Lögberg - 08.09.1949, Blaðsíða 1
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21374
ie*V
ÞaU fú*
A Complele
Cleaning
Insiitulion
62. ÁRGANGUH
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 8. SEPTEMBER, 1949
NÚMER 36
Baldur Stephansson
(Sonur Stephans G.—)
Fæddur 25. seplember 1879, dáin 13. júní 1949
Framkvæmdir við virkjun
Neðrifossa hefjast í sumar
Á fundi í bæjarráði Reykja-
víkur, er haldinn var s.l. föstu-
dag, var rætt um viðbótarvirkj-
unina við Sogsorkuverið og sam-
þykkti bæjarráð þá svohljóð-
andi ályktun eftir tillögu raf-
magnsstjóra:
Að sækja til ríkisstjórnarinar
um virkjunarleyfi á írafossi og
Kistufossi í einni virkjun.
Að láta sem fyrst fara fram
útboð á vélum og rafbúnaði sam
kvæmt framlagðri lýsingu, á
þann hátt, að sent verði til þeirra
firma í Norðurálfu og Ameríku,
sem Sogsvirkjunin hefir haft
samband við, bæði beint og fyrir
milligöngu ísl. sendiráða.
Vegagerð og brúarsmíði
í sambandi við afgreiðslu
máls þessa, lá og fyrir fundi
bæjarráðs bréf frá rafmagns-
stjóra, varðandi undirbúnings-
vinnu er hefja skal í sumar að
virkjun þessari.
í bréfinu skýrir rafmagns-
stjóri frá þeim vegalagningum,
sem nauðsynlegar eru, en það
eitt er allumfangsmikið verk og
loks er nauðsynlegt að byggja
brú yfir Sogið og verður hún
fyrir ofan írafoss.
FRÁ AKRANESI
Tíðindamaður blaðsins náði
tali af sr. Sveinbirni í gær. Og
eins og lög gera ráð fyrir byrjuð-
um vér á að spyrja hvaðan af ís-
landi hann væri.
Eg er fæddur og uppalinn á
Akranesi, svarar sr. Sveinbjörn.
Foreldrar mínir voru Jónas
Ikkaboðsson og Anna Svein-
björnsdóttir, systir Kristjáns
Möller, og eru þau nú bæði lát-
in. Þau fluttust til Winnipeg ár-
ið 1911, þegar ég var 13 ára. Og
ég hef ekki komið til íslands síð-
an.
Eg átti heima í Winnipeg til
ársins 1920. Þá fór ég í presta-
skóla í Indíana-fylki og hefi nú
predikað í 20 ár samfleytt.
FÁIR ÍSLENDINGAR
Hefirðu haft íslenzka söfnuði?
Nei, því miður — þá myndi ég
áreiðanlega vera liðugri í íslenzk
unni! í borginni Duluth, í Norð-
ur Minnesota, þar sem ég hef
verið þjónandi prestur lengst af,
eru aðeins örfáir íslendingar —
eitthvað um 10, að mig minnir.
Og þeir eru að týna tölunni. Eg
jarðsöng t.d. einn þeirra, rétt áð-
ur en ég fór, Kristinn Gunnars-
son.
RÆÐUR UM ÍSLANDI
Þú hefur flutt fyrirlestra um
ísland?
Já, þær eru nú orðnar býsna
margar ræðumar, sem ég hef
flutt um ísland — bæði úr ræðu-
stóli og eins í hópi kunningja
og vina. Hvar sem ég hef komið
ókunnugur í bæ, hefir fólkið far-
ið að velta því fyrir sér, hvaðan
Moldin hefir jnýkt þín sár —
Meinum ei skal flíka.
Þú varst bóndi æfiár:
Unnir henni líka.
Nokkrir Ameríkumenn heim-
sóttu Marshal Tító á eyjunni
Brisoni í Adriatic hafinu og áttu
alllangt tal við hann. Hann sagði
þeim að ósamlyndið við Stalín
hefði byrjað fyrir 5 árum síðan
vegna ágreinings um grundvall-
aratriði. Stalín vill að kommún-
istaríkin séu sem ein heild undir
einni yfirstjórn; en Tító vill að
hvert ríki sé sjálfstætt. Tító
kvaðst ekki mundu hlýta skip-
unum frá nokkru erlendu ríki
né leyfa því að skipta sér af
innanríkismálum Júgóslavíu.
Þótt Sovietríkin reyni á allan
hátt að þrengja að Júgóslavíu-
efnahagslega og láti ófriðlega,
nafn mitt, Ólafsson, væri. Flest-
ir hafa haldið a, það væri norskt
eða sænskt. Engum hefir dottið
Island í hug.
