Lögberg - 03.03.1949, Síða 3

Lögberg - 03.03.1949, Síða 3
LOGBERCi. FIMTUDAGINN, 3. MARZ, 1949 3 Líkkistan hans Ah Kee Framhald Hann fór út úr vagninum skamt frá skrifstofu Thompkins og fór á lyftivél upp á níunda hæð. Fólkið starði á þennan ein- kennilag gamla mann, og glotti að honum þegar hann þrammaði inn eftir ganginum að skrifstofu- dyrum Thompkins og fór þar inn. “Ég þarf að finna Mr. Thomp- kins” sagði hann við dyrastúlk- una: “Gerið svo vel að segja hon- um að Ah ee vilji tala við hann.” “Já, ég skal vita hvort hann er inni” svaraði stúlkan með efa- blendni; svo ávarpaði hún ein- hvern gegn um talsíman: “Þakka þér fyrir sagði Ah Kee þegar stúlkan hneygði höfuðið steinþejandi; en hann vissi að það mundi tákna að Thompkins væri inni. Hann gekk að skrif- stofudyrunum og sneri hurðar húninum til þess að opna þær: “Hvað er um að vera, Ah Kee?” Spurði Thompkins: “Er Mrs. Willard . . . ég átti við . . .” “Alt er í bezta lagi’ svaraði Ah Kee og talaði ensku, það mál hafði hann lært þegar hann hlustaði á skóla lexiur fyrir mörgum árum. Thompkins brosti; og honum virtist létta; hann benti Ah Kee á stól skamt frá sér: “Fáðu þér sæti; vinur minn,” sagði hann: “Hvað er það nú sem þér liggur á hjarta?” Ah Kee hneig þreytulega nið- ur á stólinn og dró silki veskið út undan vestinu sínu, þar sem hann hafði falið það: “Ég ætla að biðja þig að kaupa fyrir mig lífeyris tekjur handa henni Mrs. Willard” sagði hann: “Þú segir henni að þetta séu pen- ingar, sem nýlega hafi fengist fyrir part af eignum, sem maður- inn hennar lét eftir sig handa henni.” Ah Kee var lítill vexti en það var eins og hann stækkaði við hvert orð, sem hann sagði og dökku augun skásettu urðu öll að einu djúpu brosi, ens og þau voru vön að vera þegar hann matreiddi eitthvað sælgæti handa Tomma Willard í fyrri daga. Mr. Thompkins hlustaði eins og hugsunarlaust, eftir stundar- korn tók Ah Kee veskið sitt. Hann taldi fram nýja og hreina bréf peningana og fór nákvæm- lega um þá með fingrunum til þess að vera viss um að rétt væri talið: “Hver á þessa peninga? Spurði Thompkins. “Ég á þá” svaraði Ah Kee. Thompkins hristi höfuðið: “Veiztu hvað þú ert að gera? spurði hann: “Þetta hlýtur að vera algeiga þín.” “Það er aleiga mín” svaraði Ah Kee stillilega og strauk á sér flétturnar, sem héngu niður um herðar: “Viltu nú gera það sem ég bið þig?” “Hlustaðu vel á það, sem ég segi, Ah Kee.” Sagði Thompkins vingjarnlega. “Þetta er ónauð- synleg fórnfærsla. Mrs. Willard getur verið hjá börnum sínum, hún hefir dálitlar tekjur, það er engin ástæða til þess að ræna þig aleigu þinni einungis í því skyni að hún geti haldið fast við misskilið sjálfstæði.” Ah Kee hengdi niður höfuðið: “Þetta eru mínir eigin peningar” sagði hann rólega: “Ég ræð því sjálfur hvað ég geri við þá.” “Ég geri þetta ekki.” Sagði Thompkins. “Víst gerirðu það” svaraði Ah Kee með áherzlu. “Mrs. Willard er mín fjölskylda. Ég hefi litið eftir henni síðan hún var lítil stúlka; ég á ekki langt éftir ólif- að og ég ætla ekki að eyða pen- ihgunum fyrir dýra kistu til þess að hggja í þegar ég er dáinn.” Hann hafði ekki hugsað sér að hefna líkkistuna — orðin höfðu þfokkið út úr honum alveg óvart og bænasvipur breiddist