Lögberg - 22.11.1945, Blaðsíða 4

Lögberg - 22.11.1945, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. NÓVEMBER, 1945 *-----------lögberg —■—? Geflð öt hvern fímtudag' af j THE COLUMBIA PRESS, LIMITED | 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanflskrift ritstjörans: i EDITOR UÍGBERG, • 895 Sargent Ave., Winnipeg, Man, Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram j The "Ixigberg" is printed and published by í í The Columbia Press, Dimited, 695 Sargent Avenue j Winnipeg, Manitoba ’ PHONE 21 804 ‘ (tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimia Þögn, sem þarf að rjúfa Niiiiiii!iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:i'iiiiiiitiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiii miiiuiiniitninnmirniw í einu hinna stórbrotnu ljóða sinna, “Skúta- hraun”, farast Einari Benediktssyni þannig orð: “Hundrað raddir þögnin klæðir.” — Þögn- in klæðir fleiri raddir, en það. Merkasta og mikilvægasta málið, sem komið hefir á dagskrá með íslendingum vestan hafs, og það málið, sem líklegast er til frambúðar- áhrifa, varðandi vernd tungu vorrar og annara dýrmætra menningarerfða í þessu landi, er það, sem lýtur að stofnun kennslustóls í íslenzkri tungu og íslenzkri bókvísi við Manitoba háskól- ann; með því máli mælir alt, en ekkert á móti. Eins og þegar er vitað, lagði einn maður, Ásmundur P. Jóhannsson, græsilegan grund- völl að framgangi þessa mikilvæga menningar- máls með hinni höfðinglegu gjöf sinni, sem almenningi er þegar kunnugt um; að fleiriséu einnig málinu hlyntir og tekið ákvarðanir því til stuðnings, er einnig á almanna vitorði; en frá þeim tíma, er Dr. P. H. T. Thorlakson birti í báðum íslenzku blöðunum sína íturhugsuðu og markvissu ritgerð um nauðsyn áminsts kennslustóls, sem athygli hvarvetna vakti, hef- ir verið furðu hljótt um málið, og fólk er að eðlilegum ástæðum að spyrja, hverju slík fá- dæma þagmælska sæti; hví þeir menn, sem lát- ið hafa sér hugarhaldnast um framgang máls- ins, hafi ekki þegar hlutast til um skipulagn- ingu þess, þannig, að almenningur viti hvert hann á að snúa sér varðandi fjárstuðning og virkar framkvæmdir. Mörg nytjamál, sem dreg- in hafa verið á langinn, hafa með öllu fjara^ út, eða beðið óvirðulegan þauðdaga; ekkert slíkt má henda, er um það ræðir, að varðveita tungu vora og sérkostina í íslenzkri þjóðar- sál; vér verðum að skera upp herör íslenzkunni til fulltingis, kenna hana með góðu hvar, sem því verður viðkomið, þrýsta fólki til að nema hana vegna þess menningarlega gildis, sem hún býr yfir, herða á aðsókn að laugardagsskólun- um hvar, sem þeir eru í sveit settir, en um- fram alt, leggjast á eitt um framkvæmdir varð- andi kenslustólinn í íslenzkum fræðum við þá menntastofnunina í þessu landi, sem Islending- ar eiga mest upp að unna, og mótað hefir mennta feril margra þeirra á svo glæsilegan hátt. Varanlegt landnám íslendinga vestan hafs, skaut rótum í Manitoba; þar hafa þeir verið fjölmennastir, og þar verða afkomendur þeirra óefað fjölmennastir um ófyrirsjáanlega tíð, og þar skal reistur verða sá minnisvarðinn um landnámið vestræna, sem mest hefir og traust- ast menningargildið, kenslustóllinn í íslenzkri tungu og bókvísi við æðstu menntastofnun þessa fylkis, Manitoba