Lögberg - 13.07.1950, Blaðsíða 8

Lögberg - 13.07.1950, Blaðsíða 8
3 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 13. JÚLÍ, 1950 Úr borg og bygð Malreiðslubók Dorcasfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir nú til sölu splunk- urnýja matreiðslubók, er það hefir safnað til og gefið út; bók þessi er með svipuðum hætti og hinar fyrri, vinsælu matreiðslu- bækur, er Kvenfélög safnaðar- ins stóðu að; þetta er afar falleg bók með fjölda gamalla og nýrra uppskrifta, sem koma sér vel á hvaða heimili, sem er. Matreiðslubók þessi kostar $1.50 að viðbættu 10 centa burð- argjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, send ist: Mrs. H. Halldórson 1014 Dominion Street Mrs. L. S. Gibson 4 Wakefield Apts. eða til The Columbia Press Lid., 695 Sargent Ave. Winnipeg ☆ Leiðrétiing í grein minni „Kveðja til sjó- mannadagsins“ í „Lögbergi“ 29. júní hafa línubrengl orðið í byrjun 3. málsgreinar í 2. dálki. Fallið hafa úr eftirfarandi upp- hafsorð málsgreinarinnar: „En sjómannadagurinn gerir“. Þess má einnig geta, að greinin er endurprentuð úr „Sjómanna- dagsblaðinu“ í ár. Með þökk fyrir birtinguna. R. Beck ☆ Ungfrú Ólína Guðjónsson frá Reykiavík á íslandi, er stödd hér í borginni í heimsókn til frænda síns hr. Jóns Guðlaugs- sonar, að 68 Kingston Row, St. Vital, Man. Býst ungfrúin við að dvelja hér um óákveðinn tíma. ☆ Mr. G. F. Jónasson forstjóri og eigandi Keystone Fisheries Limited, gekk nýlega undir upp- skurð á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni; hann kom heim á þriðjudaginn, og líður eftir á- stæðum vel, þó hann vafalaust þarfnist nokkurrar hvíldar áð- ur en hann tekur til starfa á ný. Mr. Jónasson er frábær elju- og athafnamaður. ☆ Mr. og Mrs. Victor Thordar- son frá Los Angeles, Cal., ásamt ungri dóttur, eru nýkomin til borgarinnar í heimsókn til for- eldra Mrs. Thordarson, þeirra Dr. og Mrs. K. J. Backman. Enn 29 íslenzkir sjó- menn og einn farþegi fórust á sjónum á sama tíma í TTATÍU OG ÁTTA íslenzk- um og erlendum sjómönnum hefur íslenzkum skipum og björgunarsveitum . tekizt að bjarga úr bráðum sjávarháska fá því á sjómannadaginn í fyrra, en 30 íslenzkir menn, 29 sjómenn og einn farþegi, hafa farizt á sjó á sama tíma, og þar af 22 frá síðustu áramótum. Eru það óvenjulega miklir mannskaðar á ekki lengri tíma. Þrátt fyrir þessa miklu mann- skaða síðustu mánuðina, hefur þó tekizt að bjarga miklu fleiri mönnum úr sjávarháska en fór- ust, ef litið er á allt árið. Björgun heppnast. Aðfaranótt 17. október strand- aði færeyski kútterinn Havfruen við Almenningsnöf nyrðra. Tókst björgunarsveit slysavarna deildarinnar á Siglufirði að bjarga allri áhöfninni, 18 manns. Togarinn Vörður frá Patreks- firði sökk í hafi á leið milli Bretlands og Islands 29. janúar. Togaranum Bjarna Ólafssyni tókst að bjarga 14 af áhöfninni, en 5 fórust. Brezka olíuflutningaskipið Clam rak á land við Reykjanes 28. febrúar. Björgunarsveit úr Grindavík heppnaðist að bjarga 23 mönnum, en 27 fórust. Vélbáturinn Skiði frá Reykja- — HEILLAÓSKASKEYTI — lil Ásmundar P. Jóhannssonar á 75 ára afmæli hans Winnipeg, Manitoba, 8. júlí 1950 Hr. Ásmundur P. Jóhannsson, 910 Palmerston Ave., Winnipeg. Kæri félagsbróðir: Stjórnarnefnd Þjóðræknisfé- félags Islendinga í Vesturheimi flytur þér, í tilefni af 75 ára af- mæli