Lögberg - 19.05.1949, Side 2
2
>4
HosbErg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
B95 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Vtanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and publiehed by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Ciass Mail, Post Office Department, Ottawa
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
Þegar kosningar eru í aðsigi hagar oft þannig til,
að þær línur, er skipta eiga meginmálum eru svo litdauf-
ar, eða óskýrar, að örðugt er að greina sauðina frá höfr-
unum og þar fram eftir götunum; slík jafnslétta leiðir
tíðum til þess, að kjósendur láti sér nokkurnveginn á
sama standa hvernig kaupin gerist á eyrinni og kylfu
ráða kasti um atkvæði sín, telji þeir það þá á annaðborð
ómaksins vert að koma á kjörstað og greiða atkvæði;
í kosningum þeim til sambandsþings, sem nú fara í
hönd, er engu slíku til að dreifa; stefnuskrá hins alþjóð-
lega flokks, Liberal flokksins ,er máluð svo glöggum
dráttum, og sker sig svo afdráttarlaust úr við loforða-
þoku hinna flokanna, að þar kemst ekkert annað til
jafns við; hinn spaki og víðsýni forustumaður Liberal
flokksins, St. Laurent forsætisráðherra er ekki eitt í
dag og annað á morgun; hann er ávalt og allsstaðar
samur við sig, hvort heldur sem hann ræðir við ættbræð-
ur sína í Quebec eða fólkið í Victoria eða Vancouver;
boðskapur hans er ávalt hinn sami, boðskapur canad-
ískrar þjóðeiningar, boðskapur almennra mannréttinda,
boðskapur þeirra kjarnviða, er ósýkt, lýðræðislegt þjóð-
skipulag grundvallast á.
Svo má segja, að Liberaflokkurinn hafi haldið um
stjórnartauma í þessu landi síðan að fyrri heimsstyrj-
öldinni lauk, að undanskildum hundadögum Arthurs
Meighen og hinum eftirminnilega vandræðakafla R. B.
Bennetts frá 1930 til 1935. Liberal flokkurinn hefir jafn-
an notið forustu hinna ágætustu manna, og nýtur enn,
þar sem St. Laurent á hlut, sem á skömmum tíma hefir
svo aukið á hróður sinn, að hann er viðurkendur sem
heimsborgari.
Yfir íhaldsflokknum grúfir miðaldamyrkur, sem
svo er dyggilega varðveitt af sérhagsmunastefnunni,
að þar má engin skíma komast að. C.C.F.-sinnar eru
þornaðir upp og gera ekki betur en hjakka í sama farinu,
en Social Credit fylkingin er einskorðuð við olíubrunn-
ana í Alberta; áhrif hennar ná nú ekki lengra en það.
Liberalflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem
eitthvað raunhæft hefir upp á að bjóða, eitthvað það,
sem allar stéttir þjóðfélagsihs varðar jafnt, enda er
hann í raun og veru eini flokkurinn, sem styðst við al-
þjóðlegt markmið.
Þegar Liberalstjórnin í Ottawa hratt í framkvæmd
löggjöfinni um fjölskyldustyrkinn eða framfærslustyrk
barna, voru henni bornar mútur á brýn úr hópi sumra
þeirra, er nú sækjast eftir völdum; nú mun það þó nokk-
urnveginn alment viðurkent, að sjaldan hafi í landinu
heillavænlegri lögjöf komið til framkvæmda, þó ljósast
verði það vitaskuld vanefnuðum fjölskyldum, er stóran
barnahóp hafa fram að færa; nú eru börn slíkra fjol-
skyldna fædd og klædd engu síður en börn hinna, sem
betur stóðu að vígi frá efnalegu sjónarmiði séð, og betur
undir skyldur sínar við þjóðfélagið búin þegar lengra
kemur út í lífið, en ella myndi verið hafa; að tryggja
öllum þegnum þjóðfélagsins sem jafnasta aðstöðu í
lífsbaráttunni, hefir jafn verið kjörorð Liberalflokksins
og er það enn þann dag í dag.
