Lögberg - 29.11.1945, Page 1
PHONE 21374
^ »*• A
4 líSSÍ
A Complete
Cleanin^
Institution
ððbefð
PHONE 21374
yu f
I 0Underer ’ v A Complete
Cleaning’
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. NÓVEMBER, 1945
NÚMER 48
Endurkosnir í bæjarstjórn
Viclor B. Anderson
Kosinn í skólaráð
Séra Philip M. Pétursson
Bæjarstjórnarkosningar
Kosningar þær, er fram fóru
til bæjarstjórnar og skólaráðs,
í Winnipeg síðastliðinn föstudag,
breyta litlu til um svip og sam-
setningu þessara umboðsstjórna
borgarbúa eftir áramótin að öðru
leyti en því, að C.C.F.-liðar eiga
einum bæjarfulltrúa færra á að
skipa, því Mr. Mulligan beið
lægra hlut í 1. kjördeild; þar voru
kosin í bæjarráð, Miss Hilda
Hessen, Mr. Graham og Mr.
Simonite. I 2. kjörd. voru sömu
fulltrúarnir endurkosnir í bæj-
arráð; eða þeir Jack St. John,
fékk langhæsta atkvæðatölu,
Victor B. Anderson og James
Black. En í skólaráð fyrir þessa
deild voru og endurkosnir þeir
Mr. Adam Beck, séra Philip Pét-
ursson og Mr. Harry Chappel.
Þriðja kjördeild endurkaus
bæjarfulltrúa sína, þá Forkin,
Blumberg og Stepnuk.
Fjáraukalögin til skólaþarfa og
byggingar heimilis fyrir gamalt
og örvasa fólk, náðu bæði lög-
boðnu samþykki kjósenda.
BELGISKIR SVIKARAR
DÆMDIR
Nýlega voru nokkrir belgiskir
svikarar dœmdir til dauða eða
œfilangrar fangelsisvistar fyrir
samvinnu við Þjóðverja.
Tveir Belgir, de Lange og Zin-
buit, fengu dauðadóma fyrir að
ganga í stormsveitarlið nazista.
Sá þriðji var dæmdur í æfilangt
fangelsi.
Ennfremur var kveðinn upp
dauðadómur yfir nítján öðrum
belgiskum svikurum, sem voru
fjarverandi vegna þess, að ekki
hafði náðst til þeirra ennþá, en
voru samt sannir að sök.
Jack St. John
Matarskortur
Svo mikill matarskortur er á
ítalíu um þessar mundir, að hall-
æri gengur næst. Að því er John
Nixon fréttaritari í Róm skýrir
frá, fá ítalir minna en helming
þeirra matarbirgða, er þeir raun-
verulega þarfnast, og svipað er
um kol og annað eldsneyti að
segja. Mr. Nixon skorar á sam-
einuðu þjóðirnar að skerast í
leikinn og bæta að einhverju úr
brýnustu þörfinni, því hér sé um
mannúðarmál að ræða, sem þoli
enga bið.
Aldarhnigið skáld
Síðastliðinn þriðjudag átti
Magnús Markússon skáld 87 ára
afmæii; þegar tekið er tillit til
hins háa aldurs hans, verður ekki
annað sagt, en hann sé vel ern
og njóti ágætrar heilsu; hann
heldur enn stálminni sínu og
yrkir ljóð á hverjum degi. Fá-
einir vinir Magnúsar skálds
heimsóttu hann á afmælisdaginn
og óskuðu honum til heilla.
HANN LÉT EKKI
BLEKKJA SIG
Fréttaritari á Boreno segir, að
Jim Hodge, hermaður, hafi orð-
ið hissa og nuddað augun, er
hann■ sá um daginn tré reisa sig
upp og ganga hægt áfram.
Jim Hodge var skógarhöggs-
maður, áður en hann gekk í
ástralska herinn og gerðist vél-
byssuskytta. Hann þóttist vita
alt, sem vitað yrði um tré, háttu
þeirra og siði, en hingað til hafði
hann aldrei séð þau taka til fót-
anna. Tréð stefndi á rennibraut
flugvallar, sem var í nánd, en
þangað hafa tré ekkert erindi.
Hann skaut þess vegna á tréð
einni dembu af kúlum úr byssu
sinni.
Tréð féll til jarðar, og með því
japönsk leyniskytta, sem skýldi
sér undir því. Ekki er búist við
því að tréð né leyniskyttan gangi
framar.
