Lögberg - 09.12.1943, Qupperneq 1
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. DESEMBER, 1943
NÚMER 43
Mikilsvar ðandi stórveida-
fundur
Nýlokið er í borginni Teheran
í Persíu, fundi milli þeirra Roose-
velts, Stalin og Churchill, varð-
andi framvindu stríðssóknarinn-
ar, sem og endurskipulagningu
heimsmálanna, að fengnum fulln-
aðarsigri af hálfu sameinuðu
þjqðana. Sæti áttu og á þessum
sögufræga fundi, einkaráðunaut-
ar hlutaðeigandi þriggja stór-
velda, auk æðstu herforingja; á
fundinum ríkti slík eindrægni,
að á betra verður eigi kosið.
Að áminstri ráðstefnu lokinni,
létu þeir Roosevelt. Stalin og
Churchill birta svofelda yfirlýs-
ingu:
“Vér, forseti Bandaríkja Norð-
ur Ameríku, forsætisráðherra
Bretlands hins mikla, og forsætis-
ráðherra rússnesku ráðstjórnar-
ríkjanna, höfum átt með oss
fjögra daga fund í höfuðborg
bandaþjóðar vorrar, Teheran, og
fallist í öllum efnum á sameig-
inlega stefnuskrá. Vér lýsum yfir
ákvörðun vorri í þá átt, að vinna
saman í stríðinu, og eins að skipu-
lagningu þess friðar, sem á eftir
fer.
Æðstu herforingjar vorir hafa
tekið þátt í ráðstefnunni, og vér
höfum fullkomnað skipulagning-
ar vorar með það fyrir augum,
að útrýma þýzku herneskjunni
úr heiminum. Vér höfum komist
að fastri niðurstöðu um það,
hvernig stríðssókninni skuli hag-
að .viðvíkjandi tíma og átökum,
að austan, vestan og sunnan, og
vér höfum sannfærst um, að sig-
urinn verði hlutskifti vort.
Áhrærandi friðinn, erum vér
einnig sannfærðir um það, að
hann, vegna eindrægni vorrar,
reynist frambúðarfriður. Oss er
að .fullu ljós sú ábyrgð, sem á
herðum vorum hvílir ásamt öðr-
um þjóðum, viðvíkjandi grund-
völlun þess friðar, sem koma á í
veg fyrir ógnir styrjada kyn-
slóð fram af kynslóð.
Með aðstoð einkaráðuauta
vorra, höfum vér reynt að skygn-
ast inn í framtíðina, og haga ráð-
stöfunum þar eftir. Vér höfum
einsett oss, að leita samstarfs
allra þjóða, stórra og smárra. sem
eins og vér, hafa vígt sig í þjón-
ustu þeirra hugsjóna, að útloka
harðstjórn, þrælahald, og óbil-
girni úr mannheimum, og vér
munum taka saman við þær
höndum, jafnskjótt og þær tjá
sig fúsar til þess, að gerast virkir
félagar í fylkingu hinna lýð-
frjálsu þjóða.
Ekkert jarðneskt afl getur kom-
ið í veg fyrir það, að vér tortím-
um hinni þýzku hernaðarvél á
landi, sjó, neðansjávar og í lofti;
vér munum ennfremur hlífðar-
laust sprengja niður verksmðjur
og vopnabúr Þjóðverja, hvar sem
þau eru í sveit sett. Árásir vorar
verða vægðarlausar og vaxandi.
Er vér nú hverfum af þessari
vingjarlegu ráðstefnu, lítum vér
björtum augum til þess dags, er
allir íbúar þessa hnattar, fá að
lifa lífi sínu, samkvæmt þess
breytilegu þróun, að því er sam-
vizkan býður, ótruflaðir af utan-
aðkomandi ofbeldis- og illræðis-
öflum.
Vér komum til þéssarar ráð-
stefnu vongóðir, og með eindreg-
inn ásetning í huga, og vér hverf-
um héðan vinir í reynd, anda og
tilgangi.”
(Undirskrifað í Teheran, 2. des-
ember, 1943).
