Lögberg - 03.03.1949, Side 4

Lögberg - 03.03.1949, Side 4
4 LÖGBÉRG, FIMTUDAGINN, 3. MARZ, 1949 Hostorg Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED - 6 95 SARGENT AVENUE, WINNIFEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 21 804 Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fynrfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa RÆÐA THOR THORS SENDIHERRA jlutt á þingslitajundi þjóðrœknisjélagsins í Fyrstu lútersku kirkju, 23. jebrúar 1949. Herra forseti — Góðir íslendingar. Nú líður brátt að lyktum þessa þings, þessa góðra vina fundar íslendinga í Vesturheimi. Hingað hafa komið vinir víðsvegar að og mundu þeir þó fleiri hafa orðið ef veðráttan hefði eigi válynd verið og færðin erfið. Enn hefir það sýnt sig að íslend- ingar láta eigi örðugleikana yfirbuga sig, og þeim er sóknin eðlilegri en undanhaldið. Við hjónin hófum notið þess innilega að dvelja með ykkur undanfarna daga og við munum fara héðan af þessu þingi auðug mörgum fögrum endurminningum, sem munu reynast ógleyman- legar. Seta okkar á þinginu hefir einnig glætt trúna á að málstaður ykkar muni sigra og að þjóðræknin muni ganga í arf kynslóð eftir kynslóð á meðan menn dá karlmensku, dugnað og drengskap, og telja það dáð að færa fögrum máistað fórnir starfa og framlags. Það er augljóst mál — það þýðir aldrei að afneita veruleikanum, siíkt er aðeins sjáifsblekking og góðum málstað til einskis gagns. — en það er augljóst mál, að þeim hlýtur að fara fækkandi, er nota íslenzkuna sem hið daglega mál, en vonandi verður það ætíð stór hópur manna sem skilur ritar og talar íslenzku sín á milli. Frá hinum nýja kennarastóii í íslenzkum fræðum við háskólann hér koma vonandi þau öfl og áhrif, er megna að verða hinni ungu kynslóð leiðarhljós til að tryggja sér lykilinn að auðslindum menningar feðranna og bókmentum. Það hefir verið siður þeirra fulltrúa er að heiman hafa komið, að lofsyngja ísland eitt, mér finnst ég hefði eigi rækt erindi mitt á þennan fund ykkar ef ég léti með öllu ónotað tækifærið til að lýsa aðdáun minni á hinu nýja kjörlandi eða föðurlandi ykkar. Ég hefi átt þess kost að ferðast nokkuð víða um Canada, einkum að austanverðu, en einnig vestur við Kyrrahaf og jafn- framt að koma við á sléttunum þar mitt á milli og hríf- ast af fegurð landsins. Meira er þó um vert að minnast þeirra auðæfa, sem í landinu búa bæði við sjó og í sveit. Og eigi skal fólkinu gleymt. Það hefir orðið hlutskifti mitt að kynnast ýmsum af helstu forráðamönnum þessarar ungu þjóðar á ýms- um alþjóðlegum ráðst^t'num og ég hefi veitt því athygli hvers álits þeir njóta þar, og hversu oft mannvit og málamiðlun þeirra héfir ráðið farsællegum lyktum margbrotinna vandamála. Canadíska þjóðin er ung, en hún er sterk og ég veit og sé að vegur hennar og völd munu fara vaxandi í heiminum. Ung og sterk þjóð, sem býr í landi mikilla auðslinda, hlýtur og að vera þess megnug að skapa sín- um börnum farsæld og hamingju. Mér er ánægja að minnast þess að á þingum sam- einuðu þjóðanna og öðrum alþjóðlegum ráðstefnum, hefir nær ætíð farið svo að Canada og ísland hafa átt samleið og óumbeðið og óumtalað hefir atkvæði þeirra oftastmær fallið eins bæði í smáum málum og stórum, í einstökum atriðum og í heild. Er ekki þetta sönnun andlegs skyldleika? Ég minnist þess einnig hversu vingjarnlegar mót- tökur og alúðlegar mér voru búnar í höfuðborg Canada er ég fyrir rúmlega ári afhenti embættisskjöl mín sem fyrsti sendiherra íslands í Canada. Utanríkisráðherrann þáverandi, núverandi for- sætisráðherra, St. Laurent tók mér sem gömlum vini. Við vorum