Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ, 1949
3
esson húsasmíði. Þeir eru báðir
kennarar við héraðsskólann og
meistarar hvor í sinni grein, en
námið fer fram undir verndar-
væng iðnskólans á Selfossi.
Húsnceðisvandrœðin geysileg.
— Olli ekki húsnæðiseklan
miklu merfiðleikum í skólastarf-
inu í vetur?
— Jú, húsnæðisvandræðin
eru hér mikil. í tvö ár höfum
við rekið skólann án þess að
fá bættan húsnæðisskaðann,
sem við hlutum við brunann.
Nemendur hafa heldur kosið að
búa þröngt en verða af skóla-
vistinni. Enn sækja nemendur
fast eftir skólavist og eins og
ég hefi nú lýst starfinu, finnst
okkur hér óeðlilegt, að ekki
skuli vera greitt fyrir því, að hið
nýja skólahús komist fljótt upp.
Ýmsir skólar eiga við erfiðan
húsakost að búa og þurfa sann-
arlega umbætur, en það mun fá-
títt, að fjölsóttur skóli, sem hlýt
ur brunatjón, skuli standa óbætt
ur fyrir slíkt óhapp árum sam-
an. Ég get ekki annað en sagt
það hér, að skipti mín við
suma alþingismenn eru þannig,
að mér virðist þeir skoða mig
sem mikinn skaðræðismann.
Alþingi hefir nýlega dembt!
yfir þjóðina strangri skólalög-
gjöf, sem á að vera full fram-
kvæmt eftir fjögur ár. Þegar hér
uðin eru byrjuð að undirbyggja
framkvæmd laganna, þar á með
al skólaskyldu til 15 ára aldurs,
virðist Alþingi algerlega bregð-
ast skólunum.
T. d. er fjárveiting til héraðs-
og gagnfræðaskólanna svo lág,
að skólarnir fá aðeins lítmn
hluta þess, sem ríkið skuldar
þeim fyrir þegar gerð verk, hvað
þá að nokkur eyrir fáist til ný-
bygginga.
Endurbætur á hita-
og vatnsveitu.
— Hvaða umbætur ráðgerið
þið í sumar?
— Umbætur á hita- og vatns-
veitu eru með öllu áhjákvæmi-
legar. Einnig er hugmyndin að
koma fyrir frystivélum, sem við
eigum ' óuppsettar. Vegna
geymslu á matvælum skólans
verður þetta að gerast. Þá er að
koma hita í nýju bygginguna
og reyna þannig að bjarga sér í
henni hálfgerðri heldur en að
skerða skólastarfið.
— En verða nokkur ráð til að
bæta húsakostinn að einhverju
leyti'í sumar?
— Þetta, sem ég hefi þegar
nefnt, kostar mikið fé og illt er
að geta ekki staðið í skilum við
verkamenn og efnissala. En það
eina, sem gæti orðið skólanum
til bjargar núna, er ef hægt væri
að fá nokkurt byggingarlán, svo
verkið ekki stöðvist. Sýslunefnd
Árnessýslu hefir brugðist vel
við og samþykkt að ganga í á-
byrgð fyrir byggingarláni, hins
vegar er með öllu óvíst, að pen-
ingar finnist eða fáist.
Fjárhagsráð hefir sýnt okkur
sannan skilning og höfum við
góðar minningar um skiptin við
það. Við höfum fjárfestingar-
leyfi fyrir að gera fokheldan
þann hluta hússins, sem þegar
er kominn á stað. Sjáum nú til
og vonum hið bezta landi og
þjóð til handa þótt móti blási í
bili. Spámenn segja að bráðum
rofi til.
Þetta sagði Bjarni Bjarnason,
skólastjóri, um starf Laugar-
vatnsskólans í vetúr og horfurn
ar á framkvæmdum þar í sumar.
Skólinn hefir nú búið við hús-
næðisþrengslin af völdum brun-
ans í tvo vetur, og er það eftir-
tektarvert afrek, að starf skól-
nú og fyrir
Fyrir svo sem hálfri öld var sú
skoðun mjög útbreidd meðal
menntamanna hins vestræna
heims, að vísindin væru smám-
saman að afsanna gildi trúar-
bragðanna. — Þróunarkenning
Darwins, misjafnlega túlkuð og
margvíslega úr lagi færð, virtist
um skeið hafa gert trúfræðileg-
ar kenningar um uppruna
mannsins, eðli hans, tilgang og
takmark, að fjarstæðu. Spjátr-
ungarnir um síðustu aldamót,
snöggsoðnir úr skóla efnishyggj-
unnar, töluðu um „Jahve gamla“
með óblandinni fyrirlitningu —
og þurfti ekki spjátrunga til. Nú
dettur engum menntuðum
manni í hug að halda því fram,
að vísindin hafi afsannað gildi
trúarbragðanna. Miklu fremur
mun meiri hluti lærðra
mannahallast að þeirri skoðun,
að vísindin séu að leiða
ýmislegt í ljós um sannleiksgildi
æðri trúarbragða og séu þeim
þar af leiðandi til staðfestingar.
