Lögberg - 04.04.1946, Blaðsíða 1
PHUNE 21374
\ot&
_a.d St
A
Stor»0e
„s, ^ S0íS»*
10,UTuier ý\JP' b A Complete
1 Cleaniníf
Institution
59. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 4. APRÍL, 1946
PHONE 21374
. rA \>*^5
O .ítulo^ g
^urvd^5' \r\3*
A Complete
Cleanlng:
Institution
NÚMER 14
ÁTTRÆÐUR
Helgi Johnson
Á þriðjudaginn þann 2. þ. m.,
átti Helgi Johnson frá Eskiholti
í Borgarfjarðarsýslu áttræðis-
afmæli; heimili hans er að 1023
Ingersoll stræti hér í borginni.
Hejgi lætur lítt á sjá þótt árin
færist yfir hann; keikur gengur
hann og sporléttur, og oftast með
spaugsyrði á vör. Helgi er gæfu-
maður; hann á úrvals konu og
mannkosta börn. Lögberg óskar
Helga allra heilla í tilefni af þess-
um merka áfanga í ævi hans.
LÁTINN í VANCOUVER
Björn Pétursson
Sícfestliðinn föstudag lézt á
heimili sínu í Vancouver, B.C.,
Björn Pétursson, fyrrum járn-
vörukaupmaður hér í borg og um
^eitt skeið ritstjóri Heimskringlu;
hann hafði átt við langvarandi
vanheilsu að stríða. BjÖrn var
fæddur að Ytri Brekkum í Skaga
firði 1871 og fluttist ungur hing-
að til lands með foreldrum sín-
um; hann var greindarmaður eins
og hann átti kyn til, og alla jafna
fús til hjálpar við þá, er til hans
leituðu. Björn var bróðir Dr.
Rögnvaldar heitins Péturssonar
og þeirra ÓlafS og Hannesar, er
reka mikil fésýslu fyrirtæki í
þessari borg.
Oscar Hördal og 'Jocelyn
Frances Einarsson, bæði til heim-
ilis að Lundar, Man., voru gefin
saman á heimili bróð^ir brúðar-
innar, Mr. og Mrs. Magnús Ein-
Qrsson, 724 Ashburn Street, Win-
nipeg, á föstudagskvöldið 29.
niarz. Brúðguminn er sonur Jóns
Hordal á Lundar, og látinnar
konu hans, Kristjönu Sigfússon-
en brúðurin er dóttir Snæ-
bjarnar og Guðríðar Einarson á
Lundar. Séra Valdimar J. Ey-
iands framkvæmdi báðar þessar
hjónavígslur.
ÍSLENZKUR BÍLSTJÓRI
MYRTUR
Aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags gerðist það hermdarverk,
að íslenzkur bílstjóri, • Jóhann
Johnson, var laminn til dauðs.við
Kenlaston Boulevard í þessari
borg. Jóhann heitinn var fædd-
ur í Reykjavík fyrir rúmlega 45
árum; móðir hans, Guðrún Guð-
mundsdóttir Sólmundsson, býr á
Langside Street, og er kona hnig-
in að aldri; hann lætur einnig
eftir sig ekkju sína og mörg syst-
kini; enn hefir ekki lánast að hafa
hendur í hári þess, eða þeirra,
sem valdir voru að morðinu.
Útför Jóhanns heitins fer
fram í dag, fimtudag, kl. 2 e. h.,
frá Kerrs útfararstofu. Sérai
Valdimar J. Eylands jarðsyngur.
ÁSGEIR JÓNASSON
LÁTINN
í bréfi til hr. Guðmundar E.
Eyford frá dóttur hans í Reykj-
avík, meðteknu um síðustu heigi,
er þess getið, að Ásgeir Jónas-
son skipstjóri á Fjallfossi, hefði
látist á sjúkrahúsi þar í borg-
inni, þann 24. marz s.l. Ásgeir
heitinn dvaldi hér tímakorn í
fyrra, endurnýjaði vinskap við
fornvini sína hér um slóðir, og
eignaðist marga nýja vini. Ás-
geir heitinn var ættaður frá
Hrauntúni í Þingvallasveit, sæ-
garpur hinn mesti og bókfróður
sem þá er bezt getur um mann í
alþýðustétt; hann var freklega
hálf sjötugur að aldri.
Icelandic Canadian
Evening School
W. J. Lindal, dómari flytur
erindi um “Youth and Educa-
tion in Iceland,” í neðri sal Lút-
ersku kirkju, á þriðjudaginn, 9.
apríl, kr. 8 e.h. Islenzku kneslan
byrjar kl. 9.
