Lögberg - 06.11.1947, Blaðsíða 1
I
PHONE 21374
d ^
CVea'
Cfc
,-n-eTS
Complete
Cleaning
Institution
PHONE 21 374
Vrtute^
lot
<V
Gt
,d ^
1 derer*
lJo.n-Yl ^’p. ~> A C< mplete
Cl< aning
Insl iluiion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 6. NÓVEMBER, 1947
NÚMER 44
Sr. Valdimar Eylands, kona hans Þórunn Lilja og 3 börn
þeirra. — Myndin er tekin í sumar við Öxarár-foss af
Magnúsi Jónssyni prófessor. —
VELKOMINN HEIM
í seinasta tölublaði Faxa var
viðtal við sóknarprestinn, sr
Eirík Brynjólfsson, sem þá vai
á förum vestur um haf til árs-
dvalar í skiptum við prest Fyrsta
lúterska safnaðarins í Winnipeg,
sr. Valdimar J. Eylands forseta
þjóðræknisfélags Vestur-íslend-
inga í Winnipeg. Eru þetta fyrstu
prestaskiptin milli íslendinga
vestan hafs og austan og ætlað
til þess að auka kynnin og
treysta vináttu- og frændsemis-
böndin. Væri óskandi að þessi
viðleitni yrði upphaf að meiri
samskiptum á milli íslendinga
í Vesturheimi og heimaþjóðar-
innar.
Sr. Valdimar er nú hingað kom
inn fyrir nokkru og dvelur á Út-
skálum ásamt konu sinni og 3
stálpuðum börnum þeirra hjóna.
Elsta dóttir þeirra dvelur við
nám í háskóla í Manitobafylki í
Kanada. Væntanlega lýkur hún
prófi þaðan nú á næsta vori, —
Bachelor of Science — sem lætur
nærri að vera það sama og heim-
spekipróf við Háskóla Islands.
Sr. Valdimar er Húnvetningur
að ætt og uppruna, og er þeim,
sem línur þessar ritar, kunnugt
um menntaþrá hans í æsku og
harða baráttu fyrir því, að mega
ganga menntaveginn. — Barna-
fræðslu naut hann í gegnum
stopula farkennslu* eins og títt
var í þá daga, enda var börnum
alþýðustéttanna á þessum árum
ætlað annað hlutskipti en að sitja
yfir bókum og lærdómi.
Eftir ferminguna átti sr.
Valdimar þá ósk heitasta að fá
að ganga í lýðskóla sem þá var
starfandi á Hvammstanga. Var
hann svo lánsamur, að eiga skiln
ingsgóðan föður, sem langaði að
mennta son sinn þó efnin væru
smá, og kostaði námsdvöl hans
við skólann. Hefir sjálfsagt rennt
grun í hvaða efniviðar var
drengnum. Frá Hvammstanga-
skóla brautskráðist sr. Valdimar
vorið 1918 með lofsamlegum
vitnisburði kennara sinna. Næsta
vetur var hann við nám á Akur-
eyri og innritaðist haustið eftir
í 4. bekk Menntaskólans í Reykja
vík. Þar dvaldi hann næstu 2 ár-
in við nám á vetrum en vann fyr-
ir sér á sumrin.
f æsku minni heyrði ég oft
minnst á námsferil sr. Valdi-
mars, gáfur hans, frábæran dugn
að og reglusemi og var ungu
fólki þar í héraði bent á þetta
dæmi til fyrirmyndar og eftir-
breytni.
Kona sr. Valdimars, frú Þór-
unn Lilja Johnson, er fædd og
uppalin vestanhafs, en íslenzk í
báðar ættir. Fluttu foreldrar
hennar til Ameríku frá Akranesi.
Hlutu börn þeirra ágæta mennt-
un, sem sjá má á því, að 2 bræður
frú Lilju eru velþekkfir læknar
í Norður-Dakota og 2 eru lög-
fræðingar; Niels bróðir hennar
er dómsmálaráðherra í sama
ríki. Er þetta rétt eitt dæmið af
fjölmörgum um dugnað og fram-
sókn “landans” á meðal fram-
andi þjóða, og sýnir glögglega,
hve innviðasterk íslenzka þjóð-
in er, þegar til stáls er sorfið.
Sjálf er frú Lilja kennarament
uð og var starfandi kennari í
nokkur ár áður en hún giftist.
