Lögberg - 14.07.1949, Blaðsíða 3
bOGBERG. FIMTUDAGINN, 14. JÚLÍ, 1949.
b
ÁtiUeA/HÁL
IWENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
BÓKAVERÐIR SKOÐA ISLENZKA SAFNIÐ
VIÐ MANITOBA-HÁSKÓLANN.
I síðastliðnum mánuði hélt canadíska bókasafnasambandið
þing í Winnipeg. Það stóð yfir í viku og sóttu það fjöldi bóka-
varða og bókavina frá ýmsum borgum í Canada og Bandaríkjun-
um. Gestunum voru sýnd þau merkustu bókasöfn, sem í Winni-
peg eru; meðal þeirra íslenzka safnið við Manitoba Háskólann.
Almenningi var og boðið að skoða safnið og notfærði ég mér
boðið. -----------------------------
Eins og kunnugt er, var vísir-
inn að íslenzka bókasafninu við
Manitoba háskólann hin mikla
bókagjöf Arnljóts B. Olssonar
1936, — 1300 bindi. Safnið jókst
um helming þegar öllum bókum
Jóns Bjarnasonarskóla var bætt
við það árið 1940. Þá bárust því
og nokkrar bækur, sem átt
höfðu Halldór Johnson, Wyn-
yard Sask., og Gunnlaugur W.
Jónsson í Texas. Framtíð þessa
safns var tryggð með löggjöf Al-
þingis Islands 1939, er svo
mælti fyrir að bókasafn Mani-
toba háskólans fengi ókeypis ein
tak af hverri einustu bók- og
hverju blaði, sem gefið er út á
íslandi. Síðan hafa safninu bor-
izt 1300 bækur og 300 blöð og
tímarit frá íslandi.
Þetta safn hefir vitanlega enn
ekki verið tekið í notkun vegna
þess að kennaraembætti í ís-
lenzkum fræðum hefir enn ekki
verið stofnað, þótt þess verði
vonandi ekki langt að bíða. En
þess hefir verið gætt að bæk-
urnar væru vandlega geymdar.
Við íslendingar höfum verið
svo lánsamir að eiga við háskól-
ann vökumann, sem skilur innra
og æðsta gildi íslenzkra bók-
menta; hann hefir í kyrþey
hlynnt að safninu, haft vakandi
auga með því að bækurnar væru
geymdar þar sem þær væru ó-
hultar, séð um að gerð væri yfir
þær skrá, og nú síðast haft, í
samráði við bókavörð háskólans,
umsjón með sýningu íslenzkra
bóka, í þeim tilgangi að kynna
bóka vörðum og bókavinum víðs
vegar að bókmentaiðju Is-
lendinga að fornu og nýju. —
Þessi maður er prófessor Skúli
Johnson, yfirkennari við háskól
ann í gömlu klassisku málunum
latínu og grísku, og fyrsti ís-
lenzki Rhodes Scholar í Vestur-
heimi. —
Þegar ég kom suður í háskól-
ann var ég svo heppin að hitta
þar prófessor Johnson, og sýndi
hann mér safnið. Húsakostur
fyrir allt bókasafn háskólans er
mjög þröngur og lestrarsalir ó-
nógir, en íslenzku bókunum hef
ir samt verið komið fyrir á
efstu hæð, en þar er ekki rúm
fyrir þær allar því að bókasend-
ingarnar frá Islandi auka safnið
jafnt og þétt. Prófessor Johnson
hefir lánað einkaskrifstofu sína
og látið slá þar upp bókahillum
fyrir nýju bækurnar og hylja
þær þar alla veggi og flæða inn
í næsta herbergi, þar sem tveir
samstarfsmenn hans hafa lánað
þeim rúm. — Ef bækur liggja
í kössum er þeim hætta búin frá
raka, músum og mel, sérstak-
lega ef kassarnir eru í kjallara.
Nú er í ráði að reisa mikla
byggingu yfir háskólasafnið.
