Lögberg - 15.02.1945, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. FEBRÚAR, 1945
Úr borg og bygð
Mr. M. M. Jónasson póstmeist-
ari í Árborg, kom til borgarinn-
ar á mánudaginn, á leið vestur
til Mozart, þar sem hann ætlar
að sitja tvenn gullbrúðkaup
seinni part vikunnar.
•
Mr. Magnús Gíslason frá Ár-
borg var staddur í borginni í
fyrri viku.
•
Mr. G. A. Williams kaupmað-
ur frá Hecla kom til borgarinn-
ar á mánudaginn og dvaldi hér
fram yfir miðja vikuna.
•
Mr. Halldór Halldórsson, fé-
sýslumaður, fór vestur á Kyrra-
hafsströnd í lok fyrri viku.
•
Þau Mr. og Mrs. C. Tomasson
frá Hecla, og frú Ingibjörg Jóns-
son frá Winnipeg, fóru vestur
til Moose Jaw, Sask., síðastliðinn
föstudag, í heimsókn til ættingja
og vina; ferðafólk þetta kemur
heim seinni part yfirstandandi
viku.
•
Hið eldra kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar, er nú, venju
samkvæmt, að undirbúa afmælis-
samkomu elliheimilisins Betel,
sem haldin verður í kirkju safn-
aðarins þann 1. marz næstkom-
andi; þessar samkomur eru á-
valt ánægjulegar og ávalt vel
sóttar, og mun svo enn verða að
þessu sinni, því til alls undir-
búnings hefir verið vandað hið
bezta.
Skemtiskrá samkomunnai
verður auglýst í næstu viku.
•
The Junior LadieS Aid of the
First Lutheran Church will hold
their regular meeting Tuesday
afternoon Feb. 20th at 2.30 p.m.
Mr. Eylands, the guest speaker
will give a talk on foreign mis-
sions, and a short musical
program will follow.
Members and friends are
urged to attend.
•
World Day of Prayer will be
observed Friday, February 16th,
at 7.30 p.m. at Holy Trinity
Churoh. Seven denominations
are taking part in this service,
and our Church wil-1 be repres-
ented by Mrs. B. Guttormson.
Junior members and young
business women are especially
invited to attend.
•
Á þriðjudags morguninn lézt
á Grace Hospital hér í borginni,
Jakob Bjarnason, 69 ára að aldri,
hann hafði legið á sjúkrahúsi
síðan í byrjun þessa árs. Jakob
var greindarmaður og drengur
góður. Útförin fer fram frá
Sambandskirkjunni á föstudag-
inn kemur, kl. 2 e.' h.
•
Steingrímur Thorarinson, lézt
að heimili dóttur sinnar, Mrs.
Crawford, 459 Victor Street, á
laugardagsmorguninn var, 10.
febrúar. Hafði hann þá náð rúm-
lega 84 ára aldri. Hann var fædd-
ur í Hraunhreppi í Mýrasýslu, en
kom til Canada árið 1902. Sjö ár-
um áður hafði hann gifst Þórunni
Oduelsdóttir, ættaðri úr heima-
sveit sinni. Settust þau að hér
í Winnipeg og áttu heima hér
ávalt síðan. Kona Steingríms dó
árið 1921. Var hann lengst af í
þjónustu City Water Works, en
lét af því starfi árið 1933. Hann
lætur eftir sig sjö börn, þau:
Thomas, Florence, (Mrs. Craw-
ford), Ellu (Mrs. Miller), Ingu,
Ingólf, Percy og John, sem öll
eiga heima í Winnipeg; einnig
lætur hann eftir sig átta barna-
börn. Hann var maður vandaður
til orða og verka, hæverskur í
allri framkomu, en um fram alt
trúr og ábyggilegur. Alla sína
dvalartíð í Winnipeg var hann
meðlimur Fyrstu lútersku kirkju
og sýndi í því starfi þá trú-
mensku, sem honum var svo
eiginleg í öllu lífi og starfi.
Otvarp frá Fyrstu lútersku kirkju
Á sunnudagskvöldið, 25. febrúar, n. k., fer fram útvarps-
guðsþjónusta frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg.
Guðsþjónustan hefst kl. 7, Winnipeg tíma, og fer öll fram
á íslenzku, svo sem fylgir:
Sálmur 174 — Kirkja vors Guðs er gamalt hús.
Messuform og söngsvör.
“Láttu Guðs hönd þig leiða hér” — Söngflokkurinn með
einsöng Pearl Johnson *
Sálmur 155 — “Jesús grætur, heimur hlær”
Sálmur 131 — “Minn Jesú, kunnugt það er þér ...”
Prédikun — Séra Haraldur Sigmar, D.D., Mountain, N.-D.
“Skapa í mér hreint hjarta, Ó, Guð ...”
t Útgöngusálmur 253 — “Ó þá náð að eiga Jesúm ...”
