Lögberg - 23.09.1948, Qupperneq 1
PHONE 21 374
\te&
Jjffih1 y'O'P- ® A Complele
Cleaning
Instilulion
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 23. SEPTEMBER, 1948 NÚMER 39
TIL SÉRA VALDIMAR J. EYLANDS
Þú ert kominn heim að heiman
heill og sæll, við fögnum þér.
Ársdvöl þín á ættjörðinni
andans sigurmerki ber.
Þú varst heima góður gestur
. gafst það bezt sem áttir til.
Tengdir vora strönd við ströndu
studdur ment, og bróður yl.
íslenzk þjóð, í álfum tveimur
ættarstofni gildum frá.
Mál þitt, ljóð og sagna sjóður
sæmir stærri þjóðum hjá.
Fámennt lið með samúð sigrar
sérhvert þrautaspor á leið.
Norrænt eðli ávalt stefnir
öruggt fram á þroska skeið.
Heill þér, Eylands, ástar þakkir
ávalt tryggur þinni stétt
æðsta markmið okkar daga
er því háð að stefna rétt.
Lengi megi lýð vorn fræða
lífsins trúar andi þinn.
Giftusólin geisli allan
Guði vígðan ferilinn.
M. Markússon.
Ráðherrafundur
Þann 9. þ. m., áttu utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, íslands,
Noregs og Danmörku, fund með
sér í Stokkhólmi með það fyrir
augum að ræða sameiginleg
hagsmunamál og búa undir þátt-
töku hlutaðeigandi ríkja á þingi
sameinuðu þjóðanna í París; —
allir ráðherrarnir tjáðu sig því
hlynta, að Noregur fengi sæti í
öryggisráðinu.
Leiðtogi myrtur
Síðastliðinn laugardag var
fyrrverandi utanríkisráðherra
Burmastjórnar, skotinn til bana
í bíl sínum; hinn myrti stjórn-
málamaður hét Tin Tut, og var
einn hinn allra ákveðnasti and-
stæðingur kommúnista í landi
sínu. —
Critics Acclaim
Pearl Palmason
New York, Sept. 20 CP —
New York music crities today
paid tribute to the warmth of
feeling displayed by Pearl Palma
son of Winnipeg, who gave a
violin recital Sunday at town
hall.
The Times says she "could
achieve real emoiional warmih
in her readings and her playing
could be commended for iís
vigor and viialiiy".
The Times adds: “Miss Palma-
son’s playing was always
especially satisfying when the
music asked warmth of feeling
and permitted her to give free
vent to her emotions, without
too much attention to subtleties
. . . much of the rest of the time
Miss Palmason was seldom
absolutely certain in her control
of tone or of technical hedges”.
It concludes that her playing
“held marked promise and would
have made a deeper impression
in a program less exacting and
more varied in character”.
The program included the
Hindemith Sonata in E, the
Sibelius Concerto and the
Chausson “Poeme”.
The Herald Tribune says she
displayed lechnical incompei-
ence, while her inierpreiaiive
abiliiy seemed siill in a forma-
iive siage in ihe ihree principal
works of ihe evening".
The World-Telegram says:
Miss Palmason was at her best
in sensuous passages of music
and often she performed with
elan and vigorous tone although
not usually with technical per-
fection”.
Snjolaug Sigurdson, also of
Winnipeg, was the accompanist.
Winnipeg Tribune,
Sept. 20th
Erling Bengisson
Á LEIÐ TIL VÍÐFRÆGÐAR
I fyrri viku var stuttlega
skýrt frá heimsókn Erlings
Bengtsson hingað til borgar, og
var þá getið ætternis hans, en
hann er systursonur Charlie
Neilson póstfulltrúa, íslenzkur
í móðurætt.
Þessi ungi sveinn, liðlega 16
ára að aldri, hefir þegar vakið á
sér óhemju athygli vegna frá-
bærrar tækni í Celloleik og
tónlistargáfna yfirhöfuð; hann
byrjaði barnungur að leika á
hljóðfæri sitt í Kaupmannahöfn,
en í fyrra efndi hann til hljóm-
leika í Reykjavík við slíka
feikna hrifningu, að Tónlistar-
félag íslands veitti honum 10
þúsund dali til tveggja ára náms
við Curtis Institute of Music í
Philadelphiu undir ■ leiðsögn
hins heimsfræga kennara Piati-
gorskys; þess skal og getið, að
jafnskjótt og Mr. Piatigorsky
komst í kynni við þenna undra
svein, varð hann svo hrifinn, að
hann bauð honum til heimilis
síns í New York og veitti honum
þar ókeypis kenslu í sumar.
