlönd,
fallþungar elfur, dimma brunasanda,
norrænar vættir fóru huldri hönd
um hjarta hans strengi, — treystu niðjans bönd,
og seiddu hans fley til íslands úfnu stranda.
Þar var hans óðal, — andans helgu vé,
ættbogans glæstu kynni ljóða.og sagna
Sótt var í hauga Egils erfðafé,
arfleifðin reist, er fyrr að moldum hné,
og búið með rausn að minning máls og bragna.
Dagur er hniginn. Greppur hefir gist
goðhelga sali, er fornir eldar hlóðu.
í íslenskan muna er minning skáldsins rist,
meitlað hans orð, hans sterka, göfga list,
á vörðunnar skjöld, við tímans miklu móðu.
Lesbók Mbl.