Lögberg - 08.08.1946, Side 1
PHONE 21 374
viyV^
Complele
Cleaning
Institution
Cleaning
Instilulion
59. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 8. ÁGÚST, 1946
NÚMER 32
Jón og Soffía Lindal og börn þeirra. Myndin tekin í
gullbrúðkaupsveizlu þeirra að Lundar
sunnudaginn 14. júlí, 1946.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦
Thc Mclody of Growth
/
There is a melody of inner glow
In every spark of life. Beneath the sod
It seeks the light to radiate and grow
And reach the height of its prospective God.
This song of growth, is like the voice or spring,
And opens up tfie fountains of the earth;
New life flows in the bough, the bud, the wing,
And thin young greens exult in their rebirth.
When human hearts respond to songs of light
Within the garden wisdom smiles upon,
Then thought may reach through depths as dark as night
The bloom within the petal of the dawn.
The soul will mold to form the perfect rose
When longing is the stem on which it grows.
FREDA McDONALD.
FREMSTA RÖÐ FRÁ V. T. H.—Ólafur Llndal. Ilford, Man.; Thor-
steinn Lindal, Dayton, Ohio; Ásgeir Lindal, Lundar, Man. Emil
Lindal, Ilford, Man.; John Lindal, Sherridon, Man.
ÖNNUR RÖÐ: Mrs. Elín Woodcock, Gillam, Man.; Mrs. Lára Lodge,
St. John, N.B.; Gullbrúðhjónin; Mrs. Laufey Thorgrimson, Winnipeg.
BAKRÖÐ: Einar Lindal, Lundar; Mrs. Helga Thordarson, Chicago,
111.; Vilhjálmur Lindal, Chicago, 111., George Lindal, Sister Bay, Wis.;
Daniel Lindal, Washington Island, Wis.; Mrs. Thora Halldorson,
Lundar, Man.; Franklin Lindal, Winnipeg, Man.; Mrs, Bertha
Tyndall, Winnipeg, Man.
(Sjá umsögn á bls. 5 og bls. 7)
FRÉTTIR
í árlegri kvæðasamkeppni í borginni Seattle, Wash.,
sem nýlega er um garð gengin, bar íslenzk, eða að minsta
kosti hálf-íslenzk stúlka sigur úr býtum, og birtum vér hið
prýðilega verðlaunakvæði ihennar í þessu blaði “Lögbergs”
með þökk og óskum im bjarta framtíð í Bragatúni.
♦ ■♦♦ ♦♦♦ ♦ ♦ ♦
HVEITISÖLUSAMNINGUR
STAÐFESTUR
Undanfarandi hefir samning-
ur á milli Kanadastjórnar og
stjórnar Breta staðið yfir, en nú
var hann staðfestur 25. júlí.
Með þessum samningi lofast
Bretar til að kaupa um billjón
dollara virði af hveiti af Kanada-
mönnum á næstu fjórum árum.
Lofast Bretar til að borga $1.55
fyrir bushelið fyrstu tvö árin,
$1.25 lámarksverð þriðja árið,
og $1.00 Hágmanksverð fjórða ár-
ið, og skal söluverð tveggja síð-
ani áranna ákveðið ekki síðar en
í desember hvert árið. Verð þetta
er bundið vdð Fort William, Port
Arthur, Vancouver og Church-
ill.
í það heila nemur bushelatalan
sem seld var 600,000,000 bush-
elum, og er þeirra bushela tölu
skift þannig niður á árin:
Árið 1946—’'47 — 160,000,000.
Árið 1947—’'48 — 160,000,000.
Arið 1948—’'49 — 140,000,000.
Árið 1949—’'50 — 140,000,000.
Þegar verzlunanmiála ráðgjafi
Kanada sagði frá þessum samn-
iangi í Kanada þinginu á fimtu-
daginn, sagði hann, “Samningar
þessir eru hagkvæmir bæði fyrir
Kanada og Breta.”
