Lögberg - 18.10.1945, Blaðsíða 1

Lögberg - 18.10.1945, Blaðsíða 1
NÚMER 42 SAMVINNUSTJÓRNIN I MANITOBA FER AFRAM MEÐ FULL VÖLD * Sigur samvinnu- stjórnarinnar Þótt fullnaðarúrsliit fylkiskosn- inganna, sem fram fóru í Mani- toba síðastliðinn mánudag, séu enn eigi að fullu kunn, þá er það þó komið á daginn, að sam- vinnustjórnin, sem Mr. Garson veitir forustu, hefir unnið 39 þingsæti, en þingmannatalan er 55, að viðbættum þremur, er síðar verða kosnir úr megin- greinum herþjónustunnar. í Winnipeg, sem er eitt kjör- dæmi, er um fylkiskosningar ræðir, eru hlutfallsikosningar um hönd hafðar, og 10 þingmenn kosnir; fram að þessu er ein- ungis kunnugt um fjóra-, sem kosnir voru við fyrstu talningu, en það eru þeir S. J. Farmer, foringi C.C.F.-liða, Hon J. S. Mc- Diarmid, náttúrufríðindaráð- herra, Mr. Stubbs, utan flokka, og Lloyd Stinson, C.C.F. Tveir Islendingar utan Winni- pegborgar, báðir stuðningsmenn samvinnustjórnarinnar, þeir Dr. S. O. Thompson og Chris Hall- dórsson, voru kosnir á þing með miklu afli atkvæða; sá fyrnefndi í Gimli kjördæmi, en hinn síð- arnefndi í St. Geonge. 26 frambjóðendur töpuðu tryggingarfé' sínu, langflesítir úr fylkingu C.C.F.-liða. ÞINGMAÐUR FYRIR GIMLI Dr. S. O. Tliompson ENDURKOSINN S. J. McDiarmid, KOSINN í ST. GEORGE Chris Halldórsson KOSINN I WINNIPEG S. J. Farmer FORSÆTISRÁÐHERRANN Stuart S. Garson KOSINN I WINNIPEG Lloyd Stinson KOSINN í WINNIPEG C. Rhodes Smith ENDURKOSINN Mr. Stubbs Icelandic Canadian Evening School Isilenzku skólinn fyrir full- orðna, sem er undir umsjón Ice- landic Canadian Club í samvinnu við Þjóðræknisfélagið, byrjar nú starf sitt á ný, þriðjudagskvöld- ið 23. október, í neðri sal Fyrstu 'lútersku kirkju, kl. 8. Eins og almenningi er kunn- ugt þá hefir star-f skólans þegar vakið allmikinn áhuga fyrir ís- lenzku máli, sögu og bókmennt- um meðal íslendinga hér, og jafnvel meðal margra þeirra, sem ekki er af íslenzkum stofni. Voru nokkrir af þeim orðnir svo færir í málinu að á lokasamkomu skólans voru borin fram íslenzk kvæði og ræða flutt á íslenzku af þessum nemendum skólans. Flestir af þeim, sem annars nokkuð sinna menningarmálum yfirleitt, eru mjög önnum hlaðn- ir og -gátu því ekki allir þeir, sem höfðu huga á því, komið því við að sækja fyrirlestra þá, sem fluttir voru s. 1. ár. Lögðu þeir því mjög fast að nefnd skól- ans að láta prenta erindin. Einnig barst okkur samskonar beiðni frá -mönnum víðsvegar um þessa álfu. Það er því ánægjuefni að geta lýst yfir að nú er verið að prenta erindin og verður bókin að öllum líkindum komin á bóka markaðinn um miðjan nóvember. Hún verður mjög ódýr, aðeins $1.00 (að meðtöldu póstgja-ldi). Það er ekki hægt að neita því að íslendingar hér leggja mikið í sölurnar til þess að halda við íslenzku máli og menningarerfð- um. Síðastliðið ár fluttu átta menn og konur tólf fyrirlestra fyrir Icelandic Canadian Even- ing School, og gáfu þannig heild- aryfirlit yfir sögu og bókmennt- ir Islands; og kennararnir létu ekkert ósparað ti-1 þess að starf- ið næði tilætluðum notum. Þeir einir, sem g-efa sig í einlægni og af öllum vilja að þesskonar störf- um geta skilið hve afar mikið þau útheimta af tíma og kröft- um. í skólanefndinni starfa nú: Miss Vala Jonasson, W. S. Jonas- son, Capt. W. Kristjánsson, séra V. J. Eylands og Hólmfríður Danielson. Starfið hefir þegar verið skipulagt fyrir næst kom- andi vetur og enn á ný höfum við orðið svo lánsöm að njóta aðstoðar fólks, sem hefir bæði skilning og