Lögberg - 13.03.1947, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. MARZ, 1947
3
KRISTJAN N. JÚLÍUS:
(K.N.)
Kviðlingar og kvæði
Richard Beck gaf út.
Þetta er heilmikil bók, 340 blað
siður í stóru broti, pappír og
Prentun hvorttveggja ágætt, með
góðri mynd af höfundinum. Yfir
höfuð er útgáfan frábærlega
vönduð og bókin í reglulegu
skrautbandi. MeðaH annars er
eillar blaðsíðu ljósmynd af rit-
andarsýnishorni skáldsins.
Prófessor Richard Beck hefir
safnað kvæðunum, raðað þeim
^ annast útgáfu bókarinnar.
Hún er prentuð í Reykjavík, í
P^ntsmiðju Jóns Helgasonar, á
°stnað félags, sem heitir “Bók-
ohs útgáfan”; hefir það hluta-
gefið út margar bækur og
vandaðar.
Hr. Beck hefir ritað all-langt
um höfundinn og Dr. Har-
aldur Sigmar, forseti lúterska
Ifkjufélagsins stutta grein,
oinnig um hann; eru þær báðar
Vel ritaðar og bregða upp góðum
joyndum af skáldinu, hugsunum
^ og hæfileikum, lífskjörum
°g sálarlífi. Prófessor Beck hefir
einnig ritað eftirmála við bók-
|na- Er það hin mesta furða hví-
ikur afskapa starfsmaður hann
er °g afkastamikill.
Eins og þeir geta getið nærri,
sein þektu K.N. (og hann þektu
Íslendingar bæði hér og
eima) er þetta alveg sérstök
í sinni röð.
Hm rím og búning ljóðanna
f^tti ýmislegt segja; því er
vorutveggja sumstaðar ábóta-
vant í smáatriðum en þýðingar-
aust væri að tína það upp hér;
onda næstum ómögúlegt sökum
að rím og form er auðsjá-
anlega oft brotið af ásettu ráði í
Pví skyni að gera kvæðin eða vís-
urnar ennþá fyndnari en ella —
°g tekst það víða vel.
Aftur á móti eru nokkrar prent
villur 1 bókinni, þótt þær séu
iestar smávægilegar, og engar
fkaðlegar. Hér skulu nokkrar
Peij-ra taldar:
Rn gamanið fer að grána,” á
^ls. 7 4 á að vera: “Ef gamanið
fer að grána.”
Enn má drottinn skuld hjá
H-N. skrifa”, þessi ljóðlíya er
Prentuð tvisvar á 2Ö. bls. með 8
lína millibili; henni er ofaukið
1 íyrri staðnum.
Gamli Mörtsi glotti ógn í
ampinn” á bls. 49. A auðsjáan-
ega að vera: “-----: glotti ögn í
kampinn.”
Pátækur og fóta smár” á bls.
o3> á að véra
sár”
“Fátækur og fóta-
Man eg margt, sem mér var
«ent á Fróni” á bls. 114; á að
vera: 'Man eg tvent, sem mér
Var kent á Fróni.”
Um þag vildi fólkið fræðast
faðerni”, á að vera: “Um þess
vildi fólkið fræðast feðerni, bls.
116.
Oabill minn er göfugt, á bls.
^7’ a að vera: “Gabill minn er
Sófug thing” (þing).
Hér um daginn ögn mér brá,
is- 166, á að vera: “Hér um dag-
inn ögn í brún mér brá.”
Að hæla iþeim, sem hrósa
S 188, á að vera: “Að
, , söfnuði þeim, er situr
er. Þessi Ijóðlína er tvíprent-
U n 7®®- bls. í 5. línu að ofan og
• línu að neðan; hún á ekki
eima í fyrxi staðnum, en þar
vantar ljóðlínu í hennar stað, sem
f. bhindum hefir verið svona:
söfnuði þeim, er saknar hans.”
n hinn var frá himnaríki,”
•^209 í 14. iínu ag 0fan. Sama
Jo h'na er prentuð á sömu blað-
1 u 2. línu að neðan. Hún á ekki
eima a fyrri staðnum, en þar
semtar a^ra IJóðlínu í staðinn,
“v TOjög sennilega er svona:
n nú fékk eg góða gesti.”
s uk Þessara prentvilla vantar
mstaðar eins atkvæðis orð og
e* num stöðum stafi. En engar
sar srnávillur eru skaðlegar.