♦ ♦ ♦
BRETLAND
Það er nú liðugt ár síðan að
aiþýðuflokkurinn á Englandi
kom til valda og á því ári hefir
margt skeð í heiminum, á Eng-
landi og jafnvel innan alþýðu-
ifilokksins sjálfs. Vonirnar hafa
ekki allar ræst. Þær gjöra það
sjaldan. Beiskjan út af stjórn-
anskiftunum, hjá þeim, sem
undir þóttust verða, hefir lítið
rénað, og Óánægjan innan al-
þýðuflokíksins sjálfs hefir farið
vaxandi, að eg nú ekki tali um
þá af mótstöðumönnum þess
flokks, sem mótfallnir eru sós-
síalista sitefnunni. En athafnir
Alþýðuflokksins brezka á því
sviði, eftir árið, eru:
Þjóðeignir nú
1. Engfllands bánkinn. Alþýðu-
stjórnin — þingið, gaf fyrri eig-
endurn þess bánka ríkisskullda-
bréf fyrir hlutaeignum sínum í
bán'kanum, sem báru sömu vexti
og þeim var áður greitt af hin-
um fyrri eignabréfum sínum.
Bankastjórnin sem áður var
endurskipaður, og með honum
16 ráðunautar — þektir iðnhöld-
ar, og fjármálamenn.
2. Kolanámur ríkisins teknar
í þjóðar þjónustu. Þeim er nú
stjórnað af ríkisnefn sem í eru
iðn höldar, vísindamenn, verka-
menn og fjármálamenn. Verk-
efni þeirrar nefndar er, að auka
kolaframleiðsluna, en til þess að
ge'ta gjört það er nauðsynlegt, að
hætta, eða minka kolagröft í
sumum námunum, en auka hann
í öðrum, vinna úr og notfæra
sér úrgang sem áður fór til ó-
nýtis, ákveða kolaframleiðsluna
og kola verðið, og ákveðið er að
eyða $600,000,000 á næstu fimm
árum til að fullkomna vélar og
vinnutæki í námunum.
3. Útvarpið BBC sem hefir
verið í höndum einkafélags í
tuttugu ár með fjárstyrk frá
sltjórninni, er látið vera undir
sömu stjórn og með sama fyrir-
komulagi í næstu fimm árin.
4. Trygging. Þjóðtryggingar-
lög alþýðu stjórnarinnar á Eng-
landi, eru mjög lík þjóðtrygg-
ingartillögum þeim sem Mr. Bev-
eridge fcom fram með fyrir
skömmu, og tryggja mannfél-
agslegt sjálfstæði hvers einasta
manns frá vöggunni til grafar-
innar.
♦ ♦ ♦
Nú til þingsályktunar
1. Þrjú þjóðeignar flugfélög,
undir stjórn og í lumsjá flug-
leiða ráðhlerra rí'kisins annast
öll flugleiða samibönd Englands
undir vanalegu viðskiftafyrir-
komulagi.
2. Land og sæsímar sem fyrir
16 árum voru með samþykki
stjórnarinnar sameinaðir að því
er eign og starfrækslu snertir,
verða teknir í þjóðeigna þjón-
ustu.
3. Járn og stál. Síðastliðinn
maí mánuð samþykti þingið á
Bretlandi þá tillögu stjórnarinn-
ar, að þjóðin taki þá í sína eign
og þjónustu, vissa parta járn og
stál framleiðslunnar. Eftir frek-
ari undirbúning, verður frum-
varp lagt fyrir þingið, sem á-
kveður að járnefni allt, ofnar
til kola bökunar (coke), sem
ekki koma undir ákvæði kola-t
■' ’D
namulaganna, sorajárn, og mes(
af nýsteyptu stáli, meirháttar
járnmylnur, og eitthvað af fág-
unar verkstæðum, verði þjóð-
numið, en hvar línurnar verða
dregnar í því sambandi, er eml
óákveðið. Á meðan að fram úr
því verður ráðið, er áform stjórn-
arinnar að skipa nefnd sem um-
sjón hafi með stálframleiðslunni
og sjái um að gnægð hráefnis
sé fyrir hendi, og það er einnig
á valdi þeirrar nefndar að inn-
leiða nýjar og nothæfar fram-
leiðsluaðferðir innan verksmiðj-
anna
4. Heilbrigðismál. Árið 1948
verða komin í gildi heilbrigðis-
lög á Bretlandi, sem ákveða full-
komna llæknis þjónustu undir
alþjóðar fyrirkomulagi, og
sjúkrahússvist.
