Lögberg - 03.01.1946, Blaðsíða 3

Lögberg - 03.01.1946, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. JANÚAR, 1946 3 Björn Þorbergsson 1852 — 1945 (Æfiminning) “Bautasteininn beztan allra bjó hann sjálfur til.” Fyrir mörgum árum síðan orti hinn nýlátni öldungur erfiljóð eftir einn af vinum sínum, og samferðamönnum frá landnáms- árunum; mann, sem hafði verið Björn Þorbergsson nágranni hans og vinur í nálega fjórðung aldar, og sem hann þekti víst flestum betur. Þar eru að finna vísuorðin, sem skráð eru hér að ofan. En það mun verða dómur flestra kunn- ugra, að þau ummæli eigi ekki síður við um sjálfan hann látinn. Þess er oft getið í æfiminning- um og öðrum umsögnum um landnemana íslenzltu, að þeir hafi flutt lítinn fjárhlut af ætt- jörðinni, og var Björn sál. víst engin undantekning í því efni. Þó verður naumast með sanni sagt, að hann kæmi allslaus og örsnauður rtil þessa lands, því hann hafði þegið að erfðum frá forfeðrum sínum og formæðrum, verðmæti, sem sumir telja sér- hverjum auðæfum dýrmætari. Verðmæti, er reyndust honum giftudrjúg í baráttunni við þrengingar og örðugleika frum- býlingsáranna. Þeim verðmæt- nna lýsir skáldið örn Arnarson fagurlega í kvæðinu ‘“Djúpir eru íslandsálar.” Þar er svo að orði komist meðal annars: Og lengi mun lifa í þeim glæð- um, sem landarnir fluttu um sœ. Þeim íslenzku eðlistkostum skal aldrei kastað á glæ.” Og Björn sál. “flutti um sæ” ýmsa hina beztu íslenzku eðlis- osti, og kastaði þeim alls ekki a glæ. Björn var fæddur á Dúki í Sæ- -n«arhlíð í Skagafirði 28. marz • í oreldrar hans voru Þor- ergur Jónsson og Helga Jóns- dottir. Bjuggu -þau á Dúki allan sinn búskap — fuu 40 ár. Var or ergur hreppstjóri «í sveit smm í nálega 30 ár. Faðir Þor- ergs v'ar Jón Oddsson hrepp- s jori á Dúki, Sveinssonar bónda a unguhálsi,- Pálssonar prests í Goðdölum, Sveinssonar prests p Barði í Fljótum. Kona séra as í Goðdölum var Þorbjörg rnadóttir Oddsonar, Eiríksson- nr’ Oddssonar biskups í Skálholti 1630, Einarssonar prests í > dölum Sigurðssonar. Móðir Þorbergs var Þuríður Jónsdóttir Prests að Hafsteinsstöðum, Jóns LZ PrCStS hins halta Gunn NorðSurárdalb°£ura ð^ K°tUm t' Þuriður var svstir Jons prests á c . „ " ívr - Orenjaðarstað foður Magnusar prests þar. Fað- ir Helgu konu Þorbergs var Jón Reykjalm prestur í Fagranesi og Ríp í Skagafirði, Jónssonar pró- fasts á Breiðabólstað í Vestur hópi, Þorvarðarsonar. Björn ólst upp með foreldrum sínum til tvítugsaldurs. En árið 1872 dó faðir hans, en móðir hans bjó áfram á Dúki með börnum sínum. Vorið 1881 giftist Björn, og gekk að eiga frænku sína Helgu Þorleifsdóittur frá Reykjum á Reykjaströnd. Voru foreldrar hennar dugnaðar og atkvæða hjón. Var Þorleifur lengi hrepp- stjóri, og í fremstu röð útvegs- bænda við Skagafjörð. Reistu þau Björn og Helga bú á Dúki, en fluttu eftir tvö ár að Fagra- nesi, og voru þar til 1887. Þá bar þeim sá sári harmur að höndum, að missa öll börn sín, — þrjá efnilega sonu — úr barnaveiki á tæpum mánaðar- tíma. Eftir þá eldraun festu þau ekki yndi í pagranesi og flutt- ust þaðan til Reykja, til foreldra Helgu, og ári síðar fluttust þau með þeim til Sauðárkróks. Eftir að Björn kom að Reykj- um, mun hann mest hafa stund- að sjóróðra, að minsita kosti haust og vor. Voru þá stundum farnar veiðifarir til Drangeyjar, sem liggur undan landi frá Reykjum. 