Lögberg - 05.09.1946, Page 3

Lögberg - 05.09.1946, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1946 3 Hallfríður Thorwaldson látin Hallfríður Thorwaldson Sjöunda júlí s. 1. lézt að heim- ili dóttur sinnar, Mrs. Octavíus Brandson í Los Angeles, Calif., merkiskonan Hallfríður Thor- waldson. Hún var fædd á Brú á Jökuldal 1861. Faðir hennar var Sigurbjörn Guðmundsson, ætt- aður úr Berufirði. Móðir hennar og kona Sigurbjörns var Signý Magnúsdóttir frá Sandi á Tjör- nesi. Hallfríður fluttist ung með foreldrum sínum að Hraunfelli í Vopnafirði. Hún misti móður sína innan fermingaraldurs. Tók þá við umsjá heimilisins að miklu leyti hjá föður sínum. Elfdist þannig hjá henni sjálfstæði og ráðdeild. Þegar ábyrgðin fellur á ungar herðar snemma verður að treysta á eigin úrræði, veitir það oft þroska, sem annars ekki fæst, ekki sízt þegar upplag og greind eru móttækileg. Þessi erfiðu æskuár voru skóli lífsins fyrir Hallfríði og hún var góður nemandi. Annars hafði hún not- ið þess uppeldis er þá tíðkaðist í sveitum. Islands og reyndist svo mikillega affarasælt fjölda mörg- um er til Ameríku fluttust. Því er eflaust ábótavant í mörgu, en átti einn þann höfuðkost að það skapaði alment hjá þeim er nutu, hungur eftir meiri upp- fræðslu og þrá að nota tækifær- in til þess að uppfylla þá þörf. Þannig reyndist það einnig þess- ari ungmær er hún átján ára gömul lagði áleiðis til Vestur- heims með föður sínum og Magn- úsi bróður sínum 1879. Fyrstu fjögur árin hér dvaldi hún í Duluth, og þar hófst undir eins viðleitnin að afla sér aukinnar mentunar og fræðslu. Með þörf- ina að vinna fyrir sér, var það ekki auðvelt, en verulegur áhugi áorkar miklu. Árið eftir að hún fluttist til Mountain í N. Dakota 1883, verður það úr fyrir henni að sækja ríkisháskólann í Grand Forks. Stundaði hún þar nám veturinn. 1884-5. Með henni var Lena Eyfond, sem nú er Mrs. B. T. Björnson í Boise, Idaho. Voru þærfyrstu Islendingar er stund- uðu þar nám, en upp frá því var stöðugur og vaxandi straumur ungmenna úr bygðinni íslenzku í Dakota á þennan háskóla og aðrar æðri mentastofnanir, svo engin önnur íslenzk bygð hefir komist þar til jafns. Miklu veld- ur sá er upphafinu veldur. Þeim mun fremur má telja hér til samhengis vegna þess að báðar þessar ungmeyjar tóku að sér kennarastarf í bygðinni og áttu þannig kost á að ná til æskunnar alveg sérstaklega. Kendi Hall- fríður um fimm eða sex ára skeið. Verða ekki rakin þau á- hrif er hún hefir haft á hina upp- vaxandi kynslóð. Þegar til þess kom að hún þurfti að uppala sín eigin böm kom í ljós hve mikil alvara henni var með að þau mættu njóta hinnar fylztu ment- unar. Að kynslóðin, sem á eftir hæmi, mætti njóta fyllra tækiy færis til menningar og þroska, hefir ætíð verið draumur og við- leitni þeirra, sem beztan skerf hafa lagt til uppeldismálanna. Það var leiðarljós í frumbyggja- sögu Vestur-lslendinga. Þegar þrædd er sú viðleitni verður við- urkent að margur kennarinn í bjálkaskólanum lagði ekki lít- inn skerf til að glæða það ljós. Þessi brautryðjandi kona átti þar óskiftan hlut að málum. Um 1890 tók hún að sér póst- afgreiðslu að Mountain og lét af kennarastarfi. Rækti hún hina nýju stöðu með sömu alúð. Á- vann hún sér sífelt vaxandi til- trú og vinsældir. I september 1894 giftist hún Elís Thorwald- son. Varð heimili þeirra áfram að Mountain. Hann fékst við verzlun og tók einig að sér póst- afgreiðslu. Var umsýsla öll rek- in með miklum áhuga og dugn- aði. Heimili þeirra varð eitt mesta höfuðból íslendinga á þess- um slóðum. Hefst nú það tíma- bil í lífi hennar þegar hún nýt- ur sín til fullnustu og aðal lífs- starf hennar byrjar. Hún er um- fram alt heimilismóðir, sem fyrst og fremst rækir þann reitinn er næstur er. En samhliða því tek- ur hún mikinn og góðan