Lögberg - 22.09.1949, Blaðsíða 1

Lögberg - 22.09.1949, Blaðsíða 1
PHONE 21374 'issr U>& ® A Complele Cleaning Inslilulion a \Á«v'ieí PHONE 21374 A \A* ttsr r*leff«veir £*»*» L<aUin' ■f'Vj'P- s A Complete Cleaning Inslitulion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 22. SEPTEMBER 1949 NÚMER 38 Nýr hellir í Heklu heitir Karelshellir KARELSHELLIR er ekki aðeins nýfundinn, heldur einnig ný- skapaður. Hann er í nýja Hekluhrauninu, á þeim slóðum, sem síðast sást í því glóð og rennsli. Tékkneskur göngugarpur og áfjáð- ur Hekluskoðari, Karel Vorovka að nafni, fann hann í fyrrasumar fyrstur manna, en þá var ófært inn í hann vegna hita. En Karel varð þó einnig fyrstur til að fara inn í hellinn og var það nú í sumar. Varð hann þá að lesa sig á reipi niður um op á hellis- þakinu, því að aðrar dyr eru ekki. Síðar könnuðu þeir Guðmund- ur Kjartansson jarðfr. og Ófeigur bóndi í Næfurholti hellinn, og lýsir Guðmundur honum svo:-------------------------- bragðið af því, en fékk það efna- greint í Atvinnudeild Háskólans, og reyndist það vera hreint gljá- bersalt (Glaubersalt). Lýsing á hellinum Karelshellir er í nýju hrauni norðan við Höskuldsbjalla, ná- lægt því sem gamla hestaréttin liggur nú djúpt grafin. Hann er því nær bein göng frá austri til vesturs, 130 m. löng, 3—4 m. breið og víðast um 4 m. há. Gólf- ið er flatt, veggirnir lóðréttir neðst, -en ganga að sér ofar, og þakið er víðast regluleg hvelf- ing, kröpp, en óbrotin. Veggir og hvelfing eru úr gljáandi hraunglerjungi og hvelfingin al- sett dropsteinum úr sama efni. Kveðst Guðmundur engan hraunhellir hafa séð jafn falleg- an. Eitt hið markverðasta í Karelshelli er þó enn ótalið: Hér og hvar á hellisgólfinu óþekkjanlegir frá snjó. En við nánari athugun reyndist þetta vera salt, þó ekki matarsalt. Guð mundur kannaðist ekki við För í Karelshelli Enn hafa ekki aðrir menn séð Karelshelli en þeir þrír, sem að framan getur. En um næstu helgi efnir Ferðafélag íslands til hópferðar í hann. — Verður þá hafður með kaðalstigi, svo að auðveldara verði að komast niður um opið. Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur, verður leiðsögumaður. Ekið verður í bílum að Næfurholti, en þaðan er um 5 klst. gangur upp að hellinum. — Á þeirri leið verður að ganga yfir allbreiðar hvíslar af nýju hrauni, og er liggja hvítir kögglar, á að lítaJþað afar seinfarið. Fyrir Heklu í ÞÖGN Séð hefi‘ ég við sundin hlá, svana vængi loftið kljúfa, og við sönginn lista Ijúfa lyftast fann ég hjartans þrá, heitt ég þráði þá að rjúfa þögn, sem innst í hug mér lá. Fáir lesa lífsins spil, — liggur yfir draumnum sorti: Kvœðið, sem ég aldrei orti, • einn ég veit, að þó er til málað innst á andans korti, íslenzkan við hríðar byl. — Geisli inn í skuggann skín, — skyggnist gegnum hríðarmekki, svanaflugið þá ég þekki: — Það var æsku drauma sýn, og kvæðin, sem ég orti ekki, enn eru beztu ljóðin mín. PÁLMI Ur borg og bygð gos var að eins um 3 klst. gang- ur frá Næfurholti á þær slóðir, sem hellirinn er nú. Mbl., 16. sept. Kirkjuvígslan í Möðrudal á Fjöllum AKUREYRI, 6. sept.: — Bisk- up lslands, herra~"l^igurgeir Sig- urðsson, vígði nýja