Sunnudaginn 18. febrúar fer
fram minningarathöfn í kirkju
Garðar safnaðar til að minnast
Hjálmars Davíðssonar, er féll i
stríðinu fyrir ekki löngu.
Athöfnin fer fram á ensku, og
byrjar kl. 2 e. h.
•
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn 18. febrúar.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
•
Messuboð.
Mikley, 18. febrúar.
Guðsþjónusta, kl. 2 e. h. Bæði
málin verða notuð.
Skúli Sigurgeirson.
•
Næsta sunnudag flytur séra
Halldór E. Johnson guðsþjónustu
á Lundar, kl. 2 e. h.
Þjóðræknisdeildin Brúin í
Selkirk, heldur fund á mánudags
kvöldið þann 19 þ. m., á heimili
séra Sigurðar Ólafssonar, kl. 8.
Félagsmenn eru ámintir um að
fjölmenna, því á fundinum fer
fram kosning erindreka á næst-
komandi þjóðræknisþing.
•
The Icelandic Canadian Club
er að undirbúa skemtisamkomu,
er haldin verður mánudagskvöld
ið 26. febrúar n. k., vönduð
skemtiskrá verður á boðstólum.
Ræðumaður verður séra B. Th.
Sigurðson, er hann svo vel þekt-
ur að hann þarf engra meðmæla
með. Einnig verður góður söngur
og hljóðfærasláttur.
Veitið athygli auglýsingu í
næsta blaði.
GAMAN
0G ALVARA
Hvor er sælli, maður sem á
milljón krónur eða hinn, sem á
sér tíu dætur?
Svar: Auðvitað maðurinn með
dlæturnar, þvá að hann þráir
áreiðanlega ekki fleiri.
Ræðumaður: “Það, sem við
þörfnumst, eru menn, menn, sem
eiga sér sektarmeðvitund, ef
þeim skjátlast, en hvar er slíka
menn að finna?”
Rödd úr salnum: “í tukthúsun
um.”
•
Sóknarprestur var á förum frá
söfnuði sínum. Sóknarbörnin
sendu honum við það tækifæri
alls konar gjafir. Gömul kona
sendi honum meðal annars blá-
berjasaft á brennivínsflösku.
Henni sendi prestur svolátandi
þakkir: “Eg þakka innilega send-
inguna, og hrærðastur var eg
af þeim anda, sem hún var send
NOTICE.
The Draw for the Vancouver
Icelandic Lutheran Church
Building Fund, for the Library
and Bookcase, will take place
on March 8th, and it is impera-
tive that all books must be
turned into the Secretary prior
to this date.
Iðnaðarsýning
Manitobadeild Canadian Handi
crafts Guild, stendur fyrir sýn-
ingu, sem haldin verður í sam-
komxxsalnum á þriðju hæð í
Hudsons Bay búðinni frá 19. til
28. febrúar.
Aðalþáttur sýningarinnar er
útsaumur af öllum gerðum. Þar
á meðal “Samples” frá öllum
fylkjum landsins, sem sérstak-
lega hafa verið teiknuð og saum-
uð fyrir sýninguna. Allir sýning-
aj-munir hafa verið búnir til í
Canada.
Efnið í Manitoba myndinni var
ofið í Winnipeg, Uppdrátturinn
var einnig gerður hér í bænum,
og konur frá hinum ýmsu þjóð-
ardeildum félagsins hjálpuðust
að með útsauminn.'
Vefnaður verður líka sýndur
og vefstólar smáir og stórir, einn
sem hægt er að vefa á heilar
rúmábreiður og sem tveir vinna
við í einu.
Þar verður setustofa, borð-
stofa og svefnherbergi með hxis
gögnum, sem smíðuð hafa verið
og útskorin hér í bæ, og prýdd
með handofnum tjöldum og dúk-
um.
Þar má sjá konur kemba og
spinna hör og ull, aðrar við gólf-
teppagerð og leirgerð.
Tilgangur sýningarinnar er al-
menn uppfræðsla í canadiskum
“CELLOTONE” CLEANING
SPECIALS
SUITS - - - 59c
(Mens 2 or 3 piece)
Dresses - - 69c
(Plain 1 piece)
CASH AND CARRY
Other Cleaning Reduced
PHONE 37 261
PERTH’S
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
NÝ BÓK
uBjörninn úr Bjarmalandi”
EFTIR ÞORSTEIN Þ. ÞORSTEINSSON
Útgefendur: J. Th. Beck, Ásg. Guðjohnsen
Yfirlit yfir þroskasögu Rússlands og helstu heimsviðburði
í síðastliðin 25 ár.
Verð: saumuð í góðri kápu $2.50 — í bandi $3.25.
Burðargjald 10 cent
Pantanir sendist til
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVE.
WINNIPEG
MANITOBA
Tuttugasta og sjötta ársþing
Þjóðrœknisfélags íslendinga í Vesturheimi
Verður haldið í Good Templara húsinu við Sargent Ave.
