Lögberg - 22.11.1945, Blaðsíða 1

Lögberg - 22.11.1945, Blaðsíða 1
Or borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Avenue, Mrs. F. Thordarson, 996 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. • Þessi ungmenni voru fermd að Húsavick, 11. nóv. s. 1. Anna Stefania Guttormson. Helga Louise Isfeld Elin Lilja Grace Sigurdson Joycelyn Florence Christine Thorsteinson Hinrik Aðalsteinn Bessason Baldur Helgison Johnson Gordon Arthur Kernested Skúli Sigurgeirsson. • Dánarjregn. Guðrún Þorvarðardóttir, kona Jóns Guðjónssonar, andaðist að heimili sínu í Mikley, 2. nóv. Hún var fædd 10. nóv. 1878 að Hofs- stöðum í Borgarfjarðarsýslu; for eldrar hennar voru Þorvaldur Erlendson og Sesilia Einarsdótt- ir. Hún skilur eftir sig 6 börn. Hún var jarðsungin frá Lút- ersku kirkjunni í Mikley, 16. þ. m., af séra Skúla Sigurgeirssyni. • HOUSE FOR SALE Possession any time. Gimli fully furnished winter and summer home of 9 rooms and screened in balcony, extra large living room, electric lights, sink in kitchen to a septic tank. Lovely grounds, near the lake. All in fhe very best of condition. Special price $1.500.00. Call Sigmar of J. J. SWANSON & CO- LTD., phone 97 538 or evgs. 21 418. • lcelandic Canadian Evening School Um hundrað manns hlýddu á fyrirlestur Dr. S. J. Johannesson- ar “Take a Trip to Iceland”, þ. 13. nóv.; og 35 ungmenni hafa innritast í skólann. Séra R. Marteinsson flytur erindi um Jón Sigurðsson, 27. nóv., í neðri sal Lútersku kirkju, sem byrjar stundvíslega kl. 8 e. h. Islenzku kenslan hefst kl. 9. Aðgangur fyrir þá sem ekki eru innritaðir 25 cent. • Gefið í byggingarsjóð Bandalags Lúterskra Kvenna Frá Mr- og Mrs. J. G. Stephen- son, Selkirk, Man. $5.00, í minn- ingu um J. B. Jónson, frumherja í Kandahar, Sask., dáinn 12. júlí 1945. Meðtekið með þakklæti og samúð. Hólmfríður Danielson, 869 Garfield St., Wpg. HOUSE FOR SALE Double House 20 rooms Maryland St., near Sargent Ave., an extra good double house, 10 rooms each. Brick construction. Hardwood floors, exceptionally good basement. full plumbing in eaoh house, separate furnace in each. 50 ft. lot- All in good condition. Price $7.500.00. Call Sigmar of J. J. SWANSON & CO., LTD., Phone 97 538 or Evgs. 21 418. • Einhleypur íslendingur óskar eftir herbergi, með eða án hús- gagna, hjá íslenzku fólki í Vest- urbænum. Upplýsingar á skrif- stofu Lögbergs. • Um oddvitasýslanina í Bifröst keppa að þessu sinni tveir póli- tískir vígagarpar, þeir núver- andi oddviti Snæbjörn S. John- son og B. J. Lifman, fyrverandi oddviti áminsts sveitarhéraðs. • Mr. Jónas Anderson frá Cyp- ress River, var staddur í borg- inni í vikunni, sem leið. • Þeir Mr- G. J. Oleson og Mr. Thomas Oleson frá Glenboro, voru í borginni seinni part fyrri viku. The Icelandic Canadian Club will hold a Social Evening on Sat. Nov. 24th in the First Federated Church Parlors, Sargent and Banning. A great deal of interest has been shown and several requests have been made to have regular social evenings in the future. A hearty invitation is extended to come and meet old