Lögberg - 23.11.1950, Blaðsíða 1

Lögberg - 23.11.1950, Blaðsíða 1
Canada óætlar biljón dollara fjárveitingu til hervarna Á ÁTTRÆÐISAFMÆLI Dr. Rúnólfur Marteinsson Næstkomandi sunnudag á Dr. Rúnólfur Marteinsson átt- ræðisafmæli, og munu þá vafalaust streyma til hans margar hlýjar hugsanir, eins og reyndar svo oft endranær. Dr. Rúnólfur er góður kennimaður, góður íslendingur, en umfram alt annað, góður og drenglyndur maður. Lögberg flytur Dr. Rúnólfi og fjölskyldu hans innilegar hamingjuóskir í tilefni af áminstum merkisatburði. Félagsheimili U.M.Í.A. að Eiðum brann í Aukaþingi slitið Utanríkisráðherra sambands- stjórnarinnar, Mr. Pearson, lét nýverið svo ummælt, að víst mætti telja, að útgjöld Canada til hervarna á næstkomandi fjár- hagsári, mundu nema að minsta kosti biljón dollara, en slíkt er um 40 af hundraði umfram það, sem áætlað var í fyrstu; yfirlýs- ing Mr. Pearson mun fáum hafa komið á óvart, því í lok síbasta, reglubundna þings, gaf fjár- málaráðherrann, Mr. Abbott, ó- tvírætt í skyn, að allmikillar út- gjaldahækkunar vegna hervarna mætti vænta. Nú hefir, eins og vitað er, heil hersveit verið æfð og útbúin til þátttöku í Kóreustríðinu, sem óhjákvæmilega hefir mikinn kostnað í för með sér, auk þess sem fjárveitingar til flughers og sjóflota hækka að verulegum mun. Mr. Pearson kvað viðskiptalíf hinnar canadísku þjóðar bæði út á við og inn á við, vera í ágætu 'ásigkomulagi og gjaldþol henn- ar aldrei betra en nú. Dálaglegur frétfaburður Höfuðmálgagn rússneskra kommúnista, Pravda, sem gefið er út í Moskvu, flytur þau trú- legu, eða hitt þó heldur tíðindi, að General MacArthur, hernáms stjóri Bandaríkjastjórnar í Jap- an, sé önnum kafinn við uppkast að leynisamningi milli japönsku stjórnarinnar og amerískra yfir- valda, er í sér feli meðal annars það, að samið verði um hernám Bandaríkjanna þar í Japan til næstu 30 ára; þá fvlgir það og sögu, að Bandaríkjastjórn sé þess albúin, að veita Japönum biljón dollara lán til þess að byggja upp nýjan og fullkominn herafla, búinn öllum nýtízku vopnum; og svo á vitaskuld samkvæmt skilningi þeirra háu herra austur í Moskvu, að beita öllum þessum ófögnuði gegn al- saklausum kommúnistum. Áminsta frétt tjáðist Pravda hafa fengið frá Shanghai, og þá er svo sem ekki að sökum að spyrja varðandi sannleiksgildi fréttaburðarins. Biskup íslands og frú væntanleg vestur um haf Sú frétt hefir borist frá Min- neapolis, að biskup íslands, dr. Sigurgeir Sigurðsson og frú hans væru væntanleg vestur um haf innan skamms. Fylgdi það frétt- inni, að för þeirra væri sérstak- lega heitið til Rochester, Min- nesota, í lækningaerindum. Norðmenn ótfast samkeppni íslcndinga Eftir Oslóarfréttum að dæma eru Norðmenn farnir að óttast samkeppnina við íslendinga um sölu á saltfiski til Spánar. Carl Hambro, leiðtogi norskra íhalds- manna, hefir reynt að herða á norsku stjórninni, að senda sendiherra til Madrid. Segir Hambro að íslendingar hafi ný- lega gert mjög hagkvæman verzlunarsamning við Spán- verja, sejn nú ógnT fiskútflutn- ingi Norðmanna til Spánar. Kona sökuð um morð Síðastliðinn laugardag fanst örendur í íbúð sinni í Chateau Laurier hótelinu í Ottawa, kunn- ur lögfræðingur, Francis J. Sul- livan, 50 ára að aldri, lögfræði- legur ráðunautur námu- og land- eignadeildar fylkisstjórnarinn- ar í Ontario; heimili