Lögberg - 06.04.1950, Síða 1
Sendiherra Bandaríkjanna í
Ottawa lætur líf sitt í flugslysi
Um miðja fyrri viku vildi það
hörmulega slys til, að sendi-
herra Bandaríkjanna í Ottawa,
Lawrence Steinhardt, lét líf sitt
í flugslysi ásamt fjórum em-
bættismönnum hinnar amerísku
þjóðar; slysið vildi til skamt
austur af Ottawa svo að segja
rétt eftir að farþegaflugvélin,
hóf sig til flugs; hafði eldur kom-
ist í annan væng vélarinnar;
sendiherrann var á leið til
Washington ásamt föruneyti
smu; einn maður af áhöfninni
bjargaðist lítt skaddaður með
því að steypa sér úr flugvélinni
í fallhlíf.
Mr. Steinhardt var 57 ára að
aldri, og hafði verið í utanríkis-
þjónustu þjóðar sinnar síðan
hann var hálfþrítugur; hann
þótti frábærlega samvizkusam-
Ur um embættisrekstur sinn og
°aut almenningshylli. Jafnskjótt
°S hljóðbært varð um fráfall
sendiherrans, sendi forsætisráð-
herra Canada, Mr. St. Laurent,
Truman forseta samúðarskeyti
°S fjölskyldu hins látna.
Allir flokksforingjar í sam-
bandsþinginu mintust einnig
með fögrum og viðeigandi orð-
um hins vinsæla og merka
stjórnmálamanns.
Fjárhagsóætlun
sambandsstjórnar
Á þriðjudagskvöldið í vikunni,
sem leið, lagði fjármálaráðherr-
aun, Mr. Abbott frám í sam-
bandsþingi fjárhagsáætlun sína
lyrir fjárhagsárið 1950—1951, og
Uutti við það tækifæri hálfs-
annars klukkutíma ræðu; gert
er ráð fyrir að tekjurnar nemi
52,430,000,000, en áætluð útgjöld
$2,410,000,000; verður þá tekju-
afgangurinn, ef alt skeikar að
jsköpuðu, $20,000,000, og er það
freklega áttatíu miljónum doll-
ara lægri rekstrarhagnaður en
í fyrra.
Hinn persónulegi tekjuskatt-
ur verður óbreyttur; söluskattur
verður þegar í stað afnuminn af
rjómaís, þeytirjóma og hvers-
konar mjólkurdrykkjum; skatt-
ar af tóbaki, áfengum drykkjum
°g snyrtivörum, haldast óbreytt-
lr, og hið sama er um erfðafjár-
skatt að segja.
Að því er framfærslukostn-
a®i viðkemur, gerir hið nýja
fjárlagafrumvarp í rauninni
bvorki til né frá, því þar finnast
®bki þó leitað væri með logandi
J°si neinar þær ráðstafanir, er
ráðið geti bót á dýrtíðinni í land-
lnu, svo sem á verðlagi matvæla,
sem er að verða óviðráðanlegt
launaþegum landsins í borgum
og bæjum.
Rannsókn vegna
verðlags
Um þessar mundir stendur
yfir í Calgary réttarrannsókn á
hendur sex brauðgerðarfélög-
um, er grunur leikur á, að mynd
að hafi með sér verðlagssamtök
neytendum í óhag; hver niður-
staðan verður um það, er lýkur,
skal ósagt látið, en svo mikið er
þegar víst, að einn bakari, sem
ekki hafði mikið umleikis, bar
það fyrir réttinum, að sér hefði
verið sagt, að ef hann seldi brauð
við lægra verði en viðgengist í
Edmonton, myndi hann iðrast
þess síðar; bakari þessi, Alfred
Bensch að nafni, á heima í bæn-
um Wetaskiwin.
Stórvirki fyrirhuguð
Málsvararar h i n n a ýmsu
stjórnardeilda Winnipegborgar,
hafa fengið mannvirkjanefnd-
inni í hendur álitsskjal, þar sem
með því er mælt, að bæjarstjórn
in verji alt að þrjátíu og einni
miljón dollara til hverskonar
samgöngubóta í borginni á
næstu árum; leggja skal nýjar
brýr og víkka stræti þar, sem
þurfa þykir; margar aðrar um-
bætur í borginni eru fyrirhug-
aðar, sem víst má telja að skoð-
anir skiptist um; vera má að ýms
um hrjósi hugur við þeirri
feikna upphæð, sem farið er
fram á að bæjarstjórn afli sér
í áminstu augnamiði þó víst sé
að hún dreifist yfir nokkur ár;
en á hitt ber þó jafnframt að
líta, að borgin má ekki við því
að dragnast aftur úr, eða standa
alveg í stað; bæjarstjórnin verð-
ur líka að hlutast til um það,
að skapa atvinnu hvar svo sem
helzt því verður viðkomið.