Rannsókn
fyrirskipuð
Eftir langt amstur og úrræða
leysi, hefir sambandsstjórn, að
því er settum forsætisráðherra,
Mr. St. Laurent segist frá, slak-
að þannig til, að sett verði á fót
konungleg rannsóknarnefnd,
sennilega upp á væntanlegt sam
þykki næsta þings, í þeim til-
gangi að íhuga farmgjöld með
aðaljárnbrautum landsins; er
víst svo til ætlast, að þetta
mýki að einhverju skapsmuni
forsætisráðherranna sjö, er mót-
mæltu síðustu hækkun farm-
gjalda og vilja ennfremur
koma 1 veg fyrir að nýrri hækk-
un verði hrundið á framkvæmd.
Að hverju gagni þessi nýja
tilslökun af hálfu sambands-
stjórnar kann að koma, orkar
vafalaust tvímælis, því það
fylgir sögu, að stjórnin treystist
eigi til að hrófla við úrskurði
járnbrautarráðs, varðandi þá
hækkun, 21 af hundraði, sem
þegar hefir gengið í gildi.
Um afstöðu forsætisráðherr-
anna sjö til þessara nýju , ráð-
stafana í Ottawa, er enn eigi
vitað. ’ ,
Mrs. Ingólfur Bjarnason frá
Gimli, er um þessar mundir á
\
ferðalagi suður um Bandaríkin,
með frú Elínborgu Lárusdótt-
ur skáldkonu; þær dvöldu um
hríð í Chicago, en eru nú komn-
ar til New York og dvelja þar í
gistivináttu Mr. og Mrs. Snorri
Einarsson á Long Island.
Ekki myrkar í máli
Félagsskapur kvenna sem,
gengur undir nafninu The Pro-
gressive Conservative Business
Women’s, Club í Ottawa, kvað
hrakfarir íhaldsflokksins á liðn-
um árum stafa af “stefnuleysi,
ónógum samtökum og öfund og
afbrýðissemi innan vébanda
banda flokksins”. Kvennaklúbb-
ur þessi áréttaði svo með eftir-
greindum orðum:
“Flokkurinn hefir haft orð á
sér fyrir að svíkjast aftan að
sérhverjum foringja sínum alla
leið frá dögum Sir John A.
Macdonalds”.
Innfiutningur smjörs
Samkvæmt tilkynningu frá
Mr. Howe, viðskiptamálaráð-
herra sambandsstjórnarinnar,
hefir stjórnin hlutast til um
innflutning 9 miljón punda af
smjöri frá New Zealand og
Danmörku; er þetta gert með
það fyrir augum að koma í veg
fyrir alvarlega smjörþurð á
komandi vetri; þá er og talað
um innflutning smjörs frá þriðja
landinu, sem enn hefir eigi verið
nafngreint.
An gagnsóknar
Eins og frá var skýrt í fyrri
viku, leitar hinn nýskipaði utan-
ríkisráðherra sambandsstjórnar-
innar, Lester Pearson, kosning-
ar til saihbandsþings í Algoma
East kjördæminu þann 25. októ-
ber næstkomandi; nú hefir
íhaldsflokkurinn kunngert, að |
hann bjóði engan fram til höf-
uðs hinum nýja ráðherra, og
líkur taldar á að C.C.F. geri hið
sama; verður þá Mr. Pearson
kosinn gagnsóknarlaust.
Kominn til Ottawa
Um síðastliðna helgi kom til
Ottawa fjármálaráðherra Breta,
Sir Stafford Cripps til þess að
ræða við canadísk stjórnarvöld
um viðskipti milli landanna og
hvernig þeim verði bezt hagað,
þannig, að báðum aðiljum komi
að sem mestum notum; frá Ott-
awa fer Sir Stafford sömu er-
inda til Washington; í för með
honum er frú hans og hópur
brezkra fésýslumanna.
Miss Agnes Sigurdson
VELKOMIN HEIM
Síðastliðinn mánudagsmorgun
kom píanósnillingurinn Miss
Agnes Sigurdson heim úr hljóm
leika-sigurför sinni til íslands og
nálega þriggja mánaða dvöl hjá
kejinara sínum í París.
Miss Sigurdson efnir til píanó-
hljómleika í Playhouse hér í
borg þann 14. október næstkom-
andi.
Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi hefir á hendi for-
göngu um undirbúning þessara
væntanlegu hljómleika, sem
ekki þarf að efa að teljist til
merkisviðburða í listasögu
Winnipegborgar.
Stjakað við
samsteypu
Frá því var nýlega sagt, að
ýmsir úr hópi prógressív-kon-
servativa, er að samsteypustjórn
inni í Manitoba hafa staðið,
væri orðnir fullsaddir af faðm-
laginu og vildu slíta samvistum
við Mr. Garson; blés það þeim
byr í segl, er Liberali var út-
Flestir íslendingar munu hafa
heyrt getið um hinn risavaxna
mann Jóhann K. Pétursson, eða
Svarfdæling eins og að hann er
stundum nefndur; var því sízt
að undra þótt að við landar
hans hér í Los Angeles, vildum
sjá hann, þar sem að hann var
hér á næstu grösum eða í Holly-
wood, en eins og margir vita,
þá er Holliwood einn hluti af
Los Angeles.
