Lögberg - 30.11.1950, Blaðsíða 5

Lögberg - 30.11.1950, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 30. NÓVEMBER, 1950 5 tJ AHUGAAiAL LVENNA Ritttjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Frú Bertha Beck í Grand Forks, N. Dakota, var nýlega kosin ein af þrem varaforsetum í Berklavarnafélagi Norður- Dakota ríkis (The North Dakota Anti-Tuberculosis Association) á fundi félagsins í Bismarck, N. Dak. Hafði hún áður í nokkur ár átt sæti í stjórnarnefnd félags- ins. Þá hefir hún nærri í áratug verið ritari Grand Forks deildar félagsins og samtímis haft um- sjón með árlegri sölu jóla- merkja (Christmas Seals) þar í borg til stuðnings berklavörn- um. Frú Bertha Beck er ein hinna glæsilegustu og mikilhæfustu íslenzkra kvenna vestan hafs. Hún er kunn hjúkrunarkona. Hún er listræn með afbrigð- um, eins og heimili þeirra hjóna ber vitni um; þangað liggja leið- ir margra, því gestrisni þeirra hjóna er rómuð, ekki einungis meðal fslendinga beggja vegna hafsins heldur og meðal sam- borgara þeirra. En starfssvið frú Berthu nær langt út fyrir tak- mörk heimilisins eins og ofan- greind frétt gefur til kynna. Er það fagnaðarefni þegar íslenzk- ar konur standa í fremstu röð þeirra, er berjast fyrir mannúð- ar- og menningarmálum okkar. ----☆---- Dr: Doris Odlum: Myrkfælni, einvera og önnur hræðsluefni barnanna LESARI GÓÐUR! Varstu ekki stundum hræddur, þegar þú varst barn. Manstu hvað þú óttaðist mest? Myrkrið? Eða varstu hræddastur við að týn- ast og verða viðskila við mömmu? Þetta tvennt eru einmitt al- gengust hræðsluefni barna. Myrkfælni þjáir fleiri en börn. En fullorðna fólkið blygð- ast sín einatt fyrir myrkfælni sína og tekur hart á börnum sínum í þessum efnum án þess að gera tilraunir til að skilja þau. Fólk heldur ef til vill, að það hjálpi börnunum til að vinna bug á myrkfælni þeirra ef það hlær að þeim eða segir þeim, að þau séu hugleysingjar. En þetta er hinn mesti misskilningur. Með því móti læra börnin að blygðast sín fyrir hræðslu sína, þau fara að trúa því sjálf að þau séu kjarklítil og aðrir fyrir- líti þau. Þetta aftur á móti leiðir til þess, að börnin verða feimin og þau missa sjálfstraust sitt. Hræðsla við myrkur er að ýmsu leyti eðlileg. Það er ó- neitanlegra hættulegra að hreyfa sig eða taka sér eitthvað fyrir hendur, þegar maður sér ekk- ert. Myrkfælni barnanna er samt ekki sprottin af því, að þau séu hrædd við að meiða sig held ur óttast þau drauga, innbrots- þjófa, eða hættuleg dýr, sem kynnu að ráðast á þau. Drengur, 5 ára, er kom í leiðbeiningar- stöð mína, trúði mér fyrir því, að honum fyndist alltaf morgun sloppurinn sinn bak við hurð- ina vera maður, sem hengi þar. Annar lítill drengur gekk með þá meinloku, að undir rúmi hans leyndist Þjóðverji með byssusting. Athuganir mínar hafa leitt í ljós, að drengir á aldrinum 4—6 ára eru hræðelu- gjarnari en stúlkur. Ef barn þjáist af myrkfælni er sjálfsagt að það fái að hafa ljós hjá sér eða opið inn til sín, er það fer að hátta. Þú munt oft hafa heyrt mjóa rödd kalla að