Lögberg - 26.04.1945, Blaðsíða 4

Lögberg - 26.04.1945, Blaðsíða 4
4 LOGBERG, FIMTUDAGINN, 26. APRÍL, 1945 ----------löBbcrg--------------------- GefiB út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS. LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR DÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and publishea by The Coiumhia Press, Ljmited, 695 Sargent Avenue Winnipeg, ManitoDa PHONE 21 804 MwiiuiiUiiiiiUuiiUuuuiiiiuiiUiiuiiiiiiiiiuiiiiuiuii!iiiiiimiutiUiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiuuiiiiiiiumiuuuiaiuiuiiiiuiuiii!iiiiiii:iiUiuuuMiiiiUiui Þingrof og nýjar kosningar Eins og frá var skýrt hér í blaðinu í vikunni, sem leið, hefir sambandsþing verið rofið og nýjar kosningar fyrirskipaðar þann 11. júní næstkomandi; þingið hlaut eðlilegan dauðdaga hinn 17. yfirstandandi mánaðar, eða með öðr- u'm orðum, stundaglas kjörtímabilsins rann þá út. Nokkur málgögn íhaldsflokksins, eða hliðholl honum, svo sem Winnipeg Tribune, mæltu með því, að þingið framlengdi líf sitt þar til yfir lyki í stríðinu; fordæma til slíks þurfti vita- skuld ekki lengra að leita, en til Bretlands, og því þá ekki að velja þá leiðina? Forsætisráð- herrann, Mr. King, sem frá upphafi hinnar pólitísku göngu sinnar, hefir jafnan treyst fólk- inu, engu síður en það hefir treyst honum, tók framlenging þingtímans ekki í mál, í lýð- ræðislöndum eins og Canada, væri það stjórn- skipulegur réttur kjósenda, að láta vilja sinn í ljós í almennum kosningum svo sem lög mæla fyrir, án þess að tillit yrði tekið til sérhags- muna eða dutlunga þeirra, sem með völd færi í þann og þann svipinn; fyrir þessa frjálsmann- legu og drengilegu afstöðu sína, verðskuldar Mr. King þjóðarþökk, engu síður en fyrir svo margt annað, er hann með viturlegri forsjá, hefir unn- ið þjóðinni til nytsemdar. Þing það, sem nú var nýlega rofið, tók til starfa að afstöðnum kosningum 1940. Það varð þegar, af skiljanlegum ástæðum, verkefni þessa þings, að undirbúa á öllum sviðum þá hina risavöxnu stríðssókn þjóðarinnar, sem fyrir löngu hefir vakið undrun og aðdáun alls hins siðmenta heims; það út af fyrir sig, að skera upp herör og safna miklu liði, var vitanlega engan veginn fullnægjandi; herinn, allar greinar hans, þurfti að útbúa að klæðum, vopnum og vistum svo sem bezt mátti verða; alt krafðist þetta róttækra breytinga á athafnalífi og starfs- háttum þjóðarinnar frá friðariðju, til marg- brotinnar og stórfeldrar stríðstímaiðju. Eins og gefur að skilja, féll fyrst og fremst megin þungi skipulagningarinnar varðandi stríðssóknina, ráðuneytinu á herðar, og verður nú ekki um það deilt, að á þeim vettvangi, hafi forsætisráðherra persónulega átt bróðurhlutann, þótt hann jafnan hefði mannvali miklu á að skipa sér til aðstoðar. Langmestan hluta hins nýútrunna kjörtíma- bils, var ráðuneytið eins samstætt og bezt varð á kosið; ágreinings svo teljandi væri, varð ekki vart, fyr en Col. Ralston kom úr Evrópuför sinni, og lét af embætti vegna þess, að hann, að minsta kosti í svipinn, sá ekki auga til auga við Mr. King, varðandi þær aðferðir, er beitt skyldi því til tryggingar, að nægilegt styrktarlið yrði ávalt til taks, hinum stríðandi hersveitum vor- um austan hafs til fulltingis; og ekki átti nú þessi ágreiningur eða skoðanamunur sér dýpri rætur en það, að er til atkvæðagreiðslu kom um málið í þinginu, hikaði