háskólann. ■MMMimiim«HI«MllffllllWmiIIUIIIIlllBIMllllllllUllltllllllllllllllillllllllllllHlllllllillllllllllllllllMIIIHIIIIIIIIIIIIII!IIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIMlilH Vinsamleg tilmæli í undanfarna þrjá mánuði hefir Lögberg, svo að segja reglubundið í hverri viku, flutt mynd- ir og umsagnir um stríðshetjur vorar af ís- lenzkum stofni, er líf sitt létu í nýlega afstað- inni heimsstyrjöld vegna frelsismála mannkyns- ins; um það hvernig tilraun þessi hafi tekist, verður vitaskuld ekki dómur lagður í dálkum þessa blaðs, þar sem ritstjórinn, með örfáum undantekningum, hefir persónulega beitt sér fyrir um söfnun upplýsinga, og fært í letur minningabrotin sjálfur; það liggur í augum uppi, hve hér sé um viðkvæmt vandamál að ræða, með allar þær ógrónu undir, sem svo mörgum af ættstofni vorum, og þá vitaskuld fólki af öðrum þjóðflokkum líka, enn blæða; þó væntum vér þess, að áminnst minningabrot komi að einhverju gagni, og nái þeim tilgangi, sem þeim var ætlað að ná. Oss er kunnugt um -það, að enn vantar marga í safn þetta, sem þarf að minnast, bæði úr Canada, og eins úr Bandaríkjunum, og með þetta fyrir augum, viljum vér vinsamlegast ítreka það við ástmenni þeirra fallinna her- manna, af íslenzkum uppruna, sem enn hefir eigi verið minnst, að þau sendi oss myndir þeirra og æviatriði við allra lyrstu hentug- leika, svo umsagnir um þá geti orðið samferða hinum minningabrotunum; full áherzla skal á það lögð, að tilmæli í þessa áttt, gilda jafnt um falla hermenn af íslenzkri ætt, beggja megin landamæranna; holl fjölbreytni gæti verið í því, að þeir, sem bezt þekkja til og kunnugast- ir eru aðstæðum, semdu minningabrotin, og sendu þau blaðinu fullbúin til prentunar. 'lilllllllllllll!l!lllllll!lllllllllllllllllll!ll!!llll!lllll!ll!llllllllllllll!Ulllllliliuuilllllillllllluiiii!lilll!ll!lllllllllllllllllll!ll!!llllllllllllllliUll:illlllll!!llil!ililil Árétting l!llllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllill!IIIIIIIIIIIIIIUIIllilllfllllllllllllllllllllllllllll!!l!lll!llllllllllliUIIÍ!llllillllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllliillill I vikunni, sem leið, voru tekin til alvarlegr- ar íhugunar hér í blaðinu flest þau megin- mál, sem mest varða hagsmuni og menningu Winnipegbúa, með hliðsjón af bæjarstjórnar- kosningunum, sem fram fara á föstudaginn kem- ur; og með því, að enn stendur í góðu gildi hið forná máltæki, að sjaldan sé góð vísa of oft kveðin, vill Lögberg brýna fyrir gjaldendum bæjarfélagsins á ný, hver nauðsyn beri til, frá mannúðar og menningarlegu sjónarmiði skoðað, að fjáraukalögin tvenn, sem lögð verða undir úrskurð gjaldenda nái fram að ganga; er hér átt við hjúkrunarheimilið fyrir gamalt og ör- vasa fólk, og lánsheimlidina til þess að reisa nýja barnaskóla, ásamt endurbótum eldri skóla- húsa í bænum, þar sem þörfin er mest að- kallandi; þetta eru mál, sem þola enga bið, og sem borgarbúar, manndóms síns og mentnaðar vegna, standa sig ekki við að hrundið verði fyrir ætternisstapa; en forustumenn bæjarins hefðu auðveldlega mátt vera nokkru stórtækari, en hér varð raun á. Því lögðu þeir ekki fyrir gjaldendur bæjarfélagsins heimild fyrir, ségj- um tveggja miljón dollara veðbréfasölu, til stuðnings