Lögberg - 28.10.1948, Page 1

Lögberg - 28.10.1948, Page 1
PHONE 21 374 Xjtt'Hnö' ^-p. S *■ A Complele Cleaning Institulion 61. ÁRGANGUR PHONE 21 374 Cleaning Institution WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 28. OKTÓBER, 1948 NÚMER 44 Fögur rœktarsemi við minningu valmennis Miss M. G. Slefánsson sæmir háskóla Maniíobafylkis $5,000 gjöf í minningu um föður sinn, Dr. J. Stefánsson TILKYNNING UM ÞESSA höfðinglegu gjöf barst Lögbergi bréflega frá aldavini Stefánsson fjölskyldunnar, Arna G. Eggert- syni, K. C. Dr. Jón Stefánson var í fremstu röð hinna allra merk- ustu manna, er svipmerkt hafa íslenzka mannfélagið vestan hafs. og borið hróður þess langt út fyrir þess eigin takmark; hann unni hugástum íslenzkri tungu og íslenzkum fræðum, og hann var hvortveggja í senn ljóðrænn og hljómrænn sem þá er bezt gerist. Dr. Jón kom ungur og umkomulítill af íslandi, en ruddi sér hér í samkepninni slíka braut til frama, er seint fymist yfir; hann var andlegur aðalsmaður að skapgerð, og fjölskygn vísindamaður að sama skapi. -------------------------------- Dr. Jón útskrifaðist í læknis- fræði af háskóla Manitobafylkis, en stundaði framhaldsnám í Lon- don, Glasgow, Vínarborg og Ber- lin, og hlaut vífrægð sem sér- fræðingur í augnasjúkdómum; hann kvongaðist árið 1916 og gekk að eiga Joanna Piliposkva, óperusöngkonu af rússneskum ættum, er var um alt hin gagn- merkasta kona; þeim varð tvegg- ja barna auðið, Nicholas, sem lézt .um aldur fram, og Martha sú, er fyr getur, og hefir á virðu- legan hátt minst með höfðings- skap síns ágæta föður. Kona Dr. Jóns lézt nokkru á undan honum og harmaði hann hana mjög. Manitobaháskólinn hefir þakk- samlega veitt viðtöku áminstri gjöf jafnframt því sem skipu- lagsskrá hefir verið samin, er í sér felur eftirgreind ákvæði: Sjóðurinn verður í Canadísk- um stríðsskuldabréfum, er gefa af sér 3 af hundraði í vexti, eða 150 dollara árlega; undir venju- legum aðstæðum mun áminst upphæð nægja til kaupa á fjór- um Opthalmoscopes, sem notuð eru til að leiða ljós hin fyrstu sjúkdómseinkenni augna, og þeir nemendur í augnalækningum, sem mælt er með í það og það skiptið, verði þeirra aðnjótandi. Einungis þó fjórða árs nemar í læknisfræði geta átt kost þeirra hlunninda, sem áminst skipu- Miss Marta G. Síefánsson þektu hann eins og hann var: sem einn hinna ágætustu meðal dauðlegra manna. Dr. Stefánsson var gæddur meðfæddri hógværð og frábærri prúðmensku; honum var það í raun réttri eiginlegt að “fela ljós sitt undir mælikeri”; en meðan hann lifði og starfaði með oss, var hann sómi því bergi, sem hann var brotinn af, og hélt á lofti heiðri þeirra trúar- og mentastofnana í Manitoba, sem því láni áttu að fagna að geta talið hann meðal sinna andlegu barna. Auk þess, sem Dr. Stefánsson lagsskrá gerir ráð fyrir. í tekjudálk Dr. Jóns Stefáns- sonar sem vísindamanns má það óhikað teljast, að hann fann upp aðferð til að lækna hinn svo nefna Glaucoma augnasjúkdóm, er enn mun vera víða um hönd höfð. Dr. Jón var hinn sírannsak- andi vökumaður mannkyninu til heilla. Hin ræktarsama dóttir Dr. Jóns, Miss M. G. Stefánsson, er fjölhæf og víðment, hún hefir ágæta söngrödd og leikur vel á pianó; hún er útskrifuð sem Bachelor of Science í Medical Technology frá Temple Univers- ity, og starfar við X geisladeild þeirrar stofnunar í sjúkdóma- fræði; um hana má segja rétti- lega, að sjaldan falli eplið langt frá eikinni. Eftirfarandi ummæli Dr. W. Harvey Smiths um Dr. Jón Stefánsson