Þeir vitru sögðu—
Sigurður Nordal: “Höfðingja-
sleikjan kemur upp um sig með
því að vera smeðjulegur við þá,
sem hann vill koma sér í mjúk-
inn við, en allur annar maður,
drembilátur og jafnvel rudda-
legur við menn, sem hann telur
minni máttar. Lýðskrumarinn
veit ekki af því, fyrr en hapn er
farinn að sýna fórnarlömbunum
sínum enn meiri fyrirlitningu
en harðdrægur kúgari: gera
ýmist ráð fyrir því, að þeir séu
auðtrúa aular, sem gíni við hverri
flugu, illa innrættir þorparar,
sem meti það mest, að verstu
hvötum þeirra sé dillað, eða
viljalaus verkfæri, sem ógna
megi með ofbeldi, ef annað
bregst. Hræsnarinn er, áður en
hann sjálfan varir, farinn að
hugsa hátt á strætum og gatna-
mótum. Sá, sem er dóni við
sjálfan sig, kemst aldrei hjá því,
að það móti svo svip hans og yfir-
bragð, að hann geti hvergi farið
án þess að halda sýningu á sín-
um rétta manni.”
Montaigne: “Ef einhver mað-
ur finnur upp á því að lasta
sjálfan sig, er honum að jafnaði
trúað. Hins vegar er honum
aldrei trúað, ef hann hrósar sér.”
Kane O’Hara: “Munið það, að
þegar dómgreindin er veik, eru
hleypidómarnir voldugir.”
Charles Lamb: “Eg er ekki
annað en samsafn af hleypidóm-
um, sem eru til orðnir ýmist
fyrir samúð eða andúð.”
Emerson: Skipulagningar-
menn hata sannleikann.”
—Samtíðin
SIGURBJÖRN
SIGURJÓNSSON
LÁTINN
Sigurbjörn Sigurjónsson
Síðastliðinn föstudag lézt hér
í borginni Sigurbjörn Sigurjóns-
son prentari, austfirzkur að ætt,
hniginn nokkuð að aldri; hann
var í mörg ár vélsetjari hjá út-
gáfufélagi Lögbergs, og vann
einnig í nokkur ár við Heims-
kringlu. Sigurbjörn heitinn var
hinn mesti skýrleiksmaður vel að
sér í íslenzkri tungu og íslenzk-
um þjóðfræðum, og svo sam-
vizkusamur í dagfari, að hann
eigi mátti vamm sitt vita í neinu;
hann var eindreginn stuðnings-
maður kirkju og kristindóms, og
veitti jafnan Fyrsta lúterska
söfnuði dyggilega að málum. Sig-
urbjörn lætur eftir sig ekkju,
Hildi, og sjö mannvænleg börn,
þrjá sonu og fjórar dætur. —
Útför þessa mæta manns fór
fram frá Fyrstu lútersku kirkju
á þriðjudaginn. Séra Valdimar
J. Eylands flutti kveðjumálin.
Gjafir í námssjóð Miss
Agnes Sigurdson:
Frá vini, Winnipeg -15; Mr.
og Mrs. Ólafur Ólafson, Riverton
-10; Miss Sophia Halldorson og
Mrs. Paul J. Halldorson, Chicago,
111. -27.50; Mr. C. Indridason,
Mountain, N.D. -5.50; Icelandic
Canadian Club -100; Mrs. P. H.
Hallgrimson, Wpg. $10; Dr. og
Mrs. Richard Beck, Grand Forks
$10; Mr. og Mrs. J. Gillies $25;
Þjóðræknisdeildin “ísafold” ann-
aðist eftirfarandi söfnun á
Hnausum, Man.—Mr. Bjarni
Bjarnason $1; Mr. and Mrs. S. S.
Magnússon $3; Misses Elaine og
Gladys Danielson $1; Mrs. H. K.
Thordarson 50c; Mr. og Mrs. T.
K. Snifeld $1; Miss Violet Sig-
mundson $1; Miss Ástrós Gud-
jonson $1; Miss P. H. Mastaway
$1; Mr. og Mrs. Gísli Sigmund-
son $2; Mr. og Mrs. S. S. Vidal
$2; Steinun Valgardson 25c; Mrs.
Clara Einarson $1; Jón Stefanson
50c; J. J. Einarson $1; Alex Varga
$1; Mr. og Mrs. G. G. Martin $1;
Albert Tuba 50c; Mrs. G. S. Ein-
arson 50c; Einar ijíinarson 50c;
Jón Einarson 50c; Harald Page
$1; Mrs. Bill Kolenchuck 50c;
Mr. og Mrs. Eddie Marteinson
$2; Mrs. Helga Marteinson $3;
Mr. og Mrs. Jón Baldvinson $1;
Miss Guðrún Finnson 50c. Sam-
tals $231.25. ,Áður kvittað fyrir
$1,413.50.
