Lögberg - 25.07.1946, Blaðsíða 5
V
»
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ, 1946.
5
AtiUGAAUL
t\\tNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
TIL MINNIS
Sjö manns drukknuðu í Mani-
toba á einni viku fyrir nokkru
síðan. Varið börnin við hætt-
unni við vatnið, kennið þeim að
synda og venjið þau á að fylgja
öryggisreglum.
♦
Þegar þér er tilfinnanlega
heitt, er gott að hræra dálítið af
salti út í vatn og drekka.
♦
Flugur eru sýkilberar. Gætið
þess að vírnetin á gluggum og
hurðum séu í lagi, svo að flug-
urnar komist ekki inn í húsið.
Verð sérstaklega varkár þar sem
börnin eru.
*
Hreint loft og sólskin byggir
upp börnin. Gefið þem leikföng
fyrir útileiki, svo þau leiki sér.
sem mest úti. Bæjarbörn ætti að
senda út í sveit eða í sumarbúðir
á sumrin, ef mögulegt er. Þar
safna þau kröftum og heilsu fyrir
vetrarmánuðina.
•f
Á þessum tíma árs er hægt að
minka brauðneyzluna að miklum
mun, með því að borða garðmeti
í staðinn. Það er líka alveg eins
holt eða hollara. Þannig verður
og meira hveiti aflögu til þess að
senda til hins hungraða fólks í
Bvrópu.
♦
Nú þykir mörgum gaman að
baða sig í sólskininu, svo að
kroppurinn verði sólbrúnn á lit-
inn. Varastu að fara of geyst í
þetta; ba'kaðu þig ekki í sólar-
hitanum um miðjan daginn of
lengi. Liggðu úti í sólskininu að-
eins stutta stund í senn.
Lærið sem fyrst björgunar og
lífgunar aðferðir. Sendið eftir
leiðbeiningum um þetta til De-
partment of National Healtþ and
Welfare. Gerið þetta áður en þið
farið út 'í sumarbústað ykkar við
vatnið.
-f
Það var eftirtektarvert hve
margir hinna afturkomnu her-
manna, þeirra er ekki særðust,
voru miklu hraustari en áður en
þeir gengu í herinn. Hermenn-
irnir neyttu tiltölulega mikils
garðmetis.
-f
Látið ekki oddhvassa hluti
vera á glámbekk þar sem börn
eru. Látið þau ekki ná í títu-
prjóna, skæri, hnífa rakblöð eða
aðra hættulega hluti. Lokaðu
nælunum þegar þú ert að baða
ungbarnið, og láttu þær ekki þar
sem barnið getur náð í þær.
-f
Vertu ekki altaf inni; farðu út
í sumarblíðuna, lagaðu til í garð-
inum, farðu í göngutúr, gerðu
eitthvað til þess að komast út í
góða veðrið. Ef þú kemst ekki
út, sittu þá við opinn gluggann.
Þetta er nauðsynlegt til þess að
halda heilsu.
-f
HÚSRÁÐ
Prýðilegt að gera við smágöt á
ílátum með bréfalakki. Látið loga
af eldspýtu leika um lakkstöng-
ina og lakkið drúpa í gatið sem
á að gera við. Sléttið yfir með
hníf áður en lakkið storknar. Sé
gatið stórt er betra að leggja
sterkan pappír yfir það fyrst og
þekja síðan með lakki báðum
megin.
-f
Það er hægt að gera gamalt
uppþornað brauð sem nýtt aftur
með lítilii fyrirhöfn. Notið tæki-
^aerið eftir bakstur, vefjið deig-
um klút utan um brauðið og lát-
, 'Það vera inni í tíu mínútur,
takið þá dúkinn burt og bakið
brauðið þar til það er stökkt.
-f
Allir kannast við hvað erfitt
er að pressa herrabindi. Einna
bezta ráðið er að brjóta dagblað
saman d fleyg og smeygja því
inn í bindið og pressa síðan með
votum klút.
-f
Dr. Donald A. Laird:
Það er hægðarleikur að
eignast góða vini
Hafið þér heyrt fólk segja:
Öruggasta leiðin til að eignast
vini er að verða rikur, — þá mun
fólk þyrpast að manni”(?)