Núna á dögunum brá ég mér
til .Útskála til þess að rabba við
prestinn fyrir lesendur Faxa.
Einkum fýsti mig að fá fréttir af
safnaðarlífinu í prestakalli hans
vestan hafs, þar sem sr. Eiríkur
starfar nú. Sr. Valdimar og kona
hans tóku mér ástúðlega og veitti
presturinn mér greið og góð svör
við öllum spurningum mínum.
Fer samtal okkar hér á eftir:
— Hvaða ár fórst þú til Amer-
íku og hvaða starf tókst þú þér
þar fyrst fyrir hendur?
“Þangað kom ég árið 1922. —
Fyrsta sumarið starfaði ég við
fiskveiðar á stórvötnunum í
Kanada. Gekk veiðiskapurinn
mjög vel og innritaðist ég um
haustið í menntaskóla í Banda-
ríkjunum. Þaðan útskrifaðist ég
og hóf þá nám í prestaskóla Norð
manna í Minneapolis og lauk þar
námi með embættisprófi og byrj-
aði strax að starfa í norsku lút-
ersku kirkjuhni og var þar prest
ur um nokkurt skeið. Þessu næst
þjónaði ég enskum söfnuði um
nokkurn tíma. Var það vestur á
Kyrrahafsströndinni. Um þetta
leyti var ég kvaddur til að ger-
ast prestur Fyrsta lúterska safn-
1 aðarins í Winnipeg, en við því
starfi tók ég árið 1938, sem eftir-
maðurmaður sr. Björns B. Jóns-
sonar, bróðursonar Kristj. Jónss.
Fjallaskálds, sem flestir hér
heima munu kannast við, og hef
ég gegnt því starfi síðan.”
— Þú ert forseti Þjóðræk:iis-
félags Vestur-íslendinga í Winni
peg, hvað getur þú frætt okkur
um þann félagsskap í sem
skemmstu máli?
“Um Þjóðræknisfélagið get
ég í stuttu máli fátt eitt sagtfr
þar er af svo miklu að taka. Fé-
lagið er snar þátt í lífi okkar
Vestur-lslendinga, óskabarn
okkar og fjöregg, sem allir eru
fúsir til að vernda og gera hlut
þess sem mestan.
Eg var varaforseti þess í 6
ár, en þetta síðasta ár hefi ég
verið forseti þess, en á undan
mér gegndi prófessor Rikhard
Beck því starfi”.
— Hvað getur þú frætt okkur
um kirkju- og safnaðarlíf landa
okkar í Vesturheimi?
“Winnipeg borg er talin vera
einskonar miðstöð hins andlega
lífs Islendinga í Vesturheimi. —
Borgin telur um 300.000 íbúa.
Menn búa þar úr flestum lönd-
um veraldar og er nú talið að
um 6000 Islendingar eigi þar
heima.
í borginni eru um 150 kirkj-
ur af öllum hugsanlegum trúar-
flokkum. Tvær þessara kirkna
eru íslenzkar, heita þær Fyrsta
lútherska kirkjan, sú er ég
þjóna og svo Sambands kirkjan”.
— Hvað er langt síðan fyrstu
Islendingarnir fluttu til Winni-
peg?
“Nú í haust eru liðin 72 ar
síðan fyrsti íslenzki innflytj-
endahópurinn kom þangað á
leið til nýlendunnar við Winni-
pegvatn, vestan vert, sem menn
gáfu nafnið Nýja-Island. f þeirri
nafngift má sjá ræktarsemi við
ættjörðina. Menn hugsuðu sér
að þeir væru að flytja sig búferl-
um frá. Gamla Islandi til Nýja
íslands. Var mönnum þá efst í
huga að halda fast við feðraarf-
inn, trú sína og tungu.
Fyrir 70 árum var Winnipeg
lítill bær, en í örum vexti. Þá
voru íbúarnir í öllu fylkinu að-
eins 25 þúsundir, en síðan hefir
þeim fjölgað um röskar 700 þús.
