Lögberg - 04.12.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
Líot
c^ett1ílcTS
I/wSíSJ'S-I°*N°a Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
SntA
0>“5«sbs.»;
iteA
A C< mpleie
Cl( aning
Insl iiution
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 4. DESEMBER, 1947
NÚMER 48.
MAGNÚS MARKÚSSON SKALD
Á fimtudaginn þann 27.
nóvember, s. 1., átti
Magnús Markússon skáld
89 ára afmæli; allmargt
vina heimsóttu hann á
afmælinu og færðu hon-
um hamingjuóskir; hann
yrkir á hverjum degi og
sjaldan betur en nú,
eins og afmælisvísur
hans hér í blaðinu bera
glögg merki um. — Lög-
berg árnar hinu aldna og
lífsglaða skáldi innilega
til hamingju í tilefni af
afmælisdeginum.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Afmælisdagur 27. nóvember, 1947
Dagar líða, ár og aldir,
atburðirnir þúsundfaldir
ýmist hlýjir eða kaldir
örlaganna strauminn við.
Því er bezt með trú og trausti
taka glaður ævihausti,
verma braut að bananausti
bróðurhug og sálarfrið.
Áttatíu ár og níu
enduð kveð ég geði fríu,
þakka dagsins hret og hlýju
harm og hverja gleðistund.
Senn ég liðinn ligg á fjölum
lágt í grafarfaðmi svölum.
' Andinn rís að sólarsölum
sæll á mína vina fund.
M. Markússon.
Of mikið af sósíalisma
Eigi alls fyrir löngu héldu
Sosial Credit-sinnar all-fjöl-
mennan fund á Royal Alex-
andro hótelinu hér í borginni,
þar sem haldnar voru margar
ræður og stefnumál íhuguð frá
mörgum hliðum; meðal ræðu-
manna var Dr. J. E. Haldeman
frá Regina; kvaðst hann ekki
hika við að staðhæfa að í Canada
væri um þessar mundir langt of
mikið af sósíalisma ,er drægi úr
einstaklingsframtakinu og haml
aði nauðsynlegu athafnafrelsi.
“Mannlegur þroski er óhugs-
anlegur án fullkomins persónu-
frelsis”, sagði Dr. Haldeman, og
bætti því jafnframt við, að
sósíalisminn og kommúnisminn
væru tvíburaóvinir hins Cana-
diska þjóðlífs. Foringi Social-
Credit fylkingarinnar í sam-
bandsþinginu, Solon Low, sótti
áminstan fund og flutti þar
ræðu.
Finskur sendiherra
Utanríkisráðherrann í Cana-
da, Hor( St. Laurent, héfir kunn
gert, að finska stjórnin hafi
skipað sinn fyrsta sendiherra í
Canada; maðurinn, sem fyrir val
inu varð er Urbo Vilpiton Toi-
vola, maður á bezta aldri, sem
starfað hefir um nokkur ár í ut-
anríkisþjónustu þjóðar sinnar.
Mr. St. Laurent lét þess jafn-
framt getið, að Canastjórn hefði
gert finsku stjórninni aðvart um
að eins og sakir stæðu, kæmi
hún því ekki við að stofna til
sendiherraembættis í Finnlandi.
Ársþing
Undanfarna daga hefir staðið
yfir hér í borginni ársþing
Sveitarfélaga sambandsihs í
Manitoba, fjölsótt mjög og um
alt hið virðulegasta; bar þar
þar margt á góma, er flest laut
að fjármálum og skiptingu hinna
ýmsu skatta; var meðal annars
farið fram á það, að skattalög-
gjöfinni varðandi álagning járn-
brautarskatta yrði þannig breytt,
að sveitarfélögin fengi vissa upp
hæð af slíkum sköttum í sinn
hlut; þá var þess og krafist, að
þau fengi einnig helming af
bensín, bíla- og áfengissköttun-
um; rík áhersla var einnig á það
lögð, að vegakerfi fylkisins yrði
bætt að verulegum mun og nýir
vegir lagðir þar, sem þörfin væri
mest aðkallandi.