En um leið og ég hefi sagt að
ég væri frá íslandi, hefir rignt
yfir mig spurningum. Og áður
en ég hefi vitað af hefi ég verið
búinn að lofa því, að flytja fyrir-
lestur um Island í einhverju fé-
laginu, eða einhverri kirkjunni.
MIKIL FÁFRÆÐI
Eg byrjaði á því strax á meðan
ég var í háskólanum að segja
mönnum frá íslandi. Mér gramd-
ist oft fáfræðin um ísland, sem
er ótrúlega mikil, þó hún sé
kannske eðlileg. Sannleikurinn
er sá, að almenningur í Banda-
ríkjunum hefir enn þann dag í
dag hinar undarlegustu hug-
myndir um Island. Maður hefir
reynt eftir megni að leiðrétta
þennan misskilning, en það seg-
ir auðvitað ekki mikið.
ÁHUGI MIKILL
Hvar hefurðu aðallega flutt
fyrirlestra þína?
Oftast í kirkjum. Eins hef ég
talað á vegum fjölmargra félaga
og samtaka. Áhugi fólksins á ís-
landi er mikill og það er afar
þakklátt fyrir réttar upplýsingar
um land og þjóð.
FERÐAÐIST UM MEÐ
FYRSTU MYND LOFTS
Hefirðu haft nokkrar kvik-
myndir til að sýna?
Nei, því er nú verr. Það er að
segja að ég ferðaðist um í þrjá
mánuði með fyrstu Loftsmynd-
ina — og fyrstu kvikmyndina,
sem tekin var á íslandi, fyrir
mörgum árum.
Reistir bæ í bygðarlag —
Bú svo hlýfa m^etti:
Orktir jörð í efnahag —
Undir bænda-hætti.
taldi Tító ólíklegt að þau myndu
hefja hernaðarlega árás.
Hjúkrunarkonur vantar
1 Manitoba er svo mikil ekla
hjúkrunarkvenna að heiibrigðis
máladeild fylkisins gefur ekki
leyfi til bygginga sjúkrahúsa
nema því aðeins að nefndin, sem
hefir það með höndum, telji
mögulegt að ráða hjúkrunar-
konur, aðrar en þær, sem starfa
við önnur sjúkrahús. Það er ekki
hægt að notfæra til fulls öll þau
sjúkrahús, sem þegar hafa verið
reist í ýmsum smábæjum fylk-
isins vegna hjúkrunarkvenna-
leysis.
ÆTLAR AÐ TAKA
KVIKMYNDIR
Evi einn megintilgangurinn
með för minni hingað er einmitt
að taka litkvikmyndir af landi og
þjóð. Fyrst og fremst ætla ég að
taka myndir af trjám og blóm-
um. Eg skal segja þér, að ég vissi
ekki sjálfur, að það væri svona
mikill trjágróður hér. Blómun-
um mundi ég eftir — á meira
að segja ennþá blóm, sem ég
hnuplaði hér í Gróðrar stöðinni
áður en ég fór! Svo ætla ég auð-
vitað að reyna að taka eins
margar myndir úr athafnalífi
þjóðarinnar og ég get — úr iðnað
inum, landbúnaðinum og sjávar-
útveginum. Eg hefi lofað að
senda dagblaði í Minneapolis
greinar um Island meðan ég dvel
hér.Og þegar ég kem heim aftur
ætla ég að reyna að gefa fólkinu
rétta mynd af því, hvernig Is-
land er í dag.
TRYGGÐ
Kynningarstarfsemi sr. Svein-
björns Ólafssonar um Ísland hef-
ir verið unnin í kyrrþey og án
alls auglýsingaskrums, svo sem
góðra manna er siður. Og áhugi
hans á Islandi og tryggð hans við
ættjörðina hefir aldrei dvínað,
þótt hann hafi verið búsettur í
annarri heimsálfu í öll þessi ár.
Tíminn, 30. júlí
Senator Ian
MacKenzie dáinn
Senator Ian Mackenzie 59 ára
að aldri lézt í Banff síðastliðinn
föstudag úr hjartaslagi. Hann
átti langan stjórnmálaferil að
baki; 10 ár á fylkisþingi British
Columbia og 18 ár á sambands-
þingi og fylgdi Líberalflokknum
að málum. Hann átti sæti í ráðu
neytinu í Ottawa frá 1935 til
1948. Hann hafði áhuga og var
upphafsmaður að ýmsum lög-
um varðandi velferðarmál, sér-
staklega afturkominna her-
manna. Hann var skipaður
Senator síðastliðið ár.
Úr borg og bygð
Hr. Bergur Johnson frá Bald-
ur, Man., var staddur í borginni
í fyrri viku.