þínu, hugheilar árnaðar- óskir. Stjórnarnefndin þakkar þér hið mikla starf þitt í þágu félags ins frá stofnun þess og biður ís- lenzkar hollvættir að gleðja þig og styrkja. Fyrir hönd Þjóðræknisfélagsins, Virðingarfylst, Ingibjörg Jónsson vara-skrifari. London, 5. júlí, 1950. Johannson 910 Palmerston Avenue Winnipeg. Congratulations Seventyfifth Anniversary. Eggerlson Reykjavík, 5. júlí 1950 Ásmundur Jóhannsson 910 Palmerston Ave. Winnipeg, Man. Um leið og vér sendum yður vorar beztu heillaóskir á 75 ára afmælinu þökkum vér yður öll störf yðar í þágu félags vors fyrr og síðar og áhuga yðar fyrir vexti og viðgangi félagsins alt frá stofnun þess. Eimskipafélag íslands London, 5. júlí 1950 Johannsson Winnipeg. Heartiest Congratulations and Greetings. Kristín, Guðmundur Vilhjálmsson. ☆ Frú Soffía Bildfell og dóttir hennar frú Hrefna McRae, komu heim á þriðjudaginn eftir mán- aðardvöl í Montreal. ☆ Miss Guðrún Jóhannsson hjúkrunarkona kom nýlega hing að vestan úr Saskatchewan í heimsókn til stjúpmóður sinnar fru Rósu Jóhannsson og ætt- menna sinna; hún brá sér suður til Minneapolis, Minn., um helg- ina og dvelst þar í nokkra daga. ☆ Mr. G. A. Williams kaupmað- ur frá Hecla, lagði af stað bíl- leiðis vestur á Kyrrahafsströnd vík fékk áfall í rúmsjó í óveðr- inu 3. marz. Vélbáturinn Vonin kom honum til hjálpar, og dró hann til hafnar. Var sex mönn- um með því bjargað. Vélbáturinn Ingólfur Arnar- son frá Reykjavík strandaði 14. marz austur við Þjórsárós. Björgunarsveit frá Stokkseyri bjargaði allri áhöfninni, 10 mönnum. Brezki togarinn Preston North End strandaði við Geirfuglasker 14. apríl. Björgunarskipinu Sæ- björgu, vélbátnum Fróða frá Njarðvíkum og mönnum úr björgunarsveitinni í Grindavík lánaðist að bjarga 16 af áhöfn- inni. Þannig hefur 87 mönnum ver- ið bjargað og svo er björgun matsveinssins af m.b. Mugg, sem afreksverðlaun sjómannadagsins eru veitt fyrir nú. Mannskaðar Vélbáturinn Helgi frá Vest- mannaeyjum fórst 8. janúar við Vestmannaeyjar og með honum 10 menn, 9 sjómenn og einn far- þegi. Vélbáturinn Jón Magnússon frá Hafnarfirði fórst í óveðrinu 3. marz með 6 manna áhöfn. Þá hafa fjórir menn fallið út- byrðis og drukknað, fjórir drukknað, fjórir drukknað í höfnum og einn farizt af slys- förum á skipi sínu, auk þeirra fjögurra skipverja, sem drukkn- uðu, þegar Vörður sökk. —Alþbl. 4. maí á miðvikudaginn í fyrri viku á- samt fjölskyldu sinni, ferðafólk þetta gerði ráð fyrir að verða um mánaðartíma að heiman. ☆ Mr. Norman Valgardson frá Moose Jaw, Sask., kom til borg- arinnar á sunnudagskvöldið á leið til sumardvalar norður í Mikley. Þakkláfi Rauðskinninn Endur fyrir löngu á frumbýl- ingsárum hvítra manna í Ný- Englandsríkjunum hér í álfu, og fjandskapurinn var sem mestur milli kynflokkanna, bar svo við að hvítur maður féll í hendur Indíánaflokks, og var hann sett- ur í prísund, mat hann nú ekki líf sitt mikils eins og nú var komið, og átti hann von á því á hverri stundu að hann yrði af lífi tekinn. Bar ekki til tíðinda fyr en einn sólbjartan morgun árla að hann var kallaður og honum skipað að tygja sig til því í langferð skyldi halda. Leggur hann nú af stað með einum Indí- ána höfðingjanum, myndarleg- um og hraustlegum manni, sem vel var búinn að vopnum. Ferð- uðust þeir tveir einir um skóga og sléttur, lágu