Winnipeg er friðsæl og vin-
gjarnleg borg, sem verðskuldar
að henni sé í öllu fullur sómi
sýndur.
Merkur sfjórnmóla-
maður lótinn
Síðastliðinn fimtudag lézt að
heimili sínu í námunda við
París, jafnaðarmannaforinginn
víðkunni, Leon Blum, sá, er
gegndi þrisvar sinnum forsætis-
ráðherraembætti í Frakklandi,
78 ára að aldri; hann var af Gyð-
ingum kominn í báðar ættir, og
gaf sig jafnframt stjórnmálun-
um meginhluta ævinnar að
blaðamensku; hann hataðist
jöfnum höndum við Kommún-
ista, Nazista og Fasista; verka-
menn á Frakklandi eiga Leon
Blum margt og mikið upp að
unna; hann kom því í fram-
kvæmd, að samtakaréttur þeirra
yrði löghelgaður, ásamt því að
vinnutími yrði bundinn við
fjörutíu klukkustundir á viku;
ennfremur barðist hann af kappi
miklu fyrir almennum heilsu-
tryggingum og bættum vinnu-
skilyrðum verkamanna.
Eftir að Frakkland gafst upp
fyrir Þjóðverjum í síðustu styrj-
öld og Vichy-stjórnin kom til
valda, var Blum handtekinn og
fluttur til Þýzkalands, þar sem
hann sat í fangabúðum fram á
síðari hluta ársins 1944, er Banda
ríkjamenn komu til sögunnar og
leystu hann úr ánauð; er heim
kom, var hann þegar gerður að
varaforsætisráðherra og starf-
aði að stjórnmálum til dauða-
dags.
Manitobaþingið
Tveir þingmenn, þeir Edmond
Prefontaine frá Carillon og John
A. McDowell frá Iberville, halda
því fram að vínsölulöggjöf fylk-
isins sé orðin næsta úrelt og
þurfi endurbóta við; fór hinn
síðarnefndi hörðum orðum um
það, að fólkið yrði að kaupa
vatnsblandað sull í staðinn fyrir
ómengaðan vínanda; kvað hann
þetta láta undarlega í eyra, þar
sem vitað væri, að strangt eftir-
lit væri með því að aðrar neyzlu
vörur væru hundrað af hundr-
aði. —
Ekki vildi þingið takast á
hendur umsjón með húsaleigu,
en kvaðst á hinn bóginn bera
fult traust til sambandsstjórnar
varðandi úrlausn slíks máls; með
þessari ákvörðun greiddu þrjá-
tíu þingmenn atkvæði en fjórtán
á móti.
Mr. Donaldson þingmaður
fyrir Brandon, sem er maður í
rífara lagi vaxinn úr grasinu,
fór fram á aukna fjárveitingu til
Brandon College, og kvað stofn-
unina verið hafa mikla menn-
ingarlega lyftistöng eigi aðeins
fyrir Brandonbæ, heldur og
Mánitobafylki í heild; um þetta
gæti hann borið af eigin reynd,
hann hefði sjálfur stundað þar
nám, þó stundum hefði oltið á
ýmsu um inngöngu og útgöngu
dyr.
Gjafafrekur vetur
ó Fljótsdalshéraði
Mjólk og vörur jlutt á
sleðum yfir Fagradal
Síðan á nýári hefir verið um-
hleypingasöm veðrátta á Aust-
fjörðum eins og víðar um land-
ið. Bændur á Fljótsdalshéraði
hafa í vetur mætt allmiklum
hörkum og hefir veturinn, það
sem af er, verið gjafafrekur.
Blaðamaður frá Tímanum átti í
gær stutt viðtal við Þorstein
Jónsson, kaupfélagsstjóra
Reyðarfirði og spurði hann
frétta að austan Jafnasnjór í
mestallan vetur.
Tíðarfarið hefir verið ákaflega
rysjótt eystra, það sem af er
vetrinum, en snjór hefir alltaf
verið talsverður á jörð og vetur-
inn því orðið bændum gjafa-
frekur.
