Lögberg - 16.06.1949, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. JÚNÍ, 1949.
3
AHUGA/ViAL
LVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
TILKOMUMIKIL HANDIÐNAÐARSÝNING
Manitoba deild Canadíska handiðnaðarsambandsins efndi til
mikillar sýningar og merkilegrar í sambandi við 75 ára afmælis-
hátíð Winnipegborgar. Hún var í Beaver-sal Hudsons Bay félagsins
og byrjaði á föstudaginn 2. júní.
Tilgangur þessara félagssam-
taka er að stuðla að því að varð-
veita frá gleymsku kunnáttu í
listum og handiðnaði, sem hing-
að hefir borist með innflytjend-
um frá öllum löndum heimsins
og hefir félaginu orðið mikið
ágengt síðan það var stofnað fyr-
ir 40 árum. Manitoba deildin var
stofnuð 1928 og hafa íslenzkar
konur jafnan átt í henni ágæta
fulltrúa og ber þá fyrst og
fremst að nefna Soffíu Wathne;
hún hefir verið í félaginu frá
byrjun og átt sæti í stjórnar-
nefnd þess í mörg ár, auk þess
sem hún hefir verið einn áhuga-
mesti meðlimur íslenzka hann-
yrðafélagsins. Mrs. Wathne hef-
ir jafnan haft vakandi auga á
því að íslenzkur handiðnaður
fengi réttmæta viðurkenningu,
og hefir í því sambandi flutt
fjölda erinda, og séð um að vald-
ir íslenzkir munir væru til sýnis
á sýningum félagsins; verður
seint metið til fulls alt það verk
og öll þau ómök, sem hún hefir
á sig lagt í þessu sambandi.
Sem fyr, var Mrs. Wathne fal-
ið að annast þátttöku Islendinga
í þessari sýningu; í nefnd henm
til aðstoðar voru Mrs. V. J.
Eylands, Miss Margrét Péturs-
son, Mrs. P. J. Sivertson, Mrs.
K. Oliver, Mrs. Halldóra Thor-
steinson og Mrs. A. Blondal.
Nefndarkonurnar lánuðu og
útveguðu vandaða og fallega ís-
lenzka muni til sýningarinnar og
ennfremur íslenzka þjóðbún-
inga.
Winnipeg fólk af 22 þjóðstofn-
um tóku þátt í sýningunni og
fjöldi félagskvenna og gesta var
klætt þjóðbúnungum sínum og
einnig búningum frá fyrri tíð,
þetta gerði samkomurnar afar
tilkomumiklar og litbrigðaríkar.
Mununum var komið fyrir í
skápum og á borðum, og alt í
kring í salnum var fólk að vinna
og sýna handiðnaðar aðferðir. ís
lenzku konurnar spunnu, ófu og
og sýndu útsaum.
íslenzki hluti sýnmgarinnar
sómdi sér vel. Munirnir voru af-
ar vandaðir og sýndu fágaðan
listasmekk. Þar voru nælur,
eyrnalokkar, armbönd og alls-
konar skart úr fínlegu víravirki;
stokkabelti og koffur, handunn-
ar sílfurskeiðar, skeiðar úr horni
með rúnaletri; fagurlega út-
skornir askar og skartmunakass
ar; íslenzki fálkinn úr steypu,
málaður eðlilegum litum, með
gljáhúð; nettir prjónaðir vettl-
ingar og afar fínleg slæða í eðli-
legum litum; skattéraður pils-
faldur og útsaumaðir og ofnir
dúkar. Afar vandaður dúkur var
saumaður af Miss Hjördísi Quð-
mundson og krossofna fána-
mynd íslenzka, sem hékk fyrir
ofan sýningarmunina hafði Mr.
Grettir Eggertsson lánað.
Auk þeirra kvenna sem í
nefndinni voru aðstoðuðu við
sýninguna: Miss Ida Sveinson,
Mrs. G. J. Johnson, Mrs. L. S.
Líndal, Mrs. A. Fischer og Miss
Jo Anne Blöndal; og auk þeirra
er fyrr hafa verið nefndir lán-
uðu muni og búninga: Mrs.
Carl Thorlákson, Mrs. W. J.
McGougan, Miss Thea Herman,
Miss Sigrún Thorgrímson, Mrs.
