Lögberg - 16.06.1949, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FÍMTUDAGINN, 16. JÚNÍ 1949.
Hogberg
GefiS út hvern fimtudag af
THE CGLUMBIA PRESS LIMITED
( 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
Utandskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 21 804
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorlzed as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
VETTVANGUR STJÓRNMÁLANNA
Nú er skorin upp herör vítt um land og berserks-
gangur runninn á forustumenn megin stjórnmálaflokk
anna, þótt háværastur sé George Drew, málsvari aftur
haldsaflanna í landinu; að stefnuskrá hans sé ósam-
ræmd og næsta þokukend, dylst engum heilskyggnum
manni, því þegar allt kemur til alls, kemur það glögg-
lega í ljós, að hann brjóti fá mál til mergjar, en leggi
á hinn bóginn megin áherzluna á það, hve nú sé brýn
þörf á að breyta til, vegna þess að gömlum mönnum
og þreyttum sé ekki lengur til þess trúandi að fara með
völd í Ottawa; með hliðsjón af ummælunum um þessa
gömlu og þreyttu, er eigi ófróðlegt að kynnast rann-
sókn og niðurstöðu James Sinclairs, Liberalþingmanns
fyrir North Vancower kjördæmið varðandi aldursmun
þingmanna á síðasta þingi, en rannsókn hans í þessu
efni leiddi í ljós, að meðalaldur afturhaldsþingmanna
á síðasta kjörtímabili væri nálega fjórum árum hærri
en þeirra, er til Liberalflokksins töldust, þetta er nú í
sjálfu sér ekkert stóratriði, en bendir þó ljóslega til
þess, hve veik og vandræðaleg þau pólitísku hálmstrá
eru, sem George Drew hefir látið sér sæma að grípa
til. —
Pyrir tveimur árum afgreiddi sambandsþing, að und-
angengnum ítrekuðum kröfum bænda, löggjöf, er í
þá átt gekk, að heimila hveitiráðinu að taka að sér
sölu á höfrum og byggi, var því þá jafnframt lýst yfir
af stjórnarvöldunum, að áminst löggjöf gengi eigi í
gildi fyr en Sléttufylkin þrjú, Alberta, Saskatchewan
og Manitoba, hefðu með þingsályktun tjáð sig hlynt
áminstri ráðstöfun sambandsþings; nú hefir slíkum
ákvæðum verið fullnægt, og með það fyrir augum, úr-
skurðaði sambandsstjórn að hveitiráðið tæki að sér
sölu hafra og byggs frá 1. ágúst næstkomandi að telja;
samtök bænda hafa eins og vænta mátti alment fagn-
að þessari nýju og í rauninni sjálfsögðu ráðstöfun,
enda var hún gerð fyrir þeirra atbeina og vilja.
Nú hefir George Drew, þessi dyggi málsvari sérhags-
munastefnunnar, fylzt slíkum fítonsanda yfir áminstri
ráðstöfun sambandsstjómar, að reimleikum gengur
næst; nú ber hann sér á brjóst yfir því hrópandi rang-
læti, að blessaðir bændurnir skuli verða til þess knúðir,
að fá hveitiráðinu í hendur hafra sína og bygg, þó að
þetta sé gert að ósk þeirra sjálfra; og nú hafa gengið
á mála hjá honum þingmannsefni úr lögfræðingastétt
í Winnipeg, með takmarkaða þekkingu á landbúnaði
og afurðasölu, er nú vilja óðir og uppvægir bera vit fyr-
ir bændum, og styrkja þá í trú, ef auðið yrði, á hinn
svonefnda frjálsa markað.
Bændur vestanlands eru lítt gefnir fyrir brask, og
munu ábyggilega fremur hallast að hinum öruggari
'söíuhðferðuin afurða sinna en hylliboðlum um val-
frelsi úr hvaða átt sem þau kunna að koma; rétt er og
sanngjarnt að þess sé getið, að Líberalar og C. C. F.-
sinnar eru á einu og sama máli varðandi markaðsað-
ferðir komtegunda.
í afturhaldsleiðangri sínum um 'vesturlandið, lagði
George Drew alveg sérstaka áherzlu á það, hve nú
horfðist uggvænlega til um viðskiptin milli Canada og
Bretlands; hve markaðir við Bretland fæm þverrandi
dag frá degi; og vitanlega skellti hann allri skuldinni á
Liberalstjórnina, eins og frá sjónarmiði hans var svo
sem alveg sjálfsagt; að vísu er það rétt, að markaðir
fyrir cánadískar afurðir á Bretlandi hafi talsvert þorr-
ið upp á síðkastið, þótt slíkt sé ekki nándar nærri jafn
geigvænlegt og George Drew lætur í veðri vaka; en
þótt furðulegt sé, láðist honum alveg að minnast einu
orði á aðalástæðuna, sem er einungis fólgin í gjald-
eyrisskorti Breta, einkum dollaraþurð; og honum þótti
það auðsjáanlega heldur ekki ómaksins vert, að víkja
að auknum og bættum skilyrðum fyrir sölu canadiskra
afurða í Bandaríkjunum og með fleiri þjóðum heims.