málkunnugir frá fyrri fundum sameinuðu þjóðanna. Er við gengum sameiginlega á fund landstjórans, hans hágöfgi Viscount Alexander of Tunis, lét land- stjórinn mjög hlýleg ummæli falla í garð íslendinga í Canada, um menningu þeirra, manndóm og afrek í hinu nýja landi og hollustu þeirra við hina Kanadísku þjóð. Fanst mér þá sem endra nær sómi að skyldleikanum við Vestur-íslendinga. Mér er ánægja að skýra ykkur frá því, góðir áheyr- endur, að þess verður nú ekki langt að bíða að Canada skipi sendiherra á íslandi, og tel ég það vera sönnun þess, að stjórn Canada vilji sýna íslandi sóma og efla við það viðskifti og vináttu. Eins og heimi nú er háttað, er Canada og ísland nánustu nágrannalönd, hamingjan gefi að þessi land- fræðilega lega verði aldrei til þess að löndin verði notuð í ófriði sem fjandsamlegar herstöðvar gegn hvoru öðru. í friði og ófriði munu leiðir Canada og íslands liggja saman. — Hér eru mættir allmargir fulltrúar handan landa- mæranna, frá Bandaríkjunum, hinu mikla heimsveldi. Mér er ánægja að segja þeim og öðrum frá því að þau 8Yz ár sem ég hefi starfað að hagsmunum íslands þar hefi ég ætíð mætt fyllsta skilningi á málefnum íslands. Bandaríkin hafa viljað efla okkar hag og vilja skilja okkar aðstöðu í heiminum. Þeim er það ljóst, að okkar hjartfólgnasta ósk er að eiga land okkar einir og njóta Minni íslands Flutt á íslendingadagshátíð Seattle Islendinga, að Silver Lake, Washington sunnudaginn 1. ág. 1948 af DR. RÚNÓLFI MARTEINSSYNI þess einir í friði. Það eru hávær- ar raddir á íslandi sem reyna að ala á tortrygni og jafnvel fjand- skap milli íslands og Bandaríkj- anna og þá jafnframt milli ís- lands og allra annara lýðræðis- ríkja. En íslenzka þjóðin er raunsœ. Hún lítur á staðreyndir í framkomu annara þjóða í okk- ar garð og dæmir eftir því. Hún lítur einnig á það hverjar þjóðir aðhyllast hugsjónir lýðræðisins — því að lýðræðishugsjónin er hverjum sönnum íslending í blóð borin -— og hún skipar sér með yfirgnæfandi meirihluta í fylking með þeim þjóðum, sem játa og þjóna þeim hugsjónum og kenningum, sem okkur eru kærastar. En hitt skal vitað að land vort eigum við sjálfir og viljum altaf einir eiga. Við tök- um undir með skáldinu Einari Páli Jónssyni, sem sagði við okk- ur í gærkveldi. “Að eiga sig sjálja að öllu til er aðalsmark hverrar þjóðar.” Eitt af þeim málefnum, sem þetta þing hefir látið til sín taka er sambandið við ísland, enda er það eitt höfuð markmið félags- ins að treysta vináttuböndin. Það hafa verið samþyktar tillög- ur í þessa átt á þinginu. Ég vil víkja að einni. þeirra. Það eru auknar heimsóknir ykkar til fs- lands, þær tel ég stórkostlega þýðingarmiklar. Barátta ykkar, aðstaða og ást ykkar á gamla landinu verður þjóðinni heima öllu ljósari fyrir það. Fólkið heima finnur til með ykkur og það finur að þið finnið til með því. Á fyrri árum komu þeir öðru hvoru heim, Arni heitinn Eggert- son, Rögnvaldur heitinn Pétur- son, að ógleymdum Ásmundi P. Jóhannssyni, sem við vonum enn að sjá heima. En nú á síðustu ár- um eru það einkum þrjár slíkar sendifarir en ég tel mjög þýðing- armiklar. Það er för Dr. Richard Beck árið 1944 er hann var full- trúi ykkar við stofnun lýðveldi- sins. Flutti hann mál sitt og ykk- ar af krafti og mælsku, fór víða og var allstaðar vel fagnað. Það þarf eigi að eyða mörgum orðum að því að lýsa með hvaða dugn- aði Dr. Beck rækti þetta erindi sitt. Önnur geysimerkileg og áhrifarík sendiför var koma rit- stjóranna Einar Páls Jónssonar og Stefáns Einarssonar og þeirra ágætu kvenna, ásamt Gretti Jo- hannsson ræðismanni og hans ágætu konu. Þau