Fylkisstjórnin hefir lagt mikið
fé til síðu í þeim tilgangi. Mun
íslenzka safninu vera fyrirhug-
að þar sérstakt herbergi á aðal-
hæð hússins. Stjórnarráð háskól
ans hefir áhuga fyrir því að þeim
MR. PETER JOHNSON
Representing
J.J. H. Mclean&Co.
LTD.
PORTAGE AT HARGRAVE
Phone 924 231
'The West’s Oldest Muslc House"
Exclusive Representatives for
heintzman & co.
nordheimer
SHERLOCK manning
NKW SCALE WILLIAMS PIANOS
sé valinn hinn virðulegasti stað-
ur, og skilur vel að hér er um
merkilegt safn að ræða, sjálf-
sagt það merkasta, sem háskól-
inn á á erlendu tungumáli. Víst
er um það, að ekki voru þarna
aðrar bækur sérstaklega til sýn-
is, en hinar íslenzku.
Prófessor Johnson hafði valið
öll sýnishornin og var þeim kom
ið smekklega fyrir á löngum
borðum í aðal lestrarsalnum.
Spjöld voru á bókunum, er
skýrðu frá höfundum, efni og
gildi bókanna.
Bækurnar á fyrsta borðinu
voru undir glerloki og var það
að vonum því hér var um marga
og mikla dýrgripi að ræða:
Heimskringla gefin út í Stokk-
hólmi 1697, Annálar Björns Jóns
sonar á Skarðsá, gefnir út í
Hrappsey 1774. Margar fágætar
biblíur og guðsorðabækur, svo
sem Þorláksbiblía, gefin út á
Hólum 1644; Waysenhúsbiblía,
1747; „Harmagráts“biblían, gef-
in út í Kaupmannahöfn 1813. —
‘Hún dregur nafnið af prentvillu
„Harmagrútur Jerimiae“ í stað
„Harmagrátur Jerimiae".
Á öðru borði sá ég stóra biblíu
Titilblaðið var úr fyrstu biblí-
unni, sem gefin var út á íslandi,
Guðbrandarbiblíu 1584. Titil-
blaðið var laust, og er ég því
ekki viss um að það tilheyri
þessari biblíu, en/ef svo er, þá
er hér um gersemi að ræða.
Ég fagnaði því að sjá að safnið
á „Leif“, fyrsta íslenzka blaðið,
sem gefið var út í Winnipeg. En
Framfara vantar, og hann verð
ur safnið að eignast ef mögulegt
er. Annars virðist sjálfsagt að í
þessu safni sé hver einasta bók
og hvert einasta blað og tíma-
rit, sem gefið hefir verið út og
gefið verður út af Islendingum
í Vesturheimi. Ættu útgefendur
að hafa það í huga að senda safn
inu ókeypis eintök af bókum og
blöðum.
Til sýnis voru margar gamlar
og elztu útgáfurnar af íslend-
ingasögunum; Flateyjarbók, —
Christiania 1860; Njálssaga 1809;
Kormákssaga, Khöfn, 1832; Lax
dæla Khöfn 1826; Hervarðar-
saga og Heiðreks kóngs 1785 og
margar fleiri. Einnig voru þar
nýjustu „Deluxe“útgáfurnar.
Safnið er auðugt af elztu
tímaritum og blöðum: Fjölnir,
Klausturpósturinn, Þjóðólfur
1849—1865 og fleira. Þar eru og
Árbækur Jóns Espólíns, Forn-
bréfasafn, Biskupasögur og ýms
önnur fágæt heimildarrit.
Bækur tímarit Og blöð, sem
geyma sögu Vestur-íslendinga
voru og til sýnis; Saga Nýja Is-
lands eftir Jóakim Jackson og
þrjú hefti sögu Vestur-lslend-
inga eftir Þ. Þ. Þorsteinsson.
Ekki sá ég Almanak Ólafs Thor-
grímssonar, en má vera að safn-
ið eigi það. Það á Sameininguna
frá upphafi og Breiðablik, mest
allt Lögberg. Ekki sá ég Heims
kringlu, ætti hún þó áreiðanlega
að vera þar líka.