All-margir þeirra, sem upphaf-
lega höfðu ætlað sér að fara
norður til Nýja íslands, afréðu
að setjast að í þessum unga ný-
lendubæ, og næstu árin bættust
aðrir við. Árið 1878 var söfnuð-
ur myndaður meðal Islendinga
í Winnipeg, og var hann nefnd-
ur ÞrenningarsöfnuSur. — Þetta
heiti bar hann þar til árið 1884
að hann var löggiltur samkvæmt
landslögum og heitir hann upp
frá því Fyrsti lútherski söfnuð-
urinn í Winnipeg. Skyldi söfn-
uðurinn jafnan minna á það
með nafni sínu, að hann væri
fyrst stofnaður allra lútherskra
safnaða í Winnipegborg. — Við
stofnun safnaðarins er tvennt
athyglisverðast: Konur eru kosn-
ar í safnaðarnefnd, en það mun
hafa verið eins dæmi í sögú
lúthersku kirkjunnar á þeirri
tíð, og annað það, að Sunnudaga-
skóli er stofnaður, en það mun
vera fyrsti ísl. Sunnudagaskól-
inn í heimi. I skóla þessum eru
nú um 300 nemendur og um 20
ungir menn og konur veita þar
tilsögn í kristnum fræðum á
hverjum sunnudegi, nema sum-
armánuðina tvo, júlí og ágúst.
I ríki, sem ekki veitir kirkj-
unni neinn opinberan stuðning,
eins og þar á sér stað, og þar
sem nær engin tilsögn er veitt
í kristnum fræðum í skólum
landsins, verður kirkjan sjálf
að bera aðalábyrgð á uppfræðslu
æskulýðsins. Sunnudagaskóla-
starfið er því einn þýðingarmesti
liðurinn í þeirri fræðslustarf-
semi. Hitt atriðið, sem ég minn
ist á að konur hafa jafnan átt
sæti í safnaðarnefndinni, hefir
einnig orðið • kirkjunni mjög
þýðingarmikið. Illa væri kristni
hald Vestur-Islendinga komið
nú, ef þar hefði ekki hjálpað til
frábær dugnaður þeirra og fórn-
fýsi”.
— Hvað eru margir í Fyrsta
lútherska söfnuðinum?
“Hann telur nú um 1500 með-
limi og styrktarmenn, og’ er þann
ig lang fjölmennasti söfnuður-
á meðal íslendinga vestan hafs”.
— Hafið þið stóra og rúmgóða
kirkju?
“Jú, vissulega. Kirkjan er hið
(Frh. á hls. 5)
Borga- og
héraðsstjórnakosningar
Síðastliðinn laugardag fóru
fram á Bretlandi almennar kosn
ingar til borga- og héraðsstjórna,
er sóttar voru af geisilegu
kappi; lauk þeim með stórkost-
legum sigri íhaldsflokksins, er
vann 600 sæti á kostnað Attlee-
stjórnarinnar og verkamanna-
flokksins; íhaldsmenn krefjast
þingrofs og almennra þingkosn-
inga; slíku mun þó naumast
þurfa að gera skóna, þar sem
kjörtímabil stjórnarinnar renn-
ur eigi út fyrr en árið 1950.
Úr borg og bygð
Þingkosningar í
Danmörku
Nýlega fóru fram almennar
þingkosningar í Danmörku og
lauk þeim með því, að enginn
stjórnmálaflokkanna hlaut nánd
ar nærri nægilegt þingfylgi til
þess að mynda nýtt ráðuneyti af
eigin ramleik.
Kommúnistaflokkurinn tapaði
helming þess þingfylgis, er hann
naut áður en gengið var til kosn-
inga.
Islenzkir foreldrar
Við vitum að það er einlæg
ósk ykkar margra að börnin
ykkar læri íslenzku; notfærið
ykkur Laugardagsskólann. —
Þangað sækir þegar álitlegur
hópur barna og unglinga, sem
hafa mikla ánægju og mdkdð
gagn af kenslustundunum. —
Skólinn hefir ágætar lesbækur
handa börnum, sem notaðar eru
við lestrarnám í skólum á Is-
landi; þar að auk hafa kennarar
skólans útbúið lexíur við hæfi
nemendanna. Kenslukraftar eru
nægilegir; auk þeirra kennara,
sem þegar hafa verið nefndir í
blöðunum, höfum við verið svo
lánsöm að fá Katrínu Brynjólfsd.
frá Utskálum, sem kennara
við skólann. Hún er æfður kenn
ari og góðum hæfileikum gædd.