Roosevelt Stalin Churchill
Vel og drengilega að verið
Síðastliðið föstudagskvöld boð-
aði forseti Fyrsta lúterska safn-
aðar, Mr. G. F. Jónasson, nokkra
af meðlimum safnaðarins til sam-
tals í fundarsal kirkjunnar; var
tilefni fundarins það, að ræða um
veðskuld, að upphæð $4,500, er á
kirkjueigninni hvíldi, og hvernig
henni yrði viturlegast létt af;
kvaðst hann þess fullviss, að
fundarmenn yrði sér sammála
um það, að tími væri til þess kom-
inn, að greiða áminsta veðskuld
að fullu, og hvert ánægjuefni það
yrði, að geta fengið á sínum tíma,
skiláð kirkjunni skuldlausri í
hendur þeim ungu og yngri kyn-
slóðum, sem það hlutverk félli á
herðar, að halda uppi, og bera á-
byrgð á framtíðarstarfsemi safn-
aðarinsj taldi og slíkt verða
mundu hinum ungu safnaðarmeð
limum, er nú tækju þátf í stríðs-
þjónustu, ósegjanlegt fagnaðar-
efni, er þeir kæmu heim, og færu
að gpfa sig við safnaðarmálum á
ný; þótti viðstöddum öllum. for-
seta farast vel og drengilega orð;
nokkrar umræður urðu um málið
og voru skoðanir lítt skiftar um
það, hver nauðsyn bæri til, að
veðskuldin, sem á kirkjunni
hvíldi yrði afmáð hið bráðasta.
Tiltölulega fáir þeirra, sem
boðaðir voru á samtalsfund
þenna voru viðstaddir; olli því í
mörgum tilfellum sjúkdómsfar-
aldur sá, sem geisað hefir í borg-
■*
inni, auk anna. En þrátt fyrir
þetta hvorttveggja, bar fundur-
inn hinn glæsilegasta árangur,
því á honum söfnuðust $3,400 til
lúkningar veðskuldinni. Stór-
tækastir voru þeir Ásmundur P.
Jóhannsson og G. F. Jónasson,
með sína þúsud dollarana hvor,
og A. S. Bardal með fimm hundr-
uð dollara.. Tillög annara fund-
armanna í hlutfalli við gjaldþol,
voru einnig hin glæsilegustu.
Mr. Jónasson lét þess getið fyr-
ir hönd fulltrúanefndarinnar, að
sú væri ósk þeirra, er fyrir mál-
um stæði, að þátttaka safnaðar-
systkina til lúkningar veðskuld-
inni yrði sem allra almennust,
og að tillög af þeirra hálfu, stór
og smá, yrði send til féhirðis
safaðarins, Mr. O. B. Olsen, 907
Ingersoll Street, við allra fyrstu
hentugleika.
*
Askorun
Nú er annað bindi af Sögu ís-
lendinga í Vesturheimi komið út.
Bókin er hin eigulegasta að efni
og útliti. Þetta bindi er nær
hundrað blaðsíðum stærra en
fyrsta bindið, svo fylgja því upp-
drættir og myndir. *
Útgáfunefndin leyfir sér nú
hér með að skora á Vestur-ís-
lendinga að kaupa þessa bók og
stuðla með öllu móti að út-
breiðslu á henni. Mentamálaráð
íslands hefir lofast til að sjá um
útsölu á bókinni heima og hefir
þegar sent ríflega pöntun.
Eins og kunngert hefir verið í
blöðunum er þetta ekki gróða-
fyrirtæki fyrir nefndarmönnum.
Nefndin borgar tap, ef svo verð-
ur, en verði ágóði, þá gengur
hann til Þjóðræknisfélags Vestur
íslendinga. Nefndarmenn tóku
þetta fyrirtæki að sér aðeins
vega þess að þeim þótti leitt að
hætt væri við verkið áður en því
væri lokið, úr því byrjað var á
því. Það væri enginn sómi fyirir
okkur Vestur-íslendinga ef við
yrðum að viðurkenna að við hefð-
um ekki dug til þess að gefa út
sögu okkar — ekki sízt þegar við
njótum svona mikillar hjálpar
með sölu á bókinni heima.
