Lögberg - 18.05.1944, Qupperneq 1
PHONES 86 311
Seven Lines
LU>t(
atV For Belier
Cot> Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Saiisfactio”
57 ÁRGA24GUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. MAÍ, 1944
NÚMER 19
I
Ríkisútvarpið (ær eíni frá Ameríku
Benedikt Gröndal og Edward Thorlakson
Ríkisútvarp Islands hefur nú um sex mánaða skeið fengið
dagskrárliði frá Ameríku, sem sérstaklega hafa verið gerðir þar
fyrir það. Hefur Benedikt Gröndal, blaðamaður, sem nú er við
Harvard háskólann í Cambridge, Massachusettes, starfað að því
að gera þessa dagskrárliði, og með honum Dr. Edward Thorláksson
og fleiri.
Dagskrárliðir þessir hafa verið teknir á plötur og sendir þannig
til Islands. Hefur ýmiskonar efni verið útvarpað þannig, bæði er-
indum, skemtiefni og tónleikum.
Fyrsti dagskrárliðurinn, sem gerður var, var erindi, sem Dr.
Richard Beck flutti. Var því útvarpað í Reykjavik rétt eftir jólin.
Mun verða lögð áherzla á að kynna íslenzka hlustendur fyrir
merkum Vestur-íslendingum, skýra frá lífi og háttum manna í
íslenzku byggðunum og auka þannig gagnkvæma kynningu landa
vestan hafs og austan.
Tónlistin skipar hér einnig virðulegan sess. Er nú verið að
ganga frá seríu af dagskrárliðum, þar sem fram koma íslenzkir
eða vestur-íslenzkir tónlistamenn, sem staddir eru í Ameríku.
Fyrstur í þessum flokki var söngvarinn Birgir Halldórsson, sem
nú syngur í leiknum “Oklahoma” á Broadway-í New York. Þar
koma einnig fram þær frænkur Snjólaug og Agnes Sigurðardætur
og leika á piano. Enginn þessarra ágætu listamanna mun hafa
leikið opinberlega fyrir heima-íslendinga og er þetta í fyrsta sinn,
sem þeir koma fram á Islandi. Fleiri kunnir listamenn munu koma
fram, til dæmis Gunnar Pálsson, Guðmundur Kristjánsson, Rögn-
valdur Sigurjónsson', María Markan o. fl. Reynt verður að kynna
sem flesta vestur-íslenzka tónlistamenn fyrir hlustendum Ríkis-
útvarpsins, því að þeir eru þeirn ókunnir.
Útvarpið hefir mikinn hug á að taka raddir gömlu landnem-
anna, þeirra sem enn lifa, á plötur, svo að frásagnir þeirra megi
varðveitast. Er líklegt, að Benedikt Gröndal fari vestur í Islend-
inga-byggðir í sumar og starfi að þessu.
Dr. Edward Thorláksson, sem starfað hefur að dagskrárliðum
þessum með Gröndal, fór sem kunnugt er til Winnipeg á afmælis-
hátíð Þjóðræknisfélagsins og sá um, að allmikill hluti aðaldagskrár-
innar í Marlborough hótelinu væri tekinn á hljómplötur. Hafa þær
verið sendar til Islends.
Góð von er um að starfsemi þessi geti lítillega aukið gagn-
kvæma kynningu og skýrt íslendingum betur frá högum og hátt-
um hér vestra en áður hefur verið kostur á.
Heimboð
Heimboðið eg hafði þegið;
hjalreyfir við sátum þar.
Gildi manna mælt og vegið;
milli þó í dómum bar.
Þótti mér — ei því skal leyna —
þoku vafin sálarreið.
Eg var við og við að reyna
að víkja ræðu á aðra leið.
Blik af andans eðalsteinum
okkur birtust dauf og fá.
Ekki gaf hann gaum að neinum
geislabrotum utan frá.
Fyrir ment og fræði í landi
fáum vildi hann rétta kranz.
Eg var aðeins áheyrandi
athugull að dómum hans.
Síðast hann að mannsmæð minni
mannvitsJkyndli sínum brá.
Dulklætt mál; þó undir inni
árás bitur falin lá.
Varp svo af sér grímu gervi:
gæruskinni sauðarins.
Las eg í hans orða kerfi
orsakir til heimboðsins.
