Lögberg - 23.10.1947, Síða 6
0
LÖGBERG, FIMTLFDAGINN 23. OKTÓBER, 1947
(Ensk saga)
HVER VAR
ERFINGINN?
G. E. EYFORD, þýddi
“Nú, jæja”, sagði Newton og gekk
fram og aftur um gólfið; hugur hans var
svo bundinn við það sem skeð hafði, að
hann vissi varla að Fred var þar inni
og heyrði til sín. “Nú, jæja; ég var á
gangi í listigarðinum. Þú þekkir indæla
gangveginn undir birkitrjánum ? Eg var
að hugsa um þig og þitt ásta-ævintýri,
er ég kom auga á stúlku undir einu
trénu. Eg þekkti hana strax, sem
snöggvast gat ég ekki hreyft mig né
hugsað. Svo fór ég að hugsa um, hvað
ég ætti að fá mér til að tala um við
hana. En meðan ég var að hugsa um
það, sá ég vasaklút sem lá á veginum.
ofurlítinn spöl frá henni. Eg tók hann
upp og gekk til hennar, það hlaut að
vera hennar klútur. Hún hrökk við er
ég kom og fékk henni klútinn, hún
þakkaði mér fyrir með því að hneigja
sig. Eg var ákveðinn í að missa ekki af
henni í þetta sinn og sagði:
“Fyrirgefðu ipér, en við höfum mætst
áður”; “Hvar spurði hún; og ég sagði
henni hvar það var. Hún leit á mig og
sagði í veikum róm, að hún mundi það.
Og svo sagði ég henni hreint út, að síð-
an hefði ég gert allt sem ég hefði getað
til að finna hana aftur. “Hvers vegna
vár það svo áríðandi fyrir þig?” spurði
hún. —
“Það var eðlileg spuming”, greip
Fred fram í.
“Já”, svaraði Ed.; “fyrst var hún reið
en það hefir verið eitthvað í málróm
mínum eða andliti, sem sannfærði hana
um, að ég hefði ekki neitt illt í huga.
svo hún hlustaði á mig.”
“Áfram með söguna”, sagði Fred
óþolinmóður.
“Já”, sagði Ed., “við sátum og töluð-
um saman í heilan klukkutíma. eða
meira, og hún hefir lofað mér, að ég
mætti mæta sér aftur. Að minsta kosti
sagði hún mér að hún gengi sér til upp-
lyftingar í listigarðinum hvern eftirmið-
dag. —
Eg reyndi að fá hana til að gefa mér
heimilisfang sitt, en hún vildi ekki gera
það”. —
“Og er það þá allt, sem þú fékst að
vita?” sagði Fred.
“Nei”, svaraði Newton. “Hún sagði
mér að hún hefði orðið fyrir óréttind-
um, og hún hefði í hyggju að reyna að
fá hlut sinn réttan”.
“Og þú bauðst henni náttúrlega að
hjálpa henni”, sagði Fred.
“Já, ég bauðst til að hjálpa henni;
ég sagði henni að tími minn, þekking
og efni, stæði henni til boða, og ég fór
svo langt, að biðja hana að segja mér
hvað það væri, sem lægi í huga henn-
ar, og hvaða órétti hún hefði orðið fyr-
ir, en hún vildi ekki gera það. Við skild-
um svo, en ætlum að sjást aftur. Hún
er mjög breytt, magrari og fölleitari,
en er ég sá hana í jámbrautarvagnin-
um, en ennþá fríðari í mínum augum,
en nokkur stúlka sem ég hefi séð”.
“Þetta er dálítið undarleg saga”,
sagði Fred. “Nærri því ævintýri. E]r það
ekki undarlegt, Ed., að við skulum báð-
ir hafa orðið ástfangnir á svo æfintýra-
legan hátt”.
“Já”, sagði Newton, “það er virki-
lega merkilegt; en mín saga er ekki
ennþá nema byrjun, þar sem þín hef-
ir haft svo góðan enda, eða gerir það,
ef þú gætir þín hyggilega”.