þekkingu á þessum áhugamálum okkar Vestur-Is- lendinga. Fyrirlestrar verða tólf að tölu, og það er víst engum vafa bundið að yngri íslendingar hér, munu hafa áhuga fyrir því að heyra þá, þar sem þeir munu fjalla m. a. um nútíðar Island; um -merkilegar og stórstígar framfarir á sviði iðnaðar og lista; um hið nýja lýðveldi, sem sæk- ir nú fram til meiri menningar á öllum sviðum. Starfsskráin -verður nánar aug- lýst í næstu blöðu-m. Fyrsta erindið sem nefnist “Freedom and Progress”, verð- ur flutt á ensku af Capt. W. Kristjánsson, og byrjar M. 8. íslenzku kennslan hefst kl. 9. Kennarar verða Miss Lilja Gutt- ormson, Capt. W. Kristjánsson og Hólmfríður Danielson. Inn- ritunargjald fyrir alt kenslutíma bilið verður $2.00, en fyrirlestr- ar -verða opnir fyrir almenning og aðgangur 25 cent fyrir þá, sem ekki eru innritaðir. Fyrsta kveldið, 23. okt., verður aðgang- ur ókeypis. Hentugast væri að innritast nú þegar. Allar upplýsingar fást hjá undirritaðri. Fyrir hönd nefndarinnar, Hólmfríður Danielson, 869 Garfield St., Wpg., sími 38 528. varanlegust. Þess vegna hefir það viljað veita nokkurt braut- argengi þeim mönnum eða kon- um af ættstofni vorum, sem lík- leg eru til nokkurra afreka og jafnhliða til þess að bera merki vort fram til nýrra sigra á braut listarinnar. ættstofni vorum til ánægjuauka og sæmdar. Eigi getur heldur fegurri eða sannari þjóðrækni he-ldur en það, að leggja þeim lið til framsóknar, sem gefa fyr- irheit um það að varpa nýjum ljóma á ættland vort og þjóð- stofn með li9t sinni eða annari menningarstarfsemi. Sómi hvers eins úr vorum hópi er sómi vor allra. Kominn heim Capt. Njáll O. Bardal Síðastliðið þriðjudagskvöld kom heim Capt. Njáll O. Bardal, sonur þeirra Mr. og Mrs. A. S. Bardal; var hann einn þeirra, sem teknir v-oru til fanga, er Japanir náðu haldi á Hong Kong. Lögberg býður Capt. Bardal innilega velkominn. FRÁ JAPAN. Nýja stjórnin í Japan hefir lýst yfir því, að hún sé staðráðin í því, að semja nýja stjórnar- skrá, er veiti konum að öllu leyti jafnrétti við karla. Metnaðar og menningarmál Eftir dr. Richard Beck, forseta Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi. Eins og þegar hefir tilkynnt verið með ávarpi í íslenzku viku- blöðunum, hefir Þjóðræknisfélag ið tekið sér fyrir hendur að gang- ast fyrir almennri fjársöfnun í námssjóð til styrktar hinni glæsi- legu og óvenjulega gáfuðu vest- ur-íslenzku listakonu, Agnesi Sig urðson píanóleikara, en hún stundar nú framhaldsnám í list sinni hjá -víðfrægum kennara austur í New York. Vænti eg þess, að ávarp þeirrar nefndar af hálfu félagsins, er um þetta mál fjallar, hafi vakið verðuga athygli fólks vors í landi hér og beri tilætlaðan árangur; eigi að síður vil eg, sem forseti féla-gs- ins, fylgja því á eftir með nokkur um áeggjunarorðum. En þegar um slíkt menningarmál er að ræða, sæmir oss það eitt að standa sem fastast saman og styðja málefnið sem drengileg- ast, því að oss er það að sjálf- sögðu sameiginlegt metnaðarmál, að vegur þjóðbrots vors verði sem mestur í landi hér. Frá upphafi vega Þjóðræknis- félagsins hefir það -verið megin- markmið starfsemi þess að stuðla að því, að hlutdeild Islendinga í -hérlendri menningu mætti verða sem feg-urst, víðtækust og Allir, sem nokkuð verulega þekkja til, eru vafalaust á einu máli um það, að Agnes Sigurð- son sé óhikað í þeirra hópi, sem mikils má vænta af í ríki listar- innar. Þótt hún sé ung að aldri, hefir hún þegar unnið sér það álit með hljóm-leikum