Á einu borði voru ljóðabækur
og voru meðal þeirra ljóð eftir
helztu V.-íslenzku skáldin. Til
sýnis voru margar hinna vönd-
uðu myndabóka frá Islandi, sem
nú eru gefnar út svo ört. Þær
myndu gefa réttari hugmynd
um náttúrufegurð landsins, ef
myndirnar væru í eðlilegum lit-
um eins og í bók Dr. Helga
Briem. —
Ekki gefst rúm til að segja frá
fleiri fágætum bókum, sem
þarna voru. Bókasýning þessi
færði sönnur á það, að við Mani
toba háskólann eiga íslendingar
stærri fjársjóð en flesta rennir
grun í. Framtíð safnsins er
tryggð eins og áður er getið, en
enn vantar margar gamlar bæk-
ur, sem, ef til vill, eru í fórum
manna vestan hafs. Væri það vel
gert og þjóðræknislegt að láta
safnið njóta þeirra. — Auka
bindi fágætra bóka, getur safnið
notað til að skipta við önnur
söfn. —
Háskólanum hafa þegar bor-
izt fyrirspurnir frá nemendum
um kennslu í íslenzku og íslenzk
um fræðum. Ánægjulegt væri
það ef íslenzka bókasafnið yrði
svo fullkomið, að hingað sæktu
fræðimenn víðsvegar frá, til
þess að færa sér það í nyt, líkt
og á sér stað við Cornell háskól-
ann.
Kirkjuþingið 1 Argyle
(Frh. af bls. 2)
8. Yfirlýsingar og kveðju-
skeyti. Kveðjuskeyti bárust
þinginu frá biskupi íslands, hr.
Sigurgeiri Sigurðssyni. Frá séra
Eiríki og frú Guðrúnu á Útskál
um. Frá séra Octavíusi og frú í
Californiu, séra Arthur S. Han-
son og séra Guðmundi Jónssyni,
og var þeim öllum svarað á við-
eigandi hátt.
9. Leikmannastarfsemi. Það
mál er ekki nýtt í kirkjufélag-
inu. Það var eitt af áhugamál-
um Dr. Jóns Bjarnasonar. Hann
hvatti leikmenn safnaðanna til
forustu. Nú voru þeir hvattir til
þjónustu.
10. Launakjör presta. Kirkju-
þingið mæltist til að söfnuðirn
ir athuguðu launakjör presta
sinna í sambandi við hina vax-
andi dýrtíð og reyndu eftir
megni að bæta kjör þeirra, þar
sem þeim er raunverulega ábóta
vant. Hefi ég þá drepið á flest
það, sem gjört var á þessu kirkju
þingi og verður þar við að sitja.
SAMKOMUR.
Tvær samkomur voru haldn-
ar í sambandi við þetta kirkju-
þing. önnur á fimmtudagskvöld
ið 23. júní í Grundarkirkju. Var
þar vel skemmt og vel til vand-
að. Þar flutti erindreki United
Lutheran church, sem í þetta
sinn var séra Georg H. Harknis
frá Harrisburg í Pensylvania,
aðstoðarmaður forseta United
Lutheran church in America. Er
indi sit, sem hljóðaði um starf
Lútersku kirkjunnar í Ameríku,
inn á við og út á við, vonir henn-
ar og þarfir hennar og framtíðar
horfur. Erindið var hið ágæt-
asta, skýrt og vel framborið og
féll á eyru manna eins og dögg
á þyrsta jörð, þó að hann ein-
staka sinum minntist á peninga.
Séra K. K. Ólafsson flutti og
snjalla og skemmtilega ræðu, en
stutta í þetta sinn. Sameinaður
söngflokkur byggðarinnar söng
prýðilega vel, svo gerði og for-
setinn séra Egill H. Fáfnis, sem
söng einsöng, en frú hans lék
undir með honum. Samkoman
var uppbyggileg og skemmtileg.
Hin samkoman var haldin á
föstudagskvöldið 24. júní í sömu
kirkjunni, var hún helguð æsku
lýðnum og var kölluð „youth
Rally“. Séra Eric Sigmar hafði
aðallega séð um undirbúning
hennar og gjört það vel. Tók
hann sjálfur áberandi þátt í
henni, því hann er söngmaður
ágætur.