úti um nætur undir berum himni, og bar ekk- ert sérstakt til tíðinda. Eftir að þeir höfðu þannig ferðast í nokkra daga, var það síðla dags að þeir voru staddir í nánd við þorp eitt í Connecticutríkinu, þar sem hinn hvíti maður var kunnugur, að Rauðskinninn nem ur staðar og ávarpar félaga sinn og segir: „Fyrir óralöngu síðan var það kvöld eitt síðla að ég kom hér í þorpið, hungraður og illa á mig kominn og peninga- laus, fór ég til gestgjafans og fór þess á leit við hann, að hann gæfi mér máltíð, en hann sner- ist illur við og neitaði, og skip- aði mér sem skjótast að hafa mig á burt, þú og þínir líkar eiga ekkert erindi hingað. En þá varst þú þar staddur og snerir þér til gestgjafans og sagðir: „Gefðu manninum máltíð, ég skal borga fyrir hana“. Fékk ég þarna á- gæta máltíð, sem þú borgaðir fyrir og varst mér hinn drengi- legasti. Nú erum við komnir hingað, og nú getur þú farið hvert á land sem er, þú ert frí og frjáls maður“, og svo hafði hann ekki fleiri orð. Hinn hvíti maður fagnaði frelsinu, sem kom flatt upp á hann. Hann rétti hon um hendina og þakkaði hjartan- lega. Rauðskinninn hneigði sig göfugmannlega, og hvarf síðan inn í skóginn. Kærleikur og réttlæti er máttarmesta aflið, sem að heim- urinn þekkir og þau öfl eru ætíð sigursæl, sverðið og hefndin hef ir verið og verður æfinlega manninum „skammgóður verm- ir“; hefndin og hatrið eitra líf hvers manns og gefur aldrei frið. Hinir frumstæðu menn, sem bygðu þetta land, er hvítir menn komu hér fyrst, komu með út- rétta hendi friðar og vináttu, og það mun sannleikur að hvítir menn áttu meiri sök á því en Indíánar, að upp úr logaði, heift og hatur magnaðist svo allt flaut í blóði; og okkar kæru for- feður, er fyrstir komu hér til lands, munu ekki hafa kunnað hina „Gullnu reglu“, og af þeim ástæðum orðið að hrekjast burtu úr þessu landi. Indíánar voru grimmir þegar þeir voru komnir í vígamóð, og þeir voru beittir órétti eða ofsókn, en þeir voru eins og dvergarnir í sögunum fornu, „tryggða tröll“ og eru ótal dæmi þess að þeir launuðu vel- gjörðar mönnum sínum eins og söguhetjan í þessari stuttu grein, og er það nú í raun og veru manneðlið bæði hjá hinum svokölluðu siðuðu þjóðum svo sem og hjá hinum frumstæðu, að launa gott með góðu. En á hinn bóginn eru flestir þannig innrættir að launa ilt með illu, og dregur það jafnan illan dilk á eftir sér. Það þekkja allir sög- una af William Penn og Indíán- unum í Pennsylvania og friðar- 88 íslenzkum og erlendum sjómönnum bjargaS hér Fréttir fró Churchbridge, Sask Eftir séra JÓHANN FREDRIKSSON Séra Sigurði Christophersyni var haldið veglegt samsæti á sunnudaginn þann 2. júlí. Séra Sigurður hefir þjónað Konkor- dia, Lögbergs og Þingvallasöfn- uðum í nær tuttugu ár. Söfnuð- irnir slógu sér saman og helg- uðu gamla prestinum sínum sunnudaginn þ. 2. júlí, buðu honum að hafa guðsþjónustu í Konkordia kirkjunni. Kirkjan var þéttskipuð af vinum og kunningjum víða að. Séra Jó- hann Fredriksson, núverandi prestur prestakallsins, þjónaði fyrir altari. Séra Sigurður sté í stólinn. Hann tók fyrir texta I. Her. 15:1.