Lögberg - 23.09.1948, Síða 2

Lögberg - 23.09.1948, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. SEPTEMBER, 1948 --------HoBberg-------------------- GeftB tit hrera flmtudag aí THE COLUMBIA PRESS. LIMITED C95 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrlft ritatjðrana: EDITOR LÖÓBERG »95 Sargent Ave., Winnipeg, Man Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by Thfe Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as.Socond Class Mail, Post Office Dept., Ottawa. PHONE 21 804 Atakanleg harmsaga Sá atburður gerðist í landinu helga síðastliðinn föstudag, er kom eins og reiðarslag yfir allan hinn siðmentaða heim; en þar var skotinn til bana í Jerúsalem, trúnaðarmaður og sátta^ semjari sameinuðu þjóðanna, Berna- dotte greifi, hinn sænski, er mánuðum saman hafði helgað krafta sína því göfuga hiutverki, að vinna að sáttum míili Gyðinga annars vegar og Araba hins vegar á áminstum stöðvum, sem laugaðar höfðu verið blóði og beizkum tárum um allmarga undanfarna mán- uði. Flokkur iliræðismanna af Gyöinga- kyni, er sagður að vera valdur að á- minstu hermdarverki, og hefir nú verið ófriðhelgaður að lögum og rétt- dræpur hvar, sem er, að fyrirskipan stjórnarvalda hins endurborna ísraels ríkis; var sú ráðstöfun að vísu sjálfsögð, því ekki gat heil þjóð sætt sig við það, að sæta ámælum vegna vanhugsaðra gerða nokkurra illræðismanna; þó get- ur naumast hjá því farið, að hið ástæðu- lausa og flónskulega víg hins sænska aðaismanns, spilli fremur en bæti fyrir lausn Palestínu-deilunnar, sem lengi hafði verið næsta flókin og er það auð- sjáanlega enn. Bernadotte greifi hefir int af hendi mestu fórn, lífið sjálft, í þágu friðar- málanna á þessari jörð; hann gekk eins og Magnús konungur hinn berfætti, fram fyrir skjöldu, þar sem hættan var mest, eins og bezt sæmir norrænni að- alslund og norrænum kjarki; honum hefir vafalaust verið ljóst, að líf hans léki á þræði, er hann lagði upp í þenna tvísýna leiðangur; en miklir menn láta sig ekki það henda, að daufheyrast, við röddum skyldunnar; við sérhverja slíka kvöð vex þeim ásmegin og andleg orka. — Þrisvar sinnum hafði Bernadotte greifa lánast að koma á vopnahléi í Palestínu þann tíma, sem hann dvaldi þar, og svo að segja rétt áður en bana- kúlan reið af, var hann að útbúa tillög- ur sínar, er hann ætlaði að leggja fyrir þing sameinuðu þjóðanna í París, er tók til starfa á þriðjudaginn; nú verður það hinn göfugi, norræni andi hans, er þar svífur yfir vötnum. Bernadotte var 54 ára að aldri, er dauða hans bar að; hann hafði helgað alt sitt líf mannúðarmálum og verið meðal annars alþjóðaforseti Rauða- krosssamtakanna; og nú hefir þjóðin hans, sænska þjóðin, er dáði hann og virti, háfist handa um sjóðstofnun til minningar sínum frækna syni, er líf sitt lét í þágu friðarins, og skal sjóðn- um varið til þess að hefja friðarmálin í hærra veldi. Nú er 20. öldin nálega hálfnuð, og enn eru framin níðingsleg morð og hjaðningavíg. Skyldi henni ljúka áður en lýsir af degi bræðralags og alþjóða- friðar? — ♦ -f ♦ Prýðilegt rit um ísland Eftír prófessor Richard Beck lceland: New World Outpost. By Agnes Rothery. The Viking Press, New York, 1948. Höfundur þessa rits, Miss Agnes Rothery, er víðkunn fyrir ferðabækur sínar, ekki síst þær, sem fjalla um Norð- urlönd, enda hefir hún gert sér far um að vanda til þeirra. Áður en hún samdi þessa bók sína um ísland, dvaldi hún um tíma þarlendis og ferðaðist víða um