þátt í þeim málum öðrum er næst voru hjarta hennar. Safnaðarmál og kvenfélagsstarf nutu einkum krafta hennar. Velferðarmál bygðarinnar fengu oft sinn bezta stuðning á heimili hennar. For- ysta var henni eðlileg og var rækt á þann hátt að það vakti tiltrú almennings. Hún hélt uppi merki með heiðri meðan hún átti heimili í bygðinni, og vinátta og virðing fylgdu henni úr garði. Engin fjarlægð gat dregið fjöður yfir það, að þar, sem hún var, átti bygðin eina þá konu, sem mestan og beztan skerf hefir lagt til heiibrigðis og velferðar í lífi hennar og málum. Þau Thorwaldsons hjónin eign- uðust sjö börn, er öll voru hin mannvænlegustu. Nöfn þeirra eru þessi eftir aldursröð: 1. Wil- mar Hóseaá, var útskrifaður læknir, druknaði í gren við Chi- cago 1923. 2. Elízabet Þonbjörg, útlærð hjúkrunarkona, gift Magnúsi verkfræðingi Hjálmar- son. Þau eru nú til heimilis í Canal Zone við Panama-skurð- inn. 3. Octavía Sigurbjörg, gift- ist Einari Brandson, eignuðust einn son, Ellis Robert, er hlotið hefir námsverðlaun við Univer- sity of Southern California. 4. Sidney Thorwald, látinn fypr rúmum fimm árum síðan, verzl- unarmaður í Fargo, N. Dak., átti innlenda konu, eina dóttir. 5. Alfred Stígur, lögfræðingur í Chicago, giftur innlendri konu, eiga dóttir 19 ára og son 16 ára. 6. Elfríða Magnea, dó ung. 7. Elvin Magnús, giftist innlendri konu, hefir sint verzlunarstörf- um á ýmsum stöðum í Califor- níu og víðar. Sem húsmóður og móður mun Hallfríðar Thorwaldson tíðum verða minst vegna þeirra óvenju- legu yfirburða er hún sýndi í því að annast svo til fyrirmyndar var, stórt og gestk-væmt heimili, en láta það þó enganveginn verða til þess að barnahópurinn færi varhluta þeirrar nákvæmu móð- urumhyggju, sem henni var svo lagin. Hún lifði með börnum sínum, lét ekkert standa í vegi þeirrar reglusemi og stjórnsemi, sem einkennir beztu heimili, en átti líka þá þollund og skilning á ástæðum er heilbrigt uppeldi og mannlíf ætíð krefst. Hún var kennarinn, sem setti sig inn í það að skilja þá er á'hrifa hennar nutu, og kunni því betur að miða að mafki rneð árangri. Persóna hennar flutti með sér. áhrif er settu stimpil á heimili hennar og umhverfi. Stórhugur frumherja- tímábilsins var henni í blóð runninn enda dróg ekki maður hennar úr þeim áhrifum. Það gat engum dulist hvílík atkvæða- kona var þar fyrir er hennar naut við. Utan heimilisins var það sér- staklega kirkjan og kristindóms- málin, sem hún bar fyrir brjósti og veittidiðsinni. Fylgdi þar ein- beittur hugur máli. Það þurfti aldrei að leiða getur að hver af- MAÐUR MYNDAR DAUÐA SINN B. J. Stav, sænski myndasmið- urinn, var einn af þeim mönnum, sem höfðu tekið að sér að kom- ast að hvar skipi, sem var á ferð frá Trinidad, með mikið af gulli og var sökkt af kafbát, lægi á sjávarbotni. Með Mr. Stav var félagi hans, Ernest Klas, og var hann eins hugprúður og djarfur eins og Stav sjálfur. Þeir höfðu, þessir tveir menn, ekki ásett sér að taka neinn þátt í gull-leitinni. Þeir ætluðu sér aðeins að taka myndir af kafara aðferðunum, og höfðu því tekið með sér ágæta hreyíimyndavél, sem hægt var að taka myndir neðansjávar með. Þegar á stað- inn kom, þar sem skipið lá á mararbotni, þá var Ernest Klas fyrstur til að kafa til skipsins. Hann hafði ekki verið nerha ör- stutta stund niðri þegar hann gaf merki um að draga sig sem skjótast upp. Stav kallaði til mannanna á skipinu og sagði: “Dragið hann upp strax drengir.” Maðurinn sem við lyftuna var hafði varla snúið 'henni einn snúning þegar kippt var í taug- ina sem fest var utan um Ernest staða hennar væri gagnvart þörf- um safnaðar, sunnudagaskóla eða kvenfélags. Hvergi komu áhrif hennar og stjórnsemi fram í fyllri mynd en í kvenfélagi Vík- ursafnaðar, sem hún var forseti í um tuttugu og fimm ára bil. Það