hans var í Toronto; sagt er að Mr. Sullivan hafi verið barinn í höfuðið til dauðs; kona hans, sem var jöfn honum að aldri, hefir verið sök- uð um að hafa myrt mann sinn. Borgaralegar varnir Forráðamenn hinna ýmsu deilda bæjárráðsins i Winnipeg hafa komist að þeirri niður- stöðu og mælt með því við bæj- arstjórnina, að nauðsyn beri til, að komið verði upp hið bráðasta hér í borginni skipulagsbundn- um, borgaralegum vörnum í því falli að óvinaher ráðist á Can- ada, og þá vitaskuld Winnipeg líka, sem er mikil járnbrautar- miðstöð og forðabúr; ráðgert er að ráðinn verði sérstakur skipu- lagsstjóri, er yfirumsjón hafi með öllum þeim vörnum, er til- tækilegt þykir að hrinda í fram- kvæmd; flestar stórborgir þessa lands, hafa þegar hafist handa um hliðstæðar varnaðarráðstaf- anir. Stóraukin iðnaðarfarmleiðsla Að því er nýjustu fréttir frá Belfast herma, hefir iðnaðar- framleiðslan í Norður-írlandi komist á hærra stig í ár, en nokkru sinni fyr. Norður-lrar vilja ekkert með sósíalisma hafa að gera, þeir trúa á einstaklings- framtakið og frjálsa verzlunar- samkepni; verklaun eru þar drjúgum hærri en viðgengst á Suður-írlandi. Sýnd verðug viðurkenning Paul Bardal, M. L. A. Við fjölsótta og virðulega guðsþjónustu í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg síðastliðið sunnudagskvöld, var Mr. Paul Bardal fylkisþingmaður, sæmd- ur skrautrituðu ávarpi í viður- kenningar og þakkarskyni fyrir langt og giftudrjúgt starf hans í þágu söngmála safnaðarins. Mr. Victor Jónasson safnaðarforseti, afhenti Mr. Bardal ávarpið með velvöldum orðum, en Mr. Bardal þakkaði fagurlega þá góðvild og sæmd, er sér með þessu hefði fallið í skaut. Mr. Bardal hefir um langt skeið unnið íslenzkri söngmenn- ingu meðal íslendinga vestan hafs mikið gagn, er að makleik- um skyldi metið; hann er góður félagsmaður og góður drengur. Laust eftir klukkan fjögur síðdegis í dag kom skyndi- lega upp eldur í tvílyftu timburhúsi nýbyggðu, sem Ungmenna- og íþróttasam- band Austurlands á við hinn nýgerða íþróttavöll sinn á Eiðum. — Brann húsið á skammri stundu til kaldra kola. Verið að tjarga þakið. Hús þetta var byggt að mestu leyti í fyrra, en eftir var að ganga frá því að ýmsu leyti. í gær voru tveir menn, annar þeirra Bóas Emilsson, íþrótta- kennari, að vinna við að tjarga þak hússins. Hituðu þeir tjör- una á olíuvél inni í húsinu. Log- aði á vélinni og höfðu þeir ný- lega sett tjörufötu á hana, en voru sjálfir að verki uppi á þaki hússins. Allt í einu sjá þeir, að þykkur reykjarmökkur og eldur gýs út um glugga og dyr. Þeir flýttu sér þegar niður og virtist þá sem í eitt eldhaf sæi inni í húsinu. Kölluðu þeir á hjálp, og kom von bráðar margt fólk á vett- vang frá Eiðaskólanum, enda er þar margt námsfólk. Alllangur spölur er þó frá skólahúsinu út á íþróttavöllinn. Fró Kóreu Undanfarna daga hefir herj- um sameinuðu þjóðanna miðað svo áfram, að forustusveitir þeirra eru komnar að landamær- um Manchuríu; en að austan sækja fram herskarar Suður- Kóreu í áttina til landamæra Síberíu. Á norðvestur vígstöðv- unum eru daglega háðir skæðir bardagar, en þangað hafa kín- vers kstjórnarvöld sent allmik- inn herafla til stuðnings við skoðanabræður sína í Norður- Kóreu. gær En húsið varð alelda á svip- stundu og stóð í björtu báli. Varð engu slökkvistarfi við kom ið, enda voru engin