B. Þorsteinsson.
ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍSÍIÍÍÍÍÍÍÍÍÍIÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ;
Frá sendiráði íslands í Washington
15. maí, 1944.
Ritstj. Lögbergs, Winnipeg, Man., Canada.
Eg hefi veitt því athygli, að blað yðar hefur gjört að um-
íalsefni orðsendingu þá, er Danakonungur hefur sent forsætis-
ráðherra Islands vegna þess, að íslenzka þjóðin hefur látið í ljósi
ósk sína um að vilja stofna lýðveldi á Islandi hinn 17. júní n. k.
Orðsending konungs var svohljóðandi:
“Tilefni tilkynninga frá -Islandi um ályktanir Alþingis ríkis-
stjórnar viðvíkjandi breytingu stjórnarforminu óskum vér eftir-
íarandi boðskapur birtur ríkisstjórn íslands og þjóð stöðugt við-
ieitni vor efla velgengni íslenzku þjóðarinnar vér reynt meðfylgj-
ast þróuninni Islandi ákvæmlega íhugað stöðu vora til íslenzku
þjóðarinnar haft fyrir augum það sem mætti verða til hagsmuna
ríkisins sem norræns ríkis þeim næmleika fyrir óskum þjóðarinnar
em vér æfinlega haft gagnvart Alþingi ríkisstjórn má miklu fremur
gera ráð fyrir í úrslitamálum fyrir örlög landsins framtíðinni hljót-
um samt hafa heimild vora ákvarðanir framtíðar stjórnarform
sem sundursker bandið milli þjóðarinnar konungs ekki látnir fram-
kvæmast meðan bæði löndin hernumin vér sannfærðir þetta mið-^
ur farsælt góða bræðralag þessara norrænu ríkja vér óskum því
áður en úrslitaákvörðun tekin verði ríkisstjórn og þjóð tilkynnt
vér getum ekki meðan núverandi ástand varir viðurkennt þá
breytingu stjórnarforminu sem Alþingi ríkisstjórn hafa ákveðið án
samningsviðræðna við oss.”
Orðsending þessi mun hafa borizt til íslands hinn 5. b. m.
Alþingi situr sem kunnugt er ekki sem stendur, en þegar daginn
eftir gaf ríkisstjórn og allir stjórnmálaflokkar á íslandi út svo-
hljóðandi yfirlýsingu:
“Það er réttur íslenzku þjóðarinnar sjálfrar og hennar einnar
taka ákvarðanir um stjórnarform sitt Alþingi og ríkisstjórn hafa
lagt til við þjóðina hún ákveði ísland verði gert lýðveldi svo sem
nugur íslendinga hefur um langan aldur staðið til ríkisstjórn og
stjórnmálaflokkarnir eru sammála um fregnin boðskap konungs
getur engu breytt um afstöðu þeirra til stofnunar lýðveldi Islandi
og skorar á landsmenn alla greiða atkvæði Um lýðveldisstjórnar-
skrána svo eigi verði villst um vilja íslendinga.”
Af framanskráðu er ljóst, að orðsending konungs mun engin
áhrif hafa á óskir íslendinga og það má telja víst, að íslendingar
taki rösklega þátt í atkvæðagreiðslunni frá 20.—23. þ. m. um skiln-
aðinn við Dani og stofnun lýðveldis, og að vilji allrar þjóðarinnar
komi greinilega í ljós.
Virðingarfyllst,
Thor Thors.
ÁKÖF SÓKN
HAFIN Á ÍTALÍU
Á fimtudaginn í vikunni, sem
leið, hófu herfylki sameinuðu
þjóðanna, hið 5 og hið 8., ákafa
sókn gegn Þjóðverjum á tveim-
ur megin vígstöðvunum á ítalíu,
umhverfis Cassino, og eins við
Anzio, en þar mátti heita, að
alt hjakkaði í sama farinu undan
farna .tvo mánuði, eða jafnvel
meira en það; nú hefir sókn
bandamanna miðað þannig áfram
þessa fáu daga, sem liðnir eru
síðan atrennan hófst, að á sum-
urri stöðum hafa þeir rutt sér
braut gegnum varnarlínu Þjóð-
verja freklega 9 mílur, þrátt fyr-
ir illvíga andspyrnu. 1 hinum svo
nefnda Liri dal, hafa brezkir
skriðdrekar, með aðstoð sprengju
flugvéla og fótgönguliðs, rofið
þýzk varnarvirki eitthvað um 3
mílur suður af Cassino, og sniðið
þar í sundur járnbraut, ásamt
bílvegi, sem samkvæmt legu
sinni hefir all-mikilvæma, hern-
aðarlega þýðingu.
