Lögberg - 20.04.1950, Blaðsíða 6

Lögberg - 20.04.1950, Blaðsíða 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. APAÍL, 1950 FORRÉTTINDI JEftir GILBERT PARKER J. J. Bildfell þyddi. — Ljóöin i þcaaari aögu eru þýdd af Dr. Sig. Júl. Jóhannessyni. Fólkið stóð úti fyrir óttaslegið og beið. Viðirnir yfir kórnum sýndust vera í þann veginn að brotna niður, og enn voru þessir tveir menn þar inni. Fólkið kallaði, presturinn krepti hnefana of skefldur til að biðja. Svo komu þeir út úr eldinum með fangið fult af dýrmæt- um munum kirkjunnar. Þeir voru sviðn- ir, fötin á þeim loguðu, og skeggið var brunnið af þeim báðum, en aðþrengdir og að þrotum komnir slöguðu þeir út úr eldinum með byrðar sínar og afhentu þær í hendur fólksins sem úti beið Hróp heyrðist úr mannþrönginni: „Krossinn litli! litli járnkrossinn“, svo annað, „Rósalie Evanturel! Rósalie Evanturel!“ „Rósalie Evanturel fór inn í eldinn eftir litla járnkrossinum, sem hékk á stoðinni. Hún er þarna inni í eldinum og dyrnar eru fallanar og hún kemst ekki út aftur“. Charley hljóðaði upp, þaut aftur inn í kórdyrnar og þó það væri ekki nema ein og hálf mínúta, sem að hann vár inn í eldhafinu, fanst þeim, sem úti biðu það vera óratími, þangað til að hann kom aftur út í dyrnar og sýndist þá standa í ljósum loga, og hann var ekki einn — hann bar stúlkuna í fanginu. Hann hikaði í dyrunum og raftarnir yfir höfðinu á honum svignuðu en með þverr andi kröftum og með vitund reif hann sig í gegnum dyrnar og var gripinn af þeim, sem úti voru áður en hann hné niður. Þau voru vafin í ábreiður, sem komið hafði verið með að heiman frá prestinum og lögð niður á grasflötina við mannhringinn. Það hafði liðið yfir Rósalie inni í eldhafinu í kirkjunni, en hann hné máttvana og meðvitundarlaus niður. Þeir losuðu um hálsmálið á fötum Charley og urðu meira en lítið hissa, er þeir fundu litla járnkrossinn, sem Rósa- lie hafði náð af stoðinni í kirkjunni í barmi hans, og lág þar á örinu eftir þann sama kross í höndunum á Louis Trudel. Presturinn bað fólkið að draga sig til baka, því að það þyrptist í kringum þau. Hann reisti höfuðið á Charley. Á- bóti Rossignol, sem var rétt nýkominn, ásamt bróður sínum, tók krossinn af brjósti Charley, sem lág meðvitundar- laus. Honurn brá þegar að hann sá örið. En mintist brátt sögunnar, sem að hann hafði heyrt í því sambandi. Hann leit alvarlegur til bróður síns. „Var það krossinn eða konan, sem hann fór að sækja?“ spurði hann. „Guð minn góður! Þarftu að spyrja að því?“ svaraði signorinn kuldalega. „Og hann verðskuldar hana“, sagði hann eins og við sjálfan sig. Charley opnaði augun. „Er hún ó- hult?“ spurði hann og settist upp. „Óskemd, sonur minn“, sagði prest- urinn. Var ekki þessi skraddari sonur hans? Hafði hann ekki þyrst eftir sálu hans, eins og hjartdýrið þyrstir eftir vatninu? „Ég er hryggur þín vegna, monsie- ur“, sagði Charley. „Það er vilji Guðs“, sagði prestur- inn klökkur. „Það verða mörg ár þang- að til við eignumst aðra kirkju — mörg mörg ár“. Þakið brotnaði niður og turninn féll ofan í eldhafið. Fólkið stundi. „Það kostar sjálfsagt sextíu þúsund dollara, að byggja hana upp aftur“, sagði Filion