Það var tekið fram að þessi
merkilega bók væri einstök í
sinni röð, og það er áreiðanlega
ekki ofsögum sagt. Hún ætti það
skilið að um hana væri ritaður
langur ritdómur og ítarlegur, en
það verður ekki gert með þessum
línum; mjög sennilegt að einhver
annar gjöri það.
Eitt af sérkennum þessarar
bókar^er það, að hún er öðrum
þræði mesta safn af hláturvekj-
andi fyndni, sem tll er í íslenzk-
um bókmentum og hins vegar
flytur hún ljóð djúpra tilfinn-
inga og sárustu sorga.
Úr þessum tveimur samtvinn-
uðum þráðum, svo ólíkir sem
þeir eru, er ofin sú einkennilega
skikkja, sem sál skáldsins birtist
í.
Um K.N. hefir venjulega verið
talað einungis sem kýmnisskáld.
Þar hafa allir vitað- og viðurkent
að hann skaraði fram úr. Allir
hafa tekið undir með Guttormi,
þar sem hann segir: “Þessi Geys-
ir gamanyrða” það e'r orðið að
íslenzku máltæ'ki. En fæstir hafa
gert sér grein fyrir því, að K.N.
væri líka áhrifamikið ti'lfinninga
og sorga skáld. Sannast þar hið
fornkveðna að:
“Getur undir glaðri 'kinn
grátið stundum hjarta.”
Þegar talað er eða ritað um
Kristján Júlíus á það við að tala
blátt áfram og hispurslaust.
Hann var sjálfur hreinskilinn
maður og sagði það hiklaust, sem
honum bjó í brjósti við hvern
sem hann átti. Eg veit það þess
vegna, að ef hann mætti tala við
mig úr gröfinni, þá mundi hann
alls ekki amast við því að eg
segði blátt áfram sannleikann
honum viðvíkjandi. Kristjánvar
mikilhæfur maður og ágætum
gáfum gæddur. Hefði hann náð
hárri mentun og komist á rétta
hýllu, er ekki hægt að segja
hvaða leiðir hefðu staðið honum
opnar. En það var með hann
eins og hans andlegu bræður
Kristján Jónsson, Gest Pálsson
og fleiri, að hann hneigðist til
áfengisnautnar og var það án efa
staérsti steinninn og hættuleg-
asti á lífsleiðinni. Mun hann
einnig oft hafa fundið til þess
sjálfur og gert sér glögga grein
fyrir því; enda kemur það stund-
um fram skýrt og greinilega í
sumum Ijóðum hans, t. d. í vís-
unni, sem hann kallar: “Sá mig
í spegli” og víðar. Hann lýsir þar
sjálfum sér eins og hann kemur
sjálfum sér fyrir sjónir.
Að bera þá mynd — sjálfslýs-
ingu skáldsins — saman við þann
glæsilega og tilkomumikla mann,
sem hann hafði verið og mundi
eftir sér sjálfum, það ætti að vera
nóg til þess að koma út tárunum
á öllum þeim, sem nokkrar til-
finningar eiga, og það er víst að
hún viðkvæma sál skáldsins hef-
ir grátið þegar þessi vísa fædd-
ist. Það grá'legasta er, að tilfinn-
ingaríkustu og beztu mennimir
verða oftast yerst úti í sambandi
við áfengisnautnina.