Okkur vantar fleiri börn; —
sendið börnin á laugardaginn kl.
10 í Lútersku kirkjuna á Victor
Str., þeim mun verða vel fagnað.
I. J.
Mrs. T. W. Thordarson frá
Fargo, N.-Dakota, var stödd í
borginni í byrjun vikunnar.
♦
Laugardaginn, 1. nóv., .voru
þau Rolf Forseng frá Oakview,
Man. og Arnbjörg Fjóla Hall-
dórson frá Hayland, Man. gefin
saman í hjónaband, af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að 800
Lipton St. — Þau voru aðstoðuð
af Rog Wilfred Ormiston og
Önnu Guðrúnu Magnússon. —
Heimili brúðhjónanna verður
að Oakview.
♦
Þjáning af liðagigt? Almenn
gigt? Taugaveiklun? Bakverk-
ur? Þrautir í handleggjum, herða
stirðleiki og fótaverkur. Takið
HP2-töflur, sem veita skjótan
bata við áminnstum kvillum, og
lina verki í liðamótum. — Notið
HP2 töflur 4 sinnum á dag með
heitum drykk. — 40 töflur, $1.25;
100 töflur $2.250. — I öllum
lyfjabúðum.
■t-
Mr. og Mrs. Ólafur Magnússon
frá Lundar, voru stödd í borg-
inni um síðustu helgi.
-f
Mr. Sveinn Pálmason frá
Winnipeg Beach var í borginni
á þriðjudaginn.
Skemlisamkoma Karlakórs
Íslendinga í Winnipeg
Athygli skal vakin á því, að
Karlakór íslendinga í Winnipeg
heldur skemtisamkomu, mánu-
daginn 24. nóvember. Menn eru
beðnir að veita athygli auglýs-
ingu um samkomuna, í íslenzku
blöðunum, næstu viku. Verður
mjög vandað til efnisskrárinnar.
♦
Jón Sigurdson Chapter IODE
will hold its regular meeting at
the home of Mrs. P. J. Sivertson
497 Telfer St., on Thursday Eve.,
November 6th at 8 o’clock.
V O R
Vorið unga vekur þrá,
um vorið lát mig dreyma;
lát mig tánum tylla á
tindana fögru heima.
C. O. L. C.
-♦
Skjót linun frá gigtarstingj-
um, vöðva- og taugaþjáningum,
fæst með notkun “Golden HP2
Tablets”, er þúsundir sjúklinga
með bakverk, stirðleika, sárindi
í liðamótum, verki í fótum,
.handleggjum og öxlum, fá ekki
nógsamlega vegsamað. — Takið
“Golden HP2 Tablets”, eina
töflu 3 eða 4 sinnum á dag í heit-
um drykk, og fáið varanlegan
bata. 40 töflur $1.25; 100 $2.50.
I öllum lyfjabúðum.
-f
Menn og konur 35, 40, 50. —
Skortir starfsgleði? Finnið til
elli? Taugaveiklun? Þl'eytu?
Magnleysi? Njótið lífsins! Takið
“Golden Wheat Germ Oil Cap-
sules”, og verndið heilsu yðar. 50
Capsules $1.00. 300 $5.00. I öll-
um lyfjabúðum.
-♦
Icelandic Canadian Evening
ScWbol will be held at the Home
of W. Kristjansson 499 Camden
Place on November 12th at
8.30 p. m. — The Book of the
Evening will be the Play Galdra
Loftur by Johann Sigurjónsson.
Frónsfundurinn, sem haldinn
var í Goodtemplarahúsinu síðast-
liðið mánudagskvöld, var vel
sótt\ir og um allt hinn ánægju-
legasti. T. J. Oleson prófessor
stýrði fundi. Fyrst fóru fram
venjuleg fundarstörf, og tóku
þá til máls Heimir Thorgríms-
son, Guðmann Levy og Jón Ás-
geirsson.
Ræðu um ísland nútímans,
flutti séra Eiríkur Brynjólfsson,
fróðlega, faguryrta, kryddaða
hans kunnu fyndni; ræðan var
löng, en þó var eins og allir vildu
fá meira að heyra.
