Lögberg - 08.08.1946, Blaðsíða 5

Lögberg - 08.08.1946, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. ÁGÚST, 1946 S ÁHI4VHÁI Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON HÚN ER FYRIR- MYNDAR HÚSFREYJA Hún er prýðileg húsfreyja ! Hún er þrifin eins og köttur; hjá henni sést aldrei ryk á nokkr- um sköpuðum hlut; gólfin henn- ar eru svo hrein og gljáandi að manni finnst að maður ætti að taka skóna af fótum sér um leið og maður stígur inn fyrir þrösk- uldinn. Oft hefur maður heyrt minst á þessar tfyrirmyndar húsfreyj- ur, og satt er það að þær eru margar aðdáunarverðar. En stundum geta þær líka verið dauð-leiðinlegar; hús þeirra er raunar tárhreint og þar er stað ur fyrir alt og alt á sínum stað, en einmitt fyrir þessa stöku reglusemi og þetta yfirdrífandi hreinlæti, er eins og einhver dauðadrungi hví’li yfir húsinu; það er eins og húsfreyjan hafi ekki einungis þurkað burt alt ryk og öll óhreinindi, heldur og alt, sem er lífrænt, og alla heim- ilishlýju. Húsið er eins og skrif- stofa eða verkstæði, þar sem ströngustu reglum verður að fyigja. Húsfreyjan sjállf, sem á að vera sál heimilisins, er þræll hússins; hún getur um lítið ann að talað en húsið, hreingerning- ar aðferðir, o. s. frv. Hafi hún fengið stúlku sér til aðstoðar við húsverkin, getur hún aldrei gert húsfryjunni til hæfis. Húsfreyjan er með stöðugan á'hyggju- og vandlætingarsvip og finst að enginn geta gert verkin eins vel og hún sjálf. Það lætur að lík- um að það getur enginn verið með sjálfum sér í návist svona kanu, né haft ánægju atf að koma á heimiili hennar. Ekki er hér verið að mæla með óþrifnaði eða því, að alt eigi að vera í óreiðu á heimilinu—langt frá því; slíkt er vitanlega engu betra og e.t.v. verra; en í heim- ilishaldi sem öðru, er hinn gullni meðalvegur beztur. Oft heyrum við hallmæli í garð þeirrar húsfreyju sem er miður duigleg við heimilisverk- in: Hún er nú meiri sóðinn! Það er aldrei nobkur skapaður hlutur í lagi hjá henni! Hins- vegar er altaf verið að hæla hinni, sem er í eilífum hrein- gerningum og nostri. Þótt und- arlegt megi virðast, er það oft svo, að hin fyrnefnda er skemti- legri í sambúð heldur en hin síðarnefnda. Fyrir nokkrum árum, sá eg kvikmynd sem fjallaði um þetta etfni; hin ágæta leikkona, Rosa- lind Russell lék húsmóðurina. Myndin var svo frábrugðin venjulegum Hollywood mynd- um, og svo vel leikin, að eg fór tvisvar að sjá hana. Hún var af hjónum, Mr. og Mrs. Craig, er voru vel efnuð og áttu ljómandi fallegt 'heimili. Konunni þótti vænna um þetta fallega hús, og húsmunina, og bar meiri um- hyggju fyrir því, heldur en nokkru öðru, jafnvel rnannin- um sínum. Hún vildi ekki ala börn, því það tmyndi vitanlega raska heimilishaldinu; hún var svo vandlát við vinnukonurnar, °g ergileg ef eitthvað var fært úr stað eða fór úr lagi, að þær folldu ekki hjá henni stundinni lengur. Þegar maðurinn hennar kom heim með vini sína, eða gestir komu, var hún að vísu kurteis í orði, en framkoma hennar var slík, að fólk gat ekki þotið sín. Ekkert mátti hreyfa úr stað. Ef að gestunum hafði orðið á