1 orrahríð þessari hafa herir
hinna sameinuðu þjóða tekið á
4 þúsund þýzka hermenn þl
fanga.
•
CANADISKU FREIGÁTUNNI
VALLEYFIELD HEFIR
VERIÐ SÖKT
Síðastliðinn mánudag lýsti
flugmálaráðherra sambands-
stjórnar, Hon. Angus L. Mac-
donald yfir því í þinginu, að
canadisku freigátunni Valley-
field, hefði verið sökt í Norður-
Atlantshafi af völdum Þjóðverja
talið er að 38 af skipshöfninni
hafi komist lífs af; fimm eru
dánir, svo vitað sé, en 121 ó-
komnir fram; af þeim, sem ekki
hefir til spurst, eru 15 frá Mani-
toba.
LÆTUR AF
FORSETAEMBÆTTI
DEAN SIDNEY E. SMITH
Forseti Manitoba háskólans,
Dr. Sidney E. Smith, hefir á-
kveðið að láta af embætti sínu
hér, og takast á hendur embætti
við æðstu menntastofnun Mani-
Smith tók við forseta embætti
við æðstu menntastofuin Mani-
toba fylkis fyrir tíu árum, og
er nú maður 47 ára að aldri;
hann er hið mesta glæsimenni
og aðlaðandi í umgengni; þeir,
sem hnútum eru kunnugir, og
mest hafa haft afskipti af vel-
ferðarmálum háskólans, þessi tíu
undanfarin ár, telja hann hafa
markað djúp spor í þróun Mani-
toba háskólans; hefir hann jafn-
an verið einkar velviljaður í garð
Islendinga.
Dr. Smith fylgir í stjórnmála-
skoðunum íhaldsflokknum, og
kom það oft til tals, að hann
myndi manna líklegastur til þess
að taka að sér forustu flokksins
áður en Mr. Bracken kom al-
varlega til sögunnar.
Einstœður heiður í sögu Vestur-
Islendinga
Dr. B. J. Brandson
Við upsögn Maijitoba háskól-
ans 12. maí 1944, var Dr. B. J.
Brandson sæmdur heiðurs natn-
bótinni “Doktor í lögiræði”. Er
hann fyrsti maður af íslenzku
bergi brotinn, sem heima á í
Canada, er hlotið hefir heiðurs-
nafnbót frá canadiskum háskóla.
Um það eru allir sammála,
undantekningarlaust, að hann er
þessarar sæmdar fyllilega verð-
ur, þvfí hann er maður, sem
hefir skahað fram úr öðrum og
verið afkastamiklll í þeirri lífs-
stöðu, sem hann valdi sér. Hann
er ekki einungis miklum hæfi-
kikum gæddur, heldur einnig
þeim gæðum og mannkostum
sem aðeins fáir eiga yfir að ráða.
Hann hefir verið trúr og þarfur
þjónn þjóðar sinnar sem læknir
og kennari. Hann var leiddur
fram til þess að veita móttöku
þessu heiðursskjali af Dr. A. T.
Mathers, sem er forstöðumaður
læknadeildarinnar við- háskól-
anp, en hann er einn af fyrver-
andi lærisveinum Dr. Brand-
sons.
Dr. Mathers fórust orð á þessa
leið:
“Herra kanzlari: Mér er fálið
það á hendur af háskólaráðinu
að leiða fram fyrir yður Brand
Tónsson Brandson, kandidat í
vísindum, doktor í læknisfræði,
meistara í skurðlækningum, með
lim konunglega skurðlækninga-
skólans í Canada, meðlim skurð-
lækningaskóla Bandaríkjanna,
riddara konunglegu fálkaorðunn
ar á Islandi — að leiða hann
fram fyrir yður til þess að sæma
hann heiðursnafnbótinni: dokt-
or í lögfræði.
Hann er fæddur á Islandi, kom
með foreldrum sínum til suður-
hluta Minnesota ríkis 1878.
