Lögberg - 20.11.1947, Page 5

Lögberg - 20.11.1947, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. NÓVEMBER, 1947 5 /ÍHLGAMÁI • LVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Mr. og Mrs. George Preston White, þar sem þau eru að hjálpa Betty dóttur sinni við að raða í ferðatöskuna Sextán ára íslenzk stúlka þiggur heimboð frá brezku konungshjónunum Tígin brúðhjón Allur heimurinn dáir elsk- endur. — Þetta er gamalt orð- tak, sem má til sanns vegar færa. Allir hafa mikinn áhuga fyrir því, þegar einhver, sem þeir þekkja, trúlofast og giftist. Allir vilja eiga þátt í gleði hjónaefnanna, með því að halda þeim boð og veizlur, og gefa þeim gjafir. Það er því ekki að undra þótt mikils áhuga yrði vart, þegar hin vinsæla prin- sessa, Elizabeth ríkisarfi Bret- lands, og Lieut. Philip Mount- batten opinberuðu trúlofun sína fyrir nokkrum mánuðum. í dag fer fram brúðkaup þeirra. Hugir allra hjá brúðh j ónunum Óteljandi greinar og myndir af hinum ungu, tignu hjónaefn- um hafa birzt í blöðum og tíma- ritum um allan heim. Eins og eðlilegt er, hafa konur, og þá sérstaklega ungar stúlkur haft mikla ánægju af því að fylgjast með tilhugalífi þessara brúð- hjóna, og lesa alt um undirbún- ing brúðkaupsins, og um bún- inga og brúðarklæði prinsess- unnar. Þetta var alt svo róman- tískt. Harðæri á Breilandi En ástandið á Bretlandi er nú þannig, að ekki mun hafa ver ið búið eins ríkulega til brúð- kaupsins, eins og annars hefði verið gert. Vegna hinna miklu stríðsfórna brezku þjóðarinnar, er nú afar hart í ári þar í landi; fólkinu er skamtaður matur og klæðnaður, og það eins naumt og framast má verða. — Eitt skal yfir okkur og þjóðina ganga” virðist ávalt hafa verið einkunnarorð konungsfjölskyld- unnar, og þess vegna vill hún hlíta skömtunarreglum eins og annað fólk í landinu, Þessar reglur náðu einnig til búninga prinsessunnar. Vanhagar um nylon-sokka Allar stúlkur, hvort sem þær eru af háum eða lágum stigum, langar til að eignast sem falleg- ust föt þegar þær gifta sig. — Fyrir nokkrum mánuðum var sagt frá því í blaði einu að Elizabeth prinsessa ætti erfitt með að útvega sér nylon-sokka. Síðan nylon-efnið var fundið upp fyrir níu árum, finst engri stúlku að hún vera vel klædd til fótanna, taema að hún sé í hin- um næfurþunnu nylon-sokkum. Mörgum ungum stúlkum, sem lásu um þetta, mun því haýa fundist lei|Sinlegt að vita til þess að hina glæsilegu prinsessu van- hagaði um svona fallega sokka, og það einmitt á þessu mikil- væga tímabili æfi hennar, en fá- um mun hafa dottið í hug að þær gætu bætt úr þessum vandræðum. Hugkvæmni ungrar stúlku Ein ung skólastúlka tók þó til sinna ráða; hún gerði það sem beinast lá fyrir, fór ofan í búð, keypti eitt par af hinum nýju, dökku nylon-sokkum og sendi prinsessunni að gjöf ásamt ham ingju sínum. þetta var Betty Joyce White, nemandi við Daniel Mclntyre skólann hér í borginni. Hún fékk þakkarbréf frá hirðmey prinsessunnar og þar með hélt hún að þessu at- viki væfi lokið. Heimboð frá hans hátign George konungi og hennar hátign Elizabeth drotnningu Þegar Betty kemur heim úr skólanum á mánudaginn 10. nóvember, bíður hennar boðs- bréf, sem komið hafði í flug- pósti frá hfnum brezku konungs hjónum; er henni boðið að vera viðstödd í veizlu, sem þau eru að efna til á þriðjudaginn 18. nóvember í St. James-höllinni, fyrir dóttur sína, Princess Elíza- beth og Lieut. Philip Mount- batten, í tilefni af giftingu þeirra 20. nóvember. Betty trúði varla sínum eigin augum og því síður foreldrar hennar, sem ekki vissu fyrr um sendingu hennar til prinsessunn- ar. Ekki nema fáu völdu fólki frá Canada, eins og forsætisráð- herrann og öðrum slíkum, hafði verið boðið til veizluhaldanna í London. Hvernig átti hún, korn- ung, óþekkt, alveg óundirbúin, að geta þegið boðið og vera kom in til London að viku liðinni? Nei, það kom ekki til mála! En gaman var samt að hafa fengið heimboðið.. m Unglingarnir laka fil sinna ráða Ekki fyrr en á þriðjudag, segir Betty skólasystkinum sínum frá þessu boði, og fregnin flaug eins og eldur í sinu um allan skólann á miðvikudag. Hætt er við að hugur unglingana hafi ekki verið mikið