Lögberg


Lögberg - 19.04.1945, Qupperneq 1

Lögberg - 19.04.1945, Qupperneq 1
PHONE 21374 • i A A Complete Cleaning Institution 58. ÁRGANGUR PHONE 21374 \\VUÖ I n<lci'crS ’ L. t uuV^cA Vu„r rS an<l ,n6fS A Complete Cleaning Institution NÚMER 16 Víkingurinn með barnshjartað, Franklin D. Roosevelt Bandaríkja forseti, lézt að Warm Springs í Georgia-ríkinu, íimtu- daginn þann 12. þ. m. Banamein hans var heilabióðfall. CÚ HARMFREGN barst á öldum ljósvakans út um allan heim á síðastliðinn fimtudag, síðdegis, að stjórnmálaskörungurinn og rnannvinurinn Franklin Delano Roosevelt, væri nýlátinn á hress- ingarheimili sínu við Warm Springs í Georgiaríki; hafði forseti dvalið þar nokkra daga sér til hvíldar, ðg virtist við sæmilega heilsu, er hann fór frá Washington; dauða hans bar að kl. 3.35 c. h., áminstan dag. Laust eftir hádegi hafði forseti tjáð vinum sínum það, að hann kendi ákafs höfuðverkjar; úr því átti hann aðeins eftir þrjár klukkustundir meðal lifenda á þessari jörð; banamein hans var heilablóðfall; hann lifði og dó eins og sönn hetja. Mr. Roose- velt varð 63 ára þann 30. janúar síðastliðinn. í fáyrtri fréttagrein, verður vitaskuld ævi þessa mikla manns ekki lýst svo nokkru nemi; hann var óskmögur þjóðar sinnar, og dáður af miljónum annara þjóða vítt um heim; hann er fæddur í auðlegð, en tekur sér snemma það hlutverk fyrir hendur, að halda uppi vörn fyrir lítilmagn- anum og rétta hluta hans; hann verður á unga aldri aðstoðar- flotamálaráðherra Bandaríkj- anna í ráðuneyti Wodrow Wil- son, síðar ríkisstjóri í New York, og loks æðsti valdamaður hinnar voldugu þjóðar sinnar; hann vinnur fjórum sinnum for- setakosningu, og hóf hið fjórða forsetatímabil sitt í janúarmán- uði síðastliðnum. Það hafði fyrir endur og löngu orðið hefð í Bandaríkjunum, að forsetar sætu eigi lengur við völd en í tvö kjörtímabil; þessa 'hefð virti Mr. Roosevelt að vett- ugi, eins og raun bar vitni um; hann lagði sig lítt að fordæmum, en lagði því meiri rækt við land- nám nýrra hugsjóna og nýrra markmiða. Hagur Bandaríkjaþjóðarinnar var alt annað en glæsilegur, er Mr. Roosevelt fyrst tók við völd- um, að afstöðnum forsetakosn- ingunum 1932. Var þá í raun og veru svo komið að við raun- verulegu efnahagshruni lá; kom Mr. Roosevelt þá fram með ný- sköpunarlöggjöf sína, er þrátt fyrir illvíga andspyrnu af hálfu íhalds- og peningavaldsins utan þings sem innan, kom þjóðinni aftur á réttan kjöl. Mr. Roosevelt var einlægur trúmaður, og lauk ýmissum af hinum áhrifamestu rwðum sín- um með fögrum og andheitum bænum. Á léttasta skeiði ævinnar bil- aði Mr. Roosevelt að heilsu af völdum lömunarveiki, og geks frá þeim tíma aldrei heill til skógar, og lét þá stundum nærri, að hann drægi sig með öllu í hlé af vettvangi opinberra starfs mála; en ávalt, er róðurinn þýngdist sem mest, kom himv mikilhæfi lífsförunautur hans, frú Eleanor Roosevelt til sög- unnar, og talaði í hann kjark. Mr. Roosevelt var gæfumaður; hann kvæntist ungur göfugri konu, sem ávalt var hans hægri hönd; þau eignuðust fimm mann- vænleg börn. Að aflokinni kve.