kirkju að Möðrudal á Fjöllum, sunnudag- inn 4. þ. m. Kirkju þessa hefir Jón bóndi Stefánsson í Möðrudal, reist og kostað að öllu leyti, enda er nú ekki nema einn bær í sókninni auk Möðrudals, en fyrr á öldum var þarna allfjölmenn byggð. Kirkjuvígslan hófst um kl. 2 e. h. Auk biskups töluðu í kirkj- unni, prófasturinn í Norður- Múlaprófastsdæmi, sr. Jakob Einarsson, Hofi, og sóknarprest- urinn, séra Sigurjón Jónsson. Auk þeirra aðstoðuðu fjórir prestar við vígsluna, þeir séra Magnús Már Lárusson, séra Pétur Sigurgeirsson, séra Sig- Sterlingspundið fellt í verði Fjáirmálaráðherra Breta, Sir Stafford Cripps, sem svo að segja er alveg nýkominn heim af þríveldafundinum í Washing- ton, er einkum og sér í lagi fjall- aði um hina alvarlegu dollara- þurð brezku þjóðarinnar, flutti í London útvarpsræðu á sunnu- daginn var, þar sem hann gerði lýðum Ijóst, að stjórnin hefði tekið þá ákvörðun, að fella ster- lingspundið í verði; áður en ráð- stöfun þessi var tekin, var ster- lingspundið metið á $4.30, en verður nú fyrst um sinn miðað við $2.80. Með þessari ráðstöfun er þess vænst, að brezkur verk- smiðj uvarningur lækki svo í verði, að hann verði samkeppnis fær í þeim löndum, sem hafa doljara að gjaldmiðli, og að doll- aratekjur Breta aukist að sama skapi í réttum hlutföllum. í kjölfar Breta varðandi gjald- miðilslækkun, hafa meðal ann- ara þjóða siglt Danmörk, Noreg- ur og ísland. mar Torfason og sr. Sveinn Víkingur. Fjölmenni var svo mikið á staðnum, að eigi rúmaðist í kirkjunni- og stóðu mjög margir úti fyrir henni og horfðu þaðan á það, sem fram fór. — Munu um 200 manns hafa verið þarna staddir víðsvegar að af Norður- og Austurlandi, svo sem frá Vopnafirði, Eskifirði, Jökuldal, Axarfirði, Akureyri og víðar. Var athöfnin hin virðuleg- asta og fór mjög vel fram. Kirkjusöng annaðist kór úr Mý- vatnssveit, undir stjórn Sigfús- ar Hallgrímssonar í Vogum. Kirkjan í Möðrudal mun hafa fokið árið 1826, og hefir verið kirkjulaust þar síðan, unz Jón bóndi hóf þessa kirkjusmíð, og' hefir hann unnið mest að henni sjálfur. Kirkjan er steinkirkja með forkirkju og turni, einkar snot- urt hús, og hin mesta prýði á staðnum um leið og hún ber vott um einstaka fórnfýsi, á- huga, dugnað og hagleik bónd- ans í Möðrudal. Mbl. 13. sept. Kol fundin í Danmörku Frá Kaupmannahöfn bárust þær fréttir þann 13. þ. m., að námufræðingar, sem voru að grafa og leita fyrir sér um olíu í Danmörku, hafi komið niður á kolalög, er svo séu þykkt, að líklegt sé að vinnsla þeirra geti haft víðtæk áhrif á efnahagslega' þróun dönsku þjóðarinnar. Frá Vancouver 1 6 september Heimilisnefnd Hafnar í Van- couver heldur upp á afmæli heimilisins, með matarveizlu, skemmtiskrá og dansi, 4. okt. n.k. kl. 7 e. h. í neðri sal Hastings Auditorium 828 Hastings St. Vancouver. Á skemmtiskránni, meðal annars, verður hin góðkunna skáldkona, Jakobína Johnson frá Seattle, með erindi og Mrs. Ninna Stevens, vinsæla söng- konan frá Tacome skemmtir með söng. Allur arður samkomunnar gengur til elliheimilisins Höfn. Inngangur $1.50. — Pantið aðgöngumiða tímanlega. THORA ORR, skrifari 2365 W. 14 Ave. Sambandsþing sezt á rökstóla Síðastliðinn