Lögberg - 15.07.1943, Qupperneq 2
2
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1943.
Otdráttur úr fréttaskýrzlu upplýsiogadeildar
ísleuzka utanríkisráðuneytisins yfir marz, 1943
Félagslegl öryggi.
Félagsmálaráðuneytið hefir
falið þeim Jóni Blöndal hag-
fræðing, Guðmundi Kr. Guð-
mundssyni tryggingafræðing og
Kiemens Tryggvasyni hagfræð-
ing að gera rannsókn á því,
hversu bezt megi tryggja fé-
lagslegt öryggi á sem flestum
sviðum hér á landi í framtíð-
inni.
Verkefnið er í fyrsta lagi fólg-
ið í því, að rannsökuð sé fjár-
hagsleg geta þjóðarheildarinnar,
með tilliti til atvinnnhátta og
afkomu landsmanna. í öðru lagi
,er ætlazt til, að undirbúnar séu
tillögur um heildarfyrirkomu-
]ag löggjafar er tryggi sem
bezt félagslegt öryggi lands-
manna í framtíðinni á öllum
þeim sviðum, þar sem almenn-
um tryggingum verður komið
við.
Fyrst og fremst eru það þau
svið er nú falla undir alþýðu-
tryggingarnar.
• Slysatrygging, sjúkratrygging,
örorkutrygging, ellitryggingar,
er lítt hefir gætt í íslenzkri
löggjöf til þessa, svo sem ó-
magatryggingar, ekkna styrkir
og jarðarfarastyrkir.
Skal leggja áherzlu á að
tryggingarnar geti, að svo miklu
leyti sem fjárhagsleg geta þjóð-
arinnar leyfir skapað hverjum
einstaklingi rétt til viðunandi
]ífskjara ef hann vill vinna.
Ætlazt er til þess, að sam-
tímis fari fram athugun á lög-
gjöf um framfærslu sveitar-
félaga og framfærslu ríkisins og
þess gætt, að samræmi sé milli
slíkrar löggjafar og væntanlegs
tryggingarkerfis.
I sambandi við aðgerðir gegri
atvinnuleysi og forsjá atvinnu-
lausra manna, sé gerð grein fvr-
ir öllum helztu aðferðum, er
beita má af hálfu hins opinbera
til að vinna gegn atvinnuleysi
manna á starfsaldri. Einnig sé
gerð grein fyrir, hvernig hent-
ugast sé að haga opinberum
framkvæmdum í því skyni, að
þær geti orðið til þess að skapa
sem stöðugasta og jafnasta at-
vinnu.
Einnig sé gerð athugun á því
í sambandi við örorkutrygging-
ar á hvern hátt vinnugeta þeirra,
er hafa skerta starfsorku, verði
bezt gerð arðbær fyrir þá siálfa
og þjóðfélagið.
Eigi er það ætlunin, að til-
lögurnar um þessi mál verði
lagðar fram í frumvarpsformi,
en megináherzlan lögð á að öll
efnisatriði séu svo vandlega und-
irbúin sem auðið er og kapp-
kostað að kynnast löggjöf og
fyrirætlunum Norðurlandaþjóða
Englendinga, Ameríkumanna og
annarra þjóða, til lausnar þess-
um vandamálum í framtíðinni,
auk þess sem leitað sé tillagna
og umsagnar sem flestra aðilja,
er á einhvern hatt annast fram-
kvæmd þessara mála hér á landi
eða eiga hagsmuna að gæta í
sambandi við væntanlegar breyt
ingar á skipulagi þeirra.
SALA ÍSL AFURÐA.
Sala á gærum.
Utanríkis- og atvinnumálaráð-
herra skýrði frá
því á Alþmgi hinn 19. marz,
að gengið hefði verið frá samn-
ingum við Bandaríkjastjórnma
um sölu á gærum.
Bandaríkjastjórnin kaupir all-
ar útflutningsgærur af fram-
leiðslu ársins 1942 fyrir verð
sem sparar ríkissjóði um eina
þriðja milljón króna.
Lokið hefir verið samningum
um sölu íslenzkra gæra til
Bandaríkjastjórnar og er nú ver
ið að undirbúa afskipun þeirra.
Verð það sem gengizt hefir,
er mikið fyrir ofan markaðsverð
sem reiknað var með í janúar
síðastliðnum þegar áætlun var
gerð um útgjöld ríkissjóðs vegna
uppbótá á þessa vöru, að um
1.350.000 kr. sparast frá því, sem
þá var áætlað.