yfir hrukkótta andlitið. Það var eins og lögmaðurinn sæi þessa stundina alla innri til- veru þessa hreinhjartaða og ó- áleitna manns: “Svo þú hefir þá dregið þetta saman til þess’ sagði Thompkins með viðkvæmni: “Blessaður gerðu þetta fyrir mig,” sagði Ah Kee í bænarrómi. Mr. Thompkins hneigði höfuðið þegjandi til samþykkis. Hann þagði stundarkorn og sagði síð- an: “Ég skal líta eftir því fyrir þig.” “Það er gott” sagði Ah Kee, og brosti í fyrsta skifti: “Með þessu móti getur hún haldið heimilinu og haft nóg til þess að lifa á alla sína tíð.” “En hvað verður um þig?” spurði Thompkins. “Um mig!” Sagði Ah Kee og skelli hló: “Það er engin þörf að bera áhyggjur vegna mín, öllu er ráðstafað mér vivíkjandi!” Svo stóð hann upp: “Vertu sæll Mr. Thompkins” sagði hann: “Vertu sæll Ah Kee” sagði Thompkins. Kínverjinn sveiflaði höfðinu, tók upp tómt veskið sitt og fór út. Hann var einkennilega ánægður yfir því að hafa lokið erindinu og fengið þessu fram- gengt. Honum fanst hann ekki hafa gert annað en það, sem hver fjölkyldulimur hlyti að gera undir sömu kringumstæður. Hann var svo ánægður að það veitti honum verulegan styrk. Lum Kai flutti líkkistuna heim að húsinu og leit eftir því að lík Ah Kee væri sómasamlega búið greftrunina. Hann flutti kín- verska bæn í hálfum hljóðum og fylgdi öllum reglum sam- kvæmt hinum fimm lagaboðum. Athöfnin átti að fara fram samkvæmt kristnum siðum af virðingu við Mrs. Willard; en Lum Kai vissi að hinn gamli vin- ur hans hefði kosið að orðin væru á máli hans eigin þjóðar, þess vegna mælti hann þau á Kínversku í hálfu hljóðum. Að því búnu kallaði hann á fjöskylduna til þess að vera við aðal athöfnina. Enn þá var ómögulegt að gizka á það hve gamall Ah Kee væri. Hann hefði getað verið ungling- ur eftir útlitinu að dæma; það var nú svo slétt og unglegt. Frið- samt bros lék um varirnar og litlu hendurnar voru krosslagðar á brjóstinu. Hann var fötum, sem hann hafði sjálfur valið sér fyrir mörgum árum, og hárflétt- urnar lágu niður vinstri öxlina. Enginn feldi tár við jarðarför- ina; allir vissu að Ah Kee hefði fallið það ílla. Aðeins var flutt stutt ræða og einn sálmur sufig- inn. Að því loknu var kristan lát- in aftur og látin í þunga stóra viðarkassann. í honum átti að flytja líkið til Kína — þar átti aðal jarðarförin að fara. fram. Það var víst að margir syrgj- endur mundu verða við jarðar- förina hans Ah Kee, og ættingj- ar hans mundu syrgja hann hjartanlega og bera hina dýpstu virðingu fyrir honum þar sem hann lá í þessari dýrðlegu eilífð- arhvílu. Kistan var úr fáguðum Mahóní viði og skreytt gullgljá- andi kopar og hreinu silfri — Átta sterkir menn áttu nóg með að bera hana. Þrátt fyrir alt þetta hefði hon- um ef til vill, fallið enn þá betur athöfnin, sem fór fram í Canada sökum þess að þar var alt Will- ard fólkið: Tommi og Dick og Clarice og Agnes og fjölskyldur þeirra allra — og svo um fram allra aðra var þar hin veikburða, hruma og aldra kona Mrs. Will- ard. Mr. Thompkins hafði ekki get- að þagað yfir leyndarmálinu; hann hafði farið á fund Lum Kai og fengið allar upplýsingar hjá honum, síðan hafði hann sagt Business and Professional Cards SVAR í fréttagrein sinni sem birtist í Lögbergi þann 20. janúar þ.