ðjuathöfn í Hvíta húsinu í Washington, voru jarðneskar leyfar hins látna þjóðhöfðingja og ftiannvinar, fluttar til Hyde Park í New York, þar sem jarðsetning fór fram kl. 10 árdegis á sunnudag- inn var. Þremur klukkustundum eftir lát Mr. Roosevelt, var varafor- seti Bandaríkjanna, Harry S. Truman, svarinn inn sem forseti þjóðar sinnar. Hinn nýi forseti Bandaríkjanna Síðastliðinn fimtudag, þrem- ur klukkustundum eftir lát Roosevelts forseta, var vara-for- seti Bandaríkjanna, Harry S. Truman, svarinn inn í forseta- embætti; eiðtökunni, sem fram fór í Hvíta húsinu í Washington, stýrði Mr. Stone, dómsforseti í hæztarétti. Nr. Truman er liðlega sextug- ur; hann er fæddur í Missouri- ríkinu, og af fátæku bændafólki kominn; framan af ævi var Mr. Truman við margvísleg störf rið- inn; hann vann við búnað, eða sinti pósthús- og bankastörfum; hann setti á stofn fataverzlun, en varð að hætta henni á kreppu árunum. Mr. Truman gekk árum saman á kvöldskóla til þess að læra lög- vísi, og lauk á sínum tíma lagá- prófi; um nokkur ár gegndi hann héraðsdómaraembætti, en var fyrst kosinn til Bandaríkjasenats ins 1934, fyrir fæðingarríki sitt; í nóvember kosningunum síð- ustu, var Mr. Truman kosinn í vara-forseta embætti, og hefir rás viðburðanna hagað því svó til, að á hinum alvarlegu, yfir- standandi stríðstímum, hefir þungi forsetaembættisins fallið honum á herðar. Mr. Truman ávarpaði báðar deildir þjóðþingsins í Washing- ton síðastliðinn mánudag, og lagði megináherzluna á það, að vinna stríðið og s'kipuleggja væntanlegan frið; hann sagði að hlutverk stórþjóðanna ætti að vera það, að þjóna mannkyninu í stað þess að drottna yfir því; þessu jafnframt skuldbatt for- seti Bandaríkjaþjóðina til virkr- ar þátttöku í þeim alþjóða sam- tökum, sem stofnuð yrðu að loknu stríði, heimsfriðnum til öryggis. Mr. Truman er kvænt- ur maður, og eiga þau hjónin eina dóttur barna. TEKNIR TIL FANGA Bandaríkjaherinn tók nýlega til fanga þá von Papen, fyrrum sendiherra Þjóðverja í Tyrk- landi, Wilhelm prins af Hohen- zollern, og Krupp, eiganda Kruppsvopnaverksmiðjanna í Essen; það má nærri geta hvort amerísku hermennirnir hafi ekki orðið meir en lítið forviða, er þeir komust að raun um, að Krupp bjó í húsi, sem 800 her- bergi voru í. Lestrarfélagið á Gimli heldur hina árlegu skemtisamkomu sína á föstudagskvöldið þann 27. þ. m. kl. 8. Glæsileg ung hjón Mr. og Mrs. Randolph Gerald Hoiles Þann 18. nóvember síðastliðinn, voru gefin saman í hjónaband í Hope United kirkjunni í'Toronto, þau Laurie Simone Kristjánsson og Randolph Gerald Hoiles, Ph. D. Brúðurin er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Otto Kristjánsson að Geraldton, Ont. Brúðguminn er doktor í jarðfræði. Að aflokinni hjónavígslu, komu brúðhjónin til Geraldton, þar sem þeim var haldin vegleg veizla á heimili foreldra brúðarnnar að viðstöddu fjölmenni. Framtíðarheimili þessara glæsilegu hjóna verður í Toronto. Sambandskosningar ákveðnar Forsætisráðherrann, Mr. King, hefir lýst yfir því, að sambands- kosningar fari fram þann 11. júní næstkomandi; er undirbúning- ur þegar hafinn að skrásetning kjósenda, bæði heima fyrir, og eins vegna hermanna vorra ut- an canadiskra landamæra; kjör- tímabil þingsins rann út síðast- liðinn þriðjudag; stjórnarand- stæðingar létu í ljós talsverðan yfirborðsfögnuð yfir því, að eiga þess nú senn kost, að freista gæfunnar í hinum ýmsu kjör- dæmum, í von um aukið þing- fylgi og valdatöku, ef svo byði við að horfa; einkum voru það Progressív-konservatívar, er báru sig borginmannlega, og kváðust hyggja gott til glímunn- ar. Mr. Coldwell kvað flokk sinn viðbúinn kosningum, en hann benti jafnframt á það, að kosn- ingarnar bæri að taka í fylstu alvöru, því hvernig sem hjólið snerist, væri það sýnt, að ábyrgð sú, sem