★
Stúkan SKULD heldur fund
12. sept. 1949 á venjulegum stað
og tíma. — Fjölmennið!
★
Kveðja:
Samkoma í G. T.-húsinu
fimtudaginn 8. sept. kl. 8 e. h.
Allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis — og sam-
skotum hafnað.
Sigurður Sveinbjörnsson
★
Síðastliðið mánudagskvöld
lézt að heimili sonar síns og
tengdadóttur Mr. og Mrs. Sig-
urður Björnsson 679 Beverley
Street hér í borginni, kvenhetj-
an Guðrún Magnússon hátt á
sjötta ári yfir nírætt. Útför henn
Fyrir fimmtíu árum
þann fjórtánda ágúst — var
himininn skínandi heiður
heyanna —- tíðarfar.
Gróður — ylmandi gola
gœldi við dýr og menn.
Þá unnu þau, Vigfús og Vilborg
þá vára, sem tengja þau enn.
Með hjúskapnum búskap þau
hófu.
það hugnaðist Frey og Njörð
sem blessuðu bjargglnir þeirra
búpening, heimili og jörð.
ar fer fram í dag (fimtudag) kl.
2 e. h. frá Fyrstu lútersku kirkju.
Séra Valdimar J. Eylands flytur
kveðjumál.
★
Með næstu helgi, 11. sept.,
hefst hin venjulega starfsemi í
Fyrstu lútersku kirkju. Messað
verður á ensku kl. 11 f. h. og á
íslenzku kl. 7 e. h. Söngflokk-
arnir aðstoða við þessar guðs-
þjónustur. — Sunnudagaskólinn
fer fram kl. 12:15.
Skipaður dómari
Samkvæmt nýjum íregnum
frá Ottawa, hefir Cecil Bray
Philip verið skipaður dómari í
héraðsrétti Manitobafylkis; verð
ur hann eftirmaður J. G. Corys
dómara, sem fyrir nokkru er lát
inn.
Hinn nýi dómari var um eitt
skeið formaður Líberalsamtak-
anna í Manitoba; hann er 58 ára
að aldri, fæddur í Grey-hérað-
inu í Ontario.
Þó veltur á því, hver á heldur
hve hagnýtast verðmætin dýr.
Og fyrir það, brúðarförin
varð fegursta æfintýr.
Og endasleppt gera þau ekki
við ástvini sína, þau goð
sem ráða yfir regni og skini
og rennandi byr í voð.
Til hliðar í hamingjusjóði
heiðríkja — sólarlag.
Þau setja — og friðsæla framtíð
þann fjórtánda ágúst í dag.
ÁRMANN BJÖRNSSON
♦ -f ♦
Fyrstu jarðgöng
á íslandi
*
GEGNUM ARNARESHAMAR
VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP
Á þessu sumri var fullokið
fyrstu jarðgöngum, sem gerð
hafa verið hér á landi. Eru þau
gegnum Arnarneshamar, sem er
á veginum frá ísafjaðrarkaup-
stað áleiðs til Súðavíkur. Er ham
ar þessi, sem gengur í sjó fram,
á innanverðu Arnarnesi. — Jarð-
göngin liggja þvert í gegnúm
hamarinn og eru 35 m. löng og
4x5 m. á vídd. Er þannig hægt
að fara um þau á fullhlöðnum
vörubifreiðum þótt háfermi sé á
þeim.
> ■ I
SAGA VERKSINS
Fyrst var byrjað á vinnu við
jarðgöng þessi haustið 1947. En
þá var aðeins unnið við þau
nokkra daga vegna þess að það
kom í ljós að bergið í hamrinum
var svo hart að engir borar voru
til hérlendis, sem á því ynnu.
Voru þá pantaðir nýir borar frá
Englandi. Stóð svo lengi á
þeim að ekki var hægt að byrja
verkið að nýju fyrr en haustið
1948. Var verkið þá hafið af full-
um krafti og tók það um það bil
tvo mánuði að ljúka því. Eru
göngin nokkru lengri en ráð
hafði verið fyrir gert.
Verkfærin, sem notuð voru við
sprengingarnar voru ein loft-
þjappa og moksturvél, sem mok-
að var frá með eftir hverja
sprengingu. Til jafnaðar vannst
hálfur meter á vinnudegi og seg-
ir Vegamálaskrifstofan það
nokkru minni afköst en tíðkast í
nágrannalöndum okkar. Hins-
vegar sé á það að Mta að við ís-
lendingar höfum enga reynslu í
slíkri mannvirkjagerð.
KOSTAR 80 ÞÚS. KR.