á. tekur Sveinn Guðmundsson vandamál Vancouver borgar til athugunar og hrósar happi yfir sigri Non-Partisan flokksins í síðustu bæjarkosningum sem fram fóru þann 8da desember s.l. Minnist hann stuttlega á fjöl- hæfni og atorku þeirra stór- menna sem sigrandi gengu af hólmi undir merkjum Non- Partisan flokksins en aftur á móti tekur hann óþyrmilega í lurginn á C.C.F. sinnum og telur að þeim væri skammar nær að hafa menn í vali sem vit og skiln- ing hefðu á almennum málefn- um og vandamálum bæjarins. Telur Sveinn það hina mestu fjarstæðu að slíkt mannval sem G.C.F. sinnar hafa á að skipa geti vonast eftir atkvæðum kjós- enda. Bendir hann einnig á hætt- una sem af því gæti stafað að hleypa slíkum ómentuðum og ó- reyndum manneskjum inn í Hvíta Húsið í Vancouver. Af því ég er einn af þessum fákunnandi og óreyndu fram- bjóðendum sem í vali vóru und- ir merkjum C.C.F. flokksins þá álít ég að ég hafi rétt til að svara þessari grein Sveins okkar. Ég er ekki að efast um að Sveinn hafi kynnt sér málin rækilega, aflað sér allra upplýsinga og sótt fundina þar sem málefnin vóru rædd frá báðum hliðum. Mr. Proctor og Mrs. Showler eru nú tveir nýjir öldurmenn undir merkjum Non-Partisan flokks- ins. Getur Sveinn nú t.d. sagt okkur hvaða hæfileika og þekk- ingu og reynslu þeir hafa fram yfir Grace Mclnnes og aðra frambjóðendur C.C.F. flokksins? Getur hann líka frætt okkur um hvaða andans yfirburði að Mr. Thomson (Non-Partisan) hefir yfir Mr. Alsbury (C.C.F.)? Þar sem Sveinn nú ræðir þessi mál- efni með slíkri staðfestu og myndugleika þá ætti hann að geta frætt okkur dálítið um þau vandamál sem nú bíða úrlausnar í Vancouver. Ætli að þá mundi ekki koma upp úr kafinu að Non- Partisan flokkurinn hafi með íhaldsemi sinni og athafnaleysi algerlega brugðist og hángi í valda sessi eingöngu fyrir það að meir en helming bæjarbúa er neitað um atkvæðisréttindi. Aftur á móti hafa þeir sem í vali vóru fyrir hönd C.C.F. flokksin barist fyrir velferðarmálum bæjarins um mörg undanfarin ár og mörgu góðu til leiðar komið. Ég geri ráð fyrir að í næstu fréttagrein sinni muni Sveinn leiðrétta það sem hann hefir far- ið rangt með, eins og t.d. það að ALLIR frambjóðendur Non- Partisan flokksins hafi verið kosnir, og að C.C.F. frambjóð- endur séu altaf neðst á blaði. Ég er reiðumúinn hvenær sem er að bappræða þau vandamál sem á dagskrá vóru í síðustu kosningum við alla þessa and- ans stóru menn sem Sveinn er að hæla, jafnvel Mr. Thomson fógeta sjálfan, væri þá fróðlegt fyrir Svein að standa álengdar og hlusta á. Magnus Elíason ísfirðingar missa veiðar- færi vegna hafíss Frd fréttaritar Timans á Isafiröl Allmikill hafís er kominn hér á fiskimið bátanna, allt vestur að Dýrafirði. Misstu nokkrir ís- firzkir bátar töluvert af línum sínum í gær vegna íssins. Tíminn, 5. febrúar Willard fólkinu alla söguna og það hafði alt tekið höndum sam- an og keypt fallegu líkkistuna með silfurhöldunum. Þannig endaði því æfi Ah Kee að hann fékk sína hjartfólgnustu ósk uppfylta og komst aftur heim til Kína til eilífrar hvíldar. SIG. JÚL. JOHANNESSON þýddi. Mrs. Thora (Þóra) Frederickson látin 1893—1948 Hún andaðist að heimili sínu í Glenboro 16. desember s.l; hún veiktist 