Lögberg - 12.04.1945, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. APRÍL, 1945
5
An 14 VUAI
IWCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Skáldin fyrir sjötíu og
fimm árum
Eftir Kristínu í Watertown
Það var mitt yndi í æsku að
^eyra talað um skáldin og verk
þeirra. Allir sungu þá Hallgríms
sálma með fögnuði trúarinnar.
Séra Matthías var þá í blóma
lífsins, efstur í skáldaröðinni,
háfleygasta skáld landsins. Skáld
skapur hans hertók hjörtu þjóð-
arinnar frá byrjun. Þá var Stein-
grímur glæsilegt skáld; Jónas
Haligrímsson, fegurðarskáldið
g°ða; Kristján Jónsson, lista-
skáld; Hjálmar í Bólu, stórfeng-
egt tilfinningaskáld; þeir bræð-
ar Páll og Jón Ólafssynir og
ímon Dalaskáld. Hann hvað
marga fallega vísu—var talandi
skáld, sem kallað var.
Páll Ólafsson var gleðinnar
akald; Jón, bróðir hans var
Prumuskáld og eldingar penna
ans lentu á Danastjórn.
Haf þökk fyrir drenglyndið,
°n! þú gjörðir þinn part í, að
°sa þjóðina undan þvingandi
°frelsi.
Aldrei hefur þjóð vor átt ann-
að eins úrval og urmul af skáld-
nm 0g á því tímabili, þegar
Pjóðin var að vakna og losast úr
°ndum harðstjórnarinnar og sá
í anda frelsi og vaxandi menn-
ln§u. Skáldin urðu svo glöð og
s^ngjandi að alt varð að ljóðum
1 huga þeirra.
Svo kemur Jónas, hreinn í
Jarta, fyltur guðlegri vandlæt-
mgu og kallar til þjóðarinnar:
reinlætið gengur næst guð-
0rnnum; fegurðin er geisli af
§uðsdýrð. Látum ljóðin birta
egurð og tign; hreinsum tung-
Una af öllum sora.
Þessum boðskap Jónasar var
ekið með fögnuði því fólkið
. ei° eftir þessum umbótum; hin-
lr hreinhjörtuðu þrá fegurð og
reinlæti. Svo kveður Jónas:
Astkæra, ylhýra málið
e§ allri rödd fegra,
, sem að barni kvað móðir
a Prjósti svanhvítu.
JHeð hverri kysnlóð ætti málið
hreinsast betur og betur og
a tíð er nóg til að hreinsa. Svo
er það hjá öllum þjóðum. Hin
tunga hreinlætis og helg-
nnar verður að lærast fvrr eða
siðar.
^ónas átti systur, sem Rann-
Vei§ hét, merkiskona og skáld-
maelt. Hún bjó með manni sín-
Stefáni á Steinsstöðum í
*nadal. Hún átti son, sem Hall-
Srinaur hét. Hann var faðir séra
°niasar, sem var prestur í
^srra-Árskógi á Árskógsströnd.
arga gleðistund höfðu þau
Sarnan, Jónas og Rannveig, bæði
ara%nd og skáld. Margar falleg-
Vlsur voru orktar; hún byrjaði
^lsurnar en hann botnaði þær.
sinn kemur Jónas úr kaup-
a®num, og hefur nú nýja húfu
eP nÝju sniði. Þá segir Rann-
Veig.
^Hvað er nú á höfði þér,
ermdu trúleg þar á skil?”
^á svarar Jónas:
það er húfa
SVona búin v
sk ^ Var Si§urður Breiðfjörð
diktmtÍlegt rimnaskáld og Bene-
sk'i ^roncial> merkasta kímnis-
P’ sem þjóðin hefir átt. Allir
0§u, ungir og gamlir.
je að Var nokkru seinna að guð-
Hstaskáld kemur fram á
gl narsviðið -_ skáld, sem aldrei
ymist. Það var séra Valdimar
Briem. Andleg snild og speki eru
sálmar hans og kvæði. Og svo
kemur hið stórmerka menningar
skáld, Hannes Hafstein. Geislar
frelsis, gleði og hreisti skína yf-
ir landið frá ljóðum hans.