að draga til stól, voru þeir ekki fyrr staðnir upp, en hún færði stólinn í sama stað. Ef þeir reyktu, var hún altaf að tæma öskudiskana eða opna glugga. Ef maður hennar hringdi eftir drykkjum, þaut hún þegar í kring með smámottur til að láta undir glösin. Ef einhverjum varð á að handfjatla einhvern skrautmunanna og dáðst að hon- um, stóð hún hjá áhyggjufull og lét strax muninn á sinn stað. Enginn gat litið í bók, því þær voru allar lokaðar inn í skápum með gleóhurðum. Ef einhver stóð upp, fór hún þegar að laga sessurnar. Allt þetta var svo á- berandi, og gestunum leið svo illa í þessu andrúmslofti að þeir hættu alveg heimsóknum sínum. Mrs. Craig dýrkaði húsið sitt og húsmunina og smámsaman úti- lokaði þessi dýrkun hennar alila aðra úr húsinu: Vinnukonurn- ar fóru, frændkonurnar fóru, vinirnir fóru og seinast voru hjónin ein eftir; en þegar Mr. Craig loks komst að raun um að hin fallega kona, sem hann 'hafði elskað svo mjög, bar meiri umJhyggju fyrir húsinu en hon- um sjálfum, þá skildi hann við hana og gaf henni húsið. Og nú var hún ein eftir, með þetta á- trúnaðar goð sitt; þá fyrst skild- ist henni að hamingjan er ekki bundin við hús og það efnislega, en þá var það um seinan. Sem betur fer eru ekki marg- ar konur líkar Mrs. Craig, en samt sem áður, gæti hún verið þeim konum nokkuð umhugsun- ar efni, sem halda að þær séu að rækja allar skyldur sínar við lífið með því að fága gólfin og halda ollu í stöðugri röð> og reglu á heimili sínu. ■f -f > BÖRNIN: Þurja að skilja, hvers vegna þeim er bannað. Óhlýðni barna stafar ekki allt- af af óþekkt. Stundum mætti kenna um því, að foreldrarnir og ibörnin skilja ekki bjvort ann- að. En nú er það svo, að athatfna- þörf barnainna er mikil, og eigi þau að þroskast að vitsmimum og 'Viljastyrkleik, verða þau að njóta nokburs athafnafrelsis. Foreldramir hafa og sínar rétt- mætu kröfur. Þeir eiga að bera ábyrgð á líkamlegri og andlegri velferð barnsins, og þeir ala án efa iþá von í brjósti, að börnin séu þeim til sóma, ánægjuleg heimilisprýði. Óskir foreldranna og hin eðlilega athafnaþrá barns- ins, þetta tvennt, hlýtur oft að rekast á, og þá veltur á því að finna barninu rétta leið, því til gæfu og veltferðar, án þess að það sé beinlínis kúgað til hlýðni og undirgefná. Smábörn eru oft gleymin, og óhlýðni þeirra getur stafað af því. Tveggja ára barn krotar, til dæmis, aftur otg aftur á þilið, gleymir jafnóðum, að það er bannað. í slíkum tilfellum er það móðurinnar að muna áminn- ingarnar og gefa barninu tæki- færi til að leika sér á meinlaus- ari vettvangi. Til barnanna má gera fáeinar, óbrotnar kröfur, en fylgja verður vel eftir, að þeim sé hlýtt. Eldri börn geta og gleymt sér í ákafa leiksins og brugðið út af settum reglum af vangá, en foreldrar, sem sýna skilning á eðli barnsins, forðast þó ofsareiði við þau. Hins vegar verða börn- in sem fyrst að læra að taka af- Gull brúðkaup að Lundar Sunnudaginn þann 14. júni si. var gullbrúðkaup þeirra Mr. og Mrs. John Lindals hátíðlegt haldið í samkomuhúsi Lundar- þorps. Þau voru gift í Winnipeg 31. okt. árið 1895 