Lögberg - 27.04.1944, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. APRÍL, 1944
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
•
Lestrarfélagið Vísir hefir und-
anfarið verið að æfa og undir-
búa hinn velþekta sjónleik “Vest-
urfararnir”, eftir Matthías Joch-
umson, og verður hann sýndur á
eftirfarandi stöðum:
Geysir 28. apríl, Árborg 2. maí,
Riverton 9. maí. Norður Ný-ís-
lendingar ættu ekki að sleppa
tækifærinu að sjá hann og hafa
ánægjulega og al-íslenzka kvöld-
stund.
Lestrarfélagið Vísir er þekkt
að því að vanda til leiksýninga
sinna og hefur líka á að skipa
þeim beztu leikkröftum sem til
eru innan byggðarinnar. Og að
þessu sinni mun vera óhætt að
fullyrða að hvert rúm sé vel
skipað.
G. B.
•
The Icelandic Canadian re-
quests photographs (not snap-
shots) and the following particu-
lars of men and women of Ice-
landic descent wiho have enlisted
in any branch of the armed ser-
vices where two or more mem-
bers of a family are concerned.
We request the name, rank,
place and date of birth, date of
enlistment, branch of service,
place of training, full name of
parents and any othér items
which may be regarded as per-
tinent.
The magazine also attempts to
present as complete a list as pos-
sible of those of Icelandic descent
listed as killed on active service.
Your co-operation in forwarding
such information is requested.
We have had very few notices
regarding American enlistments
oi casualties, for this reason our
record has not been as complete
as it might have been. May we
request our readers south of the
boundary to send us such in-
formation when available.
Please address all information
to
G. Finnbogason,
641 Agnes St.
Winnipeg, Man.
•
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran Church will
hold their next regular meet-
ing on Tuesday, May 2nd at
2,30 sharp at the home of Mrs.
L. E. Summers, 204 Queenson
St.
•
Frú Hansína Olson, 886
Sherburne St., er nýlega farin
vestur til Wynyard ti‘1 fram-
tíðardvalar hjá dóttur sinni og
tengdasyni, þeim Mr. og Mrs.
John Thorsteinson. Frú Hansína
er vinmörg af langri og athafna-
ríkri dvöl sinni í þessari borg,
og fylgja henni héðan góðhug-
ir fjölda manns í hennar nýja
umhverfi.
•
Mr. og Mrs. Peter Lenchuk,
Gimli, urðu fyrir þeirri sorg
að missa d(óttur sína, Doreen
Joan, rúmlega þriggja mánaða
gamla, 16. apríl s. 1. Móðir litlu
stúlkunnar er íslenzk og heitir
Björgihildur Gíslína, dóttir Mr.
og Mrs. Ebenes Pálsson, River-
ton. Séra Bjarni A. Bjarnason
jarðsöng frá Gimli lútersku
kirkju 18. apríl.
Miðaldra kona óskar eftir
ráðskonustöðu á fámennu heim-
ili, eða hjá ekkjumanni með 1
eða 2 börn á skóla aldri. Rit-
stjóri vísar á.
•
Mr. og Mrs. Karl Walter
Einarson, Gimli, urðu fyrir
þeirri sorg að missa dóttur sína,
Kristínu Marlene, tveggja mán-
aða gamla, 29. marz s. 1. Jarð-
arförin fór fram 31. marz frá
heimilinu. Séra Bjarni A. Bjarna
son jarðsöng.
•
Nýkominn er hingað til borg-
arinnar frá Akureyri, ungur
maður, Kristján N. Mikaelson,
til flugnáms við skóla Konnie
Jóhannessonar.
•
Jón Sigurðson félagið þakkar
fyrir eftirfylgjandi gjafir:
Mr. og Mrs. O. Pétursson $25.00
Mrs. J. Halldórson $1.00. Mrs.
C. G. Johnson $1.00. Miss Rosa
Bjarnason $1.00. Mrs. C. B. Jöhn-
son $1.00. Vinur $10.00. Mrs.
Helga Goodman, 2 rúmábreiður.
Mrs. Harvey Benson, Mrs. L. E-
Summers, Miss Emma Hannes-
son, Mrs. H. G. Hart, Mrs. M.
DesBrisay og Mrs. J. Campbell,
rendu félaginu vandaða ábreiðu,
patchwork quilt, sem þær höfðu
saumað.
Fyrir allar þessar gjafir þakk-
ar félagið innilega.