1 einni slíkri ferð komst Björn í krappan dans. Náði hann og fé- lagar hans nauðulega landi, eftir langan barning, þjakaðir og að fram komnir. Sá, sem þetta rit- ar, heyrði Björn segja frá því, á efri árum sínum, að eftir þá hrakningsferð hefði sér fyrst flogið vesturför í hug. Ekki svo mjög vegna þess, að hann ótt- aðist að glíma við Ægi á opnum aát við Islands strendur, heldur íefði sér orðið það áhyggjuefni, hvað taka mundi við fyrir skylduliði sínu, ef sín misti við. Sennilega hefir það verið af >essum ástæðum, samfara erfiðu árferði, að árið 1891 flytja þeir mágar, Þorleifur og Björn Þor- aergsson, með sifjaliði sínu vest- ur um haf til Canada. En minnis- stætt varð þeim Birni einnig upphaf landnámsins hér. Því á fyrsta sólarhringnum, sem þau dvöldu í Winnipeg, andaðist enn eitt barn þeirra. Á hans löngu æfi hafði dauðinn svift Björn konu hans (d. 1925) og 6 börn- um þeirra. Dóu fimm í æsku, en ein dóttir, Guðrún að nafni, fulltíða, í blóma lífsins. Var hún yngst af börnum Björns og Helgu. Hún var sett til menta, og var nokkur ár skólakennari í Churchbridge og þar í grend, eða þar til hún giftist Jóhanni Kristjánssyni. Fluttust þá ungu hjónin til Winnipeg og þar dó hún þremur árum seinna. Af börnum björns eru á lífi: Þorbergur, starfsmaður hjá C.P.R. járnbrautarfélaginu í Winnipeg, ókvæntur, og Sigríð- ur kona Franklins Gíslasonar í Bredenbury, Sask. Hjá þeim dvaldi Björn síðustu æfinárin, og þar andaðist hann 26. júlí 1945. Naut hann þar hins mesta ástríkis og varð æfikvöldið bjart og blítt. Einnig lifa hann tvö barnabörn. Helga Kristjánsson og Jón Franklin Björn Gíslason. Til Þingvallanýlendunnar, sem varð heimkynni hans í full 50 ár, kom Björn og fólk hans snemma vors 1892. Settist hann að nyrzt í nýlendunni; heitir það Lögbergs-bygð. Þar bjó hann sex ár, en færði sig þá sunnar, og tók sér bústað rúmar tvær mílur norður frá Churchbridge þorpi. Þar bjó hann 30 ár. Hús aði hann bæ sinn vel, og varð heimilið alþekt að risnu og höfð ingsskap, enda var Björn að eðlisfari glaðlyndur, hreinskil- inn og höfðingi heim að sækja. En kona hans hinn mesti skör- ungur og honum samhend í hvr vetna. Björn varð brátt áhrifamaður í félagsmálum bygðarinnar. Tók hann virkan og ákveðinn þátt í ýmsum málum, sem þá voru efst á baugi, svo sem kirkju og krist- indómsmálum, skólamálum stjórnmálum og samvinnumál- um. Þó munu kristindómsmálin jafnan hafa verið honum hjart- fólgnust allra mála. Innti hann af hendi margvísleg störf fyrir söfnuð sinn og kirkjufélag. Hann var einn af stofnendum Konkordia safnaðar og skrifari hans í mörg ár. Einnig var hann sunnudagaskóla kennari, fulltrúi safnaðarins á kirkjuþingum o. fl Auk þess munu presitar og aðrir forgöngumenn kirkjufélagsins lúterska jafnan hafa átt vísan verustað á heimili Björns, án þess að gjald kæmi Jlyrir frá prestum eða söfnuði. í skóla- nefnd Lögbergs skóla átti hann sæti í 