landið. Byggir hún því frásögn sína að eigi litlu leyti á eigin sjón og reynd, en hefir einnig viðað að sér efni úr ýmsum heimildarritum. í inngangskaflanum leggur Miss Rothery réttilega áherzlu á það, hve ís- land sé mikilvægt orðið í alþjóða sam- skiptum, vegna legu landsins mitt í þjóðbraut á flugleiðinni milli Norður- og Vesturálfu, og þá sérstaklega síðan Keflavíkurflugvöllurinn var byggður á stríðsárunum. Að aðalefni er bókin ann ars margþætt lýsing á landi og þjóð. Reykjavík er lýst glögglega, bæði sem höfuðborg landsins og menningar- miðstöð, þar sem andstæðurnar í lífi þjóðarmnai mætast á sérstæðan og á- hrifamikinn hátt, hið gamla og hiö nýja. — í sérstökum kafla, undir fyrirsögn- inni “Individualists and Independence”, — einstaklingshyggjumenn og sjálf- stæði, — er lýst uppruna íslenzku þjóð- arinnar og rakin saga hennar í megin- dráttum; kemur þar ótvírætt í ljós að- dáun höfundar á djúpstæðri þekkingar- og frelsisást þjóðarinnar, á menningu hennar og hæfileika til að fara með og færa sér í nyt unnið frelsi. — Annar kafli er helgaður Þingvöllum, og sögu- frægð staðarins gerð góð skil. Miss Rothery fer mörgum aðdáunar- orðum um landslagið á íslandi. Hún á næma tilfinningu fyrir fegurð landsins og hrikaleik þess, og henni tekst með afbrigðum að bregða upplifandi mynd- um af “náttúruundrum” þess fyrir sjón- um lesenda sinna. Hún lýsir einnig ítarlega íslenzkum stjórnmálum og atvinnulífi þjóðarinn- ar, sýnir hvernig hún notfærir sér með auknum hætti orku- og auðlindir nátt- úrunnar, svo sem fossana og hverina, til framleiðslu ljósa og hita. En þó verklegar framfarir á íslandi á síðari árum séu svo merkilegar, að undrun sætir, þá er menningarlíf þjóð- arinnar eigi síður athygiisvert. — Þetta hefir ekki, fremur en vænta mátti, far- ið fram hjá árvakri athygli Miss Rot- hery: — Hún ritar langt mál um íslenzka tungu, íslenzkar bókmenntir að fornu og nýju, sérstaklega í óbundnu máli, og verður tíðrætt um skáldsögurnar og smásögurnar, sem standa með miklum blóma á hinum íslenzka bókmennta- akri, samhliða ljóðagerðinni með þús- und ár að baki og leikritagerðinni af stórum yngri uppruna. Málara- og höggmyndalist og söng- list hafa einnig á síðari árum blómgast á íslandi, við víðtækan og vaxandi áhuga almennings á þeim fögru listum. — Um þær fjallar sérstakur kafli í íslandslýs- ing þessari, og er Einari Jónssyni mynd höggvara og safni hans að verðugu sérstakur gaumur gefinn í þeirri frá- sögn. — í lokakafla ritsins segir í stuttu máli frá íslendingum í Vesturheimi og jafn- framt vikið að sambandi íslands og Bandaríkjanna, meðal annars að Vín- landsfundi íslenzkra manna til forna. Fjöldi ágætra mynda, grundvallarat- riði varðandi land og þjóð í töfluformi, skrá yfir helztu atburði í sögu þjóðar- innar ásamt ritaskrá og glöggu efnis- yfirliti, auka á fræðslugildi þessarar snoturlegu bókar að ytra frágangi. íslandslýsing Miss Rothery er eigi aðeins mjög fræðandi, heldur einnig ljóst og víða framúrskarandi vel rituð, af samúðarríkum skilningi á ísienzku þjóðinni, sögu hennar og vandamálum; að sama skapi kann höfundur vel að meta skerf íslenzku þjóðarinnar til heimsmenningarinnar. Bók þessi er því ágætlega til þess fallin að fá hana í hendur ungu fólki hér vestan hafs af íslenzkum stofni, sem þörf er fræðslu um land feðra sinna og mæðra, sögu þess og menningu. Vart getur hjá því farið, að lestur svo skemmtilegrar og fróðlegrar lýsingar glæði