tímabil náði yfir mjög erfitt tímabil í félagsmálum bygðar- innar, þegar söfnuðurinn klofn- aði og æstar tilfinningar réðu oft meira en róleg íhugun. Að mjög miklu leyti fyrir áhrif Mrs. Thor- waldson tókst að varna því að kvenfélagið klofnaði. Kom henni þar að liði sú almenna tiltrú er hún hafði áunnið sér innan bygð- arinnar. Kunni hún líka vel að beita áhrifum sínum og fá aðra til samvinnu með sér. Engum, sem kunnug er sagan, getur *dul- ist hve mikla þýðingu það hafði fyrir framtíðarvelferð og sam- heldni í bygðinni að aldrei var haggað við samstarfi kvennanna. Það er kunnugt hve þörf kven- félögin reyndust hvívetna í bygðum vorum, öllum góðum málefnum til liðs. Á því sviði hafa fáar konur lagt til eins fagr- an og þýðingarmikinn skerf og þessi öndvegiskona í kvenfélagi Víkursafnaðar. Hefir engin kona önnur skipað þar forsetastöðu neitt svipaða tímalengd, og var það fyrir hennar eigin ósk að hún að lokum var leyst úr em- bætti. Hennar verður minnst með þakklæti og virðingu um langan aldur fyrir þann mikla skerf er hún lagði til heilla á erfiðu tímabili byggðar sinnar, og félags mála Vestur-Islend- inga. Hinar jarðnesku leifar Mrs. Thorwaldson voru fluttar austur til Mountain, heim í sveitina hennar, þar sem hún átti svo mörg spor, margar endurminn- ingar og marga vini, og lögð þar til hinnar hinstu hvíldar við hlið manns hennar Elísar Thorwald- sonar, 14. júlí 1946, að mesta fjölda vina, 'kunningja og byggð- armanna viðstöddum. Séra Egill H. Fáfnis jarðsöng. Minning þessi er að mestu end- urprentun á grein um Mrs. Thor- waldson áttræða, er séra K. K. Ólafsson ritaði. - svo snöggt að hann nærri hrökk útbyrðis. Stav gaf Ernest merki, en fekk ekkert svar. Á meðan reyndu hinir lyftuna, en gátu ekki losað um neitt. Það sem næst skeði var að súrefna gúmmí slangan sem fest var í höfuðhjálm Ernests kom upp og lá eins og ægilegur ormur ofan á sjónum. Það meinti að Ernest hafði nú ekkert loft til að anda að sér nema það sem eftir kynni að vera í kafara- fötum hans, og það gat ekki enst nema 8 mínútur í mesta lagi. Stav dreif sig í kafarabúning og seig til botns til að leita að félaga sínum. Þegar hann kom til botns, sá hann lítið eða ekkert fyrir óhreinindum í sjónum. Hann gat þó komist í kringum skipsskrokkinn, þar sem hann lá, en þá var hann orðinn svo magn- laus að hann varð að gefa fé- lögum sínum merki um að draga sig upp. Þegar Stav kom upp fór annar kafari niður undir eins og hélt leitinni áfram til kvelds árangurs laust. Þeir gjörðu hið sama dag- inn eftir og alt sem þeir fundu var myndavélin, sem Ernest hafði haft með sér. En hann fanst hvergi. Þegar Stav kom aftur heim til Svíþjóðar lét hann skoða film- una og prenta myndirnar, sem á henni voru og þá kom í ljós: Fyrst sást Ernest ganga að skips- skrokknum. Hann komst upp á þilfarið og fann þar kystur, sem nærri voru þaktar í sjóþangi, sem hann lyfti upp. Svo sneri hann sér við og að vélinni, og hann sást brosa í gegnum köfun- arhjálminn. En það var hans síð- asta bros. Hann fór aftur að bisa við kysturnar. En ægilegur skuggi færðist yfir myndina. Ernest hélt áfram hreyfingum sínum sem áður og virtist vera að forðast skuggann. Skugginn færðist nær og nú sást að þetta var ægilegur hákarl, um 20 fet á lengd. Þetta ferlíki sinti yfir höfuðið á Ernest og uggarnir, sem voru gríðarstórir, rákust á gúmmí loftslönguna, sem var föst í köfunarbúningi Ernests. Hákarlinn sýndist hika í mínútu, svo skifti hann um stefnu og sló sporðinum ákaft. Ernest reyndi alt sem hann gat að forðast árás- ir hákarlsins. Ernest sást kastast upp á myndinni og þá slitnaði loftleiðarinn. Svo komu nokkrar myndir, sem voru svo áskýrar, sjálfsagt af hreyfing sjávarins, að ekki var hægt að greina hvað fram fór. Svo sást aftur þar sem hákarlinn var að rífa Ernest í sig, og þar endaði filman, eða mynd- irnar, að líkindum hefir hann sett myndavélina um í hinum síðustu angistarfullu hreyfingum sínum. En hann hafði myndað stríð sitt og dauða, líklega sá eini maður, sem það hefir gjört. The Swan Manufacturing Company Manufacturers of SWAN WEATHER STRIP Halldor Methusalems Swan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 Ertu hræddur við að borða ? Áttu vi8 aC strlða meltíngarleysl, belging og nábít? pað er ðþarfi fyrir þig að lAta sltkt kvelja þig. FAðu þér New Discovery “GOLDEN STOMACH TÖFLUR.” 