Jafnframt hefir Bandarikja-
stjórn eftir tilmælum undirgeng
izt að flytja gærurnar með skip-
um Eimskipáfélagsins, en ekki
með herstjórnarskipum sínum,
og nemur farmgjaldsgreiðslan
til Eimskipafélaigsins væntan-
lega 5—600.000 krónum.
Sala á frosnu dilkakjöii.
Utanríkis- og atvinnumálaráð-
herra skýrði frá því á Alþingi
23. marz að lokið hefði verið
samningum þeim um sölu á
frosnu dilkakjöti
Hefir Bandaríkjastjórn kevpt
af ríkisstjórn Islands 1500 smá-
lestir af frosnu kjöti fyrir verð
sem samsvarar kr. 5.40 kílóið
fob. Kjötið kaupir Bandaríkja-
stjórn til flutnings til Bretlands.
Þetta verð gefur fyrir nefnt
kjötmagn sem næst 2% miljón
kr. yfir markaðsverð það sem
haft var til hliðsjónar í janúar
^síðastliðnum við útreikning á
áætluðum útgjöldum ríkissjóðs
vegna uppbóta á þessari vöru.
Nærri 4 miljónum króna nem-
ur upphæð sú sem samtals spar-
ast ríkissjóði með sölu til Banda
ríkjastjórnar á þessu kjöti og
gærum sem tilkynt var um fyr-
ir nokkrum dögum, frá því
markaðsverði sem reiknað var
með í janúar síðastliðnum.
Samningar standa nú yfir um
sölu á ull ársins 1941 og 1042.
Vilhjálmur Þór uianríkisráðh.
er fæddur 1. sept. 1899 og voru
foreldrar hans Ólöf Þorsteins-
dóttir og Þórarinn Jónsson
bóndi. Hann var á unga aldri
starfsmaður^ hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga a Akureyri. 1 árs-
byrjun 1924 varð hann fram-
kvæmdarstjóri þess og gengdi
því starfi til 1938, en þá var
hann ráðinn til þess að hafa á
hendi forstöðu íslandssýningar-
innar í New York, sem haldin
var 1939 og 1940. Haustið 1939
er styrjöldin hófst var honum
jafnframt falið að vera verzl-
unarerindreki Islands í New
York og þegar aðalræðismanns-
skrifstofa Islands var stofnuð í
New York í apríl 1941 varð hann
fyrsti aðalræðismaður íslands
þar. Haustið 1941 flutti hann
til Reykjavíkur og tók við
bankastjórastarfi við Lands-
banka íslands. Hann hefir átt
sæti í stjórn Samb. ísl. sam-
vinnufélaga. 16. des. 1942 varð
hann utanríkis- og atvinnumála-
ráðhérra í ráðuneyti dr. Björns
Þórðarsonar.
Kona Vilhjálms Þór er Rann-
veig Jónsdóttir frá Akureyri og
eiga þau þrjú börn.
* FRA ALÞINGI.
Endurreisn Alþingis.
Hinn 8. marz voru liðin 100
ár síðan gefin var út tilskipun
um endurreisn Alþingis. Alþingi
minntist þessa hátíðisdags með
fundi í sameinuðu þingi og
flutti forseti sameinaðs þings
Haraldur Guðmundsson ávarp.
Þá var samþykkt svohljóðandi
þingsályktunartillaga:
“Alþingi ályktar að fela 5
manna nefnd, er ríkisstjórnin
skipar, að láta fullgera sögu
Alþingis, þá er fyrirhugað var
að gefa út á 1000 ára hátíð
þingsins 1930, með svipaðri til-
hugun og ráð var þá fyrir gert,
ásamt viðauka, er fjalli um tíma
bilið eftir 1930, enda sé miðað
við, að ritið komi út á árinu
1945, þegar liðin eru 100 ár frá
endurreisn Alþingis.
Fjórir nefndarmanna skulu
skipaðir samkvæmt tilnefningu
þingflokkanna, og nefnir hver
þeirra einn mann, en hinn
fimmti skal skipaður án tilnefn-
ingar. — Nefndin kýs sér sjálf
formann.
Kostnað að útgáfunni og af
störfum nefndarinnar skal
greiða úr ríkissjóði.”
1 greinargerð segir:
Með tilskipun frá 8. marz
1943 var ákveðið að endurreisa
Alþingi, og kom hið endurreista
þing saman í fyrsta sinn 1. júlí
1845.
