Lögberg - 30.12.1943, Blaðsíða 4

Lögberg - 30.12.1943, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 30. DESEMBER 1943 ........Xögfaerg.................... Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS. LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR UiGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg^ Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and publishea by The Columbia Press, Lámited, 695 Sargerit Avenue Winnipeg, Manitoua PHONE 86 327 Saga íslendinga í Veálurheimi Þorsleinn Þ. Þorsleinsson. Annað bindi. VVinnipeg. 1943. Þjóðræknisíélag íslend- inga í Vesíurheimi. Prenísmiðja Colum- bia Press Ltd. Þetta er mikil bók fyrirferðar og hin gagn- merkasta um margt; hún tekur fyrra bindinu, þótt margt væri vel um það einnig, í mörgu fram, er yfir höfuð betur skipulögð og skemti- legri aflestrar, og verður því ekki annað með sanni sagt, en verkinu miði hið bezta áfram í rétta átt; nú er þetta að verða “Sagan siálf”, eins og Dr. Sig. Júl. Jóhannesson nýlega komst að orði um bókina; aukaatriðin eru að gleymast. Að flestum verkum mannanna, eða jafnvel öllum, má eitthvað réttilega finna, þótt þau engu að síður geti verið og séu, hin nýtilegustu; því hefir meðal annars verið fleygt fram í eyru vor, að of mikið væri af ættartölum í þessari bók; að slíkt gerði hana að einskonar markaskrá, en fáir entust til að lesa; aðfinslur af þessu tagi eru út í hött, og hafa ekki við nokkur minstu rök að styðjast; þær koma jafn- framt úr hörðustu átt, þar sem ættvísin hefir jafnan verið tallin til hinna menningarlegu dygða íslenzku þjóðarinnar; en því aðeins vita menn nokkur deili á sjálfum sér, að þeir verji til þess nokkrum tíma æfinnar, að fræðast um uppruna sinn og ætt; og án þess að persónur þær, er við sögu koma, séu þannig svipmerktar frá ættfræðilegu sjónarmiði séð, að eigi verði um uppruna þeirra vilst, verður engin saga skráð svo vel sé; ættarlýsingar í bók þessari, verða því undir öllum kringumstæðum miklu fremur að teljast til kosta, en vankosta; þær eru heldur ekki það langdregnar, að þær stofni til fjörráða við nokkurn sæmilega þjálfaðan les- anda. Bók þessi fjallar um nýbygðir íslendinga í Utah, Brasilíu, Rosseau, Muskoka, Kinmount og í Marklandi; eru lýsingar af íslenzkum frum- byggjum og umhverfi þeirra á áminstum stöðum hinar gagnorðustu, og -lausar að öllu við óþarfa málalengingar; einna mestrar ánægju urðum vér aðnjótandi við lestur kaflans um Mormóna- byggð ættbræðra vorra í Utah-ríkinu; hefir sú frásögn margháttaðan fróðleik til brunns að bera, sem nauðsyn bar til, að forðað yrði frá gleymsku, og gildir hið sama um marga aðra kafla bókarinnar, sem að öðrum nýbyggðum lúta; þetta eru eins konar fornaldarsögur ís- lenzkra frumherja í vesturálfu heims; miðaldir landnámsins og nýja sagan, eru að þokast nær. Um bók þessa hefir þegar verið ritað svo mikið og margt í vikublöðum vorum hér vestra, að það væri í rauninni að bera í bakkafullan lækinn, að bæta þar nokkru verulegu við að öðru leyti, en því, að hvetja íslendinga almennt til þess að kaupa bókina, og kynna sér innihald hennar svo sem bezt má verða; því hún á það í öllum meginatriðum skilið. Nokkrar villur höfum vér rekið oss á í bók þessari, sem láta hálf óþægilega í eyra. Sagt er frá presti í Hofteigi á Jökuldal, sem Þorvaldur hét; söguritarinn telur hann Kristjánsson; sá Þorvaldur var Ásgeirsson; styðst höfundur þar auðsjáanlega við ranga heimild; hefði auðveld- lega mátt úr þessu bæta, því góð rit eru fáan- leg, sem skilgreina prestastétt Islands. Ekki minnumst vér þess, að hafa heyrt getið um Melstað í Hrútafirði; hitt var líka alveg óþarft, að hola Skriðdalnum