Kostnaður við þetta mannvirki
er samtals um 80 þús. kr., þar af
8 þús. kr. vegna kaupa á sprengi-
efni. Aðrir hæstu kostnaðarlið-
irnir eru verkamannavinna og
verkfæraleiga.
Verkstjóri við framkvæmdina
var Charles Bjarnason á ísafirði
en hann stjórnar lagningu vegar-
ins til Súðavíkur. Umsjónarmað-
ur með verkinu af hálfu vega-
málastjóra var Sigurður Jóhanns
son verkfræðingur. Mikill fjöldi
Vestfirðinga og aðkomufólks
hefur skoðað jarðgöngin í sum-
ar. Miklar umræður hafa einnig
staðið um það, hvort heppilegra
væri að vegurinn til Súðavíkur
lægi gegn um Arnarneshamar
eða yfir Arnarnes.
I sumar hefur verið unnið með
jarðýtu að lagningu Súðavíkur-
vegar og er gert ráð fyrir að und-
irbyggingu vegarins verði komið
alllangt áleiðis til Súðavíkur á
iþessu sumri.
Meðal manna vestra eru jarð-
göngin í gamni kölluð „þjóðgat-
ið“ og þykja hið merkilegasta
mannvirki.
Mbl. 30. ágúst
Dánarfregn
Sunudaginn 21. ágúst, andað-
ist að elliheimilinu „Stafholt“, í
Blaine, Wash., dánumaðurinn
Thorgeir Johnson 73 ára að
aldri. Hann var jarðsunginn mið
vikudaginn 24. ágúst frá ptfarar
stofu Westford& Beck í Belling-
ham, að viðstöddu mörgu fólki,
séra Guðm. P. Johnson jarð-
söng. Thorgeirs verður nánar
getið bráðlega í Lögbergi.
•f -f ♦
*
Til Vigfusar Guttormssonar
og Vilborgar konu hans
í gullbrúðkaupi þeirra 1949.
Við háborðið sitja þau saman
og sál þeirra vakandi dreymir,
Um stund þá, sem löngu er liðin
en lífið í minningum geymir
og blóðið í hjartanu hitnar
og hraðar um æðarnar streymir.
Þau mœtt hafa skúrum og skini
með skyncemi, eining og stilling
og skapað sér veglegar vonir
í vorhlýju, fjarlœgð og hylling
í moldinni minnast þau sumra
en margra í lífrœnni fylling.
Ef mótlœti drepur á dyrnar
til dyranna fara þau bæði,
hún Vilborg með viljann og þróttinn
hann Vigfús með hálfsamið kvœði
þau mæta þar sorginni saman
þó sálinni og hjartanu blæði.
Ef hamingjan guðar á gluggann
og gjörsnýr þeim öllu til bóta
Með þakklæti heilsa þau henni
og, heilann í einingu brjóta
um samýðgi góðvina og granna
og gleðinnar með þeim að njóta.
Þó dagur sé kominn að kveldi
er kveldið oft bjart eins og dagur
Við biðjum og bænheyrslu væntum
að blessist þeim líðan og hagur
í umhvferfi ótaldra vina
og aftaninn langur og fagur.
SIG. JÚL. JÓHANNESSON
Skýring. — Þetta fagra kvæði orkti Dr. Sig, Júl. Jóhannesson
fyrir Lúterska söfnuðinn á Lundar, sem lét skrautrita það og
setja í umgjörð bak við gler, og var afhent Vigfúsi og Vilborgu
sem gjöf frá Lúterska söfnuðinum á Lundar, af formanni safnað-
arins, Mr. Guðlaugi Breckman.
Mbl. 28. júlí
Vestur-íslenzkur prestur í heimsókn á lslandi
RÆTT VIÐ SÉRA SVEINBJÖRN ÓLAFSSON
Nýíega er kominn hingað til landsins vestur-íslenzki presturinn
sr. Sveinbjörn Ólafsson. Það eru nú 38 ár síðan hann fluttist til
Winnipeg með foreldrum sínum, og hefir hann aldrei komið til
Islands síðan. —■ Sr. Sveinbjörn hefir verið starfandi prestur í 20
ár, lengst af í borginni Duluth, en er nú nýfluttur til Minneapolis
í Minnesotafykli. Hann hefir flutt aragrúa fyrirlestra um Island og
íslenzk málefni og unnið ósleitilega að því, að bæta úr fáfræði al-
mennings í Bandaríkjunum um ísland.
Fátt af því sem fyrir ber —
Finnst í þessum línum:
Trygður föður-arfur er
Ættarkvistum þínum!
JAKOB J. NORMAN
Stríð ólíklegt
GULLBRÚÐKA UPSLJÓÐ
Til Vilborgar og Vigfúsar J. Guttormssonar
14. ágúst 1949.