Yfir 600 erindrekar sóttu á-
minst þing. Borgarstjórinn í
Winnipeg, Garnet Coulter, bauð
erindreka velkomna, en af hálfu
fylkisstjórnarinnar fluttu ræður
þeir Garson forsætisráðherra og
Mr. Willis, ráðherra opinbera
verka.
Heiðraður
með samsæti
Fyrir skömmu var Ralph
Maybank sambandsþingmanni
fyrir Mið-Winnipeg-kjördæmið
hið syðra, haldið fjölmennt
samsæti á Marlborough hótelinu
hér í borginni vegna hinnar
nýju og virðulegu stöðu sinnar
sem aðstoðarmaður heilbrigðis-
málaráðherrans í sambandsþing
inu; meðal ræðumanna var
Garson forsætisráðherra, er lét
þess sérstaklega getið, hve holt
það væri, að eiga á þingi jafn
einbeittan og óháðan erindreka
sem Mr. Maybank.
Endurkosinn
Camillien Houde hefir verið
endurkosinn borgarstjóri í
MontreaJL, gagnsóknarlaust; er
þetta í sjötta skiptið sem hann
er kjörinn til að gegna þessu
virðulega embætti; meðan á síð-
asta stríði stóð, var Mr. Houde
í gæsluvarðhaldi vegna þess að
hann hvatti Quebecbúa til að
sinna e kk^ fyrirmælum sam-
bandsstjórnar um skrásetningu
allra borgara landsins vegna
hernaðarlegra þarfa.
Skipting Palestínu
Formaður canadisku sendi-
nefndarinnar á þingi sameinuðu
þjóðanna í New York, dómsmála
ráðherrann, Mr. Ilsley, gerði
grein fyrir því í ræðu, hvers
vegna Canada hefði tekið þá á-
kvörðun, að styðja að skiptingu
Palestínu og stofna þar tvö sjálf
stæð ríki, annað fyrir Araba en
hitt fyrir Gyðinga, án þess þó
að stjórnin væri að öllu ánægð
með þá ráðstöfun; þetta sýndist
samt sem áður eina skynsam
lega lausnin á þessu mikla vanda
máli, og miklu sigurvænlegri en
sú, að skipta landinu upp í smá-
fylki eins og komið hefði til orða.
Mr. Ilsley kvaðst eigi ganga
þess dulinn, að óeirðir myndu
halda áfram í landinu að minsta
kosti fyrst um sinn eftir skipt-
inguna, en á hitt bæri að líta, að
ekki væri viðlit að skiljast svo
við málið, að ekki yrði teknar
neinar úrslitaráðstafanir. — Mr.
Ilsley kvað Canada að fullu
hafa borið sinn hluta af ábyrgð-
inni, sem lausn Palestínumálsins
var samfara.
Gerðir landrækir
Innanríkisráðuneytið franska
hefir kunnugt gert, að það hafi
tekið þá ákvörðun, að reka úr
landi nítján Rússa, sem hefðu
orðið sannir að sök um það að
hafa æst til verkfalla í- Frakk-
landi og stuðlað með því að
hruni iðnaðarins í landinu; ekki
var þess getið hvert menn þessir
voru sendir, en líklegt talið, að
þeir hafi verið fluttir til þess
hluta Þýzkalands, er Rússar ráða
yfir.
Hveitiuppskera
Framkvæmdarnefnd North
West komhlöðufélaganna áætl-
ar að hveitiuppskeran í Sléttu-
fylkjunum þremur, nemi í ár
freklega 318 miljónum mæla; er
uppskerumagnið þv^ talsvert
minna en í fyrra.
Vinnur aukakosningu
Nýverið fór fram auknakosn-
ing til brezka þingsins í Graves-
land-kjördæminu á Englandi, og
urðu úrslit þau, að frambjóðandi
Attlee-stjórnarinnar, Sir Rieh-
ard Thomas Acland, gekk sigr-
andi a fhólmi með nálega 2.000
atkvæða meirihluta umfram
keppinaut sinn, Frank Taylor,
er bauð sig fram af hálfu íhalds
manna; fram að þessu hefir
verkamánnastjórnin brezka ekki
tapað eínni einustu auknakosn-
ingu til þings.