niður í Norður-Múlasýslu; hann hefir að minsta kosti fram að þessu, talist til Múlasýslu hinnar syðri; en gera má ráð fyrii að þessar villur, og nokkrar aðrar hliðstæðar, verði leiðréttar í næsta bindi, og verða þær þá ekki lengur jafn meinlegar. Eftir því, sem lengra líður á söguna, og fleiri bindi hennar koma út, hlýtur áhuginn fyrir henni að vaxa, því þá fer almenningur að verða hnútum hennar kunnugri, því þá fer hún að verða samtíðarsaga, og stendur einstaklingun- um þar af leiðandi nær. Það er mikilvægt þjóð- ræknismál, að styðja að útgáfu og útbreiðslu “Sögunnar”, því þótt eitt og annað í sambandi við hana kunni að valda lítilsháttar ágreiningi, þá er málið í eðli sínu hafið yfir allan ágrein- ing, og ætti að sameina íslendinga í óskipta heild. Þessu áminsta bindi af Sögu íslendinga í Vesturheimi, lýkur með komu fyrstu frumherja- fylkingarinnar til Gimli, og fer höfundur um þann eftirminnilega atburð svofeldum orðum: “Stefnt var sunnan við Víðines inn í tjörnina þar og lent í dálítilli vík innarlega á tanganum, þar sem skóglaus mjódd er á rifinu. Þar var flotinn festur við land. Um kvöldið gengu menn fram og aftur um sandrifið til að rétta úr sér, og voru hinir ánægðustu yfir því, að loks var þessi langferð á enda. Um nóttina létu þeir fyrirberast á lang- skipum sínum. íslendingar voru lentir með heilu og höldnu á eyðiströnd síns nýja lands. En fyrsti vetrar- dagur var að morgni.” Málið á bók þessari er yfirleitt þróttmikið, og lýsingar víða sviphreinar og glæsilegar. Prent un er ágæt, og prófarkalestur nokkurnveginn viðunandi. Bókin er 347 blaðsíður að stærð, og kostar í bandi $4.00, auk 15 centa burðargjalds. Pantanir, ásamt andvirði, sendist til Columbia Press Ltd., 695 Sargent Ave., eða J. J. Swanson, 308 Avenue Building, Winnipeg. Afmœli forsœtisráðherrans Þann 17. yfirstandandi mánaðar, átti forsætis- ráðherra canadisku þjóðarinnar, Rt. Hon. W. L. McKenzie King, sextíu og níu ára afmæli; hann er enn maður ern, og þrunginn af starfsfjöri; hann lætur sér aldrei óðslega að neinu; hann er enn hinn yfirlætislausi forustumaður flokks síns, sem jafnaðarlega lætur hinar illkvitnustu árásir úr herbúðum andstæðinganna sér eins og vind um eyru þjóta. En Mr. King er annað og meira en algengur flokksforingi, hann er raunverulega þjóðforingi í þess orðs sönnustu og beztu merkingu; hann hefir haft með hönd- um stjórnarforustu í þessu landi, lengur en' nokkur annar stjórnmálaleiðtogi, og hann hefir hvergi nærri verið kveðinn í kútinn enn. Það er athyglisvert, að sum helztu blöðin í Montreal, sem verið hafa um langt skeið einna illvígust í garð Mr. Kings, eru nú farin að verða nokkru mildari í máli, og telja þjóðarskútunni allvel borgið meðan hann sé við stýrið; þau meira að segja telja það nú engan veginn óhugsandi að svo geti auðveldlega farið, að hann eigi eftir að vinna eina kosninguna enn, jafnvel að loknu stríði. Ýmsir þeir, sem handgengastir eru Mr. King, hafa að sögn, hvatt til þess að “lengja líf” þingsins meðan á stríðinu stæði, eins og telja má víst að gert verði á Englandi. Þessu hefir Mr. King þverneitað, og nú alveg nýverið, hefir hann afdráttarlaust lýst yfir því, að “líf þingsins” yrði ekki framlengt einn einasta dag umfram reglubundið kjörtímabil, hvort sem stríðinu þá yrði lokið eða eigi; þá yrði hinn rétti tími kominn til þess, að ráðgast um það við þjóðina, hvort hún vildi skipta um stjórnar- forustu eða það gagnstæða. Á afmælisdaginn vann Mr. King venju sam- kvæmt frá því árla morguns og langt fram á kvöld; hann er enn hinn aðgætni vökumaður canadisku þjóðarinnar, jafnt í stríði sem friði. Sharnhorst úr sögunni Þau góðu tíðindi