Lacasse. „Við höfum þrjú þúsund dollara, sem við græddum á leiknum“, sagði prest- urinn. „Það gæti hjálpað til“. „Við eigum tvö þúsund dollara á bankaönum“, sagði Maximilian Cour. „En það hlýtur að taka mörg ár“, sagði söðlasmiðurinn ólundarlega. Charley leit til prestsins, sem var raunalegur á svipinn, dasaður, en ró- legur. Hann sá signorinn þungbúinn og þögulann, standa einan skamt frá. Hann sá fólkið í smáhópum hér og þar, með meiri vonleysissvip en þó það hefði tapað heimilum sínum. Sumir stóðu steinþegjandi, aðrir voru með allmikilli æsingu að geta sér til, hvort þetta hefði verið tilviljun, eða með ásetningi gjört, og þótti það síðara nærri áreiðanlega víst. „Ég sagði að ekkert gott mnydi hljót ast af leiknum“, sagði hestamaður sign- orsins, en Filion Lacasse greip hann og fleygði honum ofan í skurðinn. Eftir dálitla stund reis Charley á fætur með einbeittnissvip. Þetta fólk frá prestinum og signornum og alt ofan til þorpsbúans, sem minst skilyrði hafði til að gjöra sér grein fyrir hlutunum var vandræðalega úrræðalaust. Metnaður lífs þess var lamaður. „Kallaðu fólkið saman“, sagði Char- ley við friðdómarann og Filion Lacasse. Svo sneri hann sér að prestinum og signornum. „Með ykkar leyfi, monsie- urs“, sagði hann, „þá skal ég reyna að inna af hendi erfiðara verk heldur en ég hefi nokkurntíma áður leitast við að vinna. Ég skal talá við fólkið“. Hissa og undrandi kölluðu þeir fólk- ið saman og smátt og smátt kom það allt saman á staðnum, sem presturinn tiltók. Charley stóð ásamt leiðandi mönn- um þorpsins á bakka eða ávala fyrir ofan götuna. Það hafði verið farið með Rósalie heim til prestsins. Á hinni ægilegu ör- lagastund í kirkjunni þegar að hún féll meðvitundarlaus í arma Charley,, hafði alveg ný kend hreyft sér hjá henni. Hún unni honum af heilum huga, en hún hafði eitthvert einkennilegt hugboð um, að hún mundi aldrei aftur hvíla í faðmi hans. Hún hafði vafið örmunum um háls honum og varir þeirra mættust og hún sagði: „Við skulum deyja saman“. Þar sem hún nú lág í húsi prestsins hugsaði hún aðeins um það augnablik. „Fyrir hverju eru þeir að húrra?“ spurði Rósalie þegar að hún heyrið há- vaða mikinn í gegnum gluggann. . „Farðu og sjáðu“, sagði systir prests ins við frú Flynn. Frú Flynn flýtti sér út. Rósalie reis upp, svo að hún gat séð út um gluggann. „Ég get séð hann“, sagði hún. „Séð hvern?“ spurði systir prests- ins. „Monsieur“, svaraði Rósalie í breytt um málróm. „Hann er að tala og þeir eru að húrra fyrir honum. Tíu mínútum síðar komu prestur- inn og friðdómarinn inn til þeirra. Prest urinn kom til Rósalie og tók í hendina á henni. „Þú hefðir ekki átt að gjöra þaö“, sagði hann. „Ég vildi gjöra eitthvað“, svaraði hún. ,,A‘ð bjarga krossinum sýndist vera eina endurgjaldið, sem ég gæti greitt fyr ir alla umhyggjuna, sem þú hefir borið fyrir mér“. „Það nærri því kostaði þig lífið — og annars líf líka“, sagði presturinn og hristi höfuðið raunalega. Húrrahrópin dundu aftur við frá kirkjubrunanum. „Því eru þeir að húrra?