5. Atomic orkan. Yfir henni
verður þjóðþarfa ráðherranum
veitt nærri ótakmarkað vald, á
eftirliti með því, upplýsingum
um það, og einkaréttmdum, og
leyfum í sambandi við það.
♦ ♦ ♦
Til athugunar í nefndum
Fimtán stóriðnaðar fyrirtæki,
fataverksmiðjur, húsgagna verk-
smiðjur og smlájárn verkstæði
verða ekki þjóðnýtt, nema fram
leiðsla þeirra verði ónóg. Nefnd
manna athugar tillögur hinna
ýmsu nefnda sem í eru verka-
menn, forstöðumenn iðnaðastofn-
ana, og umboðsmenn almenn-
(Framh. á bls. 4)
INGVAR GÍSLASON
LÁTINN
Hann lézt á Almenna sjúkra-
húsi borgarinnar á fimtudaginn
25. júlí s. 4., eftir stutta sjúkra-
hússvist.
Ingvar heit. lætur eftir sig
fjórar dætur, Mrs. J. E. Binga-
mon og Mrs. L. A. Licalzie í
Chicago, 111., Mrs. J. Gillis, Steep
Rock, Man., Mrs. H. Gillis, Bay-
end, Man., og fimm syni, Ingvar í
Calgary, Oddgeir 1 Crofton, B. C.,
Ralph, Steep Rock; Thor, Car-
man, Man., og Ósfcar Gíslason,
Reykjavík P. O., Man. Kona
Ingvars, Þóra, lézt s. 1. Febrúar.
Líkið var flutt til Reykjavík
urbygðar, og jarðsett í heima-
sveitar grafreit hins látna.
Útförinni stjórnaði A. S. Bar-
dal útfarástjóri, en séra Philip
M. Pétursson jarðsöng.
i----------
Giftuvænleg hjónaefni
Síðastliðinn fimtudag opin-
beruðu trúlofun sína í New
York, þau Ólafur Björnsson
attaché við íslenzka sendiráðið
í Wasihington, og ungfrú Erna
Gunnansdóttir úr Reýkjavík.
Ólafur er lögfræðingur, sonur
Sveins Björnssonar forseta Is-
lands, en heitmey hans er dótt-
ir Gunnars Einarssonar banka-
ráðsmanns og forstjóra við ísa-
foldar prentsmiðju. Ungfrú
Erna hefir árllangt stundað nám
við nafnfrægan kvennaskóla í
bænum Mt. Carrol í Illinois-
ríkinu; hún er nú á förium til
íslands. Ólafur Björnsson hefir
verið settur um hríð aðalræðis-
maður íslands í New York í fjar-
veru Dr. Helga P. Briem, sem
dvalið hefir um hríð á íslandi á-
samt frú sinni og dóttur.
\ -----------------
Á LEIÐ HEIM
í síma samtali við föður
sinn, hr. Ásmund P. Jó-
hannsson, í gærkveldi kl.
12, sagði Grettir konsúll,
að þeir félagar frá Winni-
peg færu á stað til íslands
um hédegi í dag (fimtudag)
með bandarískri herflugvél.