Kristján Júlíus kvæntist aldrei
og var altaf einn síns liðs; fann
hann glöggt til þess, hversu ein-
mana hann var og hversu mikils
sá fer á mis, sem aleinn er á lífs-
leiðinni. Man eg það nú glöggt
hvemig mér fanst eg geta lesið
og skilið tilfinningar skáldsins
þegar eg eitt sinn mætti honum
að Mountain fyrir löngu síðan,
er hann kastaði fram þessari
vísu:
“Þó kalt sé loftið, sem þú sérð,
af sorgum mæddur,
eg er oftast einn á ferð,
og illa klæddur.”
Flestar einstakar snjöllustu
kímnisvísur skáldsins hafa flog-
ið á vængjum hláturs og ánægju
um allar bygðir Islendinga, og
eru því öllum kunnar. Það er
síður að heil kvæði hafi lærst
eða fest í minni; þess vegnalang-
ar mig til að taka eitt þeirra inn í
þessar línur með skýringu höf-
undarins:
Þegar ‘Kviðlingar’ druknuðu á
þurru landi, svo að spádómarnir
rættust.”
Kona nokkur hafði fengið
“Kviðlinga” að láni hjá nágranna
konu sinni og var að lesa þá í
rúmi sínu; vildi þá svo til að hún
misti þá ofan á gólfið, og tókst
svo óheppilega til að þeir skemd-
ust svo að hún gat ekki skilað
þeim aftur og bað því K.N. að
selja sér eintak, er hún gæti látið
í staðinn. Með “Kviðlingunum”
sendi K.N. eftirfarandi athuga-
semd:
Komið var alt í kyrð og ró,
köll og sköllin dvína:
Undan kodda kona dró
“Kviðlingana” mína.
Þar með prýði las og lá
ljóð, um blíðu sprundin,
reyndist fríðu fljóði þá
fljót að líða stundin.
Þróttinn dvala-drauma-mók
dró úr mundum loppnum;
datt á gólfið dýrmæt bók
og drukknaði í koppnum.
Hvað sem lærðir kenna menn,
Káinn öllum segir:
Drottins vegir eru enn
órannsakanlegir.”
Það er margt dásam'lega fyndið
í bókinni, en fátt betra en þetta.
Ætla mætti að lítið bæri á ís-
lenzkri ættjarðarást hjá skáldi
eins og K.N^ En þar stendur hann
þó ekki öðrum að baki. Má í því
sambandi benda á vísumar, sem
hann nefnir:
“Vorvísur eða eitthvað svoleiðis”
Þær eru þannig:
Hjartað óvart hoppa fer,
holdið buga skorður
þegar lóa og þrasta her
þreyta flugið norður.
Heimþrá gripinn—hver vill lá,
heim þó andann dreymi?
Tignar svipinn íslands á
ekkert land í heimi.
íslenzk Freyja, björt á brá
bið eg ljóð mín geymi:
Fegra meyja úrval á
engin þjóð í heimi.”
Ef það kemst einhverntíma í
framkvæmd, sem talað hefir ver-
ið um, að gefa út bók með úrval
úr minnum íslands ortum hér
vestra, þá er það víst, að þetta
kvæði getur ekki með sanngirni
verið skilið eftir.
Hér birtast fáeinar vísur tekn-
ar til og frá úr bókinni, eru þær
ólíkar flestum þeim vísum, sem
mest hefir verið haldið á lofti og
í öðrum anda. Þar er alvaran
rauði þráðurinn í gegnum alt.
Farinn er fótur að stirðna. —
Furðað mig getur það eigi:
Býsna oft búinn að spyrna
við broddum á lífsins vegi.
i
Mér hefir lífið opnað und
enn með kvölum sárum:
þornað blóð af þreyttri mund
þvæ eg af með tárum.
Heilsa og auður þegar þver,
þrek og kraftar dvína,
loksins dauðinn llíknar mér,
lætur aftur hlýna.
Gleðisunna glæst er byrgð —
geislar fáir skína;
margt í dapri dauðakyrð,
dreymir sálu mína.
Þreytir K.N. strit og stjá,
stynur öndin þjáða:
Maður sá, sem ekkert á,
á úr v'ndu’ að ráða.