Eins og trúir afkomendur Vík-
inganna og án þess að láta það
á sig fá þótt 400 mílur veglausra
eyðimarka lægju milli þáverandi
dvalarstaðar og framtíðar heim-
ilis þeirra, þá ferðaðist fjölskyld-
an til Norður Dakota í tjald-
vagni, sem uxum var beitt fyr-
ir.
Þegar Brandson var 17 ára
hóf hann nám við Gustavs
Adolphs skólann og útskrifaðist
þaðan fjórum árum síðar, sem
kandidat í vísindum. Áður en
árið var liðið tók hann að stunda
nám við læknaskólann í Mani-
toba. Þegar hann hafði útskrif-
ast þaðan, sem doktor í læknis-
fræði og meistari í skurðlækn-
ingum var harm eitt ár hús-
læknir við Winnipeg General
Hospitalið; að því búnu stund-
aði hann framhaldsnám í Dublin,
London og Vín, áður en hann
byrjaði að stunda lækningar í
Winnipeg.
Þrátt fyrir það þótt hann hefði
mikla og sívaxandi aðsókn sjúkl-
inga tók hann snemma mikinn
og góðan þátt í kennslu og
fræðslumálum, og kendi stöðugt
með hinum mesta áhuga við
læknadeild háskólans um þrjá-
tíu ára skeið.
Árið 1930 var Dr. Brandson
kjörinn heiðursdoktor háskóla ís-
lands í læknavísindum.
Frá 1926 til 1934 var hann
prófessor í skurðlækningum við
læknaskólann og aðal skurðlækn-
ir við Winnipeg General Hospit-
alið.
Dr. Brandson hefir helgað líf
sitt og starf hinum göfugu hug-
sjónum stéttar sinnar; hann hef-
ir með hæfileikum sínum og sín-
um djúpa skilningi mannlegrar
tilfinninga, ásamt mannúð og
hluttekningu, hlotið tækifæri til
þess að öðlast hina sönnu gleði
og fullkomnu ánægju, sem þau
störf veita, er samvizkusamlega
eru unnin.
Þá hefir hann einnig unnið að
öðrum þýðingarmiklum málum
en læknisfræðinni; hann hefir
tekið mikinn þátt í málum lands-
ins, sem trúr borgari og verið
heilráður leiðtogi landa sinna;
aldrei gleymt hinni merku sögu
né hinum göfuga arfi ættþjóðar
sinnar, heldur sameinað minn-
inguna um ágæi þetirra við ást
og virðingu á þessari vorri ungu
þjóð.
Allir þeir, sem notið hafa hjálp
ar og mannúðar Dr. Brandsons,
allir þeir, sem hann hafa þekkt
bera fyrir honum djúpa virð-
ingu.
Vér, sem því láni höfum átt
að fagna að njóta kennslu hans
og handleiðslu, vera lærisvein-
ar hans — vér, sem ekki höfum
einungis lært af honum læknis-
fræði, heldur einnig sanna speki
hins lifanda lífs — vér finnum
oss knúða til þess við þetta hátíð-
lega tækifæri að tala og viður-
kenna virðingu vora og ást til
hans — þessa manns, er vér höf-
um þekt sem hinn færasta og
sálþíðasta skurðlækni og kenn-
ara, fyrirmyndar borgara með
hreinar og heitar hugsjónir —
mann, sem var trúr í öllu og
veglyndur, mann, sem aldrei
brást í nokkru því, sem góðum
mönnum sæmir að gera.”
Sig. Júl. Jóhannesson,
þýddi.
VINNA A t BURMA
Sameinuðu þjóðirnar hafa
undanfarið þröngvað mjög að
kosti Japana í Burma, og eru nú
líkur til, að Burmabrautin til
Kína verði sennilega opnuð inn-
an skamms.
ÞINGROF OG NÝJAR
KOSNINGAR
Fylkisþingið í Saskatchewan
hefir verið rofið, og nýjar kosn-
ingar fyrirskipaðar þann 15. júní
næstkomandi.
Liberalstjórn sú, sem Mr. Patt-
erson veitir forstöðu, hefir setið
að völdum í sex ár. Þrír megin-
flokkar leita á náðir kjósenda.
Saskatchewan fylkis í áminstum
kosningum, Liberalar, C.C.F. og
Progressive Conservativar. Und-
irbúnungur undir kosningar
þessar, er þegar hafinn af kappi
miklu, og má því víst telja, að
töluvert líf verði í skákinni
vestur þar, um það er yfir lýk-
ur.