Að nokkur flokksforingi vinni kosningu á hrakspám
einum, sýnist alveg óhugsanlegt.
Fólkinu, sem byggir þetta fagra land, er það alveg
ljóst hverjum það á að þakka þær réttarbætur, sem
það hefir öðlast og býr við; þær eiga nálega allar rót
sína að rekja til víðsýnnar fomstu Liberal flokksins,
hvort heldur var á vettvangi fylkis- eða sambands-
mála; að minnsta kosti hljóta kjósendur af íslenzkum
stofni hér um slóðir, að minnast þess hver það var,
sem beitti sér fyrir mæðrastyrknum og löggjöfinni um
skaðabætur verkamanna, en þar átti hlut að máli hinn
skygni mannvinur Thomas H. Johnson, dómsmálaráð-
herra Manitobafylkis, sem varð fyrstur ráðherra af
íslenzkri ætt í þessari álfu; flestum mun það einnig
Ijóst hverjum þeir eiga að þakka löggjöfina um fram-
færslustyrk barna, er haft hefir blessunarrík áhrif um
landið þvert og endilangt og gert það að verkum, að
börn láglaunastéttanna njóta nú hliðstæðrar aðstöðu
við börn hinna betur megandi stétta; þetta á þjóðin
að þakka viturlegri og mannúðlegri forsjá Mackenzie
Kings, eins og revndar svo margt annað holt og nyt-
samlegt; og síðast en ekki sízt á þjóðin núverandi for-
sætisráðherra, Louis St. Laurent, hækkun ellistyrks-
ins að þakka, og þó Lögberg sé ekki allskostar ánægt
með viðhorf málsins á því stigi, sem það nú er, og sé
mótfalliö eignakönnun þeirri, sem enn er viðhöfð, hef-
ir þó óneitanlega verið stigið spor í rétta átt, sem bætir
að minsta kosti nokkuð úr í svipinn.
Með framtíðarvelmegun landsins og canadiska þjóð-
eining fyrir augum, verða kjósendur að fylkja liði um
frambjóðendur Liberal-flokksins á mánudaginn þann
27. júní.
Nýtt hressingarmeðal
Það er almennt álitið að öll
hin svonefndu hressingarmeð-
ul hafi vond eftirköst og séu
heilsuspillandi. Svo er um á-
fengi, ópíum og kokain og önn-
ur slík meðul. Hættan við að
nota þau, liggur í því, að þegar
til lengdar lætur geta menn
ekki án þeirra verið, óg verða
svo aumingjar bæði á sál og lík-
ama. En til hafa þó verið önnur
hressingarmeðul, sem sú hætta
fylgir ekki að menn „venji sig
á þau“. Þessi meðul heita
„mescaline" og „cannibis ind-
ica“. Þau hafa örari verkanir á
menn heldur en kokain og ópí-
um og veita mönnum vellíðan
á við þau meðul. Nokkuð hafa
þau verið reynd til þess að
lækna þunglyndi og hugsýki í
mönnum, en ekki dugað, þó
fremur „cannibis" en sá er galli
á, að það getur haft skaðlegar
verkanir á öðru sviði.
En nú hafa vísindamenn fund
ið upp nýtt hressingarmeðal,
sem þeir nefna „synhexil"
(sumir nefna það parahexil eða
pyrahexil). Það er skylt „canni
bis“, en hefir þann eiginleika,
að það leysist ekki upp í vatni.
Áhrif þess koma því ekki fram
hjá manni fyr en eftir allt að
því þrjár stundir. En þá er allt
í einu eins og skipti um. Áhrif-
in koma svo snögglega, að menn
finna engan aðdraganda að
þeim. Þeir verða allt í einu kát
ir og bjartsýnir, fyllast sjálfs-
trausti og líður fram úr skar-
andi vel. Það er eins og þungu
fargi sé létt af þeim, eða þeir
komnir í annan betri heim. Ekki
fyllast þeir samt neinni ofsa-
kæti, heldur hafa þeir tekið *al-
veg eðlilega gleði og hjá sumum
vaknar starfþrá. „Oft er það“,
segir í British Medical Journal,
„að hugarflug manna eykst
mjög, nýjar hugsanir streyma
að, nýjar hugmyndir fæðast og
öll hugsun verður skýrari en
áður var. Þessi áhrif vara í 8—10
klukkustundir". En það er ein-
kennilegt, að þessara áhrifa
gætir varla hjá heilbrigðum
mönnum. Læknir nokkur
reyndi þetta á sjálfum sér og
nokkrum öðrum. Þeir tóku
venjulegan skammt, en þeir
gátu ekki fundið til þess að þeir
hugsuðu skýrar né hefðu fengið
aukinn starfsvilja. En svo
reyndi læknirinn meðalið á 50
sjúklingum, sem þjáðust af mis
munandi hugarvíli. Og árang-
urinn varð sá að 36 þeirra batn-
aði mikið. Er sagt frá ýmsum
UNDRUNARVERT TILBOÐ UM GLERAUGU!