látinn, varpa nokkru ljósi á það, hverrar virðingar hann naut hjá samstarfs og sam- ferðamönnum sínum utan vé- banda íslenzka þjóðarbrotsins, en þau eru þýdd úr Winnipeg Free Press 10. otóber 1936: Það var fyrir fáeinum dögum, að Dr. Jón Stefánsson lagist til hinstu hvíldar í Winnipeg. Hann var ekki maður, sem mikið bar á; hversu mikill maður hann var þó í raun og sannleika vissu aðeins þeir, sem þektu hann bezt: nokkrir nánir vinir, sjúklingar hans og stéttarbræður. Þeir SKIPAR HÁA VIRÐINGARSTÖÐU Einn þeirra tiltölulega mörgu manna af íslenzkum stofni, sem rutt hafa sér braut til mikils frama, er prófess- or Hjörvarður Arnason, sem nú er forseti fyrir deild hinna æðri lista við háskóla Minnesota ríkis, hann er sérfræð- ingur í sögu fag- urra 1 i s ta , og vakti á sér mikla athygli vegna fyr PRÓFESSOR HJÖRVARÐUR ARNASON irlestra sinna um slík efni við Háskóla íslands, en á íslandi dvaldi hann tvö ár meðan á síð- asta stríði stóð og gegndi þar foringjastöðu í ameríska hernum. Háskólinn í Minnestoa er um- fangsmikil mentastofnun og deild sú, sem Hjörvarður prófess- or stjórnar, telur 24 fasta kennara auk 15 aðstoðarkennara, hann er sonur Sveinbjarnar heitins Arna- sonar og eftirlifandi ekkju hans Maríu Bjarnadóttur. \ Hjörvarður prófessor eignaðist fjölda vina á Islandi og ber landi og þjóð söguna hið bezta; heimili hans er í Minneapolis. Síðastliðinn laugardag efndu þau hjónin Arni G. Eggertson, K. C. og frú Maja Eggertson, til virðulegs og fjölmenns móttöku- fagnaðar á hinu yndislega heim- ili þeirra að 919 Palmerston Ave. til heiðurs við prófessor Hjör- varð, og var þar í anda og sann- leika gott að vera, alúð húsráð- var gæddur hinni mestu tækni í þeirri köllun, sem hann hafði valið sér, var hann einnig viður- kendur fyrir frábæra dómgreind í læknisstörfum, takmarkalausa mannúð og fúsleika til þess að láta mannfélag það, er hann til-. heyrði, njóta í fylsta mæli þeirra hæfileika, sem hann var gæddur. Fátæka fólkið í Winnipeg, og sérstaklega það, sem er af íslenzk um uppruna, hefir mist trúan vin og tryggan, sem aldrei lét það undir höfuð leggjast að líkna þeim, sem liðu og lækna þá, sem sjúkir voru. Allur sá tími og öll þau §törf, sem hann lagði á altari fórnfýs- innar í Winnipeg General spítal- anum og læknaskólanum í Mani- toba voru meiri en svo að metin verði eða á vog vegin. Margir af nemendum hans minnast með þakklæti hinnar miklu þolin- mæði, er hann sýndi þegar hann var að reyna að gera þá hlutta- kendur í þeirri grein, er hann sérstaklega stundaði. Jón Stefánssona var ágætur borgari, trúr og staðfastur vinur og fyrirmyndar læknir. Mann- kostir hans, líknarstörf og afreks verk lifa í viðkvæmri minningu hjá hinum mörgu sjúklingum, sem eiga það honum að þakka að þeir njóta þeirrar blessunar að geta litið bjartan dag og heiðan himinn. Einnig minnast þeir hans með söknuði og klökkva, er því láni áttu að fagna að vera samstarfs- menn hans við mentastofnanir og mannúðarmálefni; en til þeirra starfa hafði hann lagt fram krafta sína óspart og sér- hlífnislaust. Með honum hefir þessum mál- um og þessum stofnunum horfið sá styrkur, sem aldrei verður að fullu bættur. enda slík, að þar kemst fátt til jafns við, svo er það jafnan par sem hjartalagið ræður, og allir eru boðnir og velkomnir og full- kominn jöfnuður ríkir. BÚNAÐARBANKINN EIGNAST STÖRHÝSI Þann 4. september s.l. fluttist Búnaðarbanki íslands í hið nýja 5 hæða stórhýsi sitt við Austur- stræti í Rvík, en það