Col. Ralston ekki við það, að greiða stjórninni traustsyfirlýsingu; enda er hann að allra dómi, réttlátur maður og vitur; eftirmaður Col. Ralstons, Gen. Mc- Naughton, er einnig þjóðkunnur merkismaður; hann átti ekki sæti á síðasta þingi, en kosningu hans þann 11. júní næstkomandi, draga víst fáir í efa; nú hefir Mr. King, hrundið í fram- kvæmd víðtækum breytingum á ráðuneyti sínu, sem allar spá góðu um framtíðina; hann hefir skipað í ráðuneytið ýmissa tiltölulega unga menn, í stað hinna, sem árum saman höfðu borið hita og þunga dagsins, og teknir voru að eldast og þreytast; ein breytingin, öðrum frem- ur, varðar einkum Manitobabúa, og vekur sér- staklega athygli þeirra, en hún lýtur að embættis afsögn náttúrufríðindaráðherrans, Hon. T. A. Crerars, sem hefir hlotið sæti í efri málstof- unni. Mr. Crerar er fyrir löngu þjóðkunnur athafnamaður, er mjög hefir látið sér hugar- haldið um málefni og málstað Vesturfylkjanna; eftirmaður hans í ráðuneytinu verður Hon. J. Allison Glenn, sá, er um all-mörg undanfarin ár, hefir við hinn ágætasta orðstír, skipað for- sæti í neðri málstofu sambandsþingsins, og set- ið á þingi fyrir Marquette kjördæmið í þessu fylki; fær Vesturlandið alveg vafalaust dyggan málsvara þar sem hann verður að verki. Það var ekki einasta, að það yrði hlutskipti núverandi stjórnar og hins nýrofna þings, að búa þjóðina til hinnar risafengnu stríðssóknar, heldur afköstuðu þessir aðiljar í sameiningu margháttuðum afreksverkum varðandi skipu- lagningu mannfélagsmálanna heima fyrir; má þar meðal annars tilnefna löggjöfina um verð- festing lífsnauðsynja, sem skapaði slíkt jafn- vægi innan vébanda þjóðfélagsins, að aðrar þjóðir, svo sem Bandaríkin, tóku það sér til fyrirmyndar; borgarar þessa lands, sem lifðu af verðþenslubrjálæðið í styrjöldinni frá 1914, og enn eru ofar moldu, muna tímana tvenna, og láta hvorki blekkjast né telja sér hughvarf, er til þess kemur, að skera úr um það. hverj- um skuli völd falin til næstu fimm ára í þessu fagra og friðsæla landi; þeim er það alveg ljóst, hvað þeir eiga Mr. King, ráðuneyti hans, og frjálslynda flokknum í heild að þakka, og þeim fer nú æ fjölgandi meðal kjósenda, er svipuðum augum líta á málin. Hinn djarflyndi og róttæki þingmaður Win- nipegborgar í fylkisþinginu, sem enginn grunar um græzku, Mr. Lewis St. George Stubbs, komst ekki alls fyrir löngu í samtali við fréttaritara dagblaðsins Winnipeg Tribune, þannig að orði: “Endurkosnirig núverandi sambandsstjórnar er þjóðarnauðsyn, en myndun stjórnar, er ann- aðhvort Mr. Bracken eða Mr. Coldwell stæðu að, þjóðarógæfa.” Óhjákvœmileg athugasemd ....i.,.,;:!.... ..„ii;ii:iii!!:i::::i:,li:nnii:m;,:.ii.ll:lll,i;,:;i,in[ii.:,...i;li,iiiiiiiini[iiiiiiiiii;;iiiniiiii[iii;!i:::imiiiiiiii[[inii::i] Þann 15. marz síðastliðinn, ávítaði Lögberg miðstjórn C.C.F. flokksins stranglega, fyrir það pólitíska, illkynjaða gerræði er hún gerðist sek um, með því að gera tvo flokksbræður sína í fylkisþinginu í Manitoba flokksræka, fyrir það eitt, að því er bezt verður séð, að þeir höfðu mannrænu í sér til þess að finna opin- berlega og á réttum stað, í þingsalnum, að einu og öðru, er þeim þótti steinrunnið og úrelt í stefnuskrá flokksins; þessir menn, þeir Dr. Johnson og Mr. Richards, trúðu því auðsjáan- lega eins og nýju neti, að þeir byggju í landi, þar sem málfrelsi, skoðanafrelsi og samvizku- frelsi væri almennt viðurkent, og þá takmarkað einungis um hríð í vissum tilfellum aðeins, af ástæðum, sem frá stríðinu stafa; engar slíkar ástæður voru við hendi, varðandi hina áminstu þingmenn, löglega fulltrúa hlutaðeigandi kjör- dæma; ekkert af þessu tekur miðstjórn þeirra C.C.F.