við hina fyrirhuguðu lækninga mið- stöð (Medical Centre), sem bæjarfélagið svo ábærilega þarfnast, og alt fylkið jafnframt mundi njóta góðs af? Hvað var þessu til fyrir- stöðu, áræðisskortur, skammsýni, eða hvað? Atkvaéðaseðilinn um fjáraukalögin skal merkja með krossi, en seðlarnir, sem notaðir eru við kosningu bæjarfulltrúa og skólaráðs- manna, skulu merktir með tölustöfum í þeirri röð, er kjósendur æskja. Vafalaust greiða flestir íslenzkir kjósendur, sem búsettir eru í 2. kjördeild forgangsatkvæði Paul Bardal til handa; hann á brýnt erindi í bæjarstjórn; en þeir, sem greiða honum Nr. 1 ættu að greiða Jack St. John Nr. 2, og fylgi við þá ætti að verða gagnkvæmt. Mr. St. John, er hygginn maður, sem veit hvað hann vill. Látið heldur ekki undir höfuð leggjast, að tryggja þeim Victor B. Anderson og séra Philip M. Pétursson endurkosningu; þeir hafa báðir reynst vel, hvor í sínum verkahring. Það er óvirðing við lýðræðisfyrirkomulagið, að sitja heima, og neyta ekki kosningaréttar síns. Greiðum atkvæði við föstudagskosningarn- ar hér í borginni, allir, allir! ..................................................... .!illl!IIJ|||llll!IIRIiHI«lllllllll«UII|||llIlilllllllttlllllllUllllk Saga íslendinga í Veálurheimi Nú er þriðja bindi af Sögu íslendinga í Vest- urheimi, eftir Þ. Þ- Þorsteinsson komið út, og fjallar einungis um sögu Nýja íslands. Er þetta stór bók, í sama broti og fyrri heftin, en á fimta hundrað blaðsíður (407x12). Fylgir upp- dráttur á einni blaðsíðu framan við söguna sjálfa, sem sýnir legu eldri bygðanna nákvæm- lega, vegalengdir, Township og Range. Mun þetta vera hinn eini uppdráttur, sem þannig hefir verið verður af hinu “forna” landnámi íslendinga í Nýja íslandi. Einnig á sömu mynd, er önnur lítil í horni, til að skýra leiðina úr nýlendunni til Selkirk og Winnipeg, ásamt Rauðá og Rauðárósum. I þessu bindi birtist í íslenzkri þýðing gerðri af höfundinum ræða sem Dufferin lávarður hélt þegar hann heimsótti þessa íslenzku ný- lendu. Einnig eru hér sett niður orðrétt bygða- lögin, sem svo mikið lof hafa hlotið hvenær, sem þeirra hefir verið minst. Munu þó -fáir af fjöldanum hafa haft tækifæri að lesa þau og yfirvega. Um hálfs þriðja hundraðs nýlendubænda frá 1875—1890 er minst sérstaklega í stuttum þátt- um. Hér er sögu nýlendunnar hvað áhrærir kirkjumálin, mentamálin, stjórnmálin, land- búnaðinn, fiskiveiðar, félagslíf og umbætur í nýlendunnni yfirleitt, lýst eins nákvæmlega og auðið er, og algerlega hlutdrægnislaust. Vestur- íslendingar munu kannast við margt fleira sem minst er á í þessu bindi, hvort heldur menn eða málefni, en þess sem skýrt verður frá í öðrum bindum þessa samstæða verks; því til Nýja íslands komu svo margir íslenzkir inn- flytjendur og voru þar lengur eða skemur. Og margir verða þeir einnig heima á íslandi, sem hér sjá nöfn hinna og annara, sem þeir þekkja eitthvað til. Þ. Þ. Þorsteinsson gerir allt vel sem hann tekur að sér að gera. Hann hefir gert sitt hið ítrasta til að afla sér ábyggilegra upp- lýsinga þegar um efasemd hefir verið að ræða; samt kunna hér að vera villur. Fyrst ekki er hægt í svona út- gáfu að leiðrétta villur í sömu bókinni og þær birtast, heldur í næsta bindi, þá þykir bezt á því fara að þær komi allar á einum