þeirri stjórn legðist á herðar, er' við völdum tæki að kosningum afstöðnum, yrði engu léttari en sú, sem hvílt hefði á núverandi stríðstíma stjórn. Mr. Blackmore kvaðst taka þingrofi með fögnuði, því sinn flokkur, Social Credit fylkingin, þyrfti ekkert að óttast af hálfu kjós- enda. Þingmenn Liberal flokks- ins tóku yfirlýsingu forsætis- ráðherra um þingrof, eins og vera bar, með heimspekilegri stillingu; þeir hafa ásamt ráðu- neytinu, borið hita og þunga dagsins undanfarin fimm reynslu og alvöruár, og þó ýmsir væru nokkuð veðurbarnir, þá voru þeir þó fyltir hólmgöngumóð að hætti fornra víkinga. 1 all-mörgum kjördæmanna hafa hinir ýmsu flokkar þegar valið frambjóðendur, þó enn sé útnefningum hvergi nærri lok- ið. FYLKISKOSNINGAR í ONTARIO Almennar þingkosningar í Ontario, fara fram þann 4. júni næstkomandi. Eins og vitað er, hlaut íhalds- stjórn áminsts fylkis, sem Col. Drew hefir veitt forustu, van- traustsyfirlýsingu, fyrir atbeina C.C.F. flokksins, Liberala og ó- háðra þingmanna; stjórnin var vitanlega frá upphafi vega sinna völt í sessi, því hún réði einungis yfir 38 þingsætum af 90. Nokkuð er þegar farið að hitna í hinum pólitíska katli austur þar, að því er nýjustu fregnir herma; allir eru foringjar megin flokkanna, þeir Col. Drew, Mr. Hepburn og Mr. Joliffe, miklir fyrir sér, og láta ekki alt fyrir brjósti brenna. Talið er víst, að Labor-Prógressiv flokkurinn hafi og nokkra frambjóðendur í kjöri við áminstar fylkiskosning- ar. Þetta er í þriðja skiptið í sögu Canada, sem sambandskosning- ar og kosningar í einstök fylki fara saman; hliðstæð tilfelli gerð ust 1878 og 1882. • ATVINNA FYRIR MILJÓN MENN Mr. Howe, birgðaráðherra sam bandsstjórnarinnar, lýsti yfir því í þingræðu rétt fyrir þingslit, að eftir að stríðinu lyki skapaðist í Canada ný atvinna fyrir því nær miljón manns. Látið ekki hjá líða, að hlusta á fyrirlesturinn, sem danski fræðimaðurinn. Capt. Peter Freuchen, flytur í Orpheum leik húsinu á fimtudagskvöldið 26. þ. m. kl. 8.15. Það er ekki á hverjum degi, sem Winnipegbú- um gefst kostur á að hlusta á jafn frægan æfintýramann sem Capt. Freuchen er. Syáturminning Um Þorbergínu Myres. Hún systir mín er dáin eg sakna hennar mest, en syrgja má þó látið hennar eigi, því héðan burt að flytja það hollast mun og bezt, og hefja aðra ferð á nýjum degi. Blómið það er fölnað og hún er orðin hljóð. hún sem jafnan reyndi mig að gleðja, hún sem var mér altaf svo ástúðlega góð, ó, hvað mér er hana sárt að kveðja. Um það vonin þó enn í brjósti mér, að eftir lítinn tíma samt eg megi, finna hana aftur — það fró hin mesta er — og fylgja henni þá á nýjum vegi. Undir nafni Þórönnu Einarsson. Böövar H. Jakobson. ■ ■ ■ ■ ■ '■ ■<1 Landáljóri Canada Hertoginn af Athlone, heimsækir, svo sem áður hefir verið tilkynnt í íslenzku blöðunum, bygð íslendinga að Gimli, fimtudaginn 26. þ. m. Verður honum, og konu hans, Hennar Konunglegu Tign, Alice prinsessu, fagnað með samkomu í Gimli Pavilion kl. 2 e. h. þann dag. Dagskrá samkom- unnar verður svo sem hér segir: O, Canada Ávarp samkomustjóra — Jón K. Laxdal, Giftili, Man. Landstjórinn ávarpaður fyrir hönd Islendinga í Canada Hjálmar A. Bergman, dómari Svar-ræða landstjórans. Barnakór syngur Landstjórinn kyntur gestum. God Save the King. Sérstakir flutningavagnar (busses) leggja af stað frá Winnipeg stöðinni (Bus Depot) kl. 11:45 f. h. NEFNDIN.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.