af séra Hafsteini Péturssyni. Settust þau þá að á því heimili sem verið hefur búst- aður þeirra jafnan síðan, nálægt Lundar. Hafa þau rekið þar búskap með rausn og dugnaði en þess utan höfðu þau þar smá- verzlun frá 1895 til 1914. Vinsældir þeirra hjóna hafa verið miklar eins og sjá má af því að yfir 500 mans sóttu þetta heiðurs-samsæti. Þau hafa tekið virkan þatt í tfélagsmálum sinnar sveitar. Mr. Lindal sat í sveitar- nefnd þessa héraðs í 13 ár, í skolanefnd 12 ár og var eftirlits- maður Manitoba-stjórnar um fiskiveiðar á Manittobavatni í 11 ár. Mrs. Lindal hefur verið for- seti bæði lúterska safnaðarins og kvennfélagsins hér og í mörg ár hefur hún verið meðlimur og gegnt embætti í kvennfélagi því er Women’s Institute nefnist. Mega það áreiðanlega undur heita, að hjón með þvílíkan barna hóp geti getfið sig svo mjög við almennum málum. Börn þeirra hjóna eru sextan og öll á lítfi . Þau eru þessi: 1. Ólafur Jón, Ilford, Manitoba, kvæntur og á eitt barn. 2. Thorsteinn, Dayton, Ohio, kvæntur og á sjö börn. 3. Ásgeir, Lundar, ókvæntur og býr heima hjá foreldrum sín- um. 4. Daniel, Washington Island, . Wisconsin, kvæntur og á þrjú böm. 5. Vilhjálmur K. Chicago, ó- kvæntur. 6. Franklin, Winnipeg, kvæntur og á eitt barn. 7. George, Sister Bay, Wisconsin, bvæntur og á eitt barn. 8. Jón I., Sherridan, Man., bvæntur og á tvö böm. 9. Emil, Iiltford, Man., kvæntur og á fjögur börn. 10. Einar H., ókvæntur heima. 11. Lára, Mrs. L. C. Lodge, Randolph P.O., N.B.. á tvö börn. 12. Helga, Mrs. D. C. Thordarson, Chicago, barnlaus. 13. Elín, Mrs. F W. Woodcock, Gillam, Man., á þrjú börn. 14. Bertha, Mrs. S. Lyndal, Winnipeg, bamlaus. 15. Laufey, Mrs. H. Thongrims- son, Lundar, á tvö börn. 16. Thora, Mrs. W. G. Haildor- son, Lundar, á tvö börn. Alts eru 65 í fjölskyldimni með tengdabörnum og barna- böraum. leiðingum gerða sinna, að svo miklu leyti sem unt er. Fjörmikil börn eru oft upp- vöðslusöm og þykja því óhlýðdn, en þeim er iþví meiri nauðsyn að njóta skynsamlegrar leiðbein- ingar, fá tækifæri til að nota kraftana á réttan hátt í starfi og leik. En sé með hörðu reynt að sveigja þau undir vilja foreldr- anna, fyllast þau oft þrákelkni og kergju. “Persónulegar” fyrirskipanir foreldranna hafa ekki ávalt holl áhrif á barnið, þó að það geti ef til vill lært á þann hátt að hlýða af einhviers konar þrælsótta. Ef faðirinn, eða móðirin: segir, til dæmis: “Eg banna þér þetta!” “Þú hiýðir því, sem eg segi þér!” skilur barnið ekki hina eiginlegu orsök þess, að því er bannað. Segi móðirin hins Vegar: “J>ú mátt ekki fleygja kubbunum á gólfið, þá skemmist það!” fær barnið skynsamlega ástæðu fyrir for- boðinu og á hægara með að sætta sig við það. Skynsamleg rök og staðfesta í fyrirskipunum virð- ist yfirleiitt eiga betur við flest börn en sú aðferð, að ætlast til að þau hlýði skilyrðislaust í blindni. (Lausl. þýtt). Dagur. Það sem gerði þetta samsæti svo einstætt og eftirminnilegt, var að sjá öll börnin þarna sam- ankomin og mörg af bamabörn- um hjónanna, var það álitlegur hópur, því alt þetta fólk er hið manrrvænlegasta. Get