kvöldlagi og biðja um að gefa sér að drekka eða heyrt hana ávarpa hvern einstakan meðlim fjölskyldunnar og bjóða honum góða nótt í þeirri von að einhver líæmi til sín og verndaði sig gegn Frú Bertha Beck hinu ægilega myrkri. Myrk- fælni getur oft orsakað martröð og gert börn kvíðin við að hátta. Af sömu orsök geta börn orðið lystarlaus, megrast og fengið meltingartruflanir. Óttinn við að tapast eða verða viðskila við foreldra sína er mjög ríkur hjá börnum á aldrinum 2ja til 5 ára. Það kom í Ijós í stríðinu, að börn innan við 5 ára aldur, sem voru flutt að heiman án þess að mæðurnar væru með, urðu stundum svo önug og vansæl, að þau bein- línis veiktust. Litlum börnum er nauðsyn að vita sig fullkom- lega örugg gagnvart umhverfi sínu. Fæst þeirra geta sætt sig við það, áð skipt sé um þá, sem eiga að gæta þeirra. Til 5 ára aldurs er barnið og fjölskylda þess ein heild, sem ætti ekki að rjúfa. Af þessum sökum eru sum tilfinningarík börn síhrædd um að foreldrar þeirra deyi frá þeim og verða sjálf beinlínis las- in ef móðir þeirra veikist. Nú hef ég minnst á tvenns konar hræðslu,( sem er algeng og sameiginleg fyrir fjölda barna, en þar fyrir utan eru mörg börn haldin af ýmis konar ótta. T. d. var einn lítill dreng- ur ávalt hræddur um, að hann gleypti ofan í sig hnappa. Ann- ar þjáðist af óeðlilegri eld- hræðslu. Lítil stúlka, sem ég þekti, vildi aldrei fara ein út ef hvasst var, af því að móðir henn- ar hafði einhverntíma sagt við hana, að vindurinn væri svo sterkur að hann gæti tekið hana á loft. Ég býst við að hún hafi ímyndað sér, að hún myndi svífa upp í háloftin eins og gasbelgur og aldrei komast niður á jörð aftur. Þó furðanlegt sé, sýna börn ekki áberandi hræðslu í loft- árásum, séu þær ekki því ægi- legri. Þau verða meira að segja fyrir einkennilega litlu áfalli þó sprengja falli niður í íbúðarhús þeirra. Ég held þetta sýni, að börn geta betur horfst í augu við beina hættu, heldur en ástæðu- lítinn ótta, sem þau skapa sér sjálf. Með því að gera sér grein fyrir þessu, skiljum við börnin okkar betur og eigum hægara með að veita þeim stuðning og uppörfun, þess þurfa börnin ein- mitt við í ríkum mæli. Á þann hátt eflum við sjálftraust þeirra og veitum þeim styrk til að vinna bug á hræðslu sinni. Vaxandi þjóðtekjur Á síðasta þingi gerði fjármála- ráðherra sambandsstjórnar, Mr. Abbott, ráð fyrir því, að tekju- afgangurinn á yfirstandandi ári myndi nema $15,000,000. En nú er komið upp úr kafinu, að við lok fyrstu sjö mánaða af árinu, var rekstrarágóði þjóðarbúsins kominn upp í $303,800,000. Má þetta óneitanlega kallast vel að verið. . Öskjurnar fró Fyrir rúmum fjörutíu árum urðu allmiklar blaðadeilur út af grip einum, öskjum (svonefnd- um bakstursöskjum) er síra Jens Pálsson, þáverandi eigandi Bessa staða, lét af hendi við Jón kon- súl Vídalín, gegn eftirlíkingu, sem konsúllinn afhenti kirkj- unni í staðinn. Jón konsúll og Helga kona hans voru, eins og alkunnugt er, ákafir safnarar allskonar fornminja. Einkum leituðu þau fanga í kirkjum landsins, og