Flutningsmönnum þessarar til
lögu þykir hlýða, að minnst sé
þessara merkilegu tímamóta í
sögu þingsins með þeim hætti
m. a. að þingið geri ráðstaf-
anir til þess, að fullgerð verði
saga þess og hún gefin út á 100
ára afmæli hins endurreista
Alþingis, 1945, en drög til al-
þingissögunnar eru mörg fyrir
hendi.
Einar Arnórsson dómsmálaráð
herra flutti erindi í útvarpið
um endurreisn Alþingis og
Alþingismenn og allir starfs-
menn Alþingis sátu veizlu að
Hótel Borg.
Vertíðin. •
Vertíðin hefir að þessu sinni
verið venju fremur góð þrátt
fyrir mjög örðuga og umhleyp-
ingasama verðráttu. I Sandgerði
hafa aflahæstu bátar fengið um
750—800 skippund í 46—50 róðr-
um. Lifrarmagn þeirra er 25—
27.000 lítrar á bát og er það um
40 # meiri afli en á sama tíma
í fyrra. I öðrum verstöðvum við
Faxa'flóa hefir afli orðið eins
mikill. I Vestmannaeyjum hafa
línubátar aflað sæmilega. Hæstu
bátar hafa fengið um 500 skip-
pund á línu. Á Vestfjörðum hef-
ir fiskast vel þegar á sjó hefir
gefið en róðrar eru þar fremur
fáir á þessari vertíð. Á Siglu-
firði var afli framan af rýr, og
fiskiveiðar lögðust alveg niður
um tíma í háskammdeginu, en
eru nú byrjaðar aftur. Frá
Hornafirði ganga um 30 bátar.
Seinni part marz-mánaðar var
þar mokafli á línu. Frá Djúpa-
vogi hafa nokkrir bátar gengið
og fiskað sæmilega, en annars-
staðar á Austfjörðum hefir lítið
verið róið.
IÐNAÐARMAL.
Ný vinnustofa til að mála
bifreiðar.
1 byrjun marz-mánaðar opn-
uðu þeir Magnús Kjartansson
og Sveinn Magnússon, málara-
meistarar í Hafnarfirði, nýja
vinnustofu til þess að mála bif-
reiðar.
Hafa þeir fengið nýjar ame-
rískar vélar og mun þetta vera
eina hérlenda vinnustofan í
þessari iðngrein, auk þeirrar
sem Egill Vilhjálmsson hefir rek
ið ásamt bifreiðaviðgerðum sín-
um.
Eins og er geta eigendur tek-
ið inn í vinnustofuna 8—9 5-
manna bíla í einu, en fleiri þeg-
ar þeir hafa fengið tæki til að
færa þá til með.
Þeir hafa fengið ný amerísk
tæki til slípunar og sprautunar
og geta haft 4 sprautur í gangi
í einu. Vélarnar eru allar raf-
knúnar.
BÓKMENNTIR.
Saga smábýlis.
Mikla athygli hefir bók eftir
bændaöldunginn Hákon Finns-
son í Borgum vakið. Heitir hún
“Saga smábýlis 1920—1940”.
Ragnar Ásgeirsson ráðunautur
hefir skrifað formála að bókinni.
Bók þessi skýrir frá því hvernig
höfundur byrjar búskap á smá-
jörð, ræktar hana, leggur vegi
og byggir upp húsin, og gerir
hana að blómlegri jörð. Er ná-
kvæmlega skýrt frá áætlunum,
sem svo var nákvæmlega fylgt
í framkvæmd, og loks hvernig
niðurstöður hafa orðið. Bók
þessi er einstök meðal íslenzkra
bóka og lýsir með ágætum lífs-
baráttu íslenzks sveitabónda nú
á tímum.
íslenzk kvæði og sögur á ensku.
The Princeton University
Press og The American Scandin-
avian Foundation í New York
hafa gefið út íslenzk kvæði og
sögur á ensku, og hefir próf.
Richard Beck í Grand Forks,
N.-Dakota safnað þar verkum
þekktustu íslenzkra höfunda og
skálda síðustu hundrað árin.
Slraumhvörf.
Nýtt tímarit hefir hafið göngu
sína. Heitir það “Straumhvörf”
og á að fjalla um þjóðfélags- og
menningarmál.
Útgefendur þess eru nokkrir
ungir menn, og undirrita ávarps
orðin Broddi Jóhannesson, Emil
Björnsson, Jóhann Jónsson frá
Öxney, Egill Bjarnason, Her-
mann Jónsson, Klemens Tryggva
son, Lúðvík Kristjánsson, Sigur-
björn Einarsson og S. Sörensen.