nær yfir þvert svæðið milli Austurstrætis og Hafnarstrætis og er því með- fram tveim megingötum mið- bæjarins, enda 360 fermetrar og 8135 rúmmetrar að stærð. Þetta mikla hús ber í hvítvetna vott um stórhug og myndarskap. Ekkert hefur verið sparað til þess, að það mætti verða sem vandaðast. Það hefur verið rösk 3 ár í smíðum. Gunnlaugur Halldórsson arkitekt gerði upp- drætti að húsinu og hafði eftir lit'*með byggingu þess, en yfir- smiður var Jón Bergsteinsson múrarameistari. Þjóðkunnir verkfræðingar og iðnaðarmenn sáu um allt, er að smíði hússins og Ibúnaði þess laut. Er því miður ekki rúm til að nefna nöfn þeirra hér, en störf þeirra lýsa ánægju- legri verksýni og samvizkusemi. Nýstárleg er veggskreyting Sig- urjóns Ólafssonar myndhöggv- ara í afgreiðslusal bankans. Búnaðarbanakinn hefur undir fyrirmyndarstjórn Hilmars Stef- ánssonar bankastjóra orðið eink- ar vinsæl og fjárhagslega styrk stofnun. Við árslok 1947 námu skuldlausar eignir bankans um Liberalar vinna tvennar aukakosningar Mestur útflutningur til Þýzkalands í ágúst Eins og áður hefir verið getið í fréttum blaðsins nam útflutn- ingsverðmæti okkar í ágústmán- uði kr. 22,033,570, en innflutning- urinn kr. 33,525,400. í þessum mánuði fluttum við lagnmest til Þýzkalands, eða fyrir kr. 5.811.00. Var það að mestu ísfiskur samkvæmt samn- ingum við hernaðarnámsyfir- völd Bandaríkjamanna og Breta. Næst stærsti viðskiftavinur okkar í þessum mánuð i var Tékkóslóvakía með rúmilega 3,5 miljónir kr. en þar næst koma Bretland og Holland með rúm- lega 3 miljónir hvort, en þá Bandaríkin með 1.7 miljónir kr. Stærstu útflutningsvörurnar eru sem fyr ísfiskur og freðfisk- ur, rúmlega 6 miljónir hvor teg- und, en þar næst lýsi fyrir 4.2 miljónir króna. —Mbl. 23. sept. 19.4 millj. kr. Nú hefur þessi láns stofnun íslenzks landbúnaðar loks, eftir 18 ára tilveru, eignazt hús. Af því hefur bankinn sjálf- ur not kjallarans, 1. hæðar og 2. hæðar að mestu leyti; allt hitt er leigt öðrum. Samtíðin óskar Bún- aðarbankanum til hamingju með hið nýja stórhýsi. Megi honum þar vel farnast á komandi tímum. Samtíðin, október, 1948 Úr borg og bygð Síðastliðinn Sunnudag sóttu þau merkishjónin Mr. og Mrs. A. S. Bardal guðsþjónustu í Fyrstu lúterszku kirkju, ásamt hinum mannvænlegu börnum sín um tólf að tölu. Þessi sérstæði atburður gerðist í tilefni af af- mælisdegi Mrs. Bardal, og komu börnin, sum hver, langt að, svo sem vestan af Kyrrahafströnd. •f Þann 20. þ.m. voru gefin sam- an í hjónaband í Seattle, Wash. þau Miss Emily Bardal hjúkrun- arkona og Mr. Maurice Patrick Sullivan. Brúðurin er dóttir þeirra Mr. og Mrs. A. S. Bardal. Heimili þeirra Mr. og Mrs. Sulli- van verður að Apt. C. 400 Blaine St., Seattle 9, Washington. Lögberg árnar þessum nýgiftu hjónum framtíðarheilla. f Mr. G. S. Guðmundson frá Wynyard, Sask., kom sunnan frá Síðastliðinn mánudag. fóru fram tvennar aukakosningar til Sambandsþings og lauk þeim báðum með ákveðnum og eftir- minnilegum sigri fyrir frambjóð endur Liberalaflokksins. í Algoma East kjördæminu í Ontario, var hinn nýi utanríkis- ráðherra, Lester B. Pearson kos- inn með miklu afli atkvæða, og er hið sama að segja um Mr. Boucher, er kosningu náði í Rosthern kjördæminu í Sask., í báðum þessum kjördæmur höfðu C. C. F.