Lögberg - 12.07.1945, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 12. JÚLÍ, 1945
Or borg og bygð
Mr/ G. A. Williams kaupmað-
ur í Hecla, hefir dvalið í borg-
inni nokkra undanfarna daga á-
samt frú sinni og þremur bt>rn-
um.
•
Mr. Hallur E. Magnússon tré-
smíðameistari og skáld frá Se-
attle, Wash., sem dvalið hefir
hér um slóðir í mánaðartíma,
lagði af stað heimleiðis á sunnu-
daginn; hitti hann hér fjölda
vina frá fyrri árum, sem hann
og þeir höfðu mikla ánægju af
að endurnýja vinskap við. Mr.
Magnússon dvaldi um tíma á
Lundar, en þar átti hann um
skeið heima, og þaðan er kona
hans ættuð.
Mr. og Mrs. Geiri Sigurgeirs-
son frá Hecla, komu til borgar-
innar í byrjun vikunnar.
•
Mr. og Mrs. T. S. Thorsteins-
son frá Portage la Prairie, hafa
dvalið í borginni nokkra undan-
farna daga.
•
Mrs. W. S. Melsted lagði af
stað vestur til Oxbow, Sask., á
þriðjudaginn í heimsókn til
dóttur sinnar og tengdasonar,
Mr. og Mrs. Sveinn Indriðason;
í för með Mrs. Melsted var son-
ur hennar Serg. Thor Melsted,
R.C.A.F., sem nýkominn er heim
frá Englandi eftir þriggja ára
herþjónustu. .
•
Mrs. J. E. Bingeman frá Chic-
ago, hefir dvalið hér um slóðir
í nokkra daga; hún er dóttir
þeirra Mr. og Mrs. Ingvar Gísla-
son, sem búsett eru við Steep
Rock, Man. Móðir Mrs. Binge-
man kom með dóttur sinni norð-
an frá Manitobavatni á leið
norður til Árborgar, þar sem hún
dvelur í nokkra da^a í heimsókn
til ættingja og vina.
• s
Ungfrú Ása Jónsdóttir, sem
stundað hefir nám undanfarin
tvö ár við háskólann í Minne-
sonta, og eins í Northfield, kom
fyrir skömmu hingað til borgar-
innar og fór suður í Brown-
byggðina í heimsókn til frænd-
liðs síns, sem þar er mannmargt.
•
Mr.G. Lambertsen frá Glen-
boro kom til borgarinnar á
mánudaginn.
•
Hr. Daníel Gíslason, umboðs-
maður Veiðarfæraverzlunarinn-
ar Geysir í Reykiavík, sem dval-
ið hefir í New York undanfarin
tvö ár, kom hingað nýlega til
borgarinnar ásamt frú sinni;
þau hjónin brugðu sér norður
til Lundar í jieimsókn til ætt-
ingja sinna.
•
Hr. Tómas Ólafsson forstjóri
Skóverzlunar Reykjavíkur, hef-
ir dvalið í borginni nokkra und-
anfarna daga ásamt frú sinni og
tveimur börnum; þau hjón hafa
dvalið um hríð í New York.
•
Harald Blondal er nýlega kom-
inn hingað til borgar frá Ind-
landi.
•
Roskin kona vill fá eitt stórt
herbergi eða tvö smáherbergi
fyrir Light Housekeeping í hlýju
og kyrlátu einkaheimili. Sími
89 128.
•
Próf. Ásmundur Guðmundsson
mun koma flugleiðis til Van-
couver, 22. þ. m., og dveljast þar
og í Seattle og Blaine, næstu
daga.
Gefið í Minningarsjóð
Bandalags lút kvenna.
Próf. Ásmundur Guðmunds-
son, Reykjavík, ísland $20.00,
“til minningarskála Bandalags-
ins”. Thorbjörn Magnússon,
Gimli $5.00, í minningu um göf-
ugan dreng Óskar Goodman,
Selkirk. Mr. og Mrs. Th. Skag-
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Cand. theol. Pétur Sigurgeirs-
son, prédikar í Fyrstu lútersku
kirkju kl. 7 á sunnudagskvöld-
ið kemur.
•
Prestakall Norður Nýja íslands.
15. júlí—Riverton, ferming og
altarisganga kl. 2 e. h.
22. júlí— Geysir, messa kl. 2
e. h.
Víðir, messa kl. 8.30 e. h.
B. A. Bjarnason.
Áætlaðar messur í Sask., sunnu-
daginn 15. júlí.
Foam Lake, kl. 11 árd.
Leslie, kl. 2 síðd.
Wynyard, kl. 8 síðd.
Ásmundur Guðmundsson,
S. Ólafsson.
•
Guðsþjónusta í Silver Bay, Sd.
15. júlí kl. 2 e. h. Prédikun á
ensku.
Theo. Sigurðsson.
•
Messur í prestakalii
Dr. Haraldar Sigmar.
Sunnudaginn 15. júlí.
Vídalínskirkja, kl. 11 f. h. á
ensku.
Garðar kl. 2.30 e. h. á íslenzku.
Mountain, kl. 8 e. h. ensku og
íslenzku.
fjörd, Selkirk $2.00. Kvennfél-
agið ísafoJJ, Víðir $25.00, í minn-
ingu um Jónas Friðrikson, fall-
inn í hinu fyrra stríði. Sigurð
Sölvason, fallin í hinu fyrra
stríði. Jón Sigurdson, lézt við
heræfingar í Cornwallis. Gustaf
Arthur Hibbert, fallinn.
Meðtekið með innilegu þakk-
læti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
Gjafir til Betel í júní.
Vinur, Betel, áheit $2.00. Sig-
ríður Paulson, Blaine, Wash.
Handprjónaður dúkur í minn-
ingu um 30 ára afmæli Betel.
Guðjón Ingimundson, Riverton
$10.00. John Johnson, Blaine,
Wash. áheit til Betel $5.00. J.
A. Vopni, Kenville, Man. $5.00.
Mrs. Margrét Johnson, Glenboro,
Man. í minningu um Dr. Brand-
son $10.00.
Kærar þakkir.
J. J. Swanson, féhirðir,
308 Avenue Bldg., Wpg.
íslendingadagsnefndin fyrir
Blaine, Vancouver, Point Roberts
og Bellingham, hefir nú lokið
undirbúningi fyrir sitt árlega
hátíðahald, í Peace Arch Park.
(Sjá skemmtiskrá á öðrum stað
í blaðinu).
Eins og að undanförnu, hefir
nefndin gjört sér alt far um, að
vanda til hátíðahaldsins eftir
föngum og vonar að þessa árs Is-
lendingadagur verði ekki síður
ánægjulegur öllum er hann
sækja, en hinir fyrri.
Aðal ræðumaðurinn, Próf.
Sveinbjörn Johnson, er þjóð-
kunnur fyrir þekkingu sína á
forn-íslenzkum fræðum, eink-
um forn-íslenzkum lögum. Hefir
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur Löghergs á
íslandi sríúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavík. Hann er gjald-
keri í Grænmetisverzlun
ríkisins.
hann, meðal annars, þýtt á ensku
tungu hina fornu lagabók ís-
lendinga, “Grágás”, og með því
vakið athygli annara þjóða á
einum hinum merkasta þætti í
menningu 1 þjóðarinnar á fyrri
öldum. Þetta verður hans fyrsta
heimsókn til okkar landanna á
þessum slóðum og er nefndin
sannfærð um að menn fagni því,
að fá þetta tækifæri til að kynn-
ast honum.
Hinn undurfagri reitur, Peace
Arch Park, stækkar og prýkkar
með hverju árinu sem líður, og
er hinn tilvaldasti staður fyrir
frændur og vini að mætast á.
Hann er í sjálfu sér fyrirheit um
frið á jörð og bræðralag mann-
anna.
Þá hefir ekki heldur veðrið
brugðist okkur þennan dag á
liðnum árum og hefir nefndin
bjargfasta trú á því, að svo muni
það enn reynast.
“Hann gaf mér hveitibrauð,
hangikjöt líka af sauð”, sagði
skáldið forðum, og þarf enginn
að kvíða því, að ekki bjóðist
tækifæri til að “gleðja líkam-
ann”, þrátt fyrir alla matarskömt
un stjórnarvaldanna. Þegar ís-
lenzku kvenfélögin okkar, í
Blaine, leggjast á eitt með það
að seðja gest og gangandi, er
óhætt að reiða sig á það, að þær
láta engan hungraðan frá sér
fara.
Munið eftir stað og stund.
Staðurinn: Peace Arch Park.
Stundin: Sunnudaginn 29. júlí,
1945.
A. E. K.
•
Símskeyti og bréf er bárust hr.
Ásmundi P. Jóhannssyni í til-
efni af sjötugs afmæli hans.
Hr. Sveinn Björnsson, forseti ís-
lands.
Stjórnarnefnd og framkvæmdar-
stjórn Eimskipafélags íslands.
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Reykjavík.
Félag Vestur-lslendinga, Hálf-
dán Eiríksson forseti.
Ágústa og Thor Thors.
Kristín og Guðmundur Vil-
hjálmsson.
Eggert Claesen og .frú.
Jón Guðbrandsson.
Ragnhildur og Halldór Thor-
steinsson, Hátegi.
Jónas Thorbergsson.
Gígja og Henrik Sv. Björnsson.
Þórður Sveinsson, læknir.
Dr. Sigurgeir Sigurðsson, biskup
yfir íslandi.
Guðmundur Hlíðdal, póst- og
símamálastjóri.
Sigurborg Guðmundsdóttir og
Sigurður Jónasson.
Haraldur Böðvarsson, Akranesi.
Guðrún og Ólafur Johnson.
Séra Pétur Sigurðsson.
Áslaug og Hallgrímur Benedikts-
son.
Hansína og Jónas Kristjánsson
læknir.
Margit og Árni G. Eylands.
Sigurður Skjaldberg.
Dr. Helgi P. Briem, aðalræðis-
maður íslands í New York.
Irene og Grettir Eggertson, New
York.
Ófeigur J. Ófeigsson, Rochester,
Minn.
Dr. Haraldur Sigmar, forseta lút.
kirkjufélagsins.
Guðmundi Grímson dómara,
Rugby, N.-D.
J. T. Beck, prentsmiðjustjóra.
Stefán B. Kristjánsson, Van-
couver, B.C.
Frú Jóhanna Jónasson, Vanvou-
ver, B.C.
G. J. Oleson, Glenboro, Man.
Dr. og Mrs. S. E. Björnson, Ár-
borg, Man.
Ingibjörg og Sigurður Ólafsson,
Selkirk, Man.
Allir þurfa að eiga
ástina sína
Hermenn stóðu í þéttri röð
fyrir framan unga stúlku í
Hollywood, er vélritaði fyrir þá
bréf til foreldra þeirra, eigin-
kvenna og unnustna.
Hár og ljóshærður dáti, ekki
eldri en 19 ára, stóð í röðinni.
Þegar að honum kom og unga
stúlkan bauð honum sæti við
hlið sér, sagði hann:
“Eg verð eg verð víst að
hugsa þetta betur.”
Þar með gekk hann aftast í
röðina. Þar kom þó, að hann stóð
aftur frammi fyrir stúlkunni og
bauðst sæti hjá henni. Hann laut
höfði og mælti bréfið af múnni
fram:
“Ástin mín. Leyfi mitt er á
enda. Þetta er síðasta kvöldið.
Á morgun siglum við. Eg þarf
aðeins að segja þér, að þú ert
yndislegasta stúlkan, sem eg
nokkru sinni hef augum litið.
Eg vildi að eg hefði kynnzt þér
fyrr. Ætlar þú að vera svo góð
að skrifa mér? Mér mundi þykja
ákaflega vænt um það. Þú ert
vissulega dásamleg. Eg óska þér
allrar blessunar og treysti því,
að þú skrifir mér. Eg hef aldrei
séð stúlku jafn yndislega og þig,
nei, vissulega aldrei.”
Hann sagði því næst stúlk-
unni utanáskrift sína, og gekk
burt.
“Heyrðu, dáti”, kallaði stúlk-
Islendingadagurinn
Suunudaginn 29. júlí, 1945
Blaine
SKEMMTISKRÁ:
1. Ó, Guð vors lands ............... Söngflokkurinn
2. Ávarp forseta ................ Andrew Danielson
3. Einsöngur — Frú O. S. Laxdal.
a. Stóð eg úti í túnglsljósi Sveinbjörnsson
b. Draumalandið .... Sigfús Einaisson
4. Ræða ........................ Séra G. P. Johnson
5. Söngflokkurinn.
a. Fannhvíta móðir
b. Þið þekkið fold ................ H. Helgason
c. Fjallkonan................... O. Lindblad
6. Kvæði ............. Jónas Stefánsson frá Kaldbak
7. Einsöngur — Frú Ninna Stevens.
a. Gígjan ...................... Sigfús Einarsson
b. Svanasöngur á heiði Kaldalóns
8. Kvæði Séra A. E. Kristjánsson
9. Einsöngur ...................... Mr. Carl Julius
10. Söngflokkurinn.
a. Þú stóðst á tindi ...................... Ibsen
b. Þótt þú langförull legðir Björgvin Guðmundsson
c. Að fjallabaki ......................... Mozart
11. Ræða ................. Próf. Sveinbjörn Johnson
12. Kórsöngur: “Heyr oss” A. E. K. og H. S. H.
13. Almennur söngur — H. S. Helgason leiðir.
a. Ó, fögur er vor fósturjörð. b. Hvað er svo glatt'.
c. Ólafur reið með björgum fram. d. Svíf þú nú sæta.
e. Eg man þá tíð. f. Eldgamla ísafold. g. Ameilca.
h. God Save the King.
Skemmtiskráin hefst stundvíslega kl. 2 e. h.