sínum, hæði hvað snertir fágæta tækni bg listræna túlkun viðfangsefna sinna, að hún muni á vettvangi listar sinnar vinna stóra sigra og auka drjúgum á hróður Is- lendinga hérlendis og ættþjóðar- innar haimafýrir, fái hún ,að njóta til fulls mikilla hæfileika sinna og tækifæri til að þroska þá sem best með framhaldandi námi. Þeim ummælum til stað- festingar nægir að minna á hina ágætu dóma, sem hún hefir hlot- ið fyrir píanóleik sinn af hálfu hinna fremstu igagnrýnenda Winnipegborgar í þeirri grein listarinnar, að ógleymdri al- mennri hrifningu tilheyrenda hennar. Hljómleikar þeir, sem hún hefir haldið þar í borg og víðar, eru góðspá um það, hversu langt hún geti náð á listabraut- inni í framtíðinni með aukinni fullkomnun í námi og auknum þroska. Með þetta í minni ætti það að vera oss löndum hennar hérna megin hafsins safhhuga kapps- mál að styðja að því, með sem almennustum fjárframlögum í námssjóð hennar, að hún geti fullkomnað sig sem mest í list ^inni og ha-ldið með þeim hætti áfram á þeirri braut til nýrra sigurvinninga, sjálfri sér, oss og Kveðja til Þjóðræknis- félagsins Reykjavík, 27. júlí 1945. Formaður Þjóðræknisfé-lags íslendinga í Vesiturheimi, herra Richard Beck. Stjórn íþróttasambands ís- lands þakkar þér og Þjóðræknis- félagi Islendinga í Vesturheimi fyrir þær hlýju og alúðarfullu kveðjur, sem þú sendir ársþingi þess, sem haldið var á Akureyri 28.—30. júní s. 1. Bréf þitt var lesið upp við setn ingu þingsins og vakti það ó- skipta hrifnin-gu þingf-ulltrúa. Kom þar glögt fram, að í hverj- -um íslendin-g býr virðing og vinátta til landanna vestra og einlæg ósk um samstarf og all- an velfarnað. Undir þetta vill stjórn íþrótta sambands íslands taka um leið og hún biður þig að skila inni- legustu kveðjum til Islendinga vestan hafs. V irðingarf yllst, f. h. íþróttasambands Islands Benedikt G. Waage, forseti. Erlingur Pálsson. F. Helgason. (Eins og bréf þetta ber með sér, er það svar við kveðju, er forseti Þjóðræknisfélagsins sendi Iþróttasambandi Islands með þökkum fyrir ágætar móttökur af hálfu þess, en á íslandsferð sinni -síðastliðið sumar var hann heiðursgestur á íþróttamóti þess; einnig sendi Sambandið Þjóð- ræknisfélagin-u fagran íslenzkan borðfána að gjöf.) Tekjuskattur Iækkaður MJn. Ils-ley, fjármálaráðherra sambandsstjórnarinnar, lýsti ýf- ir því í framsöguræðu sinni við 1. umræðu fjárlaganna, að tekju- skattur einstaklinga lækkaði uiœ 16 af hundraði frá 1. október að telja; innflutningstollur af ýmis- konar búnaðaráhöldum, hefir og verið lækkaður, eða afnuminn með öllu. Lætur af embætti I nýkomnum fréttum af Is- landi, er þess getið, að séra Friðrik Hallgrímsson dómprófast ur í Reykjavík, hafi sótt um lausn frá prestsembætti frá 1. desember næstkomandi að.telja; hann er nú 73 ára að aldri; hann nýtur enn góðrar heilsu, og hef- ir, að því er áminst frétt herm- ir, ákveðið að gefa sig við rit- störfum meðan honum endast k'raftar til. Gestur að heiman Síðastliðið þriðjudagskvöld kom hingað til borgarinnar hinn kunni rithöfundur, Guðmundur Daníelsson frá Guttormshaga; frá komu hans hingað til borg- ar, er skýrt frá á öðrum stað hér í blaðinu af Dr. Richard Beck. Guðmund-ur mun dvelja hér í n-okkra daga, og ferðast eitthvað um nærliggjandi Islendingabygð- ir; hann er gestur þeirra Mr. og Mrs. G. J. Jónasson, 195 Ash St. Lögberg býður Guðmnud ri+ «*- höfund innilega velkomir1' borgarinnar. ------------------ N

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.