-sinnar og Social Credit dáendur frambjóðendur í kjöri, er komust skamt á veg. Jafnskjótt og vlst var um úr- slit í Algoma East, lýsti Mr. Pearson yfir því, að hann færi flugleiðis til Parísar á föstudag- inn kemur á þing sameinuðu þjóðanna. ÞUNGUR RÓÐUR Naumast verður annað sagt en störfum þings sameinuðu þjóð- anna í París skili treglega áfram og að róðurinn sé harla þungur. Palestínumálið var á dagskrá í fyrradag en engar ákvarðanir teknar aðrar en helzt þær, að áfellast Gyðinga fyrir rof á samn- ingum um vopnahlé Berlínar deilan hjakkar í sama farinu með því að Rússar í tuttugasta og átt- unda sinn síðan þetta nýja þjóða- bandalag var stofnað, beittu syn- junarvaldi sínu í öryggisráðinu til að kveða niður tillögur til samkomulags, er 6 hinna smærri þjóða báru fram, þar á meðal Canada. Minneapolis á þriðjudagsmorg- unin og lagði af stað vestur um kvöldið. VARNARSAMBAND Samkvæmt fregnum frá París, er nú fullyrt, að Evrópuríkin, Bretland, íyrakkland, Belgía, Holland og Luxembourg, séu í þann veginn að fara þess á leit, að Bandaríkin og Canada gangi í varnarsamband við þau, og að nauðsynlegt sé að umræður í þessa átt hefjist við fyrstu hentugleika. SLAKAÐ Á INN- FLUTNINGSHÖFTUM Fjármálaráðherra Samband- stjórnar, Mr. Abbot, hefir nýver- verið kunngjört að stjórnin hafi ákveðið að slaka svo til á höftum gegn innflutningi ávaxta og ann- ars grænmetis frá Bandaríkjun- um, að trygðar verð nægar birgð- ir slíkra tegunda hér í landi í vetur, hefir þessari ráðstöfun þegar verið vel fagnað af öllum landslýð. Séra Philip M. Péiursson LEITAR KOSNINGAR TIL SAMBANDSÞINGS Síðastliðinn laugardag var séra Philip M. Pétursson, prest- ur Fyrstu Samandskirkju í Wpg. útnefndur af hálfu C.C.F.-sinna sem þingmannsefni þeirra í hinu nýja Norquay kjördæmi, sem innibindur mikinn hluta hins gamla Selkirk kjördæmis; ut- nefningarfundurinn var haldinn í Eriksdale. Séra Philip hefir um langt skeið átt sætti í skólaráði Winnipegborgar. Úr Samkvæmislífinu Á laugardagskveldið þann 16. þ. m., safnaðist saman álitlegur hópur manna og kvenna á hinu fagra og vingjarnlega heimili þeirra Mr. og Mrs. Guðmann Levy, 263 Renfrew Street, er þau þá voru nýflutt í, var erind- ið einkum það að samfagna þess uip ágætu hjónum í hinum nýju heimkynnum þeirra. Mr. John K. Laxdal skóla- stjórii hafði orð fyrir gestum og skýrði tilgang heimsóknarinnar, en aðal ræðuna flutti sr. Valdi- mar J. Eylands, er afhenti þeim Mr. Levy og frú vandaða minja gjöf, aðrir sem til máls tóku 'voru Arni G. Eggertson, K.C., Mr. Jockum Asgeirsson og Ein- ar P. Jónsson, auk Mr. Levy, er þakkaði hlýjum orðum fyrir sína hönd, konunnar sinnar og barna, þessa vingjarnlegu heim- sókn. Veitingar voru hinar full- komnustu og kvöldstundin um alt hin ánægjulegasta. Heimili þeirra Levys-hjóna hefir jafnan staðið við þjóð- braut, og löngum verið rómað fyrir alúð og risnu. ELZTA TRÉ HEIMS — 2300 ára — DEYR KOLOMBO, CEYLON.—Elzta tré heimsins, sem er í borginni Anuradhapura og er 2300 ára gamalt, er að deyja. Það er heilagt í augum Budd- hatrúarmanna, sem liggja nú sífellt á bæn umsverfis það og biðja guð sinn að gefa trénu líf á nýjan leik. En tréð heldur á- fram að visna. —U.P. Vísir, 29. sept. REYKJALUNDUR Hið nýja og veglega vinnuheimili Sambands íslenzkra berklasjúklinga, sem reist hefir verið á landareign Reykja í Mosfellssveit. Sjá frekari umsögn á ritstjórnarsíðu þessa blaðs. TÖLUR Þó tölurnar tali að vísu og túlki margra þrá, þær minnast þó ei þess máttar sem manngildið byggist á. Þó reiknað sé rétt með tölum ei raskast neitt um það, að tíðum var æðra eðlis eitt óskrifað pappírsblað. EINAR P. JÓNSSON

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.