áhuga þeirra fyrir þeim efnum og gefi heilbrigðum ættarmetnaði byr undir vægni. ♦ ♦ ♦ Kensla í íslenzku Um allmörg undanfarin ár, hefir Þjóðræknisfélagið beitt sér fyrir um kenslu í íslenzku bæði hér í borg og eins út um hin ýmsu, íslenzku bygðarlög; kensla þessi hefir að mestu verið bund- in við laugardaga, og gengur því jafnað- arlegast undir nafninu Laugadagaskól- arnir. Það liggur í augum uppi, að áminst kenslustarfsemi sé ekki nándar nærri fullnægjandi, þó á hinn bóginn áé viljann að virða, og óréttmætt að gera lítið úr því, sem velviljað fólk leggur á sig varðandi viðhald okkar tignu tungu; hitt dylst þó engum, að átökin í þessa átt þurfa að verða almennari og veiga- meiri en fram að þessu hefir gengist við. Látum það aldrei á okkur sannast að við sættum okkur við dauðamók eitt á vettvangi starfsmála okkar og tökum jórturværðina fram yfir sjálfsögð og giftuvænleg átök. ÁH UGA/UAL UVENNA. Ritstjóri. INGIBJÖRG JÓNSSON Menntun Kvenna Sú var tíðin að mentun var talin einungis karlmönnum nauðsynleg; konur máttu vera þakklátar, ef þær fengu að læra að lesa og skrifa. Sem bet ur fer, er nú þessi hugsunarhátt ur fyrir löngu úreltur; allar mentastofnanir þessa lands standa opnar fyrir alla, jafnt konur sem karla. Hitt er annað mál, hvort fólk yfirleitt, sem sækir þessar mentastofnanir, notfærir sér þær á réttan hátt. Aðal tilgangur flestra, sem reyna að afla sér æðri mentun- ar, virðist nú vera sá, að geta á þann hátt komist í arðvænlegar stöður, en hinn sanni tilgangur menntunarinnar er vitanlega sá, að auðga andann og glæða meðfædda hæfileika. í þessum dálkum hefir áður verið vikið að því, að þrátt fyrir hin bættu lífskjör fólks yfirleitt, og hina almennu skólagöngu, virðist hinu andlega lífi þjóðar- innar hafa hnignað. — Mestur áhuginn meðal fólks yfirleitt virðist snúast um það, að safna sem mestu fé, eignast reisuleg heimili, klæðast fínum fötum, eignast fallegan bíl, gott radio og nýtízku húsgögn. Þetta er nú alt gott og blessað í sjálfu sér, en það heyrir alt til hinni ytri afkomu mannsins; það hefir lítil sem engin áhrif á hið innra gildi hans. Þetta er alt hégómi einn, nema að því sé samfara mentun andans. leggja rækt og alúð við allt hið góða, svo það þroskist og blómg- ist og beri hærri hluta í hugsun þess og lífsstefnu. í öllu þessu stendur hún mörgum sinnum betur að vígi, ef þýðing mann- lífsins hefir gengið upp fyrir henni á leið menntunarinnar og hún hefir fengið skilning á mannlegu eðli hjá þeim, sem bezt hefir tekist að þýða það og lýsa því”. F erming Þessi ungmenni voru fermd í lútersku kirkjunni að Mikley, 22. ágúst síðastliðinn. Franklin Helgi Magnússon. Helgi Andrés Erickson. Kristinn Gladstone Bell. Lawrence Roger Mercer. Norman Jón Sigurgeir Jónsson Skúli Sigurgeirsson. The Bornoff School of Music offers the many advantages in music education that only a School can provide, plus a fine staff of music educators. Tuition provided in VOICE — PIANO — VIOLIN — CLARINET — TRUMPET WOODWINDS — STRINGS — BRASSWINDS Theory Classes Commence September 15th CONSULTING SERVICE—APPOINTMENTS PH. 29 877 (2-4 p.m.) 218 Bannatyne Ave. (Opp. Ashdown’s) I I GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ Eins og samkepni á sviði viðskiptalífsins nú er * háttað, liggur það í augum uppi hve mikilvægt | það sé, að piltar og stúlkur fái notið hagkvæmrar i mentunar í öllu því, sem að skrifstofustörfum lýtur; slíka mentun verður fólk að sækja