“ spurði Rósalie. „Því eru þeir að húrra? Vegna þess, að maðurinn, sem við höfum öll verið hrædd við, monsieur Mallard —“ „Ég hefi aldrei verið hrædd við hann“, sagði Rósalie mjög lágt. „Vegna þess, að hann hefir sýnt þeim veg til að eignast nýja kirkju — og það undir eins — undir eins barnið mitt“. „Dásamlegur maður!“ sagði Nar- cisse Dauphin. „Það hefir aldrei verið flutt önnur eins ræða. Aldrei hefir mál í nokkrum réttarsal verið eins kröftug- lega og vel flutt“. „Hvað gerið hann?“ spurði systir prestsins, sem hélt í hendina á Rósalie. „Hann gerði allt“, svaraði prestur- inn. „Hann stóð þarna í fatagörmunum sínum meir en hálfbrunnum, með brunnið skeggið, hendurnar eldskornar og augun blóðstokkin og hann talaði —“ „Með tungu manna og engla!“ tók M. Daupin fram í hugfanginn. Dálítill þóttasvipur kom á andlitið á prestinum, en hann hélt áfram: „Lít- ið þið á veggina þarna fyrir handan, sem eru að brenna“, sagði hann, „og eruð hugsjúkir út af því, hvenær þeir muni aftur rísa á hæðinni fyrir handan, sem er helg gjör með greftran ástvina ykkar, skírn barnanna ykkar, gifting- unum, sem hafa verið stofn farsælla heimila og sakramentunum, sem eru ykkur lög lífsins. Þið gáfuð einn tuttug- asta af tekjum ykkar til kirkjunnar — gefið nú einn fertugasta part af öllum eigum ykkar og innan mánaðar verður byrjað á að endurreisa kirkjuna ykkar. Áður en ár er liðið hjá komið þið aftur á þennan geðþekka stað, og gangið inn í hina nýju kirkju hér. Meðheit ykkar, endurminningar ykkar og vonir hreins- aðar og eldvígðar. Allar eigur ykkar verða helgaðar af fórnum ykkar, sem fram eru bornar af frjálsum vilja og gleði. Ef að ég aðeins gæti munað hvað næst kom! Það var allt málsnild, drengi legar og göfugar hugsanir“. „Hann talaði um þig“, sagði friðdóm arinn. Hann sagði sannleikann, og fólk- ið fagnaði. Hann sagði, að menn, sem væru utan veggja, gætu stundum sagt þeim, sem innan þeirra væru hvar lausn ina væri að finna. Ég heyri slíka ræðu aldrei aftur“. „Hvað ætla þeir að gjöra?“ spurði Rósalie og slepti hendinni á maddömu Dungal. „Þeir byrja strax í dag á að koma með ,,offur“ sín á skrifstofuna tií mín“, svaraði M. Dauphin. „Það er ekki maður í Chaudiere, sem ekki tekur sokk inn úr veggjarholunni, peningabudduna úr kystunni, inneign sína úr bankan- um, kornið af fjósloftinu, eða gefur handveð fyrir einum fertugasta parti af öllu sem hann á, til að endurreisa kirkj- una“. „Handveð eru ekki peningar“, sagði systir prestsins, því hún var skýr á öll viðskipti. „Þau verða öll innleyst með glærum peningum“, sagði friðdómarinn. „Sign- orinn ætlar að stofna nokkurs konar banka, og borga út öll handveðin og gefa canadíska bréfpeninga í staðinn. Ég fer í dag til Quebec, til að sækja pen- ingana“. „Hvað segir Rossignol ábóti um þetta?“ spurði systir prestsins. „Kirkjan og söfnuðurinn, er okkar eigið“, svaraði presturinn djarflega. „Við gerum skyldu okkar og skiptum okkur ekki af ábótanum“. „Það er rétt!“ sagði Dauphin. „Hann er alltaf með nefið niður í öllu. Ég sá hann fara til Jó Portugais áðan. — „Gleymdu ekki!“ sagði hann. — Ég get ekki ímyndað mér hvað hann meinti. En við höfum nú nóg að hugsa um í dag, það er þó satt bezt að segja!