Aukin viðskipti
Stórblaðið London Times
skýrði nýlega frá því, að verzl-
unarviðskipti milli Breta og
Rússa væru mjög að fara í
vöxt, og að líkur væru á að slíkt
myndi leiða til nýs verzlunar-
samnings milli þjóðanna beggja.
Ákvörðun tekin
Rétt um þær mundir, sem
þing sameinuðu þjóðanna í New
York var að ljúka störfum, sam
þykkti það með atkvæðum 33ja
þjóða gegn 13, að skipta Pale-
stínu í tvö sjálfstæð ríki, þrátt
fyrir ströng mótmæli af hálfu
Araba, er spáðu því, að skipting
in gæti leitt til alvarlegra blóðs-
úthellinga í landinu og jafnvel
víðtæks stríðs.
Bandaríkin og Rússland unnu
í sameiningu að skiptingu Pale-
stínu, þrátt fyrir ákveðinn skoð-
anamun á mörgum öðrum svið-
um.
Mikið um byggingar
Nú er talið víst, að á yfirstand
1 andi ári nemi húsabyggingar í
Winnipeg röskum seytján milj-
ónum dollara; auk mikils fjölda
íbúðarhúsa, hefir fjöldi mikill
sölubúða, bílastöðva og verk-
smiðja verið reistur á árinu.
Mjólk hækkar í verði
Að fyrirmælum mjólkursölu-
ráðsins, hækkar mjólkurverð í
Winnipeg uin átta cent pottur-
inn frá 7. desember næstkom-
andi að telja, og verður þá
sextán cents; mjólkurframleið-
endur sögðust starfrækja fram-
leiðslu sína við rekstrarhalla og
gætu ekki lengur unað slíku;
þetta tók mjólkurráðið til greina,
þótt hækkunin í þeirra garð yrði
minni, en fram á var farið.
Innflytjendur frá Hollandi
Samkvæmt tilkynningu frá
náttúrufríðinda-ráðherranum í
Ottawa, Mr. Glen, hafa ráðstaf-
anir verið gerðar í þá átt, að
greiða fyrir innflutningi 10.000
Hollendinga hingað til lands, er
gefa skuli sig við landbúnaði;
þessir innflytjendur greiða
sjálfir sinn eigin ferðakostnað
og koma hingað á skipum, sem
hollenzka stjórnin tekur á leigu;
fyrsti hópurinn kemur í marz-
mánuði næstkomandi.
Fundurinn í London
Eins og vitað er stendur yfir í
London utanríkisráðherrafundur
stórveldanna fjögurra, Bretlands
Frakklands, Rússlands og Banda '
ríkjanna með það fyrir augum,
að vinna að undirbúningi friðar
samninga við Austurríki og
Þýzkaland; varð það að ráði að
taka fyrst fyrir grundvöll að
væntanlegum friðarsamningi við
Austurríki; mjög sýnast skoðan
ir hlutaðeigandi stórvelda skipt
ar um ýmis meginmál, og dauf-
ar horfur um samkomulag fyrst
um sinn.
SILFURBRÚÐKAUPSKVEÐJA
til Svanhvítar og Jóhanns Þorvaldar Beck
Þið hafið varpað birtu á margra brautir,
því bjart er nú um ykkur þetta kvöld;
þið hafið margoft mildað öðrum þrautir,
er mæddi þungt á barmi hryðjan köld.
Þeim vaxa rósir vinahlýju og anga,
sem veginn þannig frani um ævi ganga.
í húsi ykkar hlýjan faðm sinn.breiddi,
því hjartað átti þar sinn konungsstól,
og gleðin öllum skugga skýjum eyddi,
sem skúrir hverfi fyrir bjartri sól.
Þeir minnast ykkar margir þessa stundu,
sem morgunyl í sölum ykkar fundu.
Þið hafið unnað mörgum góðum málum,
og merki þeirra hrundið fram á leið.
En vel sé þeim, er sumarelskum sálum
í sóknum fylgja upp á fjöllin heið,
og trúir málstað gullna hugsjón geyma,
þó grýtt sé leið til nýrri, betri heima.