J. Hillsman, Mrs. E. P. Jónsson
Lil. Stevenson, Mrs S. Sigurðs-
son og Mrs. J. Johannesson.
Fyrir stafni salsins var eftir-
líking af kofa landnemans og
voru í honum ýmsir munir sem
notaðir voru í landnámstíð.
Hliðin sem fram vísaði var opin
og gólfið upphækkað þannig að
hægt var að hafa þar um
hönd ýmsar skemtanir. — Á
miðvikudaginn 8. júní kl. 3.30
e. h. fór fram skemtun skandin
ava. Florence Turnland söng
Solveigs Sang eftir Grieg, Alma
Walberg og Doreen Vermette
spiluðu sænsk danslög á fiðlur;
Herra ritstjóri!
Það er sérstakt gleðiefni allra
okkar Islendinga, sem búsettir
erum á víð og dreif hér í Norð-
ur Ameríku, þegar við hugleið-
um hin kærleiksríku samtök al-
mennings, til að hlynna að og
styrkja velferð okkar öldruðu
frumbyggja, sem ruddu lífsleið-
ina gegnum þrautir, armæðu og
böl, með stæltu augnamiði um
farsæld og framþróun fjölskyld
unnar. Elliárin bera sína eðli-
legu afleiðingu hinum mismun-
andi æviferli, en nauðsyn kref-
ur að hlynna að þeim vanmátt-
ugu þegar stríðið er að líða und
ir lok. Á því sviði hafa flestar
aðalbyggðir íslendinga hrint á-
fram í einingu tilhlýðilegu
starfi, með stofnun elliheimila.
Má þar benda á fjölmennustu
íslenzku byggðarlögin, Gimli
Man. Mountain N. Dak. Blaine
Wash. og Vancouver B. C. Hið
fyrst nefnda er það elzta, öfl-
ugasta og um leið vinsælast
okkar elliheimila. Hin sem eru
aðeins á æskuskeiði hafa stofn-
að sér glæsilega von um óbil-
andi traust og stuðning almenn-
ings með vöxt og viðhaldi, eftir
því sem þörf gerist.
I nafni stjórnarnefndar okkar
íslenzka elliheimilis hér í Van-
couver, og meðfram af eigin
hvötum, vil ég með þessum lín-
um ávarpa alla þá, sem eru sér-
staklega hlynntir okkar hæli
hér á vesturströnd Canada, og
þeir eru margir í mörgum hér-
uðum, þvert yfir Canada og jafn
vel í Bandaríkjunum, sem sjá
má af undanfarandi auglýstum
gjafalistum, þar sem bæði félög
og einstaklingar hafa rétt hjálp
arhönd peningalega í svo drjú-
um mæli. Þar fyrir utan hafa
heimilinu hlotnast að gjöf
nokkrir verðmætir hlutir og
þær voru klæddar norsku og
sænsku þjóðbúiiingunum. Sex
stúlkur klæddar íslenzku upp-
hlutsbúningunum sungu ís-
lenzka þjóðsöngva: Dolores og
Lilja Eylands, Evelyn Thorvald
son, Sigrid Bardal, Helen Good
man og Thora Ásgeirsson. Mrs.
Pearl Johnson, klædd hinum
tígulega íslenzka skautbúningi,
söng að lokum lög eftir tvö vest
uríslenzk tónskáld, „Vögguljóð“
eftir Jón Friðfinnson og
„Love’s Rapture“ eftir Prófess-
or S. K. Hall.
Við þetta tækifæri voru marg
ar íslenzkar konur í íslenzkum
peysu- og skautbúningum og
salurinn var þéttskipaður gest-
um.