Með þakklæti f. h. nefndar-
innar,
G. L. Johannson, féhirðir.
BJARGIÐ BÖRNUNUM
Það er ómögulegt fyrir okkur
að gera nokkuð þeesu viðvíkj-
and; hvað ætli það muni um eitt
einstaklings tillag; viðfangsefn-
ið er alt of stórt; stjórnirnar eiga
að líta eftir þessu! Svona tala
einstaka menn er þeir heyra óm-
inn af neýðarópum hinna nöktu,
allslausu aumingja er eigra um
rústir Evrópulandanna; og sem
munu deyja úr hungri og alls-
konar drepsóttum sem núverandi
ástand þar mun leiða af sér.
Nýlega er kominn hingað frá
London, Capt. G. F. Gracey,
skrifari sambandsins er nef»ist:
w
Save the Children Fund; og hef-
ir hann skýrt frá starfi þess á
mörgum opinberum fundum.
Félagið var stofnað skömmu
eftir fyrra heimsstríðið og er nú
26 ára gamalt. Það hefir starfað
í 36 löndum og hefir því mikla
reynzlu í því að leita að og lið-
sinna hungurmorða fólki, sér-
staklega börnum. Það var fyrsta
sjálfboða-félagið sem sendi mat
til Hollands og Pólands, og eitt
af þeim allra fyrstu sem byrjaði
líknarstarf í Czechoslovakíu,
Grikklandi og Italíu.
Um þessar mundir eru í Ev-
rópu, segir Capt. Gracey,
40,000,000 börn yngri en 15 ára
sem þurfa hjálp. 4,000,000 eru
móður- og föðurlaus. Eftir 5 ára
hörmungar eru flest af þessum
börnum orðin aumingjar og geta
ekkert viðnám veitt allskonar
sjúkdómum er steðja að. Ef við
bregðum ekki fljótt við til þess
að bjarga þeim, segir hann,
steypast hryllilegar drepsóttir
von bráðar yfir alla Evrópu, og
þar af leiðandi einnig yfir Eng-
land; hundruð Þúsundir munu
deyja!
Hvað getum við þá gert? Það
er eitt víst að það eru f áir íslend-
ingar sem daufheyrast við neyð-
arópum náungans. Og við getum
mikið gert til þess að hjálpa; við
getum gefið fatnað; við getum
gefið peninga fyrir mat og með-
ul; og við getum á ýmsan hátt
aðstoðað þau félög hér sem gefa
sig við þessu líknarstarfi.
Það hefir verið ákveðið að
halda “Silver Tea” og sölu á
heimatilbúnum mat í T. Eaton
Assembly Hall, fimtudaginn, 18.
apríl, frá kl. 2.45 til 5 e. h. Ýms
félög Skandinava og íslendinga
hér hafa gert samtök með sér að
hrinda þessu af stað. Arðurinn
af sölunni gengur til “Save the
Children Fund” og verður send-
ur beint til Svíþjóðar til viður-
væris börnum sem þar er verið
að liðsinna. í Svíþjóð eru nú um
75,000 umkomulaus í)örn frá 11
löndum; og vona Svíar að þeim
takist með utanaðkomandi hjálp
að bjarga þessum hóp frá afleið-
ingum 'íllrar meðferðar undan-
farnra ára.
Aðal umsjónakonur sölunnar
eru: Mrs. A. S. Bardal og Mrs.
C. E. Hoffsten, enn fjölda marg-
ar konur eru að vinna að því að
gera þetta fyrirtæki sem arðsam-
ast.
Íslendingar eru vinsamlega
beðnir að taka þátt í þessari til-
raun að styrkja hana með til-
lögum og með því að koma á
staðinn, og kaupa. sér kaffi, og
eitthvað af því sem þar verður
til sÖlu. Takið eftir auglýsingu
í næstu viku-blöðum.
Hólmfríður Daníelson.
0r borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Avenue, Mrs. F.
Thordarson, 996 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
+
Þegar Lögberg var að fara í
pressuna, barst því sú fregn, að
frú Stefanía Helgason, kona
Stefáns Helgasonar í Mikley,
væri þá nýlátin í Almenha sjkra-
húsinu; hún hafði átt við langa
og þungbæra vanheilsu að stríða.
