Lögberg - 10.10.1946, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
'A
aive1's
A Complele
Cleaning
Insliiulion
59. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 10. OKTÓBER, 1946
NÚMER 40
Cleaning
Instiiuiion
KARLAKOR REYKJAVIKLR
GULLBRÚÐKAUP
Síðastliðinn fimtudag áttu hin
mætu og vinsælu hjón, Helgi
Johnson og frú Ásta Johnson,
1023 Lngersoll Street hér í borg-
inni gúUbrúðikaupsafmæli, og
var gestkvæmt á heimili iþeirra
þann dag; safnaðist þangað alt
þeirra sifjalið, ásamt ýmissum
öðrum samstarfsmönnum og vin-
um, svo sem þeim séra Valdimar
J. Eylands og frú.
Þau Helgi Johnson og frú, hafa
átt miklu barnaláni að fagna, og
njóta hvarvetna virðingar sam-
ferðamanna sinna.
Lögberg flytur gullbrúðkaups-
hjónunum hugheilar árnaðarósk-
ir í tilefni af þessum merka á-
fanga í lífi þeirra.
♦ -f 4-
Bandaríkin fá hálfs
sjöunda árs afnot af
Keflavíkur flugvellinum
Canadiska útvarpið flutti þá
frétt frá Reykjavík síðastliðinn
sunnudagsmorgun, að Alþingi
hefði samþykt með 32 atkvæð-
um gegn 19, að veita Bandaríkj-
unum hálfs sjöunda árs afnot af
Keflavíkur velilinum, og er þar
að lútándi samningsuppkast birt
á öðrum stað hér í blaðinu, les-
endum til glöggvunar á málinu.
-f -f -f
ÆGILEGT FLUGSLYS
Þann 3. þ. m., vildi það hörmu-
lega slys til, að geisistór amerísk
millilandaflugvél, fórst á New-
foundland og létu þar 39 manns
lífið, þar á meðal nokkrar konur
og tvö kornung börn; farþegavél
þeSfci hafði fyrir skömmu hafið
sig til flugs af Harman flugvell-
inum, sem liggur við þorpið
Stephenville á Newfoundland;
flugvélin rakst á fjallshlíð og
kviknaði þá samstundis í henni
og mun hún hafa brunnið svo að
segja á svipstundu ti!l kaldra
kola; engir canadiskir farþegar
voru með flugvélinni.
-f -f -f
SKIPTAR SKOÐANIR
Truman Bandaríkjaforseti hef-
ir krafist þess af Bretastjórn, að
hún veiti þegar húsviltum Gyð-
ingum í Norðurálfunni landvist
í Palestínu; út af þessu hefir
Attlee fbrsætisráðherra orðið
ösku fjúkandi reíður, og telur
það, úr því sem komið sé, Banda-
ríkjunum öldungis óviðikomandi
hvaða stefnu Bretar taki gagn-
vart Palestínudeilunni, því þau
hafi litið á sig lagt, til þess að
leiða hana til happasælla lykta.
Ur borg og bygð
Laugardaginn 5. október voru
gefin saman í hjónaband af séra
Sigurði Ólafssyni, að 784 Wolse-
ley Ave., Winnipeg, Oliver Lloyd
Maddess, bóndi við Deloraine,
Man. og Sigurrós Thuríður
Bjarnason, hjúkrunarkona. Við
giftinguna aðstoðuðu Arthur
William Maddess og L. Irene
Halford. Brúðguminn er af hér-
lendum ættum, en brúðurin er
dóttir Mr. og Mrs. Eiríkur
Bjarnason við Árborg, Man.
Ágæt veizla var setin af nánustu
vandamönnum og vinum, á
heimili Mr. og Mrs. W. W. Olson,
eftir giftinguna. Ungu hjónin
setjast að í Deloraine, Man.
•f
Sunnudaginn 6. október voru
gefin saman í hjónaband að
heimili íslenzka sóknarprestsins
þar, Reginald Arthur Teetsel,
Gimli, Man. og Sigurlín Thorkel-
son, sama staðar. Við giftinguna
aðstoðuðu Röbert W. Cochrane,
og Gladys A. Thorkelson.
Brúðguminn er Ameríkumað-
ur, starfandi við flugstöðina á
Girnli. Brúðurin er dóttir Guð-
mundar heitins Thorkelsonar á
Geirastöðum í Árnesbygð og eft-
irlifandi ek'kju hans Guðnýjar
Önnu Thorkelson. Heimili ungu
hjónanna verður á Gimli.
BREZKA ÞINGIÐ
Á þriðjudaginn var kom brezka
þingið saman eftir að hafa tek-
ið sér nokkra hvíld yfir sumar-
mánuðina. Fyrstu aðalræðuna
flutti forsætisráðherra Clement
Attlee, og fjallaði hún að mestu
um nauðsynina á því. að koma
í veg fyrir að atómorkunni yrði
beitt í stríði; kvað hann stjórn
sína staðráðna á því, að stuðla
að alþjóðasamtökum með þetta
fyrir augum. Foringi stjórnar-
andstæðinga, Winston Churchilll,
var fjarverandi, en í hans stað
tók til máls Mr. Bernard K. Law,
er kvað íhaldsflokkinn veita
mundu stjórninni dyggilega að
málum varðandi útilokun atóm-
orkunnar frá hernaði; hermála-
ráðherra lýsti yfir því, að áður
en langt um liði, yrðu gerðar
ráðstafanir til þess að styrkja
hervarnir Breta í Austur Afríku.