Eins og gefur að skilja hefir mörgum manninum
runnið til rifja hve óverulega, og jafnvel ómannlega var
búið að blessuðu gamals fólkinu í þessu fagra og auðuga
landi, fólkinu, sem dyggilega hafði fórnað starfskröft-
um langrar æfi í þágu þjóðfélagsins, en svo lítið fengið
í aðra hönd þegar að kvölda tók og á daginn leið, að það
varð að sætta sig við til að fleyta fram lífinu á fáeinum
náðarmolum, er féllu af borðum drottna þeirra; napurt
og kaldhæðnislegt reiptog um ábyrgðina í þessu efni,
varð þess valdandi, að sáralitlum úrbótum varð komið
við.
Það skal sagt C.C.F.-sinnum til verðugs hróss, að
þingmenn þeirra í Ottawa börðust kappsamlega þing
eftir þing fyrir hækkun elhstyrksins, þó þeir fengi eigi
miklu áorkað vegna misklíðar um ábyrgð mihi sam-
bandsstjórnar og stjórnarvalda hinna einstöku fylkja;
en að lokum gerðist þó þau tíðindi, eins og nú er komið
á daginn, að núverandl sambandstjórn skarst í leikinn
og fékk samþykta á þinginu tíu dollara hækkun á mán-
uið; en þótt hækkunin hefði vitaksuld mátt vera nokkuð
meiri, bætir hún þó mikið úr frá því, sem áður var; þetta
má þakka hinum góðgjarna og mannúðlega forsætis-
ráðherra þjóðarinnar, St. Laurent, er lagði persónulegt
kapp á að hækkun ellistyrksins fengi framgang á þingi.
Á þinginu, sem nýlega var rofið, hlaut Atlants-
hafssáttmálinn samþykki; fyrir framgangi hans barðist
St. Laurent forsætisráðherra eins og hetja án tillits
til þess hvernig ýmsum ættbræðrum hans, einangrunar-
postulunum í Quebec, kynni að lítast á blikuna; hann
brýndi það fyrir þingheimi, að einangrun Canada væri
fyrir fult og alt úr sögunni; að á vettvangi heimsmál-
anna yrðu skyldur og réttindi að haldast í hendur og að
þar yrðu allar þjóðir að vera jafnar fyrir lögunum; og
þessu hefir forsætisráðherra kröftuglega haldið fram
á hverjum einasta ræðupalli það, sem af er kosninga-
hríðinni og mun svo gera unz yfir lýkur.
Sigur Liberalflokksins í næstu kosningum og
canadísk þjóðeining, er eitt og hið sama.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 19. MAÍ, 1949
JÓHANNA KNUDSEN:
Háskalegur misskilningur
Skáleturskaflinn sem hér fer á eftir er þýðing á grein eftir
skáldkonuna Laura Goodman Salverson, en hún er fyrsti ritstjóri
tímarits, sem gefið er út í Winnipeg og nefnist “The Icelandic
Canadian” (íslenzki Kanadamaðurinn). Rit þetta hóf göngu sína
árið 1942 og er málgagn íslenzkakanadíska félagsins (The Icelandic
Canadian Club). Kaflinn er meginhluti fyrstu ritstjórnargreinar-
innar í fyrsta hefti ritsins og má því líta á hann sem stefnuskrá þess.
“Allar þjóðir tileinka sér ein-
hver sérstök verðmœti, einhverja
ódauðlega dyggð, sem þær trúa
jastlega, að sé ómetanlegur arfur
fyrri tíma. íslenzka þjóðin er
engin undantekning. Við eigum
okkar gullöld, okkar fornu,
sígildu rithöfunda, og við stær-
um okkur af forfeðrunum, sem
elskuðu frelsið meir en jarðeign-
ir sínar og auðæfi. Okkur þykir
gaman að sveipa dýrðarljýma
hina harðgeru Norðmenn, er
námu fyrstir land okkar og
stofnuðu þar athyglisvert lýð-
veldi og komu á fót fyrsta stjórn-
arskipulagi, sem reist var á
meginreglum lýðrœðis.