Seint á þorra gerði rigningu
og leysti þá snjóa að mestu. En
strax á eftir gerði frost og snjó-
komu ofan á blotann. Snjór var
þá að vísu ekki mikill, eða í skó-
varp á haglendi, en jörð var al-
freðin og jarðbönn.
Harðindi á Jökuldal.
Bændur á Jökuldal hafa þó
orðið verst úti, því þar hafa
harðindin verið mest. Sumarið
var stutt hjá þeim eins og víða
annars staðar og því ekki góður
undirbúningur til að mæta löng-
um og ströngum vetri. Enn sem
komið er hafa menn þó næg hey
og ekki ástæða til að óttast, ef
allt fer skaplega með vorkom-
una.
Harðindin í fyrra eru mönn
um það í fersku minni að nú var
betur búizt að hinu illa. Bænd-
ur byrjuðu nú snemma að gefa
fóðurbæti og hafa gefið hann
mikið með hinum litla og lélega
heyfeng sumarsins. Enda mun
nú svo að hjá flestum bændum
er nú til mun meira hey, en á
sama tíma í fyrra, þó að verstu
harðindin væru þá eftir, en
gjafafrekt, það sem af er þess-
um vetri.
Sleðar og hestar til flutninga.
Bílferðir hafa engar verið milli
héraðs og fjarðanna nú um
nokkurt skeið, og mikið til ver-
ið ófært um Fagradal, síðan um
áramót.
Bændur flytja þvi afurðir sín-
ar og sækja varning á sleðum
og hestum, eins og oft fyrr. Má
lieita, að ófært sé bílum nema á
undirlendinu og milli Eskifjarð-
ar og Reyðarfjarðar.
Tregur afli.
Einn bátur gengur til togveiða
frá Reyðarfirði. Kom hann ný-
lega inn með 100 smálestir af
fiski og lagði á land. Veiðarnar
eru aðallega stundaðar fyrir
Suðurlandi.
Nokkuð hefir verið farið á
opnum bátum út í fjörð til fiskj-
ar, en ekki virðist svo sem enn
sé þar um neinn afla að ræða.
—Tíminn, 10. marz
Úr borg og bygð
Síðastliðinn sunnudag lézt að
heimili sínu við Vogar, Man.
Guðmundur Jónsson frá Húsey,
86 ára að aldri, þjóðkunnur
fræðimaður og ágætlega ritfær;
útför hans fór fram á miðviku-
daginn frá kirkjunni að Vogar
undir forustu séra Philips M.
Péturssönar.
Þessa gagnjnerka manns verð-
ur vafalaust rækilega minst áður
en langt um líður, því minning
hans á það meir en skilið.
☆
Síðastliðinn föstudag voru gef
in saman í hjónaband í Fyrstu
lút. kirkju þau Dr. Earl Stan-
ley Brynglow og Miss Sylvia
Goodman hjúkrunarkona; brúð-
urin er dóttir Mr. og Mrs. Guð-
jóns Goodman í Glenboro, en
brúðguminn af norskum ættum,
fæddur að Elrose, Sask. Séra
Valdimar J. Eylands fram-
kvæmdi hjónavígsluna.
Heimili ungu hjónanna verður
fyrst um sinn í Winnipeg .
☆
Síðastliðinn laugardag „ voru
gefin saman í hjónaband í Grace
United kirkjunni hér í borginni
Miss Florence Ólafsson og Mr.
a William Wager. Dr. Martin fram
kvæmdi hjónavígsluathöfnina.
Brúðurin er dóttir þeirra Mr.
og Mrs. Guðlaugur Ólafsson, er
lengi voru búsett að Dafoe,
Sask., en nú eiga heima hér í
borg.
☆
Raymond Edward Fidler og
Doreen Rose Renaud voru gefin
saman í hjónaband 10. desember
s.l. Séra B. A. Bjarnason gifti,
og fór athöfnin fram á heimili
hans í Arborg, Man. Brúðgumin
er frá Selkirk, Man., sonur Mr.
og Mrs. Roderick Fidler. Móðir
hrúðarinnar, Mrs. Guðlaug J.
Renaud, býr í Riverton, Man.
Samkvæmt ráðstöfun átti þessi
gifting að fara fram í lútersku
kirkjunni í Riverton; en vegna
sjúkdómsforfalla prestsins var
því áformi breytt. Fyrir sömu á-
stæðu hefir dregist að birta
þessa fregn.
Slysavarnarfélag byggir þrjú
skipbrotsmannaskýli s.l. ór
Auk þess miðunarstöð að Kirkjubaejarkaustri
og fleiri framkvæmdir.