Öll þessi góðlskáld voru til
ómetanlegrar blessunar og upp-
byggingar fyrir þjóðina. Þannig
voru skáldin og verk þeirra í
hugsun fólksins, sem bjartur og
hlýr hátíðisdagur, fyltur von og
gleði.
Virðingarverð tilraun
í haust, sem leið, tóku sig sam-
an unglingar úr sjö kirkju söfn-
uðum í Vestur-bænum og stofn-
uðu félag, sem gengur undir
nafninu “West End Sahara
Club”. Þessir unglingar fundu til
þess að hollara væri að stofna
til reglubundinna skemtikvölda
í stað þess að labba um strætin
með ekkert verulegt markmið
framundan. Framan af þóttust
þessi ungmenni fær um að sigla
sinn eigin sjó, án nokkra leið-
beininga af hálfu fullorðna fólks-
ins; brátt komust þeir þó að
raun um það að leiðsögn eldra
og reyndara fólks væri eigi að-
eins gagnleg, heldur blátt áfram
nauðsynleg; þessi tilraunastarf-
semi hefur lánast vel og komið
að ómetanlegum notum; þess-
vegna verðskuldar hún stuðning
af hálfu foreldra og vina þess-
ara ungmenna, sem sýndu það
framtak að beita sér fyrir stofn-
un áminstra skemtikvelda.
Föstudagskvöldin eru valin til
hinna ýmsu skemtana og ber þar
jafnaðarlegast margt á góma, þar
er vitaskuld dansað eins og títt
er nú á tíð; sumir fundu til þess
að þeir kynnu ekki þessa íþrótt
eins og vera ætti, og til þess að
ráða bót á því var fenginn æfð-
ur danskennari til þess að veita
þeim tilsögn. Þá kom það og á
dagskrá, hve ánægjulegt það
væri og mentandi að geta æft
og sýnt sjónleik; leiðbeinandi
var fenginn til þess að hafa um-
sjón með æfingum og nú er svo
komið að í aðsígi er að sýndur
verði skemmtilegur sjónleikur í
einum þætti.
Ýmsir meðlimir klúbbsins
höfðu ríkan áhuga fyrir blaða-
mennsku og leiddi það til stofn-
unar dálítils fréttaritarafélags,
sem nú hefur í hyggju að gefa
út vélritað vikublað, sem einkum
og sér 1 lagi lúti að söfnun frétta
varðandi athafnir félagsmanna.
Félagið nýtur nú dðstoðar æfðs
fréttaritara er kennir meðlimum
hvernig fréttum skuli safna og
þær verði settar fram.
Ekki á þessi félagsskapur enn
sem komið er, þak yfir höfuðið,
Félagið telur um 400 meðlimi og
heldur samkomur sínar í General
Wolfe skólanum. Á samkomum
félagsmanna er meðal annars
lögð stund á skák og fleiri íþrótt-
ir, sem æfa hugann og skerpa
skilninginn, aðeins hollar og
hressandi skemtanir eru~ um
hönd hafðar á samkomum þess-
um, hafa þær því ekki all-lítið
uppeldislegt gildi.
Starfsemi þessi styrkir mjög
ábyrgartilfinningu hlutaðeigandi
ungmenna; þau skipuleggja sjálf
skemtiskrár sínar, en geta ekki
ávalt, eins og þau helst kysu,
hrundið þeim í framkvæmd,
vegna óhagstæðs húsrýmis. Á
samkomum þeirra kemur í ljós
meiri hugkvæmni og vitsmuna-
legur frumleiki en margir hinna
eldri höfðu gert sér vonir um
Samkomur þessar eru sannnefnd
ar gleðisamkomur; yfir þeim
hvílir andi vakandi og heilbrigðr
ar æsku.