“ „Það getur haft eitthvað gott í för með sér máske“, sagði presturinn og leit raunalega á rústirnar af kirkju sinni. „Sjáið þið, sólin er að rísa“, sagöi frú Flynn, sem stóð við austurgluggann. LVIII. KAPÍTULI Króaður við vegginn Tíu þúsund dollarar voru borgaðir á skrifstofu friðdómarans, af fólkinu í Chaudiere, á fyrstu fjórum dögunum. Presturinn og signorinn voru þar á hverjum degi, til að veita offrinu við- töku, sem var einn fertugasti partur af öllum eignum manna. — Einn fertug- asti af húsi viðarhöggsmannsins og matjurtagarði ekkjunnar. Matsmenn- irnir voru presturinn og þrír efnuðustu bændurnir í söfnuðinum og létu þeir jafnt yfir alla ganga, ríka og fátæka, volduga og vesæla, eins og þeir höfðu gjrt fyrsta daginn í sambandi við sign- orinn, sem borgaði fjögur þúsund doll- ara. Charley hafði verið rúmfastur í þrjá daga, vegna meiðsla, sem hann hafði orðið fyrir í sambandi við kirkjubrun- ann, og svo hafði hann fengið þungt kvef. Enginn hafði skipt sér af honum nema frú Flynn, sem alltaf færði hon- um súpu og aðrar matartegundir, sem Rósalie hafði matreitt, og hann hafði list á. Rósalie gjörði þetta af innri hvöt. Hún þurfti að beita hörðu við sjálfa sig til þess að halda sér frá því að fara til hans og hjúkra honum. En hún fann, að hinn fyrri innri eldur og áræði var ekki eins máttugt og áður var. Örin hafði flogið of djúpt — hún hugsaöi sér að bíða þar til að hún sæi hann aftur, og hefði horft í augu hans. Það var ein- hver þungi, sem yfir hana lagöist og örlagaþrungin óvissa, svo hún ásetti sér að bíða eins rólega og hún gæti, eftir einhverju sem hún vissi ekki hvað var. Það lagðist í hana að dagur reikn- ingsskaparins væri í nánd og að hún yrði að vera þess búin að aðstoða hann, þegar að hann þyrfti þess mest. með. Fyrst þegar að hún fékk hugboð um, að endalokin væru að dragast nær, varð hún æst í huga, og hafði sterka þrá til að fara til hans, hvað sem hver segði, og biðja hann að koma með sér í burtu — eitthvað í burtu! En hún hafði hætt við það eftir nánari athugun og af djúp- settri innri hvöt, sem ekki var óskild hugarhreysti Charley, er kom henni til að bíða. Hún veitti fólkinu, sem var að fara á skrifstofu friðdómarans með off- ur sín nána eftirtekt, og henni sýndist það vera eins og fólk á leiksviði og eins og á stóð átti hún ekkert sameiginlegt með því. Það var draumur, sem ekki var þýðingarmikill og mundi bráðum.enda. Hún var haldin því, sem er að baki alls þess er lifir. Það gat auðvitað ekki orð- ið varanlegt, en það var nú þar, og hún gat ekki samlagast, eða sætt sig við hið breytilega og daglega unz að þess- um skugga örlaganna var lyft. Hún var alltof ung, til að líða þannig, en það eru einmitt þeir ungu, sem sárast finna til. Á fjórða degi sá hún Charley. Hann kom út úr búð sinni og fór á skrifstofu friðdómarans. Henni brá fyrst við að sjá hann, því að hann hafði rakað af sér skeggið. Hann var allt annar mað- ur að sjá, sem auðsjáanlega átti ekki heima í mannfélaginu, sem þau bæði voru þó í — sérstæður og einkennileg- ur. Hann var fölur, og augnaglerið á nýrökuðu andlitinu gaf til kynna siðfág- un. Hún vissi ekki að þau báru bæði sama yfirborðið. Hún horfði á hann þangað til að hann fór inn í skrifstofu friðdómarans, en þá var talað til henn- ar, svo að hún fór að