360 töflur duga 1 90 daga og kosta $5.00; 120 duga I 80 daga, $2.00; 55 I 14 daga og kosta $1.00; Til reynslu, 10 centa dðs — fæst I öllum lyfjabúðum. ORÐSENDING TIL KAUPENDA LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU A tSLANDI: Munið að senda mér áskriftargjöld að blöðunum fyrir júnllok. Athugið, að blöðin kosta nú kr. 25.00 árangur- inn. Æskilegast er að gjaldið sé sent I pðstávisun. BJÖRN OUÐMUNDSSON, Reynimel 52, Reykjavlk. Business and Professional Cards DR. A. V. JOHNSON Dentist DR. A. BLONDAL Physician and Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDG. 506 SOMERSET BUILDING Siml 93 996 Telephone 97 932 Heimili: 108 CHATAWAY Home Telephone 202 398 Simi 61023 Talslmi 95 826 HeimiUs 5$ 893 DR. K. J. AUSTMANN Bérfrœöingur i augna, eyma, nef og kverka sfúkdómum. Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Bannlng) 704 McARTHUR BUILDING Cor. Portage & Main Talsimi 30 877 Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h. nema á laugardögum. Vlðtalsttmi 3—5 eftir hádegi DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur { augna, eyma, nef og hdlssfúkdómum. 416 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 93 851 Heimasími 42 154 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. íslenzkur lyfsali Fólk getur pantaö meðul og annað með pösti. Fljöt afgreiðsla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi 27 324 Heimilis talsími 26 444 Phone 31.400 Electrical Appllances and Radio Service Furnlture and Repairs Morrison Electric 674 SARGENT AVE. PRINCEÍ/ MESSENGER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smærrl Ibúðum, og húsmunl af öllu tæi. 58 ALBERT ST. — WINNIPEG Slmi 25 888 C. A. Johnson, Mgr. TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON and Company Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING Winnlpeg, Canada Phone 49 469 Radio Service Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRB8H AND FROZEN FISH Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Versla T helldsölu með nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrlfst.slmi 25 365 Heima 65 462 Argue Brothers Ltd. Real Estate, Financial, Insurance LOMBARD BLDG., WINNIPEG J. Davidson, Representative Phone 97 291 DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 Office Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 96 952 WINNIPEG DR. J. A. HILLSMAN Surgeon 308 MEDICAL ARTS BLDG Phone 97 329 Dr. Charles R. Oke Tannlœknir For Appointments Phone 94 908 Offlce Hours 9—6 404 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING 283 PORTAGE AVE. Winnipeg, Man. SARGENT TAXI PHONE 34 555 For Quick ReUable Service J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. PHONE 97 638 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœölngar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Slmi 98 291 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 60 VICTORIA ST., WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDSON íour patronage wlll be appreciated CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fr/sb and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Ree. Ph. 78 917

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.