Hér er um framtíðardraum að
ræða, sem samtíðin er að reyna
að hrinda í frarhkvæmd. Ung-
mennum þessum er það ljóst að
þau þurfi að koma upp eigin
byggingu og starfrækt verði af
fullorðnum manni með reynslu
í slíkum efnum. Þetta mál er
fyrst og fremst viðfangsefni ung-
mennanna sjálfra, þau hafa sjálf
átt frumkvæði að hugmyndinni
og bera framkvæmd hennar fyr-
ir brjósti. Fólkið í Vesturbænum
ætti að ljá þessari hollu ung-
menna starfsemi alt hugsanlegt
lið; ungmenni þessi hafa með
þessari virðingarverðu viðleitni
sinni sýnt manndóm og framtak
sem vekur að sjálfsögðu almenn-
an fögnuð í þessum hluta bæj-
arins.
Miss Eileen Johnson, forseti
Ungmennafélags Fyrsta lúterska
safnaðar er ritari í framkvæmd-
arnefnd West End Sahara Club;
hefur hún lagt á sig feykna mik-
ið starf í þágu klúbbsins frá þvi
að hann var stofnaður. Mr. Ted
Schrader, fréttaritari hjá Trib-
une, sem hefur átt mikinn þátt
í að vekja áhuga fyrir stofnun
þessa klúbbs og fleiri slíkra
klúbba í borginni, hefir góðfús-
lega látið Kvennasíðu Lögbergs
ofanskráðar upplýsingar í té.
Sanalta and Rex Barley.
During the past three years
smooth áwn two-röw barleys
have become popular. Of the
two available varieties (Sanalta
and Rex), Sanalta has been most
commonly grown in Manitoba.
Due to a keen export demand
for all classes of barley that has
prevailed recently, some Sanalta
barley has entered the Uniter
States malting trade.
However, a recent investigat-
ion into marketing of Canadian
Barley in the United states by
officials of the Board of Grain
Commissioners for Canada, has
revealed that these varieties are
not acceptable to the malting
trade. Consignments of grades
1 and 2 C.W. Two-row barley
if mixed with Sanalta or Rex
varieties are rejected for malt-
ing purposes.
Effective August 1, 1945, San-
alta and Rex barley will be
excluded from the grades No.
1 V.W. and No. 2 C.W. Two-row
barley grades. Barley of these
varieties after that date will be
graded not higher than No. 1.
Feed.
Lower commercial grading of
these barleys need not be of
undue concern to farmers who
plan to meet the War-time de-
mand for live stock products by
feeding more barley. This public-
ity is now being given so that
farmers may know the barley
situation prior to seeding.
Til ritstjóra Lögbergs
Það lítur út fyrir að eg sé orð-
inn sjálfkjörinn svaramaður C.
C.F. flokksins, að minsta kosti
hvað blaði yðar viðvíkur.
Síðast er eg sá nauðsyn bera
til að bera blak af C.C.F. var
skömmu eftir síðustu fylkiskosn-
ingar, þegar þér spáðuð því að
C.C.F. væri “að gufa upp”. Eg
mótmælti þeirri spásögn og færði
fram ýmsar — frá mínu sjónar-
miði — veigamiklar sannanir fyr
ir því gagnstæða.
Síðan hafa margir atburðir
gjörst, þar á meðal stjórnar-
myndun C.C.F. í Saskatchewan,
vöxtur og viðgangur sama flokks
upp í sterkasta minnihluta í
Ontario, með aðeins 3. þingmönn-
um færri en stjórnarflokkurinn.
1 vesturfylkjunum hefir C.C.F.
unnið 6 aukakosningar af 8. í
British Columbia eru þeir aðal-
andstöðuflokkur stjórnarinnar. í
öðrum fylkjum landsins hefir
C.C.F. smámsaman aukist fylgi,
þó engin risaskref þessu lík hafi
verið stigin. En alt þetta saman-
lagt, lýsir engum dauðamerkj-
um, eða því að “C.C.F. sé að gufa
upp”.