Frú Stefanía var væn kona og
vinsæl; auk eiginmanns síns
lætur hún eftir sig mann-
vænleg börn; meðal þeirra er
söngkonan góðkunna, ungfrú
Margrét Helgasop. Systir hinn-
ar látnu er frú Sigþóra Tómas-
son á Reynistað í Mikley.
+
George Frederick Morris og
Lára Rósa Bjarnason voru gefin
saman á heimili brúðarinnar, 245
Belvedere Street, Wpg., á fimtu-
daginn 21. marz, að viðstöddum
stórum hópi ættingja og vina.
Brúðurin er dóttir þeirra Guð-
mundar Bjarnasonar og Halldóru
konu hans.
*
Gifting—
Gefin voru saman í hjónaband
23. marz s.l., að 52 3rd Avenue.,
Gimli, Gunnlaugur Benedikt
Benson og Jónína Lovísa Stef-
anson. Brúðguminn er sonur
þeirra Mr. og Mrs. B. W. Ben-
sonar, Hecla, og brúðurin er
dóttir Mr. og Mrs. G. Stefan-
sonar, Vidir. Svaramenn voru
Thor Stefanson, bróðir brúðar-
innar og Ingibjörg Benson, systir
brúðgumans.
Framtíðar heimili brúðhjón-
anna verður í Hecla. Séra Skúli
Sigurgearson gifti.
*
Gjafir til Betel í marz 1946—
Mrs. Soffía Thordarson, Betel,
afmælisgjöf $1.00; Mr. Helgi S.
Sigurdson, Betel, afmælisgjöf
$5.00; Mr. og Mrs. J. K.'Ólafson,
Gardar, N. Dakota, í minningu
um Lieut. Thos. L. Brandson sem
féll í sjó orustu undan strönd-
um Frakklands 30^ apríl 1944
$5.00; Mrs. V. Blondahl, Winni-
peg $5.00. Með beztu þökkum.
J. J. Swanson, féhirðir,
308 Avenue Bldg., Winnipeg.
+
Mrs. Chris. Oddstead, Sacra-
meno, California. lézt 1. apríl
s.l. af völdum slyss. Hún lætur
eftir sig 2 dætur, 4 syni, ásamt
eiginmanni. Þessi fregn var sím-
uð Lögbergi á mánudaginn.
+
Gjafir í Minningarsjóð Banda-
lags Lúterskra Kvenna
Kvenfélag Bræðra safnaðar,
Riverton, $15.00, í minningu um
Pétur Hoffman Hallgrímsson.
Með innilegu þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
+
The Junior Ladies Aid of the
Fir^t Lutheran church will hold
their regular meeting in the
church parlors on Tuesday, April
9th, at 2.30 p.m.
TIL ÓLAFS THÓRS, FORSÆTISRÁÐHERRA,
í tilefni af 20 ára þingskaparafmœli hans, 19. janúar 1946
Enn skeður að kotungur kveður sér hljóðs
— sem kemur oft fyrir í sögum —
því var eg stóðat ekki stillingu ljóðs
þó sterkur sé ekki í bögum.
Það kvað sundum leynast hjá karlnum heima
sem kóngshöllin frægasta hafði ekki að geyma.
En vart hef eg átt þennan gersemis grip
né gróandi ljóðsins í anda.
Þó minnist jeg ungur ég sá hann í svip,
er eg sveif milli draumanna landa.
En lággengi annara læstu mig inni,
svo ljóðið er smærra frá hörpunni minni.
U.
Hörpustreng skal stilla
stefna til þín ljóði,
blómum fang þitt fylla —
fyrirliðinn góði.
Drenglund þín og dáðir
dæmin mörgu sanna.
Góðu sæði sáðir
sól í hjörtu manna.
Eins má á það minna
engin gleymska máir,
leituðu þín og þinna
þeir, sem voru smáir.
Oft varð af að taka
eins að fornu og nýju.
Báru þeir til baka
bjarta von og hlýju.
Við þig lánið leiki
Ijós í ríku happi,
Aldrei skálm þín skeiki
skilminganna kappi.
Þó að brotsjór bylji
bátsins fyrir safni,
stærri er sterkur vilji,
stýri í drottns nafni.
Hjálmar á Hofi.
llllllllllilllinilWlllllllllNIIIIIIIIHIlllllllllllllllllllllllllll!llllllll!ll!lll!llll!llllllll!!lll!l!!lll!ll!ll!IJ||||||||||||l!l|||l||li{illllipi|lllll||||!|||!!!|||||!|||||||||!||||||!|||||!i|||||||i!|||||||{ii!||y|!||ii|||i|||||i|{|||||||j
........................................................................