25 ár, og var skrifari og féhirðir skólans. Hann var um langt skeið einn af forkólfum “United Grain Growers” félags- ins í sínu nágrenni og stjórnaði verzlun þeirra í Churchbridge í 10 ár. Þá var hann í mörg ár um- boðsmaður “Farmers’ Mutual Fire Insurance”, sem er sam- vinnufélag bænda í Saskatche- wan. Ekki mun Björn hafa fengið mikla mentun í æsku, fremur en títt var um íslenzka sveitapilta á hans uppvaxtar árum. En hann var góðum gáfum gæddur að náttúrufari, og aflaði sér af eigin kænleik haldgóðrar mentunar og fylgdist vel með straumum og stefnum sinnar tíðar. Enginn veifiskati var hann í skoðunum, en vildi jafnan hafa það er hann áleit sannast og réttast. Björn var vel hagmæltur og fékkst talsvert við ljóðagjörð og ljóða- þýðingar og birtust kvæði eftir hann við og við bæði í Lögbergi og Sameiningunni. En hitt mun þó miklu fleira, sem aldrei hefir komið fyrir almenningssjónir. Björn var einn í hópi þeirra mörgu atkvæðamanna íslenzkra, sem fluttu vestur um haf á land- námsárunum og settu svip sinn og áhrif á nýbygðirnar og ís- lenzkt mannlíf hér megin hafs- ins. En það verður hlutverk yngri kynslóðarinnar, að ákveða hvort þeim áhrifum skuli hald ið við lýði, eða fleygt í glatkist- una. E. S. Vlrs. Ingibjörg Árnason Þann 24. nóv. andaðist að heimili sínu í Selkirk, Man., Mrs. Ingibjörg Björnsdóttir Árnason, eftir langvarandi sjúkdómsstríð en stutta rúmlegu. Hún var fædd 22. maí 1867, í Selhólum í Fagra- nessókn í Skagafjarðarsýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Björn Jónsson og Hildur Guð- mundsdóttir; ólst hún upp hjá þeim til tvítugs aldurs, en fór þá í visit til séra Hallgríms Thor- laciusar að Ríp í Hegranesi. Þar giftist húnn 22. maí 1890, Bjarna Árnasyni frá Kárastöðum í Hegranesi. Um tveggja ára bil voru þau á Reynistað í sömu sýslu, en fluttu þá að Illugastöð- um í Laxárdal ytri, og bjuggu þar í sjö ár. Þaðan fluttu þau til Vesturheims aldamótaárið; dvöldu þau á Gimli hinn fyrsta vetur, en fluttu næsta vor til Selkirk, dvöldu þar í tvö ár, og voru til heimilis hjá Thorvaldi Walterson; vann Bjarni maður Ingibjargar í hans þjónustu að nokkru leyti. Sumarið 1903 tóku þau heimilisrétt á landi í Víði- nesbygð í Nýja íslandi, nefndu þau landnám sitt Skínanda. Þar bjuggu þau til ársins 1922, er þau seldu bújörð sína og fluttu til Selkirk. Þá keyptu þau hús- ið 352 á Robinson Ave., og bjuggu þar ávalt þaðan af. Þeim Ingibjörgu og Bjarna varð fimm barna auðið, þriggja dætra og tveggja sona. Eiitt barna sinna mistu þau á íslandi, annað dó á leiðlnni til Vestur- heims, en þrjú dóu á fyrstu þrem vikunum, sem þau dvöldu á Gimli. Eftir að þau settust að landnámi sínu, ólu þau upp tvær kjördætur, er urðu þeim itil gleði og ánægju; þær eru: Inghildur Ósk, gift C. F. Goodman til heim- ilis í Seattle, Washington, og Ingibjörg Helga, gift Ó. P. ís- feld, Winnipeg Beach. Mrs. Árnason var rúmra 78 og 6 mánaða að aldri er hún lézt. Höfðu þau Árnasons hjónin átt samleið í hjónabandi í 55 ár og 6 mánuði, er það óvenju löng samfylgd, og í þessu tilfelli á- nægjuleg og gleðirík til hinztu stunda fram. Saga Árnasons hjónanna má