fóru öll einnig víða um land og voru hvarvetna mestu aufúsugestir. Þeim tókst að opna augu margs landans fyr- ir högum ykkar og tryggð og bar- áttu. Þegar þau komu heim skýrðu þau í ítarlegu máli frá ferðum sínum og lýstu fyrir ykk- ur hinu nýja Islandi. Þetta var einstök för og áhrifa hennar mUn lengi gæta bæði leynt og Ijóst á íslandi og hérna megin hafsins. Þriðja merkisförin var dvöl séra Valdimars J. Eylands og fjölskyldu hans eins árs skeið, er lauk síðastliðið sumar. Það var auðvitað fyrst og fremst hinn nýji söfnuður séra Valdi- mars, sem sérstaklega naut starfs hans, en áhrif komu hans náðu um land alt. Ræður hans í útvarp ið, í áheyrn alþjóðar, vöktu hrifningu og séra Valdimar tókst að knýta föstum böndum kirkju íslands og hennar menn við kirkjufélög ykkar hér. Mér er kunnugt um það að koma séra Valdimars varð til þess að vekja athygli íslendinga á trúarlífi ykkar og vekja virð- ingu fyrir kirkjulífi ykkar, sem vissulega mætti verða okkur til fyrirmyndar, — Slíkar ferðir þurfa að verða fleiri. Að því ber okkur heima að stuðla. Mér virðist sem eitt af höfuð viðfangsefnum þjóðræknisfé- lagsins og allra samtaka íslend- inga hér vestan hafs hljóti að verða það, að ná einnig til unga fólsins, sem á ætt sína til íslands að telja, en hefir fyrir rás við- buðanna og ofurþunga elfu um- Island! Hljómur orðsins er fagur, og þótt nafnið sé kalt, hikar samt ekki Jón Thoroddson við að syngja: “Ó, jögur er vor fósturjörð um jríða sumardaga, er laujin grænu litka börð og leikur hjörð í haga; en dalur lyftir blárri brún, mót blíðum sólarloga, og glitrar jlötur, glóir tún, og gyllir sunna voga.” Og meir en þúsundára ást þjóðarinnar, sem þar býr, hefir flutt nafninu yl. svo að, af hrærðu hjarta geta allir sannir íslendingar, hvar í heimi, sem þeir búa, af heilu og hrærðu hjarta sungið: - “Ó, jögur er vor jósturjörð.” fsland! Með því tákna ég land og þjóð. Til þín, ísland, mænum vér á þessari stundu. Hvað sem knúði oss eða feður vora til að setjast að í annari heimsálfu, segjum vér af hreinu hjarta: 'Tsland þig elskum vér.” Island! í því orði er hugar- hreifing og hjartataugar. Þar hvílir mergð endurminninga. Alt þetta birtist í ljóði Stephans G. Stephansonar, er hann segir: “Gamla ísland, ættland mitt, ægi girt og jjöllum: rétt að nejna najnið þitt nóg er kvœði öllum! Hljómar instu óma þá allra ræktar tauga; stolt og vonir víxlast á, vöknar nærri um auga’ Ég hefi verið beðinn að flytja minni íslands á þessari hátíð Seattle Islendinga. Einn þeirra góðu manna, mintist mín með hlýleik í vestur-íslenzku blöðun- um, og sagði meðal annars, að ég væri sannur íslendingur. Orðið er fállegt, og gjarnan vildi ég vera það, en hvort sem mig skortir mikið eða lítið til þess að verðskulda þá umsögn, tel ég það gagnlegt að athuga orðið. Eftir skilningi mínum felur það hverfisins eigi megnað eða ósk- að að vernda íslenzka tungu. Við höfum ekki ráð á því að glata þessu fólki frá þjóðræknisstarf- inu. Ást þeirra og hrifningu á fornum menningararfi þarf að glæða. Það er unnt að vera stolt- ur af því að vera íslendingur eigi aðeins á íslenzku, heldur einnig á Ensku og í rauninni á hvaða tungumáli sem er. Það er hugur- inn og hjartað sem ráða því sem tungan segir, en eigi öfugt. Eitt sinni, er ég var að flytja ræðu um ísland í einni stórborg Bandaríkjanna kom amerísk kona í ræðustól að minni ræðu lokinni. Hún sagði: “ísland stendur mér altaf fyrir hugskots- sjónum sem jólatré á toppi ver- aldarinnar (“Christmas tree on the top of the World.) Þetta var hrífandi samlíking — það er fallegt að hugsa sér jólatré, þak- ið