Á þessum degi margs er því að minnast
og margt að þakka; brosir hugum kær
hin liðna tíð, þá fornir vinir finnast,
og fagnaðsþrungið hjartað örar slær.
Við hyllum ykkur, hópinn prúðra barna,
þar hlær við sjónum ykkar vonarstjarna!
Já, sitjið heil á sigurbjörtum degi,
með sæmd þið hafið runnið ykkar skeið;
því glitra blómstur fríð hjá förnum vegi
og fögrum bjarma slær á horfna leið.
Eg veit ei systur eða bróður betri
í blíðu jafnt sem stríðu’ á ævivetri.
Richard Beck.
Til Jóhanns Becks, prentsmiðjustjóra
1. desember, 1947
Margur hugðist hér á jörð
himnaríki sér að skapa.-------
Gegn um lífsins gönguskörð
gjarnast var að detta’ og hrapa.
Þér hefir tekist þetta vel:
þú átt jarðneskt himnaríki.
Þar eru’ engin ofsajel,
ekki neinn, sem taflið svíki.
Eins er víst: þér unun var
allar hvíldarstundir þínar
á að hlusta inni þar
englana með hörpur sínar.
Þér í götu stóð ei steinn:
Starfið var þinn munarheimur. —
Þú vanst samt ei þetta einn:
Það er altaf byggt af tveimur.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Þakkarorð
Hjartans þakkir viljum við
flytja öllu því ágæta fólki, er
stuðlaði að og tók þátt í samsæti
því, sem fram fór, í tilefni af
25 ára giftingar-afmæli okkar
hjónanna. — Einnig viljum við
þakka af alhug, bréfin, skeytin
og hinar stójrfenglegu gjafir, er
okkur voru afhentar.
Slíkur góðhugur, sem til okk-
ar streymdi, þessa kvöldstund,
mun okkur ógleymanlegur til
æviloka.
Guð launi fyrir okkur.
Mr. og Mrs. Th. Beck
og fjölskylda.
Hámarksverð
Samkvæmt tilkynningu frá
fjármálaráðherra sambandsstj.,
hefir verðfestingarnefndin fyr-
irskipað hámarksverð á niður-
soðnum ávöxtum og garðávöxt-
um; kvað Mr. Abbott ráðstöfun
þessa hafa verið gerða vegna
þess að áminstar vörutegundir
hafi verið seldar við óhæfilega
háu verði.
Frambjóðandi tii þings
Á afar fjölmennum fulltrúa-
fundi, sem haldinn var á Mar-
borough-hótelinu hér í borginni
síðastliðið mánudagskvöld, var
Mr. Peter Taraska kosinn í einu
hljóði til þess að vera frambjóð-
andi Liberalaflokksins í North
Winnipeg-kjördæminu við næstu
sambandskosningar. — Mr.
Taraska er prýðilega máli far-
inn og áhugasamur um þjóðfé-
lagsmál; hann er um þessar
mundir formaður skólaráðsins í
Winnipeg. — Aðal ræðumaður
á áminstum útnefningarfundi
var náttúrufríðindaráðherra sam
bandsstjórnar, Hon. J. A. Glenn.
Hlotnast mikil sæmd
Mr. Charles Thorson, höfund-
ur hinnar nýju og sérstæðu
barnabókar, Keeko, hefir kjör-
inn heiðursfélagi í bókmentafé-
laginu International Mark
Twain Society fyrir sérstætt
tillag sitt til bókmennta með
samningu áminnstrar bókar; hef
ir Mr. Thorson með þessari við-
urkenningu fallið mikil sæmd í
hlut þar sem tala heiðursfélaga
áminnstrar stofnunar er næsta
takmörkuð, og einskorðuð við
þá höfunda, er semja frumleg og
sérstæð listaverk.
ALLT í UPPNÁMI
Ákvörðun sameinuðu þjóðanna'
um skiptingu Palestínu var tekið
með því, að Gyðingar stofnuðu
til dansleiks í helztu borgum
landsins, en Arabar hervæddust
í erg og gríð; sló víða í brýnu
milli þessara andstöðu þjóð-
flokka, 11 manns týndu lífi en
um 20 voru fluttir í sjúkrahús.