Ekki hafði Mr. Attlee neitt að
segja um Palestínu-deiluna að
svo stöddu, þrátt fyrir ítrékaðar
fyrirspurnir í þá átt.
Söngmenn Karlakórs
Reykjavíkur í söngför
til U.S.A. og Canada
1946
Sigurður Þórðarson, söngstjóri.
(Mun vera systkinábarn við
Svein Jöhnson, Lundar, Man.,
Canada).
Stefán Guðmundsson Islandi
óperusöngvari. (Skagfirðingur að
ætt og fæddur þar).
Guðmundur Jónsson baryton-
sólóisti. (Sonur Jóns Þorvarðar-
sonar kaupmanns í Reykjavík).
Fritz Weishappel, píanóleikari.
Sveinn G. Björnsson, póstfull-
trúi, 1. tenór. (Ættaður úr Fljót-
um í Skagafirði).
Jón Ágústsson, málarameistari,
1. tenór. (Fæddur í Reykjavík).
Jón Bergsveinsson, verzlunar-
maður, 1. tenór.
Séra Marino Kristinsson, prest-
ur að Vaiþjófsstað, 1. tenór.
Jón E. Guðmundsson, bakara-
meistari, 1. tenór.
Daníel Þórhallsson, verzlunar-
maður frá Siglufirði, 1. tenór.
(Mun eiga bróður, er rekur út-
gerð við Winnipegvatn).
Óskar Sigurgeirsson, stúdent,
1. tenór. (Ættaður frá Hamri í
Flóa í Árnessýslu og mun eiga
ættingja í Canada).
Eiríkur Eiríksson, trésmiður,
1. tenór. (Hann er frá Sauðár-
króki í Skagafirði, og á bróður
í Canada).
Magnús Sölvason, verzlunar-
maður, 1. tenór. (Frá Völlum í
Hólmi í Skagaf., og mun eiga
ættingja vestanhafs).
Garðar Guðmundsson, lög-
regluþjónn, 1. tenór. (Móðursyst-
ir hans mun vera vestanhafs,
ættuð frá Steini á Reykjaströnd
í Skagafirði).
Magnús Guðmundsson, nem-
andi, 1. tenór.
Magnús Jónsson, byggingar-
meistari, 1. tenór.
Hermann Guðmundsson, bók-
ari, 2. tenór.
Kári Sigurðsson, bankafulltrúi,
2. tenór.
Kristinn Þorsteinsson, deildar-
stjóri hjá Kaupfél. Eyfirðinga á
Akureyri, 2. tenór.
Haraldur Sigurðsson kaupmað-
ur, 2. tenór. (Á frænkur vestan-
hafs, Ingibjörgu og Sigríði frá
Dvergasteini).
Á FERÐ UM AMERÍKU
Sigurður Þórðarson
söngstjóri Karlakórs Reykjavíkur
ítarleg ritgerð um söngstjórann
eftir Dr. Richard Beck, birtist á
4. blaðsíðu Lögbergs í þessari
vi'ku.
Karl Sveinsson, gjaldkeri, 2.
tenór. (Bróðursonur Sigríðar
Árnadóttur Valdason frá Króki
Norðurárdal í Borgarfirði, er
fluttist til Canada og bjó þar. Er
nú dáin, en dóttir hennar mun
vera á lífi.
Gísli Gíslason frá Mosfelli,
gjaldkeri, 2. tenór. (Á föðursyst-
kini og fleiri ættingja víða um
Bandaríkin).
Sigurður Benediktsson, verzl-
unarmaður, 2. tenór.
Bj örgvin Jóhannsson, verzlun-
armaður, 1. bassi.
Haraldur Kristjánsson, kaup-
maður, 1. bassi.
Þráinn Þórisson frá Baldurs-
heimi, kennari. 1. bassi. (Ættaður
úr Mývatnssveit og Laxárdal,
Þingeyjarsýslu, og mun eiga
fjölda ættingja víðsvegar um ísl.
bygðirnar).
Sverrir Pálsson, stud. jur., 1.
bassi. (Sonarsonur Sigurgeirs frá
Stóruvöllum í Bárðardal.
Sigurður Sigurgeirsson banka-
ritari, 1. bassi. (Sonur Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups).
Þorsteinn lngvarsson bakara-
meistari, 1. bassi.