Sýningin í heild var tilkomú-
mikil og lærdómsrík og hinn
íslenzki þá|ttur sýningarinnar
var öllum, sem að honum stóðu
og íslendingum öllum til söma.
nauðsynlegir húsmunir frá inn
lendum verzlunum hér í Van-
couver. Fyrir stuttu síðan var
heimilinu sent að gjöf frá Lestr-
arfélaginu „Tilraunin“, Keew-
atin Ontario, mjög vandað bóka
safn, sem mun vera frá $ 900.00
til $ 1000.00 virði, eftir verðmæti
notaðra íslenzkra bóka. Þar á
meðál nokkur fágæt og dýrmæt
hefti, sem ekki munu fáanleg nú
á íslenzkum bókamarkaði. Þar
fyrir utan hafa okkur hlotnast
minni bókasöfn frá Mrs. E. Gill-
is og Mrs. Wm. Anderson, fyrir
utan einstaklinga , sem gefið
hafa ýmsar bækur. Einnig er á
heimilinu stórt bókasafn sem
tilheyrir Þjóðræknisdeildinni
„Ströndin“, sem heimilisfólkið
hefir ókeypis aðgang að. Það má
með sanni segja að allar bækur
á heimilinu samtals muni vera
hátt á þriðja þúsund dollara
virði.
Ég vil benda öllum, sem eiga
heima í nærliggjandi héruðum
á það, að allir sem eru eða vilja
gjörast meðlimir okkar elli-
heimilisfélagsskapar, sem lög-
giltur er undir nafinu „The Ice-
landic Old Folks Home Society“
of Vancouver B. C. hafa ókeyp-
is aðgang að bókhlöðu félagsins
og mega taka út bækur til heima
lesturs samkvæmt reglugjörð
þeirrar deildar, sem bókavörð-
ur gefur til kynna. Allir sem
vilja styrkja félagsskapinn eða
hafa gjört það, með $ 25.00 gjöf
eða þar yfir eru lífstíðarmeðlim
ir. Hvað sem borgast þar fyrir
neðan kallast ársgjald, en minst
$ 2.00. Vonandi er að allir ís-
lendingar hér á ströndinni, sem
íslenzkum bókmenntum eru
hlynntir noti tækifærið að hafa
aðgang að þessari veglegu bóka
hlöðu með því að gjörast með-
limir félagsins. Nefndin hefir í
hyggju að bæta við nýjum út-
gáfum eftir hentugleikum.
Heimilið var fyrir nokkru síð-
an fullsetið, með 30 vis1,mönn-
um. Af því að stöðugt berast
beiðnir um inngöngu, hefir
heimilisstjórnin verið að íhuga
stækkun hússins. En þó ég megi
með fullum sanni segja að starf
ræksla heimilisins hafi hingað
til borið sig vel, og um enga
fjármálalega þröng að ræða þó
að meðlög vistmanna séu mjög
lág, þá er ekki um neinn afgang
að ræða til aukakostnaðar. I
staðinn fyrir að byggja hliðar
álmu við húsið, hefir stjórnar-
nefndin álitið að æskilegra væri
að endurbyggja eða breyta mjög
tilhlýðilegu og snotru útihúsi
sem tilheyrir heimilinu, og
stendur fáein fet frá aðalhúsinu.
Kostnaður við þá endurbót mun
verða samkvæmt nokkuð ná-
kvæmri áætlun, fyrir hita-
leiðslu frá aðalhúsinu og alla
innréttinu með stofum fyrir
átta manns, frá $2500.00 til
$3000.00. 1 því húsi verður ekk-
ert loft og því enginn stigi, en
svo til hagað að auðvelt verður
að byggja viðbót við það hve-
nær sem kringumstæður leyfa
og þörf gjörist. Hvað fljótt hægt
verður að koma þessari ákvörð-
un í verk, er algjörlega komið
undir örlæti þeirra, sem vilja
rétta hjálparhönd við kostnað-
inn. Eins og flestum mun kunn
ugt og áður er getið um, hefir
heimilinu borist stöðug hjálp
úr ýmsum áttum til heimilis-
nota og þarfa, sem vonandi er
að hafi áframhald. En mín eigin
skoðun er sú, að æskilegt væri
að allir þeir, sem vilja hjálpa
til með þennan ákvarðaða bygg
ingarkostnað í smáum eða stór-
um stíl, sendi tillag sitt til fé-
hirðis okkar með þeirrr vísbend
ingu að það sé ætlað í bygging-
arsjóðinn. Utanáskrift hans er:
Dr. B. T. H. Marteinsson,
911 Medical Dental Building,
Vancouver B. C.
Vinsamlegast,
Fyrir hönd nefndarinnar
H. J. Halldórsson
Magrir mennT konur
Þyngjast 5, 10, 15 pd.