Eg spurði gamlan bekkjarbróð-
ur minn, sem hafði auðgast
skyndilega á kaupsýslu, hvort
auðlegðin hefði atflað honum
margra vina.
“Eg hélt það nú í fyrstu,” svar-
aði hann, “en sá fljótt, að þetta
voru alls ekki vinir, heldur fólk,
sem var í vandræðum með sjálft
sig og var á mannaveiðum eftir
einhverjum, er gæti haft af fyrir
því — eitt tímanum með því.” Og
hann bætti við: “Beztu vinirnir,
sem eg hefi eignast, eru enn, sem
komið er, bekkjarbræður mínir,
félagarnir, sem eg eignaðist, er
eg var að brjótast til mennta í
gámla daga.
Stúlka, sem erft hefir stórfé, á
örðugt með að átta sig á þvá,
hvort karlmennirnir, sem tilbiðja
hana, gera það fremur hennar
vegna en peninganna hennar. Og
svipuðu máli gegnir um nýríkt
fólk, sem allt í einu er orðið um-
kringt stimamjúkum viðhlæj-
endum. Öuggasta leiðin til þess
að eignast sanna vini, er sú, að
eignast þá ekki vegna auðs og
allsnægta. En öruggasta ráðið til
þess að komast áfram í lífinu er
að vera vingjarnlegur við aðra.
I Ohio var kaupmaður, sem
verzlaði í litlu þorpi. Áður fyr
•hafði hann getað lifað sæmilegu
lífi á arðinum af verzluninni. En
þegar sú venja ruddi sér til rúms,
að fólk fór að panta vörur í pósti
frá stórverzlununum í Chicago,
keypti það ekki af honum annað
en það, sem því bráðlá á þann og
þann daginn. Síðan komu hinir
stóru, hraðfara áætlunarbílar til
sögunnar. Og þá fór fólk til
Akron eða Cleveland í verzlunar
erindum. Áður en gamli kaup-
maðurinn vissi sitt rjúkandi ráð,
var verzlun hans blátt áfram að
engu orðin.
Þá guggnaði hann alveg á
rekstri búðarinnar, dró sig sjálf-
ur ií hlé og afhenti verzlunina
tveim sonum sínum. Þeir voru
þá enn kornungur menn og það
sem þeir tóku við, var lítil búð í
hrörlegu húsi, með lítt eða ó-
seljanlegu rusli, viðskiftamenn-
irnir horfnir og enginn eyrir í
sjóði til þess að kaupa nýjar
vörur fyrir!
Ekki virtist þetta nú álitlegt.
En bræðurnir uppgötvuðu, að
þeir áttu sér dýrmæta eign, sem
erfitt var að meta til fjár — ekki
í búðinni, heldur í sjálfum sér.
Þeir áttu sér þann hæfileika að
kunna að vera vingjarnlegir. Og
nú gripu þeir til hans af öllum
rnætti. Þeir lögðu hvað eftir ann-
að krók á ileið sína til þess að
rétta fólki hjálparhönd. Þeir lok-
uðu stundum búðinni til þess að
hjálpa bændunum að bjarga þur-
heyi inn í hlöðu undan rigningu.
Og þegar þeir fréttu, að einhver
nágrannakonan ætlaði til Akron
í áætlunarbíl í verzlunarerindum
en átti ekki heiman gengt vegna
ungbarna sinna, hringdu þeir til
hennar og buðust til að gæta
barnanna meðan hún væri að
heiman. — Eftir fá ár nam verzl-
unarve'lta þeirra hálfri miljón
dollara. Vinsemd þeirra hafði
sigrast á hinni sálarlausu sam-
keppnisaðferð póstkröfuverzlan-
anna í stórborgunum.
Vinsemd hefir dularfult vald
yfir fólki, en það er ekkert dular-
fult 'í því fólgið að vera vingjarn-
legur eða eignast vini með því
móti.