stað í seinasta bindinu; eru þvi missagnir og prentvill- ur í öðru bindi ekki leiðréttar í þessari bók, en fólk sem verður vart við meinlegar skekkjur, er vinsamlega beðið að tilkynna þær einhverjum úr framkvæmd- arstjórn útgáfunnar. I University of Toronto Quart- erly, júlí 1944, minnist próf- Watson Kirkconnell á Sögu Is- lendinga í Vesturheimi. Segir hann meðal annars: “Þetta þýð- ingarmikla verk, sem herra Þor- steinsson hefir tekið sér fyrir hendur, er í miklu stærri stíl en nokkuð (samskonar), sem önnur þjóðfélög, nýlega sezt að hér í Canada hafa ráðist í; stíllinn og allur frágangur sómir höfundi, sem er samtímis velþekktur sem skáld og sagnfræðingur.” Þessi bók er nú til sölu og er verðið fimm dollarar. Þetta bindi er um 70 blaðsíðum stærra en annað bindi og verður því nefnd- in að selja það hærra verði. Þetta er bezta jólagjöfin sem þér get- ið valið sjálfum yðar eða vin- um og kunningjum. Þeir, sem önnuðust útsölu á öðru bindi, eru nú vinsamlega beðnir að láta nefndina vita sem fyrst, hvað mörg eintök þriðja bindis þeir vilji láta senda sér til útsölu. Þess má geta hér að fyrsta og annað bindi eru al- gerlega uppseld. Nefndin álítur að þetta bindi seljist ekki síður en hin — og helzt betur, og þess vegna voru prentuð 2500 ein- tök af þessu þriðja bindi. Skylt er nefndinni, og ljúft, að þakka þá miklu hjálp sem hún hefir hlotið frá Menntamálaráði íslands við útsölu sögunnar heima á íslandi. Menntamála- ráðið hefir nú þegar beðið að senda heim 1300 eintök þriðja bindis. Útsölumenn sendi pantanir sínar til J. J. Swanson, 308 Avenue Bldg-, Portage Ave., Winnipeg. Aðrir sendi pantanir, eða snúi sér til þessara útsölumanna eða félaga. Sendið fimm dollara og bókin verður send póstfrítt. Columbia Press, Sargent og Toronto, Winnipeg; Viking Press, 853 Sargent Ave., Winnipeg; Björnsons Book Store, 702 Sarg- ent Ave, Winnipeg; J. J. Swan- son, 308 Avenue Bldg, Winnipeg. J. G. Johannsson. HITT OG ÞETTA Lúðvík 14. þóttist flest geta öðr- um betur. Einhverju sinni orti hann kvæði og bar það undir helzta skáld sitt. Skáldið las kvæðið og fékk konungi það með þessum orðum: “Yðar há- tign! Þér hafið auðsjáanlega ætlað að sýna okkur skáldun- um hvernig ekki á að yrkja, og svo sem allt er þér gerið, hefur yður tekizt það snilldarlega vel.” • Málafærslumaður ræddi eitt sinn við klerk nokkurn. Hugð- ist hann sýna fyndni sína og mælti: “Ef kirkjan færi í mál við djöf- ulinn, hvor haldið þér að ynni?” “Sjálfsagt djöfullinn”, svaraði klerkur, “hann hefði alla lög- vitringana á sínu bandi.” • — Er maðurinn reglusamur? — Reglusamur —, jú, reyndar má komast svo að orði. Hann drekkur sig fullan á hverjum degi og víkur sjaldan eða aldrei frá þeirri reglu. Gárungi nokkur spurði ógifta stúlku, hvers vegna allar jóm- frúr yrðu guðhræddar, þegar þær nálguðust fertugsaldurinn. Stúlkan svaraði: “Það er vegna þess, hvað þær eru þakklátar guði fyrir það, að hann hafi eigi látið þær falla í hendur djöflinum í manns- mynd.” • — Hefur þú heyrt hvers vegna hann Jón bóndi var settur í tugthúsið? — Nei, hvað gerði hann af sér? — Ekki var það nú mikið. Rann fann beisli á förnum vegi, tók það upp og fór með heim til sín. — Og var dæmdur í fangelsi fyrir þetta? — Já, hvorki meira né minna en