19. nóvember og hafði verið rúmföst, en fregnin um andlát hennar kom sem þruma úr heiðskýru lofti, og setti marg- an hljóðann, því hún var kona á besta aldri. Hún var eiginkona Hr. F. Frederickson, kaupmanns í Glenboro. Hún var fædd í Hóla- bygðinni N. Austur frá Glen- boro 1893; foreldrar hennar vóru Jón Sigurðson frá Hvalsá í Hrútafirði, dáinn í Winnipeg 1899, og kona hans Siguríður Helgadóttir Hallgrímssonar fró Kristnesi í Eyjafirði, dáin 2. nóvember 1934. Þóra átti heima í Glenboro nær alla æfi, aðeins var hún 2 ár með foreldrunum í Winnipeg laust fyrir aldamótin, hún var fríð kona, yfirlætislaus, áhugsöm og dugleg, og í öllu sæmdarkona. Hún vann með áhuga í ísl. kvennfélaginu og Söfnuðinum, og ánnari félagsstarfsemi meðal íslendinga í bænum, og lagði gott til allra mála. Hún giftist eftirlifandi manni sínum 1916, var það með afbrigð- um farsælt hjónaband, heimilið var hennar helgasti reitur. Börn þeirra voru 4. 1.) C. Turner, nafnkunnur flugmaður, skotinn niður yfir Þýskalandi í síðasta stríði eftir að hafa faríð 26 flugferðir yfir óvinalöndin, með miklum orð- stýr. 2.) Verna, Mrs. H. Wilton, Sin- clair, Manitoba. 3. ) Allan, starfar við verzlan föður síns, og 4. ) Elvina heima. Einnig á hún fjögur systkini á lífi. Mrs. Lysett í British Columbia, Olgeir, Otto og Victor í Glenboro. Jarðarförin fór fram þann 21. og var afar fjölmenn, kistan var þakin blómum frá vinum og ætt- ingjum, og margir gáfu í Blóma- sjóð Kvenfélagsins til að heiðra minningu hennar. Séra Eric H. Sigmar jarðsöng og séra W. R. Donogh prestur United kirkj- unnar mælti nokkur orð. Söng- flokkurinn söng fagurlega, Að einginmanni, börnum og ástvin- um er hér mikil harmur kveðinn; tjáum vér þeim samhygð vora í þeirra djúpu sorg. G. J. OLESON Dr. Helgi Pjeturss látinn Dr. Helgi Pjeturss, einn þekkt- asti vísindamður og heimspek- ingur íslendinga, lézt s.l. föstu- dag að heimili sínu í Reykjavík; hafði hann legið rúmfastur, fyrst á Landakotsspítala og síðar heima hjá sér, frá því í fyrra vor, er hann féll og lærbrotnaði. Dr. Helgi Pjeturss fæddist í Reykjavík 31. marz. 1872; gekk í latínuskólann og varð stúdent 1891; háskólanám stundaði hann í Kaupmannahöfn, varð cand. mag. í náttúrufræði og landfræði 1897, en 1905 varði hann doktors- ritgerð sína, og var hún um jarð- fræði íslands. Vísindastarfsemi dr. Helga Pjeturss var umfangsmikil, og má segja, að hann hafi komið ís- lenzkri jarðfræði í nýtt horf. Hann fór rannsóknarför til Grœnlands 1897, en ritgerðir hans hafa birzt á 50 stöðum á 4 málum, en auk þess verið þydd- ar á frönsku og pólsku. Var hann héiðursfélagi í hinu íslenzka náttúrufræðafélagi. Á síðari árum hneigðist hugur dr. Helga Pjeturss mjög að heimspeki og dulspeki, og setti harin fram skoðanir, sem eiga marga áhangendur hér á landi. íslendingur, 2. feb. SElKiRK METAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn. og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, spaxar eldivið, heldur hita. KELLT SVKINSSON Slmi 54 358. 