Svo er hitt, að þetta er þarft
verk. íslendingar eiga hér mikla
sögu í Vesturheimi og því skyldi
hún ekki skráð? Það væri leiðin-
legt ef sagan% gleymdist svo að
fáir kynnu nokkuð að segja um
landnám og gjörðir íslendinga
hér í álfu að nokkrum áratugum
liðnum, og að greinilegar og á-
byggilegar upplýsingar um þá
væri hvergi að fá í einu lagi.
Þegar á þetta fyrritæki er litið
frá þjóðræknishliðinni, þá hljót-
um við að viðurkenna að það ætti
að skipa öndvegi á dagskrá okkar.
Söguna þarf að skrá og það verð-
ur okkur til sóma að ganga sem
bezt við getum frá því verki.
Nefndin er að biðja ýmsa menn
í bygðum íslendinga að gerast
útsölumenn þessa annars bindis
og gera alt, ’sem í þeirra valdi
stendur til þess að þetta fyrir-
tæki heppnist og halda megi á-
fram með næsta bindi. Nefndin
mælist nú vinsamlega,til þess að
almenningur taki þessum mönn-
um vel og kaupi bókina.
Verðið á þessu bindi, með gylt-
um kjöl, er $4.00. Þetta er ódýrt
þegar maður athugar að enskar
bækur á líkri stærð eru seldar á
líku verði — jafnvel þó þær selj-
ist í hundruðum þúsunda.
Óinnbundin og óinnheft kostar
bókin $3.25.
Pantair sendist til
J. J. Swanson,
308 Avenue Bldg.,
Win’nipeg, Canada.
Póstgjald — 15c undir hverja
bók, fylgi pöntun.
J. G. Jóhannsson.
Breiðavík í Nýja lslandi
Breiðavíkin blikar, björt um sumarkvöld,
undiraldan kvikar, yzt við skýjatjöld
mótar fyrir Mikluey.
Suðurvatnið sælan byr siglir lítið fley.
Líti’ eg yfir landið lyxiir skógur brún.
Bæir blasa í röðum, brosa slegin tún.
Um hga dreifst hjörð á beit,
aldrei dauðlegt auga manns annað fegra leit.
Frjálsir menn og fríðir, fundu þessa strönd.
Þá voru þrautatíðir þar að yrkja lönd.
Þeir ruddu skóg og reistu hús.
Atorkan var óðalsfé, andinn vinnufús.
Menn í minni hafa margt frá þeirri tíð,
með léttri lund þeir skrafa, um langt og örðugt stríð,
er háðu þeir við harðann kost.
1 slitnum klæðum köldum fót, köfuðu snjó og frost.
Þrautseigjan og þolið, þeirra vöggugjöf,
hötuðU víl og volið, ver en dauða og gröf.
Elskuðu Guð og eigin mátt,
bezt það sögðu búsílag og björguðust við smátt.
Bjálkabýlin smáu burt eru horfin flest.
Timburhúsin háu, henta fólki bezt.
Enginn keyrir uxa-par. '
Framför nú á flestu sézt frá því áður var.
Fólk með frjálsu sinni finst á hverjum bæ,
Úti bæði og inni, andar manndómsblæ.
Flestir stunda hyggins hátt,
frískir sveinar, fögur sprund, fókið hærugrátt.
Blessist bygðin fríða, blómgist hvert við ár.
Sæla og sumarblíða sólar-gangur hár.
Allskyns höpp og gæðagnótt
Drottins blessun drjúpi í skaut, daga bæði og nótt.
Klemens Jónasson.
Mr. Klemens Jónasson, höfundur þessa kvæðis er vel kunnur
Vestur-Islendingur, nú aldurhniginn, en ber aldurinn ágætlega vel.