Það er ekki nema gott eitt um
það að segja, að við gerum gæl-
ur við þessa arfleifð, og við ætt-
um að muna fremur í aúðmýkt
en stolti, að við erum gœzlumenn
menningarlegrar erfðavenju, að
við erum synir og dœtur hetju-
legar þrautir gátu sveigt til að
hvorki harðstjórn eða ósegjan-
legra þrautir gátu sveigt til að
hvika frá bjargfastri trú sinni á
megindyggðir frelsis og réttlæt-
is og virðuleik mannlífsins. En
viðkvæmnisleg væntumþykja er
ekki nóg. Það er ekki nóg að vera
hreykinn af forfeðrum okkar.
Við verðum að byrja að gera
okkur Ijósa þá óumflýjanlegu
staðreynd, að fortíðin lifir í okk-
ur og deyr í okkur. öllum arfi,
hvort heldur efnislegum eða and-
legum, er hægt að sóa og glata,
og þetta bruðl og þessi eyðing
getur farið fram í hjarta og vit-
und hvers einstaklings.
Við skuldum forfeðrum okkar
ekki tilbeiðslu, heldur starf. Ekki
utanaðlærðar lofgerðarþulur um
hugrekki og djörfung, um
draum, sem er orðinn að mold,
heldur okkar eigin drauma,
upprisna úr þeirri mold, til að
sýna að draumsýn þeirra lifi í
okkur enn.
Þegar langskip Norðmanna
sneru trjónum sínum út á hin
ókunnu höf, en augu þeirra
sjálfra beindust að fjarlægum
markmiðum, þá fólst í þessum
verknaði einum hvöt, sem aldrei
fyrnist, til niðja þeirra og til
allra hugsjónamanna alls staðar.
Hið þekkta var ekki mark þeirra,
heldur hið ókunna, þeir leituðu
ekki fortíðarinnar, framtíðin
gagntók og átti hug þeirra allan.
Með ákafri þrá eftir auðugra og
fyllra lífi buðu þessir óforbetran-
legu æfintýramenn þúsund hætt-
um byrginn, og með áræði sínu
slitu þeir í eitt skipti fyrir öll
vanahelsi fortíðarinnar. Kon-
ungsríki þau, sem þeir smiðuðu
sér, voru ekki gerð eftir neinni
gamalli fyrirmynd, þau stigu upp
úr vaxandi straumi mannlegrar
vitundar, og í samræmi við hann;
þessi þjóðfélagslíkami nærðist á
nýjum hugmyndum, sem sóttar
voru í óteljandi framandi lindir,
en gróðurmoldin var hjarta
Norðmannsins og eðli.
Er ekki allt þetta eins konar
sjálfsögð hvöt til okkar allra,
sem höfum víkingsblóð í æðum?
Er það ekki Ijósara nú heldur
en e.t.v. nokkru sinni fyrr í þess-
um vandræða heimi, að það sem
oss skortir fyrst og fremst eru
æfintýramenn með nýjar hug-
sjónir og kjark og hreysti til að
leita nýrra landa?
Rétt er það, að 'efnisheimurinn
fer minnkandi. Tími og rúm hafa
stytzt svo, að hið lægsta hvísl
berst umhverfis hnöttinn með
hraða eldingarinnar. Það er ekki
til nein hindrun á jörðu, engin
ókunn, dúlarfull lönd, því að
þjóðir jarðarinnar eru sem óðast
að verða sama stagl í sömu flík,
og hver maður á að gæta bróður
sins.
