Lögberg - 15.02.1945, Síða 1

Lögberg - 15.02.1945, Síða 1
58. ÁRGANGUR . LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. FEBRÚAR, 1945 NÚMER 7 Víðfrœgur íslendingur fallinn í val Dr. C. H. Thordaxson Þessi víðfrægi íslendingur hef- ir safnast til feðra sinna; dauða hans bar að í Ghicago þann 6. yfirstandandi mánaðar, en útför- in fór fram þann 10. Dr. C. H. Thordarson var fæddur að Stað í Hrútafirði, 12. maí árið 1867. Hann flutt- ist ungur til Vesturheims, og dvaldi framan af í North Dakota; rík mennta- og framaþrá bjó honum snemma í brjósti; af skólagöngu hafði hann lítið, sem ekkert að segja, en nam þess meira af lífinu sjálfu; hugur hans stefndi jafnan á brattans fjöll, eins og svo margra annara stór- menna af norrænum stofni; lífs- saga þessa gagnmerka manns, líkist furðulegu æfintýri, hann ryður sér slíka braut á sviði raf- vísinda og framleiðslu, að til eins dæma mun jafnan talið verða, þegar aðstæður allar eru teknar til fullra greina; hann er hug- Vits- og hugsjónamaður, sem ber gæfu til þess, að láta hugsjónir sínar fallast í faðma við virkar staðreyndir; hann verður stór- iðjuhöldur, sem heldur jafnan hugsjónablysinu hátt á lofti, og sækir þangað eldinn til giftu- samlegra athafna; hann kaupir heila eyju, og gerir hana að sumarbústað sínum, og þar reis- ir hann skála í fornnorrænum stíl; þar geymir hann bókasafn sitt, stærsta og vandaðasta bóka- safnið, sem nokkur íslendingur hefir viðað að sér; hann hlýtur meistaragráðu og doktorsgráðu frá tveimur háskólum, og hefir þó í rauninni aldrei stigið inn fyrir skóladyr sjálfur; hann er alt af að leita, og hann verður fundvís á mörg verðmæti, sem aðrir koma ekki auga á; hanr. verður frægur maður hjá stór- þjóð, og dáður manna mest hjá hinni fámennu stofnþjóð sinni. Dr. Thordarson var hinn mesti ljósberi kynstofns síns í þessari álfu; hann var yfirlætislaus maður, vinfastur og mildur í dómum; íslenzka mannfélagið stendur í djúpri þakkarskuld við Dr. Thordarson. Sólsetursbörnin á elliheimilinu Betel, munu lengi geyma nafn hans í þakklátri minningu. Dr. Thordarson lætur eftir sig ekkju, Júlíu, ásamt tveimur sonum. Tími þjóðrœknis- þingsins Samkvæmt beiðni forseta Þjóð r3eknisfélagsins, sem var lögð fram á aðalfundi deildarinnar Sna&fell við Churchbridge, Sask , Var málið um tímabreytinguna rætt, og samþykkt gerð um það, menn teldu sumartímann heppílegri til þinghalds. Eg veit a^ fulltrúi deildarinnar leggur Samþykkt þessa fyr-ir næsta þing; fiaun því leiða þetta mál hjá ^ér að öðru leyti en því, að eg vil benda á það, sem gæti haft Þýðingu í þessu máli. Vetrarferðir frá fjarliggjandi stöðum eru ávalt erfiðari og kostnaðarsamari en að sumrinu. ^tenn verða uppdúðaðir, og lesta gangur óþægilegur. Menn hafa Sett upp sumar-keyrslutæki sín ^r^r veturinn; fénaður allur á gjof, og nálega ómögulegt að ,a menn í skiptum um þann tíma ars- Með vorinu fá menn “vængi” °g geta þá ferðast með litlum kostnaði, og það eftir hentug- leikum. Þá leggja margir í ferða- lög, sem ekki komast að heiman að vetrinum. Þá er langur dag- ur, og lítil hætta að fara dag- fari og náttfari; ekki er að verj- ast kuldanum. Get líka hugsað mér að fulltrúar frá fleiri en einni deild gætu gert með sér ferðafélag, svo að ferðakostnaður yrði minni fyrir alla. Get eg óttast, að ef haldið er sama tíma fyrir þingið og verið hefir, að menn á fjarliggjandi stöðum trén ist upp á að sækja það; eg vildi benda á þessa