þótti mörgum þjóð- hollum mönnum furðu gegna, hve fengsæl þau urðu. Komust þau hjón yfir marga dýrmæta gripi, sem mikil eftirsjá var að. Töldu ýmsir, þá er þeir voru fluttir úr landi, að þeir hefðu kvatt ísland í síðasta sinn. Svo varð þó ekki. Vídalínssafnið var allt gefið hingað heim eftir dag þeirra hjóna og er nú sérstök deild í Þjóðminjasafninu. Einhver bezti gripur Vídalíns- safns eru öskjur þær úr Bessa- staðakirkju, sem minnst var á í upphafi þessa máls. Matthías Þórðarson, fyrrverandi þjóð- minjavörður, lýsir öskjunum á þessa leið: „Stærð askjanna er þessi: Lengd 12,6 sm., breidd 11,2 sm. og hæð 6,6 sm. Efnið er silfur, og eru öskjurnar algylltar utan og innan. Þyngdin er 1 pund. Verkið er sérlega vel unnið að öllu leyti; öskjurnar eru mjög vel slegnar út og drifnar og grafnar mjög að utan, sveigðar í rococco-stíl á göflum og hlið- um, blöð á hornum, bekkur á umgjörð loks, og eru á því, beggja vegna við sléttan flöt með áletrun, drifnar myndir og upp- hleyptar kvenlegum verum, er eiga að tákna tvær af höfuð- dyggðunum: Speki vinstra meg- in, með bók undir hægri hendi, og Rétivísi hægra megin, með brugðin brand í hægri hendi. — Þessar myndir eru ekki settar af smiðnu'm á þennan grip af handahófi, heldur með beinu tilliti til þess manns, er hann var gerður fyrir. — Öskjurnar standa á 4 steyptum ljónsmynd- um. Ljónin liggja og bera öskj- urnar á baki sér“. Hver smíðaði öskjurnar? Svo vel vill til, að hægt er að svara með öruggri vissu þeirri spurningu, hver verið hafi sá listamaður, er öskjur þessar smíðaði. Ber það meðal annars til, að neðan á botni þeirra er stimpill smiðsins, stafirnir S. T. S., og ártalið (17) 74 fyrir neðan þá. Hið sama ártal er einnig á áletruninni á lokinu, eins og síðar mun getið. Stimpill þessi er merki Sigurðar gullsmiðs Þorsieinssonar. Sigurður var sonur Þorsteins Sigurðssonar sýslumanns í Múlasýslu (d. 1765). BróðirHBigurðar var Pétur sýslumaður, faðir Sigurðar Pét- urssonar skálds og sýslumanns. Sigurður Þorsteinsson fór til Kaupmannahafnar, lærði gull- og silfursmíði og varð meistari í iðn sinni 1742. Hann dvaldi síð- an alla ævi í Kaupmannahöfn og nefndist þar Sivert Thor- stefnsson. Bjó hann lengi við Austurgötu, og er getið þar allt til ársins 1789. Var hann mikil- hæfur maður og mjög fyrir stéttarbræðrum sínum í ýmsum greinum, enda „Oldermand" eða Öldungur fyrir gullsmiðafélag- inu í 18 samfelld ár. Hann varð einnig „Capteinn við það fyrsta Borgerskabs — Compagnie í Kappmannahöfn“. Egi er vitað hvaða ár hann andaðist, en mun hafa lifað fram undir aldamót. Meðal barna Sigurðar var „Pét- ur, sem varð Doctor Medicinæ í Kóngsbergi í Noregi samt Pro- fessor, og Inspector þar við Berkverksskólann“, að því er segir í æviminningu Þorsteins sýslum., föður Sigurðar gull- smiðs. Matthías Þórðarson getur þess, að til séu nokkrir smíðisgripir eftir Sigurð bæði á íslandi, í Danmörku og í Noregi, þar á Bessastöðum meðal borðbjalla úr silfri, og kóróna. Var bjallan eitt sinn í eigu Friðriks konungs 7. Fjórir gripir eftir