friends. Refreshments will be served. • Ársfundur þjóðræknisdeildar- innar “Brúin” í Selkirk, verður haldinn á heimili Mrs. Ástu Johnson, Dufferin Ave. þar í bænum, á fimtudagskvöldið þ. 22. þ. m. kl. 8. • Mr. Einar Magnússon, mjólk- urbúsmaður frá Selkirk, var staddur í borginni á mánudag- inn. Mr- Jónas Oliver frá Baldur, Man., var staddur í borginni í byrjun vikunnar. Haust Bazar. Kvenfélag íslenzka Lúterska safnaðarins í Vancouver efnir til Haust bazars, sem haldinn verður í neðri sal dönsku kirkj- unnar, 19th og Burns St., þann 28. nóvember. Þar verður til sölu hannyrðir, prjónles, heimatilbúið bakkelsi, veitingar og fleira. Einnig happa- drætti — brúða skrýdd íslenzk- um búningi, ullarteppi og jóla- kaka. Salan byrjar kl. 8 að kvöld- inu. Allir velkomnir. • Minningarsjóður presta. (Pioneer Pastor’s Memmorial Fund). Judge W. J. Lindal, Winnipeg, í minningu séra Friðriks J. Bergman $15.00- S. A. Sveinson, Baldu'r, í minningu Dr. Jóns Bjarnasonar$10.00. Áður auglýst $555.47. Alls $580.47. Með þökkum. S. O. Bjerring. Leiðrétting: í síðasta blaði var skýrt svo frá í sambandi við hér nefndan sjóð, “að rentur af fé því sem í hann rennur skulu notast til styrktar námsmönn- um” o.*s. frv. Þetta ber að lagfæra með að tilkynna að styrkur sá sem kann að veitast úr þessum sjóð verð- ur ekki bundinn eða takmark- aður við rentur eða vexti. Hugmyndin er sú að gjafir í þennan sjóð verði áframhald- andi og notist eins og kallað verður eftir og tilgreind notkun og skilyrði eiga sér stað. S. O. Bjerring. Embællismenn siúkunnar Skuld eeiiir í embæiii 5. þ. m.: Fyrv. Æ. T.: A. S. Bardal, Æðsti Templar: Jón Halldórsson, Vara-templ.: Mrs. G. JóhannssQn, Gjaldkeri: Mrs. H. ísfeld, Dróttseti: Margrét Sigurðsson, Vara-drótts.: Mrs. Goodman, Kapelán: Regina Sigurðsson, Organisti: Mrs. A. S. Bardal Vörður: Hringur ísfeld. ENDURKJÓSIÐ Victor B. Anderson ENDURKJÓSIÐ Séra Philip M. Péiursson ENDURKJÓSIÐ Jack St. John FYLKIÐ LIÐI UM Paul Bardal Lehmann lýst ekki á blikuna Lehmann, forstjóri UNRRA hjálparstofnunar hinna samein- uðu þjóða, hefir nú áhyggjur stórar út af ástandinu í vetur í mörgumiþeim löndum, sem orð- ið hafa hart úti í styrjöldinni, bæði í Evrópu og Asíu. Telur Gullbruðkaup Á sunnudaginn þann 11. þ. m-, áttu hin vinsælu og mætu hjón, Jósef og Össuría Jóhannsson, sem um langt skeið hafa búið í grend við Gardar þorp í North Dakota, gullbrúðkaupsafmæli; var mannmargt á hinu vingjarn- lega heimili þeirra þann dag, því gullbrúðhjónin njóta mikilla vin sælda í byggðarlagi sínu; marg- ar vinagjafir og heillakveðjur bárust gullbrúðhjónunum þá um daginn, eigi aðeins úr nágrenn- inu, heldur og frá Winnipeg, og annarsstaðar frá. Gullbrúðguminn er ættaður hann að bandamenn verði að leggja sig alla fram, til þess að komið verði í veg fyrir hungurs- neyð víða um heim. Hann segir, að þegar hafi verið sendar 2 milj. smálesta af matvælum til Evrópu, en auk þess, sem þang- að þurfi í viðbót, verði að hjálpa Manchuriumönnum, Kóreubú- um og Kínverjum, og ennfremur hafi Rússar beðið um hjálp. úr Húnaþingi, en gullbrúðurin