“Hvað meinar þú með því sem þú
segir?” spurði Fred.
“Hvar hefirðu verið í kvöld?” spurði
Newton.
“í leikhúsinu með Miss Rusley”.
“Já, ég bjóst við því”, sagði Newton,
og svo vildi hann ekki tala meira við
Fred það kvöld; þeir voru kanske báðir
þreyttir.
Dora og Mrs. Lamonte höfðu haft
góða ferð með George. Hann hafði sýnt
mikla umhyggju fyrir, að þeim liði sem
bezt á allan hátt. Þegar á járnbrautar-
stöðina kom, beið þeirra skrautvagn,
sem þau áttu að aka í heim til Wood
Castle; fyrir vagninum voru fjórir ólm-
ir hestar. — Er þau komu svo nærri
herragarðinum, að byggingarnar sáust,
sagði Mrs. Lamonte:
hafði hann látið gera stór-miklar breyt-
ingar!”
George brosti ánægjulega.
Á þessum tiltölulega stutta tíma
hafði hann láti ðgera stórmiklar breyt-
ingar á gömlu byggingunum. Það höfðu
unnið þar fjöldi handverksmanna. Að-
albyggingin var alveg endurbyggð,
gamlar útbyggingar rifnar niður, og
nýir turnar byggðir. Allt í kringum
byggingarnr var sléttað og plantað
ýmsum trjátegundum. Vegurinn til
járnbrautarstöðvanna var sléttaður og
endurbættur.
Dora sagði ekkert, en þótti samt
mikið um það er hún sá; hún virti fyr-
ir sér hina miklu byggingu. Hún hafði
oft heyrt Fred tala um hið gamla Wood
Castle, en það sem hún sá, var ekki líkt
þeirri lýsingu sem hann hafði gefið
henni. George hafði með peningum sín-
um látið gjörbreyta því.
Vagninum var ekið að framdyrun-
um, þar komu þjónar til að taka hest-
ana, svo komu þjónar í skrautlegum
búningum til að taka á móti fólkinu, og
alstaðar, hvert sem var litið, var þjón-
ustufólk. Þessi móttaka var eins stór-
kostleg, eins og Dora hafði lesið um,
en aldrei trúað að ætti sér stað. —
George hjálpaði Dora út úr vagninum,
og svo móður sinni, svo stóð hann þar
stoltur og sæll með sig.
Allt í einu hvarf ánægjusvipurinn
af andliti hans; hann sá þar gamla
Groff, skrifara lögmannsins, en svo
jafnaði hann sig er hann kom inn og
hlustaði á allt það hrós, sem móðir
hans hafði að segja um hann, og hina
nýju byggingu.
“Minn kæri George”, sagði hún,
“þú hefir þó sannarlega breytt staðn-
um; ég hefði ekki þekkt hann aftur.
Er þetta virkilega, þar sem áður var
hin gamla halarófa?”
“Já”, sagði George hreykinn, og leit
í kringum sig; hann veitti andliti Dora
eftirtekt til að reyna að sjá, hvort hann
sæi ekki undrunar svip á henni.
Hún leit rólega í kringum sig. Fyrst
það var svo breytt, þá var það ekki
hið gamla heimili, sem Fred þekkti svo
vel og var svo skýrt í minni hans.
“Eg vona, að þú finnir að öllu hefir
verið breytt til hins betra”, sagði
George.
Breytt; já, sannarlega breytt! Stig-
unum hafði verið breytt, svo það hefði
orðið erfitt að finna herbergið þar
sem gamli Squire Arthur dó, og sagði
sín síðustu orð.
“Þú þjófur, þú þjófur! Hvað hefurðu
gert við erfðaskrána?”
Já, hér hafði öllu verið svo gjör-
breytt, að þó gamli Squire Arthur væri
lifnaður aftur, hefði hann ekki endur-
þekkt Wood Castle.