-manna til greina, heldur kallar afar- langan fund, að því er sagan segir, og gerir áminsta félagsbræður sína flokksræka; ekki með neinum silkiglófum, heldur blátt áfram með harðri hendi, eins og Lögberg í áminstri ritstjórnargrein skýrði frá. í Lögbergi frá 12. þ. m., finnur Mr. J. J. Swanson hjá sér hvöt, til að mótmæla því, að áminstir þingmenn hefðu verið reknir úr flokkn- um “með harðri hendi”. Þetta verður því furðu- legra, sem vitað er, að Mr. Swanson kunni einhver skil á því handbragði, sem beitt var, því annars hefði honum naumast orðið sú skyssa á, að staðfesta ummæli Lögbergs með birtingu yfirlýsingarinnar varðandi burtreksturinn; og til þess að taka af öll tvímæli í þessu efni, þykir hlýða, að yfirlýsingin sé hér endurbirt. “Með því að B. R. Richard og Dr. D. L. Johnston hafa lýst því yfir, að þeir séu nú algjörlega mótfallnir stjórnmálastefnu C.C.F. eins og hún var samþykt með afli atkvæða á fylkis- og landsfundum. Og með því að þeir hafa lýst yfir sem sinni Mcoðun, að þeim ákvörðunum C.C.F. að vinna næstu sambandskosningar skuli hætt, og í þess stað hefja samvinnu við Liberal og Labor- Progressive flokkinn, hvers stefna mundi yerða andstæð ákvörðunum félagsmanna vorra. Og með því að þeir hafa lýst yfir samþykki sínu með stefnu L.P.P. og hafa viðurkent að hafa setið á ráðstefnum með foringjum nefnds flokks. Og með því að þeir ha'fa með slíkri hegðan, gjört tilraun til að eyðileggja C.C.F. og gengið í lið óvina vorra. Er þessvegna hér með ákveðið að B. R. Richard og Dr. L. D. Johnson skuli strikaðir út af meðlimaskrá C.C.F. flokksins, samkvæmt á- kvæðum grundvallarlaga C.C.F. Þeir skulu þar með útilokaðir frá öllum samböndum við C.C.F. í Manitoba og sviftir öllum réttindum er með- limir verða aðnjótandi.” Síðasta málsgrein áminstrar yfirlýsingar, tekur af öll tvímæli um aðferðina, sem beitt var: “Þeir skulu þar með útilokaðir frá öllum sam- böndum við C.C.F. í Manitoba og sviptir öllum réttindum, er meðlimir flokksins verða aðnjót- andi”. Finst Mr. Swanson það bera vitni hlý- leik eða handmýkt, þegar menn eru “sviptii öllum réttindum”? Sé svo, hefir hann fundið upp alveg splunkunýtt púður; nýtt blekkinga- púður, eða hvað? Mr. Swanson sýnist enn taka það nærri sér, að Lögberg skyldi láta slík orð sér um munn falla að afstöðnum síðustu fylkiskosningum, að C.C.F. flokkurinn í fylkinu væri að gufa, eða Greinargerð eftir Júlíus Hafsteen sýslumann um Drauma og draumsýnir Jóns P. Jónssonar frá Tröllakoti Undanfarnar vikur hafa margskonar sögur gengið manna á milli um drauma og spádóma Jóns P. Jónssonar frá Tröllakoti við Húsavík, og margt ranghermt eins og geng- ur. Til þess að lesendum blaðsins gœfist kostur á að fá sem greinilegastar fregnir af þessum manni og draum- gáfu hans, hefir ritstj. fengið hér til birtnigar skýrslu Júlíusar Havsteen sýslumanns, sem hann hefir samið eftir frásögn Jóns. lnngangsorð. Þegar “Súðin” varð fyrir árás flugvélarinnar þýzku austan Grímseyjar í júní 1943 og komst nauðulega til Húsavíkur með að- stoð ensks togara, svo sem