Lögberg - 28.07.1949, Page 3

Lögberg - 28.07.1949, Page 3
LiÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ, 1949 27 I Bern eru stjórnarskrifstofurnar opnar kl. 7 árdegis Þjóð, sem á hvorki nýlendur né hráefni, en er þó hin auðugasta í heimi Basel, 26. maí. Það mætti segja mér, að starfs menn ríkisstofnana heima yrðu súrir á svipinn, ef þeir ættu að vera mættir til vinnu kl. 6.45 ár- degis. Þannig er það þó í Bern, höfuð borg Svisslands, að þar verða starfsmenn stjórnarráðsins að vera komnir á vinnustað 15 mín fyrir kl. sjö á hverjum morgni og skrifstofurnar eru opnaðar kl. sjö. Aðrar opinberar stofnan ir þar og annars staðar í landinu munu taka til starfa klukkan lega skilið að ýmsu leyti, þótt varla sé við eigandi eða ástæða til að hælast um af því, að við séum ekki það, sem skammar- legt er, ónytjungar og letingjar. En þrátt fyrir kappið á mörgum, er sleifaralagið oft á hinn bóg- inn oft svo mikið, að úr hófi keyrir. Á íslandi skamma allir hina opinberu starfsmenn fyrir væru kærni og finnst, réttilega, að þeir og stjórnarherrarnir ættu að ganga á undan almúganum með góðu fordæmi, en það er harla fátítt. Hér í landi er hins vegar rétt farið að. Hér byrjar Stendur eins og stafur á hók. Ég veit ekki hvort Svisslend- ingar eru svo lánssamir að eiga nokkra viðskiptanefnd eins og við heima, en þó er það ólíklegt, því að þótt þeir eigi hvorki ný- lendur né hráefni í jörðu og flytji helmingi meira en þeir selja öðrum, auka þeir samt inn stæður sínar erlendis og geta afl að sér alls sem hugurinn girn- ist. En jafnvel þótt þeir hefðu sett á laggirnar hjá sér einhverja innflutningsnefnd með íslenzku sniði, þá er harla ósennilegt, að hún léti það boð út ganga, að ekki væri hægt að ná tali af, þeim háu herrum í heilan mán- uð, hvað sem við lægi. Hér líta nefnilega opinberir starfsmenn á sig fyrst og fremst sem þjóna þójðarinnar en ekki herra. þjóðarinnar en ekki herra. ingar mikið læra og hinu líka, að ef Svisslendingur lofar ein- hverju, þá stendur það eins og stafur á bók. Það á við um alla sem einhver skipti við náung- ann, hvort sem þar er um opin- beran starfsmann eða til dæmis kaupsýslumann að ræða. Menn bera of mikla virðingu fyrir sjálfum sér til þess að vilja verða ósannindamenn. Hreinlœti og snyrtimennska. 1 hreinlæti eru Svisslendingar einnig til fyrirmyndar.' Manni bregður við, er maður kemur úr ryki og óhreinindum heima í Reykjavík og hingað suður eft- ir. í fyrstu gæti maður haldið, að Svisslendingar gættu hrein- lætisins hvað mest í stærstu borgum landsins — Basel er önn ur stærsta borgin — þar sem ferðamannastraumurinn er mest ur, en það er síður en svo rétt tilgáta. Ég hefi haft tækifæri til a, fara um mörg þorp og smábæi hér í grennd og alls staðar er hið sama upi á teningnum — allt er hreint og fágað, slétt og fellt. Snyrtimennskan er ekki síður aðalsmerki Svisslendinga en ár- vekni og orðheldni. Landsmenn leitast líka við að vera vel til fara. Þeir hlaða ekki utan á sig glysi og skrauti, svo að þeir verði eins og jólatré — þótt sárafáar undantekningar kunni að finnast — heldur virð- ast þeir velja flíkur sínar eftir því hve hentugar þær eru og sterkar. Þeir hafa ekki látið það stíga sér til höfuðs, þótt þeir séu ríkasta þjóð í heimi og eigi sem svarar tíu milljörðum króna í er lendum innstæðum. Þeim finnst meira að segja lítið til um þá, sem berast mjög á í hópi hinna erlendu ferðamanna, þótt fram- koman sé ævinlega mótuð af kurteisi og alúð. leið sína um Sviss, kynnast vit- anlega einna helzt gisti- og veit- ingastöðum landsins. Þeir, sem víða hafa farið, telja Svisslend- inga allra þjóða fremsta á því sviði. Ég get ekki gert saman- burð á mörgum löndum, en hitt veit ég, að hvert það gistihús hér í landi, sem tæki upp íslenzka hætti í umgengni við gesti sína, gæti lokað dyrum sínum á fyrsta degi. Á „menningu" landanna