Skemmtiskráin var sem hér
segir:
Devation — Dr. R. Marteins-
son Argyle Parish choir:
„Praise ye the Lord“ og „Þú
bláfjalla geimur“.
Vocal Solo — Miss Grace Hur-
ton Glenboro: „Perfect day“.
„The world is waeting for the
sunrise“.
Adress Attorney Norman
Bergman, Winnipeg. Solo Elin
Josephson Glenboro. „Almighty
Father“ og „Bí bí og blaka“.
Píanósóló Miss Grace Hurton.
Adress Rev. Harald Sigmar.
Sóló Miss Carol Nordal.
Argyle Parish choir „Kvöld-
söngur“.
Allt var þetta prýðilega af
hendi leyst. Ræðurnar vel flutt-
ar og skipulega af báðum. Báðir
eru mennirnir málsnillingar og
orðfimir, en ég ætla ekki að
rekja efnið í ræðum þeirra.
Bendi aðeins á eitt atriði í ræðu
Norman Bergmans til athugun-
ar og umhugsunar: „Ég tala ekki
um æskulýðinn sem sérstaka
aðskylda deild í mannfélaginu,
slíkt hugtak er tál. Æskan og
þeir fulorðnu verða að haldast
í hendur“.
Kirkjuþingsfundirnir voru
haldnir sinn daginn hvor í hverri
kirkju prestákallsins. Fimmtu-
daginn 23. júní 4 Brú, eins og
sagt hefir verið. Föstudaginn 24.
júní á Baldur og síðasta daginn
laugardag í Glenboro og alls-
staðar áttum við að mæta sömu
gestrisninni og góðvildinni.
Á laugardaginn fóru fram em-
bættismannakosningar og voru
allir aðalembættismenn kirkju-
félagsins endurkosnir — Séra
Egill H. Fáfnis forseti, séra V. J.
Eylands varaforseti, séra Bjarni
A. Bjarnason ritari, séra Skúli
Siígurgeirsson vararitari og Sig-
tryggur O. Bjerring féhirðir.
Standandi nefndir, endurkosnar
með sáralitlum breytingum.
Victor Jónasson kosinn í fram-
kvæmdanefndina í stað J. S.
Gillis og dr. Marteinsson í trú-
boðsnefndina í stað séra V. J.
Eylands. Eftir miðjan daginn á
laugardag, síðasta þingdaginn,
var minnst nokkurra merkra
kirkjulegra viðburða. Fyrst 50
ára prestsskaparafmælis Dr.
Runólfs Marteinssonar. Ávarp-
aði séra Skúli Sigurgeirsson
hann og frú hans með vel völd-
um orðum og þakkaði þeim báð-
um fyrir óeigingjarnt og vel unn
ið starf í þágu kirkju og kristi-
legrar menningar á meðal Islend
inga. Sigtryggur S. Bjerring af-
henti þeim hjónum ofurlitla
minningargjöf. Séra Guttormur
Guttormsson tilkynnti að í ráði
væri, að gefa út í litlu kveri,
þing prestshugleiðingar hans á
þinginu. Þau Dr. og frú Mar-
teinsson þökkuðu bæði fyrir vin
skap og virðingu sér sýnda.
Þá var minnst hinnar hreinu
og dyggilegu þjónustu í þarfir
kirkju og menningarþroska, er
séra Pétur Hjálmsson hefir innt
af hendi um langa æfi. Hann sit-
ur nú blindur í sólroða kveldsins
og hugir samverkamanna hans
og vina dvelja hjá honum með
þökk og virðingu.