Það fyrsta, sem menn eiga að
gera, er að vera vingjamlegir í
viðmóti. “En mér er það alls ekki
eiginlegt,” segja margir. Gott og
vel, en skjótvirkasta aðferðin til
þess að öðlast velvildarkend er í
því fólgin að sýna öðrum vin-
semd. Þegar eg var kennari við
háskólann í Wyoming, kom eitt
sinn til mín rauðhærð freknótt
og ófníð stúlka og kvartaði und-
an því hve skólasystkin sín væru
óvingjarnleg við sig og það til
jþeirra muna, að hún var að
hugsa um að hætta námi um
jólin og hverfa þá heim til sín
fyrir ifullt og allt.
Var hún sjálf vingjarnleg við
aðra? Nei, þvert á móti, hún var
nöldursöm og gremjuleg á svip-
inn. Og auðvitað sýndi hún eng-
um minnstu vinarfiót. Eg gaf
henni hið ofur einfalda ráð að
vera vingjarnleg í viðmóti við
aðra, hvort sem henni væri slókt
eiginlegt eða ekki. Þetta hreif.
Hún fór að vísu heim í jólaleyf-
inu, en hún kom aftur í skólann
og hélt þar áfram námi. Síðast-
liðið vor var eg fenginn til að
halda ræðu á kvenfélagi nokkru í
einni af útborgum Chicago. Eg
varð næstum því orðlaus af
undrun, er eg uppgötvaði, að for-
maður félagsins var enginn ann-
ar en rauðhærða, rotintotulega
námsmærin mín frá Wyoming.
Formaður skemtinefndarinnar
sneri sér að mér og mæltl:
“Jæja, svo þér eruð, gamall
'kennari formannsins okkar. Hún
er sá bezti formaður, sem við
höfum haft í þessum félagsskap.
Hún hlýtur að hafa hlotið þetta
frábærlega vingjarnlega viðmót
sitt í vöggugjöf!”
Brostu til fólks til þess að
vekja athygli þess á vinsemd
þinni. Eg kom eitt sinn til smá-
bæjar nokurs í Mississippi með
Bob Bale. Við fórum saman í
búðir. Hann var alltaí brosandi
út að eyrum. Eg veitti því at-
hygli, að afgreiðslufólkið snérist
í kringum hann, eins og það sæi
engan annan. Sjálfur rétti eg
fram dollaraseðil, sem eg ætlaði
að kaupa fyrir. En Bob var altaf
afgreiddur á undan mér. Bros
hans var áhrifaríkara en pening-
ar. Síðan hefi eg alltaf brosað til
afgreiðslufólks í búðum, áður en
eg hefi ávarpað það. Slíkt er á-
hrifaríkara en mikið málskrúð.
Og eins eigum við að vera glöð
og elskuleg, þegar við hittum
fólk, sem við þefckjum — eða
okkur finnst, að við þekkjum.
Það getur hugsast, að við göng-
um þar einstöku sinum feti fram-
ar en vera ber, ef okkur kann
að misminna um kunningsskap-
inn, en oftast er þó betur farið en
heima setið í þeim efnum. Eg
var eitt sinn staddur í gistihúss-
anddyri í Albany ásamt ungum
manni, er hafði komist til leiftur-
skjótra metorða á stjórnmála-
brautinni. Við vorum að tala sam
an, þegar góðvin minn bar þar
að. Við heilsuðum honum báðir.
Eg því miður jafnvel kuldalega
blátt áfram, en stjórnmálamað-
urinn heilsaði honum alveg eins
og þetta væri bróðir hans, sem
hann væri að heimta úr helju.
Þegar vinur minn var farinn,
spurði hinn ungi stjórnmálamað-
ur: “Heyrið þér, hver var hann
nú aftur?” — Mig furðar ekki á
því, þó að sá fengi fleiri atfcvæði
en sumir aðrir. Verum ekki
kuldaleg — heldur elskuleg í við-
móti við aðra.
Hótfyndið og nöldursamt fólk
eignast aldrei vini. Leitið að
kostum annara og látið sem þið
ÍSLENDINGADAGURINN
í SEATTLE
Eins og mörg undanfarandi ár,
munu íslendingar í Seattle halda
íslendingadags- hátið að Silver
Lake, sunnudaginn 4. ágúst n.k.