“Eg fékk hina hæfustu menn til að
gera allt þetta”, sagði George með til-
finningu. “Uppi finnurðu allt sem þú
þarft með”, sagði hann við Dora; —
“Gamla byggingin var ekki betri en
gripahús; ég hefi gert mitt bezta til að
geta tekið á móti þér hér, eins og þér
hæfir! Þú sérð myndirnar”, sagði hann,
er hann sá hana vera að virða fyrir
sér tvöfalda röð af máluðum myndum,
af dánum meðlimum Lamonte-fjöl-
skyldunnar. “Eg hefi látið endurbæta
þær allar, því þær höfðu verið illa með-
höndlaðar. Þetta er gamli Squire Art-
hur, föðurbróðir minn, — minn kæri,
dáni föðurbróðir”, sagði hann og lést
verða hryggur.
Dora stansaði fyrir framan síðustu
myndina írammanum, og horfði lengi
og alvarlega á hana. George og móðir
hans horfðu á Dora. — George horfði
á hana með rannsakandi augnaráði og
ótta í huga sér. Ef hún hefði vitað að
hún stæði nú fyrir framan myndina af
föður sínum! Loksins sneri hún sér frá
myndinni, og stundi við; hún var að
hugsa um að þetta væri gamli maður-
inn, sem einu sinni hélt svo mikið upp
á Fred, en eftirlét honum ekkert, er
hann dó. Mrs. Lamonte fanst sem hroll
ur færi um sig.
“Hann var orðinn gamall maður,
kæra Dora”, sagði hún, “og ég var altaf
hrædd við hann. Eg skalf, þegar hann
leit á mig”.
George var orðinn órólegur. “Komið
þið, það er ekki gott fyrir ykkur að
standa hér og verða innkulsa”, sagði
hann. “Viljið þið ekki heldur fara upp
í herbergi ykkar? Ráðskonan vísar
ykkur þangað, og ég vona að allt sé þar
eins og það á að vera”,
Dora fylgdi Mrs. Lamonte að breið-
um stiga. Það var eins og byggingin
hefði einhver æsandi áhrif á hana, og
hún gat næstum ímyndað sér að hún
hefði verið þar einhvern tíma áður, því
það var eins og henni væri allt svo
kunnugt, þó öllu hefði verið breytt frá
því, sem Fred hafði lýst byggingunni
fyrir henni.
Herbergi þeirra voru skrautleg og
með dýrindis húsgögnum af nýjustu
gerð.
“George hefir breytt húsinu í reglu-
lega höll”, sagði Mrs. Lamonte. “Hvað
mér leiddist það hér áður! Það var svo
skuggalegt, og æfinlega fullt af raka.
George segir mér að hann hafi látið
þurrka með ræsum grundvöllinn undir
byggingunni, eftir nýjustu aðferðum.
Staður sem þessi þarf húsmóðir, svo
ég vildi að hann gifti sig”.
“Því segirðu honum það ekki sjálf-
um”, sagði Dora og brosti.
Mrs. Lamonte hristi bara höfuðið.
“Það væri til lítils fyrir mig”, svaraði
hún; “ég held stundum að honum komi
ekki til hugar að giftast”.
Hún leit ánægjulega á Dora. Henni
hafði upp á síðkastið flogið í hug, ef
Dora væri ekki trúlofuð, gæti sonur
hennar komið í staðinn fyrir Fred. —
Það duldist ekki fyrir henni að hann
sýndi Dora mikla umhyggju — móðir
augað er glöggt, er um slíkt er að ræða.
George hafði fengið franskan mat-
reiðslumann.
Réttirnir á borðinu voru svo margir
og sjaldgæfir, að slíkt þekktist ekki;
þjónarnir aðdáanlegir í skrautbúning-
um sínum, og vínkjallarinn fullur af
alskonar vínum.