VON BUSCH LÁTINN
1 FANGABÚÐUM
Þýzki marksálkurinn von
Busch, er látinn í fangabúðum í
Bretlandi. Hann var 60 ára að
aldri. Hann stjórnaði víða herj-
um fyrir Þjóðverja í nýafstað-
inni styrjöld, meðal annars var
honum teflt á móti Montgomery
á síðustu vikum stríðsins. — Von
Busch var grafinn í brezka setu-
liðsbænum Aldershot.
FLUGMENN F.í. FÁ NÝJA
EINKENNISBÚNINGA
Flugfélag íslands hefir fyrir
skömmu látið gera sérstaka ein-
kennisbúninga fyrir flugmenn
félagsins. Er búningur þessi grár
að lit og mjög látlaus í alla staði.
Það eru einungis flugmenn fé-
lagsins sem nota þessa einkenn-
isbúninga.
Einu sérkennin á búningnum
eru þau, að í húfunni er vængur.
með stöfum félagsins, F.Í., greipt-
um á og'ennfremur er vængur
þvert yfir vinstri brjóstvasa.
Meðal erlendra flugfélaga er al-
gengt að flugmennirnir beri sér-
staka einkennisbúninga, líkt og
til dæmis skipstjórar og aðrir
yfirmenn skipa. Er þessi nýi
einkennisbúningur mjög smekk-
legur og mun sóma sér vel hvar
se mer.
—Vísir 2. sept.
RÉTTARHÖLDIN í
NURENBERG
Sakamál gegn tuttugu forustu-
mönnum Nazistaflokksins þýzka,
eru nú nýlega hafin í Nurenberg.
Rannsóknardómarinn Robert H.
Jackson, sem er einn af dómur-
unum í hæztarétti Bandaríkjanna
lét þannig ummælt, að allir þess-
ir legátar væri táknræn mynd af
þjóðflokkahatri, gorgeir, ofur-
mensku sálsýki og óstjórnlegri
grimd; allir lýstu sakborningarn-
ir yfir því, að þeir væru saklausir
með öllu af ákærunum, því þeir
hefðu aðeins int af hendi þær
skyldur, sem þýzka ríkið hefði
krafist.
Að því er nýjustu fregnir
herma, kosta réttarhöld þessi á-
litlegan skilding, eða eitthvað um
miljón dollara á viku; alls eru
það eitthvað um fjögur þúsund
manns, sem á einn eða annan
hátt eru viðriðin réttarhöldin.
Tveir hinna ákærðu, Krupp
hinn eldri, forseti Krupps vopna-
framleiðslunnar, og Ernest Kalt-
enbrunner, eru báðir við dauðans
dyr, og koma þar af leiðandi ekki
fyrir rétt. ^
NÝTT RÁÐUNEYTI
Bráðabirgðaforseti Frakka, De
Gaulle, hefir eftir langa mæðu,
lánast að mynda samsteypuráðu-
neyti, sem samsett er af fulltrú-
um allra þingflokkanna, og var
ráðuneytinu veitt traustsyfirlýs-
ing í þinginu síðastliðinn föstu-
dag; naumast mun þurfa að gera
því 'skóna, að ráðuneyti þetta
verði sérlega langlíft fremur en
venja er til á Frakklandi. Komm-
únistar eru óánægðir; þeir kröfð-
ust þriggja, sæta í ráðuneytinu,
en fengu aðeins einn ráðherra.
RÓSTUR Á INDLANDI
Á Indlandi, eins og reyndar svo
víða annarsstaðar, er all róstu-
samt um þessar mundir; hefir þó
mest að þessu kveðið í borginni
Calcutta, þar sem götubardagar
hafa orsakað miklar blóðsúthell-
ingar; eru það einkum stúdent-
ar, sem ganga í fararbroddi, og
mótmæla samamálsrannsókn á
hendur þeirra þjóðbræðra sinna,
er sagðir eru að hafa verið hlynt-
ir Japönum meðan á stríðinu
stóð.
AUKAKOSNING
Við aukakosningu til fylkis-
þingsins í Saskatchewan, sem
fram fór í Wadena kjördæminu í
Saskatchewan þann 22. þ. m.,
gekk frambjóðandi C.C.F. flokks-
ins, Fred Dewhurst, sigrandi af
hólmi; hinn eini keppinautur
hans var kommúnisti, William
Beeching að nafni.
Wadenakjördæmi varð þing-
mannslaust við fráfall Mr. Wil-
liams landbúnaðar ráðherra
Douglas-st j órnarinnar.