Nefndin er nú í óða önnum að
undirbúa hátíðishaldið, og mun
reyna af fremsta megni að láta
það verða sem ákjósanlegast.
Við erum nú sérstaklega heppin
að hafa í okkar hóp ágætis söng-
menn. Tani Björnson og Dr. Ed-
ward Pálmason eru orðnir nafn-
frægir solo söngvarar sem er
unum að hlusta á.
Iþróttir af ýmsu tagi fara fram
og verðlaunum útbítt í glerhörð-
um peningum, til þeirra sem
röska?tir reynast. Aðsókn að
íslendingadags hátíðum okkar
hér í Seattle hefur ávalt verið
mjög góð. Landar hafa sótt sam-
komuna úr öllum áttum nær-
liggjandi bæjum og jafnvel úr
öðrum ríkjum, og hafa ávalt
skemt sér vel, og aldrei orðið
fyrir vonbrygðum.
Nú er friður fenginn og fram-
tíðin að verða bjartari. Því þá
efcki að koma saman og endur-
nýja gamlan kunningsskap og
hafa glaða stund hver með öðr-
um. Islendingadags hátíðishald-
ið hér í Vesturheimi má ekki
leggjast niður. Það ætti hin unga
Islenzka kinslóð að muna. Þó
að við hinir eldri hverfum af
sjónarsviðinu.
Lesið auglýsingu vora um Is-
lendingadags samkomuna í Se-
attle, á öðrum stað í blaðinu.
J. J. Middal.
BÚPENINGUR
Á ISLANDl
*
Samkvæmt nýutkomnum bún-
aðarskýrslum nam tala sauðfjár
á landinu á fardögum 1942 alls
tæplega 651 þús., en 618 þús.
vorið 1943 og 539 þús. vorið 1944.
Hæstri tölu ihefir sauðfé náð í
búnaðarskýrslum árið 1933, er
það taldist 728 þús.
í fardögum 1942 töldust naut-
gripir á öllu landinu 41,416, árið
1943 voru þeir 39,918, en 36,415
árið 1944. Hefir nautgripatalan
aldrei á síðustu öldum verið svo
há sem árið 1942.
Hross voru í fardögum 1942
talin 61,071, en i fardögum 1943
voru þau 61,876 og 60,363 í far-
dögum 1944. Var hrossatalan í
fardögum 1943 hærri en hún ‘hef-
ir nokkurn tíma verið.
Á hvert hundrað manna á
landinu 1944 koma 425 sauðkind-
ur, 29 nautgripir og 48 hross.
Sama ár er fjárflesta sýslan á
landinu Norður-Múlasýsla, 56991.
Næst er Þingeyjarsýsla (49437)
og þriðja Árnessýsla (44015).
Árnessýsla er sama ár hæst
um nautgripaeign (5560). Næst
er Rangárvallasýsla (3486) og
þriðja Eyjafjarðarsýsla (3141).
I Húnavatnssýslu eru sama ár
flest hross (11815). Næst er Rang
árvallasýs'la (8259) og þriðja
Skagafjarðarsýsla (7690).
Geitfé var á öllu landinu 1944
a'lls 1095, svín 1133, hænsn 76261,
endur 842, gæsir 748 og loðdýr
5098.
sjáið ekki galla þeirra. Hjálpið
öðrum til að öðlast trú á hæfi-
leifca sína, en forðist að leggja þá
á skurðarborð miskunnarlausrar
gagnrýni. Segið þeim öðru
hverju eitthvað gott um þá sjálfa.
Og ef þið getið ekki að því gert,
að brestir þerra vaxa ykkur í
augum, þá getið þið að vísu hugs-
að um þessa ágalla, en forðast að
hafa orð á þeim.
Reynið efcki að svipast um eftir
vinum á leið ykkar í lífinu, rétt
eins og þið séuð að leita að týnd-
'Um hlut. Þeir finnast ekki á
þann hátt. En það er hægt að
eignast þá með vingjarnlegri
framkomu. Og svo að orð Emer-
sons séu viðhöfð, þá er það alls
ekki einum vini of mikið, þó að
við eignumst þúsund.