Sigurð eru í Þjóð- minjasafni, auk askjanna frá Bessastöðum. Er þar á meðal kaffikanna úr silfri „allstór og með ágætu verki, gerð 1784“. Könnu þessa gaf Sigurður Pétri sýslumanni bróður sínum, en Sigurður skáld sonur hans erfði hana eftir föður sinn. Eftir Sig- urð eignaðist könnuna ísleifur etazráð Einarsson og erfði Jór- unn dóttir hans hana eftir hann, en frá Páli Melsted sagnfræð- ingi, manni Jórunnar, kom hún til safnsins. Matthías Þórðarson fer svo- felldum • orðum um Sigurð og verk hans: „Af handaverkum Sigurðar gullsmiðs öllum má sjá, að hann hefir verið einka góður smiður og kunnað vel til hinna ýmsu greina í sinni iðn. Virðist hann hafa verið sérlega smekkvís maður og jafnframt fylgzt vel með breytingum samtíðar sinn- ar í stílnum og tízkunni. — Eng- inn núlifandi íslenzkur gullsmið ur virðist geta jafnast við hann, svo kunnugt sé“. (Ritað 1912). í fyrsta bindi rita Lærdóms- listafélagsins, bls. 20—25, er rit- gerð um gyllingu, eftir Sigurð gullsmið Þorsteinsson. Lýsir hann þar hinni svokölluðu heitu gyllingu (kvikasilfursgyllingu) en það er sama gylling og er á öskjunum frá Bessastöðum. Öskjurnar og Ólafur stiftamtmaður. Eins og fyrr greinir, er all- mikið letur grafið á lokið á öskj- unum. Er þar eftirfarandi áletr- un: „Tillagt Bessastaða Kyrkiu af Amtmanne Olafe Stephenssyne og Fru Sigride Magnusdöttur Fyrir Legstað þeirra Foreldra sáluga Amtmanns Magnúsar Gislasonar og Frur Þörunnar Guðmundsdöttur samt þeirra tveggja Dætra Ao 1774“. Sennilega á Sigurður gullsmið ur einhverja sök á því hve dönskuskotin þessi áletrun er, og eins hinu, að sagt er „þpirra foreldra“, þótt aðeins sé átt við foreldra frúarinnar, en tengda- foreldra Ólafs Stephensen. öskjur þessar eru vafalítið búnar til beinlínis eftir ósk Ólafs stiftamtmanns. Auk áletrunar- innar benda til þess myndirnar á lokinu, sem valdar munu með tilliti til stéttar hans og stöðu. Þau ummæli, að gefendurnir „tilleggja“ kirkjunni öskjurnar „fyrir legstað þeirra foreldra“, mun vera svo að skilja, að þau gefa kirkjunni gripinn til minn- ingar um hið tiltekna fólk, á sama hátt og kirkjum hafa verið „tillagðir“ minningaskildir og minningaspjöld. Öskjur þessar voru eign Bessa staðakirkju allt til ársins 1897 er þáverandi eigandi Bessastaða, síra Jens Pálsson lét þær af hendi við Jón konsúl Vídalín, í stað eftirlíkingar af þeim, sem konsúllinn lét gera í staðinn. Þessi ráðstöfun vakti allmikla gremju, sem vonlegt var, svo og ýmsar fleiri tilraunir Jóns kon- súls og frúar hans til að kom- ast yfir forna og merka kirkju- gripi. Komu fram kröfur um það að afstýrt yrði með lögum „brutli og prangi með helgidóma kirknanna“. Eigi dró það úr ó- ánægju þjóðhollra manna, er safn þeirra konsúlshjóna var ein helzta deildin í svonefndri „Dansk Koloniudstilling samt Udstilling fra Island og Færö- erne“, er haldin var í Kaup- mannahöfn. Var sýning þessi ýmist nefnd „hjálendusýningin“ eða „skrælingjasýningin“. Þar var ýmislegt muna frá Græn- landi, svo og nýlendum Dana í Vestur-Indíum. Þótti íslending- um