Nýr þróttur, nýtt fjör, þrek
Hvílík unun, limir styrkir, ðjöfnur
sléttast, hálsin verður liðugur; líkam-
inn ekki framar veiklulegur; þtlsundir
manna og kvenna hafa komist I góð
hold; þetta fólk þakkar Ostrex töflum
heilsubðt sína; vegna hins mikla nær-
ingarkrafts, er þær hafa. Engin hætta fi
offitu, magurt fðlkl þyngist frá 5, 10,
og 15 pd. Kynnist þessum nýja lækn-
ingalyfi! Notið Ostrex Tonic töflur, sem
styrkja likamann. 1 öllum lyfjabúðum.
The Swan Manufacfuring Co.
Cor. ALEXANDER and EEEEN
Phone 22 641
Halldór M. Swan eigandi
Heimili: fl 12 Jesste Ave — 46 958
Borgarstjórajrúin, Mrs. Garnet Coúlter var i fylgd með manni sínum þegar hann
opnaði sýninguna, sem Manitoba deild Canadíska handiðnaðarfélagsins hélt í sam-
bandi við afmælishátíð Winnipegborgar. Hér sést hún sauma fyrstu sporin í ábreiðu.
Til vinstri er Mrs. Albert Wathne, sem annast um upplýsinga starfsemi deildarinnar.
Hinar eru Mrs. R. Wilson Rattray forseti deildarinnar og Mrs. E. Dowton.
Bréf frá Vancouver
f
Business and Professional Cards
SELKIRK MEIAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvöjm, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldivlð, heldur hita. KELLY SVEINSSON Sfmi 54 358. 187 Sutherland Ave., Winntpeg. PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barristers - Solicitors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Winnipeg, Man. Phone 923 561
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith Sl. Winnipeg Phone 924 624
JOHN A. HILLSMAN, M.D.. Ch. M. 627 Medlcal Arts. Bldg. OFFICE 929 349 Home 403 288
Office Ph, 925 668 Res, 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A.. LL.B.
Barrister, Sollcitor, etc.
411 Chiids Bldg,
WINNIPEG CANADA
Also
123
TENTH ST.
BRAND0N
Ph, 926 885
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulatcd
Siding — Repairs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talstmi 926 826 Heimills 63 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœðinyur i augna, eyrna, nef
oq kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutími: 2.00 til 6.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœöingur i augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Oraham and Kennedy St.
Skrifstofuslml 923 861
Heimaslml 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fölk getur pantað meðul og
annað með pöstl.
Pljðt afgreiðsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur líkklstur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá beztl.
Ennfremur selur hann ailskonHr
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu lalslml 27 324
Heimills talsimi 26 444
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
C A N A D I A N FISH í
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAUE, Managing Director
Wholesale Distributors ' of Frsah
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Offtce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Phone 49 469
Radio Servlce Speclallsts
ELECTRONIC LABS,
_ H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
692 ERIN St. WINNIPEG
O F. Jonasson, Pres tt Man. Dlr
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Slml 926 Í27
Wholesale Distributors of
FKESH AND FROZEN FISH
Phone 924 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Acconntants
219 Mc INTyRE BLOCK
Winnlpeg\ Canada
r
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknir
For Appointments Phone 924 #08
Offlce Hours 9—6
404 TORONTO QEN. TRUSTS
BUILDINO
283 PORTAGE AVE.
Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPQ.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega penlngalfin og eldsftbyrgB.
hifreiðaábyrgð, o. s. frv.
Phone 927 638
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
/09B/.NK OF NOVA SCOTIA BO
Portage og Garry St.
Phone 928 291
___________________________
GUNDRY PYMORE
Limited
Hritish Quality Eish Nettinp
58 VICTORIA ST„ WINNIPBO
Phone 98 211
Manager T R. TBORVALDSON
Vour patronage will be appreclated
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUST8
BUILDINO
Cor. Portage Ave. og Smith 8t.
Phone 926 952 WINNIPEQ
Mrosi™
JEWE LLERS
447 Portage Ave,
Phone 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 6 — 662 HOME ST,
Viötalstlmi 3—6 eftlr h°l
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Phone Res Phone
924 762 728 116
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDQ.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment