Lögberg - 02.08.1945, Síða 1
\
Styrkjum þjóðrœknisböndin
á íslendingadaginn
Styrkjum þjóðræknisböndin
á Islendingadaginn
58 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. ÁGÚST 1945 NÚMER 31
Ingibjörg Frímannsson
Fædd 26. júní 1861
Dáin 11. júní 1945
m
“Þér fylgir vor blessun, þér
fylgja vor tár
á friðarins engilvegi.”
Ingibjörg Björnsdóttir Frí-
mannsson var fædd á Finns-
tungu í Húnavatnssýslu á ís-
landi, 26. júní 1861. Foreldrar
hennar voru heiðurshjónin Björn
Ingibjörg Frímannsson
Ólafsson og Anna Lilja Jóhanns-
dóttir. Hún fluttist til Ameríku
árið 1891 og settist að í Winni-
peg, þar giftist hún 3. maí 1$94,
Benedikt Frímannssyni. Áttu
þau heima í Winnipeg þar til
þau fluttu til Girnli árið 1898.
Þar átti Ingibjörg sál. heima þar
til árið 1929 að hún fluttist til
dóttur sinnar í Struthers í Ohio
ríki og dvaldi þar til dánardæg-
urs. — Hún misti mann sinn 1.
nóv. 1917. Hún lézt 11. júní 1945.
Hún lætur eftir sig einkadóttur
þeirra hjóna Ósk Lovisu, gifta
Ray W. Fenton, sem er mikils-
metinn læknir í Struthers, Ohio.
— Einnig lifir hana fósturdóttir
Arnljótína (Irene) gift Humphry
Smith, Charleston, Indiana. Þrír
bræður lifa hana, Sigvaldi og
Ólafur á íslandi og Arnljótur B.
Olson til heimilis á Gimli.
Þegar eg leitast við að verða
við hinni síðustu bón vinkonu
minnar, að skrifa nokkur orð um
hana látna, sækja margar endur-
minningar að huga mínum. Ekki
munu þær vertða færðar í let-
ur, heldúr geymast þær sem
fagur sveigur í umgjörðinni um
mynd þá er hugur minn mun
geyma af henni til daganna
enda.
Ingibjörg sál. var gædd góðum
gáfum, hún var sterktrúuð kona
er hafði óvenjulegan áhuga fyr-
ir öllu því er laut að kristin-
dómsstarfi. Hún var fastheldin
og ákveðin í skoðunum og var
ekki gjarnt að skifta um skoðun
hvorki um menn eða málefni.
Hún var skapstór en þó stilt og
gætin í allri framkomu, hafði
óbeit á allri hræsni og tildri.
Aldrei fór hún úr leið til þess
eins að geðjast öðrum og aldrei
gerði hún tilraun til að vera allra
vinur. En hún var hinn sann-
asti vinur vina sinna, en þung í
skapi ef á hluta hennar var
gert — rtiunu þessir eiginleikar
hafa fundist í fari margra af
hinum bestu konum Islands frá
alda öðli.
Gimli bær og umhverfi átti
því láni að fagna að fá nokkra
innflytjendur rétt fyrir aldamót-
in, sem settu sinn svip á félags-
lífið, sem höfðu djúp og varan-
leg áhrif, sem urðu til hinnar
mestu blessunar. í hópi þeirra
voru þau Benedikt og Ingibjörg
Frímannsson. Heimili þeirra var
ávalt hið prýðilegasta, þau tóku
þátt í félagsskap og beittu sér
'fyrir í ýmsum málum, sem til
góðs mátti verða. í Gimli söfn-
uði störfuðu þau af mikilli alúð
og áhuga. Þar hafði hann oft
forstöðu á ýmsum sviðum og
hún stóð ávalt við hlið hans með
árvekni og festu. Árin tólf, sem
hún bjó þar eftir að hún varð
ekkja var áhuginn hinn sami.
Öll þau ár starfaði hún í safnað-
ar eða djáknanefnd og kvenn-
félagi og vakti yfir velferð starfs-
ins á allan hátt.
Heimilið var henni helgur
staður, hún var umhyggjusöm
um ástvini sína. Hún reyndist
fósturdóttur sinni, sem góð móð-
ir, og vildi vaka yfir velferð
hennar, enda var það endur-
goldið af hinni mestu ástúð. Hug-
ur hennar vafði sig um dóttur-
ina, sem guð hafði gefið henni,
hjá henni leið henni undur vel
hin síðustu ár og þar naut hún
hinnar bestu aðhlynningar þeg-
ar kraftar tóku að dvína á hinu
síðasta æfiári hennar.
Líkamsleifar hennar voru
fluttar til Gimli þar sem hún
hafði svo dyggilega starfað, var
gott að hvílast. Þangað komu
báðar dætur hennar með henni
hina síðustu för. Hún var kvödd
á yndislegum hásumardegi — og
kirkjan hennar breiddi faðminn
á móti henni. Stór hópur fornra
vina og samverkafólks hafði
safnast þar saman til að kveðja
hina látnu merkiskonu með ein-
lægri virðingu og þakklæti. ■—
Fyrrverandi sóknarprestur henn
ar flutti kveðjuorð með við-
kvæmni og trega. — Sálmarnir
íslenzku, sem hún elskaði, voru
sungnir og þegar lagt var upp
í síðasta áfangann var hún kvödd
með óm, sem hún unni — var
það hljómur klukkunnar “sem
kveður guðs frið yfir kristið láð,
með kirkjunnar sigurhljómi.”
Klukkurnar, sem hún og vin-
ir hennar höfðu gefið í minn-
ingu um eiginmann hennar. —
Af öllu hjarta þráði hún að sig-
urhljómur kristinnar kirkju
mætti ná yfir allan heim.
Nú hvílir líkami hennar við
hlið manns hennar í reitnum
friðsæla þar sem hvílurúm eru
svo mörg — hvílurúm hins
þreytta samverkafólks, sem svo
vel bar byrðina á fyrri árum.
Þegar dætur hennar lutu þar
höfði í hinni síðustu kveðju,
kom aftur í huga minn erindi,
sem ort var þegar faðir þeirra
var þar kvaddur:
“Þær biðja Guð sem gætir þín
að gefa styrk og þrótt
og hneygja þöglar höfuð sín
og hvísla góða nótt.”
Ingibjörg J Ólafsson.
Eddurnar þýddar á
Tékknesku
af Islandsvininum Emil Walter
-M-*-
Fyrir rúmum tuttugu árum
dvöldu hér part úr sumri tékk-
nesku hjónin Emil og Annie
Walter. Hann hafði þá um skeið
verið sendiráðsritari Tékkóslóva
kíu í Kaupmannahöfn en jafn-
framt lagt stund á að stunda ís-
lenzku og hlýtt á fýrirlestra
Finns Jónssonar um norræn
fræði, á Hafnarháskóla, en áður
var hann orðinn vel fær í öðr-
um tungum Norðurlanda. Hafði
hann þýtt á tékknesku Lilju
Eysteins munks, Gunnlaugs sögu
ormstungu og fleiri íslendinga-
sögur og var erindi hans hingað
einkum það að kynnast sögu-
stöðvum Njálu, því að um þær
mundir var hann að þýða þá
sögu. — Flestar þýðingar hans
komu út löngu fyrir styrjöldina
og sumar þeirra í skrautútgáfu,
svo sem Lilja og Guðrúnarkviða.
Auk Gunnlaugs sögu voru þá
komnar út á tékknesku Laxdæla
saga, Hrafnkells saga freysgoða
og Eyrbyggja saga.
Að dr. Emil Walter hafi ekki
setið auðum höndum síðustu ár-
in, má marka af grein, sem Fálk-
anum hefir nýlega borist í hend-
ur. Birtist hún í Svenska Dag-
bladet nú í haust, og fer sá hluti
hennar, sem veit að þýðingar-
starfsemi Walters, hér á eftir.
“Fyrsta heildarþýðing á Edd-
unum á slavneskt mál er nýlega
lokið í Svíþjóð af dr. Emil Walter
sem snúið hefir Eddukvæðunum
á tékknesku. Kafli úr þýðingum
þessum birtist í bókmentatíma-
ritinu Listy ze Severu — Blöð
úr norðri —, sem II. heftið af
kom út nýlega.
Eddurnar eru ekki fyrsta þýð-
ing norðurlandabókmenhta, sem
dr. Walter gerir á tékknesku. Á
námsárum sínum fór hann að
leggja stund á sænskar bókmennt
ir og tók til við fyrstu þýðingu
sína. Það var “Herragarðssaga”
eftir Selmu Lagerlöf, og síðan
komu fleiri eftir sömu skáld-
konu: “Gösta Berlings saga”,
'‘Kejsaren av Portugallien”,
“Körkarlen”, “Nils Holgersson
underbara resa” o. fl. Einnig
hafði dr. Walter þýtt ýmislegt
úr norsku og dönsku á tékk-
nesku, áður en hann fór að leggja
stund á norrænar bókmenntir.
Og eftir að hann hafði þýtt Gunn
laugs sögu og fleiri Islendinga-
sögur lagði hann í Snorra Eddu
og síðan Sæmundar Eddu.
— Það eru allmörg ár síðan
eg byrjaði að þýða Eddukvæð-
in, segir dr. Walter í viðtali við
Svenska Dagbladet. En það er
ekki fyrr en nú á stríðsárunum
að mér hefir unnist tími til að
ljúka þessu verkfefni, og eg von-
ast til að Eddurnar komi út í
heilu lagi á tékknesku undir eins
og styrjöldinni slotar. Fyrri hlut-
inn kom út 1942; var hann gef-
inn út af bókmenntaklúbb ein-
um og var notaður til verðlauna
félags þessa, sem dreifði út eigi
minna en 5000 eintökum af bók-
inni. Eg get státað af því, að
þetta verður fyrsta heildarútgáf-
an af Eddu, sem þýdd hefir ver-
ið á nokkurt slafneskt mál. Áður
hafa kaflar úr Eddu komið út á
slafneskum tungum, til dæmis
pólsk þýðing til, en hún er stytt.
Áður en fyrri hlutinn kom út
hafði eg birt kafla úr Eddunum
í sérstakri bók, sem prýdd var
myndum eftir tékkneska lista-
menn. Þetta gekk betur en búast
hefði mátt við, áhuginn fyrir
ritinu varð gleðilega mikill.
— — Leiti maður að nafni
Walters í símaskránni, finnur
maður heimilisfangið Freyja-
vagen í Djursholm, en þaðan
hefir hann nýlega flutt á Skirn-
ervagen — það hefir viljað svo
til að kvæðið um ástir Freys
til Gerðar og erindrekstur Skírn-
is hefir gerst í umhverfi, sem
á skylt við heimilisfang þýð-
andans, hvað nofnið snertir. En
í símaskránni stendur líka “lega-
tionsrad”, og það væri ekki úr
vegi að minnast ,þess, að hinn
afkastamikli þýðandi og mál-
fræðingur er stjórnarerindreki
að lífsstarfi og telst því til þeirra
stéttarbræðra sinna, ófárra, sem
einnig starfa að bókmenntum.
Eftir að hann gekk í þjónustu
utanríkisráðuneytisins í Prag
1920, var hann sendur til Dan-
merkur og skömmu síðar til Sví-
þjóðar og starfaði þar sjö ár í
sendisveit Tékkóslóvakíu. Var
því næst fimm ár í utanríkisráðu-
neytinu í Prag og kom aftur til
Stokkhólms 1933. Meðan hann
dvaldi í Prag stofnaði hann
Tjeckoslovakisk-svenska sall-
skapet og varð fyrsti formaður
þess; um líkt leyti varð hann
fyrsti kennari í sænsku við há-
skólann í Prag. Eg byrjaði með
sextán nemendum, en þeir voru
orðnir fimmtíu þegar eftirmað-
ur minn dr. Erik Frisk hætti
fyrirlestrum”. En síðan 1930
hefir hr. Walter verið kennari í
tékknesku við háskólann í Upp-
sölum, og segir aðsóknina að
þeim fyrirlestrum góða, þegar
þess sé gætt að tékkneska sé
fárra mál en mjög erfitt. Það
léttir þó fyrir náminu að flestir
stúdentarnir hafa áður fengið
nokkra þekkingu á öðrum slafn-
eskum málum.”
I viðtalinu segir dr. Walter enn
fremur af Tékkóslóvökum í
Svíþjóð en þeir munu vera um
600 alls og margt þeirra lista-
menn og mentamenn, sem leit-
uðu þar hælis eftir að styrjöld-
in varð yfirvofandi. Hann segir
frá málgagni þeirra áðurnefndu,
Listy ze Severu, sem skáldkon-
an Maren Jakerlová gefur út, og
frá skáldum Tékka lífs og liðp-
um og talar um framtíð tékkn-
esku þjóðarinnar eftir stríðið.
íslendingar standa í þakklætis-
skuld við dr. Walter. Auk þess
að hann hefir þýtt ýms bestu
fornritin á móðurmál sitt hefir
hann ritað fjölda greina um ís-
land í tékkóslóvakisk tímarit,
meðan ættjörð hans var frjáls,
og haldið fyrirlestra um ísland.
Munu fáir eða engir menn er-
lendir hafa unnið jafn ötullega
að því að kynna ísland erlendis,
síðustu tuttugu árin og dr.
Walter hefir gert. Og að þeirri
landkynningu hefir hann eigi
aðeins starfað í Tékkóslóvakíu
heldur og í Sviþjóð. Til dæmis
var hann einn af stofnendum
félagsins Sverge-ísland og hefir
unnið mikið starf þar.
LAKESIDE
TRADING CO.
GIMLI, MAN.
Th. Thordarson Hannes Krisljánson
Vér biðjum íslendingum allra heilla á
þessum Þjóðminningardegi þeirra,
hvar sem þeir dvelja, og á öllum
öðrum dögum.
Fálkinn.
Megi Þjóðminningardagur íslendinga á Gimli 1945
verða farsæll bjartur og glaður
D0UG G0RD0N
Bílaviðgerða- og olíustöð
SELKIRK
MANITOBA
TELEPHONE 149
rp oc
U
>ocr-=r>ocm>oc=>o<Trr>o<m30c=^>oc
>o<-->o<------vrw--vrw-->»<—>»<--->r><----------------------->n<-->q<—
,c:v)
IVith the Compliments of
SOUDACK
FUR AUCTION
SALES
LIMITED
294 William Avenue
Winnipeg - Man.
Phone 22 894
toc
->o<-rr>o<-r-^>o«->o<->n<—->o<—T>or—>q<----->n<---->o<--->n<--->o< ->o<—r>o<—>r><——>r><—^->nr-—■>n<---->f><-->o<-—>o<---->n<--->n,
o
J