að vonum illur kostur að vera settir á bekk með hverjum öðrum hjálendum Dana. Fannst mörgum smekkleysi, að sýna ís- lenzkar stúlkur á þjóðbúningi við hlið eskimóa og blökku- manna, enda var mikið um þessa furðulegu sýningu ritað í blöð hér, þótt eigi verði það rakið í þessu sambandi. Verndun fornminja. En „fátt er svo með öllu illt, að eigi boði nokkuð gott“. Svo var um hina áköfu söfnunarher- ferð Jíins konsúls Vídalíns og konu hans. 1 tilefni af þeirri söfnun og „hjálendusýningunni" var á alþingi 1905 samþykkt svo- hljóðandi tillaga til þingsálykt- unar: „Alþingi ályktar að skora á landsstjórnina að leggja fyrir næsta alþingi frumvarp til laga um verdun fornminja 1 landinu og reisa nú þegar alvarlegar skorður gegn því, að forngrip- um úr kirkjum eða frá öðrum opinberum stofnunum sé fargað úr landinu frekar en orðið er“. Þessi hreyfing varð til þess, að samþykkt voru árið 1907 lög um verndun fornminja og sér- stakur fornminjavörður skipað- ur. Var sú löggjöf hin þarfasta, enda má segja, að hún kæmi 1 veg fyrir áframhald þess „bar- barisma“, sem ríkt hafði helzt til lengi í þessum efnum. Þá er loks þess að geta, að eft- ir blaðastyr þann, sem varð ár- ið 1905 út af öskjunum frá Bessa stöðum, (í sambandi við „hjá- lendusýninguna“) ánöfnuðu þau Vídalínshjón Þjóðminjasafninu grip þennan eftir sinn dag. Síðar ánöfnuðu þau safninu einnig alla íslenzka muni sína aðra. Var það heiðarlega gert og mun sú ráðstöfun halda minningu þeirra betur á lofti en flest annað. Má nú sjá í Þjóðminjasafni gripi þá alla, er þau hjón höfðu eignazt hér með ýmsum hætti, þar á meðal hinar ágætu öskjur úr Bessastaðakirkju. G. G. (Alþýðuhelgin) Fjaðrafok Slrandarkirkja. Kirkjan á Strönd í Selvogi var helguð Maríu mey og heilögum Tómasi erkibiskupi. Það er mál manna að séra Eiríkur í Vogs- ósum hafi komist yfir flís af krossinum helga í Kaldaðarnesi, þegar hann var brotinn niður, og skeytt hann einhvers staðar inn í viðinn í Strandarkirkju. En tvennum sögum fer um það, hvernig hann hafi náð flísinni. Sumir segja, að hann hafi tekið hana sjálfur, þegar krossinn var felldur, en það var reyndar löngu fyrir daga séra Kiríks. Aftur á móti segja aðrir, að hann hafi náð henni á hjalla í Ölfusi, hjá gamalli kerlingu, og er það sennilegra. Þau ummæli eru höfð eftir séra Eiríki, er hann kom síðast í Strandar- kirkju, að mönnum mundi að öllum jafnaði verða að ósk sinni, ef þeir hétu á kirkjuna. Hefir það ræst vel, því að enn í dag er heitið á kirkjuna, og verður hún jafnan vel við. (ísl. galdra- menn). Fyrir 300 árum. Jón hét maður, kallaður Sýu- son; honum hafði stjúpdóttir hans kent barn, en hann með- gekk aldrei; bárust á hann líkur og fékk hann ei eiðamenn, var síðan dæmdur til dauða 1650. Hann varð illmannlega við og fékk eigi böðullinn höggvið hann, því öxin þótti vefjast upp sem í steini; urðu þv^ mjög mörg höggin áður en hann dó; fundu þeir á honum svartan rúnastaf í skónum, á eikarspjaldi og haus- skel af manni með hári á, og héldu hann fjölkunnugan mjög, og brendu