(PYamh. á bls. 8)
ELLIHEIMILIÐ Á MOUNTAIN
VERKFALLI LOKIÐ
Eftir langa mæðu er nú lokið
verkfallinu mikla í stálsmiðjun-
um í Austur Canada; höfðu
verkamenn farið fram á 24 centa
kauphækkun á klukkutímann;
slíka ihækkun fcváðust eigendur
verksmiðjanna ekki undir nein-
um kringumstæðum geta greitt,
en leikslok urðu þau, að verka-
menn gengu að 13 centa kaup-
hækkun; verkfall þetta hafði
mjög lamandi áhrif á stáliðnað-
inn og margar aðrar iðngreinir,
sem nota þurftu stál við fram-
leiðslu sína.
•f -f -f
AFLEIÐING VERKFALLA
Samkv. nýútkominni skýrslu
frá Canadian Bank of Commerce,
hafa verkföll í Canada síðustu
þrjá mánuðina orðið þess vald-
andi, að iðnaðarframleiðslan
þvarr nálægt fimtán af hundraði.
•f -f -f
ENDURSKIPUN
RÁÐUNEYTIS
Nokkrar breytingar hafa ný-
lega verið gerðar á samsetningu
brezlka ráðuneytisins og er sú
helzta fólgin í því, að sérstætt
hervarnarráðuneyti hefir verið
sett á fót, er hefir yfirumsjón yfir
landher, sjóflota og loftflota. A.
V. Alexander, yfirforingi sjófilot-
ans síðan 1940, hefir verið skip-
aður henvarnaráðherra.
•f -f -f
ÁFELLIST STJÓRNINA
Winston Ohurdhill fyrrum for-
sætisráðherra Breta, flutti á dög-
unum ræðu á flokksþingi kon-
servatíva í bænum Blackpool á
Englandi, þar sem hann áfeldi
Attleestjórnina fyrir stefnuleysi
hennar og kveifarskap varðandi
Palestínumálin fór hann einnig
hörðum orðum um stjórnina
vegna afskipta hennar af mál-
efnum Indlands, er hann taldi
mjög hafa veikt brezku veldis-
heildina.
Þar sem vér heyrum talsvert um framtakssemi Is-
lendinga í hinum ýmsu bygðum nú á tímum, vegna þess
hve vænlega hefir gefist akuryrkjustarfið á árinu og
afurðir allar í sæmilegu verði, þá er gaman að heyra
líka að Islendingar eru ekki að sauma alla sína aura í
sekk eða sokk, heldur gefa og styðja góð málefni af alvöru
og áhuga. Undanfarin ár hefir elliiheimilis bygging verið
á döfinni hér á Mountain. Stríð og byggingarefnis vand-
ræði (hafa hindrað framgang málsins nokkuð, en nefndin
sem söfnuðirnir í N. Dakota völdu hefir altaf haldið í
áttina og smátt og smátt hefir fleiri og fleiri steinum verið
rutt úr vegi, unz að hér birtist rissmynd af framstafni
heimillisins sem við vonum að verði stærsta minnismerki
landnemans, sem Vestur-lslendingar hafa ennþá reist,
því minningu frumbyggjanna er hugsunin helguð. Hér
er ekki um kaldan stein eða grafihvelfing að ræða, hér er
um hlýja, vinhlýja, skjólríka, friðsæla byggingu að ræða.
Einhver, hér á fyrri árum, þegar lifað var í lágreistum
bjálkakofum myndi velja þessu stórhýsi konungsihallar-
nafn. Svona myndarlega ivildum við að synir frumbyggj-
anna minntust hinnar gengnu kyndlóðar. Kynslóðin,
sem bygði kirkjur um allar nýlendur, þrátt fyrir fátækt
sína, kirkjur, sem enn þann dag í dag, nægja að mestu
leyti þörf eftirkomendanna. Þeir þurfa ekki að byggja
kirkjur svo mjög, heldur skyldu þeir byggja griðaskjól,
áfangastaði, öldnum og erfiðisþreyttum, þeim, sem hafa
fómað öllu að vér mættum lifa og njóta tækifæranna
mörgu, sem þetta land á til. Eg á erfitt með að skilja þá
persónu, sem á ærlegt hjarta í brjósti, og sarnt finst að
þetta heimilismál sé smávægiilegt og lítt sinnandi. Eg
held að ekki sé íslendingur til, sem er svo innrættur. 1
næsta blaði birtist listi jgefienda til þessa heimilis á Moun-
tain. Vér trúum á hugsjónina hér, vér vitum að allir góðir
Islendingar vilja hjálpa oss að reisa þetta minnismerki.
Vegna vaxandi dýrtíðar þurfum vér $20,000 meira en
vér nú höfum. En möguleikar okkar til að gefa, hafa
líka aukist. Sú bygging sem átti að kosta $40,000, kostar
nú $60,000. Betel hefir vaxið til sjálfstæðis við gjafir
okkar allra. Látum nú þennan nýgræðing vaxa til sjálf-
stæðis einnig.
Andið hlýtt að ungum meiðum
sem eýkin, kvisti veitið skjól.
Því marga fennti á lífsins leiðum,
sem litu aldrei kærleikssól.
Egill H. Fáfnis.