Í R MÖRGUM NÝJUSTU TEGUNDUM AÐ VF.TJA
Okkar nýjustu gleraugnategundir veita ykkur nýjan
svip, prýSa andlitiS og gefa ykkur kost á aS sjá greini-
lega hvað, sem er, jafnvel fínasta þráð eSa smánál.
BEINT TIIi YKKAR FRA VERKSMIÐJUNNI
Er þiS veljiS gleraugu frá okkur, eruB þiS aS skipta
viS eina fullkomnustu gleraugnaverksmiSju Canada.
Enginn milligöngugróði. Allra nýjasta gerS
NVTT
NIÐURSETT
VERÐ
ókeypis miði
Sénð þið ekki ánægð
er aildvirði skiiað aftur
Peningar endurgreiddir ef
gleraugunum er skilaS inn-
an 30 daga. ÞiS þurfiS aS
vera ánægS og eruS eigin
dómarar.
| Vietoria Optical Co., Dept. FU 12
, 273 Yonge St., Toronto, Ont.
SendiS mér sýnishorn af nýtízku gler
| augum ySar gegn endurgreiBslu á-
| byrgS ykkar. Gleraugum skilaS innan
' 30 daga reynist þau ekki vel. SendiS
| einnig myndir af nýjustu gleraugum
. ásamt augnaprófara. Af þessu leiSa
I engar kvaSir fyrir mig.
VICTORIA OPTICAU CO. ' Nafn .......................Aldur
Dept. I I, 12 273 Yonge St. | Heimilisfang .............
Toronto, Ont. i pósthús........... Fylki ...
dæmum um það. Meðal sjúkl-
inganna var t. d. 65 ára gamall
maður, sem hafði þjáðst í átta
ár af úrræðaleysi, geðvonzku og
jafnvel séð ofsjónir. Auk þess
hélt hann sig hafa ýmsa sjúk-
dóma, en var líkamlega stál-
hraustur. Þegar hann hafði feng
ið 30 mg. af „synhexil“ um
nokkra morgna, breyttist hann
alveg. Geðvonzkan hvarf, veik-
indin hurfu og hann var orðinn
glaðlyndur.
Aðal gallinn á „synhexil“ er
sá, hvað áhrif þess koma seint
fram og endast skammt. Það er
líkt með það og insúlín, að sjúkl
ingar verða alltaf að fá það við
og við. En vísindamenn vinna
nú að því að endurbæta það, og
vel getur verið að þeim takist
það. En þvað sem ofan á verð-
ur þá er „synhexil“ ágætt með-
al handa þeim, sem þjást af hug
arvíli, úrræðaleysi og dugleysi,
en þeir eru margir.
(Læknirinn dr. G. Teyleur
Stockings segir í „British Medi-
cal Journal“ að með þessu með-
ali hafi vísindin fært læknum
í hendur „entirely new type of
euphoriant drug with proper-
ties which render it an extre-
mely promising therapeutic
agent in psychiatry").
(Lesbók Mbí.Q.
LIBEKAL GOVERNMENT
MEANS
SECURITY
• The Liberal Party stands foi social security.
• Social security is not socialism.
• The test oí security is the elimination of fear. The
Liberal Party seeks to provide all Canadians with
enlarged security by removing the fectrs which
hatmt the lives of individuals.
• Liberal policies
a) encourage and promote production, expand
trade. ensure a high level of employment.
b) remove the fears of unemployment, poverty in
old age, sickness, invalidity and dependence by
placing floor prices imder primarv products, un-
employment insurance, Old Age, Blind and
Veterans pensions, Family Allowances, Hospital
and Health Grants.
• Liberal Government means a national standard of
social security and human welfare for all Canadians.
BE SURE
ON JUNE 27th
VOTE
LIBERAL
Authorlzed by the Manitoba Liberal-Progressive Association.
KJÓSIfl IERT WDDD í NORQDAV
• Fæddur í kjördæminu.
• Rekið viðskipti í meir en 40 ár innan vébanda
kjördæmisins.
• Bændur og fiskimenn þekkja frambjóðandann að
góðu.
• Hefir langa æfingu í meðferð héraðs- og sveita-
málefna.
• Hefir lagt sig í líma fyrir velferð bygðarlaganna
á milli vatnanna.
• Látið rödd Norquay heyrast skýrt í framhaldandi
Liberalstjórn.
GREIÐIÐ ATKVÆÐI ÞANN 27. JÚNÍ MEÐ
| WOOD, Roberf James | X |
Published bv Qeorge IAncoln, Official Agent, Teulon, Manitoba