Og enn eru til ný markmið, ó-
endanleg, eilíf víðátta fyrir hina
leitandi vitund mannsins. Hin
eina hindrun, sem enn er til, er í
ríki hugans. Og hvílíkt óráð og
villa! Hvílíkur frumskógur and-
legs illgresis og misskilnings
verður á vegi landnámsmcmns-
ins! Kynþáttahatur og -hroki,
fáfræði, hjátrú, kr e ddur og
þræsni. Þetta eru þau blindsker,
sem æfintýramaðurinn verður að
sigla fram hjá eða farast ella. Og
samt er þetta helzta œfintýri og
meginögrun vorra tíma, og höfð-
ar til sjálfrar lífhæfni okkar og
björgunargetu. Letrið á veggn-
um er skýrt. Hið gamla lag villu
dýrslegs ofbeldis, heimskulegs
arðráns og hatrammrar andlegr-
ar kúgunar er í dauðateygjunum.
Þeir, sem bjargast og lifa, verða
þær þjóðir, er eiga nægan sveigj-
anleik og andlega snilligáfu til
að vera verkfœri þróunarinnar,
brautryðjendur nýrra og betri
mannfélagshátta, æfintýramenn
framtíðar, en ekki fortíðar.
Með þetta í huga hrindir
Islenzk-kanadíska félagið sínum
litla, bartsýna ritknerri út á hið
úfna haf nútímahugsunar. Það
er sannfæring okkar, að tími sé
nú kominn til að drepa okkur úr
dróma þeirrar tálhyggju, að
skyldur okkar við fortíðina ríg-
skorði okkur við gamla, íslenzka
mótið. Við teljum okkar aðal-
skyldur vera við Kanada og ver-
öld framtíðarinnar. í þeim nýja
heirhi mega þjóðernisleg sér-
kenni ekki verða jafnmikils ráð-
andi og fram að þessu. Við verð-
um að fórna með örlæti andlegri
menningu þjóðarbrotanna til
þess að smíða samræmda og fúll-
komnari siðmenningu, sem er í
alvöru og skynsemd helguð al-
þjóðarhagsmunum þessa lands.
Samvinna en ekki andóf verður
að vera kjörorð morgundagsins.
Við munum ekki glata neinum
verðmætum, heldur þvert á móti
öðlast margt, sem stuðlar að
betra og frjórra þjóðlífi.
ísland mun samt lifa í hjört-
um okkar og það sem meira er
um vert: allt sem er gott og dýr-
mætt í hinni fornu erfðamenn-
ingu þess mun breytast í lifandi
veruleika. Sem Kanadamönnum,
og einungis sem Kanadamönn-
um, verður okkur unnt að finna
hinni norrænu arfleifð stað í
hinum nýja heimi framtíðarinn-
ar . . .”
í fljótu bragði fer varla hjá
því, að mörgum hér á landi komi
sumt af orðum skáldkonunnar
á óvart. Við erum vön að skoða
frændurna vestan hafs eins og
brot af þjóð okkar, hugsa um þá
með trega og finna til með þeim
eins og útlögum, er ill og óvið-
ráðanleg örlög neyddu til að yfir-
gefa ástfólgið föðurland, og litu
síðan ekki glaðan dag vegna ó-
yndis og heimþrár. Það er held-
ur engum vafa bundið, að þetta
hefur orðið hlutskipti margra
vesturfaranna, þjáningar þeirra
og erfiðleikar taka ekki tárum.
En okkur hættir við að gleyma
því, að meginþorri þeirra, er við
nú nefnum Vestur-lslendinga,
eru synir og dætur annars lands,
önnur tunga er þeirra móðurmál,
Island er í hjörtum þeirra í
hæsta lagi fjarlægt draumaland,
hjúpað minningum og þrá pabba
eða mömmu, afa eða ömmu.
Það, sem hér fer á eftir, er ekki
ritað til þess að særa tilfinningar
þeirra öldruðu landa minna, sem
enn eiga um sárt að binda af
þessum völdum. Ég bið þá um að
setja sig í spor hinnar ungu kyn-
slóðar og reyna af fremsta megni
að skilja, að það er hvorki ó-
tryggð né ódyggð, sem rekur
hana út á hinar nýju brautir,
heldur eðlileg og djúpstæð þörf
og skylda. Og ég bið þá einnig
um að reyna að átta sig á sjónar-
miði okkar, sem óttumst nú um
framtíð hinnar íslenzku þjóðar
og alls þess, sem okkur og þeim
sjálfum er kærast. Ef til vill finn-
ið þér einmitt í þessu sambandi
tækifæri til hinztu þjónustu við
það land, sem þér hafið misst og
harmað.