H. D.
Bandalag Lúterskra kvenna,
þakkar fyrir $30.00, sent í bygg-
ingarsjóðinn, frá Lúterska kvenn
félaginu, Riverton, Man. gefið í
minningu um Mrs. Guðrúnu
Björnson.
Meðtekið með þakklæti og
ItTuttekningu.
Hólmfríður Daníelson.
íslendingadagurinn í ár
Stórhátíð verður haldin á ís-
4andi í sumar í tilefni af því
að landið er að verða sjálfstætt
og óháð. Þjóðin sníður sína
nýju stjórnarskrá mjög eftir
stjórnarskrá Bandaríkjanna; er
það vel farið.
Til þessa hátíðahalds heima
hefir verið valinn 17. júní, þrátt
fyrir það að þar hefir oft ver-
ið haldinn hátíðlegur 2. ágúst,
eins og hér hjá okkur.
Áður en þetta var ákveðið
hafði Íslendingadags nefndin
hér valið 2. ágúst eins og vant
er.
Síðan hefir það heyrst að ís-
lendingar í Norðurhluta Nýja
Islands ætli að halda sérstaka
vera 17. júní. Þetta er illa far-
ið ef satt er. Engin óánægja né
klofningur ætti að eiga sér stað
við hátíðahöldin í sumar, ef
mögulega verður hjá því kom-
ist.
Islendingadags nefndin okkar
ætti tafarlaust að koma saman,
og velja 17. júní, hún ætti að
leita samvinnu land.anna í Norð-
ur Nýja ísl., til að hátáðin geti
orðið almenn og myndarleg og
um fram alt á sama tíma og
heima. Hún ætti að verða ein
allsherjar hátíð fyrir alt Mani-
toba fylki og haldin 17. júní
að Gimli.
Seinna verður áreiðanlega
valinn heima á Islandi einhver
sérstakur dagur, sem hátíðleg-
ur verður haldinn á hverju ári.
Þann sama dag, hver svo sem
hann verður, eigum við hér
vestra að velja.
Sig Júl. Jóhannesson.
Kirkjuþing
Prestakall séra E. H. Fáfnis 1 Argyle bygð í Manitoba, hefir nú
boðið tiíl sín þingi Hins Ev. Lút kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi í júní í sumar. Framkvæmdarnefnd kirkjufélagsins hefir
þegar þegið það boð með fögnuði og þakklæti. Einnig hefir sú
nefnd samþykt að þingið skuli standa þar dagana 16.—20. júní,
og er það í samræmi við vilja prestakallsins. Er svo ráð fyrir
gjört að þingið hefjist með almennri guðsþjónustu, altarisgöngu
og þingsetningu, föstudagskvöldið 16. júní. Síðar verður þingið og
dagskrá þess auglýst nákvæmlega.
H. Sigmar.
Forseti hins Ev. Lút. kirkjufélags Isl. í Vesturheimi.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
776 Victor St,—Phone 29 017
Guðþjónustur á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir æfinlega velkomnir.
•
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 30. apríl.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7. síðd.
Allir velkomnir.
Sama dag áætluð messa í
Víðinessöfnuði, kl. 2. síðd.
S. Ólafsson.
•
Prestakall Norður Nýja ísiandi
30. apríl — Hnausa, messa kl.
2. e. h.
Árborg, íslenzk messa kl. 8
e. h.
7. maí — Víðir, messa kl. 2
e. h.
Allir velkomnir.
•
B. A. Bjarnason.
Sunnudaginn 30. apríl messar
séra H. Sigmar í Vídalínskirkju
kl. 11 og á Mountain kl. 8 að
kvöldi. Báðar messur á íslenzku^
máli.
Allir velkomnir.
H. Sigmar.
Heimsókn á Betel
Kvenfélag Mínerva-byggðar á
Gimli, heimsótti Gamalmenna-
heimilið Betel, á skírdag, þann
6. apríl, eftir venju, var þetta
24. heimsókn félagskvenna.
Færðu þær að vanda með sér
góðgerðir og framreiddu fyrir
heimilisfólk og marga gesti. Að
kaffidrykkju aflokinni fór fram
dáíítil skemtiskrá, sem sá er
þessar línur ritar, stjórnaði. Að
afloknum sálmasöng og guð-
spjalli dagsins hófst prógramið.