bárust nýverið á öldum ljósvakans vítt um heim, að í sjóorustu, sem háð var undan ströndum Noregs, hefði brezki flotinn sökt þýzka beitiskipinu Sharnhorst, og hefði með því djöfladrekum Hitlers fækkað um einn. Samkvæmt opinberri tilkynningu frá flotamálaráðuneytinu í London, höfðu tvö brezk herskip aðeins laskast lítið eitt í viðureign þessari. Sharnhorst var eitt hið allra rammbyggileg- asta herskip, sem Þjóðverjar áttu til í eigu sinni, og búið öllum þeim illvígustu morð- tólum, sem nútímatæknin þekti; en á áminstri örlagastund kom þetta alt fyrir ekki; djöfla- drekinn sökk með allri áhöfn, og honum skýtur aldrei upp aftur. Illur sjóræningi er úr sögunni sem aldrei á afturkvæmt. Hver verður næsti forseti Næsta haust fara fram forsetakosningar í Bandaríkjunum, og er undirbúningur undir þær þegar hafinn af kappi, þó flest sé með kyrrum kjörum á yfirborðinu; að Roosevelt verði enn á ný í kjöri af hálfu Demokrata, er ástæðulaust að draga í efa; en að því er Republicanaflokk- inn áhrærir, þykir líklegt að megin átökin verði milli Willkie og Dewey’s, ríkisstjóra í New York. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun í Banda- ríkjunum, hefir Roosevelt algerlega yfirhönd- ina í flokki Demokrata, eii Willkie í flokki Republicana; úr þeim flokki er nú einnig all- mikið talað um Bricker ríkisstjóra í Ohio, sem líklegt forsetaefni. Kveðja tíl islands og lslendingum, Eflir Guðmund < (Ávarpi þessu átti að útvarpa til íslands 1. desember. en vegna breyttra aðstæðna varð ekki af því.) Ritstj. Heiðruðu Íslendingar! Mér er það sönn ánægja að færa íslandi og íslendingum bestu kveðjur og heillaóskir frá Vestur-íslendingum á þessum degi. Við erum enn nægilegt brot af íslenzku þjóðinni til að geta tekið verulegan þátt í öllu heima á Islandi. Við sem erum af annari kynslóð íslendinga í Norður Ameríku, munum vel virðing- una og ástina til íslands, sem foreldrar okkar bæði vitandi og ósjálfrátt innrættu okkur. Við munum söknuð þeirra út af því að fara á mis við íslenzka félags- lífið og íslenzka útsýnið. Við munum fögnuð þeirra þegar bréf komu frá ættingjum og vinum, sem eftir voru. Við munum hvað vænt þeim þótti um fréttir af framförum, bæði verklegum og stjórnarfarslegum. Þó erfiðleik- ar á íslandi á þeim tímum væru aðallega ástæðan fyrir komu þeirra hingað, var það aldrei nefnt. aðfinnslur um Isiand heyrðum við aldrei, aðeins það besta var okkur sagt þegar ís- landi var lýst fyrir okkur. ísland varð ósjálfrátt okkar töfraland. Tilfinningar okkar af þessari kynslóð gagnvart Islandi eru því auðskildar. Við getum fyllilega fagnað yfir framförum og far- sældum þar. Við hryggjumst yfir erfiðleikum og öllu sem aflaga fer. Við höfum reynt að innræta börnum okkar þessar sömu til- finningar. þó tækifærin hafi ekki gefið þess kost að það tækist eins vel og fyrir foreldrum okkar. Þá samt má eg fullyrða að allir sem eru af íslenzku bergi brotnir hvar sem þeir eru. eiga eitthvað af þessum tilfinningum og allir samgleðjast íslandi og íslending- um á þessum degi yfir vel unnu og þjóðlegu starfi og óska landi og þjóð als hins besta 1 fram- tíðinni. Áður en foreldrar okkar fluttu frá íslandi, var landið um marg- ar aldir undir einokun erlendrar stjórnar. Þar af leiðandi erfið- leikar og hörmungar höfðu lam- að allan vilja og allan kraft til framfara bæði andlega og verk- lega en byrjað var að ráða bót á því. Ármann á Alþingi, Fjölnir og Ný félagsrit höfðu glætt hugs- unarhátt og elft hugrekkið. Jón Sigurðsson afrekaði miklu með sinni æfilanga og ötula starfi í þágu frelsis og framfara Islands. Fyrsta sporið var stigið þegar stjórnarskráin fékst árið 1874. En hún var mjög