0r borg og bygð
NÝJAR FRAMLEIÐSLU-
TEGUNDIR
Birgðamálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Hon. C. D. Howe^
lýsti yfir því nýverið í sambands-
þinginu, að á næsta ári yrðu
framleiddar í Canada að minsta
kosti 100 nýjar vörutegundir; í
þremur borgum sagði Mr. Howe
að verðgildið yrði með þessum
hætti, — í Montreal $22,000,000, í
Vancouver $4,100,000 og Win-
nipeg $904,000.
TILBÚNINGUR ATOM
SPRENGJUNNAR
AUÐVELDARI OG ÓDÝRARI
EN ÁÐUR
Þann 24. þ. m. segjir svo í frétt
frá Los Angeles, að Dr. Leslie W.
Bell, hafi lýst því yfir í ræðu er
hann flutti nýlega, að þúsundir
af Atom sprengjum sé nú hægt
að búa til á styttri tíma en tók
að búa til eina þeirra atom
sprengja er beitt var gegn Japan.
Dr. Bell vann.að tilbúningi þeirra
sprengja í Hanford, Wash. Hann
sagði að notkun plutonium komi
í staðinn fyrir uranium, sem væri
svo kostnaðarsamt. Þessi upp-
götvan, sagði hann, að hefði ekki
einungis flýtt svo mjög fyrir
framleiðslunni, heldur og útrýmt
framleiðslukostnaðinum að stór-
um mun.
GARÐYRKJUMAÐURINN
Eflir Pálma.
Hann rakar saman blöðum, sem fögur voru forðum,
þau fallið höfðu niður á grasflötinn minn;
en haustið fyllir storminn með þungum Urðar orðum
og andar kaldri frost-rún á jarðargróðurinn.
En Norðri lyftir brúnum og sest að búnum borðum
við blik frá norðurljósum og stjörnu skarann sinn.
Hann rakar saman blöðum, og les í þeirra línum,
þau ljóð, sem vorið samdi, í lífsins helga rún
um drauminn sem þau áttu, í himinsölum sínum,
í svalanum frá blænum, við trjánna glæstu brún.
En haustið fór um skóginn —þeim fleygði að fótum mínum -
og fangamark sitt risti á akurlönd og tún.
Hann rakar saman blöðum við harðan Heljar svala,
er húmsins fyrirboði við skógarfaldinn bjó. —
En var það fölvi haustsins, frá bleikum jarðar bala,
sem beiskju-svip og kvíða á mannsins andlit sló?
Eða var það hugboð, sem til hans var að tala
á tungumáli lífsins um frost í eigin skó?
iw£v/>w>wlvv'iW>• t k\ríWíivikY/k\'t
STAKA
Iðunn Bragabrúður fín,
borð sín dekkar vistum;
ætíð býður inn til sín
öllum ljóðaþyrstum.
C. O. L. C.
Ársfundur deildarinnar “Frón”
verður haldinn mánudagskveld-
ið þann 3. des. n.k. kl. 8. Skýrslur
embættismanna fyrir yfirstand-
andi ár verða lesnar, og kosning-
ar í stjórnarnefnd næsta árs fara
fram. Að afloknum starfsfundi
fer fram skemtiskrá eins og aug-
lýst er í öðrum stað hér í blaðinu.
Fjölmennið, og sýnið með því
áhuga fyrir málum deildarinnar.
—Nefndin.
•
Athygli allra íslenzkra for-
eldra, og annara, sem eiga fyrir
börnum að sjá, og 'stendur ekki
á sama um menningarlegt upp-
eldi þeirra, er hér með vakin á
starfi laugardagsskólans, sem
starfræktur er vikulega í neðri
sal Fyrstu lútersku kirkju. Valdir
og ágætir kennarar eru þar til
staðar til að hjálpa börnunum
til að nema tungu feðra sinna.
Eru það þeir Ólafur Pálsson,
kennari frá íslandi, Skúli Böð-
varsson, skólastjóri, Mrs. Fred
Bjarnason og Jón Butler- Einnig
er börnunum veitt tilsögn í söng
íslenzkra ljóða. Sendið börnin á
skólann fyrir kl. 10 á hverjum
laugardegi.
•
Mr. Jón Vigfússon frá River-
ton, var staddur í borginni seinni
part vikunnar, sem leið.
•
Mr. Th. Thordarson kaupmað-
ur frá Gimli, dvaldi í borginni
nokkra daga í fyrri viku.
•
Mikið úrval af fallegum
jólakortum:
íslenzk kort 15c og 20c.
Ensk kort á 5c, lOc, 15c, 20c og
25c; einnig í kössum mjög
ódýr.