Auk félaganna frá Winni-
peg, gat konsúllinn þess að
með þeirri sömu flugvél
færi prófessor Magnús
Jónsson frá Reykjavík.
Aðrir, sem fara ætluðu með
íslenzku flugvélinni bíða
þar til hún er tilbúin.
LANDIÐ OKKAR
(Minni Kanada, flutt að Gimli 5. ágúst 1946.
Landið okkar, ungt og frítt,
Ávalt blóma fegurð skrýtt,
Veginn vísar bjarta.
Angan vors og sumar sól
Sendir yl um dal og hól;
Vekur von í hjarta.
i
Landsins okkar laufafjöld
Litum prýdd um haustsins kvöld,
Lyftir hugum hœrra.
Vetrar tign með storma stríð,
Stœlir vöðva og hetju tíð;
Stefnir að veldi stærra.
Landið okkar, andans þor
Efli hvert þitt framtaks spor,
Á Ijóss og vona vegi.
Treystu á ungra magn og mátt.
Merkið ávalt settu hátt,
Mót sól og sumardegi.
Landið okkar, ást til manns,
Andar lífi kœrleikans,
Og greiðir göfgis arðinn.
Lítilmagnans vörður vert;
Virtu alt með heiðri gert;
Það frœgan gerir garðinn.
Landið okkar, vanaiis völd,
Vekja deyfð og lífskjör köld;
Nýtt við skulum skoða.
Treystum þegnrétt, trú á þjóð,
Trygð á andans frama slóð
Frið og frelsi að boða.
Landið okkar, áldrei má
yfir fymast minning þá;
er frumbýlingar festu.
Afrek þeirra, sorg og sár,
sögufrægð um þúsund ár,
dæmin dýrstu og beztu.
Landið okkar, sigursól
Signi öll þín mannaból;
og vami geig og grandi.
Drottinn breiði blessun á
bömin þín, og Ijóssins þrá
tryggi í bræðrabandi.
—Bergþór Emil Johnson.
ISLAND
I.
Vakna þú ísland! útverðirnir sungu.
Ómarnir flugu yfir brimhvít höf.
Fjallkonan kallar alla hina ungu
upp, fram til sigurs. Leyfa má ei töf.
Tröllvaxnar fylgjur liðins aldaranda,
ógnuðu þeim, sem ryðja vildu braut.
Fjötmðu þá, sem hefjast vildu handa.
Hundeltu þá, sem létta vildu þraut.
Glottu við tönn og stóðu föstum fótum
fullhugar Islands, djarfir, sannir menn.
Andþrengsla voðann rifu upp með rótum. —
Rokvindar þjóta. — Fjöllin standa enn.
Nú hefir tsland fullveldi sitt fengið.
Fegursti draumur sá er þjóð vor á,
hefir rætzt, og gullöld aftur gengið
í garð, sem áður undir fargi lá.
Risin er öld, sem gróandanum gagnar.
Gullfagrar sýnir hrífa þjóðarsál
í þúsund liðu. Fjallkonan því fagnar.
I frjálsum huga þroskast guðamál.
II.
Fossamir syngja, fagna virkjan nýrri.
Fœðast í Ijós og gera býlin hlýrri.
Gróandann auka, byggðir verða betri
Blómkrónur springa út á hlíðarsetri.
Framtökin stækka, fleiri hendur vinna.
Fólkið er glatt þó mörgu hafi að sinna.
Lúkkunnar hjól því leikur mjúkt í hendi
líðandi ár. Það aldrei frá þeim vendi.
Frjálsu x landi, æskan kyndir elda,
einhuga, djörf, sem fylking æðri velda.
Stefnir að marki þráðu heilum huga.
Heldur skal falla en lifa og ekki duga
III.
Framtíðin björt skal hlúa að lýð og landi.
Lýðrœðis starfið tengjast friðarbandi.
Samhent til frama leiðist orka og andi. —
Ættlandið vemdar heilladís frá grandi.
Davíð Björnsson.