ófullkomin. Aðrir góðir leiðtogar tóku við og þegar örðugast sýndist vera voru altaf einhverjir sem héldu á lofti hug- sjóninni um fult frelsi. Ófull- nægjandi sjálfstæðissamningum var hafnað. Loks tókst að fá grundvöll Gamla sáttmála við- urkendan og ísland aðskilið frá Danmörku með sambandslaga- samningnum 1918, með honum var endurreist sjglfstæði íslands sem við minnumst í dag. En með því var ekki alt full- gert. Eftir var að flytja inn í landið dómsvaldið. Eftir var að takast á hendur strandgæzluna og utanríkismál landsiná, þá var einnig eftir að slíta konungssam- bandinu. Samningurinn gerði að vísu ráð fyrir öllu þessu, en það þurfti áræði og kraft til að koma þessu í framkvæmd. Þeir eigin- leikar komu strax í !jós. Óhikað var haldið áfram í frelsisáttina og þessi mál útkljáð hvert eftir annað. Við höfum miklar mætur á sögunum af hinum fornu íslenzku hetjum. Eigi að síður ættum við að viðurkenna hetjur nútímans, þær hafa sýnt fult eins mikinn hetjuskap, þær eiga alveg eins mikinn eða meiri heiður skilinn. íslendinga frá Vestur- 1. des., 1943 Irímsson dómara Þessar nútíma hetjur íslands hafa ekki barist sín á milli með spjótum eða söxum og ekki farið í víkingaferðir til útlanda sér til fjár og frama. Baráttan á milli þeirra hefur verið um hvað best sé fyrir land og þjóð. Vopnin hafa verið skynsamar deilur um það, að þeim loknum hafa menn gengið sem einhuga hersveit móti útlendri kúgun. Einhuga hefir líka verið starfað að því að nota sér öfl náttúrunnar, svo sem foss- ana, hveri og laugar í þarfir þjóð- félagsins. Það er okkur hér mikil ánægja að heiðra þessar nútíma hetjur. Eins er það mikið gleðiefni fyrir okkur að næstum allir ís- lendingar og allir stjórnmála- flokkar landsins eru samtaka í að neyta uppsagnar ákvæðis sam- bandslaganna, undir eins næsta ár og endurreisa þá lýðveldið. Það er höfuðatriði þessarar 700 ára baráttu. Við munum fagna yfir framkvæmd þess 17. júní 1944. Og alt þetta hefir verið fram- kvæmt af fámennri þjóð með friðsamlegum samningum við mikið stærri þjóð, það er fyrir- mynd, sem stórþjóðirnar mættu vel nota í framtíðinr.i. Við fögnum því líka að þegar örlögin settu ísland á umheims- ins alfara braut og þessi mikla styrjöld náði til íslands, þá voru allir samhuga um að veita alla mögulega aðstoð í frelsisbarátt- unni og um leið vernda þjóðina eftir mætti. ísland og íslendingar eru nú í meira áliti um víða veröld en nokkurntíma áður. Við erum stoltir af að vera skyldir ykkur. Lengi lifi ísland. Úrval íslenzkra bóka á ensku Richard Beck, prófessor við há- skólann í Norður-Dakota í Banda ríkjunum, hefir nýlega gefið út á vegum American-Scandinavian Foundation úrvalssafn íslenzkra nútímabókmennta, er hann nefn- ir Icelandic poems and stories (Princetown University Press). Eru í safni þessu birtar enskar þýðingar á kvæðum og sögum (eða sögubrotum) eftir 28 skáld, frá Bjarna Thorarensen til Hall- dórs KiJjans Laxness. Islenzku skáldin eru: Bjarni Thorarensen, Jónas Hallgrímsson, Grímur Thomsen, Ben. Gröndal, Páll Ól- afsson, Steingr. Thorsteinsson, Matthías Jochumsson, Kristján Jónsson, Jón Stefánsson (Þorgils gjallandi, Gestur Pálsson, Steph. G. Stephansson, Einar H. Kvaran, Þorsteinn Erlingsson, Hannes Hafstein, Einar Benediktsson, Þorsteinn Gíslason, Guðm. Frið- jónsson, Jón Trausti,, Guðm. Guðmundsson, Kristín Sigfús- dóttir, Jóhann Sigurjónsson, Hulda, Jakob Thorarensen, Jak- ob Smári, Davíð Stefánsson, Guðm. Hagalín, Kristmann Guð- mundsson og Halldór Kiljan Lax ness. Er ljóst af þessu, að mörg nöfn vantar fieirra manna, er sæti eiga á skáldaþingi, en við því má eigi búast, að í úrvals- riti eins og þessu sé unnt að