Það var auðséð að hann hafði ekki
sparað peninga, til þess að Dora skyldi
fá vitneskju um allt það, sem kona
George Lamonte fengi til yfirráða. Ehi
það hreif hana ekki, hún hugsaði allt-
af um Fred og litla húsið sem þau ætl-
uðu að eignast þegar hann væri búinn
að fá stöðuna, sem George ætlaði að
útvega honum.
George var í góðu skapi og gerði sig
eins elskulegan og hann gat. — Hann
lýsti umhverfinu og nágrönnunum;
hann gerði áætlanir um skemtanir og
útkeyrslur, sagði sögur um nágrann-
ana, og í einu sagt, lék sitt hlutverk
eins vel og hann gat.
Allt miðaði til þess, að gera Dora til
geðs. Eftir kvöldverðinn lét hann upp-
lýsa allar stofur og herbergi til þess að
sýna þeim; hann spurði Dora um álit
hennar á einu og öðiru og beiddi hana
að láta í ljós, hvaða breytingar henni
mundi líka betur.
Árangurinn af þessu varð sá, að
Dora dró sig meira í hlé og fylgdi Mrs.
Lamonte.
George sá, að hann gerðist of opin-
skár, skildi við þær og fór inn í lestra-
salinn til að skrifa bréf. Það var eftir-
tektarvert, að það var eina herbergið,
sem ekki hafði verið breytt. Hann hafði
ekki leyft að við neinu væri hreyft þar
— já, það hafði verið læst allan tím-
ann, og lykilinn bar hann altaf á sér,
bæði dag og nótt. Það var eins og nótt-
ina, sem gamli maðurinn dó, og er Ge-
orge stóð með stolnu erfðaskrána í
höndunum, þannig var það enn.
Aldrei kom hann þar inn, án þess að
hrollur færi um hann, og er hann var
þar inni, var hann skimandi með aug-
unum, í allar áttir, og allt í kringum
sig, án þess hann vissi það; hann horfði
rannsakandi á gólfið og húsmunina,
eins og hann væri að gá að einhverju,
sem hann hefði týnt. Það var sem ein-
hver óttakend gripi hann sem drægi
hann þangað. Hann var órólegur og
gekk fram og aftur um herbergið. skoð-
aði og þreifaði á hinum gömlu húsmun-
um sem þar voru inni, en gerði enga
tilraun til að skrifa bréf, eins og hann
hafði sagt. Hugur hans var allur bund-
inn við áform hans. Hann var nú ánægð
ur með, að Dora var komin undir sama
þak sem hann, og hann ákvað með
sjálfum sér; að hún skyldi aldrei fara
úr þessu húsi, nema til að koma þangað
aftur sem eiginkona sín.
Hann var svo niðursokkinn í þessar
hugsanir, og hvernig hann ætti að fá
hana til að giftast sér, að jafnvel hin
tapaða erfðaskrá raskaði ekki hugarró
hans og ánægju þetta kvöld. Hann
gladdi sig við, að nú hefði hann Dora í
höndum sér, og léti hana ekki sleppa,
hverjum svo brögðum sem hann þyrfti
að beita.
Það var langt liðið nætur er hann
gekk til hvílu, og frá efstu tröppunni í
stiganum leit hann í kringum sig, og
brosti ánægjulega.
“Hún er mín — mín”, hvíslaði hann
að sér sjálfum, “ég skal eiga hana líka,
það skal ekkert hindra það”.
Svo fór hann að sofa; en hann
dreymdi ekki Dora, hann dreymdi
Gladys Holcomb.
Alla nóttina var hennar föla andlit
fyrir augum hans. Stundum fanst hon-
um hún horfa á sig í gegnum gluggann
í lestrarsalnum; svo fanst honum að
hún horfa eftir sér eftir einhverjum
endalausum vegi; en hún leit altaf út,
eins og hún væri að ótta honum, og varð
hræddur. — Samv\ska sumra manna
vaknar fyrst á nóttunni.
31. Kafli.
Þó Dora hefði verið prinsessa í heim-
sókn langt frá ríki sínu, hefði ekki ver-
ið hægt að gera meiri og stórkostlegri
umbætur í tilefni af veru hennar.