slökkvitæki við hendina. Brann húsið til kaldra kola á svipstundu. Sprakk olíugeymirinn? Geymir olíuvélarinnar, sem verið var að hita olíuna á, var úr gleri, og er búizt við, að hann hafi sprungið og síðan kviknað í olíunni og tjörunni. Hefir þegar orðið af því mikið bál. Hús þetta var sem fyrr segir tvílyft timburhús, byggt að mestu í fyrra og kostaði 25 þús- und krónur. Stóð það við hinn nýja íþróttavöll félagsins og átti að notast við samkomuhald og íþróttamót á honum. Á neðri hæð hússins var veitingasalur og eldhús, en á efri hæð geymsl- ur og fleira. Húsið hafði ekki verið tekið í notkun, en í því voru geymd íþróttaáhöld sam- bandsins, leirtau og fleira. — Brann það allt eða ónýttist. Er hinn mesti skaði að missi í- þróttaáhaldanna. Ákveðið hafði verið að halda landsmót U.M.F.f. að Eiðum sumarið 1952 og kemur það sér mjög illa, ef ekki verður búið að koma húsinu upp aftur fyrir þann tíma". Húsið var að sjálf- sögðu vátryggt, en erfitt mun að ná í efni til byggingar á ný —TÍMINN, 22. okt. Óvenju mikið um byggingar Árið, sem fer nú að syngja sitt síðasta vers, hefir verið eitt hinna meiriháttar húsabygg- ingaára í sögu Winnipegborgar; byggingar þær, sem þegar hafa verið reistar og verið er að reisa, nema að verðmæti nálega tutt- ugu miljónum dollara. Eins og vænta mátti, átti Mani- tobaþingið aðeins skamma setu að þessu sinni; því lauk seinni part fyrri viku; stundum voru háðar þar snarpar orðasennur, einkum milli hins nýdubbaða formanns stjórnarandstöðunnar, Mr. Willis og Campbells for- sætisráðherra, en flestir munu hafa verið nokkurnveginn á eitt sáttir um það, að hinn síðar- nefndi hefði haft yfirhönd í þeim vopnaviðskiptum; þingið var eingöngu kvatt til funda til lúkningar þeim kvöðum, sem á herðum stjórnarinnar hvíldu vegna flóðanna miklu í vor, sem leið, og tók það á sig ábyrgð á 14 miljón dala útgjöldum af þeirri ástæðu; af þeirri upphæð greiðir fylkið sex miljónir skil- yrðislaust, en hygst að fá átta miljónir frá sambandsstjórn í viðbót við þá hálfu þrettándu miljón, er sambandsstjórn hafði áður fallist á að veita; er þess að vænta, áður en langt um líð- ur, náist að fullu samningar í því efni. Mr. Campbell kvað fjárhag fylkisins í tíð núverandi stjórn- ar, standa á svo traustum fót- um, að greiðslur áminstrar fjár- hæðar færu fram úr núverandi sjóðum án þess að taka yrði lán eða stofna til nýrra skatta. Stofnun listaráðs í undirbúningi Björn Ólafsson menntamála- ráðherra upplýsti á alþingi í gær, að hugmyndin um stofnun listaráðs hefði verið til athug- unar að frumkvæði hans um nokkurt skeið og taldi, að skrið- ur myndi komast á það mál innan skamms. Boðaði mennta- málaráðherra, að hið fyrirhug- aða listaráð yrði skipað mestu andans mönnum þjóðarinnar, en tók ekkert frekar fram um val þeirra. Kom þessi yfirlýsing fram í sambandi við frumvarp Gylfa Þ. Gíslasonar um laun skálda, rit- höfunda og annara listamanna og stofnun listaráðs. Mennta- málaráðherra taldi einnig, að koma þyrfti úthlutun fjársins til skálda og listamanna í fastara horf en nú væri og verið hefði undanfarin ár. Frumvarpi Gylfa, svo og frum varpi Magnúsar Kjartanssonar og Jónasar Árnasonar um út- hlutun skáldastyrkjanna, var vís að til annarar umræðu og menntamálanefndar neðri deild- ar, þar sem bæði frumvörpin eru flutt. —Alþbl. 