Lögberg - 25.07.1946, Síða 8

Lögberg - 25.07.1946, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ, 1946. t' Or borg og bygð Tveir ungir menn, annar frá Gknli, en Jiinn frá Winnipeg, lögðu á stað suður til Willow- Run, Mich., í lok síðustu viku, til tveggja vikna náms, og at- hugunar við Kaiser-Frazer bif- reiða verkstæðið í þeim bæ, sem er aðal bifreiða verkstæði hins volduga Kaiser-Frazer félags. Ted Árnason frá Gimli er að undirbúa sig undir sölu og með- ferð Kaiser-Frazer bifreiðanna, þvd hann og bræður hans hafa einkasölu ley.fi á öllum Kaiser- Frazer bifreiðum og Kaiser-Fraz- er verkfærúm í Nýja íslandi og nærliggjandi héruðum. Hinn æskumaðurinn er Hörður Stef- ánsson Einarssonar ritstjora, sem sendur er suður af aðalumboðs- mönnum Kaiser-Frazer félags- ins í Manitoba til að kynna sér söluaðferðir þar syðra og ýmis- legt annað sem að gagni kemur þegar bifre,iðasala hefst í Mani- toba. ♦ ♦ ♦ Frú Víglundur Vigfússon, sem að undanförnu hefur verið til lækninga á Grace spítalanum, fór alfarin -til Gimli fyrir skömmu síðan, þar sem þau Mr. og Mrs. Vigfússon dvelja fyrst um sinn á gamalmenna hælinu Betel. ♦ ♦ ♦ Hver sem kynni að vita um heimilisfang, eða utanáskrift Karls Steinssonar; Karl var bók- haldari hjá Otto kaupmanni Tul- iníusi í Höfn í Hornaf. Nokkru eftir aldamótin fór hann vestur um haf. Systir Karls, búsett í Reykjavík á íslandi hefir óskað eftir að fá að vita um bróðir sinn. Upplýsingar í þessu sam- bandi sendist til B. J. Hornfjörð, Árborg, Man. ♦ ♦ ♦ Jón bóndi Jónsson frá Vogar ásamt frú og tveimur sonum þeirra hjóna, voru á ferð í borg- inni í síðustu viku. Jón er með framsæknustu bændum byggðar sinnar, búhöldur hinn bezti og hinn ágætasti drengur í hvívetna, eins og þau hjón eru og- bæði. Engar sérstákar fréttir sagði Jón úr sinni byggð. ♦ ♦ ♦ Miðvikudaginn 17. þ. m., lézt í Ohurchbridge, Sask., ekkjan Margrét Sigurðardóttir Markús- son frá Dönustöðum í Laxárdal í Dalasýslu. Maður hennar var Jóhannes Markússon frá Spákellsstöðum í sömu sveit. Jarðarförin fór fram næsta dag; var húskveðja að heimili hinnar látnu og minn- ingarathöfn í kirkju Concordia- safnaðar; hvílir hún í grafreit safnaðarins. Margt manna var viðstatt. Hún lætur eftir sig tvö börn uppkomin, Sigríði og Gísla, innan bygðar. Síra S. S. Christopherson söng yfir. Blessuð sé minning hennar. -f -f ♦ Leiðrétting: Villa hefir slæðst inní eina af bæjarfréttum í Lögbergi í síðustu viku; þar stendur að séra Egill Fáfnis hafi farið til Hnausa til kenslu við sumarbúðir. Þetta er rangt; séra Egill Fáfnis fór ekki til Hnausa; ætlaði þangað aldrei, heldur til sumarbúðanna við Húsavík, og þangað fór hann. ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 14 júlí, voru þau Leonard Riglin að Saltcoats, Sask., og Thelma Jóhanna Bjarn- ason, gefin saman í hjónaband í kirkju Concordia safnaðar við Churchbridge. Var athöfnin há- tíðleg; rúmaði kirkjan ekki nærri alla viðstadda; fór fram á eftir kostugleg veizla í samkomuhúsi safnaðarins. Brúðirin er dóttir Magnúsar Bjarnasonar, póst- meistara í Churchbridge; brúð- guminn er af enskum ættum. Lögðu ungu hjónin af stað sam- dægurs áleiðis til Clear. Heim- MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands, prestur. Guðsþjónustur á íslenzku hefj- ast í Fyrstu lútersku kiikju á sunnudaginn 11. ágúst n.k. kl. 7 e. h. ♦ ♦ ♦ Árborg-Riverton prestakall— 28. júlí — Riverton, íslenzk messa kl. 8 e. h. 4. ágúst—Hnausa, ferming og altarisganga kil. 2 e. h.; Geysir, messa kl. 8.30 e. h. B. A. Bjarnason. ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 28. júlí prédikar séra Haraldur Sigmar í Vatna-/ bygðum í Sask., eins og hér segir: Mozart kl. 11 f. h.; Kanda- har kl. 3 e. h., og Wynyard kl. 8 e. h. Allir velkomnir. H. Sigmar. ♦ ♦ ♦ Messað á Lundar sunnudaginn þann 28 júuí, kl. 2 e. h. Ræðu- efni: Júdas var einn af læri- sveinunum. H. E. Johnson. ♦ ♦ ♦ Gimli prestakall— Sunnudaginn, 28. júlí — ensk messa að Gimli kl. 11 f. h. ís- lenzk messa kl. 7 e. h. Messa að Árnesi kl. 2 e. h. Skúli Sigurgeirson. ♦ ♦ ♦ Messað verður á Langruth 28. júlí, kl. 2 e. h. Ferming. H. S. Sigmar. ili þeirra verður Saltcoats, Sask. ♦ ♦ ♦ Hinn vel þekti landi vor, A. H. Pálmi, frá Jackson, Mich., kem- ur til borgarinnar 30. þ. m. og verður á Royal Alexandra hótel- inu fyrstu vikuna af Ágúst mán- uði, þar sem gamlir og nýjir kunningjar geta heilsað uppá hann; og þið getið verið viss um að það er bæði gagn og gaman að heimsækja hann Pálma. ♦ ♦ ♦ Samkvæmt frétt í dagblöðum, þessa bæjar, hefir alþingi íslend- inga verið stefnt saman til þess að athuga lagafrumvarp um inngöngu íslands í alþjóða sam- bandið sem stjórnin leggur fyrir þingið. Um lok síðasta mánaðar lézt í Victoria, B.C., Lawrence Far- rell. Hann var giftur íslenzkri konu, Svövu Bardal, dóttur þeirra Mr. og Mrs. A. S. Bardal í Winnipeg. Mr. Farrell var prýðis velgefinn maður og drengur hinn bezti í hvívetna. Mrs. Bardal var stödd á kirkjuþinginu í Minneota er ifrétt sú barst henni. Fór hún og sonur hennar Njáli vestur til að vera við jarðarförina. Er Mrs. Bardal svo að segja nýkom- in heim til sín aftur. Lawrence Farrell lætur eftir sig' ekkju og þrjú börn. ♦ ♦ ♦ Hinrik Johnson andaðist á sunnudaginn í þessari viku (21. júlí). Munu margir eldri Íslend- ingar kannast vel við hann; hefir hann átt heima hér í Manitoba í 60 ár, lengst af í grend við Ebor, Man., þar sem hann rak stóran búskap um langt ákeið, en nokk- ur síðustu árin var hann til heim- ilis í Winnipeg. Ekkja hans er frú Oddný Ásgeirsdóttir frá Lundum í Borgarfirði, nú til heimilis að 784 Bannatyne Ave., Winnipeg. Jarðarförin fór fram í gær (miðvikudag) kl. 2, frá útfararstofu Bardals. Hans mun verða nánar getið hér í blaðinu áður en langt líður. ♦ ♦ ♦ Gefin saman í hjónaband að prestsheimilinu í Selkirk, þann 22. júlí, af séra Sigurði Ólafssyni, Dr. Joseph Foch Roland Decosse, Winnipeg, Man, og Margaret Helga Helgason, söngkona sama staðar. Við giftinguna aðstoðuðu Dr. Sveinbjörn Stefán Björnsson frá Winnipeg og Miss Helga Norma Sigurðsson, Riverton, Man. Heimili nýgiftu hjónanna verður í Winnipeg. ♦ ♦ ♦ Mrs. Beggi Helgason frá Gimli, Man., er á Gen. Hospital, Wp0. þar sem hún hefur nýlega gengið undir uppskurð. ♦ ♦ ♦ Gefið í “Save