fimtudag var sam bandsþingið sett í Ottawa með umfangsmiklum hátíðabrigðum; var geysilegur mannfjöldi sam- ankominn við þingsetningu. Konungsfulltrúinn, lávarður Al- exander áf Tunis, setti þingið. Forseti neðri deildar var kosinn í einu hljóði Donald Ross, stjórn arflokksþingmaður fyrir Brant- fordkjördæmið í Ontario; er hann kunnur lögfræðingur 59 ára að aldri, og var varaforseti síðasta þings. Tvö meginmál stjórnarboð- skaparins lúta að stjórnarfars- legu fullveldi canadísku þjóðar- innar; hið fyrra þess efnið, að hér eftir verði hæztiréttur Can ada fullnaðardómstóll þjóðar- innar, en að áfrýjanir til hæzta- réttar Breta leggist niður; þá koma og gjaldeyrismálin og utanríkisverzlunin mjög við sögu, auk þess sem stjórnin heit- ir fylgi við lagningu þjóðvegar- ins, Trans Canada Highway; er líklegt talið, að framlag sam- bandsstjórnar til móts við fylk- in, nemi 250 miljónum dollara. Frú Soffía Jónsdóttir Horner dó í svefni að heimili sínu 5936 Victoria Drive, Vancouver, sunnudaginn 27. ágúst síðastlið- inn, 68 ára að aldri. Soffía heitin kom til Canada skömmu eftir aldamótin, dvaldi nokkur ár í Winnipeg, en fór alfarin til Vancouver um 1911. Þar giftist hún eftirlifandi manni sínum, William Horner, starfsmanni hjá C. P. R. félag- inu. Peim hjónum varð ekki barna auðið. Soffía var ættuð frá Sporði í Víðidal í Húnavatnssýslu. Hún fór til íslands 1930 og heimsótti þá bróður sinn, Gunnar, sem býr í Gröf í sömu sveit. og sýslu, og önnur skyldmenni. Soffía Horner var prýðilega myndarleg, vel gefin og vel lát- in kona. Hennar verður sárt saknað af vinum og skyldmenn- um. •f Á föstudaginn var efndi fram- kvæmdanefnd Þjóðræknisfélags ins til dagverðar í einum af veizlusölum Hudson’s Bay búð- arinnar til heiðurs við Dr. Þor- kel Jóhannesson og frú hans Hrefnu Bergsdóttur. Forseti fé- lagsins, séra Philip M. Péturs- son, hafði veizlustjórn með hönd um. Séra Valdimar J. Eylands mælti fyrir minni heiðursgesta, en Dr. Þorkell þakkaði með skil- merkilegri ræðu þá sæmd, er þeim hjónum væri sýnd með samsætinu og árnaði Vestur-ís- lendingum heilla. Þau Dr. Þorkell og frú leggja af stað í dag áleiðis til Islands. 1 för með þeim verður frú Mar- grét Gíslason af Seyðisfirði. -f GOTT hlýtt hús; 2 herbergi (með öllum húsgögnum og raf- ljósum) til leigu á Gimli, rétt við vatnið, hjá gosbrunni, fæst til fyrsta júní fyrir aðeins $10 á mánuði. JÓN ÁRNASON 323 Harcourt St. St. James. — Sími 63153 ★ 25 ára giftingarafmœli Þau Mr. og Mrs. Thomas ísford að 728 Beverley St., áttu 25 ára giftingarafmæli 13. sept. s.l. I tilefni af atburðinum heim- sótti þau hópur kunningja og voru þeim afhentar verðmætar gjafir. Var skemmt sér við spil og gleðskap fram eftir kvöldi og þvínæst sest að rausnarleg- um veitingum. — Mr. og Mrs. ísford eiga 5 mannvænlega syni. •f Junior Ladies Aid of the First Lutheran Church, Victor St., will hold a regular meeting in the church parlors Tuesday Sept. 27th. Commencing with a dessert luncheon at 1.30 p. m. — Átakanlegasta harmsaga á heilli öld — Kviknar í skemtiferðaskipi-- 1 90 manns týna lífi Brúðkaup Á laugardaginn, 10. septem- ber voru gefin saman í