eg til að sjaldan eða aldrei hafi slíkt brúðkaup verið haldið í Canada. Hér hefir mikið verk verið starfað og miki'll sigur unninn. Erfitt <var uim allar samgöngur þegar þau hjónin byrjuðu búskap sinn i þessari bygð. Allar nauð- synjar varð að sækja til Win- nipeg um vegleysur og farartæk- in annaðhvort uxa- eða hesta- vagnar. Landið var óræktað, skógi vaxið og votlendið mikið. Ótal dagsverk fóru í að ryðja hverja ekru og ræsta landið fram. Fjórar öreiga 'hendur urðu að vinna alt það verk og afla hinni stóru fjölskyldu lífsviður- væris. Hið fiskisæla veiðivatn gerði það mögulegt, en kalsamt var að stunda veikar á ísnum vetrarlangt á Manitobavatni. Margs þurfti við til að fram- fleyta heimilinu og láta hinn stóra ómagáhóp ekki líða skort á neinu. Það þurfti iðni og útsjón, sam- hendni og góða heimilisstjórn. Það er sjaldgætft að alt þetta fari saman eins og hér varð raun á. Fyrir það eitt áttu börnin gott heimili og lærðu snemma að taka þátt í störfum þess sem ábyrgir meðlimir þess. Reyndist þeim þetta hollur skóli tii undirbún- ings fyrir framtíð sína. Jafnframt þvá sem þessi hjón neyttu allrar orku til að búa börnum sínum sem bezta fram- tíð og skapa þeim hin beztu skil- yrði til heilsusamlegs þroska bæði andlega og likamlega, tóku þau virkan og þýðingarmikinn þátt i þroska og velferð síns sveitafélags. Bygðarbúar sýndu þakkir sín- ar með þvi að fjölmenna þeim til samfagnaðar á þessum þeirra heiðursdegi. Skemtiskráin var fjölbreytt mjög. Hún hófst með því að séra H. E. Johnson flutti stutt ávarp bæði á ensku og íslenzku. Mrs. Renesse frá Árborg mælti fyrir minni gullbrúðarinnar á íslenzku en Miss Salome Halldórsson á ensku. Fyrir minni brúðgumans mæltu þeir Páll Reykdal á ensku og C. Halldórsson, M.L.A. á ís- lenzku. Auk þeirra fluttu iþess- ir lengri eða skemri erindi: J. B. Skaptason, Guðm. Joihnson, Vog- ar, Daniel Lindal, S. Sigfússon, Vigfús J. Guttormsson. Milli þess sem ræður voru fluttar s'kemti karlakórinn, undir stjórn V. J. Guttormssonar, með söng, en W. G. Halldórsson söng ein- söng. Kári Byron sveitaroddviti af- henti heiðursgestunum gjafir með stuttri ræðu. Þær gjafir voru gullúr til Mrs. Lindal en lindarpenni til Mr. Lindals á- samt diskasamstæðu og pening- um tiil þeirra beggja. Samsætið fór hið bezta fram undir lipurlegri stjórn Heimis Thorgrimssonar tengdasonar gullbrúðhiónanna. Þess má geta að faðir gull- brúðarinnar, Jón Thorsteinsson, er enn á lífi og býr í White Rock í British Columbia. Var gull- brúðkaup hans og Mrs. Thor- steinson haldið tfyrir nokkrum árum síðan. Nú sendi hann dótt- ur sinni og tengdasyni heillaóska skeyti og önnur komu frá vmum þeirra í Winnipeg, Morden, Man., Chicago, Vancouver, Ingolf, Ont. einnig skrifað ávarp til Jóns frá sveitarnefndinni hér, með þakk- læti fyrir ágæta samvinnu. Seint mun þetta samsæti úr minnum Lundarbúa líða, en á- nægjulegast hefir það samt von- andi verið hinum öldmðu hjón- um, sem umkringd af ástvinum sínurn og vinum litu yfir langt FRETTIR (Frh. af bls. 4) Ákveðið hefir verið að Norð- menn sendi 4,000 hermenn