Þinginu var slitið kl. 6 á laug-
ardaginn og eftir höfðinglega
framreidda máltíð kvennanna í
Glenboro, kvöddust menn og
héldu heim. Ég gat samt ekki
kvatt húsbændur mína og heima
fólk þeirra í Baldur, þau Christ
ophershjónin því ég þurfti á
laugardagsmorguninn að ná í
skjöl og skilríki, sem hann séra
Guttormur gleymdi á skrifstofu
sveitarstjórnarráðs Argylesveit-
ar kveldið áður, en í bakaleið-
inni mætti ég Jóni Swansson á
þjóðveginum með föggur mínar
og varð ég annað hvort að fara
með honum tafarlaust, eða
verða eftir, en að strandarglóp
vildi ég ekki verða svo að ég gat
ekki kvatt. En ég gjöri það nú
og þakka Chrstophershjónunum
og öll ufólkinu í Argyle fyrir
höfðingsskapinn, viðtökurnar og
viðmótið. Flestir prestanna urðu
eftir yfir helgina í Argyle og
prédikuðu í kirkjum íslenzku
safnaðanna á sunnudaginn og
einn þeirra séra Haraldur S. Sig
mar í enskri kirkju í Glenboro.
Á sunnudaginn var Hljómspil
(shimes) undur hljómþýtt og
hljómfagurt, er Hans heit. Jóns-
son gaf til íslenzku kirkjunnar í
Glenboro vígt. J. J. Bíldfell
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinlr. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviö,
heldur hita.
KELLT SVEINSSON
t Sími 64 358.
187 Sutiierland Ave.. Winnlpeg.
s. o. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith Si. Winnipeg
Phone 924 624
Office Ph, 925 668 Res, 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Barrister, Solicitor, etc.
411 Childs Bldg,
WINNIPEG CANADA
Also
123
TENTH ST.
BRANDON
Ph, 926 885
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs and Insulated
Slding — Repairs
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
60« SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talstmi 925 826 Heimilia 63 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur 4 augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutimi: 2.00 til 6.00 e. h
DR. ROBERT BLACK
SérfrœOingur 4 augna, eyrna.
nef og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 923 861
Heimasfml 403 794
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
K'asteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega penlngalán og eMs&byrgfl
hifreiöaábyrgC, o. s. frv.
Phone 927 638
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkklstur og annast um öt-
f&rlr. Allur útbúnaCur sá beztl
Ennfremur selur hann allskonai
minnisvarCa og legsteina.
Skrifstofu talslmi 27 324
Helmllis talslml 26 444
GUNDRY PYMORE
Limited
British (Juality Fish Netting
68 VICTORIA ST„ WINNIPEG
Phone 98 211
Uanager T. R. THORVAL,DSON
Tour patronage will be appreclated
Phone 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartercd Accountants
305 Confederation Life Bldg.
Winnipeg Manitoba
Phone 49 469
Radio Service SpeciallstB
ELECTRONIC LABS
H. THORK BLSOAI, Prop
The most up-to-d&te Sound
Equipment System.
592 ERIN St. WINNIPEG
C A N A D I A N FISH I
PRODUCERS, LTD. |
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Dlstrlbutors of Frieii
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Offlce Ph. 26 828 Res. Ph 73 917
G. F Jonasson. Pres. tk Man. Dir
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLK, Slmi »26 227
Wholeaalt Distributura of
FRESH AND FROZEN FI8F
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wpg.
Phone 926 441
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
209B/,NK OF NOVA SCOTIA BG
Portage og Garry St.
Phone 928 291
____________________I
EYOLFSON’S DRUC
PARK RIVER, N. DAK
islenzkur tyfsali
Fðlk getur pantaB meðul og
annaS meB pðsti.
Fljðt afgreiBsla.
SARGENT TAXI
Phone 722 401
FOR QUICK RELIABLE
SERVICE
Office Phone Res Phonc
924 762 726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUST8
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth 8t.
Phone 926 962 WINNIPEG
Cars Bought and Sold
SQUARE DEAL
MOTOR SALES
"The Working Man’s Friend"
Dk líitl 297 Princtss Street
rn. /0404 Haif Block N. Logan
ÍIIÐSlMll
JE WELLERS
447 Portage Ave,
------------------— |
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREEl
Selklrk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m
Phones: Office 26 — Res. 230 |
PARKER, PARKER
& KRISTJANSSON
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
JOHN A. HILLSMAN.
M.D.. Ch. M.
332 Medical Arts. Bldg.
OFFICE 929 349 Home 403 288
Phone 724 944
Dr. S. J. -lóhannesson
SUITE 6 — 652 HOME ST,
VlBtalstlmi 3—5 eftir hádegl