gæta verka sinna. Charley hafði komið til að afhenda einn fertugasta af eignum sínum. Þeg- ar að hann kominn í skrifstofuna, stóð signorinn, sem þar var inni, og friðdóm- arinn upp og heilsuðu honum. Þeir ósk- uðu honum til heilla með bata sinn, en fundu á sama tíma til aðstöðu sinnar gagnvart honum. Þegar Charley lagði fram skrá yfir eigur sínar og tekjur, og offur sitt af einum fertugasta parti af því, kom vandræðasvipur á friðdómar- ann og signorinn, og þeir vissu ekki hvað gera skyldi. Það lág næst þeim að afþakka það. Charley var ekki kaþólsk- ur, og það hvíldi engin skylda á honum til þess að taka nokkurn þátt í skaðan- um, sem orðinn var. En þá bar prestinn þar að og hann sá undir eins hvernig á stóð og tók þakksamlega á móti offrinu. „Gug blessi þig!“ sagði hann, og tók við offrinu, en Charley fór út. „Það skal borga fyrir hurð og dyr á kirkjunni minni“. Síðar um daginn sendi prestur- inn eftir Charley. Það voru mörg al- varleg mál, sem fram úr þurfti að ráða, og þeir þurftu á ábyggilegum og hag- kvæmum ráðum að halda, en þegar svo stóð á, þá höfðu menn komist upp á að leita til skraddarans, því dómgreind hans hafði aldrei brugðist þeim. „Það hefir alltaf mátt reiða sig á það“, sögðu þeir. Þeir áttu honum þetta sérstaka framtak að þakka, sem myndi verða allri nútíðar kristninni til fyrir- myndar. Þeir sögðu honum þetta. En hann svaraði því engu. Það tók hann lítiö meira en klukku- tíma, að benda á hagkvæmt fyrirkomu- lag í sambandi við byggingu nýju kirkj- unnar, og þá sem byggja skyldu, gera blýantsteiknimynd af henni, með að- stoð prestsins, og benda þeim á nauð- synlegt atriði ísambandi við alla samn- inga. Svo kom peningaspursmálið — hvernig geyma skyldi peningana, sem að safnast höfðu, og svo var sendimað- ur signorsins kominn frá Quebec með tuttugu þúsund dollara, sem signorinn notaði til að borga út handveðin, sem gefin höfðu verið. Allir þessir peningar, tuttugu þúsundir dollara, höfðu verið borgaðir til forstöðumanna kirkjubygg- ingarsjóðsins, svo að þeir höfðu í allt þrjátíu þúsund dollara á hendi, þar að auki geymdi presturinn heima hjá sér þrjú þúsund dollarana, sem að inn komu fyrir leikinn (The Passions Play). Það var stungið upp á að senda þessa miklu peningaupphæð á banka í Quebec eftir svo sem tvo daga, þegar að fjársöfnun- inni væri lokið. En svo var að geyma alla þessa peninga í tvo daga og tvær nætur og um það kærði M. Dauphin sig ekki. Óþekktir menn voru alltaf að koma, sem ekki vissu að leiknum hafði verið hætt, og sumir þessara manna myndu komast að, sagði Dauphin, að þessi peningaupphæð væri geymd í þorp inu og í mínu húsi. Það væri þess vegna . betra sagði hann, að annað hvort sign- orinn eða presturinn tækju að sér að geyma þá. Presturinn benti á, að á riði að halda því leyndu hvar peningarnir væru geymdir, og að bezt mundi vera að geyma þá í sem allra ólíklegustu plássi og í umsjá einhvers sem ekki væri opin- berlega við söfnunarmálið riðinn. „Ég veit hvar vi$ skulum geyma þá, sagði signorinn. Við skulum geyma þá í öryggisskápnum hans Louis gamla Tru- del í veggnum í skraddarabúðinni“.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.