kroppinn. (Árb. Esph.) Augun í selnum. í ævisögu sinni segir Daníel Daníelsson frá því er þeir voru að seladrápi í vognum hjá And- ríðsey. Lögðu þeir nót fyrir vog- inn, voru á báti meðfram henni og rotuðu seli/ia, sem lentu í nótinni, er þeir ætluðu út úr vognum. „Við, sem að þessu unnum, kölluðum * þetta sport“, segir hann. „En nú fengist ég ekki til þess að horfa í augu á sel, sem flæktur væri í nót, og slá hann þar með barefli. Ég get ekki lýst augnaráði sels, sem er svo fjötraður, að hann getur enga björg sér veitt, en verður að þola högg og slög frá manni, sem hann hefir aldrei unnið mein. Augnaráðið er ekki hvasst, það er framur spyrjandi eða dreymandi. — Á meðan ég er að skrifa þessar línur, er mér sem ég sjái enn augnaráð sumra sel- anna, sem ég fyrir röskum aldar- fjórðungi sló í rot í lóninu hjá Andríðsey. Líklega á hér við málshátturinn: Tvisvar verður gamall maður barn“. Fyrir 100 árum. 1 janúar voru nú alment haldn ir fundir í hverjum hrepp, eink- anlega til að tala um kosning- ar til þjóðfundarins, er halda átti í Reykjavík á þessu sumri. Vonuðu menn nú eftir algjörðri, æskilegri og endurbættri stjórn- arlögum, með miklum fögnuði. Sýslunefndir voru settar, er sömdu stjórnarfrumvörp, er mörg urðu samhljóða, handa þinginu að velja úr það bezta, eftir landsins hagsmunum. Voru þau send til prentunar í Reykja- vík, en af því stiptsyfirvöldin þótti þa ðei geta orðið einhvers hlutar vegna, voru skjöl þessi send út og því síður álitin til prentunar. Þóttist stjórnin nú finna sjálfbyrgings- og uppreisn- aranda hjá Islendingum, þar sem þeir vildu ekki gefa sig að öllu á vald Danastjórnar. (Branda- staða-annáll). Minnist ECTEL í erfðaskrám ySar TOGARADEILAN LEYST: Bóðiraðilar samþyktu tillöguna Togararnir eru nú að búast á veiðar og voru nokkrir tilbúnir í gærkveldi: Atkvæðagreiðsla í sjómanna félögunum og Félagi ís- lenzkra botnvörpuskipaeig- enda um síðustu sáttatillögu sáttanefndarinnar lauk að mestu í gærkveldi og urðu úrslit þau, að báðir aðilar samþykktu hana nema á Siglufirði. í félagi íslenzkra botnvörpu- skipaeigenda f ó r atkvæða- greiðslan þannig, að já sögðu 24, en nei 4 og 7 seðlar voru auðir. í Sjómannafélagi Hafnarfjarð- ar sögðu 81 já, 53 nei og tveir seðlar voru auðir og ógildir. Alls greiddu atkvæði 136 menn. í Sjómannafélagi Reykjavík- ur sögðu 277 já, 143 nei og 7 seðl- ar voru auðir og ógildir. Á Isafirði sögðu 36 já, 24 nei. A Siglufirði sögðu 14 nei og 6 já. Einn seðill var auður. Er því Siglufjörður eini bærinn, þar sem tillagan var ekki samþykkt. Atkvæðagreiðslu var ekki lokið á Akureyri og í Neskaupstað vegna fjarveru togarasjómanna. Togararnir fara á veiðar. Með þessum úrslitum at- kvæðagreiðslunnar má telja að togaradeilan sé nú loks leyst eftir fullra fjögurra mánaða verkfall. Togararnir voru sem óðast að búast á veiðar í gær- kveldi og sumir hafa að líkind- um farið út þegar í nótt svo sem togarar frá Hafnarfirði. Flestir munu fara á karfaveiðar. —TIMINN, 2. nóv.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.