til Þýzkalands í febrúar n. k. til að taka að sér eftirlit á parti af þeim hluta Þýzkalands sem nú er í umsjá Breta. Foringi þeirr- ar hersveiltar verður Wilhelm Hansteen. Umsjónarsvæði þeirra verður í nánd við Harz fjöllin, svo þeir þurfa ekki að týna niður skíðalist sinni. •f 4- -t FORVITNI RÚSSA Leynirannsókn frá hálfu Rússa stendur yfir í Svíþjóð. Er hún í því fólgin að sendiherra- sveit Rússa í Svíþjóð, og aðrir umboðsmenn þeirra eru i óða Öinn að komast á snoðtfr um, það, hver stefna meiriháttar manna í Svíþjóð sé — sérstak- lega hvort þeir séu andvígir Kommúnista stefnunni, eða hvort þeir haldi taum vestrænu þjóðanna. Forvitni þessi lætur þó ekki staðar numið við stjóm- málastefnu Svíanna. Hún vill líka fá að vita hvort þessir menn séu giftir, hvað mörg börn þeir eiga, hvort þeir séu heimilis- kærir og láti sér annt um fjöl- skyldur sínar, hvað mikla pen- inga þeir eiga á banka, hvort þeir ieigi hús, eða eigi sín eigin heimili, hvort iþeir séu af góðu fólki komnir, eða hvort ættfeður þeirra hefðu verið alþýðufólk. -f -f ♦ UNRRA OG SOVIET RÍKIN 1 maí s.l. sendi UNRRA mat og aðrar vörur til Ukraine. Mat- vöru sem nam 153,913 tonn, en föt, klæðnaðarvörur og skótau 8,559 tonn; meðul 66 tonn; verk- færi og annað til jarðyrkjubóta 25,477 tonn; til endurreisnar iðn- aðartfyrirtæk|ja 11,743 tonn — alls fyrir maí 199,750 tonn. í júní voru sendar til Ukraine, vörur sem í allt námu 42,900 tonnum. -f -f -f TIL BYELORUSSIA VORU SENDAR Vörur sem hér segir: Fyrir maí s.l. 69,320 tonn af matvöru, 3,290 tonn af fötum og fataefni og skóm, meðúl 35 tonn, vélar og annað til endurreisnar akur- yrkju 5,007 tonn; til að endur- reisa iðnaðarfyrirtæki 6,831 tonn. Alls í maí, 84,483 tonn. 1 j-úní voru send 13,800 tonn til Byelorussia. í sambandi við Byeiorussia segir í skýrslu UNRRA: Fyrir stríðið voru 115,000 hross í þessu héraði, 2,290 traktorar, og 1 um 2,000,000 ekrur af landi var sáð korni. Nú eru þar 24,000 hestar, 760 tractorar, 40% af sáðlandi ónotað; einn tíundi atf nautgrip- um eru eftir í héraðinu og 98% af svínum hefir fólk orðið að farga sökum fóðurskorts. -f -f -f HVAÐ ER AÐ SKE í ÞÝZKALANDI? Eftir fréttum frá Rússlandi að dæma, þá hafa blöðin þar óspart notað yfirlýsing Vyacheslaff M. Molotoffs utanríkisráðherra Rússa, sem hann gerði 10. júlí s. 1. um nauðsynina um sameinað Þýzkaland, sér til yfirbóta og áróðurs. Þó þau hafi ekki minst á aðal skilyrð* hans, eða að minsta kasti eitt af aðal skilyrð- um hans fyrir því að samvinna og heillaríkt æfistarf þennan dag. Þau þökkuðu líka fyrir sig með nokkrum vel völdum orðum og elzti sonur þeirra, Ólatfur, bar fólkinu kveðjur og þakkir fjöl- skyldunnar allrar. H. E. Johnson. P.S.