20. okt Sfórfjón af völdum áflæðis Undanfarna daga hefir stór- tjón hlotist af völdum áflæðis 1 Suður-Kaliforníuríkinu, þó eigi komist það á hálfkvisti við ó- sköpin, sem gengið hafa á í borginni Reno 1 Nevadaríkinu; en þar voru, að því er síðast fréttist, á þriðja þúsund manns án skýlis yfir höfuðið, og hvergi nærri séð fyrir endann á ham- förum náttúruaflanna þar um slóðir; sagt er að tveir menn hafi látið lífið; eignatjón er þegar orðið gífurlegt. Fyrsta sjálfsrakstursstofan í gær var opnuð í Albany sjálfsrakstursstofa, hin fyrsta í heimi. í stofunni er mikill speg- ill og við hann rafmagnsrakvél- ar. Raka menn sig sjálfir fyrir lítinn pening og fá hvers konar smyrsl og ilmvötn eftir óskum. Olíufundur í Manitoba Náttúrufríðindaráðherra fylk- isstjórnarinnar í Manitoba, Hon. J. S. McDiarmid, gerði það lýð- um ljóst á laugardaginn var, að fundist hefði olía skamt frá bæn- um Melita hér í fylkinu, þó enn væri eigi vitað hvort olíumagnið væri það mikið, að gerlegt þætti að hefja þar námuvinslu með gróðavænlegan atvinnurekstur fyrir augum. Námuverkfræðingar eru sagð- ir þeirrar skoðunar, að á áminst- um stað og í námunda við hann, geti auðveldlega verið um arð- vænlegar olíulindir að ræða. Nýr flokksforingi Á nýlega afstöðnu þingi Libe- ral-samtakanna í Ontario, var Walter Cunningham Tomson, K. C., kjörinn foringi Liberal- flokksins þar 1 fylkinu; hann er 54 ára að aldri, hefir um alllangt skeið gefið sig að málaflutnings- störfum í Toronto, en jafnframt rekið búskap í stórum stíl, og hefir nautgripahjörð hans getið sér frægðarorð. Mr Thomson er tiltölulega lítt kunnur á stjórnmálasviðinu; hann leitaði einu sinni kosning- ar til fylkisþings, en beið lægra hlut; í almennu kosningunum 1948 var hann kosinn á sambands þing; en hefir haldið fáar ræð- ur, er auðkendust af fyndni; hann tók þátt í fyrri heimsstyrj- öldinni og hlaut majórstign. Níutíu þingmenn eiga sæti í fylkisþinginu, en af þeirri tölu ráða Liberalar eins og sakir standa, aðeins yfir þrettán þing- sætum. Aldrei eins margir við guðfræðinám og nú I vetur eru fleiri stúdentar innritaðir í guðfræðideild há- skólans en nokkru sinni hefir áður verið. Síðastliðið vor út- skrifuðust fimm guðfræðingar úr háskólanum, en átta nýir stú- dentar bættust við í haust. Mun margt hinna efnilegustu manna í hópi guðfræðinemanna. Prestaskólinn, undanfari guð- fræðideildarinnar, tók til starfa 1847, og hafa á þeim röskum hundrað árum, er liðin eru síð- an, aldrei verið svo margir menn við guðfræðinám sam- tímis. — Undanfarin ár hefir verið mik- ill hörgull á prestum, svo að mörg prestaköll hafa jafnan ver- ið prestslaus. En eins og nú horfir, má vænta þess, að fljót- lega verði ráðin bót á prestsleys- inu, ef meginþorri guðfræði- stúdentanna tekur prestvígslu að námi loknu. Alþbl. 20. okt. LÍÚ vill áframhald- andi veiðitilraunir við Grænland Fulltrúafundur Landssambands íslenzkra útvegsmanna skoraði á alþingi og ríkisstjórn að stuðla að því að tilraunum íslendinga með fiskveiðar við Grænland og önnur fjarlæg fiskimið verði haldið áfram á næsta ári. , Taldi fundurinn að tilraunir þær, sem gerðar voru í fyrra við Grænland, hafi gefið mikils- verða reynslu; teldu sjómenn m. a., #ð þarna væri mjög stað- viðrasamt og aðstæður til fisk- veiða á margan hátt betri en hér.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.