hreinum hvítum snævi. En ef rökkva tekur þarf að kveikja á jólatrénu. Þá þarf ótal kertaljós. Hver íslendingur, hvar sem hann fer, hvar sem hann í fylking stendur, er eitt lítið ljós á jóla- trénu. Ekkert ljós mál slokkna. En því aðeins slokkna ljósin, að við hættum að rækja skyldur vorar. Við heima skyldum beina starfi voru fyrir okkar þjóðfé- lag, en þið, ef þið bregðist sjálf- um ykkur, ykkar þjóðfélagi, eða glatið metnaði ykkar af því að vera íslendingar, þá slokkna ljósin. — Við skulum láta ljósin lifa og ljóma skært — hátt frá norðri. — Að svo mæltu vil ég árna hinu þrítuga félagi Islenzkrar þjóð- rækni, allar heilla og blessunar á langri ófarinni leið. Fjallkonan mun fylgja ykkur og vernda. tvent í sér. Orðið sannur er í beinni mótsetningu við orðið sviksamur. Þegar einhver maður er nefndur sannur jslendingur, er með því sagt það, að hann skreyti sig ekki með stolnum fjöðrum, að framkoma hans, segi satt um það, sem honum býr í brjósti, að hann tali sannleika, þegar hann þykist hafa mætur á því, sem íslenzkt er. I öðrulagi felst í orðatiltækinu, sannur ís- lendingur, samsafn af því, sem er verulega gott og göfugt, í eðli og framkomu íslendingsins í þúsund ára sögu hans. Til þess að vera sannur íslendingur skortir mig mikið. Til dæmis er ég fátæklega til fara hvað ís- lenzkt mál snertir. En ég get hugsað nokkuð um hinn sanna Islending frá al- mennu sjónarmiði, sérstaklega með tilliti til íslendingsins í Vesturheimi. Það veit ég, að sannur Islendingur reynist ekki ódrengur landinu, sem hann hef- ir valið, eða þá foreldrar hans, sér til samfélags — í þessari heimsálfu. Sagt er að góður son- ur sé líklegur til að verða sann- ur, kærleiksríkur eiginmaður. Vér elskum land og þjóð, sem vér höfum hér eignast. Á hinn bóginn er það sannleik- ur, að göfugur eiginmaður, hversu heitt sem hann ann eig- inkonu sinni, gleymir ekki móð- ur sinni. Ekki heldur viljum vér Vestur-fslendingar, gleyma móð- ur vorri, íslandi. Ég trúi í því að ég tali fyrir munn þeirra, þegar ég segi, eins og frjálsborinn sonur sameiginlegrar móður vorrar, með orðum íslenzkra skálda: “Þú ert vor móðir kær,” “Þú gamla mæra móðurgrund, vér minnumst þín á gleði stund;” “Því þú ert vor móðir, vort minninga land ísland, móðir og minninga- land.” Þótt ég væri aðeins ungur drengur, er ísland hvarf augum mínum, þótt ég hafi aldrei séð Island síðan, lifir samt nokkuð af íslandi í minningum mínum. Það sem ég hefi lært um Island síðan fléttast saman við minn- ingarnar, og þótt ég hafi enga tilhneigingu til að ausa ofhrósi yfir Island, er þar margt sem vekur aðdáun mína. Engin tilraun verður hér gjörð til að mála nokkra heildarmynd af lífi Islendinga. Það verða að- eins örfáir drættir, gripnir af handahófi, eftir því sem þeir koma í hugann. Það eitt er mér áhugamál að segja sannleikanrt. Forðast vil ég að láta nokkurt þjóðarbdramb villa mér sýn, eða hrekja mig áfréttri leið. Ein mín skýrasta minning, sem ég á frá bernsku minni, á móðurgrund, er baðstofulífið. Fátækleg var baðstofan og það, sem í henni var; rúm við rúm undir súðinni beggja vegna í meiri hluta baðstofunnar. Strompur var þar til að hleypa út íllu lofti, en gluggar voru aldrei opnaðir. Þar borðaði fólk- ið og þar svaf það. Undir bað- stofunni var kúafjósið. Nærri aldrei var ofn í baðstofunni. Önnur hús voru þar áföst, veggir úr torfi og grjóti, með torfþök- um. Eldhúsið var óskaplegast: eldavélin ekki annað en opnar hlóðir úr grjóti. Undantekningar frá þessum hýbýlum voru á höfðingjasetrum og í kaupstöð- um, en alment voru almúgabað- stofurnar, eitt um alt jsland með sama