Lögberg


Lögberg - 05.09.1946, Qupperneq 6

Lögberg - 05.09.1946, Qupperneq 6
0' LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1946 ll Margrét Werner Ethel tók því með mikilli um- hugsun og yfirvegun, og eftir biturt hugarstríð, komst hún að þeirri niður- stöðu, að það væru allar líkur til þess, að hún fengi aldrei biðil, sem henni lit- ist betur á, eða bæri meiri virðingu fyr- ir, en þessum ítala. Hann var sérlega heiðarlegur maður, og eins langt og hægt var að sjá, gallalaus, og hafði feng- ið furstalegt uppeldi, var göfugur að eðlisfari og hinn riddaralegasti í fram- komu, en það sem hafði mest áhrif á hana var sú brennandi heita ást, sem hann hafði á henni. Að mörgu leyti svipaði honum til Ralphs Cuming, meir en nokkur annar, sem hún hafði kynst. ■ Trúlofunin fór fram með glöðu sam- þykki beggja foreldranna, og eftir ósk Ethel lofaðist furstinn til að vera annað- hvort ár á Englandi. Þrisvar höfðu furstahjónin komið þangað, og þetta var í fjórða sinn, sem þau komu; og er furstafrúin heyrði að dætur Ralphs væru á Elmwood, vildi hún fyrir alla muni heimsækja þær; hún hafði séð þær og leikið við þær, þegar þær voru ofurlitil smábörn. Báðar systurnar horfðu undrandi á þessa tignarlegu konu; þær höfðu aldrei séð neina sem hreif þær svo mikið. Þetta rólega, fagra gríska andlit var nú orðið enn fríðara en áður. Þetta fallega höfuð með hinu brúsandi gullna hári, hið háa og beina vaxtarlag; þetta alt vakti undrun þeirra og aðdáun. Þegar Ethel faðmaði þær að sér og kysti þær, hvarflaði hugur hennar til nábleika and- litsins í garð|inum, og hinna dökku augna, sem blossuðu af reiði. “Fyrir mörgum árum þekkti eg móð- ur ykkar,” sagði hún; “hefur hún aldrei minnst á mig? Eg hampaði ykkur stund um á höndum mér, þegar þið áttuð heima í litlu skrauthýsi við Arno fljótið í Florence. Eg var ein af elstu og beztu vinum föður ykkar.” Nei, þær höfðu aldrei heyrt nefnt nafn hennar, og Beatrice undraðist yfir því, hvernig á því stæði að móðir sín hefði gleymt nafni svo elskulegrar konu, sem þessari fursta frúar. Þessi vika sem hún var á Elmwood, leið fljótt, eins og sæll draumur. Beatrice næstum til- bað Ethel; þetta var sem hana fyrir lngu síðan hafði dreymt um; hún var ein af þessum hugsjónalegu konum, sem áttu heima í hinum glaðværa glæsi- lega heimi. Það fanst henni að hún skilja nú til fulls. Þegar fursta hjónin fóru frá Elmwood fengu þau lafði Cuming til að lofa þeim því að ungu stiilkunum yrði leyft að heimsækja þau í Florence, þar sem þær voru fæddar. Þau töluðu einnig um hina fríðu greifafrú Gonzales, sem enn vpri mest áberandi í hinu fína samkvæmis lífi þar. Hún mundi áreiðanlga taka á móti þeim með innilegum fögnuði, sök- um vinattu hennar við föður þeirra. “Þú talar svo mikið um ítalíu,” sagði fursta frúin við Beatrice — ” það er ein- mitt rómantíska landið sem þú hugsar svo mikið um. Þú sérð þar svo fagur blá- an himin, sem þú hfur aldrei séð hjer. Hafið glitrandi í sólskinum vínviðar vin- na, döðlu og eplatrje í blóma. Það er svo margt að dáanlegt að sjá þar, að þið mundi aldrei langa til að hverfa aftur til þessa kalda þoku lands. Það var afráðið, að þegar lávarðurin væri komin heim, að þá skvldu þær fara í þessa heimsókn. Kvöldið éftir að þessir gestir