við bækurnar þann daginn. Ein úr þeirra hópi er boðið í veizlu prinsessunnar! — Þetta er dásamlegt, hún verður að fá að fara! Þeir kjósa þegar nefnd til þess að fara á fund ráðamanna skólans — en þeir geta ekkert úrræði fundið. — Unglinganefndin fer næst á fund borgarstjórans, en árang- urslaust. Þá dettur þeim í hug að fara til stórblaðsins Free Press og skýra þar frá mála- vöxtum, og nú fer að rætast úr vandanum. Free Press sendir Betty til London Með leyfi foreldra Betty, tók Free Press algerlega að sér að sjá um ferð hennar til London. Betty mun aftur á móti skrifa bréf heim og til skólasystkina sinna; skýra þeim frá því sem fyrir augu og eyru ber í ferðinni, og þessi bréf verða prentuð í Free Press svo að börn og ungl- ingar í skólum Manitoba geti fylgst með og haft ánægju af ferðalaginu. Eaton's-félagið greiðir úr öðrum vanda Allar stúlkur skilja það, hve áríðandi það er, að vera búin viðeigandi fötum við tækifæri sem þetta. Undir venjulegum kringumstæðum þyrfti stúlka, margar vikur ti lað hugsa sig um hvað hún ætti að fá sér til ferðarinnar, en nú voru aðeins tveir dagar til undirbúnings. Úr þessum vanda greiddi Eaton’s-félagið á höfðinglegan hátt. Það tók að sér að búa Betty út að öllu leyti, hvað klæðnað snerti, til ferðarinnar. Það var sem álfkonan, er snart Cihderellu töfrasprota sínum og klæddi hana dýrum búningum. Belfy kvödd Kennarar og nokkur skóla- systkini Betty gáfu henni ferða- tösku og óskuðu henni farar- heilla; nemendur við Gordon Bell skólann sendu henni $30 í peningum ásamt hamingjuósk- um; Garnet Coulter borgarstjóri boðaði hana til City Hall og gaf henni brjóstnál með merki Winnipeg-borgar. Síðan talaði Betty ásamt honum yfir útvarp- ið; kvað borgarstjórinn það á- nægjulegt að Winnipeg hefði svona fallegan fulltrú'a í Lond- on og óskaði henni góðrar ferð- ar. Á laugardagsmorguninn safn aðist saman á flugvellinum fjöl- skylda Betty’s og vinir til að kveðja hana. Þ>ar steig hún upp í stóra silfurlita T. C. A. flugvél, sem innan skamms hóf sig til flugs til austurs, áleiðis til Montreal og þaðan yfir hafið til London. Framúrskarandi nemandi Eins og þessi frásögn gefur til kynna, er Betty í miklu afhaldi hjá kennurum sínum og skóla- systkinum enda segja kennarar hennar, að hún sé framúrskar- andi nemandi, sérlega í ensk- um bókmenntum og stílum. — Síðastliðið ár hlaut hún English merif pin fyrir hæstu einkunn í þessum námsgreinum í ellefta bekk. Móðir Beity er íslenzk Móðir Betty, Sigríður White, er íslenzk; hún er frá Litla Hóli í Eyjafirði. Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson og kona hans, Rebekka Jónsdóttir. Þau Sigurður og Guðrún, fyrri kona Magnúsar Sigurðssonar á Grund í Eyjafirði, voru systkini. Sigríður gekk á Gagnfræðaskól- ann á Akureyri um nokkurt skeið; fluttust vestur til Winni- peg árið 1910, þá aðeins 17 ára að aldri. Árið eftir að hún kom hingað, innritaðist hún sem hjúkrunarnemi á St. Boniface spítalanum. Dáir hún það mjög hve kaþólsku sjjsturnar þar reyndust henni vel, framandi ungling, lítt kunnandi í lands- málinu. Þrátt fyrir þessa erfið- leika útskrifaðist hún sem hjúkr unarkona þremur árum seinna og árið 1915 fór hún til New York og dvaldi þar í eitt ár við framhaldsnám í hjúkrunar- fræði. Árið 1916 giftist hún George Preston White. Hann var hermaður og fór stuttu síð- ar til herstöðvanna í Evrópu. Meðan hann var þar, stundaði hún hjúkrun. Þegar Mr. White var laus úr herþjónustu, settust þau hjónin að á búgarði hans í Snowflake, Manitoba, þar sem hann framleiddi skrásett hveiti- fræ; Mr. White er ættaður frá Cornwall á Englandi. Mr. og Mrs. White eiga sjö mannvænleg börn. Þeim er mjög annt um að börn þeirra fái sem besta menntun, og flutt- ust því til borgarinnar fyrir sex árum til þess að þau fengu betra tækifæri til skólagöngu — tvö af eldri börnunum stunda há- skólanám. Á heimili Mrs. Whiie Eg heimsótti Mrs. White á hinu snotra heimili þeirra að 1288 Dominion Str. “Það mun hafa verið gestkvæmt hjá þér þessa daganna, síðan Betty fékk heimboðið?” “Já”, svaraði hún brosandi, “en við höfum haft mikla á- nægju af þessu. Skemmtilegur viðburður sem þessi