the Children Fund”— Lúterska kvenfélagið, Langruth, Man., $25.00; “Old Time Social Club,” Langruth, $10.00. Meðtekið með innilegu þakk- læti. Hólmfríður Daníelson. ♦ ♦ ♦ Nú á þessum tímum þegar þjóðirnar svelta. — Það er kom- inn tírni fyrir olkkur að athuga þær milljónir sem horfa fram á sult og dauða í komandi fram- tíð. Við megum ekki eyða með- an aðrir þarfnast þess, segir fæðu ráðgjafi Englands. Á sama tíma gefur hann 'vínbruggurum á Englandi leifi til að nota 814,000 ton af korni fyrir árið 1946. Vínbruggarar eyddu árið 1938 660,380 tonnum af korni, og 1945 775,000 tonnum. 31. janúar 1946, höfðu vín- bruggarar á Englandi í sínum vöruhúsum, 449,000 tonn af “cereal og malt,” og 20,000 tonn af sykri. 1945 voru notuð 2,108,000 tonn af bruggi, og meira en helming- num af þeirri upphæð var eytt í vínbruggun, hitt var notað fyrir fóður. Á meðan þjóðrnar svelta, eyða vínbruggarar beztu fæðunni í eitur sem eyðileggur og drepur, til þess að safna meiru fé í sinn eigin vasa. Við í Kanada eyðum $1,000,000 á dag árið um kring fyrir áfengi. Hvað mikla fæðu gætum við sent til þeirra sem þurfa hennar Minnist BETEL í erfðaskrám yðar The Swan Manufacturing Company Manufacturers of SWAN WEATHER STRIP Halldor Methusalems Swan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 PERTH’S ANNUAL FUR EVENT Beautiful Coats in 1947 Styles Tremendous Savings ! FREESTORAGE UNTIL REQUIRED ! VISIT Perth’s Master Furriers 486 Portage Avenue með til að bjarga lífinu, ef við stoppuðum þessa eyðslu? A.S.B. ♦ ♦ ♦ Kirkjublaðið fyrir apríl og maí er nýkomið — hefir bæði fróð- leik og fegurð að færa. Meðal annars er þar ritdómur um bók séra V. J. Eylands, Lutherans in Canada, eftir prófessor Ásmund Guðmundsson. Lýkur prófessor- inn lofsorði á bókina og verk séra Eylans í sambandi við hana, og hrósar happi yfir því að Is- lendingur skyldi verða braut- ryðjandi á þessu landnáms sviði andans, og að hann skyldi leysa verkið eins vel af hendi, sem raun erá orðin. Ágæt mynd af séra Valdimar fylgir grein prófessorsins. Mrs. H. Nelson frá Los Angeles Cal., er stödd í borginni, í heim- sókn til systur sinnar, Mrs. J. Edwards, Ste. 20 Tremont Apt. ♦. ♦ ♦ Gefið í byggingarsjóð Bandalags Lúterskra Kvenna —■ The Icelandic Evangelical Syn- od of America, $50.00; Mr. and Mrs. G. Lambertsen, Glenboro, Man., $25.15; Winnipegosis Luth- eran Congregation, $20.00; Mrs. Guðrún Parker, Ottawa, Ont., $10.00; Winnipegosis Söfnuðir, $20.00. Meðtekið með innilegu þakk- læti. Clara Finnsson, 505 Beverley St. ORÐSENDING TIL KAUPENDA LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU A ISLANDI: Munið aB senda mér áskriftargjöld a8 blöSunum fyrir jflnllok. Athugið, að blöðin kosta nú kr. 25.00 árangur- inn. Æskilegast er að gjaldið sé sent 1 póstávlsun. # BJÖRN aUÐMUNDSSON, Reynimel 52, Reykjavlk. MANITOBA BIRDS FRANKLIN'S GULL (Continued) Franklin’s Gull nests in large colonies in the marshy sloughs and lakes. The Gulls appear in clouds of thousands of individuals and follow the heavy gang ploughs in flocks that almost hide the driver and team from view. They settle on the freshly