fóru, lagðist kyrð og rólegheit yfir allt á Elmwood. “Eg ætla að skrifa mömmu,” sagði Beatriee; “það er eitthvað undarlegt, að hún hefur aldrei sagt okkur neit um þessa vingonu sína, fursta frúna.” Þareð Edith hafði ekki sagt stúlkun- um að halda neinu leyndu fyrir móður þeirra, af því sem hún hafði sagt þeim, sendi Beatrice bréfið til móður sinnar. Margrét yfirvegaði, með nákvæmni hvert orð í því. Beatrice talaði með undrun og aðdáun um fursta frúna, og hennar rólega viðmót og aðdáanlegu fegurð, um vingjarnleg ummæli og minn- ingar hennar um móður sína, og um heimboðið til Florence. Margrét las bréfið hvað eftir annað, með mestu ró- legheitum, en hvert orð særði hana, sem hnífstunga. Gamla hatrið blossaði upp í huga hennar og marði hverja göfuga hugsun. Hún reif bréfið í sundur í hundrað tætlur, það var í því svo mikið hrós um keppinaut hennar. “Hún tældi manninn minn frá mér,” sagði hún, “með andlits fegurð sinni, og nú vill hún reyna að tæla börnin mín líka frá mér.” Svo allt í einu fór, eins og þrumuleift- ur í gegn um huga hennar, að Edith væri gift. Edith var gift; hún hafði gifzt hin- um ríka og volduga fursta, sem hafði komið fram sem verndari og vinur Ralph’s, á listabraut hans; en hún áleit samt sem áður, að hún hefði tælt Ralph, en hann hefði ekki kært sig um hana, eða að hún hefði allt í einu hætt að beita áhrifum sínum á hann. Beatrice hélt að það væri ennþá aug- ljósara, er hún fékk bréf frá móður sinni, sem svar uppá sitt langa bréf. Margrét sagði sem svo, að hún hefði aldrei talað um furstafrúna, því hún væri kona, sem hún kærði sig ekki um að minnast á. Það liðu nú fimtán mánuðir, þar til loksins að kom bréf frá Ralph Cuming; hann sagði í bréfinu að hann vonaði að geta komið til Englands fyrir jólin; í öllu falli yrði hann heima á jóladaginn. Þetta var stutt bréf, skrifaö á ferða- lagi; það sem gladdi þær mest, Beatrice og Lilian, var að hann sagði í bréfinu: “Það gleður mig að vita, að stúlkurnar mínar eru á Elmwood hjá þér; eg er mjög forvitinn að sjá hvernig þær líta út. Gerðu allt sem þú getur, móðir mín, til þess að þær verði ánægðar og róleg- ar þar; láttu þær fá allt sem þær óska eftir og ef það er mögulegt, þá kendu þeim að láta sér þykja vænt um mig, þó eg hafi verið svona lengi í burtu frá þeim.” Það var ekki minst með einu orði í bréfinu á móður þeirra. Systurnar töldu dagana með óþreyju; þær hugs- uðu um föður sinn, sem þær auðvitað mundu ekki eftir — ef honum skyldi svo ekki lítast á þær. Beatrice áleit að það væri engin ástæða að kvíða fyrir því, en Lilian kveið oft fyrir því. Það var strax sjáanlegt, hve fljótt að gamla heimilið gleymdist þeim. Báðar báru í huga sér hugulsemi til gömlu hjónanna — og þær sendu þeim margar gjafir — en Beatrice kypraði varirnar á skringilegan hátt, er hún las upphátt: “Mr. og Mrs. Werner, óska að senda lafði Cuming sína auðmjúkustu og kær- ustu kveðju.” Lafði Cuming hafði engan kvíða fyrir stúlkunum, er faðir þeirra kæmi heim; hún hafði ekkert út á þær að setja. Fall- egar, vel menntaðar, gáfaðar og elsku- legar — hvers meira gat hann óskað? Hún þakkaði með sjálfri sér, að hvorug var hið minsta lík Werners hjónunum. Beatrice leit út, sem lifandi eftirmynd hinna stoltu kvenna Cuming fjölskyld- unnar; Lilian, bljúg