hættu. Það mun allra vilji, að mönn- um sé gert svo létt um ferða- lagið, að fulltrúar frá öllum deildum fái setið þingið. S. S. C. VIÐHAFN ARMIKIÐ OG FJÖLSÓTT BRÚÐKAUP i Síðastliðið föstudagskvöld, voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju, að við- stöddum miklum mannfjölda, þau Miss May Isfeld hjúkrunar- kona, og Mr. Dallas Medd, ætt- aður frá Winnipegosis. Brúðurin er einkadóttir þeirra Mr. E. A. Isfeld, forstjóra, og frú Bjargar Isfeld, píanókennara, sem heima eiga að 668 Alverstone Street hér í borginni. Brúðguminn, sem er sonur þeirra Dr. og Mrs. A. E. Medd í Winnipegosis er nýútskrif aður í læknisfræði af Manitoba háskólanum, og gegnir herlæknis störfum. Séra Valdimar J. Eylands fram kvæmdi hjónavígslu athöfnina. Sólóisti var Gladys Whitehead, en við hljóðfærið var Mr. Leon- ard Heaton. Svaramenn voru Marjore Colpitts og Harry Stevenson. Til sætis leiddu í kirkjunni Gurth Hemenway og Jack Bowdin. ^ Að aflokinni hjónavígslu, kom saman mikill mannfjöldi á heim- ili foreldra brúðarinnar, þar sem ríkmannlegra veitinga var neytt. Brúðhjónunum barst mikið verðmætra gjafa; ein gjöfin skar sig úr, en það var rödd móður- systur brúðarinnar, frú Rósu Vernon í Toronto, sem sungið hafði á hljómplötu tvö yndisleg lög, við undirspil Miss Öldu Pálsson í tilefni af brúðkaupi þessara glæsilegu, ungu hjóna. Þau Mr. og Mrs. Medd fóru til Minneapolis í nokkurra daga dvöl þar syðra. Lögberg flytur þeim innilegar hamingjuóskir. FIMM SKIPUM SÖKT SKAMT FRÁ LANDI Flotamálaráðuneytið í Ottawa, hefir nýlega birt þá fregn, að kafbátar hafi sökt fimm skipum, þar á meðal smáu, canadisku her- skipi, tiltölulega skamt undan ströndum Nova Scotia; vegna öryggis, er ekki nánara skýrt frá þessum atburði; um sama leyti var þess jafnframt getið, að canadiskt herskip hefði sökt þýzkum kafbát eftir all langan eltingarleik. CAN ADAMENN VINNA HREYSTIVERK Frá París var útvarpað á mánu daginn þeim fréttum, að 1. her- fylki Canadamanna hefði sýnt af sér frábæra hreysti í baráttunni um Ruhr dalinn; átti þessi harð- snúni flokkur vestrænna bardaga manna þá einungis eftir ófarnar 30 mílur að takmarki sínu; menn þessir ösluðu upp í mitti yfir flóð og foræði, og létu aldrei bilbug á sér finna þótt yfir þá dyndi sýknt og heilagt geigvæn- leg kúlnahríð úr fallbyssukjöft- um óvinahersins; þeir sprengdu til agna hin öflugustu varnar- virki Þjóðverja á þessum vett- vangi stríðssóknarinnar; svo var ilt í veðri meðan á þessu stóð, að flugvélar sameinuðu herjanna fengu litla aðstoð veitt; ekki létu Canadamenn það mikið á sig fá, heldur héldu striki eins og ekkert hefði í skorist. BUDAPEST GEFST UPP Stalin marskálkur gerði yfir- lýsingu um það á mánudaginn, að hófuðborg Ungverjalands, Budapest, hefði þá alveg nýverið gefist upp, og fallið rússnesku herjunum í hendur; umsát Rússa um borgina hafði staðið yfir í fjörutíu og átta daga. Budapest er 17. borgin, sem leyst hefir ver- ið undan ánauðaroki Nazista á meginlandi Norðurálfunnar. ÞRÍVELDAFUNDINUM LOKIÐ Fundinum milli þeirra Churc- hill, Stalins og Roosevelts, sem skýrt var frá í síðasta blaði, er nú lokið; hann var haldinn á Krímskaga; fyrst og fremst voru það hernaðaraðgerðir, sem til umræðu komu, varðandi stríðið við þýzka Nazista; var og rætt um framtíðarhorfur Þýzkalands, og það gefið í skyn, að landinu verði skipt í- fjögur fylki, er Rússar, Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar taki að sér að