hjóna- band* í Westminster kirkju hér í borg þau Marion Ruth Mckee, dóttir Mr. og Mrs. C. B. Mckee, Regina, og Lorne Harvey Back- man, elsti sonur Mr. og Mrs. S. M. Backman, Winnipeg. Vígslu- vottar voru: Miss Vera Casson og D. P. Snidal. Brúðkaups- veizla var haldin á heimili for- eldra brúðgumans, 833 Garfield Str. — Heimili hinna ungu hjóna verður í Winnipeg. ★ Dánarfregn Simon Johnson, 68 ára að aldri, lézt á laugardaginn. Hann fluttist til Winnipeg fyrir 51 ári síðan; starfaði í þjónustu Can- adian National járnbrautarfé- lagsins í 48 ár. Auk ekkjunnar, Matthildar, lifa hann dóttir, Beatrice; tvær systur, Mrs. B. B. Jónsson, Winnipeg og Miss Guðrún Johnson, Vancouver og bróðir, J. J. Johnson, Chicago. Útförin fór fram frá útfarar- stofu Bardals. Séra V. J. Ey- lands flutti kveðjumál. ★ Jon Sigurdson Chapter Tea The Jon Sigurdson Chapter, IODE, will hold its fall tea artd sale of home cooking Saturday, Oct. lst, at the Tea Eaton As- sembly Hall, from 2.30 to 4.45 p.m. Mrs. E. A. Isfeld is general convener, with Mrs. H. A. Berg- man, Mrs. P. J. Sivertson and Mrs. R. M. Vernon as table con- veners. Mrs. S. Gillis is in charge of home cooír.ng and Miss Vala Jonasson looks after the Novelty Booth. ★ Hr. Elías Elíasson frá Van- couver, er nýlega kominn heim eftir tveggja mánaða dvöl hér eystra, mestmegnis á Gimli. Canadiski dollarinn fellur í verði Fjármálaráðherra Canada Mr. Abbot, flutti ræðu á mánudags kveldið og skýrði frá því, að í samræmi við ráðstöfun brezku stjórnarinnar, hefði Canada stjórnin ákveðið að lækka doll- arinn um 10 af hundraði í verði. Umfangsmesta og átakanleg- asta slys, sem komið hefir fyrir á heilli öld, skeði í Canada þann 17. þ. m., er eldur kom upp í skemmtiferðaskipinu Noronic, þar sem það lá við bryggju í Toronto; um eða yfir 190 manns létu líf sitt í bálinu, langflest amerískt skemmtiferðafólk; um upptök eldsins er enn eigi vitað, því rannsóknum því viðvíkjandi er enn hvergi nærri lokið. Nor- onic var eign Canada Stream- ship félagsins og var í sinni síð- ustu áætlunarferð á yfirstand- andi árstíð, er þetta ægilega slys bar að höndum; með skipinu voru alls 682 farþegar, og voru margir þeirra í rekkjum sínum, en aðrir við ýmis konar skemmt anir; meginþorri farþega var frá Cleveland og Detroit. Slökkvilið og lögregla komu á vettvang jafnskjótt og elds- ins varð vart, og unnu í sam- einingu að björgunartilraunum. Atkvœðagreiðsla undirbúin Nú hefir málum þannig skipast til, að við bæjarstjórnarkosning- arnar í Winnipeg, sem fram fara seinnipart næsta mánaðar, verð ur það lagt undir úrskurð gjald- enda, að heimila borginni kaup á landspildunni við Portage Avenue þar sem Wesley College nú stendur, til þess að reist verði þar hið væntanlega ráðhús borg arinnar; kaupverðið nemur- $700,000. Þá hefir og United College ver ið heimilað kaup á tíu bygging- arlóðum á Wellington Crescent til skólabygginga á því verði, sem um semdist. Verðhækkun á mjólk og mjólkurafurðum Framleiðsluráð landbúnaðar- ins tilkynti í gærkveldi allveru- lega hækkun á mjólk og mjólk- urafurðum. Hækkun þessi kem- ur til framkvæmda í dag, en hún á rót sína að rekja til