kunn- ugt er, var eg staddur í Reykja- vík, en kom skömmu síðar heim. Var þá all-mikið um þessa árás talað, svo sem gefur að sklija, og heyrði eg m. a. sagt, að Jón P. Jónsson verkamaður í Húsa- vík hefði dreymt fvrir þessum tíðindum og einhverju svipuðu hefði hann spáð, að koma myndi fyrir “Goðafoss”. Þeir, sem sögðu mér frá draum um Jóns, höfðu þá all-flestir í flimtingum og hentu gaman að spádómsgáfu Jóns, sem þeir töldu ekki spámannlega vaxinn. Gaf eg draumahjali þessu lít- inn gaum og taldi víst, þar sem Jón var mér kunnugur, að hann myndi segja mér frá draumum sínum ef hann teldi þá fyrir stórtíðindum. Eg var staddur í Reykjavík þegar “Goðafoss’ var sökt og skaut þá frásögnunum um drauma Jóns upp í huga minn. er eg frétti með hvaða hætti slysið varð og ásetti mér, að láta Jón segja mér í góðu tómi frá draumum sínum og jafnvel taka þá niður og styrktist eg í áformi þessu þegar heim kom og heyrði að Jóni hefði birst draumur eða draumsýn um “Dettifoss”, en þennan síðast- nefnda draum hafði hann sagt Karli Kristjánssyni oddvita í Húsavík, sem ritaði niður frá- sögn Jóns og sendi hana fram- kvæmdarstjóra Eimskipafélags íslands, Guðmundi Vilhjálms- syni. Ætt Jóns og uppruni. Áður en eg gef Jóni orðið, þykir mér rétt að kynna hann, og verður þá auðskildara sam- band það hið nána, sem er milli hans og föður hans í draumun- um. Jón Pálsson Jónsson, er svo var skírður, er fæddur í Húsa- hefði gufað upp; en atburðir síðustu tíma hafa áþreifanlega leitt í ljós, að í þessu fylki, að minsta kosti, sé ekki alt með feldu um hag flokksins; upp-. gufunin fremur að færast í auk- ana, en það gagnstæða; hve heil- steyptur flokkurinn í Ontario er, skal ósagt látið að þessu sinni; en naumast mun úr vegi að þess sé getið, að samkvæmt fregn frá Toronto þann 13. þ. m., sagði sig formlega úr C.C.F. flokknum maður að nafni J. U. Gauthier, er bauð sig fram af hálfu C.C.F. við síðustu fylkis- kosningar í Quebec í Chambly kjördæmi, en nú leitar kosninga í Chambly-Roution, og bygði úr- sögn sína á þeirri ódemókratisku aðferð, sem beitt var við þá Dr. Johnson og Mr. Richards. Þetta er aðferð, sem canadiska þjóðin undir engum kringumstæðum sættir sig við, hvort heldur það er^Mr. Swanson eða einhver ann- ar, sem leggur blessun sína yfir hana. Ummæli Mr. Swanson’s um kúgun auðvaldsins í niðurlagi ritsmíðar hans, eru réttmæt, þótt vér höfum óneitanlega kom ist á snoðir um, að ýmsum þætti þau koma úr hörðustu átt. vík 27. júlí 1904, elstur fjögra systkina sem lifa. Hann er sonur hjónanna Jóns Jónssonar og Sigríðar Þorbergsdóttur, sem bjuggu á jörðinni Tröllakoti hjá- leigu frá jörðinni Bakka norðan Húsavíkur, en nú eru báðar þess- ar jarðir lagðar undir Húsavík- urhrepp. Jón ólst upp í Trölla- koti og er kendur við þann bæ. Barnungur misti hann móður sína og er enn til þess tekið af kunnugum, hversu Jón eldri gekk börnum sínum í móður stað og lét sér ant um þau, einkum um elsta soninn, sem var pasturs- lítill, uns eldri Jón dó af slys- förum árið 1925. Jón P. Jónsson er lítill vexti hrekklaus með öllu, glaðlynd- ur, all óframfærinn í tali og hættir því mönnum til þess að henda gamni að frásögnum hans. Faðir hans var og lítill vexti en hnellinn og talinn bæði sann- orður, vandaður og sérstaklega hjálpsamur. Afi Jóns, sem hann er heit- inn eftir, var sunnan úr Rang- árþingi, sonur séra Páls