teljast lík sögu margra frum- byggja, er félitlir komu að heim- an í efnalegu tilliti. Sumir drætt- ir í sögu þeirra mega þó ein- stæðir teljast, svo sem hinn sári og margítrekaði barnamissir, er þau urðu að þola, en sú reynsla mótaði þau bæði æfilangt. páir munu að fullu skilja hversu slík eldleg reynsla gengur nærri for- eldra sálum. En hún, sem burtu er farin og hinn aldraði eigin- maður, sem eftir er skilinn, höfðu mikið lífsþrek að arfi þegið, og báru æfiraunir sínar eins og sönnum Íslendingum hæfir. Með dugnaði og hagsýni og ágætri samvinnu tókst þeim að verða efnalega sjálfstæð, jafnan veit- andi en ekki þurfandi. Þau studdu íslenzk félagsmál, og þá sérstaklega kirkju sína, bæði í Víðinessöfnuði, þar sem þau svo lengi dvöldu, og einnig hér í Selkirk, á 23 dvalarárum sínum hér í bæ;.sýndu þau trygð sína við málefni safnaðarins á marg- an hátt: með fjárframlögum og dygðugri kirkjusókn, þrátt fyrir elli og þreytu, sem mörgum æfi- árum og miklu starfi jafnan fyigja- Mrs. Árnason var að mínum skilningi gædd góðum hæfileg- leikum og óbilandi starfsþreki og framsóknarhug. Auk þess var hún kona ljóðelsk, lestrarhneigð og fræðslugjörn. Manni sínum var hún stoð og styrkur á allri samfylgd þeirra, og bar jafnan byrðar lífsins með honum af fúsum og glöðum hug, og var honum góð og sönn eiginkona. Hún átti kærleiksríka lund, sem vildi öðrum gott gera og rétti mörgum hjálparhendi, án þess að auglýsa það. Hún var kona trygglynd. Kjördætrum sínum reyndist hún góð móðir. Fyrir nærfelt 6 árum síðan varð hún fyrir miklu áfalli, þótt hún fengi all-góðan bata eftir langa og erfiða rúmlegu; mun hún þó vart hafa á heilli sér tekið þaðan af; því stuttu síðar tók hún að líða af sjúkdómi þeim, er leiddi hana til dauða. Sín löngu veikindi bar hún með sannri hetjulund, fá- gætu þreki og stillingu, sem vert er á að minnast. Hinn aldraði eiginmaður hennar annaðist um hana með frábærri nákvæmni og tærleika í sjúkdómi hennar, og gerði sitt ítrasta til að létta henni byrðina, með því að bera hana með henni. Business and Professional Cards Útför Ingibjargar fór fram þann 29. nóv. frá útfararstofu Mr. Langrill og frá lútersku kirkjunni og var fjölmenn. Hinn aldraði eiginmaður mælti fram vel valin kveðjuorð í lok at- hafnarinnar í kirkjunni. S. Ólafsson. GAMAN 0G ALVARA Einhleypur: — Hvaða mánuði er bezt að gifta sig í? Gif tur: —Oktembrúar. Einhleypur:—Enginn mánuð- ur heitir það. Giftur:—Nei, það er nú einmitt það. • Lítill lögfræðingur stóð frammi fyrir opinberum ákærenda í rétti, sem vitni. — Ákærandinn spurði hann að heiti og stöðu og er hann hafði fengið svarið, sagði hann:— “Þér lögfræðingur? Eg gæti stungið yður í vasa minn!” “Það er ekki ósennilegt,” svar- aði hinn. En ef þér gerðuð það, þá munduð þér hafa meiri lög- fræði í vasanum en þér hafið í kollinum.” • “Svo að þú ert viltur, dreng- ur minn? Hvers vegna hekkst þú ekki í pilsunum hennar mömmu þinnar?” “Eg núði ekki upp í þau,” sagði sá litli. • Kennarinn: — Mér er ómögu- legt að skilja, hvernig einn mað ur getur gert svona margar vill- ur í stuttum stíl. Bjössi: — Það gerði hann alls ekki einn maður. Eg hjálpaði pabba með hann. DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 DR. A. BLONDAL Physician and Surgeon 602 MF.DICAL ARTS BLDG. Síml 93 996 Heimili: 108 CHATAWAY Sfmi 61 023 Talsimi 95 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœöingur i augna, eyrna, nef og kverka sjúkdómum. 