og elskuleg, var eins elskuleg. Hvað mundi lafði Cum- ing hafa sagt, eins sönn og heiðarleg og hún var, eða hvað mundi hún hafa nugsað, ef hún hefði vitað, að uppáhald' ;ð hennar með Cuming-andlitið, hafði trúlofað sig óþektum kaftein á vöru- flutningaskipi, og að hann innan tveggja ára kæmi og krefðist að hún giftist sér? Lafði Cuming hafði gert sínar eigin áætlanir um framtíð Beatrice; hún von- aðl að sá tími kæmi, að hún yrði lafði Cuming á Elmwood. Ekkert væri æski- legra, ekkert auðveldara, en að hún giftist hinum unga erfingja, Lewis Dare, sem, þegar hann tæki við erfðinni, tæki og ættarnafnið, Cuming. Einn morgun er systurnar sátu sam- an í herbergi Lilian, kom lafði Cuming inn með óvanalegt útlit á andlitinu; hún hélt á opnu bréfi í hendinni. “Elsku börnin mín,” sagði hún, “í kvöld verðið þið að líta eins vel út og þið getið. Eg hef fengið bréf sem segir að faðir ykkar komi heim í kvöld.” Hennar mildi og rólegi málrómur brast hana, og hún grét af umhugsun- inni um, að hann, sonur hennar, sem hún elskaði svo heitt, væri nu að koma heim til hennar; þannig hafði hún ekki grátið, síðan hún fór frá Elmwood. 21. Kafli Aftur stóð Ralph Cuming á enskri grund; aftur heyrði hann móðurmál sitt talað allt í kring um sig; aftur gat hann glatt sig við Englands þægilega landslag. Það vor uliðin 17 ár, síðan hann hafði gifzt Margréti og sagt henni, að hann kærði sig ekki liið minsta um allt sem hann hefði mist hennar vegna, hún væri það einasta sem sér væri mik^ ils virði í heiminum —; 17 ár, og ástar- draumur hans hafði varað einungis í tvö ár! Og þá skeði hinn hræðilegi við- burður, sem gerði hann viti sínu f jær, og fylti hann fyrirlitningu; svo kom hin harða og hlýfðarlausa vakning, er hann leit yfir æfi sína og fann að líf sitt var ekki annað en þung byrði — von og metnaður voru horfin —hin stóru póli- tísku áform sem hann, einusinni hélt að hann hefði, voru nú óframkvæmanleg — það var ekkert annað eftir af honum nema að hann var lifandi — og hvað var það sem hafði valdið því að öll æfi hans var svo gjörsamlega eyðilögð? Einungis ást, heimskuleg, grunnhyggin ást á fríðu andliti. Hann hataði sjálfan sig fyrir veiklyndi sitt og heimsku. Vegna fávísrar en fríðrar stúlku, sem hafði svívirt hann svo mjög; hennar vegna hafði hann næstum marið hjarta móður sinnar, og eitrað líf föður síns. Hennar vegna varð hann að lifa sem landflótta maður, verða gamall löngu fyrir tímann, verða þreyttur og leiður á lífinu, einmitt er það átti að brosa sem unaðslegast við honum. Þessum hugsunum var hann að velta fyrir sér í huga sínum, meðan hraðlest- in æddi áfram í áttina til Elmwood. Það var ný fallinn snjór, sem lá eins og hvít blæja á engi og ökrum, og beygði niður greinar trjánna, og frá runnum og trjám héngu ísdrönglar. Það var stór- kostleg ’sjón fyrir hann, sem hafði verið svo mörg ár í hitabeltinu. Kalda loftið frískaði hann og gaf honum nýtt líf og áræði. Loksins stansaði lestin á stöð sem var næst Elmwood, og hann sá þar vagn með ökumanni í, sem beið hans. Sem snöggvast fanst honum eins og hann skammaðist sín, að mæta sínum gömlu þjónum, því nú hlytu þeir víst allir að vita um ástæðuna fyrir því, að hann fór að heiman. Þjónn hans, frá fyrri dögum, Morton, var