KVENNADEILD Slysavarnafélags íslands í Reykjavík hélt aðal-
fund sinn þann 13. febrúar. Formaður, frú Guðrún Jónasson, setti
fund og drap á það helzta, sem deildin hafði látið framkvæma á
síðastliðnu ári. Gjaldkeri las upp skýrslu yfir tekjur félagsins á
árinu og urðu þær í heild kr. 71.696,10. Helztu útgjaldaliðir á árinu
voru byggingar skipbrotsmannaskýla í Keflavík, við Látrabjarg
og á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi; ennfremur umbætur á áður
----byggðum skýlum.
Ný aðferð við
mynsturmálningu
innan húss
KOMIN er fram nýung í inn-
an hússmálningu. Er það mynst-
urmálning, sem Ásbjörn O. Jóns-
son hefir framkvæmt í ýmsum
húsum hér frá því í haust. —
Mynstrið málar hann á veggina
með sérstöku tæki, en á því eru
eins konar gúmmívalsar, en
mynstrin eru á völsunum og
þrykkjast á veggina, þegar þeim
er rennt yfir þá.
Er tæki þetta fundið upp í
Suður-Evrópu, og munu mynstr-
in, sem framleidd eru á valsana,
skipta hundruðum, og hefir Ás-
björn fengið mjög mörg þeirra,
þannig, að mikil fjölbreytni er
í mynstrunum.
Er hægt að mynstra með
þessu hvort heldur sem er á
steinveggi, sem málaðir hafa
verið, tré eða veggfóður. Hefir
Ásbjörn meðal annars mynstrað
yfir gamalt veggfóður, en þá
málar hann fyrst yfir það, en
síðan er mynstrið sett á og loks
er lakkað yfir það, þannig, að
það máist síður af. Sama aðferð
er viðhöfð, þegar mynstrað er
á stein eða tré, sem áður hefir
verið málað.
Þá hefir deildin látið setja upp
miðunarstöð á Kirkjubæjar-
kalustrí og byggt skýli yfir hana.
Ennfremur hafa verið gerðar
stikur víða frá skipbrotsmanna-
skýlunum til bæja. Greitt hefir
verið fyrir fatnað og vistir í
skýli, sem byggð voru. Hafa
þessar framkvæmdir kostað
deildina á þessu ári milli fjöru-
tíu og fimmtíu þúsund krónur.
Þrátt fyrir þær margvíslegu
framkvæmdir, sem deildin hefir
haft með höndum á undanförn-
um árum stendur hagur deildar-
innar í miklum blóma og má
þakka það miklum áhuga og
dugnaði félagskvenna ásamt
samúð og fórnfýsi bæjarbúa.
Stjórn félagsins var endurkos-
in og skipa hana nú frú Guðrún
Jónasson formaður, frú Gróa
Pétursdóttir varaformaður, Guð
rún Magnúsdóttir ritari, Sigríð-
ur Pétursdóttir gjaldkeri. Með-
stjórnendur eru frúrnar Ingi-
björg Pétursdóttir, Guðrún Ól-
afsdóttir og Ásta Einarsdóttir.
Þá voru kosnir 10 fulltrúar á
landsþing slysavarnafélagsins,
sem mun verða kvatt saman í
apríl næstkomandi.
— Alþbl. 16. febr.
Jónas Helgason
níræður
Skamt fyrir norðan Grundar-
kirkju í Argylebygð, stendur
stórt og veglegt steinhús; það
var reist árið 1906. En þó það
sé nú orðið þetta gamalt, er það
enn sem nýreist að sjá; og í
táknrænni merkingu mætti svip-
að segja um manninn, sem reisti
þetta glæsilega heimili, ljúf-
mennið Jónas Helgason, sem
verður níræður á föstudaginn
kemur; hann er enn vel hress og
ungur í anda, og hann býr enn
á þessu sama heimili hjá Krist-
jáni syni sínum og fjölskyldu
hans; börn hans, barnabörn og
barnabarnabörn, munu heim-
sækja þennan lífsglaða öldung
á afmælisdaginn, þakka honum
umhyggju og ástúð og árna hon-
um allrar blessunar; víst er um
það, að vinir hans og samferða-
menn taka undir með þeim og
þakka Jónasi ljúfa samfylgd og
fagurt ævistarf.