Heimsskoðun 19. aldar manna
grundvallaðist á kenningum
Galileos og Newtons um alheim-
inn, að svo miklu leyti sem hún
náði út fyrir takmörk arfgengra
kirkjukenninga. Efnishyggjan
blómgaðist, þó að hún hefði
þann mikla annmarka að neita
sérstöðu mannsins í sköpunar-
verkinu, en gera hann aðeins að
einu hjólinu í sigurverki tilver-
unnar. En blómgunartímabilið
varð stutt. Þegar sálarfræði
nítjándu aldarinnar átti að leysa
spurninguna um það hvernig
hugur og andi gæti verið til orð-
inn upp úr efninu, þá komst hún
í ógöngur. Descartes og fylgj-
endur hans höfðu áður reynt að
leysa vandann með því að segja,
að efni og andi væru tvær hlið-
stæður, þótt andinn væri af efn-
inu kominn. Þetta reyndist þó
haldalaust til lengdar. Menn
fundu enga skynsamlega skýr-
ingu á því, hvernig hugur eða
andi gat orðið til, af efni og í efn-
islíkama, nema með því að leita
út fyrir efnið, að skapara, guði,
sem blásið hefði „lifandi anda í
hans nasir“. Og þar með var efn-
ishyggjan komin í hring, út í
megnustu ógöngur, sjálfa sköp-
unarsögu Gamla testamentisins,
sem átti að afsanna.
Og nú, eftir fimmtíu ár, er
það orðin ein af kennisetningum
líffræðinnar, sálarfræðinnar og
sjálfrar eðlisfræðinnar, að al-
heiminum sé stjórnað af mætti
hugans utan við skynheim vorn,
ans skuli ekki hafa beðið mik-
inn hnekki þessi ár, og sýnir,
að þar hefir verið að verki vilji,
sem staðráðinn er í að sigrast á
örðugleikunum. En vonandi
finnst flestum nú, að Laugar-
vatnsskólinn hafi unnið til þess
að fá mikil og vegleg húsakynni
fyrir starfsemi sína og það sem
fyrst. TÍMINN, 11. júní
hálfri öld
— að þessi heimur sé hugsun
hins mikla heimssmiðs. Hinn
sýnilegi heimur er til orðinn í
vitund hins eilífa anda, segir
stjörnufræðingurinn og eðlis-
fræðingurinn heimskunni Sir
James Jeans í bók sinni „The
Mysterious Universe“. Hann
komst ekki að þessari niðurstöðu
eftir neinum trúarleiðum. Vís-
indalegar rannsóknir hans um
tugi ári á eðli og ásigkomulagi
alheimsins knúðu hann út í
þessa ályktun. Þannig eru vís-
indin að staðfesta með vitnis-
burði sínum eilíf sannindi trú-
arinnar og endurvekja það sam-
ræmi og öryggi í lífsskoðun nú-
tímamannsins, sem efnishyggjan
hafði átt sinn mikla þátt í að
lama. Vissulega er þetta fagnað-
arefni þeim, sem ekki geta lif-
að í trú án þess að lifa í skoðun
— og þá einnig hinum, sem ekki
þurfa skoðunar við til þess að
trúa. Sv. S.
Vér óskum öllum íslenzkum
viðskipta vinum og öllum
íslendingum til heilla og
hamingju á sextugasta af-
mæli þjóðminningardags
þeirra, á Gimli 1. ágúst 1949
BOOTH
FISHERIES
Canadian Co., Ltd.
804 Trust and Loan Bldg.
SIMI 92 101 WINNIPEG, MAN.
HAMINGJUOSKIR
TIL ISLENDINGA...
^TJÓRNENDUR og starfsfólk Safeway búð-
anna, samfagna íslendingum í tilefni af ís-
lendingadeginum, sem haldinn verður á Gimli
þann 1. ágúst, 1949. Vér þökkum íslendingum
vaxandi viðskipti og árnum þeim framtíðar-
heilla.
Virðingarfylzt . . .
SAFEWAY
CANADA SAFEWAY LIMITED
Compliments of . . .
JUBILEE COAL
COMPANY, LIMITED
H. B. IRVING, Manager
CORYDON and OSBORNE, WINNIPEG
Kirkjublaðið 16. maí.
V ísindi og trú —