vísitölu- grundvallar landbúnaðarafurða, sem getið hefir verið um hér í blaðinu. Frá og með deginum í dag kostar potturinn af mjólk 'krón- ur 2,15, og nemur hækkunin .13 aurum. í lausu máli kostar pott- urinn 2,05. Kílóið af skyri kost- ar kr. 3,70. Og einn peli af rjóma kr. 3,95. Hækkun mjólkurafurð- anna mun láta nærri að vera 6,2%. — Mbl., 13. sept. Um þessar mundir dvelur hér í borginni, Lincoln Sveinson, lyfjafræðingur, ásamt frú sinni. Hann er á leið til Saskatoon, þar sem hann hefir verið skipaður í ábyrgðarmiklua stöðu. ★ Hr. Jóhanes Pétursson frá Árborg kom til borgarinnar á mánudaginn á leið norður til Lundar í heimsókn til ættingja sinna. ★ Hr. Böðvar Johnson fr Lang- ruth hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. ★ FUNDUR verður haldinn í stúkunni Heklu I. O. G. T. í kvöld (fimmtudag). Allir G. T. velkomnir. — Fjölmennið. ★ Stúkan SKULD heldur fund 26. sept. á venjulegum stað og tíma. — Komið templarar og fáið ykkur kaffisopa á 61 árs afmæli Skuldar. ★ Frost veldur stórtjóni Um miðja fyrri viku kvað svo ramt að næturfrosti í Alberta, að áætlað er að uppskerutjón af völdum þess' ncmi freklega tveimur miljónum dollara; hefir þessa árs uppskera þar í fylkinu, að ógleymdum frostsvæðunum, verið tæplega í meðallagií ■A Gefið í Blámsveigasjóð kven- félagsins „Björk“, Lundar. The Th. Baékman Chapter, $3.00, frá ónefndri vinkonu félagsins Með kæru þakklæti. MRS. H. ÓLAFSON Lundar, Man. ★ Laugardagsskóli Þjóðræknis- félagsins hefst á laugardaginn 8. október og verður þetta ár í neðri sal Fyrstu lútersku kirkju á Victor Street. Skólinn byrjar kl. 10 eins og venjulega, og íslenzkir söngv- ar verða æfðir frá kl. 11.00 til 11.30. Valdir kennarar starfa við skólann eins og að undanförnu. ★ ÁRSFUNDUR íslendingadags ins verður haldinn í Goodtempl- arahúsinu við Sargent Ave., mánudagskvöldið, 3. október, kl. átta síðdegis. Triestebúar éta íslenzkan saltfisk Óhagstæður verzlunarjöfnuðui 1 júlímánuði voru fluttar inn vörur fyrir samtals 32,1 milljón króna, en útflutningurinn nam um 14,6 millj. kr. Var viðskipta- jöfnuður því óhagstæður um 17,5 milljónir í mánuðinum. Það, sem af er þessu ári, nem- ur innflutningurinn samtals 238,1 millj. en útflutningurinn 165,6 millj. króna. Óhagstæður viðskiptajöfnuður janúar-júlí er því 72,5 milljónir króna. Þess ber þó að gæta, að með innflutn- ingnum eru talin skip fyrir 36 milljónir króna, sem ekki eru greidd af gjaldeyristekjum árs- ins. 1 fyrra var jöfnuður á inn- og útflutningi okkar fyrir sama tímabil, eða því sem næst: Inn- flutningur nam 237,1 millj., en útflutningurinn 237,9 milljón- um króna í aðalatriðum skiptist útflutn- ingurinn í júlí þannig: Saltfisk--- ur var fluttur út fyrir um 2,4 miljónir (aðallega til Trieste. 1 ríliljón, Portugal 0,8 milj. og Bretland 0,5 milj.). ísfiskur var fluttur út fyrir 4,7 miljónir, þar af fyrir 3,1 milj. til Þýzkalands og 1,5 milj. til Bretlands. Verðmæti útflutts fiskimjöls nam um 0,5 miljónum króna mjöls nam um 0,5 milj. króna aðallega til Tékkóslóvakíu og Israel. Aðrir útflutningsliðir voru smærri. VISIR, 18. ágúst.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.