—10. og prédikaði bæði á ensku og íslenzku. Hug- vekjan var tímabær, kjarnorð og af hjarta runnin. Það duldist engum að presturinn vildi hvetja gömlu sóknarbörnin sín, Kannske í síðasta sinn, að leita til frelsarans, „Guðs lambs sem ber heimsins synd“. Honum lá þungt á hjarta velferð safnað- anna, sem hann hefir þjónað í tuttugu ár. Öllum var boðið til kaffi- drykkju, út í Konkordia sam- komuhúsið, strax eftir guðs- þjónustuna. Þar var þéttskipað. Björn Hinriksson, forseti Kon- kordia-safnaðar, tók fyrstur til máls, bauð alla velkomna og sagði hópinn saman kominn til að heiðra séra Sigurð og þakka honum fyrir margra ára starf. Björn sagði að fáir af yngri prestunum myndu vilja feta í fótspor Sigurðar. Á frumbyggja- árunum var ekk^rt glæsilegt að vera prestur úti á landsbygð: vegir voru slæmir eða engir og erfitt umferðar. Hann var dug- legur, samvizkusamur og heim- sótti safnaðarbörn sín gangandi vetur og sumar, hvernig sem viðraði. Launin voru oft lítil, smámunalega lítil, en séra Sig- urður mintist aldrei á peninga, bað aldrei um launahækkun og kvartaði aldrei. Hann var nægju samur og gleði hans var fólgin í því að vera hugsjón sinni trúr. Hannes Egilsson, forseti Lög- bergssafnaðar, og Valdi John- son, forseti Þingvallasafnaðar, sögðu vel valin orð til séra Sig- urðar, þökkuðu honum fyrir samvizkusamlegt starf og ósk- uðu honum allra heilla í fram- tíðinni. Séra Jóhann þakkaði séra Sigurði fyrir góða viðkynn- ingu: — „Churchbridge presta- kall er akur sem þú hefir sáð í mörgum fögrum hugsunum, — Churchbridge er ennþá akur þinn, þú munt elska sóknarbörn- in þín gömlu til síðustu stund- ar. Haltu áfram að hlúa að akr- inum þínum í bæn til safnað- anna og prestsins sem tekur við af þér. — Drottinn blessi þig og gefi þér farsæla framtíð“. Kven- félag Konkordíu-safnaðar veitti kaffi og góðgerðir af mikilli rausn. Eftir góðgerðirnar voru séra Sigurði afhentar fagrar gjafir. Söfnuðirnir í sameiningu gáfu honum fallegan göngustaf með nafni hans áletruðu á gull- plötu; Kvenfélag Konkordia- safnaðar afhenti honum áletrað peningaveski með tuttugu og fimm dollurum í; séra Jóhann afhenti honum skrifborðslampa — gjöf frá presti til prests. Séra Sigurður þakkaði vel fyrir sig og árnaði söfnuðunum allra heilla. Innan fárra daga mun séra Sigurður flytja alfarinn úr þess- ari bygð. Nýja heimilið hans verður á 58 Pearl St., Winnipeg, Man. Hann er hraustur, hress í anda og mun ekki ætla að setj- ast í helgan stein. í prestsekl- unni mun hann gefa kost á sér ríki það sem hann stofnaði þar, og sem stóð um langan aldur. Það sem Penn gat gjört ættu aðr ir að geta gjört, hann var eins og aðrir menn; mismunurinn að- eins sá, að hann þekti mátt hinn- ar „Gullnu reglu“ og stjórnaði og lifði samkvæmt henni. G. J. Oleson til að þjóna prestslausum söfn- uðum eftir því sem kraftar leyfa. Við óskum séra Sigurði farsællra daga. ____*____ Kvenfélag Konkordiasafnað- aðar gaf úr sjóði $50.00 til „The flood relief fund“. Söngflokkur Konkordiu-safn- aðar, undir forustu Mr. og Mrs. Marvin, hafði söngsamkomu í kirkjunni sunnudagskvöldið þ. 18. júní. Nærliggjandi söfnuðum var boðið að taka þátt í þessari samkomu. Kirkjan var troðfull. Það óska allir að fleiri samkom- ur af þessu tagi verði haldnar í náinni framtíð. Samskot voru tekin $59.75 og send til „The Flood Relief Fund“. Hér er dásamleg veðurblíða, grasspretta frámunalega góð og uppskeruhorfur í allra bezta lagi . . . „Gleðin skín á vonar- hýrri brá“ á öllum bændaheim- ilum. Nokkrir vinir úr fjarliggjandi