stjórna fyrst um sinn. Rússar krefjast nokkurs hluta af Póllandi, en vilja bæta þeim upp hallann með sneið af Þýzkalandi. FRAKKAR GERA RÁÐSTAFANIR GEGN GYÐINGAHATRI Andre Tixier, innanríkisráð - herra Frakklands, hefir tilkynnt, að gripið verði til skjótra ráð- stafana gegn samtökum Gyðinga hatara. Yfirvöldin ætla að láta fram- kvæma húsrannsóknir á heimil- um og í skrifstofum og hand- taka, ef þörf krefur, forystu- menn hins nýstofnaða “banda- lags til varnar hagsmunum þeirra, sem keypt hafa fyrirtæki Gyðinga”. Þetta bandalag hefir mótmælt því, að þessum fyrirtækjum sé skilað aftur til Gyðinga þeirra, sem áttu þau. Það hefur sent ráðherranum áskoranir, dreift flugritum með samskonar óhróðri gegn Gyðingc um og nazistar hafa beitt nú. SLÆR I BRÝNU Á föstudaginn var, sló í alvar- lega brýnu í fylkisþinginu, milli þeirra S. J. Farmers, leiðtoga C.C.F. þingflokksins og Garsons forsætisráðherra. Mr. Farmer úthúðaði stjórninni fyrir þröng- sýni og afturhald, og kvaðst enga ástæðu sjá til þess, að fólkið í Manitoba gæti ekki búið við hlið- stæða þróunarlög við þau, sem nú væri í virkri framkvæmd á New Zealand; fauk þá nokkuð í Mr. Garson, og sagðist hann furða sig á því að maður með jafn- langa lífsreynslu og Mr. Farmer, skyldi enn eigi hafa áttað sig á þvi, að Manitoba væri fylki með takmarkað valdsvið, þar sem New Zealand væri fullvalda þjóð, er gæti látið þing sitt setja hverja þá löggjöf, er henni byði við að horfa. ENN ÓRÁÐIÐ UM SAMBANDSKOSNINGAR Þess var alment vænst, að 1 lok síðustu viku mundi það vitn- ast hvenær sambandsþing yrði rofið og kosningadagur ákveð- inn; enn er þó alt á huldu um þetta mál, og það gefið í skyn, að kosningarnar geti eitthvað dregist vegna breytts viðhorfs í stríðinu, og risasókn Canada- hersins á vesturvígstöðvunum; en eins og vitað er, hefir Mr. King lýst yfir því, að þing verði undir öllum kringumstæðum rofið fyrir þann 17. apríl næst- komandi, en þá rennur kjörtíma- bil þingsins út. Frá sendiráði íslands í Washingten 5. febrúar, 1945. Herra ritstjóri: Sendiráðið óskar þess, að lesendum íslenzku blaðanna sé gjört það kunnugt, að í lok janúarmánaðar hófust reglulegar sendingar flugpósts milli New York og Islands. Verða fyrst um sinn flutt 100 pund af pósti vikulega til Islands og frá íslandi. Bréf á milli landanna ættu nú ekki að vera lengur en viku á leiðinni í stað þess að bréfin voru oft áður tveggja til þriggja mánaða gömul er þau náðu viðtakanda. Fyrsti almenni flugpósturinn var sendur frá Islandi þann 25. janúar. Til gamans skal skýrt frá því að þann dag ritaði póst- og símamálastjóri Guðmundur Hlíðdal mér bréf og var það móttekið í New York 27. janúar, en bréfið bárst mér ekki í hendur fyr en 1. febrúar og hafði það því verið meira en helmingi lengur á leiðinni frá New York til Washington en frá Revkjavík til New York. Þá vil eg ennfremur skýra frá því að Alþingi samþykkti einróma hinn 24. janúar heimild fyrir ríkisstjórn íslands til að gera samning við ríkisstjórn Bandaríkjanna um loftflutninga. Samkvæmt þessari heimild voru samningar um þetta efni form- lega undirritaðir í Reykjavík hinn 27. janúar af sendiherra « Bandaríkjanna í Reykjavík Mr. L. G. Dreyfus og utanríkisráð- herra íslands Ólafi Thors. Samningurinn gekk í gildi hinn 1. febrúar, en ekki er búist við að reglulegar flugferðir geti hafist fyr en að lokinni styrjöld- inni í Evrópu. Bandaríkin hafa mikinn hug á flugi til íslands og