Tímaritið, sem að ofan getur,
hljóp af stokkunum skömmu eft-
ir að Kanada fór í stríðið með
Englandi, og markmið þess virð-
ist vera þrefalt:
1. Að hvetja fólk af íslenzku
bergi brotið til þess að átta sig á
því, að það sé Kunadamenn, en
ekki íslendingar.
2. Að uppörfa æskulýðinn til
að færa sönnur á hollustu sína
og ættjarðarást með því að
ganga í herinn.
3. Að vinna að því að varð-
veita hinn íslenzka menningar-
arf.
Önnur höfuðgreinin í þessu
fyrsta tölublaði er eftir W. J-
Lindal, dómara, og heitir “Hvar
stöndum vér?” Þar segir m. a.:
“ Á þessum tímum (þ. e. þeg-
ar nazisminn ógnar pílu mann-
kyni) verður hver sú þjóð, er
þráir sjálfstjórn af einhverju
tagi, og hver einstaklingur, sem
hafa vill að einhverju leyti sjálf-
ur hönd i bagga með lífi sínu og
örlögum, að spyrja sjálfan sig:
Hvar stöndum vér?
Og vera má, að sumir þeirra
sona þessa lands, sem hvorki eru
af frönskum né engilsaxneskum
uppruna, hafi meiri en eina
ástæðu til þess að velta þessari
spurningu fyrir sér. Feður þeirra
og mæður fluttust hingað til
Kanada úr ýmsum þjóðlöndum
Evrópu. Fyrir þá er það ekki
sársaukalaust að sjá margt af
því, sem þeim er hjartfólgið,
hverfa algerlega eða renna inn
í hið kanadíska þjóðarhaf. Þeir
(Frh. á bls. 3)
Fyrsta
ATTHAGAFLUGIÐ
TIL ÍSLANDS
(ef nœgileg þátttaka fæst)
FRÁ WINNIPEG 2. JÚLÍ, 1949
(til baka frá Reykjavík 23. júlí)
Opinberar móttökur í Reykjavík ráðgerðar.
Karlakór Reykjavíkur syngur, og fl.
FARARSTJÓRI OG KVIKMYNDARI MEÐ 1 FÖRINNI
Fjöldi þátttakenda takmarkaður
Flugfarið fram og aftur aðeins $550.00 á mann
Þeir sem taka vilja þátt í för þessari eru vinsamlegast
beðnir að gera oss aðvart hið fyrsta, og greiða helm-
ing farsins, en síðari hlutinn greiðist eigi síðar enn
15. JÚNÍ, n.k.
VIKING TRAVEL SERVICE
165 Broadway, New York 6, N.Y.
picture n ■ | r
FRAMING 0 H L L
20% Off sS'
Bring all your pictures.
Original designs — experl workmanship.
SPECIAL
1.000 ready-made box frames, 3" x 3" to
10" x 12". HALF PRICE lo $1.95
LIVING ROOM PICTURES
V2 price and less. Regular $35.00 14.95 anc* 17.50
• 500 CLOSE-OUTS — 25c and UP ,
“It's Our Birthday’’
THE
LITTLE GALLERY
317 Kennedy Slreel Phone 924 620
AVOID WIRING WORRIES
in your new home!
USE
RED SEAL
Wirirtg Specifications
For safe, dependable wiring in your new home, insist
on Red Seal Wiring. Red Seal is the standard set by the
electrical industry at large. It assures you of plenty of
outlets to meet all your electrical needs, conveniently and
safely.
Call City Hydro, 848 124, or Red Seal Headquarters,
927 187, for free information on Red Seal. At the same time
install City Hydro’s dependable, low cost electric service
in your home.
CITY HYDRO
Owned and operaled by fhe Cilizens of Winnipeg