Tveir skólakennarar, Miss Al-
ford, og Miss Loewen, léku
Píanó-samspil. Þá sungu þær ís-
lenzka sönginn “Stóð eg úti í
tunglsljósi”, og leystu hlutverkið
vel af hendi, fólkið söng undir
með þeim, er þær sungu að öðru
sinni. Mrs. Ingibjörg J. Ólafs-
son flutti því næst ávarp er hún
neíndi: Minni gesta, þrungið
skilningi á innra eðli og þýðingu
gestakomu, eftir íslenzkum skiln-
ingi.
Smámey, Lorna Stefánsson
söng fjögur íslenzk lög og hlýj-
aði hjörtum áheyrenda með sinni
barnslegu rödd.
Miss Vordís Friðfinnsson las
upp tvö kvæði: “Eg sigli í
haust”, eftir Davíð Stefánsson,
og “Sveitin mín”, eftir Guttorm
J. Guttormsson. Kvæðin voru
lesin af næmri túlkun og yfir-
lætislausri snild.
Mr. Ólafur N. Kárdal söng
ýmsa söngva, er Mrs. Kárdal
spilaði undir. Er það jafnan ó-
blandin gleði að hlusta á söng
Mr. Kárdal og túlkun Mrs. Kár-
dal við hljóðfærið. Sér í lagi er
eg þakklátur fyrir söng hans á
ljóði Davíðs Stefánssonar, undir
lagi Sigvalda læknis Kaldalóns,
er eg heyrði í fyrsta sinm, og
var mjög hrifinn af. Mr. Hall-
grímur Austmann flutti ávarps-
orð til gesta fyrir hönd heimilis-
fólksins og talaði af snilld, leikur
honum á vörum fágæt og fögur
íslenzka, talaði hann einnig um
gestrisni með hinni íslenzku
þjóð.
Að lokum var sungið undir
leiðsögn Mr. Kárdal: “Eg man
þá tíð”, og “Heim til fjalla”.
Þakkaði hófstjóri að lokum fyr
ir hönd stjórnarnefndar “Betel”,
gestunum fyrir komuna.
Lauk þannig Ijúfri samveru-
stund.
S. Ólafsson.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRAM YÐAR
Wartime Prices and
Trade Board
Spurningar og svör.
Spurt. Fyrir skömmu keypti
eg sex únzu glas af “jelly” og
varð að láta af hendi einn seðil.
Var þetta rétt?
Svar. Já. Þegar skamtaðar
vörur eru seldar verða kaup-
menn að innheimta seðla, hversu
Jítið sem keypt er. Þú hefðir
getað keypt tvö sex únzu glös
í einu og fengið þannig fult
seðlagildi, sem í þessu tilfelli
er tólf mældar únzur.
Spurt. Eg kaupi stundum til-
búin “pie-filler” úr ávöxtum,
en það virðast vera skiftar skoð-
anir um hvernig helzt eigi að
selja það. Einn kaupmaður seldi
mér það sem niðursoðna ávexti
og lét mig hafa tuttugu únzur
fyrii einn seðil. Annar seldi
það sem “jam” og lét ekki nema
tólf únzur fyrir seðilinn. Hvort
er rétt?
Svar. Niðursoðnir ávextir,
sem eru merktir “pie-filler” eiga
að seljast sem “jam”. Það fást
því ekki nema tólf únzur með
hverjum seðli. Ávaxta tegundir
sem ekki eru skamtaðar nú sem
stendur, og því undanþegnar.
I Þessum reglugerðum eru
rhubarb, bláber og crab-apples.
Spurt. Fyrir nokkrum vikum
keypti eg tvö pund af canary-
seed fyrir 25 cent. Núna í vik-
unni varð eg að borga 30 cent
fyrir tvö pund. Er ekkert há-
marksverð á þessari vöru?
Svar. Nei. “Bird seed” er að-
|lutt og því ekki hægt að á-
kveða neitt hámarksverð.
Spuct. Geta járnsmiðir hækk-
að verð á 9keifum frá 50 upp í
75 cent, eða verð fyrir að járna
hesta frá 25 upp í 50 cent.
Svar. Nei. Járnsmiðir verða
að halda sér við verðið sem þeir
settu á hámarkstímabilinu 1941,
og mega ekki hækka það án sér-
staks leyfis.
Spurt. Eru T seðlarnir í nýju
bókunum aðeins fyrir te?
Svar. Nei. T seðlarnir í bók
númer fjögur eru fyrir bæði te
og kaffi.
Spurt. Hvað mikið hunang
fæst með einum sætmesisseðli.?
Svar. Tvö pund.