Business and Professional Cards
CHRISTMAS SPECIALS!
All photos taken on approval with no obligation
— 4 Poses To Choose From —
SPECIAL PRICES Phone or Wrile for Appoinlmeni
UNIVECSAL STUDICS
292 KENNEDY ST. (Jusi Norih of Porlage) — Phone 95 653
WEDDING AND BABY PHOTOS — OUR SPECIALTY
Bregður ljóma á lífsins strönd,
ljóssins gjafir beztar:
sömu blómum sama hönd
sáir á grafir flestar.
Eg kann ei ljóð að kveða,
því kímni mín er dauð,
og andans æðar frosnar
að elta daglegt brauð.
Þreytir auður ekki dreng,
þó yfir hauður svífi:
Móti dauða glaður geng
frá gleðisnauðu lífi.
Hryggur kveð eg káta menn,
kvíði geðið lamar.
Suma aftur sé eg — en
suma aldrei framar.
Á bak við allar þessar vísur
og fjölda annara vísna og kvæða
í bókinni er þung undiralda
djúpra og sterkra tilfinninga og
þunglyndis. Og eg er viss um
eitt; það er þetta: Flestir sem
bókina lesa leggja hana frá sér
að loknum lestri með breyttri
skoðun áskáldinu: Þeir áttu von
á því að bókin væri heilmikið
safn af rímaðri fyndni og ljóð-
bundnum skrítlum og ekkert eða
lítið annað; og þeir urðu ekki
fyrir vonbrigðum í því efni:
fyndnin var þar engu minni en
þeir vonuðust eftir. þeir fundu
nóg til þess að gera þeim glaða
stimd og þeir gátu oft ekki varist
hlátri yfir lestrinum. En þeir
fundu einnig annað, sem fæstir
þeirra áttu von á; það var alvaran
og sorgin. íslendingar hafa frá
upphafi verið þannig af guði
gerðir að þeir sökkva sér dýpst
niður í þær bækur og þau rit,
sem viðkvæm eru og snerta
dýpstu tilfinningar þeirra. Eftir
lestur bókarinnar leggja þeir
hana frá sér með þeim breyttu
skoðunum að í stað eintómrar
fyndni sé hún einnig bók alvör-
unnar. Þeir héldu flestir að K.N.
væri einungis skáld hlátursins og
gletninnar, nú vita þeir betur,
nú vita þeir, að á honum sann-
aðist hið fornkveðna, að “hann
hló með öðru auganum en grét
með hinu.”
Margar gúllfagrar vísur eru
einnig í bókinni, sem lýsa hlýrri
og sólríkri sál; vísur, sem hvorki
heyra beinlínis til sorg eða gleði
heldur fögrum hugsimum sól-
skins og mannelsku t. d. þetta:
“Síðan fyrst eg sá þig hér
sólskin þarf eg minna:
gegnum lífið lýsir mér
ljósið augna þinna.”
Hér skal numið staðar. Eflaust
verða fleiri til þess að rita um
þessa bók.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Það var einu sinni búktalari,
sem sá fram á, að eini möguleik-
inn fyrir sig til þess að geta dreg-
ið fram lífið væri að versla með
páfagauka.
♦
Flöskupóstur frá 1941 fanst
nýlega við Harfsfjordbua í
Noregi. í flöskunni var bréf frá
skólastjóra nokkrum að nafni
Haavardsholm til kunningja síns
í frelsishreyfingunni. Haavards-
holm dó á flótta til Englands.
-f
Það er oft mikið rætt um það,
hvað sé styzta sagan, sem skrif-
uð hafi verið. Hér er ein frá
Spáni, og hún er mjög stutt: —
Naut — nautabani. Aðeins naut.
•f
Sir Ernest MacMi'llan í Toronto
varð eitt sinn var við, er hann
var að róta í gömlum bókum,
að rotta hafði komist þar að og
nagað í sig eina bókina nær al-
veg. Bókin hét “Rottuveiðarinn
frá Hameln.”