Gjallarhorn, undir stjórn Mr. L. _G. Sigurdson, flytur
skemmtiskrána til áheyrenda.
an. “Hvert er nafn og heimilis-
fang stúlkunnar' þinnar?”
Dátinn sneri sér við, svalg
vandræðalega munnvatn sitt og
sagði:
“Eg veit ekki hvað þú heitir.”
Stúlkan gat þess seinna við
heyrnarvott, að sannarlega
mundi hún skrifa þessum pilti.
Reader’s Digest.
MANNLEGUR
VEIKLEIKI
Læknirinn ráðlagði presti
nokkrum í New York, sem hafði
rósasótt, að breyta til um lofts-
lag og flytja til Vesturlandsins.
Um haustið kom prestur heim
aftur heill heilsu. Fyrsta verk
hans var þá að jarða mann. Vildi
þá svo til að kistan var alþakin
yndislegum rósum. Prestur fanr.
hvernig rósasóttin gagntók hann
aftur og hann var orðinn mjög
lasinn, er heim kom.
Er hann hafði fengið fullan
bata aftur, gekk hann að heim-
sækja ekkju mannsins, er hann
hafði jarðað.
“Hvernig leizt yður á rósirn-
ar?” spurði ekkjan.
“Þær voru stórkostlegar”,
svaraði prestur, og skýrði þetta
ekki frekar.
“Getið þér trúað því, prestur”,
spurði ekkjan, “að nóttina fyrir
jarðarförina sátum við dóttir
mín uppi alla nóttina að búa til
rósirnar?”
HOME CARPET
CLEANERS
603 WALL ST, WINNIPEG
VIS hreinsum Bóifteppi yBar
avo þau líta út eins og fegar
þau voru ný. — Ná aftur tétt-
leika slnum og AferSarprýði.
— ViS gerum viS Austurianda-
gólfteppi á fullkomnasta hátt.
Vörur viBskiptamanna trygS-
ar aS fullu. — Abyggrilegrt
verk. GreiS viBskipU.
PHONE 33 955
GÖNUSKEIÐ
UPPLÝSINGATÍMABILSINS
Guizot hefur til dæmis sagt um
18. öldina, að hún hafi ausið út
á báða bóga glæsilegum, næstum
glæfralegum loforðum og málað
fyrir mennina framtíð fulla af
heiðri og hamingju, framtíð, sem
þeir ættu ekki að þurfa að þakka
neinum öðrum en sjálfum sér.
Guizot álítur líka að þess vegna
hafi öldin hætt að vera kristin
og þess vegna hafi hún fallið að
sjálfrar sín sök. “Feður vorir
voru dæmdir til að vakna úr
himneskum draumum í helvízk-
an veruleika. Guð forði okkur
frá því að gleyma nokkru sinni
þessari reynslu”. Sumum virðast
Frakkar gleymnir í þessum sök-
um. Þar hafi þeir ekki lært aí
Englendingum.”
(“íslenzk endurreisn”, Vilhj.
Þ. Gíslason, bls. 59, 60).
NÝTT TÆKIFÆRI
Fyrr á tímum fannst mér vera
fagur heimurinn.
Eg vildi að væri eg orðinn ungur
annað sinn.
Með sömu von og sömu trú og
sama þor,
en vísdóm til að varast öll hin
vondu spor.
P. S.
Ambassaéor Beauty Salen
Nj/tízku snyrtistofa
Allar tegundir af Permanents.
fsienzka töluB í staSnum.
257 KENNEDT STREET,
fyrir sunnan Portage
Simi »% 71C
S. H. Johnton, elgandl.
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
The Smmbi Mafcifaeturimg Ce.
Manufacturera ot
SWAN WHATMHR-MTJUr
Wlnnipeg.
Halldér MéthusaJems Swan
McanCi
2S1 James Street Pkéne 2Í 641
parfnist þér UfsdbyrgöarT
Hf svo er sfáiO þá
F. BJARNASON
UmboSsmaBur IMPERIAG LIFE
Phones »2 501, 35 264
MOST
SUITS-COATS
DRESSES
“CELLOTONE” CLEANED
72c
CASH AND CARRY
FOR DRIVER PHONE 37 261
PERTH'S
888 SARGENT AVE.
A
Ný ljóðabók
Nokkur eintök af “Sólheimum”, ljóðabók, sem Isafoldar-
prentsmiðja gaf út eftir Einar P. Jónsson rétt fyrir síðustu
jól er nú komin hingað vestur. — Bókin hefir hlotið góða
blaðadóma á íslandi; hún er prentuð á ágætan pappír og
kostar í bandi $5.00, póstfrítt.
Pantanir ásamt andvirði, sendist til
Grettis L. Johannsonar, 910 Palmerston Ave., Winnipeg.