Hann var jafnan einn af traustum og skilningsríkum leiðtogum
Selkirksafnaðar — um mörg ár forseti hans. Sómdi hann sér vel
á mannþingum og var málsvari og leiðtogi á margan hátt; er orð-
heppinn, skilningsgóður og hefir hvassa greind; er prýðisvel hag-
orður maður. Hann hefir ritað ýmislegt, og á í handritum meðal
annars, sögu Islendinga í Selkirk, sögu safnaðarins lúterska, m. fl.
Enn nýtur hann góðrar heilsu, er ern og glaður, og á í engum vanda
að svara fyrir sig orði. Mr. og Mrs. Jónasson eru til heimilis hjá
Jakob syni sínum og tengdadóttur, í grend við Selkirk, um 12
mílur norður af bænum, austan Rauðarár. Jakob og synir hans
báðir kvæntir búa þar stórbúi, og þar eru hin öldruðu hjón til
heimilis. Klemens og kona hans áttu nýlega sextíu ára giftingar-
afmæli. Hinir mörgu vinir þeirra árna þeim fagurs æfikvölds.
S. Ólafsson.
Frá sendiherra íslands í Washington
2. desember, 1943.
Hr. Einar P. Jónsson,
ritstjóri Lögbergs:
Eg vil hérmeð skýra yður frá
því, að mér hefir í dag borist §vo-
hljóðandi símskeyti, sem var
sent frá Reykjavík í gær, hinn
1. desember:
“Þrír stærstu þingflokkarnir
birtg í dag svohljóðandi tilkynn-
ingu: Þingflokkar Framsóknar-
flokks, sameiningarflokks Alþýðu
Socialistaflokksins og Sjálfstæð-
isflokks eru sammála um að
stofna lýðveldi á íslandi eigi síð-
ar en 17. júní 1944 og hafa á-
kveðið að bera fram á Alþingi
stjórnarskrár frumvarp Milli-
þinganefndarinnar í byrjun
næsta þings, enda verði Alþingi
kallað saman til reglulegs fund-
ar eigi síðar en 10. janúar 1944
til þess að afgreiða málið.”
Eins og kunnugt er, ráða 3
framangreindir flokkar yfir 45
þingsætum af alls 52 þingsætum.
Það má því fastlega gera ráð fyr-
ir því, að Alþingi komi saman
eigi síðar en 10. janúar 1944 og þá
verði borið fram frumvarp til
stjórnskipunarlaga, er milliþinga
nefnd í stjórnarskrármálinu hef-
ir lagt fram, en það hefir áður
vérið birt í fréttaskýrslu utan-
ríkisráðuneytisins, og því verið
birt áður í Lögbergi.
Með beztu kveðjum,
Thor Thors.
Tveir íslenzkir flugmenn koma frá
Canada
\—
Til landsins eru komnir tveir
ungir Islendingar er stundað hafa
flugnám í Canada þeir Jóhannes
Snorrason frá Akureyri og Magn»
ús Guðmundssno frá ísafirði.
Dvaldi Jóhannes vestra nærri
tvö og hálft ár, en Magnús eitt
og hálft ár.
Jóhannes hefir fengið atvinnu
hjá flugfélagi Islands.
Þeir studuðu báðir nám við
flugskóla Konna Jóhannessonar
í Winnipeg og eftir um það bil
eitt ár útskrifaðist Jóhanes, og
fór hann á einn af flugskólum
hersins í Regina, Saskatchewan.
No 3 Air Observer School.
Magnús var svo óheppinn að
þegar námstími hans hjá Konna
var að verða lokið var skólinn
lagður niður vegna bensínskömt-
unar. — Ætlaði Magnús þá að
taka skriflegt próf, en fékk það
ekki. Leitaði þá Magnús til ræð-
ismanns Islendinga í Winnipeg,
Grettis Ásmundssonar (Jóhanns-
sonar) og bað hann um aðstoð.
Setti Grettir sig þá í samband
við stjórnina í Ottawa og varð
það til þess að Magnús fluttist í
No. 5 Air Observer School í Win-
nipeg og fékk að taka skriflega
prófið, og síðar kom Grettir því
til leiðar að Magnús fékk að taka
farþegaflugpróf með hjálp ísl.
stjórnarinnar.