Ritstjóri er Emil Björnsson.
Efni þessa fyrsta heftis er:
Einhuga þjóð, eftir Emil Björns-
son, Réttmæti stríðsgróðans eftir
Klemens Tryggvason, Skáleyja-
systkinin, eftir Lúðvík Kristjáns
son, Ræðd ríkisstjóra, eftir S.
Sörensen. Heimili og þjóðfélag,
eftir Brodda -Jóhannesson. Auk
þess eru nokkrar smágreinar.
V er ndarenglar nir.
Skáldið Jóhannes úr Kötlum
hefir samið nýja skáldsögu að
nafni Verndarenglarnir og er
efni hennar um hernám Breta
á íslandi.
Bókin er stór, um 360 blað-
síður. Hún segir aðallega frá
lifi einnar fjölskyldu, sem kemst
í kynni við setuliðsmenn.
Áður hefir Jóhannes sent frá
sér eina skáldsögu “Og björgin
klofnuðu”. Jóhannes lauk við að
skrifa “Verndarenglana” á síð-
astliðnu hausti.
Bækur Þjóðvinafélagsins og
Menningarsj óðs.
Tvær nýjar bækur eru nýlega
komnar út á vegum ofannefndra
stofnana
íslenzk úrvalsrit II. og annað
bindið af Önnu Kareninu eftir
Tolstoy í þýðingy, Magnúsar Ás-
geirssonar.
Isl. úrvalsrit II. er úrval Ijóða
Bólu-Hjálmars, með ýtarlegum
formála eftir Jónaá Jónsson frá
Hriflu, þar sem getið er helztu
æviatriða skáldsins og skáld-
skapar hans og ævikjara, sem
svo mjög hafa sett svip á ljóð-
in, lýst í Ijósu máli. |
I þessu riti eru öll helztu og
beztu Ijóð Bólu-Hjálmars.
Utan við alfara leið.
Þá er nýl^ga komið á bóka-
markaðinn safn af smásögum
með þessu heiti eftir Sigurð
Róbertsson. Höfundurinn er ung
ur Þingeyingur og hefir áður
komið frá honum bókin “Lagt
upp í langa ferð”, og auk þess
hafa birzt eftir hann margar
sögur í “Nýjum kvöldvökum”,
á undanförnum árum.
Bók um Vesiurland.
Út hefir komið bók eftir Jón
H. Guðmundsson, ritstjóra Vik-
unnar, er hann nefnir “Vildi eg
um Vesturland”.
Er þetta lítið kver en snot-
urt og hefir inni að halda kvæði
og stökur, auk stuttrar ferða-
sögu, en allt fjallar þetta um
Vesturland. Er það ætlun höf-
undar, að láta andvirði fyrstu
100 eintakanna sem seljast af
400 eintaka upplagi, renna til
Byggðasafns Vestfjarða.
Vinnan.
Alþýðusamband Islands hefir
hafið útgáfu á nýju mánaðar-
riti, sem heitir Vinnan.
1 þetta blað skrifa m. a. Hall-
dór Kiljan Laxness, Stefán ög-
mundsson, Steinn Steinarr, Sig-
urður Einarsson, Friðrik Hall-
dórsson o. fl.
Ritstjóri þess er Friðrik Hall-
dórsson loftskeytamaður og í rit
nefnd þeir Stefán Ögmundsson
og Sæmundur Ólafsson.
íslenzkar þjóðsögur á ensku.
Isafoldarprentsmiðja hefir gef-
ið út lítið kver, sem nefnist
“Folk Tales from Iceland and
other countries” og er eftir H.
M. Scargill, Ph. D., sem er liðs-
foringi í brezka hernum.
Porlrail of Iceland.
Víkingsprent hefir gefið út
aðra bók einnig á ensku með,
ofangreindum titli. Er hún eftir
D. A. Langhorn herlækni og
prýdd mörgum myndum, er tek-
ið hefir Óskar Bjarnason, prent-
ari.
Langhorn herlæknir hefir
dvalið á landi hér um tveggja
ára skeið og átt þess kost að
fara víða um landið. Hefir hann
haft opin augu og eyru fyrir
því, er hann hefir séð og hevrt,
og með hleypidómaleysi hins
menntaða manns ræðir hann
um þjóðina og siði hennar, skýr-
ir í stuttu máli frá jarðmyndun
landsins og gróðri en ræðir auk
þess um nokkra fegurstu staði
sem honum hefir fyrir augu
borið. Er bókin rituð af hinum
mesta vel\)ilja, enda kveðst höf-
undurinn á marga lund dást að
landinu, og sé bókin rituð til
þess að glæða skilning annara,
áhuga og virðingu fyrir lítilli
þjóð með gamlar erfðavenjur.