þar. Lávarðurinn hafði haldið mik- ið uppá hann, og hann hafði beðið um leyfi til að keyra til stöðvarinnar til að mæta þar sínum fyrri herra. Ralph varð glaður að sjá hann; nýji lávarðurinn heilsaði vingjarnlega öllum sem voru á stöðinni, og talaði vingjarnlega við gamla þjóninn sinn. Nú sá Ralph aftur hin gömlu risa- vöxnu tré, sem hann hafði svo oft dreymt, hin gnæfandi sidertré og hin voldugu eikartré; þessi tré voru öll gamlir vinir hans, og hann þekkti hvern blett þar í kring. í lítilli fjarlægð sá hann milli trjánna, glitra í stöðuvatnið. Hann ók meðfram hinum stóru, skemti- og aldinagörðum, og hann skammað- ist sín ekki fyrir að gráta, er hann sá turna hallarinnar á Eamwood. Hann fann til djúprar hrygðar og angurs í hjarta sínu — löngun og þrá til þess, að það sem skeð hafði væri óskeð, og sár- astur var honum missir þessara beztu ára æfi sinnar; hann gat reynt að gera sitt bezta til að bæta úr yfirsjón sinni; en hvorki harmur né bænir hans kátu gefið honum aftur föður sinn, sem hann hafði móðgað. Þegar vagninn kom að innkeyrslu hliðinu, komu í huga hans f jölda margar minningar um, hversu innilega faðir hans hafði elskað sig og hve mikið hann hafði þolað sér — hann hafði ekki nema í eitt einasta sinn neitað honum um vilja sinn. Hann reyndi með góðvild og umhyggju að ráða honum frá að gift- ast sér svo ólíkri konu, sem gæti ekki til lengdar orðið hamingjusamt hjóna- band. Hann mintist andlits föður síns, er hann sagði honum að fara, og koma aldrei aftur; hann mintist þess er hann sá föður sinn veikan og að dauða kom- inn, að angist dauðans var ekki eins bitur á andliti hans, eins og er hann komst að því að hann hafði verið dreg- inn á tálar. Sorglegar og bitrar endur- minningar fyltu huga hans, er vagninn stanzaði fyrir framan dyrnar, og hann sá hin gömlu þekktu andlit, sum bros- andi, önnur með tár í augunum, koma til að fagna honum. Hurðin að lestrasalnum stóð opin. Ralph Lávarður gekk þar inn, án þess að hugsa um það, og hurðin var jafn- skjótt látin aftur á eftir honum. í gegn- um táramóðu í augunum sá hann háa tignarlega konu, sem kom á móti hon- um með útbreiddan faðminn. Þettá andlit sem hann mundi svo vel eftir, bæði svo frítt og rólegt, bar nú djúp sorgarmerki. Hin áður svo skær og fögur augu, voru nú daprari; hið fagra, þykka hár, var nú orðið talsvert hæruskotið, en það var málrómur móð- ur hans sem hann heyrði: “Sonur minn! Himninum sé þökk, að eg hef fengið þig heim. Hann vissi ekki hve lengi móðir hans hélt honum í faðmi sínum. Heimurinn á enga ást sem móðurinnar — enga svo viðkvæma, svo auðuga af meðaumkvun og fyrirgefningu. Það var hennar einasta barn sem hún hélt í faðmi sér. Hún gleymdi því alveg, að hann hafði sjálfur skapað sér þessa ógæfu. Hann var drengurinn hennar, hennar dýrmætasta eign, og þess vegna var móttakan eins innileg og hún var. • “Hvað þú ert breyttur,” sagði hún, og færði hann í birtuna, “þú ert alveg kop- arrauður í andliti, og þú lítur út eins og þú sért mörgum árum eldri en þú ert, svo þunglyndislegur og þreytulegur! Ó, Ralph, eg verð að kenna þér að verða ungum og hamingjusömum aftur!” Hann stundi þungan, og móðir hans varð óróleg, er hún athugaði þjáningar- svipinn á andliti hans. “Til þess að vera hamingjusamur, verður