Spurt. Eg leigi þrjú herbergi
ungum hjónum, sem eru hjá
mér, en þarfnast nú herbergj-
anna sjálf. Hve langur fyrir-
vari er nauðsynlegur, þau borga
mánaðarlega.
Svar. Svona íbúð kallast sam-
eiginleg íbúð. Það þarf ekki
nema mánaðar fyrirvara ef þau
leigja mánaðarlega en viku
fyrirvara ef borgað er viku-
lega.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St. Wpg.
Leiðrétting
f minningarorðum þeim er eg
skrifaði um Sigurð J. Landy er
út kom í Lög*bengi, 13. apríl
s. 1., eru nokkrar villur, vil eg
leiðrétta þær helstu. Það er sagt
að lwkurinn, sem rennur í gegn-
um Argyle bygðina, renni frá
suðaustri til norðausturs, á auð-
vitað að vera frá suðaustri til
norðvesturs. Eftirfylgjandi grein
er skökk: “Kornungar voru
stúlkurnar er þær mistu föður
sinn, Jón Landy, gekk Sigríður
þeim þá í föður stað.” Á að
vera “gekk Sigurður þeim þá
í föður stað”. Dr. Fjeldsted er
talið heimilisfang í Baldur,
Man., en á að vera Brandon
Man., þar stundar hann lækn-
ingar. Þá er þessi grein skökk:
“En hvort sem var í meðlæti
eða mótlæti, eða móti blés misti
Sigurður aldrei móðinn.” Á að
vera svona: “En hvort sem var
í meðlæti eða móti blés, misti
Sigurður aldrei móðinn.” Fleiri
villur eru í greininni en ekki
skaðlegar.
G. J. Oleson.
Biskup íslands í
New York
Herra biskupinn, Sigurgeir
Sigurðsson var í New York um
Páskahelgina. Flutti hann guðs-
þjónustu í St. Péturs kirkju á
horni Lexington og 57. götu í
New York, þar er lútersk kirkja.
Voru þar fleiri íslendingar sam-
an komnir en nokkru sinni í New
York, eða yfir 300 auk rúmlega
200 annara. Þetta var fyrsta ís-
lenzk guðsþjónusta, sem haldin
hefir verið í stórborginni.
Áður en guðsþjónustan hófst
var stutt athöfn, er biskupinn
var gerður heiðursdoktor í guð-
fræði við Wagner College í New
York. Dr. Frederick H. Knubel,
forseti United Lutheran Church
í Ameríku kynti biskupinn. Dr.
Knubel sagði meðal annars:
“Biskupinn kemur til okkar sem
fulltrúi þjóðar, þar sem mentun
og andleg verðmæti hafa verið í
hávegum höfð. Hann er æðsti
maður þjóðkirkju Islands og þar
með fulltrúi íslenzku stjórnar-
innar. Hann kemur til Ameríku
fyrst og fremst sem fulltrúi
kristilegrar vináttu.” Hann benti
einnig á það, að Wagner College,
sem er lúterskur skóli, hefði gert
biskupinn að heiðursdoktor.
St. Péturskirkjan, sem er bygð
í gotneskum stíl, var skreytt
páskaliljum og fánum íslands og
Bandaríkjanna. Hafði Dr. Helgi
Briem, aðalræðismaður í New
York séð um allan undirbúning.
Kórinn, sem söng við guðsþjón-
uktuna, var skipaður íslenzkum
stúdentum, þeim Þórunni og
Drífu Viðar, Ástu Helgadóttur,
Helgu Sigurjónsson, Jóni Páls-
syni, Hjálmari Finnssyni, Guð-
mundi Árnasyni, Halldóri Pét-
urssyni og Rögnvaldi Sigurjóns-
syni. Maria Markan, hin kunna
söngkona, söng þrjú lög. Birgir
Halldórsson, ungur íslenzkur
söngvari, söng einnig einsöng.
Steingrímur Arason var djákni.
Biskupinn flutti stutta prédik-
un um upprisu Krists af inni-
leik og með sannfæringu, eins og
hans er vani. Jafnvel þeir, sem
ekki skildu málið skildu innileik
orða hans.
Að lokinni guðsþjónustunni
var stutt skírnarafhöfn. Voru
þrjú íslenzk börn skírð, þau
þau Peter David, sonur Maríu
Markan og George Ostlund,
Þórunn dóttir Soffíu Hafstein
og Stefáns Wathne og Þórarinn
sonur Eddu Kvaran og Jóns
Þór ar inssonar.