187 Sutherland Ave., Wlnnápeg. S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. HUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg Phone 924 624 Office Ph, 925 668 Res, 404 319 NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. Barrister, Solldtor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA 447 Portage Ave, Ph, 926 885 Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj Verzla I helldsölu me6 nf'jan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifst.síml 25 355 Heima 55 463 DR. A. V. JOHNSON Dentiat 606 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talsími 925 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Bérfrœöingur i augna, eyma, nef og kverka sjúkdómum. 209 Medlcal Arts Bldg. Stofutími: 2.00 til 6.00 e. h. DR. ROBERT BLACK BérfrœBingvr i augna, eyma, nef og háJssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 923 851 Helmaelml 403 794 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islenzkur lyfsali Fðlk getur pantaC meOul og annaC með pðsti. Fljðt afgreiðsla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkklstur og annast um Qt- farir. Allur útbúnaður sá bezU. Ennfremur selur hann allskonar minnlsvarða og legsteina. Skrifstofu talsfml 27 324 HelmlUs talsfmt 26 444 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St Mary’s and Vaughan, Wpg. Ph, 928 231 Phone 924 981 H. J. H. PALMASON and Company Chartered Accountants 219 McINTJRE BLOCK Winnipegv Canada Phone 49 469 Radio Service Speciallsts ELECTRONIC LABS. H. THORKELSOB, Prop. The most up-to-date Sound Ecfuipment System. 180 OSBORNE ST„ WINNIPEG JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Ch. M. «27 Medlcal Arts. Bldg. OFFICE 929 349 Home 403 288 Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6 — 652 HOME ST, 594 A«rn«MB St. Viötalatíml 3—5 eftir hðuleirt DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man Offlee hrs. 2.30—6 p.m Phones: Offlce 26 — Re». 280 Offlce Phone Res Phono 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MÉDICAL ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Drs. H. R. 4 and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO QEN. TRUST8 BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone 926 952 WINNIPEG Dr. Charles R. Oke Tannlœknir For Appointments Phone 924 908 Office Hours 9—« 404 TORONTO GEN. TRU8T8 BUILDING 283 PORTAGE AVE Wlnnipeg, Man. SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLB SERVICE 4--------------- J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgð. blfreiðaábyrgð, o. s. frv. Phone 927 538 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœöingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage 09 Garry St. Phone 928 291 GUNDRY PYMORE Limited British QuaUty Fish Vetting 58 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDBOB Sour patronage will be appreclated CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J H. PAQE, Managing Direetor Whoieeale Distributors of Fr»h and Frozen Fish. 311 CHAMBBRS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Slmi 925 227 Wholesale lHstributors of FRESH AND FROZEN FI8H Bns. Phone 27 989 Kes. Phone J« 151 J Rovaizos Flower Shop Our Specialtles WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mrs. 8. J. Rovat.ro«. Proprietrcas Formerly Robinson Sc Co. 253 Notre Dame Ava WINNIPEG MANITOBA

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.