Það leið enginn dagur svo, að George
fyndi ekki upp á einhverju henni til
skemmtunar og ánægju, og aldrei varð
hann þreyttur á að finna nýja og nýja
skemmtistaði.
Einn morguninn ók hann með hana
til æfintýraríkra ssögustaða; annan
morgun til hinna skrautlegustu blóm-
garða, eða gamalla kastala, sem áttu
sér rómantískar sögur; svo voru þau
heima suma dagana, og léku þá Lawn-
tennis, á fögrum grasfleti fyrir fram-
an bygginguna.
Orðrómurinn um þetta hafði borist
út um nágrennið, og þær fjölskyldur,
sem bjuggu í fallegum húsum og til-
heyrðu hinu fínna félagslífi, heimsóttu
þau, og svo var þeim boðið til miðdags-
samkvæmis, hingað og þangað^ Á
þann hátt leið vikan fljótt, þó Dora
teldi dagana, þangað til hún sæi Fred
aftur. —
Á hverjum morgni fékk hún bréf frá
honum. í hverju bréfi sagði hann henni
hve mikið hann þráði að sjá hana, og
hvað sér leiddist síðan hún fór; en í
hverju bréfi skrifaði hann eitthvað um
Miss Edith, og það var auðheyrt að
hann eyeddi miklu af tímanum hjá
henni. En Dora var ekki afbrýðissöm
— hún leið engri slíkri hugsun að kom-
ast að í huga sínum.
“Eg er svo glöð yfir, að Miss Edith
er í borginni, svo Fred geti komið þang-
að”, sagði hún við Mrs. Lamonte.
Gamla konan brosti, en andvarpaði
um; hún áleit eins og aðrir, að Fred
gæfi of mikið af tíma sínum í þjónustu
þessarar ríku stúlku.
George var ekki spar á peningum,,
hann bara, svo að segja fleygði þeim
út til þess, að geta veitt Dora sem
mesta skemtun. En þrátt fyrir það, var
það alment álitið, að hann væri ekki
greiðugur. Mennirnir í nágrenninu
tóku ofan fyrir honum, en þeir brostu
aldrei til hans, eins og þeir höfðu æfin-
lega gert, er þeir mættu gamla herra-
manninum eða Fred Hamilton. Það var
eitthvað við hann, sem fólkinu geðjað-
ist ekki að; og þó þeir sætu í veitinga-
húsinu og drykkju fyrir peninga sem
þeir höfðu fengið frá honum, þá samt
sem áður hné talið æfinlega að Fred
og þeir hristu höfuðið í ergelsi.
George vissi það vel, og hataði þá
alla; en mest hataði hann þó gamla
skrifarann Groff. Það var eins og hann
væri alsstaðar nálægur. George gat
ekki tekið sér göngutúr, nema alveg
heima við, án þess að mæta honum; og
þó Groff tæki altaf ofan fyrir honum
og segði “góðan daginn”, fann George
þó, að hin smáu, rannsakandi augu
hans hvíldu á sér. Hann hafði ekki séð
Leister lögmann.
Loksins sáu menn í dagblaðinu að
Miss Rusley var komin til Dillingham
Court; Dora vissi þá, að hún fengi að
sjá Fred innan tveggja daga.
Þetta kvöld var George natnari við
hana en áður. Þau höfðu verið í boði
hjá einum af nágrönnunum, og sátu í
dagstofunni þrjú saman. Vonin um að
mæta Fred bráðlega gerði það, að augu
Dora voru hlýlegri og fegurri, og fínn
roði í andliti hennar. Hún var, sem af-
leiðing af þessari tilhlökkun vingjarn-
legri við alla, og þá einnig við George.
Hann hafði fært henni bækur úr lestra
herberginu, sem innihéldu lýsingu á
landinu, og uppdráttum af því; hann
útskýrði það fyrir henni og sýndi henni
myndir af hinum nafnkendustu bygg-
um, þar í kring.