Eftir guðsþjónustuna, sem stóð
yfir í tvær kluukkustundir, stóðu
margir við í kirkjunni, ræddust
við og tóku í hönd biskupsins.
Meðal þeirra, sem þar voru, voru
allmargar mæður hermanna, sem
eru á íslandi.
Um kvöldið voru þeir biskup-
inn, Thor Hhors og Dr. Briem
ræðismaður gestir George Öst-
lund og konu hans, Maríu
Markan að heimili þeirra.
Á páskadagsmorgun var bisk-
upinn við guðsþjónustu hjá hin-
um heimsfræga Dr. Harry Emer-
son Fosdick í Riverside Church
í New York. Dr. Fosdick tók á
móti biskupnum fyrir guðsþjón-
ustuna og bað hann að ganga
með sér í skrúðgöngunni og sitja
hjá sér í kórnum meðan á guðs-
þjónustunni stóð.
Samkoma sú, sem hið eldra
kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar efndi til í kirkjunni á sum-
ardagskvöldið fyrsta var prýði-
lega sótt, og um alt hin ánægju-
legasta.
Hekla, Frón og Skuld
Samkvæmt ósk manna þeirra
er fyrir sigurláni því, sem nú
er nýhafið í Canada, standa í
Manitoba fylki verður sam-
koma haldin í Good Templava
húsinu á Sargent Ave. í Winni-
peg, mánudagskvöldið 1. maí
næstkomandi kl. 8.
Aðaltilgangur og efni þeirrar
samkomu verður að sýna nýja
mynd. frá herstöðvunum, dreifðu
og víðáttumiklu er sambands-
menn sækja fram á, á landi, í
lofti og á sjó, er stjórn þessa
lands hefir gjöra látið nú alveg
nýlega og meiningin með að
sýna hana er að minna á hve
afar yfirgripsmikið og örlaga-
þrungið að yfirstandandi stríð er
og hve áríðandi það er, að
menn séu á verði, vinni saman
og standi saman.
Samkoma þessi er ekki haldin
í fjárplógsskyni beinlínis, að-
gangur verður ekki seldir, og
enginn beðinn um peninga a-f
mönnum þeim, sem fyrir sam-
komunni standa. En hún er hald
in til þess að færa erfiðleikana,
sem við er að etja, nær yður
Islendingar, svo að þér með eig-
in augum getið séð, og dæmt
um þá. Hún er haldin til þess,
að auka áhuga yðar og efla ein-
ing, hermálum og hermönnum
Canada til fulltingis. Auk mynd-
arinnar, sem sýnd verður, taka
þesisir þátt í samkomunni.
Pétur Magnús, sóló.
Allan Beck, fiðlu-sóló.
Þóra Ásgeirsson, píanó-sóló.
Mrs. Lincoln Johnson sóló.
Sómi íslendinga allra krefst
þess að samkoman verði vel
sótt.
&
Jón Sigurðson félagið heldur
fund þriðjudagskvöldið 2. maí,
á heimili Mrs. A. G. Eggertson,
919 Palmerston St.
•
Þann 19. þ. m. varð bráð-
kvaddur á skrifstofu sújni í
Seattle, Alfred Albert, freklega
56 ára að aldri, hinn' vinsælasti
maður; hann lætur eftir sig
ekkju, frú Þóru, dóttur W. H.
Paulson, sem lengi var þing-
rr.aður í Saskatchewan, ásamt
tveimur börnum uppkomnum,
pilti og stúlku.
•
Hluthafafundur
Columbia Press, Ltd.
verður haldinn á skrifstofu
félagsins 695 Sargent Ave., á
þriðjudagskvöldið 9. maí 1944,
kl. 8.
F. Benson.
skrifari.
The Swan Manufacturing Co.
Manufacturera of
SWAN WEATHER-STRIP
Winnipeg.
Halidór Methusalema Swan
Kigandi
281 James Street Phune 22 641
Most
Suits - Coats
Dresses
“Cellotone” Cleaned
72«
CASH AND CARRY
For Driver Phone
37 261
Perth’s
Cleaners-Launderers-Furriers
888 SARGENT AVE.
THE ICELANDIC CANADIAN
A quarterly magazine published by The Icelandic
Canadian Club since October 1942. Of special interest
to people of Icelandic descent in North America. All
back numbers, containing 226 pictures, available at
subscription rate which is:
1 year $1.00, 2 years $1.75, 3 years $2.25.
Circulation Manager, The Icelandic Canadian,
869 Garfield St., Winnipeg, Canada.