af Önundarfirði; þau komu til Vesturheims árið 1911, og hefir heimili þeirra staðið í Garðar- byggð jafnan síðan; þau njóta enn góðrar heilsu og taka virk- an þátt í málefnum bygðar sinn- ar. Þau Mr. og Mrs. Magnús Magnússon frá St. Boniface, voru við afmælisfagnað þenna; er Mrs. Magnússon (Sigrún), dótt- ir gullbrúðhjónanna. Gullbrúðhjónin, ásamt sifjaliði þeirra, biðja Lögberg að flytja þeim öllum alúðarþakkir, er með heimsókn, gjöfum og heilla- skeytum, heiðruðu þau áminst- an dag. JÓSEPH OG ÖSSURlA JÓHANNSSON (Gullbrúðkaupsvísur) Þið sóttust aldrei eftir auð né völdum, en urðuð rík af því, sem fegurst var, að tendra ljós á löngum vetrarkvöldum við lampa hinnar sönnu mannúðar. Þó margir bygðu bæi sína stærri varð býlið ykkar þjóðbraut hjartans nærri. Þótt blikni lauf og blómin falli í dá, er bjart um ykkar fimtíu ára veldi, því hjörtun fyllir eilíf æskuþrá þó alt sé breytt og liðið fram að kveldi. Og enn skín ykkar hugarsól í heiði við hálfrar aldar spor í bezta leiði. . Einar P. Jónsson. Furðuleg tíðindi í lok fyrri viku, bárust hingað til lands frá Washington þau furðulegu tíðindi, að brezka stjórnin hefði ákveðið að tak- marka nú þegar, og á næstu ár- um, vörukaup frá Canada, og hefði jafnframt farið fram á, að ýmsir verksmiðjueygendur hér, flyttu verksmiðjur sínar til Bret- lands; þetta sýnist því furðulegra sem vitað er, að canadiskir verksmiðjueigendur hafa geisi- miklar birgðir fyrirliggjandi, sem Bretar höfðu fyrir löngu pantað, og höfðu jafnvel verið fluttar til canadiskra hafna, en eru nú, að sögn kyrsettar þar. Slakað á klónni Vegna víðtækra og áhrifamik- illa mótmæla frá fjölda af þing- mönnum úr Vesturlandinu, sá sambandsstjórn þann kost vænst an, að afturkalla ákvæðin um hækkun tollverndar varðandi pípugerðariðnaðinn, og haldast því hinar fyrri reglugerðir þessu viðvíkjandi óbreyttar fyrst um sinn; þá hafa og ýmsir áhrifa- menn sambandsþings beitt sér fyrir um það, að diesilvélar yrðu undanþegnar tollum, en þær eru, eins og vitað er, harla mikilvægar fyrir fiskframleiðslu landsins, eða þá hlið hennar, sem að flutningum snýr. Kosningar í Búlgaríu Síðastliðinn sunnudag fóru fram þingkosningar í Búlgaríu, er mjög hölluðust á sveif rót- tækra vinstri manna, eða komm- únista; kosningar þessar voru háðar undir umsjón sameinuðu þjóðanna; nú segja brezk og amerísk stjófnarvöld að kosn- ingarnar hafi verið ódemokratisk ar, og þess vegna sjái þau sér ekki fært, að viðurkenna stjórn, sem með slíkum aðstæðum skap- ist. B3ÍÍSBÍÍ Þakkarávarp: Öllum þeim, er veittu okkur aðstoð í tilefni af hinni sviplegu burtför sonar okkar og bróður, Normans Daníelssonar; öllum þeim er glöddu okkur með blóma gjöfum við útförina, og heiðruðu minningu hans með nærvist sinni, vottum við okkar hjartan- legustu þakkir. Guðjón Daníelsson, Guðlaug Daníelsson og systkini. • Gjafalisti í námssjóð Miss Agnesar Sigurdsson: Jón Sigurðssonar félagið, I.O.D.E., $25.00; Mr. og Mrs. G. Johannesson, $5.00; Mr. og Mrs. G. Lambertsen, Glenboro, $10.00; Þjóðræknisdeildin að Gimli, $50.00; íslenzka kvenfélagið “Sól- skin,” Foam