BJÖRNSSON’S BOOK STORE
702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
•
Gefið til að stofna íslenzkt
Elliheimili í Vancouver, B.C.—
Frá kvenfélagi Frelsis safnað-
ar í Argyle, $25.00; Mr. og Mrs. S.
Jónsson, Glenboro, $5.00; Mr. og
Mrs. Jón Thorsteinsson, White
Rock, B.C., $25.00.
Með einlægu þakklæti,
S. Eymundsson, féh.
1070 W. Pender St.,
Vancouver, B.C.
•
W A N T E D—General house-
maid, for adult family; private
room with radio; high wages
paid. Phone 49 131.
Mrs. Robinson, 334 Wellington
Crescent, Winnipeg, Man.
•
25 ÁRA GIFTINGARAFMÆLI
Laugardaginn 24. nóv. s.l. var
mannmargt á heimili þeirra Mr.
og Mrs. J. Cuddie, 225 Cathedral
Ave. hér í borg. Hafði hópur
vina og vandamanna gert þeim
skyndi heimsókn í tilefni af þess-
um tímamótum í lífi þeirra. Eftir
afhending vinagjafa, skemtu
menn sér við söng og hljóðfæra-
slátt fram eftir kvöldi. Því næst
nutu menn góðra veitinga, áður
en heim var snúið eftir ánægju-
legt gleðimót.
Gjafir í minningarsjóð
Bandalags Lúterskra Kvenna
Mr. og Mrs. J. B. Johnson,
Gimli, $50.00, í minningu um ást-
kæran son, Sgt. Pilot Júlíus
Björn Johnson-
Með innilegu þakklæti,
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
•
The ameridment to the Mani-
toba Highway Traffic Act, passed
at the last session of the Legi-
slature has been proclaimed and
becomes law on December 1,
1945. A folder published by the
Motor Vehicle Branch of the
Government is a comprehensive
explanation of the law, which
will be widely distributed
throughout the Province and can
be obtained from any garage or
service station.
With respect to insurance, the
Act requires all insured
motorists, when involved in an
accident resulting in bodily in-
jury or property damage in ex-
cess of Twenty Five Dollars to
produce an “Insurance Card.”
This card must contain particu-
lars of the make and model of
the automobile, the name of the
Company writing the policy
covering the Automobile Third
Party Liability Insurance, and
the number of the policy issúed
and date of expiry.
Failure to produce an insurance
card to a police officer in the
case of accident will involve the
impounding of the automobile.
Any further particulars will
be gladly supplied by J. J. Swan-
son & Company, Limited, 308
Avenue Building, Phone 97 538.
•
Frú Gyða Einarsson, kona
Baldvins Einarssonar vélsetjara
hjá Columbia Press Ltd., lagði af
stað áleiðis til íslands síðastliðið
þriðjudagskvöld og fer frá Hali-
fax á laugardaginn.
•
Mr. Snæbjörn S. Johnson var
endurkosinn oddviti í Bifröst-
sveit í bæja- og héraðsstjórna-
kosningunum, sem fram fóru á
föstudaginn þann 23. þ. m. Hann
hefir gegnt þessari sýslan í und-
anfarin sex ár.
•
REIPTOG
Vera má að vestanráð
vekji nokkurn usla, —
öllu verra ef ættþjóð mín
yrði slafnesk drusla.
Einar P. Jónsson.
BJÖRGUÐU 5700
FLUGMÖNNUM
Björgunarsveitir brezka flug-
hersins björguðu samtals 5700
flugmönnum á stríðsárunum.
Sveitir þessar voru stofnaðar,
meðan orustan um Bretland stóð
yfir, því að þá kom iðulega fyr-
ir, að flugvélar hröpuðu í Erma-
sund eða Norðursjó, og þurfti þá
snör handtok til að bjarga þeim.^
En sveitirnar sáu einni'g um
björgun flugmanna á landi.
Meðal annars var mörgum flug-
mönnum bjargað af auðnum
Afríku, meðan þar var barist.
Af þeim 5700 flugmönnum,
sem bjargað var, voru 2000 ame-
rískir.
ÚTHÚÐAR STJÓRNINNI
í þingræðu í gær, úthúðaði
Winston Churchill verkamanna-
stjórninni brezku, og bar henni
algert stefnuleysi á brýn; kvað
hann stjórnina láta reka á reið-
anum án þess hún vissi til hægri
né vinstri um áttir. Mr.
Churchill bætti því við, að Bevin
utanríkisráðherra væri óábyrgur
orðhákur.