á Business College. Það verður nemendum til ómetanlegra hagsmuna, að leita upplýsinga á skrifstofu Lög- bergs í sambandi við verzlunarskólanámsskeið. ; Þau fást með aðgengilegum kjörum. GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ! Þennan skaðlega hugsunar- hátt nútímans verður konan að reyna að uppræta, það er að mestu leyti í hennar valdi, því konan skapar heimilislífið og hugsunarháttinn að meira leyti en nokkur annar. En til þess að geta þetta, verður hún að afla sér menntunar, sannrar mennt- unar, s^m glæðir hæfileika henn ar og greind, þannig að hún geti myndað sér sjálfstæðar og skynsamlegar skoðanir um þau mál, sem uppi eru á meðal manna og geti tekið þátt í um- ræðum um þau með stillingu og dómgreind. Þessa dagana hefi ég verið að skemta mér við það að blaða í “Sameiningunni” frá gamalli tíð og hefi fundið þar mörg gullkorn, eins og vænta mátti, því að í það blað skrifuðu og skrifa enn margir ritfærustu mennirnir meðal okkar Vestur- * íslendinga. í október-blaðið 1890 skrifar séra Friðrik J. Bergman grein, er hann nefnir “Menntun Kvenna” og leyfi ég mér að endurprenta kafla úr þessari ágætu ritgjörð: “Þýðing kvennlegrar mennt- unar verður samt aldrei eins ljós og þegar vér hugsum oss konuna sem móður. Fyrst og fremst vitum vér, að börnin eru að miklu leyti arfur. — Hvert barn erfir hæfileika móður sinn ar ekki síður en föður síns. — Hafi foreldrarnir menntað anda sinn, kemur það ætíð að ein- hverju leyti fram hjá börnun- um. Miklir menn hafa ætíð átt gáfaðar mæður. Móðirin er barnsins fyrsti kennari. Meir en nokkur annar hefir hún áhrif á lundarfar og lífsstefnu barnsins síns. Þetta starf móðurinnar er ákaflega vandasamt. Til þess að leysa það vel af hendi, þarf hún sannarlega á upplýsing og menntun að halda. Til þess þaff hún að þekkja manneðlið, þar sem það jafnvel hefir sínar huldustu rætur. -Hún þarf að komast eftir hæfileikum og lundarfari barnsins og beina hvorutveggja í beztu átt, ræta upp það illa og skaðlega, sem kann að vera í fari þess, en THE COLUMBIA 695 SARGENT AVENUE PRESS LTD. WINNIPEG. EATON’S, For Hunting Supplies and Equipment Eatonia Shotgun Shells Made of high grade materials to ensure “peak-performance”. Steel reinforced brass base; progressive burning powder; high speed with reduced recoil; non- corrosive priming; oversized cupped lubricated felt wads to seal powder charge and prevent gas leakage, chilled shot; firm hard crimp resists crumpling in repeating guns and assures uniform combustion of powder. Heavy load. (In various shot sizes.) Box of 25 $1.55 Long Range: (In various shot sizes). Box of 25 ........................... $1.75 Canvas Hunting Caps With reversible red lining; stitched crown, sturdy peak. $1.25 - Moulded Pulp Duck Decoys Made by “Carry-Lite” with the famed “Dura-Beak”. Easily carried. light in weight and bearing a striking resemblance to the “real thing”. C| flí Each ................................................ ^ I Holden's Hunting Coats Heavy duck canvas coats with red wool lining and featuring a drop seat that folds up to form a large water resistant pouch for game. Detachable hood, corduroy collar, inner storm sweater cuffs, button cuffs, arm vents and strongly stitched seams. Half or drop seat. Note: side zipper and ClQ QE button tabs. Each * > 0.7J Sporting Goods Section, Third Floor, Hargrave *T. EATON C?,„,TED

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.