birta þýðingar eftir öll þau ís- lenzk skáld, er það ættu skilið. Veldur m. a., að mjög erfitt er að þýða kvæði og verður því að not- ast við þær þýðingar, er gerðar hafa verið, oft af handahófi, og birzt hafa í tímaritum og blöð- um vestan hafs. Hinsvegar ber útgefandi ábyrgð á því að velja þær einar þýðingai, er fram- bærilegar mega teljast. Kvæðin eru flest þýdd af Jakobínu John- son, 24 samtals, eftir ýms skáld. Næstur er Watson Kirkconnell, er þýtt hefir 10 kvæði, Skúli Johnson með 4 þýðingar, en aðr- ir Ijóðaþýðendur eru Eiríkur Magnússno (Sverrir konungur , Charles Wharton Stork, Kemp Malone, Runólfur Félsted, Magn- ús Á. Árnason og Vilhjálmur Stefánsson (2 vísur eftir Stein- grím Thorsteinsson). Sögurnar eru flestar þýddar af Mekkin Sveinson Perkins, samtals 12, eina hefr Jak. Johnson þýtt, aðra Rich. Beck, og 2 þýðingar eru eftir Axel Eyberg og John Watkins í sameiningu. Það er vitanlega ógemingur að leggja nokkurn dóm á þessar þýðingar án nákvæms saman- burðar. Sumar ljóðaþýðingarnar eru prýðilega gerðar, aðrar mið- ur, eins og gengur. Úrval þetta mun vekja forvitni margra bók- menntamanna í enskumælandi löndum, ekki sízt vegna þess, að stutt æviágrip fylgir hverjum höfundi, er Rich. Beck hefir sam- ið. Skýrir hann þar frá helztu ritstörfum hvers höfundar og ein kennum hans. Eru þessar stuttu lýsingar ritaðar af miklum hlý- leik í garð íslenzku skáldanna og tekst honum víðast prýðilega að benda á sérkenni hvers eins. I ítarlegum formála lýsir Rich. Beck þróun íslenzkra bók- mennta frá byrjun rómantísku stefnunnar og fram á vora daga. Eru þar dregnar glöggar marka- línur og gerir hann sér far um að sýna fram á samhengið við fornbókmenntirnar og hversu íslenzk skáld séu í sínu innsta eðli þjóðleg, þrátt fyrir margs- konar áhrif af erlendum tizku- stefnum í nálægum löndum. Richard. Beck er, eins og kunn- ugt er, óþreytandi eljumaður til allra starfa. Auk kennslustarfa sinna og vísindalegra ritgerða ritar hann blaðagreinar, flytur fyrirlestra um ísland og íslenzk- ar bókmenntir víðsvegar í Amer- íku, er forseti Þjóðræknisfélags- ins og nýlega skipaður íslenzkur ræðismaður í Norður Dakota. Hann er ekki síður ræðismaður íslendinga í andlegum málum og mega íslendingar bæði austan hafs og.vestan vera honum þakk- látir fyrir hans mikla og ötula starf. Alexander Jóhannesson. Vísir. i Hitt og þetta Leikari (kemur inn í herbergi sitt og sér vin sinn með hendurn- ar niðri í peningakassanum og miðar á hann byssu): “Láttu peningakassann minn vera! Upp með hendurnar, annars skýt eg-” Vinurinn: “Láttu ekki svona, maður. Kassinn er alveg tómur.” Leikarinn: “Það er nú byssan mín líka. Og þá er víst bezt, að við séum sáttir.” • Kona: “Eg er 'hrædd um að þú hafir verið nokkuð drukkinn, þegar þú komst heim í nótt.” Maðurinn: “Nei, góða mín. Eg var svo ódrukkinn, að eg las lengi í blaði í rúminu, áður en eg fór að sofa.” Konan: “Þú hefur víst haft lítið gagn af þeim lestri, því að það lá öfugt fyrir framan þig sofandi í morgun.” • Frú A.: “Hefur þú vinnukonu eða gerir þú húsverkin sjálf?” Frú B.: “Já”. Frú A.: “Hvernig á að skilja það?” Frú B.: “Eg svara báðum spurn- ingunum játandi. Eg hefi vinnu- konu og eg geri verkin sjálf ” • A: “Einn af aðalkostunum við ferðalög er sá, að maður sér alt af ný og ný andlit.” B: “En eg þarf nú ekki að ferð- ast til þess, því að konan mín hefur oftast vinnukvennaskifti mánaðarlega, svo að eg sé alt af ný og ný andlit.” • A: “Hvernig líður honum frænda þínum?” B: “Það er nærri því ár síðan hann dó.” í A: “Nú, það er líklega aí því, sem eg hefi ekki séð hann á gangi svo lengi.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.