í þessum efnum er því líkur reg inmunur, eins og á svo mörgum sviðum öðrum. Hótelrekstur er líka sérstök kennslugrein við svissneska há- skóla og hótelstjóri þekktasta gistihússins hér í Basel — Hotel Des Trois Rois, hótel konung- anna þriggja — er prófessor í gistihúsamennt, kennir þeim ungu mönum, sem hafa hug á að verða gestgjafar landsins. Hotel Des Trois Rois er búið að starfa óslitið frá 1026, eða 1 meira en níu aldir og allir heims kunnir menn, sem til Basel koma, búa þar og kemur ekki til hugar að leita annað, þótt mörg ágæt og viðurkennd gisti- hús sé í borginni. Ljóminn mundi fljótlega fara af nafni þess, ef það gætti ekki virðing- ar sinnar í hvívetna og hefði að einkunnarorðum, að ekkert sé of gott fyrir gestina. Siminn er undrátœki. Kveldið áður en ég fór að heiman — fyrir rúmri viku — hringdi ég í Landssímann og spurði, hvort hægt mundi að fá aðstoð símans til að vakna kl. 6 næsta morgun. „Við skulum reyna það“, svaraði rödd síma- varðarins og samtalinu var slit- ið. Mér gafst ekki einu sinni tækifæri til að þakka fyrir mig, enda kom á daginn, að ekki var síminn hringdi aldrei til að vekja mig, svo að sennilega hefði ég orðið strandaglópur, ef ég hefði ekki viljað hafa vaðið fyrir neðan mig og beðið kunn- ingja minn einn á Slökkvistöð- inni um að hringja til mín, er hann færi af verði. Hann stóð 'við orð sín og hafi hann þökk fyrir — en hinn skömm. En þrátt fyrir svona „smá- vægilega“ óorðheldni Landssím- ans heima er hann þarft tæki og nauðsynlegt. Hér í landi er sím- inn hins vegar bókstaflega undratæki. Hann gerir allt, sem unnt er, fyrir símanotendur og telur það sjálfsagt. Hvernig viðrar heima á Fróni? Með því að hringja í sérstakt númer er til dæmis hægt að fá upplýsingar um flest það, sem menn þurfa að vita — skemmt- anir, samkomur, veðurfar, veð- Framhald á bls. 31 átta og þá er borgarlífið fyrir löngu komið í fullan gang. Við Islendingar hrósum okkur oft af því, hvílík dugnaðarþjóð við erum og eigum það áreiðan- hið opinbera vinnudaginn á und an öllum öðrum og gerir mestar kröfur til sjálfs sín. Það fer ekki hjá því, að í slíku þjóðfélagi er flest eða allt til fyrirmyndar. IT’S A TREAT TO EAT DUTCH OVEN LOAF TABLE KING LOAF GRAHAM WHOLE WHEAT LOAF Buy Quality Buy AVAILABLE AT YOUR FOOD STORE Only ! Gistihúsarekstur er hér háskólanám. Ferðamenn þeir sem leggja Clark’s Garage Beztu árnaðaróskir til íslendinga í tilefni af sextíu ára afmæli þjóðminningardags þeirra sem haldinn er á Gimli 1. ágúst 1949. WALTER CLARKE Umboðsmaður fyrir J. I. Case Akuryrkju Verkfæri, White Rose Benzine, hitunar og bfla olíu. Firestone Tires. Bifreiðar og flutningsvagna og allt, sem Bifreiðum og flutningsvögnum tilheyrir. VERUM SAMTAKA Hamingjuóskir til íslendinga á sextíu ára afmæli þjóðminningardags þeirra á Gimli 1. ágúst 1949. S. O. THOMSON, M.D. RIVERTON MANITOBA HAMINGJUÓSKIR til íslendinga á Þjóðminningardaginn í fullan aldarfjórðung hafa Winnipegbúar notið hins ljúf*. fenga Purity Ice Cream, eins og annara heilsustyrkjandi City Dairy mjólkurafurða. SMMI 87647 FALL TERM OPENS MONDAY, AUGUST 22nd If you prefer to enroll either before or after this date, however, you may do so. Our classes will be conducted throughout the summer without any interruption. Make Your Reservations Now For our Fall Term we have already received many advance registrations from near and far-distant points in Western Canada. To reserve your desk, write us, call at our office, or telephone. Ask for a copy of our illustrated Prospectus, with which we will mail you a registration form. TELEPHONE 926 434 ucceáó' iDommewcm The Air-Conditioned College of Higher Standards / C/7 // ^ l' looUeae' CLACr’X SAPA6E DAGSÍMI 81 NÆTURSIMI 63 EÐA 76 Porlage Ave. at Edmonton St. WINNIPEG TELEPHONE 926 434 BALDUR. MANITOBA

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.