héruðum hafa heimsótt okkur í sumar: Mrs. Hermann Sigurd- son frá Vancouver, B.C. er hér stödd að heimsækja bróður sinn, Magnús Bjarnason póstmeistara og vini. Mr. og Mrs. Bjarni Bjarnason vélstjóri hjá C. P.R. í Minnidosa, Man., er hér í sum- arfríi með fjölskylduna og Pet- rínu móður Mrs. Bjarnason. Þau tóku aðsér heimili og bújörð Mr. og Mrs. Sveins Gunnarsson- ar en sendu þau til Tribune, Sask. Ætli Bjarna finnist ekki mismunur að keyra lítinn „Case tractor“ í staðinn fyrir stóran eimketil? Hann hefir boðið mér að koma og hjálpa sér við bú- skapinn. Mrs. Björg Bjarnason, ekkja Sigurðar heit. Bjarnason- ar, er nýkomin úr ferðalagi vest- an frá hafi. Hún segir söguna vel að vestan og ber kveðju frá mörgum gömlum og góðum vin- um. Eirika dóttir Mr. og Mrs. Magnúsar Bjarnasonar var heima í þriggja vikna sumar- leyfi. Eirika er að stunda hjúkr- unarfræði á almenna spítalan- um í Winnipeg. Mr. og Mrs. Steini Einarsson og dóttir þeirra AnnaMae frá Regina hafa dvalið hjá skyldfólki sínu í Church- bridge og Calder um þriggja vikna tíma. Mr. og Mrs. H. Mar- vin keyrðu til Ninette, Mani- toba að heimsækja bróðurdóttur Mrs. Marvins, Miss Helen Joseps son. Við erum að hlakka til að Helen komi og heimsæki okkur í sumar heil heilsu og alfarin af hælinu. Allir heilir unz við sjáumst næst. Bæjarráð heiðrar elzta borgara bæjarins Á fundi sínum s.l. fimmtudag samþykkti bæjarráð að veita Önnu Sigríði Jónsdóttur á Naust um, sem átti 100 ára afmæli fyr- ir skemmstu, 3000 krónur „til viðurkenningar fyrir atorku og eljusemi á langri starfsæfi“. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylanda. Heimili 776 Vif'tor Street. Sími 19017. — Engar guðsþjónustur í júlí- mánuði. ☆ Árborg-Riverion prestakall 16. júlí — Árborg, íslenzk messa og ársfundur kl. 2. e. h. Geysir, messa kl. 8.30 e. h. 23. júlí — Vídir, íslenzk messa kl. 2. e h. — Framnes, messa kl. 8.30 e. h. B. A. Bjarnason ☆ — Churchbridge Prestakall —- Sunnudaginn þann 16. júlí ferming og altarisganga í Kon- kordia-kirkjunni kl. 1 síðdegis. Messað verður í Konkordia- kirkjunni alla sunnudaga kl. 1 síðdegis fram að 6. ágúst. Allar messurnar verða á ensku. J. Fredriksson ☆ — Tantallan, Sask. — Messað verður í Hóla-sam- komuhúsinu sunnudaginn þann 23. júlí kl. 4.30 síðdegis á ensku. Bygðarbúar eru beðnir að gjöra svo vel að auglýsa þessa messu. J. Fredriksson ☆ Messað verður í Sambands- kirkjunni á Lundar sunnudag- inn 16. júlí, kl. 2 e. h. E. J. Melan. Kæruleysi Mörg þó bifist gæfu gnoð, græðis hrifin fangi, skal ei rifa raka voð, Rán þó yfir gangi. Hótíðohöld við Borgarvirki 23. júlí Húnvetningafélagið í Reykja- vík ákvað fyrir nokkru að láta hlaða upp Borgarvirki hið forna í Húnavatnssýslu. Fékk félagið til þess nokkurn ríkisstyrk, en sér um fjáröflun að öðru leyti. Verkinu er nú langt komið og verður virkið vígt með hátíða- höldum hinn 23. júlí næstkom- andi. Eru þá ráðgerðar hópferðir þangað úr Reykjavík og víðar að. Unnið verður að því í sum- ar að laga veginn að virkinu. DAGUR, 7. júní Minnist CETEL í erfðaskrám yðar DAGUR, 7. júní Business Gollege Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business Traimng Immediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21 804 695 SARGENT AVI', WINNIPEG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.