DÁNARFREGN
Öldungurinn Thorvaldur
Sveinsson, tæplega 89 ára gam-
all, andaðist á heimili sínu, í
Húsavick, 30. okt. s. 1. — Hann
giftist eftirlifandi konu sinni,
Halldóru Guðrúnu Albertsdóttir
1896; einnig lifa Thorvald sál.,
sjö börn. Hinn látni var mesti
sæmdarmaður og framtakssam-
ur mjög í öllum héraðsmálum
byggðarinnar, meðan heilsa
leifði. Hann hafði búið á
“Hvarfi” í rúm fjörutíu og sjö
ár. Útförin fór fram frá heimili
hins látna, 3. þ. m., að fjölmenni
viðstöddu. Hann var jarðsung-
inn af séra Skúla Sigurgeirssyni;
einnig mælti kveðjuorð, séra
Sigurður Ólafsson.
-♦
Þeir Guðmundur Jónsson og
Jón sonur hans frá Vogar, voru
staddir í borginni í byrjun vik-
unnar.
-♦
Leiðrétling
I grein minni til J. J. Bíldfells
í síðasta Lögbergi, urðu þau mis-
tök hjá mér að ég gat ekki rétt
um höf. vísunnar: Nú er hnigin
hurð að gátt o. s. frv. Sagði ég
að K.N. væri höf., en það mun
ekki vera rétt. Vísan er æði
gömul og lærði ég vísuna heima
á Fróni. Fór ég aðeins eftir minni
og kom K. N. fyrstur í hug mér.
Bið ég lesendur Lögbergs vin-
samlegast að afsaka þessa mis-
sögn.
Tryggve Thorslensen.
íslenzkukensla á Lundar er
þegar hafin. og sóttu 62 börn
fyrstu kennslustundirnar; kensl
an fer fram á miðvikudögum kl.
4 e. h., er hinum venjulegu
kenslustundum barnaskólans lýk
ur. Mrs. H. F. Daníelson hefir
annast um undirbúning kensl-
unnar fyrir hönd Þjóðræknisfé-
lagsins og sýnt í því mikinn
dugnað.
I fyrri viku voru staddir hér
í borg frá Mountain, N.-Dak.,
þeir séra Egill H. Fáfnis forseti
kirkjufélagsins, H. T. Hjaltalín
og G. J. Jónasson.
-♦
Mrs. H. T. Halvorson frá
Regina, Sask., var stödd í borg-
inni í fyrri viku.
-♦
ÞJÓÐRÆKNISSAMKOMA
Almenn skemti samkoma verð-
ur haldin að Lundar, í Lundar
Community Hall, kl. 8e.h. 14.
nóvember n.k. Þjóðræknisdeildin
á Lundar stendur fyrir samkom-
unni. Skemtiskrá síðar auglýst.
Forslöðunefndin.
-♦
The Junior Ladies’ Aid of the
First Lutheran Church will meet
Monday November lOth at 2.30
p.m. in the Church Parlors.
•♦
Fundarboð
Lengi er búið að tala um það
að reisa Hospital í Árborg; nú
er málið komið á þann rekspöl,
að það verður rætt á opinber-
um fundi í Árborg á miðviku-
dagskvöldið þann 12. þ.m., kl. 8.
Vonandi er að -sem allra flestir
sæki fundinn og ræði málið af
fullri e’nlægni og einurð.
Andrea Johnson
forseti heilbrigðisnefndar
-♦
Mr. C. Midford frá Birds Hill,
var staddur í borginni á laugar-
d.iginn.
Frú Jónína Johnston frá Van-
couver hefir dvalið í borginni
nokkra undanfarna daga. Kom
hún austan frá Toronto úr heim
sókn til déttur sinnar.
-♦
Þær frú Matthildur Éjörnson
og ungfrú Herdís Jónsdóttir frá
Minneapolis, Minn., sem dvalið
hafa hér í borginni um hríð,
lögðu af st,að heimleiðis á þriðju-
daginn.
-♦
Islendingadagsnefndar fundur
verður haldinn í Hillcrest Hall
288 Main Street, Vancouver,
B.C., 14. þ. m. klukkan 8 að
kvöldi.
-♦
Umsögn um kveðjumót fyrir
Mr. og Mrs. Ágúst Sædal og
þakkarávarp frá Mr. og Mrs.
Ólafur Magnússon frá Lundar,
ásamt ýmsu fleira, varð að bíða,
vegna rúmleysis og anna við af-
mælisblað Lígbergs.