26., 27. og 28. febrúar 1945.
ÁÆTLUÐ DAGSKRÁ: ,
1. Þingsetning.
2. Ávarp forseta.
3. Kosning kjörbréfanefndar.
4. Kosning dagskrárnefndar.
5. Skýrslur embættismanna.
6. Skýrslur deilda.
7. Skýrslur milliþinganefnda.
8. Útbreiðslumál.
9. Fjármál.
10. Fræðslumál.
11. Samvinnumál.
12. Útgáfumál.
13. Bókasafnið.
14. Kosning embættismanna.
15. Ný mál.
16. Ólokin störf og þingslit.
Þing verður sett kl. 9.30 á miánudagsmorguninn 26.
febrúar og verður fundur til kvölds. Um kvöldið heldur
“The Icelandic Canadian Club” skemtisamkomu í efri
sal Good Templara hússins. Ræðumaður verður séra B.
Theodore Sigurðsson.
Á þriðjudaginn verða þingfundir bæði fyrir og eftir hádegi.
Að kveldinu heldur deildin “Frón” sitt árlega íslendinga-
mót, að þessu sinni í Fyrstu lútersku kirkju. Dr. Helgi P.
Briem, aðalræðismaður, flytur ræðu.
Á miðvikudaginn halda þingfundir áfram og eftir hádegið
þann dag fara fram kosningar embættismanna. Að kveld-
inu verður almenn samkoma, sem allir íslendingar eru
boðnir og velkomnir á, í Fyrstu lútersku kirkju. Verður
þar sýnd kvikmynd Lofts Guðmundssonar ljósmyndara
af lýðveldishátíðahöldunum á íslandi. Dr. Richard Beck
skýrir myndina.
Winnipeg, 10. febrúar, 1945.
í umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins.
RICHARD BECK SIGURÐUR ÓLAFSSON
forseti ritari
Ambassador Beauty Salon
Nýtízku snyrtistofa
Allar tegundir af Permanents.
íslenzka töluð á staðnum.
257 KENNEDY STREET,
fyrir sunnan Portage
Sími 92 716
S. H. Johnson, eigandi.
heimilisiðnaði og inngangur kost
ar ekkert. Öllum er boðið og allir
eru velkomnir.
Fyrir hönd nefndarinnar.
Sofia Wathne.
Tlte Swan Manufacturrng Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-BTRIP
Winnipeg.
Halldðr Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 641
HEYRNARBILUN
HEYRIÐ 1 DAG
HEYRIÐ Á MORGUN
MEÐ
VOCALITE
pað er ekki unt, að fá betra
heyrnaráhald en VACOLITE, sem
þúsundir manna nú nota sér til
ðsegjanlegrar ánægju og bless-
unar.
BERIÐ VAOOLITE SAMAN
$64.75 — $116.50 — $129.50
Betri kjör eru ekki hugsanleg.
Winnipeg Hearing Aid Centre
609 BOYD BLDG. SlMI 86 764
^UTTUGASTA OG FIMMTA
ISLENDINGAMÓT
ÞJÓÐRÆKNISDEILDARINNAR “FRÓN”
VERÐUR HALDIÐ
í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU Á VICTOR STREET
Þriðjudagskveldið 27. febrúar 1945
SKEMTISKRÁ:
1. O, Canada
2. Ó, Guð vors lands
3. Ávarp forseta: Guðmann Levy
4. Karlakór íslendinga í Winnipeg, undir stjórn
Sigurbjörns Sigurðssonar
5. Kvæði: Einar P. Jónsson
6. Einsöngur: Margrét Helgason
7. Ræða: Dr. Helgi P. Briem, aðalræðismaður
8. Einsöngur: Kerr Wilson
9. Karlakór Islendinga í Winnipeg
10. God save the King
Veitingar fara fram í neðri sal kirkjunnar undir umsjón
eldra kvennfélagsins. *
INNGANGUR $1.00 BYRJAR KL. 8 E. H.
Dans fer fram í Good Templara húsinu á Sargent Ave.
frá kl. 10 e. h. til 1..30 f. h. “Red River Ramblers” spila
fyrir dansinum,gömul og ný danslög
' INNGANGUR 25c
Aðgöngumiðar fást hjá báðum íslenzku blöðunum.
Bókaverzlun Davíðs Björnssonar, 702 Sargent Ave.
The Electrician 689 Sargent Ave.
V erum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þœr nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS
LIMITED
HOUSEHOLDERS
■■■ ATTENTION ■■■
We have mosl of Ihe popular brands of coal in
stock at present, but we cannot guarantee that
we will have them for the whole season.
We would advise ihat you order your fuel at
once, giving us as long a time as possible for
delivery. This will enable us to serve you betier.
CrURDY CUPPLY
MCC
SUPPLY r 0
SUPPLIES V/ i
LTD.
and COAL
Phone 23 811—23 812
1034 Arlington St.