turned black earth, packing into their eager crops the grubs, worms, and larvae that are scurrying to new shelter after the upheaval. Thus it goes from daylight to dark and the destruction carried into the insect ranks on these fields preparing for cultivation is enormous. In summer the attraction is generally grasshoppers and the number of these insects that a few hundred Gulls can devour in a day is an important factor in insect control. Economic Sialus—On the whole, the western farmer probably has no more efficient friend than this little Gull of tireless wing, and the indignation of the community should be experienced by those who disturb their nesting or interfere with their security. This space contributed by THE DREWRYS LIMITED MD167 ISLENDINGADAGURINN I' GIMLI PARK - 4 * ♦ • MÁNUDAGINN, 5. ÁGÚST, 1946 Forseti dagsins, STEINDÓR JAKOBSSON Fjallkona, FRÚ PEARL JOHNSON Hirðmeyjar: MISS CAROL DAVIDSON og MISS LOIS BLONDAL Skemtiskrá byrjar kl. 2 e. h. íþróttir byrja kl. 12 á hádegi ÍSLENDINGADAGURINN I SEATTLE, WASHIAGTOA Haldinn að Silver Lake SUNNUDAGINN 4. ÁGÚST, 1946 SKEMTISKRÁ KL. 2 E.H. Forseti: H. E. MAGNÚSSON Söngstjóri: TANI BJÖRNSON The Star Spangled Banner Ó, Guð vors lands Fjöldinn syngur Ávarp forseta H. E. Magnússon Einsöngur Tani Björnson Upplestur, kvæði Sigurður Stefánsson * Ræða Merkur gestur Einsöngur Dr. Edward Palmason Eldgamla ísafold My Country ’Tis of Thee Fjöldinn syngur íþróttir og verðlaun — Dans frá kl. 6 til 9 e.h. (Frítt kaffi allan daginn) Forstöðunefnd Jón Magnússon J. J. Middal Hermann Thordarson Halldór Sigurdsson Skafti Johnson J. B. Valfell Fred J. Fredricksson SKEMTISKRÁ: 1. O Canada. 2. Ó, Guð vors lands. 3. Forseti dagsins, Steindór Jakobsson setur hátíðina. , 4. Karlakór íslendinga í Winnipeg. 5. Ávarp fjallkonunnar, frú Pearl Johnson. 6. Karlakórinn. 7. Ávarp gesta. 8. Einsönigur, Guðmundur Jónsson. 9. Minni íslands, ræða, Séra H. E. Johnson. 10. Minni íslands, kvæði, Davíð Björnsson 11. Einsöngur, Guðmundur Jónsson. 12. Minni Canada, ræða, Paul Bardal. 13. Minni Canada, kvæði, Bergthor E. Johnson. 14. Einsöngur, Guðmundur Jónsson. 15. Karlakórinn. i 16. God Save The King. Kl. 4, skrúðganga, fjallkonan leggur blómsveig á landnema minnisvarðann. — Kl. 2, al- mennur söngur, undir stjórn Paul Bardal.—Kl. 9, dans í Gimli Pavilion; aðgangur að dansinum 35 cents. O. Thorsteinson Old Tiime Orchestra spilar fyrir dansinum. Að- gangur í garðinn 35 cents fyrir fullorðna, 10 cent fyrir börn innan 12 ára.. — Gjallar- horn og hljóðaukar verða við ,allra hæfi. —Sérstakur pallur fyrir Gullafmælisbörnin og gamla fólkið á Betel. — Karlakórinn syngur undir stjórn Mr. Sigurbjörns Sigurðssonar. Sólóisti karlakórsins verður Pétur G. Magnús. Mrs. E. A Isfeld aðstoðar Guðmund Jónsson, en Gunnar Erlendsson Karláfrórinn. — íslenzkar hljómplötur verða spilaðar að morgninum og milli þátfca. — Fyrsta “Tra in” fer frá Winnipeg, kl. 9.30, og kemur til Gimli kl. 11.28 f. h. Síðasta “Train” £er frá Gimli kl. 9.00 Allar ferðir eru miðaðar við Daylight Saving Time. *

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.