-f
“Aldrei í sögu Mexico hefir
flokkur okkar unnið eins stór-
kostlegan sigur í kosningum,”
sagði E. Padilla fyrverandi utan-
við, “andstæðingarnir stálu at-
ríkisráðherra, “en”, bætti hann
kvæðakössunum.”
H. J. STEFANSSON
IAfe, Accident and Health
Insurance
Representing
THE GREAT-WEST LIFE
ASSURANCE COMPANY
Winnipeg, Man.
Phone 96)144
DR. A. V. JOHNSON
CmHit
506 SOMERSET BUIL.DINO
Telephone 97 932
Home Telephone 202 392
Talsfmi 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœðingur í augna,, eyma, nef -
og kverka sjúkdómum.
215 Medical Arts Bldg.
Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Bérfrœðingur i augna, eyma,
nef og hdlssjúkdðmum.
416 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy 8t.
Skrifetofusfmi 93 851
Heimajslmi 42 154
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fðlk getur pantaC meöul og
annaO meO pðetl.
Fljðt afgreiöela.
A. S. B A R D A L
843 SHERBROOK STREET
Selur llkkietur og annast um dt-
farlr. Allur dtbúnaöur sft. beetl.
Bnnfremur seiur hann allskonar
minnlsvaröa og legstelna.
Skrifstofu talsimá 27 824
HeimlUs talstmi 26 444
Phone 97 291 Eve. 26 002
J. OAVIDSON
Real Estate, Financial
and Insurance
ARGUE BROS. LIMITED
Lombard Bldg., Winnipeg
PK^INCCJJ
MESSENGGR SERVIOE
VIO flytjum klstur o* töskur.
húsgögn úr smierrl íbúðum,
og húsmunl af öllu tssi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Siml 25 883
C. A. Johnson, Mgr.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Acaountants
1101 McARTHUR BUILDINO
Wlnnipeg, Canada
Phone 49 469
Radlo Service SpeolaUats
ELECTRONIC LABS.
H. THORKKLSOH, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 08BORNE ST.. WINNIPBQ
O. F. Jonaseon, Pres. t Mri». Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
404 SOOTT BLOCK SIMI 95 1*7
Wholetala Distributors of
FRBSH AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch. framkv.stj.
Versla 1 hetldsölu með nýjan og
froeánn flsk.
30* OWHNA STREET
Skrlfet.sfml II 355 Hehna ii 411
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBT STREET
(Belnt suöur af Banning)
Talsimi 30 877
Viotalstimi 3—6 eftír hftdegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selklrk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p m.
Phones: Offlce 26 — Ree. 230
Offioe Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
526 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlceknar
406 TORONTO GEN. TRU8TS
BUILDINO
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPHO
DR. J. A. HILLSMAN
Burgeon
308 MEDICAL ARTS BLDO
Phone 97 329
Dr. Charles R. Oke
Tannlceknir
For Appolntmente Phooe 94 903
Offlce Hours 9—4
404 TORONTO QEN. TRU8T*
BUILDINO
283 PORTAOE AVH.
Wlnnlpeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 556
For Quiok Reliahle Bervice
J. J. SWANSON A CO.
LIMITED
301 AVENUE BLDO WPO.
Fasteignasalar. Lelgja hús. Ot-
vega peningalftn og eldsftbyrgö.
bifreiðaAbyrgö. o. s. frv.
PHONE 97 583
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LSgfrœðingar
209BANK OF NOVA 8COTIA BO.
Portage og Garry St.
Slml 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British QuaUtg Fish Hettissp
60 VICTORIA ST., WINNIPHO
Phone 93 211
Hunager T. R. THORVALDMOH
Tour patronage will be appreciatad
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOK, Uanaging Diraotar
Wholeaale Distrlbutons oí Prjsk
and Frosen Ftak.
311 CHAMBERS STHMT
Offlce Ph. 2« 328 Ree Ph. Tt 91T
Hhagborg U
FUEL CO. n
e
DUl 21 831 ^í}) 21 331