For the “REST” of
Your Life Buy
Globe
BEDS
SPRINGS
MATTRESSES
WINNIPEG
CALGARY
Globe Beddlng Go. Limited
Eg er í raun og veru ekki svo
mjög viðkvæmur fyrir aðfinslum
í garð C.C.F. þar sem mér er
fullljóst, að það, sem pólitísk
stofnun er ekki gallalaust, hefir
ekki öðlast allann vísdóm og
þessvegna yfirsést á stundum. En
eg vona að þér viðurkennið, að
í því efni eru önnur pólitísk fé-
lög ekki mikið frábrugðin.
í aðalritstjórnargrein í Lög-
bergi, frá 15. marz, takið þér tii
meðferðar uppreisn og brott-
rekstur tveggja meðlima Mani-
toba þingsins úr C.C.F. flokkn-
um, þeirra Dr. Johnson frá
Brandon og Mr. Richards frá
the Pas. Ef þér hefðuð sagt frá
málavöxtum, nákvæmlega eins
og þeir voru, mundi það hafa
sparað mér það ómak að rita
þessar línur, en af því þér fund-
uð í þessu tilfelli, efni til árásar
á C.C.F. og skýrðuð ekki rétt frá,
tel eg skyldu mína gagnvart les-
endum blaðs yðar, að gjöra
nokkrar athugasemdir.
Til að byrja með, voru þessir
tveir menn ekki “reknir með
harðri hendi”. Stjórnarnefnd
C.C.F. flokksins í Manitoba var
á fundi allan síðari part og
kvöld þess laugardags er um
getur, samtals 12 klukkustundir;
þar af notuðu Dr. Johnson og
Mr. Richards 5 klukkustundir til
réttlætingar verka sinna og af-
stöðu. Allir nefndarmeðlimir
tóku til máls og margar uppá-
stungur komu fram til málamiðl-
unar. Atkvæði fóru fram að af-
liðnu miðnætti, þegar öll sátta-
mál höfðu misheppnast og allir
fundarmenn voru orðnir uppefn-
ir; féllu þau svo að 33 voru með
brottrekstri þessara tveggja
manna gegn 5, í þessum 5, voru
atkvæði beggja sakborrtinga.
Tillagan var svohljóðandi:
“Með því að B. R. Richard og
Dr. D. L. Johnson hafa lýst því
yfir, að þeir séu nú algjörlega
mótfallnir stjórnmálastefnu C.
C.F. eins og hún var samþykt
með afli atkvæða á fylkis- og
landsfundum.
Og með því að þeir hafa lýst
yfir sem sinni skoðun, að þeim
ákvörðunum C.C.F. að vinna
næstu sambandskosningar skuli
hætt, og í þess stað hefja sam-
vinnu við Liberal og Labor-
Progressive flokkunum hvers
stefna mundi verða andstæð á-
kvörðunum félagsmanna vorra.
Og með því að þeir hafa lýst
yfir samþykki sínu með stefnu.
L.P.P. og hafa viðurkent að hafa
setið á ráðstefnum með foringj-
um nefnds flokks.
Og með því að þeir hafa með
slíkri hegðan, gjört tilraun til
að eyðileggja C.C.F. og gengið í
lið óvina vorra.
Er þessvegna hér með ákveðið
að B. R. Richard og Dr. D. L.
Johnson skuli strikaðir út af
meðlimaskrá C.C.F, flokksins,
samkvæmt ákvæðum grundvall-
arlaga C.C.F. Þeir skulu þar
með útilokaðir frá öllum sam-
böndum við C.C.F. í Manitoba og
sviftir öllum réttindum er með-
limir verða aðnjótandi.”
Eg er reiðubúinn að láta les-
endur blaðs yðar dæma um hvort
brottvikning þessara tveggja
manna var réttmæt eða ekki.
Sú frásögn yðar að “þeim var
báðum fagnað íorkunnar vel er
heim kom” er ekki rétt; sann-
leikurinn er þessi: Eitt C.C.F.
félag í The Pas (kjördæmi Mr.