þrjá mánuði. En satt að segja var hestur bundinn við annan endann á beislinu. Kaupmaðurinn, við sveitapilt- inn, sem er á heimleið úr kaup- staðnum: “Og skilaðu nú til hans Jóns á Gili að næst þegar hann slátrar nauti, þá megi hann ekki gleyma mér.” Móðirin (við son sinn, sem kemur heiin fullur klukkan sex að morgni): “Þú mátt skamm- ast þín, svínið þitt, fyrir honum föður þínum. Það er fullkomlega hálf klukkustund síðan hann kom heim og þá gat hann geng- ið hjálparlaust upp stigann! • Einar: “Eg hélt að þú værir trúaður á málsháttinn gamla: “Morgunstund gefur gull í mund.” Gunna: “Þáð er eg líka, enda myiffii eg óefað haga mér sam- kvæmt því, ef morguninn væri ekki alltaf svona fjandi snemma dags- Eftirfarandi auglýsing birtist nýlega í dagblaði einu í Reykja- vík (götunafni og húsnúmeri breytt): Áðnamaðkar til sölu. Til við- tals á Skólavörðustíg 99 kl. 4—6 síðdegis alla virka daga. • “Hvar er allt fólkið?” sagði bóndi. — Hjákonan var ekki á pallinum. Veitingamaðurinn: Þykir yður Rínarvínið mitt ekki gott á bragðið? Gesturinn: Ójú, það er fremur ljúfengt. En þó væri það enn betra ef sjálfrar Rínar gætti ögn minna. • Það var í Ameriku! Kaupsýslumaðurinn: Eg er i vandræðum með að ná í vinnu- konu. Vinurinn: Hvað kemur til? Þú ættir að vera fær um að greiða henni sæmilegt kaup. Kaupsýslumaðurinn: Það er ekki vegna kaupsins. Gallinn er sá, að bílskúrinn minn er alltof lítill. Það er aðeins rúm fyrir bílinn minn og bíl sonar míns, en bíllinn vinnukonunnar kemst þar ekki fyrir. Kaupendur á íslandi Þeir, sem eru eða vilja ger- ast kaupendur Lögbergs á fslandi snúi sér til hr. Björns Guðmundssonar, Reynimel 52, Reykjavík. Hann er gjdld- keri í Grœnmetisverzlun ríkisins. Greiðið Atkvæði með CCF t BÆJARKOSNINGUNUM 23. NÓVEMBER I bæjarráðið: VICT0R B. ANDERS0N H0WARD V. McKELVEY Greiðið 1 og 2 í þeirri röð, sem yður þóknast. I skólaráðið: PHILIP M. PETURSS0N HARRY A. CHAPPELL Greiðið 1 og 2 í þeirri röð, sem yður þóknast. Fyrir jramtaksemi og fram- sœkni greiðið atkvœði með CCF GUÐMUNDUR INGI: BJARMALAND Þeir létu í haf úr höfnum draums og kyrðar, af hvítum skipum felldu leguband. Þeir völdu skáld og hetjur sér til hirðar að herja á Bjarmaland. I fjarskans dulri, fagurskyggðri móðu þeim frjálsir vindar bentu á Austurheim. I fjöru hópar hversdagsbúnir stóðu og horfðu á eftir þeim. Þá gerði storm. Þeir stýrðu traustum greipum og stefndu í rok og drif í Austurveg. Um Hvítahaf, er særinn sauð á keipum, var sigling frækileg. Þeir vissu skil á veðrum, átt og degi, því varð ei fár, þótt stormur reyndi band. Þeir skyldu finna í fjarskans Austurvegi sitt fyrirheitna land. Þá bar að strönd. Þeir stigu fótum djörfum til strandhöggs þar, og föngin urðu góð. Með Gusisnautum, hæfnum ættarörvum, þeir unnu land og þjóð. Þeir sigldu heim á hvítum sigurskipum með hlut og gleði viturs afreksmanns. sem hleður skip sitt auði og úrvalsgripum síns ævintýralands. Er heimaþjóð leit segl af sigrum stafa og silfurbjarmann leika um stafn og skut, þá vildu miklu fleiri farið hafa og fengið slíkan hlut. Þá ortu skáldin óð með háttum dýrum um undralandsins gull og töframögn. Og frægðin hljómar enn í ævintýrum ■ og ódauðlegri sögn. Sjómannablaðið.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.