Byrjið að brosa strax í dag.
—(Samtíðin).
HUNDRAÐ ÁRA
MINNINGARATHÖFN
Meir en 1500 Indíánar söfnuð-
ust saman nýlega í Ile á laCrosse
sem liggur 150 mílur í norður frá
Prince Albert, Sask. Tilefnið var
hundrað ára trúboðsafmæli ka-
þólsku kirkjunnar 1 Norðvestur
Canada. Margir af höfðingjum
kaþólsku kirkjunnar í Canada
voru iviðstaddir og þar á meðal
Villeneuve kardínáli, og stóð
þessi fagnaður með messuhöldum
og mikilli gleði yfir í viku.
Það var árið 1846 að , tveir
menn — tveir prestar — faðir
Louis Franqois Richer Lafléche
og faðir Alexander Antonin
Taché (síðar biSkup) lögðu upp í
birkibát (canoe) frá St. Boni-
face. Þeir héldu í Norður 900
mílur, unz þeir, eftir 65 daga
ferð, fcomu til verzlunarstaðar,
er Hudsons-flóa félagið rak við
Ch'urchill-ána. Um veturinn
söfnuðu þeir efni til mission-
húss bygginga (tré-bjálkum) og
um vorið var fyrsta missionar-
húsið í Vestur-Canada reist. Þeir
nefndu það St. Jean Baptiste.
Ægilegum erfiðleikum hafa
kaþólíkar þurft að mæta í þessu
trúboðsstarfi sínu. Eldur sópaði
í burtu öllum byggingum þeirra
árið 1867, sem til voru á trú-
boðssvaeðinu og skildi þeim ekk-
ert eftir.” Efcki einu sinni vasa-
klút, til að þerra tár sín með,”
sagði einn af bisfcupunum. Flóð
eyðilagði trúboðsstöð þessa í
annað sinn, eftir að hún var end-
urreist. Drepsótt geysaði á trú-
boðssvæðinu árið 1918, og tók
með sér þriðja hvern mann; 100
manns dóu úr drepsótt árið 1900
og árið 1923 brann hún í annað
sinn.
FRÉTTIR
(Framh. frá bls. 1)
Þegar um brot á vanalegum þétt-
leika er að ræða. þá segja þeir
að málma sé þar að vænta. Mikil
er breytingin frá því að málm-
leitarmenn urðu að nota klafca-
exina eina. v
Loðdýraræningjar gjörast ó-
viðráðanlegir í Norður Ontario.
Umboðsmenn Ontario stjórnar-
innar eru nótt og dag að reyna
að hafa hendur í hári þeirra
þanna, sem leggja fyrir sig ó-
leyfilegar veiðar á loðdýrum á
friðuðum eða óleyfilegum veiði-
svæðum í Norður Ontario, en
árangurslaust, því þó umboðs-
menn stjórriarinnar eyðileggi
veiðarfæri og taki einn veiði-
mannafloíkkinn fastan á eftir
öðrum, eru þau skörð óðara fylt
af öðrum. Það er altítt, þegar
menn þessir nást, að $20,000.00
virði af loðskinnum finnist í kof-
um þeirra, sem ávalt er gert upp-
tækt af fylkisstjórninni. Svo
vaxa þessi vandræði, að menn
eru hættir að vilja aðstoða um-
boðsmenn stjórnarinnar í viður-
eign þeirra við óaldarseggina.
Einn sem það gerði nýlega, fanst
í læk með byssukúlu-far í hálsi
og höfði.
* * *
Botninn hefir dottið úr verði
á síldarhreistri, sem á stríðstím-
unum komst upp í $3.50 pundið.
Hreistrið var notað mikið til eld-
varnar í sambandi við herútbún-
aðinn. Það var líka notað til
skrautgripasmíða. Verðið er nú
fcomið ofan í 10—12 cent pundið.