Jónas Helgason er fæddur á
Arndísarstöðum í Bárðardal 7.
apríl 1860, en ólst upp í Mý-
vatnssveit; kona hans var Sig-
ríður Sigurðardóttir frá Sand-
haugum í Bárðardal; hún lézt 28.
janúar 1937. Þau eignuðust sex
börn, fimm sonu og eina dóttur;
einnig ólu þau upp stúlku, er
þau gengu í góðra foreldra stað.
Þau Jónas og Sigríður fluttust
vestur um haf frá Brúnahvammi
í Vopnafirði 1888.
Jónas er hverjum manni vin-
fastari, bjartsýnn, og trúaður á
fegurð lífsins.
Samsæri
Uppvíst hefir nýlega orðið um
samsæri til að myrða forsætis-
ráðherra Indlands, Nehru, og
hafa fjórtán menn þegar verið
sakaðir um morðtilraunina; sum
ir þessara manna höfðu oftar en
einu sinni setið um líf Gandhis;
eru þeir sagðir að vera frá
Pakistan, og vilji fyrir hvern
mun koma Nehru fyrir kattar-
nef; þeir telji hann brezksinnað-
an og hlyntan um of stjórnmála-
stefnum Vesturveldanna. Allir
bíða þessir samsærismenn nú
verið málað. — Alþbl. 9. marz.
Hert á eftirliti
Hernámsvöld Breta, Frakka
og Bandaríkjamanna hafa upp
á síðkastið mjög hert á lögreglu- ’
eftirliti í þeim hluta Berlínar,
sem þeir ráða yfir; er þetta gert
með það fyrir augum að vera
við öllu búnir í því falli, að
Kommúnistar í eystri hluta
borgarinnar kynni að stofna til
óspekta, eins og þegar hefir ver-
ið spáð, þann 1. maí næstkom-
andi, hvort, sem til framkvæmda
kemur eða ekki. Víst er um
það, að kommúnistar hafa auga-
stað á allri Berlín, þó þeim verði
naumast kápan úr því klæðinu.
Fundur í Hague
Nokkra undanfarna daga hef-
ir staðið í Hague fundur milli
þeirra þjóða, er að Atlantshafs-
bandalaginu standa til athugun-
ar sameiginlegum öryggismál-
um hlutaðeiganda; frá því er
skýrt í útvarps- og blaðafregn-
um, að fullkomin samvinna hafi
náðst um öll meginmál.
Hermálaráðherra Canada sit-
ur fundinn fyrir hönd canadísku
þjóðarinnar, ásamt ýmissum
helztu hernaðarsérfræðingum
hennar.
Fyrsta hefti af
vísindariti um
Heklugosið
ÚTGÁFA er nú hafin á vís-
indariti um Heklugosið 1947 til
48. Vísindafélag Islendinga gef-
ur ritið út í samvinnu við Nátt-
úrugripasafnið í Reykjavík og
með fjárstyrk úr Sáttmálasjóði.
Ritstjórn verksins annast þeir
Guðmundur Kjartansson jarð-
fræðingur og Trausti Einarsson
prófessor, og verða þeir jafn-
framt aðalhöfundar þess. Rit-
inu verður skipt í um það bil
20 kafla eða greinar og koma
þær út sérstakar eða nokkrar
saman jafnharðan og verkið
vinast.
Allt mun ritið verða milli 500
og 600 bls. í stóru broti og því
fylgir mikill fjöldi ljósmynda,
þar á meðal í eðlilegum litum.
Allt verkið mun kosta nálægt
150 kr. að óbreyttu verðlagi.
Tvær greinar eru nú komnar
út í einu hefti, samtals um 100
bls. Fjalla þær um efnismagnið,
sem upp kom í gosinu, og um
eiginleika rennandi og storkn-
andi hrauns, báðar eftir Trausta
Einarsson. Á þessu ári verður
lokið við að gefa út helming
verksins, en öll útgáfan mun
taka nokkur ár. Vísindarit þetta
er á ensku, svo að erlendir vís-
indamenn geti notið þess.
Alþbl. 26. febr.
HAFIÐ HUGFAST!
Að kvöldi þess 18. þ. m., efnir
söngkonan góðkunna, frú Rósa
Hermannsson Vernon til söng-
skemtunar í Sambandskirkjunni
hér í borg á vegum Jóns Sigurðs-
sonarfélagsins, I. O. D. E., og
rennur ágóðinn í sjóð þann, sem
félagið er að safna í til stofnun-
ar kenslustóls í íslenzkri tungu
og bókmentum við Manitoba-
háskólann. Nánar auglýst síðar.