En Jóhann er einn eða eitt af
undrum þeim sem að Circusar
hafa í eftirdragi, en þetta eru
sýningar Ringling bræðra og
Bailey, svo að kveld eitt var
ferðinni heitið til þess að sjá
Jóhann augliti til auglitis og
hafa tal af honum, sem að ekki
voru neinir agnúar á að koma
því í framkvæmd, þar sem að
mynd af honum blasti þar við,
með stórri áletrun “Hæsti mað-
ur í heimi og hann kom frá ís-
landi”. En eftir að við vorum
komin inn í tjaldið framhjá
Negra-hljómsveit mikilli, kom-
um við fljótt auga á Jóhann, sem
að sat þar sem konungur í ríki
sínu, bjartur á brún og brá og
prúðbúinn, en þegar ég var kom
inn óboðinn upp í hæstu tröpp-
una sem lá upp að hásæti hans
hrópaði ég: “Sæll og bless”, sem
að hann tók mjög vinsamlega,
og segir svo: “Nú, þetta er skrít-
ið, því að í dag var hér norskur
maður, sem að sagði mér frá
þér”. Nú afsakaði ég við hann
að koma þar, en hann sagði: —
“Blessaður, það er alt í lagi, því
að dagurinn er langur eða frá
kl. 12 á hádegi til miðnættis; —
auðvitað er vinnan ekki hörð, að-
eins að sýna sig og horfa á hinn
margbreytta lýð sem að hér
kemur til þess að glápa á mann”.
“Það er nú ekki að undra á að
fólki verði starsýnt á stærð
þína, ekki sízt hendur og fætur,
en þótt að hæð þín sé svona gíf-
urleg, þá samsvarar þú þér svo
nefndur sem þingmannsefni i
Minnedosa kjördæminu við
aukakosningu, er þar fer senn
fram; en þar hafði íhaldsmaður,
Dr. Ruthledge, skipað sæti í háa
herrans tíð.
En nú hefir einn af þingmönn
um Liberala, Edmond Pre-
fontaine, lýst því yfir, að sam-
steypustjórnin hafi lifað sjálfa
sig, og sé orðin að einskonar
vel á annan hátt”.
Lét hann það gott heita, en
fjögur dverga-systkin voru
þarna á pallinum hjá honum,
en þegar ég hafði orð á smæð
þeirra se,gir Jóhann:
“En þú hefðir átt að sjá peðið
eða minsta manninn í heiminum
sem að ég ferðaðist með árum
saman bæði á Þýzkalandi,
Frakklandi og Danmörku, en
dvergasystkinin litu sannarlega
upp til Jóhanns”.
Jóhann er fæddur á Akureyri
Lifnar yfir
viðskiptum
Fjármálaráðherra brezku jafn-
aðarmanna stjórnarinnar, Sir
Stafford Cripps, hefir lýst því
yfir, að viðskiptavelta Breta út
á við, hafi aukist um helming
frá því á sama tíma í fyrra, og
getiþjóðin því litið bjartari aug-
um fram á veginn nú, en
nokkru sinni fyr síðan síðari
heimsstyrjöldinni lauk; engu að
síður lagði fjármálaráðherra
ríka áherzlu á það, að þjóðin yrði
að leggja sig alla fram um
aukna framleiðslu og nýtni og
sparnað á öllum sviðum.
Dánarslysum fjölgar
Samkvæmt yfirlýsingu frá
öryggismálastj óra fylkisstj órnar
innar í Manitoba, Mr. W. Trevor
Davies, létu 56 manns líf sitt af
völdum umferðaslysa í ágúst-
mánuði síðastliðnum; er þetta
hærri tala en nokkru sinni áður
í sögu fylkisins á einum mán-
uði; um slys þessi er ýmsu um
kent, eins og búast má við, þó
óvarkárni hlutaðeigenda ráði
mestu um í langflestum tilfell-
um. —
bitlingagerði fyrir sundurþykka
ráðherra og aðra hlunninda-
menn, auk þess sem samsteypan
hafi komið í veg fyrir holla og
öfluga stjórnarandstöðu í þing-
inu. —
9. febrúar, 1913, en sonur Péturs
Gunnlaugssonar og Sigurjónu
Jóhannsdóttir, en alinn er hann
upp í Svarfaðardalnum, eða
Norðlendingur í húð og hár.
Það, sem að maður tekur eftir
í fari hans er þetta: Honum ligg
ur lágt rómur, talar hreint mál
og skýrt, leggur áherzlu á orðin,
er prýðilega greindur og íslenzk-
ur í anda og fágaður vel á evróp
iska vísu. Fáir Islendingar munu
hafa betra tækifæri til þess að
kynna land sitt og þjóð, en Jó-
hann, þótt að á óvenjulegan hátt
sé, en í stórum og sterkum hönd-
um hqms fer það vel.
Skúli G. Bjarnason.
ÍSLENZKUR RISI