Richards) samþykti tillögu sam-
kvæmt stefnu Mr. Richards, og
lét jafnframt í ljósi þá von, að
yfirstjórn C.C.F. í Manitoba,
svifti hann ekki meðlimarétti;
þetta voru algjörlega persónu-
legðar aðstæður. Síðar, er allir
málavextir voru kunnir, undir-
skrifuðu C.C.F. meðlimir í Flin
Flan, sem er stærsta og áhrifa-
mesta hérað kjördæmisins,
stefnu og starfskrá C.C.F. og
lofuðu óskiptu fylgi í komandi
sambandskosningum.
C.C.F. deildin í Brandon hóf
engar framkvæmdir í málinu,
lýsti aðeins yfir að hlýtt mundi
verða þeim úrskurði er .yfir-
stjórn flokksins í Manitoba á-
kvarðaði.
Aðaldeiluefnið var krafa Dr.
Johnson og Mr. Richards um
samvinnu við “önnur frjálslynd
félög”. Þeir áttu hér við L.P.P.
(hinn fyrrverandi kommúnista-
flokk). Þetta var ekki nýtt, vegna
þess að um mörg undanfarin ár
hafa slíkar samvinnutillögur frá
L.P.P. borist inn á hvern ein-
asta aðalfund C.C.F. en ætíð eft-
ir tilhlýðilega íhugun, hlotið
samhljóða neitun. Af sömu ástæð
um var tveimur C.C.F. þing-
-mönnum 1 Ontorio vikið úr
flokknum, þeir sitja nú á Ontario
þingi, sem óháðir.
Vér alþýðumenn, ættum eftir
fengna reynslu að vera sann-
færðir um, að eina sigurvon vor
er að standa ákveðnir og óbundn-
ir öðrum flokkum í hinni, enda-
lausu baráttu gegn yfirráðum og
kúgun auðvaldsins. Vér höfum
enn ekki gleymt svikum Forke
og Crerars, þegar hið fyrverandi
“Progressive Party” sendi 65
þingmenn til Ottawa árið 1921,
sem varð að engu vegna sam-
einingu við Liberala, fyrir undir-
rót þeirra. Mr. Coldwell og aðrir
foringjar C.C.F. hafa mörgum
sinnum lofað að bregðast ekki
þannig. Þau loforð verða ekki
rofin.
Það má vel vera “að þess verði
langt að bíða, að C.C.F. ráði ríkj-
um í Ottawa”. Ef þessi spádóm-
ur er jafngildur fyrri getgátum
yðar viðvíkjandi C.C.F., eru
miklar líkur til að niðurstaðan
verði gjörsamlega öfug. En hvort
sem langt eða skamt er að mark-
inu, munu flestir játa að loka-
sigur felist ekki í sambandi eða
samvinnu við aðra svokallaða
“progressive” flokka, hvort sem
þeir eru nefndir Labor Progres-
sive, Liberal Progressive^ eða
Progressive Conservative.
Yðar einlægur,
J .J. Swanson.
Jónbjörn Gíslason,
þýddi.
^Hi
1
Mikilvægar staðreyndir
varðandi eignir yðar —
Athugið þær átrax!
Vitið þér fyrir víst hver hluti eigna yðar
kemur undir tekjuskatt?
Ef þér mælið fyrir um mánaðargreiðslur til konu
eða barns, getur komið til mála að “capital” hluti
þeirrar upphæðar komi undir tekjuskatt.
Þér getið komið í veg fyrir þetta með nákvæmri
erfðaskrá, og hin langa æfing vor í þeim efnum,
stendur yður til boða. Skrifið, símið, eða finnið
oss. Þessu fylgja engar kvaðir.
Síðasta afborgun tekjuskatts fyrir
1944 þarf að greiðast eigi síðar en
30. apríl.
THE NORTHERN TRUSTS
COMPANY
333 Main Street, WINNIPEG.
Sími 97 271
Útibú í REGINA og CALGARY.
45-6