704 McARTHUR BUILDING Cor. Portage & Main Stofutími 4.30 — 6.30 Laugardögmn 2 — 4 Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talsimi 30 877 Viðtalstínii 3—5 eftir hádegi DR. ROBERT BLACK Scrfræðingur i aupna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 416 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 93 851 Heimosími 42 154 DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 EYOLFSON’S DRUG Office Phone Res Phone PARK RIVER, N. DAK.t 94 762 72 409 íslcnzknr lyfsali Dr. L. A. Sigurdson Fólk getur pantað meðul og 116 MEDICAL ARTS BLDG. annað með pósti. Offiee Hours: 4 p.m.—6 p.m. Fljót afgreiðsla. and bY appolntment A. S. B A R D A L Drs. H. R. and H. W. 848 SHERBROOK STREET TWEED Selur líkkistur og annast um út- Tannlœknar farir. Allur útbúnaður sá bezti. ! Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og1 legsteina. Skrifstofu talsími 27 324 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Heimilis talsími 26 444 PHONE 96 952 WINNIPEG Haldor Haldorson b yggin gamcistari Cor. Broadway and Edmonton Winnipeg, Canada Slmi 93 055 DR. J. A. HILLSMAN Surgeon 308 MEDICAL ARTS BLDG. Phone 97 329 INSURE your Property with HOME SECURITIES Limited 468 MAIN STREET luco E. Johnson, A.I.I.A. Mgr. Phones: Bus. 23 377 Res. 39 433 Dr. Charles R. Oke Tannlœknir For Appointments Phone 94 908 Office Hours 9—6 404 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING 283 PORTAGE AVE. Winnipeg, Man. TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON and Company Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING Winnipeg, Canada Legsteinar, sem skara fram úr. Úrvals blágrýti og Manitoba marmari. Skrifiö eftir veröskrá Gillis Quarries, Limited 1400 SPRUCE ST. SlJvH 28 893 Winnipeg, Man. Phone 49 469 Radio Service Specialists ELECTRONIC LABS. II. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST„ WINNIPEG J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. PHONE 97 538 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SÍMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœöingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Slmi 98 291 Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla I heildsölu með nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifst.slmi 25 355 Heima 55 462 Blóm stundvlslega afgreidd THE ROSERY, LTD. Stofnað 1905 427 PORTAGE AVE„ WINNIPEG Slmi 97 466 Hhagborg II F U E L C 0. n Dial 21 331 (C.F.L. No. 11) 21331 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 60 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated Argue Brothers Ltd. Real Estate, Financial, Insurance LOMBARD BLDG., WINNIPEG J. Davidson, Representative Phone 97 291 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. II. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.