Á þessum skólum hersins er
aðal áherzla lögð á blindflug, það
er að segja að fljúga eingöngu
eftir mælum, einnig er kend sigl-
ingarfræði, mælitækjafræði auk
myndatöku, sprengjukast, njósn-
arflug og veðurfræði.
Skólinn, sem Jóhannes var á
fluttist eftir eitt ár til Pearce,
Alberta, var skólinn starfræktur
þar í nokkra mánuði, en var síðan
lagður niður og fór Jóhannes þá
á sama skóla og Magnús.
Þeir Magnús og Jóhannes voru
nú orðir leiðbeinendur í siglmga-
fræði og voru lærisveinar þeirra
frá Canada, Nýja Sjálandi, Eng-
landi, Ástralíu og Kína.
•
Við bjuggum hjá íslenzkri
fjölskyldu meðan við dvöldum í
Winnipeg, sögðu hinir ungu flug-
menn, sem reyndist okkur mjög
vel, það voru þau hjónin Marinó
Þorvaldsson (Sveins Þorvalds-
sonar í Riverton) og Ingibjörg
Baldvinsson (Halldórsson, sem
va,r þekt skáld í Nýja íslandi).
Allir þeir Vestur-íslendingar, er
við kyntumst hafa mikinn áhuga
á því að nánari samvinna takist
milli íslands og Canada í fram-
tíðinni, en mestu íslandsvinir er
við höfum fyrir hitt eru íslend-
ingar í Canada.
—Hvernig geðjaðist ykkur að
Canadamönnum?
—Þeir eru mestu prýðismenn,
hjálpsamir og duglegir, og eru
nú Canadamenn farnir að líta
bjartari augum á stríðið, og þegar
Italir gáfust upp voru menn farn-
ir að veðja um að stríðinu myndi
ljúka fyrir jól.
Meðan Jóhannes dvaldi vestra
kvæntist hann íslenzkri stúlku.
—Mbl. 14. okt.
ÍTALÍULEIÐANGURINN
Frá ítalíuleiðangrinum er sein-
ast að frétta, að báðum herjum
sameinuðu þjóðanna, þeim 5. og
hinum 8., skilar áfram þó hægt
fari, í rétta átt; einkum hefir 8
hernum orðið sæmilega ágengt í
innrás sinni upp frá Adriahafi,
þar sem hann hefir náð frá Þjóð-
verjum ýmissum stöðvum og
varnarvirkjum, sem frá hernað-
arlegu sjónarmiði hafa allmikil-
væga þýðingu.
FRÁ AUSTUR-
VÍGSTÖÐVUNUM
Svo hart sækja rússnesku her-
sveitirnar fram í Dnieperfljóts-
bugðunni, að Þjóðverjar fá þar
á engan hátt rönd við reist; en á
hinn bóginn hafa Þjóðverjar haf-
ið svo magnaða gagnsókn í hér-
uðunum umhverfis Kiev, að
Rússar hafa verið knúðir til þess
að draga sig til baka, og á þeim
svæðum tapað haldi á eitthvað
um tuttugu þorpum og bæjum.
ÁRSFUNDUR
Fyrsta lúterska safnaðar var
haldinn í kirkjunni á þriðjudags-
kvöldið var; voru þar lagðar fram
skýrslur embættismanna fyrir
nýliðið starfsár, ogþáru þær með
sér, að fulltrúaráð safnaðarins
hafði vakað á verði, og vel gætt
í hvívetna hagsmuna hans.
Allir fulltrúar hins liðna starfs-
árs voru endurkosnir, og var
þeim með því greidd traustsyfir-
lýsing, er þeir fyllilega verð-
skulduðu.
TYRKLAND VINVEITT
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM
Forseti tyrkneska lýðveldisins
sat fund með þeim Roosevelt og
Churchill í Cairo, þar sem hann
lét það ótvírætt í ljós, að þjóð
sín væri í megin atriðum* hlynt
málstað sameinuðu þjóðanna, þó
hún á hinn bóginn kysi algert
hlutleysi í lengstu lög.
i