maður að vera góður, móðir mín ; það stendur í gamalli bók. Eg hef ekki verið góður,” sagði hann og brosti, “og eg get aldrei orðið hamingjusamur.” í hálfrökkrinu þar inni sem lýstist of- urlítið upp af snjónum, sátu móðir og sonur og töluðu saman. Hún sagði hon- um frá láti föður síns, og síðasta orðið sem hann sagði, hans margra ára níður- bælda ást, virtist að brjótast út með öllu því litla lífsafli sem enn var í hon- um. Hann viknaði við að heyra þetta, og nýtt vonarljós glæddist í hjarta hans. Látum svo vera, að bezti hluti æfi hans var tapaður, það sem eftir væri æfinn- ar vildi hann verja á betri hátt. “Og börnin mín,” sagði hann — “ves- alings litlu stúlkurnar mínar. Eg ætla ekki að sjá þær, fyr en eg hef jafnað mig og hvílt mig eftir ferðina. Eg veit að þeim líður vel og eru sælar hjá þér.” Nú notaði móðir hans það hugará- stand sem hann var í, og sagði, hve mikið hún hefði þráð að sjá hann. “Ralph,” sagði hún, “eg hef liðið mik- ið; þú veizt ekki hvernig eg hef orðið að skifta hjarta mínu, milli mannsins míns, og sonar míns. Lofaðu mér að lifa síð- ustu æfiárin mín í ró og friði.” “Það skalt þú fá, móðir mín,” sagði hann. “Eg skal gera allt sem í mínu valdi stendur til að styðja að því, að þú fáir notið friðar og rólegheita.’ “En eg get ekki notið rólegheita,” sagði hún, “fyr en sátt og eining er kom- in á í fjölskyldu okkar. Ralph, eg, sem aldrei hef krafist neins greiða af þér, þá vil eg nú biðja þig að gera það fyrir mig sem eg ætla að biðja þig um. Farðu til Margrétar og komdu með hana hingað, sátta og hamingjusama.’ Reiðisvipur kom á andlit hans, og hann svaraði: “Hvers helst sem þú bið- ur mig, móðir mín, og sem mér er mögu- legt að gera, vil eg hjartans feginn gera fyrir þig, en þetta get eg ekki gert. Eg gæti ekki gert það þó eg lægi fyrir dauð- anum.” “Hvers vegna ekki?” spurði móðir hans, eins og hún hafði spurt Margréti. “Eg hef hundrað ástæður fyrir því; hin fyrsta og veigamesta er, að hún hefur svívirt mig í viðurvist þeirrar manneskju, sem eg bar hina mestu virðingu fyrir; hún hefur — Nei, eg vil ekki tala um galla eða misgáning kon- unnar minnar; það væri ómannlegt. Eg get ekki fyrirgefið henni, móðir mín; eg óska henni einskis ills; láttu hana hafa allt sem hún óskar eftir; en bara nefndu hana ekki á nafn við mig. Eg væri þá búinn að missa alla sjálfsvirðingu, ef eg gæti fyrirgefið henni.” “Stórlæti á þína hlið,” sagði móðir hans hrygg í huga, “og heiftrækni á hennar hlið! Æ, Ralph, hvar endar þetta? Vertu sanngjarn og hygginn meðan tími er til. Það er sá heiðarleg- asti og virðulegasti maður, sem yfir- vinnur sjálfan sig. Yfirvinndu sjálfan þig, sonur minn, og fyrirgefðu Mar- gréti.’ “Það væri léttara fyrir mið að deyja,” sagði hann biturlega. “Þá verð eg að segja það sama við þig, sem eg sagði við Margréti,” sagði móðir hans. “Stórlæti og ofstopafullir skapsmunir, verða að bogna og brotna. Gættu þín meðan enn er tími til!” “Móðir mín,” sagði Ralph og hallaði hinn föla andliti móður sínnar að brjósti sér,” láttu þetta vera í síðasta sinni sení þú angra þig og mig með þessu; minstu aldrei framar á þetta. Jeg get kanskje fyrir gefið henni á dauða stundunni, en fyr ekki.”

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.