hefur mann upp úr hversdagsleikanum”. “Það var gaman að Betty skyldi detta í hug að senda prinsessunni nylon-sokka”. “Við vissum nú ekki að hún hefði gjört það fyrr en boðs- bréfið kom. Svoleiðis var, að þegar við bjuggum í Snow- flake tók Betty upp á því að skrifast á við jafnaldra sína sem áttu heima víðsvegar í heimin- um. Margir þessir bréfavinir hennar urðu henni kærir, og henni þótti gaman að senda þeim smágjafir. Stundum sendi hún nylon-sokka vegna þess að sumar þessar vinstúlkur henn- ar í Evrópu, gátu ekki veitt sér þá. Hún vann sjálf fyrir því fé sem hún varði til þessara gjafa; hún passaði börn, vann á bóka- safninu og í búð á frídögum sín- um; svo borgaði ég henni ofur- lítið fyrir að kenna yngri systir sinni píanóleik. Svo þegar hún sá að prinsessuna vanhagaði um nylon-sokka, þá .datt henni í hug að Senda henni par af sokkum líka, — en tíu sinnum sagðist hún hafa skrifað og end- urskrifað bréfið, sem hún sendi með sokkunum”. “Var Betty ekki feimin við það að eiga að heilsa upp á konunginn og drottninguna?” “Nei, hún var furðanlega ró- leg yfir öllu saman. Hún er kom- in af víkingum og ætti því ekki að óttast neitt”, sagði Mrs. White brosandi. “Mér þykir leitt”, bætti hún við, að börnin mín kunna ekki íslenzku, en í Snowflake voru engir íslendingar. Betty langar nú mjög til að læra íslenzku; hún er búin að læra eina íslenzka bæn. Ef til vill kemur hún seinna til ykkar á Laugardags- skólann”. Um leið og ég kvaddi Mrs. White, minntumst við enn á hið dásamlega æfintýri sem Betty var að upplifa. “Mér finnst það göfugmann- legt af konungsfjölskyldunni að bjóða til sín fólki úr öllum stétt- um mannfélagsins”, sagði Mrs. White. “þ>að styrkir kærleiks- böndin milli þeirra og þegna hins víðlenda ríkis.” TIL K.AUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á . þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur. THE COLUMBIA PRESS LIMITED THE VIKING PRESS LIMITED Innköll unar menn LÖGBERGS Amaranth, Man. Akra, N. Dak. B. G. Kjartanson Backoo, N. Dakota. Árborg, Man K. N. S. Fridfinnson Árnes,- Man. M. Einarsson Baldur, Man. O. Anderson Bellingham, Wash Árni Símonarson Blaine, Wash. Árni Simonarson Boston, Mass Palmi Sigurdson 384 Newbury St. Cavalier, N. Dak. Cypress River, Man O. Anderson Churchbridge, Sask S. S. Christopherson Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson Elfros, Sask Mrs. J. H. Goodmundson Garðar, N. Dak. Páll B. Olafson Gerald, Sask C. Paulson Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson / Gimli, Man O. N. Kárdal Glenboro. Man O. Anderson Hallson, N. Dak. Páll B. Olafson Hnausa, Man. K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man O. N. Kárdal Langruth, Man ... John Valdimarson Leslie, Sask. Jón ólafsson Lundar, Man. Dan. Lindal Mountain, N. Dak. Páll B. Olafson Point Roberts, Wash S. J. Mýrdal Riverton, Man K. N. S. Friðfinnson Seattle, Wash. J. J. Middal 6522 Dibble N.W., Seattle, 7, Wash. Selkirk, Man. Mrs. V. Johnson Tantallon, Sask J. Kr. Johnson Vancouver, B.C. F. O. Lyngdal 5975 Sherbrooke St., Vancouver, B.C. Víðir. Man. * K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man. Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal \ ÆTTUÐ ÞÉR AÐ HAFA FYLT ÚT ÞETTA SPJALD? ptTþér eigið heimtingu á endurgreiðslu af tekjuskatti fyrir L 1 1942, OG — £P þér hafið flutt eða breytt um nafn vegna giftingar eða af öðrum ástæðum síðan þér gerðuð tekjuskatts skilagrein 1942, EIGIÐ ÞÉR AÐ FYLLA ÚT SPJALDIÐ Ef þetta er enn eigi gert, þá bregðist skjótt við . . . Öll spjöld þurfa að vera komin til deildarinnar um 30. nóv. Munið! Frá öllu, sem gera þarf, er nákvæmlega skýrt á spjaldi, sem öllum húsráðendum í Canada var nýlega sent. Ef þér einhverra orsaka vegna fenguð ekki yðar spjald, eða þurð var á spjöldum, þá skuluð þér snúa yður til næstu tekju- skattsskrifstofu eða pósthúss, þar sem spjöldin fást. Tilkynnið strax ef þér hafið flutt. Það tryggir greiða afgreiðslu peningaávísunarinnar! DEPARTMENT OF NATIONAL REVENUE Taxation Division Ottawa Hon. James J. McCann Minister of National Revenue

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.