Veitið athygli
Þrátt fyrir ýmsa örðugleika
vegna stríðsástandsins, verður
haldinn íslendingadagur í
Blaime, Washington, þetta ár
eins og að undanförnu. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu, að
landanum sæmdi ekki að byrgja
skútuna inni í naust þó kylja
nokkur stæði af hafi. Hefir hún
því sett ferjuna á flot, seglbúið
og ráðið skipshöfn. Vonar hún
að liðið dugi hið besta og komi
skipinu heilu í höfn, hlöðnu
dýrum farmi gleði og góðvildar.
Skemtiskrá dagsins er aug-
lýst á öðrum stað í bl^ðinu.
Hefir verið vandað til hennar
eftir föngum. Þess skal getið,
þeim til hugarléttis, sem óttast
kynnu andlega uppþembu eftir
að sitja undir fjórum ræðum
sama daginn, að þrjár þeirra eru
stutt ávörp heiðursgesta dags-
ins. Þess utan er aðalræðumanni
sett strangt og ákveðið tíma-
takmark. Annars trúir nefndin
því, að henni heppnist að haga
þannig skemtiskránni, að fólk
verði ánægt með hana.
íslenzku kvenfélögin í Blaine
hafa tekið höndum saman um
matarmálin. Þarf enginn að ótt-
ast, að nokkur skortur muni
verða á ágætum veizlukosti, fyr-
ir sanngjarna þóknun.
Sá hluti nefndarinnar, sem
búsettur er sunnan línúnnar hef
ir tekið að sér, að mæta lönd-
unum frá Vancouver í Clover-
dale (ekki White Rock eins og
í fyrra), koma þeim á skemti-
staðinn að morgni og til Clover-
dale aftur að kvöldi. Nákvæmari
upplýsingar um ferðatæki og
áætlanir frá Vancouver er hægt
að fá með því að síma til ein-
hvers þessara:
Magnús Elíasson, Fairmont
15034.
Bjarni Kolbeins Fairmont
1521.
Stefán Árnason, Dexter 1648R
Mrs. Le Messurier, Hastings
2361L.
Fegurri staður verður vart
fundinn en Friðargarðurinn
(Peace Arch Park), fyrir frænd-
ur og vini að finnast og talast
við á fögrum sumar degi. Gleym
ið ekki deginum, Sunnudaginn
25. júlí. Munið eftir staðnum,
Peace Arch Park. A. E. K.
HLUSTIÐ Á
Séra Philip Pétursson
Og
LLOYD STINSON, bœjarfulltrúa
| til stuðnings við 1 ‘PHJE
SCOTTY BRYCE
C.C.F. frambjóðeoda í Selkirk
FRAMNES - 26. Júlí
GEYSIR - - 28. Júlí
Fundir hefjast kl. 8,30 e. h.
Merkið kjörseðilino: BRYCE | X>|
13!
a
SUMMER CLASSES
THE DEMAND FOR OFFICE HELP FOR MILITARY
AND INDUSTRIAL OFFICES IS SO PRESSING THAT
WE HAVE INTRODUCED SPECIAL SUMMER
WAR EMERGENCY COURSES
You may study individual subjects or groups of
subjects from the following; Shorthand, Typewriting,
Bookkeeping, Comptometer, Correspondence, Spelling,
Arithmetic, Penmanship, Dictaphone, Elliott Fisher or
Telephone Switchboard.
IT IS PLEASANT STUDYING IN OUR
AIR-COOLED, AIR-CONDITIONED
CLASSROOMS
The “SUCCESS” is the only air-conditioned, air-
cooled private Commercial College in Winnipeg.
Educational Admittance Standard
To our day classes we admit only students of Grade
XI, Grade XII, and University standing, a policv to
which we strictly adhere. For evening classes we have
no educational admittance standard.
You may enroll at any time in Day or Evening
ClasseS, which will continue thróughout the
summer without interruption.
TELEPHONE 25 843
CALL OR WRITE FOR OUR FREE
40-PAGE PROSPECTUS.
U C C E S
BUSINESS COLLEGE
Porlage Ave. at Edmonlon St.
WINNIPEG.