Páls- sonar, sfem kunnur er af því að hafa tekið manna- fyrstur upp hér á landi kennslu málleys- ingja, að mér er tjáð. Var Jón þessi í hærra lagi, vel vaxinn og vel greindur. Hann var orð- lagður smiður. Giftist hann Sig- ríði Jónatansdóttur systur Jó- hannesar pósts að Birningsstöð- um í Laxárdal, sem talinn var ratvísastur og stundvísastur land pósta, og er þá mikið sagt. Son- ur Jóhannesar, sem tók við póst- ferðum eftir hann, var Kristján bóndi á Jódísarstöðum í Kaup- angurssveit í Eyjafirði. Var hann og dugnaðar póstur og þegar til vildi, að hann fór afvega, sem sjaldan var, birtist honum ætíð ljós sbr. kaflinn “Leiðarljós” í ritinu “Landpóst- ar” og var það trú manna, að með ljósi þessu væri Jóhannes að vísa syni sínum til vegar. Draumar Jóns. Það var að kvöldi dags á Tómasarmessu síðastliðinnar hinn 22. des. 1944. að eg bað Jón að finna mig og er hann var vel sestur, fór eg að spjalia við hann um draumana. Bað eg hann eftír nokkra stund að segja mér fyrsta drauminn sinn sem hann myndi eftir og hefði verið mark á takandi. Frásögn hans er þannig: Fyrsti draumurinn. “Nú eru liðin rúm 20 ár frá því mig dreymdi fyrsta draum- inn sem eg setti á mig og var það þá faðir minn sál. sem birt- ist mér í draumnum, eins og hann ætíð síðan hefir birst mér í draumum mínum og sagt mér eða sýnt mér það, sem fram átti að koma og ávalt hefir reynst rétt. Eg var þá vetrar- maður hjá ekkjunni Sigurrósu á Grásíðu í Kelduhverfi og gætti kinda. Nótt eina snemma vetrar 1924 dreymdi m,ig, að pabbi kom til mín og segir við mig, að eg skuli ekki láta út ærnar að morgni, því á muni skella blindbylur þegar á dag- inn líði, er standi nokkra daga. Þegar eg vaknaði, var veð- ur sæmilega gott en þykt í lofti og sagði eg þá húsbændum mínum drauminn og færðist undan að hleypa út ánum. Bene- dikt Björnsson, sem þá var ráðs- maður hjá Sigurrósu, sagði, að svo mætti vera í þetta sinn, enda þótt hann tryði ekki veru- lega á drauminn. Skömmu fyr- ir hádegi gerði skyndilega iðu- lausa stórhríð og hraktist fé eitthvað, sem látið hafði verið út um morguninn á öðrum bæj- um í hverfinu. Faðir minn — Jón í Tröllakoti — var þá lif- andi, en vorið 1925 varð hann undir vélbát við framsetningu á bátnum og beið bana af á- verkanum. Upp frá því hefir hann iðulega birst mér í draumum og er eg þá líklega oftast nær eða æfin- lega milli svefns og vöku er eg verð hans var, og hefir ætíð farið (Frh. á bls. 5) Vegna strits vors hrósum vér sigri! Samborgarar: Við sérhvert sigurlán, hafa Manitobábúar látið í Ijósi sterka ákvörðun um stuðning við hermenn vora til þess ýtrasta; kaupin hafa ávalt farið fram úr hinni tilsettu fjárhæð sérhvert nýtt lán hefri verið skoðað sem sjálf- sögð hólmganga, er ekki yrði hopað frá. Skerfur vor í áttunda láninu, er ákveðinn $95,000,00. Fylkisstjórnin kaupir álitlega upphæð í láninu úr varasjóði sínum og öðrum innstœðum, en þó verða það samstilt átök einstaklingsins, sem úrslitum ráða. Tvennar ástæður gera lánið að knýjandi nauðsyn— að Ijúka stríðinu, og gera mögulega viðreisnina, sem er lífsnauðsyn, til þess að endurreisa borgir, draga úr sársauka og hjálpa þeim mönnum, er þjáningar stríðs- ins hafa svipmerkt; þá getum vér sagt: “Stríðinu er lokið, vér höfum unnið orustuna.” Premier. THE GOVERNMENT OF THE PROVINCE OF MANITOBA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.