sniði. Sem betur fer, er nú orðin stórkostleg breyting á húsakynnum um alt land. Hver, sem ekki þekti til, gæti tæpast ímyndað sér andlegt líf í þessu moldargreni, íslenzku baðstofunni. Hver er þá sann- leikurinn? Einmitt sá, að ís- lenzka baðstofan var þjóðarskól- inn, og á ég ekki einungis við það, að þar var börnum kent að lesa, draga til stafs, kent kverið og stundum eitthvað í reikningi. Ég veit, að til voru skólar sem kendu dýrmæt fræði í Skálholti, Odda, Haukadal, á Hólum, Bessastöðum, og síðast í Reykja- vík, en ég held mér samt við það baðstofan var mentaskóli ís- lenzkrar alþýðu. Það atvikaðist þannig, að á kvöldin, þegar útistörfum var lokið, búið að kveikja á þeim ljósum, sem föng voru á, og fólk- ið flest sat við tóvinnu, var einn fenginn til þess að lesa; bundið eða óbundið mál. Þar voru ljóð t lesin, rímur kveðnar, fornsögur og aðrar sögur lesnar ásamt öðr- um bókum. Guðs orð var einnig haft um hönd; hugvekjur lesnar, frá veturnóttum til langaföstu, Passíusálmar sungnir á föstunni, lestur í postillu lesinn á sunnu- dögum. Við þetta fékk fólkið mikið af veraldlegum og andleg- um fróðleik, og jafnvel betra en alt annað: þetta leiddi til um- hugsunar og samræðu, efldi skilninginn, örfaði hugsunina, mentaði fólkið. Þegar alt er tek- ið til greina var þarna dásamleg mentastofnun. Fólkið sjálft var þyrst í fróðleik og andlegt líf, og almenningur notaði eina tæki- færið sem unt var að eignast. Þetta hélzt öld fram af öld, svo aldrei sloknaði ljós mentunar og menningar á Islandi. Næst virðist fara vel á því að minnast á þær sérstöku stofnan- ir, sem nefndar voru skólar. Að þeim hefir þegar verið vikið. Þeir sigldu beint í kjölfar, krist- indómsins á íslandi. Kristni var þar lögtekin árið 1000, og laust eftir miðja 11 öld' voru skólar þegar komnir á fót og farnir að leggja rækt við menningu kirkj- unnar og síðar einnig þjóðleg fræði. Skóli Jóns biskups Ög- mundsonar á Hólum, svo að segja í upphafi 12. aldar, var sér- staklega lífþrunginn að áhuga fyrir fróðleik, kirkjulegum og þjóðlegum. Áhrif skólanna héldu við andlegum eldi með þjóðinni. Með siðabótinni var vakin ný alda andlegs-máttar. Mestur merkisberi hennar var Guðbrandur biskup Þorláksson. Þegar athuguð er öll fátæktin á íslandi í þá daga, og að prent- listin var svo tiltölulega ný, er það nærri ótrúlegt að Guðbrandi skyldi auðnast að gefa út alla Biblíuna þar, árið 1584, með þeirri frábæru fegurð og list sem það verk var af hendi lesyt. Prestastéttin íslenzka fékk mentun sína í þeim fáu skólum sem til voru í landinu, að við- bættu því framhaldsnámi, sem þeir, á síðari öldum fengu í há- skólanum í Kaupmannahöfn. Ýmislegt var að prestastéttinni fundið, en það mun þó satt vera, að þeir voru ljósberar kristilegr- ar menningar út um allar sveit- ir, kennarar, oft góðir bændur, stundum læknar, sveitarhöfð- ingjar, leiðtogar fólksins. Stund- um voru þeir frábærir prédikar- ar eins og Jón biskuð Vídálín sannar. Merkan Únítara nú lið- inn, heyrði ég segja það, er hann kom úr ferð til íslands, að ekkert land myndi hafa betri presta- stétt en ísland. En einna undraverðast í sögu presta fslands er það, hve vel sumum, má vera mörgum þeirra tókst að varðveita lærdómsand- ann hjá sér, þrátt fyrir marg- þætt störf og stundum erfið kjör. Séra Sigurðu faðir Jóns Sigurðs- sonar, kendi syni sínum allan latínuskólalærdóm, og með þeim lærdómi leysti Jón af hendi fullnaðarpróf mentaskólans. Annað dæmi er séra Bjarni Sveinsson, faðir séra Jóns Bjarnassonar. 1 búskaparstriti [Frh. á bls. 5)

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.