áfram til Evrópu og Islendingar 'hafa í hyggju að reka flug- ferðir með eigin flugvélum og íslenzkum áhöfnum milli íslands og Ameríku. Með beztu kveðjum, Thor Thors. Vestur-íslendingur í Reykjavík vegna innkaupa á rafmagnsefni í gærmorgun kom hingað flug- leiðis frá New York, Grettir Eggertsson rafmagnsverkfræð- ingur. Mun hann dvelja hér í tvær til þrjár vikur til að kynna sér ýms mál í sambandi við inn- kaup okkar á efni til rafveitna og rafmagnsmála landsins yfir- leitt. Hefir hann verið “teknisk- ur” ráðunautur Thor Thors sendi herra í Washington um þessi mál undanfarin þrjú ár. Á meðan Grettir dvelur hér á landi mun hann hafa nána samvinnu við Steingrím Jóns- son rafmagnsstjóra og Jakob Gíslason, forstjóra rafmagnseft- irlits ríkisins og ennfremur ræða við forystumenn ríkis og bæja um framkvæmdir í raf- magnsmálum. Blaðamenn hittu Grettir Egg- ertsson sem snöggvast í Hótei Borg í gærkvöldi. Það má segja, að tilgangur með komu hans hingað sé tví- þættur, annarsvegar að kynna sér ástæður og þarfir okkar vegna rafmagnsframkvæmda o^ hinsvegar að gefa ráðandi mönn- um hér skýrslu um hvernig horfur eru á því vestra að fá nauðsynlegt efni til framkvæmda í rafmagnsmálum. Talsvert af rafmagnsefni var með Goðafossi er honum vav sökt. Var það efni til Keflavík- urlínunnar og rafstöðvarinnar á Isafirði. Taldi Grettir, að bráð- lega myndi fást efni í stað þess, sem þar týndist. Grettir Eggertsson er sonur Árna Eggertssonar heit. í Win- nipeg, en Árni er kunnur hér a landi m. a. fyrir áhuga sinn fyrir Eimskipafélaginu. Sat hann lengi í stjórn Eimskipafélags Islands. — Grettir kom með föður sípum hingað til Islands 1919. Hann var kjörinn formaðu: Islendingafélagsins í New York og gengdi því starfi þar til á síðasta aðalfundi félagsins, 13. þ. m. er hann sagði af sér. Grettir sagði allt gott að frétta af íslendingum 1 New York. Kvaðst hann hafa verið beðinn fyrir fjölda kveðjur “og væri það langur listi”. Þann 13. þ. m. hélt íslendinga- félagið samsæti í Henry Hudson hótelinu í New York til heiðurs Thor Thors sendiherra og frú hans. Sátu það hóf 150 manns. Þar voru einnig gestir íslendinga félagsins þeir Hallgrímur Bene- diktsson, stórkaupmaður og dótt- ir hans, dr. Oddur Guðjónsson, Eggert Kristjánsson, stórkaup- maður og Guðmundur Hlíðdal póst- og símamálastjóri. Mbl. 25. jan. SAGT UPP VINNU Nýlega hefir þúsund manns verið sagt upp vinnu hjá Slátur- félögunum í Winnipeg, og óvíst um nær þeir verði teknir til baka; hefir þetta að vonum, vak- ið eigi alllítinn ugg hér í borg- inni, og þess vænst, að stjórnar- völdin taki í taumana. RÚSSAR 'Á HANDAHLAUPI Svo ört miðar rússnesku herj- unum áfram, að líkja má við það, sem kallað var handahlaup í forna daga; þeir eru nú komn- ir vel á veg til Dresden, hinnar fornu höfuðborgar Saxlands, og geysa nú áfram meðfram Bober- ánni á 25 mílna svæði. Berlínar- útvarpið skýrir frá því á mið- vikudagsmorguAinn, að af þess- ari nýju leiftursókn Rússa í átt- ina til Dresden, stafi Þýzkalandi hinn mesti háski. LÆTUR AF EMBÆTTI Ríkisritari sambandsstjórnar- innar, Mr. McLarty, hefir lýst yfir því, að hann leggi niður ráðherraembætti sitt fyrir næstu sambandskosningar, og verði ekki í kjöri á ný; hann er að sögn, næsta heilsutæpur, en hitt er jafnframt talið víst, að hon- um verði komið fyrir í efri mál- stofunni, og að með því hljóti hann trúrra þjóna verðlaun.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.