QUEBEC
Prestarnir í Quebec hafa feng-
ið lögreglustjórn Montreal-borg-
ar til þess að framfylgja 15 ára
gömlum lögurn um myndir í
blöðum, tímaritum og útiveggj-
um eða þiljum. Banna þessi lög
harðlega, að prenta, sýna eða
festa upp myndir af nöktu eða
hálfmöktu fólki, eða aðrar mynd-
ir, sem hneyksla siðferðismeðvit-
und manna. Hér eftir verður að
fá leyfi lögreglustjóra, áður en
nofckrar myndir eru sýndar,
prentaðar eða festar upp, í Mon-
treal-borg. Sektarfé sem nemur
$40.00 og 60 daga fangelsi bíður
þeirra, sem lögum þessum ó-
hlýðnast.
GAMAN 0G
ALVARA
Jarðskjálfti bjargaði föngum.
Einu sinni vildi svo til, að
allmargir jarðskjálftakippir
fundust í Suður-Portúgal, og sló
miklu flemtri á fólkið. Ekkert
manntjón varð, en hús skemmd-
ust mifcið. Gamall kastali frá
dögum Máranna, sem hafði ver-
ið notaður fyrir fangelsi, hrundi
til grunna, og tókst mörgum
föngum að strjúka.
~ 4»
AFREK PRENTVILLUPÚKANS
eru mörg og sum býsna spaugi-
leg. í gömiu þýzku blaði er t. d.
getið um, að smáborgari nokkur
hafi notið þess heiðurs að taka
þátt í hinum íbiirðarmiklu há-
tíðahöldum, er fram fóru í
SKAUTI (Scthoss) drottningar-
innar. Átti auðvitað að vera
hö'll (Schloss). í sama blaði gat
■ritstjórinn þess, að hann hefði
heyrt LÍK (Leiche) syngja. Nátt-
úrlega átti að standa LÆVIRKI
(Lerche).
+
GÓÐ SJÓN.
Tveir menn stóðu niður við
höfn og horfðu út til Viðeyjar.
Annar sagði:
“Heyrðu kunningi, sérðu þröst-
inn, sem situr þarna á Viðeyjar-
stofunni núna?”
“Já, eg held nú það,” svaraði
hinn. — “En sérð þú fluguna,
sem situr á stélinu á honum?”
+
RANGUR FRAMBURÐUR!
Drengurinn: Veiztu það, pabbi,
að eitt orð f íslenzkunni er alltaf
borið fram rangt?
Faðirinn: Og hvaða orð er
það, drengur minn?
Drengurinn: Orðið “rangt.”
4»
FORDÆMI
Allt þó virðist til ama
aldrei eg fæst um það,
segi mér standi á sama,
seilist d penna og blað,
æfi ákvörðun sterka
annað þó gefi sig,
læt ekki lífið verka,
leiðindafullt, á mig.
—Jónas Jónsson frá Grjótheimi.
*
“Sko, Ferdinand, — þarna er
befckurinn, sem við sátum á,
þegar við fcysstumst í fyrsta
sinni.”
“Eg man, að eg kyssti þama
einu sinni, — en það verst ekki
þú.”
“Nei, það er líka alveg satt.
Það var líka annar maður.”
•»•
Þegar eg sótti um stöðu hjá
Christian Science Monitor var eg
spurð að hvaða trúardeild að eg
heyrði til. Eg svaraði að mér
hefði verið innrætt trú Únítara.
Mér virtist hýrna yfir mannin-
um, sem var að spyrja mig og
hann mælti: “Eg læt það vera,
þú hefir þá ekki sannfæringu um
nokkurn skapaðan hlut.”
—Barbara Bigelow.
---------------------
NÝKOMIÐ!
NÝ UPPFINNING!
“GOLDEN”
MAGATÖFLUR
Ef þér kvfðiP fyrir máltftS,
vissum mat vepma gass — 6-
þæginda, finnið til of mikils
hjartsláttar; vonds bragðs,
uppþembu eða verkja af völd-
um ofáts eða ófdrykkju
Þá er óþarft að kveljast
FÁIÐ YÐUR HINAR
• Skjðtvirku
• Bragðgððu
“GOLDEN”
MAGATÖFLUR
360 töflur, $5.00; 120 töflur,
$2.00; 50 töflur, $1.00.
Reynsluskerfur, lOc.
FÆST I ÖLLUM LYFJABCÐ-
UM — LYFJADEILDUNUM