Lake, $25.00; Mr. Bardi G. Skulason, Portland, Ore., $27.50; Mr. og Mrs. D. Bjornsson, $10.00. Samtals $152.50 Með þakklæti, f. h. nefndarinnar, G. L. Johannson, féh. HEIMSÆKIR OTTAWA. Rt. Hon. Clement Attlee, for- sætisráðherra Breta, heimsótti Ottawa í vikunni, sem leið, og var gestur umboðsmanns brezku stjórnarinnar í Canada, Hon. Malcombs McDonald. Frá sendiráði Íslands í Washington, 6. nóv. Herra ritstjóri: Eg vil hér með skýra yður frá því, að breytingar hafa nýlega orðið á starfsliði íslenzka sendi- ráðsins í Washington. Þórhallur Ásgeirsson hefir ný- lega látið af starfi sínu sem sendiráðsritari og tekið við full- trúastöðu í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík. Þórhallur Ásgeirsson starfaði við sendiráðið frá því í júlí 1942, fyrst sem Attache, en síðar sem sendiráðsritari. Þórhallur er far- inn til íslands ásamt konu sinni og barni. Nýlega hefir verið skipaður Attache við sendiráðið, Ólafur Björnsson. Ólafur er sonur Sveins Björnssonar forseta og frú Georgiu Björnsson. Hann lauk lagaprófi frá háskóla íslands 1943 og var aðstoðarmaður í utan ríkisráðuneytinu frá ársbyrjun 1944 til júlíloka s. 1., er hann var skipaður Attache við sendiráð íslands í London. Því starfi hélt hann þar til hann var skipaður Attache við sendiráðið í Wash- ington- Virðingarfyllst, Thor Thors. ssæaii Fær Nobelsverðlaun Samkvæmt fregnum frá Oslo, síðastliðinn laugardag, hefir Cordell Hull, fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, verið sæmdur friðarverðlaunum Nobles fyrir yfirstandandi ár. Cordell Hull er einn hinn gagn- merkasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna sinnar samtíðar, og var, ef svo mætti að orði kveða, hægri hönd Franklin Roasevelts, megin hlutann af hans löngu forsetatíð. Flytur rœðu í Washington Mr. Clement Attlee, forsætis- ráðherra Breta, flutti ræðu í sameinuðu þingi Bandaríkjanna síðastliðinn þriðjudag, er fjallaði einkum um það, hver nauðsyn bæri til, að eining sameinuðu þjóðanna héldist framvegis engu síður en viðgekkst meðan stríð- ið stóð yfir; lagði hann jafn- framt áherzlu á það, að varanleg- an grundvöll að framtíðarfriði yrði að leggja sem allra fyrst, því óvíst væri hver eftirköst dráttur í þeim efnum, kynni að hafa í för með sér. Alvarlegar viðsjár Ástandið í Palestínu hefir verið næsta viðsjárvert upp á síðkastið; það er ekki einasta að verkföll hafi geisað um landið þvert og endilangt, heldur hafa blóðugar orustur staðið yfir hér og þar milli Gyðinga annarsveg- ar og Araba hinsvegar; mann- fall hefir orðið nokkuð á hlið beggja aðilja, en þó nokkru meira af hálfu hinna síðar- nefndu; brezk stjórnarvöld hvað ofan í annað hafa skorist í leik- inn og reynt að miðla málum, en slíkar tilraunir hafa fram að þessu borið lítinn sem engan árangur. Gyðingar þykjast eiga fult tilkall til landsins, og hlið- stæðri kröfu halda Arabar fram. Og fari allar umleitanir til mála- miðlunar út um þúfur, benda flest eyktamörk til þess, að til borgarastríðs dragi þá og þegar í landinu.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.