—Geta má þess, að Jón Lindal á sérstaklega stórt og vel valið bókasafn og er margfróður maður. og sameining gæti átt sér stað, en það var að Þjóðverjar borg- uðu Rússum $10,000,000,000 í stríðs-skaðabætur, og hrós það um veglyndi Molotoffs hefir náð lengra en til Rússa sjálfra. Tveir leiðandi menn Kommúnista stefnunnar, þeir Wilhelm Pieck og Otto Grotewohl, hafa verið að ferðast um á umsjónarsvæði Breta, iti'l að segja þeim og Þjóð- verjum á því svæði, hve óend- anlega að Rússneska stefnan í málurn Þjóðverja sé þeim nær og hollari heldur en stefna vest- rænu þjóðanna. Á meðan að þessu fer fram á áróðurs svæðinu þá eru Banda- ríkja umlboð'smennirnir á Þýzk- alandi í óða önn að vinna að og búa undir hagkvæmt spamaðar sambanda á milli umboðssvæðis Bandaríkjanna á Þýzkalandi og hinna herteknu hluta landsins, samkvæmt stefnu og fyrirmæl-- um James F. Byrnes utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Bretar samþyktu í síðasta mánuði að fylgja fram stefnu og fyrirkomu- lagi Bandaríkjamanna í öllum aðál atriðum, í sínu umsjónar umdæmi. Frakkar hafa ekki enn lákveðið sig í þessu máli, en Rússar neitað að taka það til greina, en þeir sem bezt þekkja til þessara mála á þýzkaiandi, láta þá sfcoðun sína í ljósi, að Rússar muni nauðugir viljugir verða að taka stefnuna upp líka. Þetta fyrirkomulag Banda- ríkjamanna er á þá leið, að þeir ákveða að mynda nauðsynlegar þýzkar stjórnardeildir, eins og tekið er fram í Potsdam fyrir- mælunum. Stjórnardeildir þessar eru ut- anríkis viðskiptadeild. Deild sú gefur ráðstjóm sambandsþjóð- anna skýrslur um allar útflutt- ar og innfluttar vörur og hefir hönd í bagga með fylkja og sveitastjórnum. Sú deild hefir og með höndum ýms áríðandi mál sem hún hefir úrskurðar- vald í, en leggur aðeins hin þýð- ingarmestu stjómar atriði fyrir ráðstjórnina. Iðnaðardeild. — Sú deild á, samkvæmt fyrirætlunum Banda- ríkjamanna, að skipuleggja og sameina öl'l iðnaðarfyrirtæki í öllum hersetnu pörtum lands- ins — fjórum. Landbúnaðar og matvöru- deild. SMk deild sæji um mat- vöruforða þjóðarinnar, og að- stoðaði hana til að ráða framúr því spursmáli, með því, að skip- uleggja og sameina matvöru- framleiðisluna; innheimtu, sjái um tflutningstæki og flutning á matvörimni um alt ríkið. Fjármáladei'Id, sem væri undir leiðsögn ráðstjórnar sambands- ríkjanna, en hefði umsjón með fjármálum þjóðarinnar — það er allra herteknu svæðanna. Halda sameiginjlega fjárihirslu, ráðleggja fylkis- eða sveita- stjórnum í sambandi við fjár- mál sín; gefa ráðstjórn sam- bandsríkjanna bendingar í sam- bandi við fjármál ríkisins; ann- ast opinberar skuldir; hafa um- sjón með útgáfu gjaldeyris, og stofna þjóðibanka. Áætlaðar fyrsta árs tekjur fjármáladeildarinnar eru 14,- 400,000 ríkismörk ($440,000.00). Samgöngu og Póstmáladeild, ræður yfir flutningsgjöldum og póstgjöldum og öllu samgöngu og póstmála fyrirkomulagi. Flútningadeild, ræður yfir brautum, innanlandssiglingum, höfnum; strandferðum og þjóð- vegum. Ástæðan fyrir þessari stjóm- armyndun og sameiningarþörf er þannig gefin: “Hinar öru breytingar sem orðið hafa á hinni stjómmála- legu og ihagnýtu aðstöðu, hafa flutt atvikin langt fram yfir hin upprunalegu/ takmörk. Það get- ur enginn sameiginlegur lýð- ræðisþroski átt sér stað á með- al fólksins á Þýzkalandi, á með- an að þar kemst ekki á þýzk stjórn, er í framkomu sinni og athöfnum fylgi frumreglum lýð- ræðisins.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.